Lögberg - 30.12.1937, Blaðsíða 8

Lögberg - 30.12.1937, Blaðsíða 8
k'enings Thermique Heatless Permanent 15 x ■*■ OUAKAMKFJ) AnoiNTMENx EpjQKS0N’S BEAUTY parlor eeasonable 950 GARFIELD ST. - - PHONE 89 527 Ur borg og bygð Dr. A. B. Ingimundson verÖur staddur í Riverton þann 4.v janúar næstkomandi. OT^INBER KVEÐJA Beztu nýársóskir til íslenzku kven- félaganna vestanhafs ,með hjartans þakklæti fyrir yinsamlega hjálp og aðstoð við samkomur mínar. Beztu óskir um blessunarríkt starf á kom- andi árum. Halldóra Bjarnadóttir. Nú í kvöld (fimtudag) verðiur haldin 50 ára minningarháKíð ís- lenzku bindindisfélaganna Skuldar og Ileklu, og er búist við mikilli að- sókn, því slikir tyllidagar koma ekki oft fyrir á mannsæfinni. Fallegar myndir af jólasögunni verða sýndar í sambandi við messuna í Gimli kirkju sunnudagskvöldið 2. janúar, kl. 7 e. h. Myndirnar eru 88 að tölu, í þrem- ur pörtum: 1. Fæðing Jesú, með ýmsum viðburðum er þá áttu sér stað; 2. Ungdómsár Jesú, og 3. Byrjun á hans prestsembætti. Á mánudagskvöldið þann 3. jan- úar, kl. 8.30 e. h., sýnir séra Guðm. P. Johnson myndir af íslandi, i Gimli kirkju, og verður það almenn skemtisamkoma, líka verða þar sungnir íslenzkir þjóðsöngvar, og einnig sýndar nokkrar gamanmyndir fyrir börn og ungmenni. Inngangur ókeypis, en samskota leitað. Fólk er beðið að fylla kirkjuna bæði sunnu- dag og mánudag. Allir hjartanlega velkomnir. I.O.D.E., Jón Sigurdson Chapter, heldur sinn næsta fund að heimili Mrs. J. S. Gillies, 680 Banning St., á þriðjudagskvöldið þann 4. jan., k!. 8 e. h. í síðasta blaði Lögbergs ( minn- ingar- og jólablaðinu) var mynd og nokkrar línur viðvíkjandi River Park Toboggan Slide. Þar segir “hringferða rennur”; til þess að komast hjá misskilningi, er mein- ingin, að þegar sleðar þeir, sem sendir eru frá austur-turninum eru komnir alla leið, er farið upp á ann- an turn að vestan, og sú renna tekur fólk til baka alla leið heim að bygg- ingu þeirri, er veitir fólki hlýju og þægindi. Einnig fæst þar alt, sem fólk lystir af mat og drykk. Eftir- lit er eins gott og unt er; sérstakt eftirlit með unglingum. Unglingar undir 8 ára ekki teknir, nema eldra fólk fylgi. Hér er um eina þá holl- ustu útiskemtun að ræða, sem hugs- ast getur, og ætti fólk því alment að færa sér hana í nyt. Agnes S gurðson A.M.M. Teacher of Piano Studio: 17 Lenore Street. Winnipeg Þér getið aukið við núverandi tekjur Umboðsmenn öskast tll þess að selja legsteina. Hundruð af þeim seld I bygðarlagi yðar. Við leggjum til sýnishorn og segjum fyrir um söluaðferðir. Skrifið eftir upplýsingum til 695 Sargent Ave., Winnípeg. NÝ MATREIÐSLUBÓK Kvenfólag Fyrsta lúterska safn- aðar hefir nú til sölu nýprentaða matreiðslubók. Verð $1.00., Eftir. fylgjandi taka ámóti pöntunum: Mrí! G. F. Jonasson, 401 722 195 Ash St., Winnipeg, Man. Mrs. O. B. Olson, 907 Ingersoll St., Winnipeg Mrs. Ben. Baldwin, 24 228 Ste. 22 Emily Apts., Winnipeg Mrs. O. R. Phipps, 31 476 522 Furby St., Winnipeg, Man. Mrs. E. S. Feldsted 33 265 525 Dominion St., Winnipeg Mrs. H. H. Eager, 202 258 151 Ferndale Ave., Norwood. Mrs. T. Blondal 86218 909 Winnipeg Ave.,. Winnipeg Mrs. F. Thordarson, 35 704 996 Dominion St., Winnipeg Mrs. Wk R. Pottruf f, 36860 216 Sherburn St., Winnipeg Mrs. K. J. Backthan, 30 45° 893 Garfield St., Winnipeg. Mrs. A. C. Johnson, 33 328 414 Maryland St., Winnipeg. Mrs. Finnur Johnson, 37 786 Ste. 14 Thelmo Mans., Wpg. Mrs. B. J. Brandson, 403 288 214 Waverley St., Winnipeg. Mrs. H. Palmasoi., 87 519 942 Sherburn St., Winnipeg Mrs. G. M. Bjarnason, 71 342 448 Greenwood Pl., Winnipeg Mrs. C. Olafson, 30017 Ste. 1 Ruth Apts., Winnipeg Mrs. J. S. Gillies, 38 078 680 Banning St., Winnipeg Mrs. A. S. Bardal, 501 562 Lot 62, Hawthorne Ave., E. Kild. Mrs. O. Stephensen, 30411 2-118 Sherbrook St., Winnipeg. Mrs. E. W. Perry, 49 701 21 Estelle Apts., Winnipeg. Hinn 8. des. s.l. fór fram jarðar- för Guðmundar Kristjáns Nord- mans, er lézt á spítala í Winnipeg þann 4. des. eins og áður hefir ver- ið skýrt frá. Jarðarförin fór fram frá heimilinu og kirkju hans í Brúar- bygð, að viðstöddum nánustu ætt- ingjum og vinum. Harm var fæddur að Gimli 17. sept. 1879, en fluttist barn að aldri til Argyle ásamt for- eldruim sínum Guðmundi Guð- mundssyni Nordman og konu hans, en þau voru landnámsmenn í Argyle- bygð. Kona Guðmundar, Sigurbjörg Sigurðardóttir, lifir mann sinn á- samt fimm börnum þeirra, er öll eru uppkomin og mannvænleg. Einnig lifa hann tveir bræður og tvær syst- ur.—Séra E. H. Fáfnis jarðsöng hinn framliðna. Mr. Björn A. Björnsson, Radio- sérfræðingur frá Moose Jaw, Sask., kom til borgarinnar um jólin ásamt fjölskyldu sinni, i heimsókn til for- eldra sipna, þeirra Mr. og Mrs. Sigurður Björnsson, 679 Beverley Street. Björn hélt heimleiðis á mánudaginn, en fjölskylda hans dvelst hér í nokkra daga. J. BASTOW Pictures of Western Canadian Scenes for Sale Lessons in Pastel Painting 894 PORTAGE AVE. at Arlington Borgið mánaðarlega! Kaupið viðurkendar vörur BULOVA, ELGIN, WALTHAM Watches Gimsteinar og Gullstáss Semjið við C. Thorlakson j TVe carry a complete lirte oj BULOVA WATCHES H. Baldwin Ú rsmið Gullsmið \ 699 SABGENT AVE., WINNIPEG LÖGBHBG, FIMTUDAGINN 30. DESBMBER 1937. Spyrjiðþann, sem reyndi það áður Messuboð FYRSTA LÚTERSKA KIRKJA Nýársmessa á sunnudaginn kl. 11 f. h., (ensk messa), og íslenzk messa kl. 7 e. h. 'Gimli prestakall 1. jan—Betel, messa á venjuleg- um tíma: Gimli, íslenzk messa kl. 3 e. h. 2. jan.—-Betel, 'messa á venjuleg- um tíma; Gimli, ensk messa kl. 7 e. h. (Aðal þáttur þessarar messu verður myndasýning með skýringum á æfisögu og starfi Jesú Krists). 3. Jan.—Séra G. P. Johnson sýn- ir íslandsmyndir með útskýringum, kl. 8.30 e. h. í kirkju Gimlisafnaðar. Inngangur ókeypis, en samskota leitað. 9. jan.—Betel, messa á venjuleg- um tima. Gimli, íslenzk messa, kl. 3 e. h., og ársfundur Gimlisafnaðar. 16. jan.—Betel, messa á venju- legum tima. Gimli, íslenzk messa kl. 7 e. h. 23.—jan.—Messa í kirkju Mikl- eyjarsafnaðar kl. 2 e. h. Fermingarbörn á Gimli mæta til viðtals á heimili Mr. og Mrs. Helgi G. Helgason, föstudaginn 7. janúar, kl. 4 e. h. B. A. Bjarnason. Áætlaðar messur um áramótin: Nýársdag, Víðir kl. 2 e. h. 2. jan., Geysiskirkju, kl. 2 e. h. 9. jan., Ár*borg, kl. 2 e. h. Ársfundur safnaðar eftir messu. S. Ólafsson. Leiðrétting I minningarblaði Lögbergs, sem út kom f vikunni sem leið, hefir fall- ið úr nafn höfundarins að ritgerð- inni um Jón Ólafsson, skáld. Höf- undurinn er Mr. G. J. Oleson í Glenboro, ágætur maður og prýði- lega ritfær, eins og umrædd grein og margar fleiri ritgerðir i Lögbergi bera ótvírætt vitni. Á þessum mis- gáningi er höfundur greinarinnar beðinn afsökunar, þó Lögbergi sé ekki alveg um að kenna, þar sem höfundi var send próförk af grein- inni, en hann ekki gætti þess að setja nafnt sitt við. Mr. Magnus Paulson, kjörsonur frú Guðnýjar Paulson að 784 Beverley Street hér í borginni, dvaldi hér um jólaleytið; hann hélt heimleiðis á miðvikudagskveldið. Mr. Paulson á heima í Torontoborg, og starfar þar hjá Milner, Ross & Co., félagi, sem hefir einkum og sér- ílagi sölu veðbréfa með höndum. Dr. Richard Beck, prófessor í Norðurlandamálum og bókmentum við ríkisháskólann í North Dakota, kom til borgarinnar á þriðjudaginn, og dvelur hér fram yfir nýárið. Mrs. J. J. Vopni dvelur uni þess- ar mundir hjá börnum sínum vestur í landi. SAMKOMULAG 1 AKUR- EYRAR-DEILUNNI í gær lagði fulltrúi sáttasemjara, Þorsteinn M. Jónsson, fram sátta- tillögu í deilunni milli Iðju og S.I.S. og krafðist svars fyrir klukkan 7. Báðir aðilar samiþyktu tillöguna. í henni var þá ákveðinn grundvöllur að fullum samningum. Var unnið að samningagerðinni í gærkvöldi og. var ekki lokið laust fyrir miðnætti, er blaðið hafði síðast fregnir að norðan. Blaðið átti tal við Jónas Þór verk- smiðjustjóra. Skýrði hann svo frá, að erindreki Alþýðusambandsins, Jón Sigurðsson, hefði tilkynt sér, að verkfallsverðir væru farnir frá verksmiðjunum, og væri hægt að byrja undirbúning undir vinnu á fimtudagsmorgun. Verkfallið hefir nú staðið yfir í mánuð, byrjaði 2. nóvember. Uim úrslit samninganna sagði Jónas Þór þetta: Kaup hefir yfirleitt verið hækkað um 12%, en kaup vefara fyrstu ár- in nokkru meira, svo og byrjunar- kaup í skinnaverksmiðjunni. Aftur á móti hafa “Iðju”-menn fallið frá kröfu um stytting vinnu- tímans og skyldu verkafólks til að vera í Iðju. Vinnu tíminn var 9 klst., en í þeim tima voru innifaldir 2 kaffitímar, stundarfjórðungur hvor. En nú heitir það svo, að vinnutím- inn sé 8)4 klst., en í þeim tíma eru ekki innihaldir kaffitímar. I fyrstu heimtaði Jón Sigurðsson erindreki, að enginn mætti vinna við verksmiðjurnar, nema hann væri í félaginu “Iðju.” En síðar félst hann á, og þeir “Iðju”-menn, að fólk það, sem verið hefir í verksmiðjun- um þyrfti ekki að ganga í félagið,' aðeins það fólk, sem þangað yrði ráðið síðar. En í gærkvöldi féllust þeir á, að hafa enga siíka kvöð á verksmiðju- fólkinu, hvorki því sem þar hefir verið, eða því, sem þangað ræður sig síðar.—Morgunbl. 2. des. A ISLAND AÐ GANGA I BE RNA RSA MBANDID ? Á fundi norræna rithöfundaráðs- ins í Kaupmannahöfn hefir verið samþykt ályktun um það, að fara þess á leit að ísland gengi í Bernar- sambandið og skapaði þannig réttar- grundvöll til verndar verkum ís- lenzkra rithöfunda. Þá hefir og verið samþykt álykt- un þess efnis, að ísland taki þátt í samvinnu Norðurlanda um undir- búning nýrrar löggjafar um höfund- arrétt.—Morgunbl. 2. des. Hjónavígslur Síðastliðinn mánudag voru gefin saman í hjónaband í St. George’s kirkjunni hér í borginni, þau Miss Constance Noreen Murphy, dóttir þeirra Mr. og Mrs. Murphy, og Mr. Peter Duncan Curry, sonur Mr. D. S. Curry, sem látinn er fyrir all- mörgum árum, og frúar hans, Sigur- bjargar Curry. Áttu þau hjón lengi heima í San Diego, California, en nú hefir frú Curry heimili sitt hér í borg. Framtíðarheimili ungu hjón- anna verður í Winnipeg. Lögberg flytur þeim innilegar árnaðaróskir. Mannalát Þann 21. þ. m. lézt að heimili sínu í Brooklands, Man., Jón Tryggvi Goodman, 57 ára að aldri; hann læt- ur eftir sig ekkju, tvö börn og einn bróður, Carl Goodman í Winnipeg. Útförin fór fram frá Bardals þann 23. þ. m. Séra Björn B. Jónsson, D.D., jarðsöng. Hinn látni var fæddur í Mikley hér í fylkinu. Á jóladagsmorguninn lézt að Decker, Man., Jóans Brynjólfsson 78 ára að aldri, þingeyingur að ætt. Hann lætur ef/tir einn hálfbróður, Carl Goodman í Winnipeg. Aðfangadagskvöld jóla andaðist Jónína (Minnie) Búadóttir Mayer, á Almenna spítalanum hér í bæ. Hún var fædd á Skaga í Dýrafirði 1. janúar 1870. Foreldrar hennar voru Búi Jónsson og Þorlaug Guðbrands- dóttir kona hans. Ein systir er á lífi, Ólöf Búason j Vancouver. Árið Tryggið heilsu fjölskyldunnar með Crescent gerilsneyddri mjólk Drekkið gnótt gerilsneyddrar mjólkur. Sérsver pottur af CRESCENT gerilsneyddri mjólk, er heilsutrygging. Með því að kalla upp CRESCENT eða hóa í ökumanninn, fáið þér CRESCENT afgreiðsluna beint í húsagarð. CRESCENT CREAMERY hefir afgreitt mjólk til Winni- peg heimila í 32 ár. Þér getið fengið CRESCENT mjólk hjá CRESCENT ökumanninum, eða með því að hringja upp 37 101. Crescent Creamery Company Ltd. KAUPIÐ ÁVAL.T LUMBER . _.... hjá THE EMPIRE SASH & DOOR CO. LTD. HENRY AVENUE and ARGYLE STREET Winnipeg, Man. - Phone 95 551 1905 kvæntist hún Alva Moyer. Áttu þau tvo syni, er lifa móður sína, Wilfred og Daniel. Stutt kveðju- athöfn fór fram frá útfarasal Bar- dals undir stjórn séra Philip M. Pét- ursson s.l. mánudag, 27. þ. m., kl. 2 e. h., og var líkið síðan flutt til Winnipegosis, þar sem jarðað verð- ur. Hinn 8. des. s.l. andaðist af af- leiðingum heilablóðfalls, bóndinn Jón Kristján Reykdal, að heimili sinu skamt frá Baldur, Man. Hann var fæddur að Hóli í Köldukinn í S.-Þingeyjarsýslu 30. maí 1870. Fluttist vestur um haf 1893 og kom þá til Argyle. Hann lætur eftir sig konu og sjö börn, öli uppkomin. — Jarðarför hans fór fram frá lút- ersku kirkjunni í Baldur þann 19. þ. m., og voru viðstaddir ættmenn og vinir. Séra E. H, Fáfnis jarð- söng. Jakob F. Bjarnason TRANSFER SPARIÐ PENINGA I I ! Alfatnaðir og yfirhafnir, eins og nýir, við kjör- kaupaverði. GOWDY’S Second Hand Store 337 Notre Dame Ave., Winnipeg Sími 25 277 Borgum í peningum fyrir brúkaða hluti. Utanbæjarfólk skrifi eftir verðskrá. ííldSfI) JEWELLERS Extensive Collection of Select Gifts Diamonds - Gold - Silver —Very Moderate Prices— Annaat grelðlega um alt, iem aO flutningum lýtur, smáum *0a stðrum. Hvergi sanngj&rnara rerO. Heimili: 591 SHBRBURN ST. Sími 15 90« Ættatölur fyrir Islendinga semur: GUNNAR ÞORSTEINSSON P. O. Box 6o8 Reykjavík, Iceland 447 PORTAGE AVE. (Opp. The Bay) Phone 26 224 Minniát BETEL í erfðaskrám yðar Til þess að tryggja yður skjóta afgreiðslu SkuluO þér ávalt kalla upp SARQENT TAXI FRED BUCKL2S, Manager PHONE 34 555 - 34 567 SARGENT & AGNES WILDFIRE COAL “D R U M H E L L E R” Trade Marked for Your Protection. Look for the Red Dots. LUMP $11.50 per ton LARGE STOVE $10.50 per ton Phone 23 811 NPCURDY SUPPLY CO. LTD. 1034 ARLINGTON ST. 25 oz.....12.15 40 oz. $3.25 OLD RYE WHISKY (Gamalt kornbrennivín) GOODERHAM & WORTS, I.IMITED Stofnsett 1832 Elzta ítfengrisgerö í Canada. I rhlB advertisement is not inserted by the Oovernment Liquor Control Commlssion. The Commlsslon is not responslble for statements made as to the quallty of productn advertlsed.

x

Lögberg

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Lögberg
https://timarit.is/publication/132

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.