Lögberg - 07.04.1938, Blaðsíða 1
51. ÁRGrANGUR
WINNIPEG, MAN., FIMTUDAGINN 7. APRIL, 1938
MRS. B. H. OLSON
só'ósöngvari meÖ Winnipeg Philharmonic flokknum í "King
Olaf” eftir Sir Edvvard Elgar i Auditorium, mánudaginn þann
18. þ. m.
• Frá Islandi •
Or borg og bygð
á RáÖskona óskast til ekkjumanns
fílöd' og tímarit
Blik, blað Málfundafélags gagn-
fræðaskólans í Vestmannaeyjum, er
nýkomið út. Ritið fjallar að mestu
um bindindismál. Er þar skírskotað
til almennrar skynsemdar um skað-
semi áfengra drykkja og tóbaks.
Einnig ræðir Þorsteinn Þ. Víg*
lundsson húsbyggingarmál gagn-
fræðaskólans.
Febrúarblað Ægis kom út í gær
með ýmsum merkilegum greinum.
Þórður Þorbjörnsson fiskiiðnfræð-
ingur skrifar þar um vinslu á háfi
og hákarli og drepur á reynslu ann-
ara ]?jóða í þessu efni, einkum
Kanadabúa. Tilraunir, sem gerðar
voru í Sólbakkáverksmiðjunni árið
193Ó, til þess að vinna hákarlsbúka,
mistókst sem kunnugt er. Telur
Þórður það vélunum að kenna.
líinsvegar hafi það sama vór verið
bygð verksmiðja á Patreksfirði, sem
muni vel hæf til að framkvæma
þessa vinslu.—N. dagbl. 13. marz.
# ■# *
.1/ inning séra Haralds
Nielssonar
Á dánardegi séra Haralds Níels-
sonar, 10 árum eftir andlát hans,
ákvað Háskóli íslands að beita sér
fyrir því, að minning hins mikla
kennimanns og guðfræðings verði
veglega heiðruð, og væntir almennr-
ar þátttöku íslenzku þjóðarinnar til
þess að minning eins af hennar
mestu andans mönnum megi varð-
veitast um ókomnar aldir.
Háskólaráðið hefir stofnað sjóð,
sem beri nafn Haralds Níelssonar,
og verði tekjum hans varið til að
kosta einn mann á ári, til að flytja
fyrirlestra við Háskóla íslands.
Vonast lláskóiáráðlð til þess, að
nægilegt fé safnist í sjóðinn til þess
að völ verði á ágætum mentamönn-
um, erlendum og innlendum, til
fyrirlestrahalds hér við háskólann
og að unt verði að gefa fyrirlestr-
ana út, svo að öll þjóðin geti notið
þeirra.
Svo er til ætlast, að efni fyrir-
lestranna sé ekki einskorðað við á-
kveðnar fræðigreinar, heldur verði
boðið þeim mönnum,.sem líklegastir
þykja til að vekja og efla holla, and-
lega strauma og flytja margvíslegan
fróðleik. — Væntum vér, að undir-
tektir þjóðarinnar verði svo góðar,
að sjóðurinn geti tekið til starfa á
70 ára afmælisdegi Haralds Níels-
sonar, 30. nóv. næstkomandi.
Háskólaritari, hr. Pétur Sigurðs-
son, tekur á móti fratnlögum ti!
sjóðsins og annast fjárreiður hans
fyrir háskólans hönd, unz skipulags-
skrá verður samin. Úr Sáttmála-
sjóði hefir háskólaráðið lagt fram
1,000 krónur sem stofnfé.—
Reykjavík, 11. marz, 1938.
Niels Dungal
Asmundur Guðmundsson
Guðmundur Thoroddsen
Ólafur Lárusson
Sigurður Nordal.
—D. dagbl. 13. marz.
agc
K aupsamningum
sagt upp
Verkamannafélagið Þróttur á
Siglufirfei hefir sagt upp samning-
um við síldarverksmiðjurnar um
kaup verkafólks við þær. Samning-
arnir ganga úr gildi 1. maí næst-
komandi.
Gerir félagið kröfu um 10%
Fornaldar víkingur
Snjólikan það, sem mvndin sýnir af
harðsnúnum fornaldar víking, gerði
Mrs. G. J. Johnson (Kristín Val-
garðsson) að 109 Garfield Street
hér í borg; hlaut verk hennar 3.
hluta 2, verðlauna í Free Press
samkepninni. Mrs. Johnson hlaut
2. verðlaun í fyrra fyrir fagurmót-
að snjólíkan.
Men’s Club
Fundurinn í Men’s Club Fyrsta
lút. safnaðar á þriðjudagskveldið,
var prýðilega sóttur og að öllu leyti
hinn uppbyggilegasti. Séra Valdi-
mar J. Eylands flutti þar íturhugs-
að og gagnort erindi, er hann nefndi
“Hias the Church failed,” Hefir
kirkjan brugðist? Dr. B. J. Brand-
son þakkaðj ræðumanni hina ágætu
hugvekju hans með stuttri en kjarn-
yrtri tölu. Mr. Carl Preece skemti
með fögrum einsöng, en Norman
Bergman stjórnaði fundinum með
fyndni þeirri og því f jöri, sem hann
á vanda til. Veitingar voru hinar
beztu, og stuðluðu að því öl! öfl, að
gera fundinn sem eftirminnileg-
astan.
kauphækkun við alla vinnu, nema
helgidaga vinnu.
Allir verkamienjn verksmiðjanna
hafa samkvæmt núgildandi samn-
ingum haft tveggja mánaða kaup-
tryggingu yfir vertíðina og er mán-
aðarkaupið yfirleitt 325 kr., en við
erfiðari vinnu er greitt 370 kr.
mánaðarkaup. Fyrir mánaðarkaup-
ið vinna verkamenn 54 klst. á viku.
Allir verkamenn, sem ganga á
“vaktir,” en það eru a. m. k. 77% af
þeim, hafa 3ja stunda daglega eftir-
vinnu, þegar vinsla er. Eftirvinnu-
kaupið er kr. 200 á klst.
Dagvinnukaup hefir verið kr.
1.25, nema fyrir tímabilið 1. júlí til
30. sept. Þá hefir kaupið verið kr.
1.35. Auk 10% hækkunarinnar er
krafist að hærra kaupið verði greitt
fyrir tímabilið 15. júní til 15. októ-
ber..
Ennfremur er krafist, að - viiujp.
hætti á laugardögum kl. 4 hjá föst-
um verkamönnum, en hún hættir nú
kl. 6.
Þessar kaupkröfur myndu stór-
luekka reksturskostnað verksmiðj-
anna, ef að þeim yrði gengið, og
þar við bætist að síldarlýsið hefir
lækkað um 50% síðan í fyrra og
verð á síldarmjöli fer mjög lækk-
andi.
—Nýja dagbl. 11. marz.
* # #
Verður vegavinnan
stöðvuð í vorf
Stjórn Alþýðusambandsins hefir
nýlega tilkynt forsætisráðherranum
skriflega, að það segi upp samning-
um um vegavinnukaupið og mun
það hafa í hyggju að hindra vega-
vinnu strax í apríhnánuði, ef nýir
samningar hafa ekki verið gerðir
áður.
Núgildandi samningur um vega
vinnukaupið inilli ríkisstjórnarinnar
og Alþýðusambandsins, var gerður
16. mai 1935. Skyldi samningurinn
gilda um óákveðinn tima, en vera
uppsegjanlegur með tilteknum fyr-
irvara. — Kaupið var ákveðið kr.
0.90 klukkustund.
Það mun tilætlun Alþýðusam-
bandsstjórnarinnar, að knýja frani
kauphækkun,—Nýja Dagbl. 11 marz.
# # #
Ofviðrið 5. marz
Enn hafa borist fréttir af Austur-
landi, um eignatjón af völdum veð-
ursins 5. marz. Þetta er helzt:
Vopnafirði: í Vopnaf jarðar-
hreppi fuku þök af 7 hlöðum, sem
vitað er. Á Hofi fauk dúnhús og
20 hestar af heyi. Á Teigi fuku
25 hestar af töðu. Smáskemdir
urðu víðar í héraðinu. 1 Vopna-
fjarðarkauptúni fauk þak af lík-
húsi þorpsins, og fleiri smáskaðar
urðu þar. Veturinn hefir til þessa
verið óvenju mildur, og héraðið er
alautt. '
Seyðisfirði: Á Úlfsstöðum i
Lxiðmyndarfirði fuku tvær hlöður
og mikið hey. í Stakkahlíð fauk
þak af hlöðu. Á Sævarlandi fauk
hlaða, og i Neshjáleigu skemdist
íbúðarhús.—Vísir 10. marz.
Dr. Tweed verður í Árborg
fimtudaginn þann 14. þ. m.
Mr. Jóhannes H. Húnfjörð,
skáld, frá Árnes, Man., er staddur í
borginni þessa dagana.
Stórt herbergi til leigu að Ste.
6 Acadia Apts. nú þegar. Ágætt
fyrir tvær stúlkur eða barnlaus
hjón.
VVe can arrange the financing of
automobiles being purchased or re-
paired, at very reasonable rates.
Consult us — J. J. Swanson Sr Co.,
Ltd., 601 Paris Bldg., Winnipeg.
Mr. Steingrímur Johnson frá
Kandahar, kom til borgarinnar á
þriðjudagsmorguninn til þess að
vera við útför systur sinnar, Mrs.
J. G. Thorgeirsson.
Þeir Th. Thorfinnsson og Helgi
Bljörnson frá Mountain, Sigmundur
Laxdal frá Garðar og Jón Magnús-
son frá Akra, voru stáddir í borg-
inni á mánudaginn.
A meeting of t)he Young Peoples
Society of the F ý'st Lutheran
Chtirch will be held in the church
pariors on Monday, April 11, at 8.30
o’clock. All young people are wel-
come.
Kven félag Fyrsta lúterska safnað-
ar heldur fund á fimtudaginn í
þessari viku kl. 3 síðdegis í sam-
komusal kirkjunnar. Á fundi þess-
uf flytur frú Ingibjörg Ólafsson frá
Árborg, erindi um Hallgrím Péturs.
son.
Þeir B. J. Lilman, sveitaroddviti
í Biifröst, og sveitarráðsmennirnir
Gísli Sigmundsson, S. V. Sigurðs-
son og W. S. Eyjólfsson, voru
staddir i borginni í vikunni sem leið
í erindagerðum fyrir sveitarfélagið.
Fröken Halldóra Bjarnadóttir
fer norður til Winnipegosis á föstu-
daginn kemur og heldur þar sýn-
ingu á íslenzkum heimilisiðnaði
næsta mánudag, og flytur erindi um
ísland. Vonandi f jölmenna íslend-1
ingar þar nyrðra á sýningu þessa og I
samkomu.
Næsti Frónsfundur verður hald-
inn á venjulegum stað og tima þann
7. apríl næstkomandi. Verður þar
margt til skemtana. Fjórir ungir
menn halda þar stuttal ræður, þeir
Sigurður Helgason, Gizzur Elíasson,
Einar Árnason og Thomas Oleson.
Með söng skemta Guðmundur Stef-
ánsson og Hafsteinn Jónasson.
Telja má víst að fundur þessi verði
næsta fjölsóttur.
Fiskimannafélagið við Winnipeg
vatn (Lake Winnipeg Fishermen’s
Association), hélt nýverið ársfund.
E. Dalman var kosinn ' forseti;
Walter Bessason vara-forseti og
Cárlyle Jóhannsson skrifari. Fram-
kvæmdarnefndin vitjaði nýlega á
fund náttúrufríðindaráðgjafans Mr.
McDiarmids, og bar upp við hann
ýmsar uppástungur viðvíkjandi
fiskiútgerðinni við Winnipegvatn;
meðial annars það, að lágmarksverð
á hvítfiski yrði sett 8c á pundið i
verstöð; ennfremur að lágmarks-
verð styrju skyldi ákveðið 350 pund-
ið, eða vatnið ekki opnað fyrir slíkri
veiði. Þá var og farið fram á 3 3/4
möskvastærð fyrir pickerel á vissum
svæðum.
með tvo unglinga, gott heimili, fast
við lítinn bæ. Lögberg visar á.
Þeir Eddie Dalman frá Riverton
og Carlyle Jóhannsson frá Gimli,
voru istaddir i borginni á þiðju-
daginn.
Mr. Peter Anderson, kornkaup-
maður, kom sunnan frlá Florida,
ásamt frú sinni og tveimur dætrum,
á mánudagsmorguninn, eftir tveggja
mánaða dvöl þar syðra.
Dr. A. Blöndal kom heim síð-
astliðinn laugardag ásamt frá sinni
úr rúmra þriggja vfkna ferðalagi
suður um Bandaríki. Heimsóttu
þau ihjón meðal annars vini í Los
Angeles, San Francisco, Seattle og
\ ancouver.
Kvenfélag Fyrsta lúterska safn-
aðar er að undirbúa sína árlegu
samkomu til að fagna sumrinu.
Verður samkoma þessi haldin í sam-
komusal kirkjunnar að kvöldi sum-
ardagsins Fyrsta, 21. apríl. Skemti-
skráin verður auglýst síðar.
Hinn velþekti úrsmiður Christó-
fer Ingjaldson, hefir nú opnað
vinnustofu að 625 Sargent Ave.
íslendingar, ef þið þurfið að
1 láta gera við úr, klukkur eða skraut.
muni, þá sendið það til Mr. Ingjald-
sons, því þið vitið að hann er prýðis
vandvirkur og leysir alt verk af
hendi með mikilli snild. Ef óskað
er, sækir hann muni heim til fólks
og kemur þeim til skila að aðgerð
lokinni. Simanúmer hans er 38 271.
Xou will notice in another column
Uncle Ben’s Remedies Ltd. adver-
tisement. This company has just
been incorporated to manufacture
and merchandise Uncle Ben’s
Stomach Remedies and Uncle Ben’s
Rheumatic Remedies on a national
scale. At present over CJRC Win-
nipeg, on Saturday nights • com-
mencing 8 :05 p.m. they are spon-
soring Del Centhon and His Grain
Beltors and have a slogan contest
for thc month o( April. Everyone
who sends in a slogan will receive
an autographed photograph of the
orchestra, and the 4 best slogans
will receive 4 cash prizes $25.00—
First Prize; $20.00—Second Frize;
$10.00 — Third Prize; $5.00 —
Fourth Prize. For particulars tune
in CJRC Saturdays 8:05.
Stútkan við tjörnina
Snjólíkan það, sem mynd þessi er
af, er eftir Mrs. Lloyd Vezey; er
hún íslenzk i móður ætt, dóttir Mrs.
Bristow á Gimli. Mrs. Vezey hlaut
3. hluta 2. verðlaunanna í Free
Press snjólikana samkepninni.
NÚMER 14
MR. PAUL BARDAL
sólósöngvari með Winnipeg Phil-
harmonic flokknum, er syngur
"King Qlaf” eftir Sir Edward
Elgar í Auditorium, mánudaginn
þann 18. þ. m.
Hjónavígslur
Síðastliðinn sunnudag voru gefin
saman í hjónaband þau Steinunn
Thorfinnson og Marwyn Becker.
Hjónavígslan fór fram að heimili
foreldra brúðarinnar, Mr. og Mrs.
Arni Thorfinnsson við Mountain,
N. Dak. Brúðguminn er frá St.
Thomas, N. Dak., og þar verður
framtíðarheimili ungu hjónanna.
Séra H. Sigmar framkvæmdi hjóna-
yígsluna. Uiýg'u hjónin komu til
Winnipeg á brúðkaupsferð sinni.
Gefin saman í hjónaband þ. 1.
april s.l., voru þau Mr. G. M.
Breckman, til heimilis i St. James,
og Miss Gladys Mary Richard, frá
Grand Point, Manitoba. Séra Jó-
hann Bjarnason gifti og fór hjóna-
vigslan frarn að heimili föður brúð-
gutnans, Mr. Thórarins Breckmans,
309 Hampton Street, St. James, hér
í fylki.
ÞAKKARAVARP
Við undirrituð þökkum af hjarta
öllum, sem sýndu móður okkar,
Ingibjörgu Goodmundson kærleika,
samúð og vináttu í veikindum henn.
ar, sem hún hefir nú verið leyst frá.
Einnig þökkum við öllum sem sýndu
hluttekningu sína með nærveru sinni
við útför hennar s.l. mánudag í
Sambandskirkjunni. Margir vinir
hennar voru'henni góðir og erum
við þeim sérstaklega þakklát fyrir
alt, sem þeir gerðu, og helzt vegna
þess að þeir gerðu það sem við,
vegna hinnar -miklu f jarlægðar, sem
við vorum í, gátum ekki gert fyrii
hana. Með innilegum þökkum.
Guðm. Freeman. Goodmundson,
San Francisco.
(Mrs.) Ólóf Sveinson,
Long Beach, Calif.
Della Goodmundson,
New York, N.Y.
Guðrún Goodmundson,
Seattle, Wash.
JÓN BJARNASON ACADEMY
GJAFIR v
\ inur skólans í Winnipeg, $25.00.
Leiðrétting:
Sofflanías Thorkelsson (auglýst
í síðasta blaði $100.00) en hann
gaf $200.00.
Hlutaðeigandi beðinn velvirðingar.
Með vinsemd og þakklæti,
S. IV. Melsted,
gjaldkeri skólans.
—Hvað ferðu með mikið af
kaupinu þínu heim til konunnar ?
—Ekkert.
—Hvað segirðu?
—Jú, hún kemur sjálf á vinnu-
staðinn og sækir það.