Lögberg - 29.09.1938, Síða 5
LÖGB^RG, FIMTUDAGINN 29. SEPTEMBBR 1938
0
5
Uivbirj
RADIO
B
BATTERY
45VOLTS .
FOR THIS
BARGAINáT
• OPERATED RADIO COMPLETE\ roqúoDirF
TUBES WBATTERIES FOROMLyVr, _-(
Brand New 1938 Models—Powerful Performers—Economical to Oper^te,
AT MANY DOLLARS BELOW THEIR ORIGINAL PRICE
Hundreds and hundreds of these nationally famous sets are now in use. You too,
can have the enjoyment of a good Radio at a really low cost, but you’ll have to hurry
as we have only a fair quantity—and there are no more available.
HERE’S WHAT YOU GET —
A standard ,wave model t.hat. tunes the finest pro-
grammes from over this entire continent. has extended
wave band for some police calls.
A six tube Radio that has two double purpose tubes
giving added power and volume.
Fully shielded superheterodyne circuit that gives you
that volume so desired in the present day Radio.
48-X1000. CLEARANCE CASH PRICE, DELIVERED
Budget Plan Price, 36.10. Cash Deposit, 3.30.
Ten Monthly Payments, 3.28
48-X1001 Standard Wave Aerial Kit for above.\ Price Delivered .
Low battery drain, only 2 "B” batteries used •— has
automatic volume control — clear toned 6-inch speaker.
Smart modern cablnet designed to hold “B” and “C”
batteries. Size: Length about 21% inches, height 10
inches; Walnut-finished with Walnut veneer front panel.
Supplied complete with two 45_volt Heavy Duty “B”
batteries, “C” battery and a 2-volt Storage “A” battery.
cfaoebiÉé BULLDOGS
32.95
'•JigAUi’
POPULAR HEAVY DUTY
45-VOLT “B” BATTERIES
Many are waiting for these now famous long-
lasting batteries. Thousands of satisfied users are
a tribute to their high quality. Why not start
the season with a full set of fresh, fully charged
“B” Batteries?
48-X1002. Bulldog Heavy Duty 45-VoIt
“B” Batteries. Price Delivered.Q f| Q
each
748-X1003 Is your wet “A” battery in shape for
another season ? Here you have a
standard 2-volt 100-ampere hour capacity bat-
tery at a feature price. Shipping weight 16 lbs.
Takes first-ciass freight rate. O QQ
Delivory Charges Extra. Price ..Öitw
DRDER ALL ABOVE FROM WINNIPEG ONLY
^T. EATON C
WINNIPEG CANADA
•to- ‘
Biskupskosning
Kosning á biskupi þjóðkirkjunn-
ar stendur nú yfir, og á henni að
vera lokiÖ i. október. Eiga þá allir
atkvæðaseðlar að vera komnir til
kjörstjórnarinnar, sem er skipuð
skrifstofustjóranum í kirkjumála-
ráðuneytinu, Gustaf A. Jónssyni,
sem er formaður hennar, séra Árna
Sigurðssyni, sem er tilnefndur af
Prestafélaginu, og séra Sveinbimi
Högnasypi, sem er tilnefndur af
kirk j umálaráðherra.
Reglugerð um biskupskosninguna,
samkvæmt lögum frá 1921, var gef-
in úr af kirkjumálaráðuneytinu 12.
þ. m.
Atkvæðascðlar voru sendir til allra
þeirra, sem atkvæðisrétt hafa, 22.
J>. m., en þeir eru alls 107, þar af
starfandi prestar þjóðkirkjunnar
103, og auk þeirra guðfræðikenn-
arar háskólans J>rír og starfandi
biskup. Kjörgengir eru hins veg-
ar allir, sem rétt hafa til embætta
innan J>jóðkirkjunnar, en J>að eru
allir kankdidatar i guðfræði.
Núverandi biskup, dr. Jón Helga-
son, lætur af embætti um næstu
áramót, og tekur J>á við hinn ný-
kjörni biskup. Hefir dr. Jón Helga-
son J>á gegnt biskupsembættinu í 22
ár.
Talsvert kapp mun vera í biskups-
kosningunni meðal presta og hafa
víða urn, land verið haldnir fundir
með prestum út af kosningunni.
Prófkosning
Stjórn Prestafélags fslands hefir
nýlega látið fara fram prófkosningu
meðal }>eirra, sem atkvæðisrétt hafa.
Tóku alls 98 prestar og kennarar við
guðfræðideildina J>átt í kosningunni
og féllu atkvæðn þannig:
Séra Sigurgeir Sigurðsson, ísa-
firði, 32 atkv.
Séra Bjarni Jónsson 27. atkv.
Próf. Magnús Jónsson, 16 atkv.
Séra Þorsteinn Briem, 9 atkv.
Séra Björn Magnússon, 7 atkv.
Próf. Ásm. Guðmundsson, 3 atkv.
Séra Friðrik Rafnar, Akureyri,
3 atkv.
Séra Guðm. Einarsson, Mosfelli,
1 atkvt.
Samkvæmt hinni nýju reglugerð
um biskupskosningu J>arf a. m. k.
3/5 greiddra atkvæða til J>ess að
vera rétt kjörinn biskup. Ef að-
eins einn maður nær því atkvæða-
magni, er hann rétt kjörinn, en ef
fleiri ná því atkvæðamagni, er sá
rétt kjörinn, sem flest atkvæði hefir,
en ef um fleiri er að ræða, sem náð
hafa 3/5 atkvæða og atkvæðin eru
jöífra, ræður kirkjumálaráÖuneytið
hver þeirra fær embættið. En ef
enginn þeirra, sem í kjöri eru —
nær 3/5 greiddra atkvæða, getur
kirkjumálaráðuneytið veitt embættið
hverjum sem er af þeim þremur,
sem flest atkvæði fengu.
Hver maður, sem tekur þátt i
kosningunni, skal tilnefna 3 menn á
kjörseðli sínum og telst sá, sem
fyrstur er tilnefndur hafa fengið
heilt atkvæði, annar 2/3 atkvæða
og þriðji 1/3 atkvæðis. Má enginn
tilnefna fleiri né færri á seðlinum.
Eins og sézt á atkvæðatölunum í
prófkosningunni, hefir enginn af
þeim, sem þar voru tilnefndir, náð
tilskildu atkvæðamagni — 3/5 at-
kvæða — og hefði kirkjustjórnin
þvi, ef um reglulega kosningu hefði
verið að ræða, getað valið milli
þriggja hinna hæstu, séra Sigurgeirs
Sigurðssonar, séra Bjarna Jónssonar
og Magnúsar Jónssonar prófessors.
í biskupskosningunni, sem nú
stendur yfir, munu atkvæðin þó
vafalaust ekki dreifast eins mikið
og í prófkosningunni. Er talið full-
25 oz.....$2.15
40 oz. $3.25
G*W
OLD RYE
WHISKY
(Gamalt kornbrennivín)
QOODERHAM & WORTS, LIMITED
Stofmett 1832
BlsU 4íengiager8 I Canada
This advertisement is not inserted by the Government Liquor Control Commission.
The Commission is not responsible for statements jnade as to quality or products advertised
vist, að Magnús Jónsspn dragi sig í
hlé fyrir séra Bjarna Jónssyni og að
líkindum séra Þorsteinn Briem
sömuleiðis, svo að kosið verði fyrst
og fremst milli séra Sigurgeirs Sig-
urðssonar og séra Bjarna Jónsson-
ar. Engar líkur eru taldar til þess
að séra Bjöm Magnússon nái nógu
miklu fylgi til þess að koma til álita,
sem biskupsefni.
—Alþýðubl. 31. ág.
Ur bréfakörfunni
HITT OG ÞETTA
Ameríkumenn skýra frá því, að
þeir hafi nú fundið upp aðferð til
þess að framleiða demanta. Það
er prófessor nokkur að nafni Ralph
McKee, sem hefir fundið upp að-
ferðina. Hann notar jám, krít og
fosfór. Með sterkum þrýstingi og
við mjög háan hita hefir honum
tekist að framleiða demanta úr þess-
um efnum.
—Austurlenzka félagið í Chicago
hefir látið byggja líkan af Babels-
turninum, en samkvæmt allra síð-
ustu rannsóknum er álitið, að þessi
frægi turn hafi verið um 92 metrar
á hæð. Hann hefir því ekki verið
fullkomlega 1/4 hæðar móts við
Babelsturn vorra tíma, Empire State
Building i New York.
—Mr. Charles Howard Baker
hefir, með aðstoð stækkunarglers
grafið inn “Faðir vor” á tituprjóns-
haus. Þegar hann hafði lokið verk-
inu varð hann blindur.
—Margaret Mitchell, höfundur
bókarinnar “Gone With the Wind”
ritaði bókina í rúminu. Manni henn-
ar var farið að leiðast að færa henni
heim bækur til lestrar og hvatti hana
til þess að rita bók sjálf. Þetta þótti
henni snjallræði og ritaði bókina,
sem er 1000 blaðsíður. f Ameríku
hafa selzt af bókinni eigi færri en
1,400,000 eintök.
SLÝNGUR SNAÐI
Pétur litli hafði dottið á götu og
snúist í öklalið. Eæknirinn kom, at-
hugaði fótinn, og sagði að drengur-
inn þyrfti að hafá nudd í vikutíma.
Svo tók hann til að nudda og það
var mjög sárt. En svo fór læknir-
inn í sumarfrí og fékk annan lækni
fyrir sig. Hann nuddaði jafnfast
og hinn, en nú kvartaði Pétur ekki.
Þannig leið vikan og Pétur litli var
orðinn albata. Þá fór móðir hans
að hrósa honum fyrir það, hvað
hann hefði borið sig karlmannlega
og spurði hann hvort það hefði ekki
verið sárt.
—Ekki spor, sagði Pétur — því
að eg var ekki svo vltlaus að rétta
honum veika fótinn.
HAÐFUGLINN
Eundúnabúar muna ennþá eftir
Williaim Cole, og blöðin skrifa enn-
þá um hann annað slagið, enda þótt
hann sé látinn fyrir tveim árum —
og ætti því að vera gleymdur eins og
flestir aðrir, enda þótt þeir væru
frægir menn. Hann er einn af hin-
um fáu ódauðlegu og búist er við
því að sagnir og munnmæli um hann
gangi frá kyn'slóð til kynslóðar. Og
þó var hann enginn velgerðarmaður
mannkynsins, síður en svo.
Enda þótt hann væri hálfbróðir
núverandi forsætisráðherra, Neville
Ohamberlains, var hann mjög ó-
líkur honum. Og þó er álitið að
nafn hans lifi lengur á vörum
Lundúnahúa en nafn hins þekta
stjórnmálamanns, vegna þess, hve
mikill æringi hann var og háðfugl.
Einu sinni ætlaði ungur, auðugur
lávarður að gifta sig. Fjöldi gesta
var viðstad'dur í kirkjunni, og á göt-
unum þegar brúðhjónin komu út.
Hleypur þá alt í einu ung stúlka
í veg fyrir brúðhjónin, fellur um
hálsinn á brúðgumanum og hrópar:
Astin mín, gleymdu þvi aldrei, að eg
elska þig og að þú hefir lofað því
að koma til mín, þegar þú ert orð-
inn leiður á konunni.
Þegar hún hafði 'mælt þessi orð
hljóp hún burtu sem hraðast og sást
aldrei meir.
Brúðkaupsgestirnir stóðu á önd-
inni af skelfingu og' brúðinni lá við
yfirliði. En seinna um kvöldið
fréttist, að þetta hefði verið at-
vinnulaus leikkona, sem William
Cole hefð leigt til þess að gera of-
urlitla tilbreytingu á brúðkaups-
prógramminu.
•♦-•♦-■♦-
FORN-RÓMVERJAR IÐKUÐU
KNATTSPYRNU
Fram að þessu hafa menn álitið
að knattspyrnan væri síðari tíma
uppfinning. En nú haf a menn kom-
ist að raun um það, að striðsmenn
Cæsars, þegar þeir réðust inn í Eng-
land, spörkuðu milli sín útblásinni
svínsblöðru, sem nautshúð var
strengd yfir og þótti gaman að. Það
voru bara Bretamir, sem ekki kunnu
þá að meta þessa skemtun — en þeir
kunna það núna.
—Alþýðubl.
Heyrt og séð
Það er gamalt mál, að svo sá hátt-
að fólki í f jórðungum landsins:
Austfirðingar búmenn.
| Sunnlendingar kaupmenn og
1 mangarar.
Vestfirðingar vísindamenn.
Norðlendingár hofmenn.
Reiddu þig upp á N.orðlinginn
það er ekki valt.
Hánn lofar öliu fögru
og svíkur svo alt.
>•♦-•♦-
Eftirfarandi vísa er líka kveðin
vökuna á Hólum í Hjaltadal i tíð
Gísla biskups Magnússonar (1755
—1779) og Hálfdáns skólameist-
ara Einarssonar:
Hálfdán kembdi í holunni,
húsfreyja var að spinna,
biskup svaf í sænginni.
Sitt hefir hver að vinna.
-► > -f
Eftrifarandi vísa er líka kveðin
um vöku:
Kvöldúlfur er kominn í Gvönd
konurnar vöku herða,
stýrur í augum, stirðnar hönd,
stafirnir skakkir verða.
C SAIiED TENDERS addressed to the un-
^ dersigned and endorsed “Tender for
Public Buildingr, Carberry, Manitoba,” will
be received until 12 o’clook noon, Mon-
day, October 17, 1938, for the construction
of a Public Bullding at Carberry, Manitoba.
Plans and spccification can be seen and
forms of tender obtained at the offices of
the Chief Architect, Department of Public
#Works, Ottawa, the Resident Architect,
Customs Building, Winnipeg, Manitoba, and
at the Post Office, Carberry, Manitoba.
Tenders will not be considered unless
made on the forms supplied by the Depart-
ment and in accordance with the condi»
tions set forth therein.
Each tender must be accompanied by a
certified cheque on a chartered bank in
Canada, payable to the order of the Honour-
able the Minister of Public 'Works, equal
to 10 per cent. of the amount of the tender,
or Bearer Bonds of the Dominion of Can-
ada or of the Canadian National Railway
Company and its constituent companies, un-
conditionally guaranteed as to principal and
interest by the Dominion of Canada, or the
aforementioned bonds and a certified
cheque if required to make up an odd
amount.
N0te—The Department, through the Chief
Architect’s office, will supply blue-prints
and specification of the work on deposit of
a sum of $10.00. in the form of a certified
bank cheque payable to the order of the
Minister of Public Works. The deposit will
be released on return of the blue-prints
and specification within a month from the
date of reception of tenders. If not returned
within that period the deposit will be for-
feited.
By order,
J. M. SOMER VILLE,
Secretary,
Department of Public Works,
Oltawa, September 26, 1938.
A
LIBERAL
ALLOWANCE
For Your
Wafch stylet I
change tool
TRADE IT IN
‘jor a N EW
BUliOVA
NO DOWN PAYMINT.
THORLAKSON aná BALDWIN
Watchmakers and Jevxllers
699 SARGENT AVE.
WINNIPEG
BUSINESS OF PRINTING
O oarry your message into the hightoays and byways creating sales
and developing trade for those who use its powers for publicity
purposes.
We suggest that you make us your printer and become enthusiastic with
us in the quality of the printing you need.
695 Sargent Ave. Winnipeg Phone 86327-8