Lögberg - 08.05.1941, Page 8

Lögberg - 08.05.1941, Page 8
LOtiBEItG. FIMTUDAGINN 8. MAl, 1941 Látið Kassa í Kœliskápinn i 2-glasa flöskií Or borg og bygð MA TREltíSLUBóK Kvenfélaga Fyrsta lúterska safn- aðar í Winnipeg. Pantanir sendist til: Mrs. E. W. Perry, 723 Warsaw Ave.; Mrs. E. S. Feld- sted, 525 Dominion St. Verð: $1.00. Burðargjald 5c. ♦ ♦ ♦ Mr. Einar Eyford frá Lundar var staddur í borginni á mánu- daginn. ♦ ♦ ♦ Mr. H. A. Bergman, K.C., er nýkominn austan frá Ottawa frá því að flytja mál fyrir hæztarétti Canada. ♦ ♦ ♦ Trúboðsfélag kvenna í Fyrsta lúterska söfnuði, heldur “Silver Tea” á heimili þeirra séra Valdi- mars J. Eylands og frú Eylands, 776 Victor Street, á miðvikudag- inn þann 14. þ. m. frá kl. 3—5 e. h. og frá kl. 8 til 10 að kveld- inu. ♦ ♦ ♦ We can arrange, at very rea- sonable rates, the financing of automobiles being purchased. Consult us for particulars. J. J. SWANSON & CO. 308 Avenue Bldg. Phone 26 821 ♦ ♦ ♦ Hér með auglýsist guðsþjónr usta í lútersku kirkjunni i Langruth, kl. 2 e. h. næsta sunnudag (11. maí). Séra Rún- ólfur Marteinsson prédikar. Lát- ið alla vita um guðsþjónustuna. ♦ ♦ ♦ Séra Carl J. Olson, Mrs. S. B. Johnson, Mrs. Axdal frá Wyn- yard og Anna Sigurbjörnsson frá Leslie, komu til borgarinnar seinnipart fyrri viku og dvöldu héf fram á mánudag. ♦ ♦ ♦ Fimtudaginn 1. maí, voru þau Oscar Martin Stevenson frá Oak Point, Man., og Maria Anna Freeman frá Lundar, Man., gefin saman í hjónaband af séra Rún- ólfi Marteinssyni, að 493 Lipton St. Heimili þeirra verður í Win- nipeg. ♦ ♦ ♦ TIL SÉRA RÚNÓLFS MARTEINSSONAR á sjötugs afmæli hans. Æfistarf þitt eignast hrós, æskuljós þá dvínar. Sjötugasta sólarljós signi hærur þínar. Magnús Einarsson. ♦ ♦ ♦ Gefin saman í hjónaband af séra Sigurður ólafssyni þann 3. mai, að heimili Mr. og Mrs. H. Hermanson, bónda í grend við Petersfield, Man., elzta dóttir þeirra hjóna, Mabel Mildred að nafni og Frederick Percival Lynds, frá Winnipeg. Fjöldi skyldmenna hjónanna, nágrann- ar og vinir sátu rausnarlega veizlu að athöfninni aflokinni, að hinu indæla heimili Her- mansons hjónanna. Brúðguminn er af canadiskum ættum, í þjón- ustu i “military training”, en fyr starfsmaður hjá Canadian Pacific Railway félaginu. HAMBLEY UNGAR úr Rafofni Skjót afgreiðsla. púsundum ungað út á hverri viku, og sendir nú þegar af flestum tegundum. SKRIFIÐ, 8END1Ð SKEYTI, SÍMIfí eða KOMIfí Úrvals ungar, stjórnarviðurkenring, seldir með samkepnis verði. MANITOBA VERÐ 100 50 25 W. Leghorns ....$10.25 $ 5.50 $2.90 W. L. Pullets .... 22.00 1.50 6.00 W. L. Coekerels .... 3.00 1.75 1.00 Darred Rocks .... 11.75 6.25 3.25 II. R. Pullets *.. B. R. and N. H. 17.00 9.00 4.75 Cockerels ... 10.00 5.25 2.75 New Hampshires .... 11.75 6.25 3.25 N. Hamp. Pull .... 17.00 9.00 4.75 100% Live Arrival Guaranteed. Pullets 98% accurate HAMBLEY Our Portage cheries will Sired Chicks Etfeetixe Ma.v 10 \V. tegs...... B. Rocks ..... R. f. Reds ... B.Tl. Cockls. ... W.L. Cockls. .... R.O.P. Sired Chicks. and Brandon Hat- produce only íl.O.P. for 1941. Alixed Sex 1*ulletM 100 50 IOO 50 XI2.25 ffl.50 $25.00 $12.75 13.75 7.25 21.00 10.75 ..14.50 7.75 23.00 12.00 . 11.00 5.75 PulletH 98% 1.00 2:25 Accurate J. J. HAMBLEY HATCHERIES WinnipeK, Branrlon, Fortage, Dauphin Mr. og Mrs. G. J. Oleson og Mr. Eldjárn Johnson frá Glen- boro, voru stödd í borginni um síðustu helgi. ♦ ♦ ♦ DONATIONS TO “BETEL” DURING APRIL 19M Mr. H. Nicholson (Gimli), Case of Oranges; Mrs. C. O. L. Chis- well (Gimli), Milk Chocolate Culæs; Dr. B. J. Brandson (Win- nipeg), Box of Apples; ónefndur, $5.00 War Savings Certificate; Jónas Helgason, Baldur, á átt- tugasta og fyrsta <afmæli sínu, $10.00. Kærar þakkir. J. J. Swanson, féhirðir 308 Avenue Bldg., Wpg. ♦ ♦ ♦ Mr. Magnús Elíasson frá Van- couver, B.C., kom til borgarinn- ar á sunnudaginn var og gerði ráð fyrir að dvelja hér um slóðir í mánaðartíma; hann er sonur þeirra Mr. og Mrs. Guðmundur Elíasson að Árnes. Magnús hefir tekið mikin þátt í félagsmálum íslendinga í Vancouver; hann er gáfumaður, og hefir stundað af kappi mælskulist; hann bað Lög berg að geta þess, að fslendingar í Vancouver héldi íslendingadag sinn þann 3. ágúst, og að Dr. Richard Beck, forseti Pjóðrækn- isfélagsins, yrði þar aðalræðu- maður. ♦ ♦ ♦ FRÓNSFUNDUR 15. MAi Næsti fundur “Fróns” verður í efrisal Góðtemplarahússins fimtudaginn 15. maí. Hefir fé- lagið verið svo lánsamt að fá fyrv. forseta “Fróns” til að segja þar frá ferð sinni til íslands, og kann hann vel frá mörgu að segja. Einnig flytur Dr. Eggert Steinþórsson þar erindi og mun marga fýsa að heyra hvað hann segir, því hann er nýkominn hingað frá fslandi til framhalds- náms og er ræðumaður góður. Einnig verður söngur og hljóð- færasláttur. Funds þessa verð- ur nánar getið í næstu blöðum. -—Nefndin. ♦ ♦ ♦ Mr. Jón Kernested frá Winni- peg Beach lézt á Johnson Me- morial Hospital á Gimli á fimtu- daginn þann 1. þ. m., áttræður að aldri; hann var ættaður af ísafirði, og fluttist ungur hingað til lands; hann var jarðsunginn í Víðinesgrafreit á sunnudaginn var, að undangenginni húskveju á Winnipeg Beach; stýrði. séra Rúnólfur Marteinsson kveðjuat- höfn á báðum stöðum, og mun, að öllu forfallalausu, minnast hans nánar í næsta blaði. Jón Kernested var skýrleiksmaður hinn mesti, vel skáldinæltur og fróður um margt; hann tók um langt skeið virkan þátt í opin- berum málum bygðarlags síns, og naut hvarvetna óskifts trausts samferðamanna sinna. Jpn var maður ljóselskur, og vinfastur sem þá er bezt gerist. ♦ ♦ ♦ HJÓNA VIGSLA IBREDENBURY Þann 1. þessa mánaðar voru gefin saman í hjónaband þau William M. Stevenson og Lily Margaret Thorvaldson. Brúð- guminn er af skozkum ættum, en brúðurin er dóttir Mr. og Mrs. Kristján Þorvaldson í Breden- bury, Sask. Athöfnin var sérlega ánægju- leg; hófst ríkuleg veizla að lok- inni athöfn; skemtu menn sér eftir á ineð söng og ræðum, og þökkuðu menn hinum ágætu hjónum, Mr. og Mrs. Thorvald- son, fyrir hina miklu risnu og þær mörgu gleðistundir, sem menn hafa notið á hinu prúð- mannlega heimili þeirra, og árn- uðu hinum ungu og mannvæn- legu hjónum allrar blessunar. Hjónavígsluna framkvæmdi séra S. S. Christopherson, prest- ur Concordia safnaðar. Minniít BETEL 1 erfðaskrám yðar Leiðrétting f ritgjörð minni um Hnausa- skóla, sem birtist í blöðunum fyrir skemstu er ein skekkja. Eg sagði, að Mrs. Lára Bjarnason hefði stofnað fyrsta skólann i Nýja íslandi. Það sem eg sagði um þann skóla var alt saman rétt, nema þetta eina. Það var ekki fyrsta tilraunin til skóla- halds þar í bygð. Leiðrétting- in kemur frá Mr. John Hall í Wynyard, Sask., sem var í þess- um eldri skóla. Fyrsti kennar- inn var Miss Carrý Taylor, bróð- urdóttir hins göfuga íslendinga- vinar, John Taylors, síðar eigin- kona Sigurðar Christophersonar. Þetta var fyrsta vetur bygðarinn- ar á Gimli, 1875-6. Næsta vetur, 1876-7, var Miss Jenny Taylor, systir hennar, kennarinn. Þær voru dætur William Taylors. Mér er einkar Ijúft að gjöra þessa leiðrétting. íslendingar eiga mikið að þakka Tayíor- bræðrunum og fólki þeirra. Rúnólfur Marteinsson. Söngkveld Norðmanna og Svía Sameinaðir Karlakórar Norð- inanna og Svía hér í borginni gáfu hljómleika í norsku kirkj- unni á Minto stræti 30. apr,l s.l. Var aðsókn ágæt svo að hvert sæti *var skipað í kirkjunni. Söngstjórarnir þeir Mr. Goines og Mr. A. Anderson stjórnuðu flokkunum til skiftis og fórst þeim það báðum vel. f söng- flokknum voru 33 söngvarar og var það föngulegur hópur, allir klæddir hinum prýðilegu ein- kennisbúninguin “Norska Söng- flokkasambandsins.” Var kveld- ið hið ánægjulegasta og var un- un að hlusta á hin hreimfögru norsku og sænsku lög. Var auð- fundið að æfingar og undirbún- ingur allur hafði verið vandað hið beztg. Þeim er þetta skrifar munu verða einna minnisstæð- ast “Serenade” eftir Kjerulf, “Sangerhilsen” Edv. Grieg, “Mine Rosar” eftir Wennerberg, “Ula- Brand” og Hvar skal du ro og hvila faa” og einnig hinn hríf- andi vals “Hvad skal vi sjunga.” Auk flokksins lék ungfrú Elsie Sikkerbol einleik á píanó og Mr. Thorburn tvo hluta úr fiðlu- sónötu eftir Edv. Grieg, var þeim einnig ágætlega tekið af áheyr- endum. Margir fslendingar sóttu samkomu þessa og er það von- andi að framvegis verði nánari samvinna okkar við þessa á- gætu frændur vora, Norðmenn og Svia. Á þessum tímum eiga allar Norðurlandaþjóðirnar í vök að verjast og þá verður okkur e. t. v. ljósara, að við erum allir af sama stofni með sameiginlegar erfðir og hugsjónir. Á Norður- löndum hefir sönn menning náð hæstu marki, þær þjóðir eru i sannleika salt jarðarinnar, okkur hefir verið trúað fyrir miklu og því ber oss öllum að geyma vel inenningu vora, svo að sá aridi, er lifir í hinum norræna stofni megi verða öllum heimi til bless- unar. Það er sannfæring min, að i söngvuiri vorum og kvæðum sé sá kraftur er öðru fremur muni varðveita meðvitundina um hlutverk vort, og að meðan að norræn ljóð og lög eru lifandi á vörum fólksins munu og önnur verðmæti geymast og bera hundraðfaldan ávöxt. Lengi lifi söngur hinna norrænu þjóða, megi drenglund þeirra, snild og mannvit verða eins sigursælt nú og hreysti og dáð hinna fornu víkinga voru fyr á öldum. R. H. Ragnar. Heimilisiðnaðarfélagið heldur sinn næsta fund að heimili Mrs. F. W. Edinger, 641 Sherburn St., á miðvikudaginn 14. maí, kl. 2.30 e. h. Messuboð FYRSTA LÚTERSKA KIRKJA Séra Valdimar J. Eylands Heimili: 776 Victor Street. Sími 29 017. Sunnudaginn 11. mai:— Ensk messa að morgninum kl. 11; sunnudagsskóli kl. 12.15 e. h,; íslenzk messa að kvöldinu kl. 7. ♦ ♦ ♦ Sunnudaginn 11. mai (Mæðra- daginn) verða þessar guðsþjón- ustur í prestakalli séra H. Sig- mar:— ,Guðsþjónusta með ferming og altarisgöngu í Garðar kl. 10.30 fyrir hádegi. Guðsþjónusta í Fjallakirkju kl. 3 e. h. Sérstök hátíðarguðsþjónusta í Mountain; yngri kórinn syngur marga söngva. Guðsþjónustan fer fram á ensku, byrjar kl. 8 eftir hádegi. ♦ ♦ ♦ Sunnudaginn 18. inaí flytur séra K. K. ólafson íslenzka guðs- þjónustu í Vancouver. Hún verð- ur, eins og áður, í dönsku kirkj- unni á nítjándu götu og Burns stræti. I þetta sinn byrjar mess- an kl. 3:15 e. h. Er fólk beðið að veita breytingunni eftirtekt. Einnig að útbreiða messuboðin. ♦ ♦ ♦ GlMLl PRESTAKALL Sunnudaginn 11. maí. Gimli, ensk Mæðradags messa kl. 2 e. h. B. A. Bjarnason. ♦ ♦ ♦ LúTERSKA PRESTAKALLIÐ í VATNABYGÐUM Mæðradagurinn 11. maí:-- Mozart, kl. 11 f. h. Foam Lake kl. 3 e. h. Leslie, kl. 7 e. h. Allir boðnir og velkomnir! Vinsamlegast, Carl J. Olson. Wynyard, Sask. Talsími 27. ♦ ♦ ♦ LÚTERSKA IÍIRKJAN í SELKIRK Sunnudaginn 11. maí—Mæðra- daginn:— Sunnudagaskóli, kl. 11 árd. Mæðrum sérstaklega boðið að vera viðstöddum. Ávarp til mæðra, Mrs. Ingibjörg J. ólafs- son. fslenzk messa kl. 7 síðd., um- talsefni: Móðuráhrifin. S. ólafsson. BÆNDUR. KAUPMENN FLUTNINGSBÍLASTJÓRAR Muskrat, Badger og Beaver óskast Verð hráskinna og annara tegunda, sem við verzlum með, hafa allmjög hækkað í verði; yður mun undra hve hátt vér greiðum. Sendið oss hráskinn í dag. Nákvæm vigt, og peningaávísun send um hæl. American Hide & Fur Co. Ltd. 157-159 RUPERT AVENUE, WINNIPEG, MAN. H. BJARNASON TRANSFER Annast greiðlega um alt, sem að flutningum lýtur, smáum eða stðrum Hvergi sanngflarnara verð. Heimlli: 591 SHERBURN ST. Sími 35 909 The Watch Shop Diamonds - Watches - Jewelry Agents for BULOVA Watehes Marriage Licenses Issued THORLAKSON & BALDWIN j Watchmakers and Jeioelters 699 SARGENT AVE., WPG. Til þess að tryggja yður skjóta afgreiðslu Skuluð pér ávalt kalia upp SARGENT TAXI AND TRANSFER FRED BUCKLE, Manager ' • PHONE 34 555 - 34 557 SARGENT and AGNES Sunnudaginn 27. apríl andað- ist Guðrún Árnason á heimili Mr. og Mrs. Joe Samson í grend við Hensel, N. D. Hafði hún verið á heimili þeirra síðan árið 1932. Guðrún sál. fæddist í Skaga- fjarðarsýslu á íslandi 14. mai 1868. Hún kom til Ameríku 1888, og giftist Árna Árnasyni 1891. Settust þau að í Hensel- bygðinni í N. Dakota, og nefndu heimili sitt Grund. Þar bjuggu þau til 1921 en fluttu þá til Grand Forks. Árni sál. dó árið 1933. Heimili þeirra Arna og Guð- rúnar, Grund, var hið mesta myndarheimili. Bjuggu þau rausnarbúi, voru félagslynt, greiðleg og góðgerðasöm. Er gestrisni þeirra og öllum mynd- arskap viðbrugðið af mörgum, enda voru hjónin bæði greind og vel að sér. Einlæg voru þau einnig og dugleg í kirkjulegu starfi. Guðrún sál. hefir verið ákaf- lega biluð á heilsu mörg síðustu árin og nú síðast lengi alveg rúmföst, og hefir hún því borið ákaflega þunga sjúkdómsbyrði. Guðrúnu sál. lifa þrjú börn þeirra hjóna: Richard, starfs- maður Bank of North Dakota, kvæntur og búandi í Grand Forks; Lóa, hjókrunarkona i Grand Forks, og Albert, forseti Forestry skólans í Botteneau, N. D., Einnig lifa hana tvö systkini, Sveinbjörn lögfræðing- ur við Illinoise háskólann í Ur- bana, 111. fyrrum hæstaréttar- dómari og “attorney-general” í N. D„ og Mrs. J. Árnason, við Kristnes, Sask. Útförin fór fram frá Vídalíns kirkju miðvikudaginn 30 apríl. Fjölmenni var viðstatt. Hún var lögð til hvíldar við hlið eigin- manns síns í Vídalínsgrafreitn- um. Séra H. Sigmar jarðsöng. ♦ ♦ ♦ Þann 1. þ. m„ lézt að heimili sínu í 'Otto-pósthéraði, Helga Benjamínsson, 53 ára að aldri, kona Benjamíns Benjamínsson- ar; hún hafði átt við alllangt heilsuleysi að stríða. Helga heit- in var fædd að Geitastekk í Hörðudal í Dalasýslu; hún gift- ist eftirlifandi manni sínum ár- ið 1912 á íslandi, og fluttist með honum til þessa lands 1920, og settust þau þá þegar að í Otto- bygðinni við Manitobavatn; auk manns síns lætur hún eftir sig fimm dætur og fjóra sonu; einn- ig þrjár systur og tvo bræður; meðal systranna er Mrs. Friðrik Kristjánsson hér i borg. Útför Helgu fór fram frá lútersku kirkjunni við Otto þann 6. þ. m. Séra Valdimar J. Eylands jarð- söng. , ♦ ♦ ♦ Síðastliðinn þriðjudag lézt á King Edward spítalanum hér í borginni Richard Leon Vopni, 28 ára að aldri, sonur þeirra Mr. og Mrs. J. J. Vopni; hann var hinn vinsælasti maður, en hafði átt við langvarandi van- heilsu að stríða; hann lætur eftir sig, auk foreldra sinna, ekkju ásamt tveim börnum; enn- fremur fjórar systur og fimm bræður. — útförin fer fram ^ Fyrstu lútersku kirkju á laug»r daginn kemur, kl. 2.30 e. h. ♦ ♦ ♦ VEITltí ATHYGLl! Karlaklúbbur Fyrsta Iútersk® safnaðar og Junior Iceland>c League, hafa í sameiningu ið leyfi til þess að sýna htó® fögru og litbrigðariku kvikmyn “Iceland on the Prairies.” Ver ur þessi hrífandi mynd sýnd 1 Fyrstu lútersku kirkju á þriðjn dagskveldjið þann 20. þ- kl. 8. Aðgangur 25 cents. Ar8ur af samkomunni gengur til Sigurðssonar félagsins, I.O.D- Með morgunkaffinu Blaðamaður einn lítt þektuf1 Ameríku skrifaði fyrir nokkf11 grein í amerisk blöð og lýsti y^r því, að sagan um fimmburan‘J væri í raun og veru uppsPun' sa. litl' einn. Sannleikurinn væri sagði hann, að Dionne, þessi og leiðinlegi bær, hefði ekker aðdráttarafl haft fyrir fer®n menn. Þá hefði borgarstjóran um dottið í hug þetta snjallr^' með fimmburana: Fjölsky^* ein, sem þegar var á fátækr* frainfæri, átt von á barni. & var fyrir, að hún rnyndi þur 9 meiri styrk en áður. FjögUr ungbörn voru flutt á laun þall» að frá fæðingarheimili í n#8** bæ í þann mund er þetta b8rl1 fæddist. Og borgarstjórinn sl° tvær flugur í einu höggi, losu®1 bæinn við fátækrahjálpina og út' vegaði honum góða auglýsingu- Borgarstjórinn í Dionne hðf® aði meiðyrðamál gegn bla®3 manninum, og borgarar bæjar ins hafa heitið því, að stigi blu®9 maðurinn nokkurntíma fæti s>n' um í bæinn, skuli hann e^' sleppa þaðan lifandi. BORGIÐ LÖGRERG ♦ 1 U SA.CGENT fLCCIfT D. OSBORN Mæðradagur” “Minnist hennar með blómum” 11. MAÍ 739 SARGENT AVENUE Phone 26 575 ‘Blóm fyrir öll tækifæri’ SENDIfí FATNAÐ YtíAtt TIL ÞURHREINSUNAR TIL PERTH’S pér spariS ttma og peninga. vort verk ábyrgst aS vera bezta I borginni. Símið 37 261 eftir ökumanni vorum í einkennisbúningi. Perth's Cleaners - Dyers - Launderers þa» et, WlS' gA'01'1' eins UNDRUNARVERT er um ræðir BRANVlN GÆÐIN Greiðið ekkert iðgjald fyrir gseðin- Hið mjúka bragð og hin hressan® efni þessa Branvin, Rauð og Hvít VU1* kosta yður ekkert meira en algeng vin- Jordan Wine Conipany, Liniited Jordan, Canada , Búa einnig til hið frœga Challenge Portv og Sherry 4JORDAMS C AN AD A’S B I G G ES T branvin WINEvALue This advertisement is not inserted by G.L.C. Commission. The Comrqisslon is not responsible for statements made as to quality ot products advertised.

x

Lögberg

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Lögberg
https://timarit.is/publication/132

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.