Lögberg - 08.10.1942, Side 6

Lögberg - 08.10.1942, Side 6
6 LÖGBERG, FIMTUDAGINN B. OKTÓBER, 1942 Þegar eyðmörkin blómgast •90O0OOOe9O990999d99OOO$eðOOd99d9$$9d$$ “Það væri mjög óprúðmannlegt af mér að gefa slíkt í skyn við yður,” svaraði hann. “En segið mér nú hvernig yður hefir liðið síðan við hittumst seinast. Eg vár svo hrædd- ur um að eitthvað hindraði mig frá að komast hingað þessi vikulokin. Mintust þér þess, að eg myndi verða hér? Eg þori varla að vonast eftir því.” Cherry sperti upp löngu augnahárin um leið og hún svaraði brosandi: “Nú-jæja — ef til vill gerði eg það. En eg hefi átt mjög annríkt.” “Eg sömuleiðis — við hugsanina um að hitta yður nú aftur,” sagði hann mjúklega. “En sú fjarstæða! Eg trúi því ekki að þéi hafið einu sinni tekið eftir því hvort eg væri hér eða ekki,” sagði hún enn kaldhæðnislega. “Ó! en eg ætla nú að láta yður trúa einu og öðru,” sagði Hasseim lágt í galsatón. Pauline var það ekkert ógeðfelt þótt Mrs. Eassett bráðlega fylgdi þeim Cherry og henni til svefnherbergja þeirra. Er hún kom í sitt herbergi, lokaði hún að sér, ánægð yfir því að geta nú loks notið einverustundar. Fjórðungi stundar seinna, lá Pauline enn milli silkilakanna í mjúkri rekkjunni og naut endurminninga vökudraumsins — gerði sér að. lokum fulla grein fyrir öldustreymi unað- arins, er í æðum hennar ólgaði. Segjandi við sjálfa sig: “Eg elska — elska — elska hann! Og orð hans voru sem ástaróður. Hann hafðr þrýs^ henni að sér og kyst hana, og sagt ‘litla Pauline!’ Hvernig hann bar fram nafnið henn- ar var jafn-unaðslegt eins og þrýsting vara hans á vörum henni. “En var það sönnuy um ástarþrá hans — einlæga ástarþrá, eins og hennar eigin?” Hún hugsaði enn: “Eg verð að hlusta á aðvörun skynseminnar. Það var tunglsljós, og — honum geðjaðist fremur vel að mér. Koss hefir ekki mikla þýðing fyrir karlmanni — í tunglsljósinu. Það gat hafa verið aðeins augna- bliks hrifningarkend—” “Og hefði svo verið?” Hún reyndi að kæfa niður ofurlitla einstæðings óttakend, er sú hugsun vaknaði hjá henni og sagði enn við sjálfa sig: “Jafnvel þótt svo væri — átti eg þá augnabliksstund — og hann kysti mig ekki eins og honum aðeins þá — þóknaðist návist mín!” “Litla Pauline—” Vissulega gat errginn nema sá maður, er stúlku ann, borið þannig fram nafnið hennar. Og maðurinn, sem stúlku elskaði, sat nú einmana í hinum væng hússins, ráðþrota út af þeirri uppgötvan sinni. Hvernig gæti hann ráðið fram úr afstöðu þeirri, er svo skyndilega og óvænt hafði nú truflað hina áður óhindruðu rás lífsleiðar hans? Þetta var ekki eina skiftið, sem hann hafði heyrt vængjaþyt ástgyðjunnar; það var fyrst nu er hann varð að viðurkenna sig yfirbugaðan af töfrandi rödd hennar. Nú lá hann fjötr- aður í læðing bláeygðrar smámeyjar með gullið hár og hlátursrödd er líktist sætum svana- söngsómi. Litla Pauline! Hann brosti við hugsanina um hana. Hún var svo ung, en svo alvarlega sjálfstæð, þrátt fyrir lágan aldur sinn og feimniskendina, sem honum skildist hún* búa yfir. Hann hugsaði enn: “Lífið gerist örðugt, þegar að því ber að leysa verði gátuna fyrir þann, sem maður elskar. Þorði hann að láta hana sjálfráða? Ef hún í raun og veru ann—” » Hann vissi ógnvel, að hún unni, og ef hann léti hana sjálfráða, væri hún fullfær um að taka sér sjálfstætt stefnumið og fylgja því til enda. Um afturelding var hann enn óráðinn í því, hvernig hann ætti að snúast við þessari þrautagátu lífs síns. Það hafði verði afráðið að þeir gestanna, sem þess æskti, skyldi ríða einhvern spöl úti í svölu lofti árdegisins, áður en sezt yrði að morgunverði. Cherry og Pauline höfðu báðar sagzt vilja fylla þann hóp, og meðan svo loftið var enn svalt, reið Abdel á stað með gestum sínum. Mrs. Bassett hvíldi enn í værum blundi, og Cherry, laus við eftirlit móðuraugans, bjóst til að skemta sér vel undir umsjá prinz Hasseims. Pauline vissi aðeins af Abdel ríðandi rétt íram undan henni með Nancy — sem bæði virtust alveg upptekin af samræðuefni sínu. Aldrei á æfi sinni hafði hún áður séð nokkurn annan mann bera sig eins vel á hestbaki og er hún athugaði hann nú, datt henni ósjálfrátt í hug hið sama eins og fyrsta daginn, er þau kyntust, hve hæglega hann yrði tekinn fyrir Englending. Sú staðreynd, að hann væri það ekki, held- ur kominn af öðrum þjóðflokki,* vakti hjá henni óþægilega hugarkend. Hún hafði í fyrsta lagi helgað hjartaslög sín þessu sólríka og frjó- sama landi, alt þangað sem frá landamærum þess teygði sig endalaus eyðimörkin í vestri, og svo nú þeim manni, er því hyerði til. Sú ósk lét nú skynd.ilega á sér bæra í brjósti hennar, að hann væri kominn nær henni og talaði við hana. Hún þráði sáran að komast eftir því hvað hann vildi gevma í huga sér af samtali þeirra kvöldinu áður; hvort það hefði nokkurt eða ekkert gildi fyrir honum. Og það var rétt eins go Abdel hefði orðið áskynja um hjartaþrá hennar, því hann sagði eitthvað í skyndi við Nancy um leið og hann stöðvaði hest sinn, beið þess að hitt reiðfólkið nálgaðist hann og reið svo áfram með því við hliðina á Pauline. “Jæja-þá,” saðgi hann, “geðjast yður enn vel að landinu mínu?” “Það er alt yndislegt,” svaraði hún, en • horfði beint fram milli eyrna hestsins síns, því hún óttaðist að láta hann sjá inn í augu sér. Þarna í skæru skini árdegissólarinnar huríu allir efans skuggar írá kvöldinu áður. Hann gat nú og vildi gleðja hana — það eitt hafði nokkurt gildi. “Hafið þér ánægju af að ferðast um á hestbaki?” spurði hann. “Eg hefi undur gaman af því,” svaraði hún. “Þá skulum við ríða út á hverjum degi, þegar við komum aftur til Cairo,” sagði hann. Hún hrökk við, greip ósjálfrátt fastara haldi á taumunum, og þegar hestur hennar fór að brokka flýtti Abdel sér að segja: “Herð- ið ekki reiðina, Pauline — eg þarf að tala við yður. Látum hitt fólkið fara á undan sína leið.” Pauline leit þá við, og þau litu beint hvort í annars augu — tíð hjartaslögin titruðu í augnaráði hennar og endurspegluðust í tilliti l.ans. / Hitt fólkið var riðið nokkuð áleiðis og á þessu augnablikinu voru þau ein eftir. Hann hallaði sér að henni og snerti við hönd hennar. “Þú yndislega vera,” hvíslaði hann lágt. “Eg elska þig svo heitt að — eg fæ því ekki með orðum lýst.” Blóðið streymdi fram í kinnar henni. Henni fanst sem hún gæti bæði grátið og hleg- ið í senn óg ofurlítil stuna af samblandi þeirra tilfinninga slapp út af vörum henni. “Ekki —” sagði hún í bænarrómi. “Ef þér tjáið mér nú ást yðar, þá hleypur hestur- inn á rás. Eg gæti ekki haft hugann á að — stjórna honum.” “Eruð þið þarna að tapa samfylgdinni?” kallaði Cherry rétt í þessu. “Við erum að koma,” svaraði Pauline og gaf hestinum lausan tauminn. “Það getur ekki verið satt að nokkur mannvera sé svona sæl,” hugsaði hún. “Eg er — er óttaslegin.” En þetta voru einu augnablikin, meðan á útreið- inni stóð, er hún og Abdel náðu að fylgjast tvö ein að. Á bakaleiðinni sneri Cherry athygli sinni að Abdel, en7 Pauline til innri ótta og ógeðs rieð prinzinn við hlið henni, með þeim auð- sæja ásetningi að vera henni sem riddaraleg- asti fylgdarsveinn. Er þau komu inn í húsgarðinn var Abdel allareiðu stiginn af baki hesti sínum, en vék sér samstundis að Pauline og lyfti henni úr söðlinum. • Er Nancy bráðlega fylgdist með Pauline upp stigann, var hún að hugsa undrandi um það, hvort hún í samtali sínu áður við Abdel hefði gefið honum heillavænlegustu ráðlegg- inguna. Hún fann sig bæði heiðraða og særða við það að hann hefði nú í annað sinn á æfi sinni fundið viðeigandi að sýna henni tiltrú sína, en það var í seinna skiftið sem hún fann til ábyrgðarhlutans, er það skóp henni. 15. KAPÍTULI. Flestir gestanna höfðu farið út í einni hinna stóru bifreiða húsbóndans, að keyra sér til skemtunar, með John Bellingham, og þegar Pauline kom niður í stóra salinn var þar engin manneskja sjáanleg. Hún afréð að vera þarna inni, ótk upp dagblað, er þar lá á borðinu, hjúfraði sig niður í stóran legubekk og fór að líta yfir blaðið. Rennihurðin í veggnum við hlið henni stóð opin, og hún hafði ekki verið þarna nema þrjár eða fjórar mínútur, þegar hún varð þess vör, að tvær manneskjur komu aðvífandi, og tóku sér sæti rétt utan við dyrn- ar. Pauline heyrði á mæli þeirra, að þetta væri þau Monsieur Le Plesier og kona hans. Pauline var að ráða það við sig hvort hún ætti að fara út til þeirra, þegar hún heyrði frúna segja: “Madame Bassett er á veiðum. Handa hvorri stúlkunni heldur þú hún vilji ná i hann? Mér virðist Cherry litla naumast vera honum hæfileg, en eldri stúlkan — yndisfalleg, þykir mér — virðist hafa vakið athygli á sér. Gestgjafinn okkar er vissulega eftirsóknar- verður fengur.” Pauline fanst nú hún yrði að stökkva upp úr legubekknum og þjóta út úr salnum; en datt þá í hug hve óttalegt það væri, ef þau liti við og sæi hana. Hún sat því þarna kyr, fjúkandi reið og í kveljandi feimnisvandræð- um. Monsieur segir þá: “Stúlkan er yndisfögur og aðlaðandi, en mig undrar það, hvort Mrs. Bassett væri svona ant um að losast við hana, væri hún hennar eigin dóttir í staðinn fyrir aðeins frænka mannsins hennar. Þessar blendings-giftingar eru ekki ætíð eftirsóknar- verðar, hversu aðlaðandi og auðugur sem mað- urinn kann að vera. Eg tala auðvitað svona aðeins í þín eyru, kæra mín — mér hefir reynst hann ánægjulegur maður, og þótt eg hafi ekki verið hér lengi skilst mér, að á hann sé litið sem hreinasta undantekning annara manna.” Hjónin stóðu nú upp, og eina kvalafulla andartaksstund óttaðist Pauline, að þau myndi koma inn í salinn, en heyrði þá raddir þeirra fjarlægjast, er þau sneru för sinni niður a garðstraðirnar. Pauline spratt á fætur og því nær hljóp við fót út úr salnum. “Madame er á veið- um—” Ó, hve viðbjóðslegt! “Heppnin hefir ætíð fylgst með mér — lát- um okkur leita staðar þar sem við getum talað saman í næði meðan tækifærið býðst,” heyrir hún Abdel segja rétt að baki henni. Og þegar hún snýr sér við hverfur brosið af andliti honum. “Hvað er að?” spyr hann. “Þú ert náföl. Hefir einhver hrætt þig?” “Nei,” flýtti Pauline sér að segja, “sól- skinið var bara heldur heitt á heimleiðinni í morgun — og eg hefi dálítinn höfuðverk.” “Jafnvel smáræðis höfuðverk má ekki van- rækja,” sagði hann. “Eg verð að útvega þér eitthvað við honum.” “Ó-nei; þess er engin þörf, hann er ekki það slæmur,” flýtti hún sér að segja ákveðið. “Mig langar til að sýna þér einkastofu mína,” sagði hann, “og nú virðist æskilegur tími til þess.” Hún varð þess nú áskynja að þau fóru sömu leiðina og þær Miss Bellingham og hún komu um kvöldið áður og henni datt því í hug það sem Nancy hafði sagt um “kvennabústað- ina” og fann aftur bera á ónota tilfinningunni um það, að þetta væri Austurlandahús og að austurlenzkar siðvenjur ríkti þar enn. En ónota-tilfinning hennar breyttist til undrunar, er Abdel opnaði hurðina með kopar- netinu ofan við og hliðraði til fyrir henni, svo hún kæmist inn um dyrnar. Hann kom þar inn á eftir henni, gekk inn eítir mjóum gangi er lá að hurð, sem hann þá hratt opinni. Sólskini fylt herbregið, sem þau stóðu í, var með nógu vestrænum svip til þess að vekja aftur að. fullu traust hennar, ef slíks hefði annars verið þörf. Tígulspjalda veggirnir voru gerðir úr einhverjum dökkum harðvið, á gljá- andi gólfið dreift dýrindis mottum, hæginda- stólarnir með mjúkum, fölgrænum leðursætum, öll önnur hlið herbergisins þakin bókaskápum, og svo var þarna stórt skrifpúlt. Á borði við gluggann stóð skrautleg skál úr kínversku postulíni, full af lifandi rósaskrauti. “Þetta er staðurinn, sem eg held mig í, þegar eg vil njóta einverunnar,” sagði Abdel. “Áður var þessi vængur hússins notaður til annarra þarfa, en síðan þetta varð einhleyp- ings verustaður hefir kvenfólkið sérstakt heim- ili út af fyrir sig — hinu megin á aðal garð- sviðinu. Þú hefir ef til vill tekið eftir brúnni, scm á milli húsanna liggur.” Hann athugaði svip hennar gaumgæfilega er hún talaði, og þar sem henni var það ljóst, lét hún enga breyting sjá á andliti sínu. En ef til vill var hreimurinn í rödd hennar ögn of blátt áfram, er hún spurði: “En um hvaða kvenfólk er hér að ræða? Við höfum ekkert af því séð.” Hann hló í gamanshreim. “Á austrænum heimilum eru æfinlega foreldrasystur og ýmis- konar frændkonur, sem ættarhöfðingjanum ber að annast um í húsum sínum. Pasha-inn stjúpfaðir minn, fylgdi öllum fornum venjum kvenfólkinu viðvíkjandi. Enginn kvenmaður á heimili hans, til dæmis, fór út án andlits- skýlu, og alt til þessa dags keyra tengdafrænk- ur mínar með blæjuhuldum bílagluggunum, þá sjaldan þær hætta á að bregða sér nokkurn spöl út úr húsum sínum. Þá eru líka heimilis- konur ráðsmannsins míns, og ýmsar fleiri.” Hann starði út um glugg^nn yfir nú fagur- grænt flæðilandið. Svo langt sem auga eygði í allar áttir var ekki nokkurn blett að sjá, sem ekki væri eign hans. Hann sneri sér svo við, og leit niður til hennar. Og augu þeirra mættust. “Hefir þú, Pauline, hugleitt hvaða þýðing alt þetta hefir fyrir þig? Ertu algerlega viss um, að það muni færa þér sanna gæfu, og — enga eftirsjá?” Hún leit beint upp til hans með skæru og óttalausu augnaráði, er þrungið var því leynd- ardómsfulla afli, sem er lífið sjálft. “Eftirsjá,” endurtók hún. “En hví skyldi eg nokkurn tíma finna til eftirsjár — eg —” En hún gat ekki borið fram loka-orðin, það var hans að kveða fyrst upp úr með þau. Og eins og þó hann vissi hvers hún vænti af honum, sagði hann: “Eg elska þig. Ef þú annt mér, og treystir þér til að eiga það á hættu, þá þrái eg að þú felir mér vernd þína til æfiloka. En þegar þú eitt sinn hefir lofast mér, þá getur ekki verið um nokkurn aðskilnað okkar að ræða. Það scm eg eignast, því held eg — ætíð þaðan í frá. Vertu því viss um það, yndið mitt, að aldrei vakni ‘nein eftirsjá.’ ” “En hvernig gæti það líka mögulega skeð?” spurði hún með andþrengslissnert í hálsinum. “Þar sem eg elska þig, og hið eina, sem eg þrái í þessum heimi, er að vera nálæg þér.” Hann dró hana nær sér, snerti gullna hárið hennar með vörunum áður en hann naut fulln- aðarsælu ástarkossins á vörum henni, og sólar- geislinn vafði geislabaug sínum umhverfis þau — glóandi sem giftingarhringur. Svo hélt hann henni ögn fjær sér og yfir- vegaði ástúðlega andlit hennar. “Pauline mín,” sagði hann í þeim munar- hreim, er í eyra henni hljómaði sem heimsins c-ini ástaróður. “Þú öllum rósum yndislegri ungmey,” hróp- aði hann. “Hvernig getur því vikið við að eng- inn skuli hafa gripið þig höndum fyr en nú?” Hún hló mjúklega, þar sem hún studdi kinn að mjúkum treyjubarmi hans. “Hvað hefðir þú tekið til bragðs, ef einhverjum hefði orðið það á?” “Hrifsað þig frá honum,” svaraði hann hik- laust. “Þú berð fram margt-yndislegt orð, Abdel Amin-Razam,” sagði hún hálf-stamandi. “En þetta hljómar ekki þannig, eins og þú berir mikla virðing fyrir eignarrétts-lögunum.” “Það er einmitt þvert á móti,” svaraði hann, “fyrir þeim ber eg mestu lotningu — ef maður stæli frá mér einhverju, sem mér væri dýrmætt, myndi eg auðvitað taka það af hon- um. Og þú munt ávalt verða —” “Eign þín!” Hún reis upp og leit framan í hann. “Ætlar þú að loka mig inni í kvenna- búri?” “Það er undir því komið hvernig þú breyt- ir. Myndi þér vera það mjög ógeðfelt?” “Ef til vill ekki. En — syngja fangaðir fuglar nokkurn tíma eins unaðslega og þeir, sem frjálsir fljúga?” Abdel þrýsti litlu höndinni hennar að vör- um sér. “Vertu óhrædd, djásnið mitt, eg skal aldrei hefta frjálsræði þitt, framar en kring- umstæðurnar heimta, að minsta kosti. En við verðum að gera okkur grein fyrir þeirri vissu nú þegar, að þér kunni að virðast þær óum- flýjanlegu hömlur óþjálar. Þú hefir heitið mér því, að engin eftirsjá skuli vekjast.” Hann hikaði við eitt augnablik. “Ertu nú alveg viss um það? Ertu nú reiðubúin til að yfirgefa þitt eigið heimaland, míns lands vegna? Því eg vil að þú gerir þér það fullkomlega ljóst, að þetta er mitt heimaland, þar sem rætur lífs míns njóta þroskamagns síns — ekkert getur nú breytt þeirri staðreynd.” “Eg hefi gert mér grein fyrir öllu þessu,” sagði hún hiklaust. “Eg er ekkert hrædd, Abdel. Eg veit að þetta er þitt ættarland — að hér átt þú að véra. Og eg býst við að þrátt fyrir alt sért þú ‘Austrið’ og eg ‘Vestrið.’ En eg trúi því ekki að svo hafi verið tilætlast að það tvent tengdist aldrei hvort öðru. En hvað um það — eg er ekkert hrædd.” Það birtist einhver einkennilega leitandi, eða jafnvel undrunarkeims ákefð í andliti hans. “Hvað mikið veizt þú um mig, Pauline?” spurði hann. “Hvað hefir þú eiginlega frétt af mér?” Hún gretti sig ögn. “Að þú sért mikii- vægur maður, foringi einnar elztu ættarinnar í Egyptaiandi.” “Jæja, við tölum ekkert meira um það núna,” flýtti hann sér að segja. “Um það eitt er nú eiginlega að hugsa, að þú ætlir að taka mér eins og eg er og látir þér nægja það sem bezt þú getur.” “Já — þóknist þér það,” svaraði Pauline. “Þú indæla og blessaða barn. Þessa skal eg minnast alla daga lífs míns.” “Setjum nú svo að þú segir mér ýmislegt, sem mér er ókunnugt um,” sagði hún. “Hvað mörgum stúlkum hefir þú haft löng- un til að giftast, áður en þú kyntist mér?” “Einni,” svaraði hann stillilega. “Fyrir mörgum árum — og þakka mínum sæla, að eg gerði það ekki. Hún vakti hjá mér býsna ó- ljúfa hugmynd um það, hvað kvenfólkið kynni að temja sér.” “Var hún — ensk?” spurði Pauline. “Nei. Við tölum ekkert meira um hana, því minning hennar hefir nú ekkert gildi.” “Jæja þá. En eg fæ, hreinskilnislega sagt, ekkert skilið í því að þú skulir ekki fyrir löngu hafa eignast konu.” “Ef til vill vegna þess, að hjarta mitt líktist eyðimörkinni — og að ekkert blóm gæti sprott- ið í því, fyrr en frjófgunarengillinn typti þar tá sinni: En eins og þú veizt, fellur einstöku sinnum á hana hin ljúfa lífsins dögg, og þá blómgast eyðimörkin ríkulega,” sagði hann.

x

Lögberg

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Lögberg
https://timarit.is/publication/132

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.