Lögberg - 07.09.1944, Side 3

Lögberg - 07.09.1944, Side 3
3 irtæki að nota hana, ef herinn vildi að svo væri. Herforingjaráðið starfar ekki aðeins að ráðagerðum um stríð og herferðir. Að baki þess eru um 20,000 prússneskir junkar- ar, sem hafa verið foringjar í hernum mann fram af manni síðan á dögum Friðriks mikla. Alla sína daga hafa þessir menn — “von-arnir”, eins og von Hindenburg, von Bismarck, von Seeckt, von Mannstein, von Rundstedt, von Falkenhorst, von Arnim, von Richthofen — aðeins haft eitt að leiðarstjörnu, að hrifsa undir sig völd og lönd — og ríkja. Orðið junkari kemur af þýzka orðinu “Jungherr”, ung- ur herramaður eða ungur aðals- maður. Fyrstu junkararnir voru riddarar af Tevtóna-reglunni, sem komu heim úr krossferð til landsins helga snemma á 13. öld, brutu undir sig slavnesku þjóðflokkana, þar sem nú er A.- Prússland og tóku lönd þeirra. Á 15. öld slógust margir þýzkir ræningjabarónar í félag með þeim. Þeir skiptu löndunum í stór- jarðir, gerðu íbúana að ánauð- ugum þrælum og sköpuðu léns- fyrirkomulagið, sem hefir hald- izt við fram á 20. öldina. Nú standa sakir þannig, að 4 milj. ekrur lands eru festar með erfðaskrám — mega ekki ganga kaupum og sölum, veðsetjast, skiptast í smærri jarðir eða ganga til annars en erfingja í beinan karllegg. Jarðvegurinn er hrjóstrugur og eru stórir hlutar hans aðeins hæfir til skóggræðslu. Þrátt fyrir það neyða junkararnir leiguliða sína að rækta rúg og hveiti með aldagömlum aðferðum — og hafa ávallt neytt hina hluta Þýzkalands til að standa straum af hallanum með styrkjum handa sér. í hvert skipti, sem hrun hefir vofað yfir junkurunum, hefir þeim verið bjargað með al- mannafé. Árið 1931 setti Brun- ing-stjórnin sérstaka viðreisnar- löggjöf fyrir Prússland. Þetta varð að opinberu hneyksli árið eftir. Ríkisdagurinn komst að sönnunum um óstjórn og ann- að verra og Kurt von Schleicher hershöfðingi, sem var sjálfur junkari, en kanslari um þetta leyti, hótaði að gera uppskátt um árangur rannsóknar máls- ins. Junkararnir urðu æfir af reiði og leituðu á náðir frænda síns, von Hindenburgs forseta, og báðu hann um að setja svikar- ann von Schleicher af, en gera Hitler að kanslara í staðinn. Hindinburg hafði fengið ættar- setur sitt, Neudeck í Austur- Prússlandi, að gjöf frá ríkinu, skattfrjálst og bundið með erfðaskrá. Hann kallaði Schlei- cher “landbúnaðar-kommún- ista” og gerði Hitler að kansl- ara. Fyrri heimsstyrjöldin breytti engu í Þýzkalandi, enda þótt 160. grein Versalasáttmálans hljóðaði svo: “Stórherforingja- ráðið þýzka og allar slíkar stofnanir skulu leystar upp og má ekki stofna þær aftur í neinni mynd.” En herforingja- ráðið komst hæglega fram hjá þessu ákvæði. Meðlimir þes> unnu bara í venjulegum borg- aralegum klæðum, eða án þess að einkennisbúningar þeirra væru merktir eins og venja er. Spjaldskrár þess og þúsundir landabréfa voru fólgin á óhult- um stöðum og herforingjaráðið fór að vinna að undirbúningi næsta stríðs með enn meira kappi en nokkuru sinni fyrr. Hans von Seeckt hóf þegar að endurreisa herinn. Hann var takmarkaður við 100,000 menn og var því gerður að æfinga- skóla fyrir liðsforingja þessa stríðs. Þessir liðsforingjar sköp- uðu algerlega nýjan her, með nýjum hergögnum og nýjum hugmyndum. Leynifélagsskap- ur mikill, sem þekktur var und- ir nafninu “svarti ríkisherinn” og var undir stjórn von Bocks, var settur á fót, til þess að snið- ganga eftirlitsnefnd banda- manna, afla hergagna og geyma þau, halda uppi njósnum og verja 'leynilegum fjárframlög- um til þeirra hluta, sem taldir voru nauðsynlegastir. Herforingjaráðiið gætti þess, að foringjar þeir úr fyrra stríð- inu, sem “leysti” höfðu verið úr herþjónustu, færi ekki á ver- gang. Þegar eg fór í kynnisför um ýmsar þýzkar verksmiðjur skömmu eftir stríðið, hitti eg þar marga fyrrverandi kafbáta- foringja, 4m unnu sem nætur- verðir, fyrirliðar slökkviliða verksmiðjanna og því um líkt. Herforingjaráðinu var fljót- lega ljóst, að það þarfnaðist manns eins og Hitlers eða ein- hvers, sem var líkur honum. Mikill hluti þýzku þjóðarinnar var bannsettir friðarvinir. — Þegar að því kæmi, að hefjast mætti handa um algeran víg- búnað, varð þjóðin öll að standa þar að baki. Nazistarnir voru aðeins einn’ af mörgum hópum þjóðernisof- stækismanna, sem herforingja- ráðið ól við brjóst sér eftir síð- asta stríð. Menn hafa talað margt um hinn svokallaða “ríg” milli herforingjaklíkunnar og Razistaflokksins. Sannleikurinn er sá, að bandalag er milli þeirra. Hitler hóf feril sinn í Þýzkalandi sem launaður njósn- ari fyrir herforingjaráðið og hann viðurkenndi yfirráð hers- ins frá öndverðu. í ræðu sinni á flokksþinginu í Nurnberg árið 1935 sagði hann: “Leiðtogar koma og leiðtogar fara, en Þýzkaland mun lifa eilíflega. Herinn verður að varðveita vald það, sem Þýzkalandi er fengið, og gæta þess.” Sigurinn er ekki unninn, fyrr en síðustu ummerki þýzka her- foringjaráðsins hafa verið út- máð með öllu. Vísir. Mælskusnillingurinn Winálon Churchill Grein þessi, sem er ejtir Desmond McCarthy og hér þýdd úr tímaritinu English Digest, fjallar um Winston Churchill sem mœlskumann, en hann er talinn einhver mesti rœðusnillingur, sem nú er uppi. Greinarhöfundur vitn ar til nokkurra rœðna hins brezka forsætisráðherra til þess að sanna lesendunum ýms einkenni hans sem ræðu- manns. Enn geta Bretar engan veginn gert sér fulla grein fyrir því, hvað þeir eiga að þakka forsjá og dómgreind forsætisráðherra síns. Það mun sagan sanna. Hins vegar er Bretum vel um það kunnugt, hvað ræður hans hafa haft að þýða fyrir þá sem ein- staklinga og þjóð. Þess eru dæmi, að skáld og rithöfundar hafi heillað svo hugi manna með orðsnilld sinni, að nöfn þeirra munu aldrei gleymast, meðan menningarþjóð ir byggja þessa jörð. Eitthvað svipað er að segja um mælsku- list Winstons Churchills og á- hrif þau, er hún hefir haft á brezku þjóðina á öllum stigum styrjaldar þeirrar, sem nú er háð, hvort heldur hún hefir un- að ósigri eða sigri, svartsýni eða bjartsýni. Og það, sem eg bið ó- þreyjufyllstur eftir, er það, að stríðsræður Churchills verði gefnar út að ráðnum úrslitum hildarleiksins. Við getum gert okkur í hug- arlund, hver hefði orðið hlutur brezku þjóðarinnar á hörmung- artímum þeim, sem yfir hana hafa dunið síðustu ár, ef hún hefði ekki átt slíkan leiðtoga og málsvara sem forsætisráðherra hennar er. Fátt væri mér kærara en LÖGBERG, FIMTUDAGINN 7. SEPTEMBER, 1944 benda hér á það, hvílíkur snill- ingur Churchill er á látlaust en áhrifaríkt mál, hversu bragðfim- ur ræðuskörungur hann er, skemtinn og markviss, en allt þetta veldur þeirri almennings- hylli, er hann nýtur sem ræðu- maður. ’En þessa er enginn kost- ur að þessu sinni. Eg verð að sætta mig við það eitt að lýsa nokkuð hæfni hans sem sagn- fræðings og því, hversu honum tekst ávalt frábærilega vel að koma henni við, er hann lýsir mikilvægum atburðum. En á tímum sem þessum má með sanni kveða þannig að orði, að atburðirnir lýsi sér raunveru- lega sjálfir. Enda þótt óvenju- lega örlagaríkir atburðir gerist, gleymast þeir mönnum brátt, því að hafsjór atburðanna bylt- ir feiknahrönnum að strönd end- urminnmganna svo að segja dag lega. Það leikur því ekki á tveim tungum, að það er næsta mikils um það vert að hafa á að skipa málsvara, sem er sér- stakur snillingur í því að lýsa hinum daglegu atburðum og skilgreina þá þannig, að mönn- um verði ríkt í minni og skiln- ingur þeirra á mikilvægi þeirra skerpist. Eg hefi hér fyrir framan mig fjölmargar ræður eftir forsætis- ráðherrann, sem lýsa glögglega þessari þjónustu hans við þjóð sína, og það, sem einkennir þær allar, er' ekki aðeins það, að hann leggi áherzlu á það að skerpa skilning þjóðarinnar á at- burðum þeim, sem gerzt hafa á hverjum tíma, heldur og að hvetja hana til þess að taka þeim eins og hugdjarfri og mik ilhæfri þjóð sæmir. Eg tek hér til dæmis ræðu þá, er hann hélt hinn 18. júní 1940. Orustunni um Dunkirk var lok ið, og þennan sama dag hittust þeir Hitler og MusSolini til þess að ræða friðarskilmála þá, er Frakklandi skyldu settir. Þá mæltist honum á þessa lund: “Því, sem Weygand hershöfð- ingi hefir nefnt orrustuna um Frakkland, er lokið. Eg hygg, að orrustan um Bretland sé nú í þann veginn að hefjast. Hin kristna menning er \indir því komin, hver úrslit þeirrar orr- ustu verða. Tilvera Breta og heimsveldis þeirra er undir þeim úrslitum komin. Óvinur- inn mun beina öllum mætti sín- um og æði gegn okkur. Hitler er um það kunnugt, að annaðhvort er fyrir hann að bera Breta ofurliði eða tapa styrj- öldinni. Ef okkur tekst að veita honum viðnám, mun Evrópu verða bjargað og mannkynið geta hafið sókn til nýrra áfanga. En ef við bíðum lægri hlut, mun gervallur heimurinn, þar á meðal Bandaríkin og allt það, sem við þekkjum og unnum, sökkva niður í hyldýpi nýrra skuggaalda, sem verða enn öm- þjóðir og málefni. Það er mikill | fjöldi manna hér á landi og í öllum löndum, sem veita hinum góða málstað ómetanlega þjón- ustu í þessari styrjöld, en aldrei verður að nokkru getið. Dáðir þeirra munu liggja í þagnar- gildi. Þetta er styrjöld óþekktra hermanna. En við skulum al- drei láta tryggð okkar og rækt- arsemi bregðast, og þá mun okkur auðnast að hrista hina illu martröð Hitlers af okkur”. Næst mun eg höfða til kafla úr ræðu, sem er óvenjuleg jafn- vel af Churchill að vera. Hún sýnir þann þátt ræðusnilldar, sem Churchill tíðkar sjaldan í umræðum um stjórnmál á þingi, enda þótt hann hafi oft verið þungorður í garð andstæðinga sinna. Að þessu sinni er Hitler umræðuefni hans: “Þessi vondi maður, persónu- gervingur margs konar sál- eyðandi haturs, hefir nú gert tilraun til þess að granda kyn- stofni þeim, sem byggir Bret- landseyjar með fjöldaslátrun og eyðileggingu. Það, sem hann hefir gert, er að kveikja glóð í hjörtum Breta heima og heim- an, sem mun verma þá löngu eftir að síðustu minjarnar um eyðileggingu þá, sem Hitler hef- ir kallað yfir Lundúni, hafa ver- ið máðar brott. Hann hefir kveikt heilagan eld, er mun brenna sem óslökkvandi logi, unz harðstjórn nazismans hefir verið sigruð og gamli heimur- inn og nýi heimurinn hafa tek- ið höndum saman til þess að endurbyggja musteri frelsisins og göfginnar á hornsteinum, sem ekki munu verða raskað fljótt né auðveldlega.” Þetta verður vart betur sagt. Ef til vill hafa áður fyrr — og raunar enn í dag — verið haldnar ræður, er hafa æst þá, sem á þær hlýddu, meira en þessi ræða gerði. Gladstone var til dæmis slíkur mælskumaður. Hann taldi hlutverk ræðusnilld- arinnar það að svipta hulu frá augum áheyrandanna og birta þeim málin í nýju ljósi. Þegar maður les ræður hans, er sem maður heyri hina þróttugu rödd hans, er minni helzt á nið Atlantshafsins, hljóma í eyrum sér. Hann var mikilhæfur ræðu- snillingur, sem kunni tökin á málflutningi sínum og áheyrend um. En eigi að síður fer því fjarri, að ræður Gladstones séu les- endunum eins glöggar og skýr- ar og ræður Churchills. — Hon- um lætur öllum öðrum betur hið látlausa og alþýðlega mál. Eh hann á það sammerkt með fyrirrennurum sínum, að hann er snillingur í að nota málshætti og orðaleiki. Og svo vitna ræð- ur hans um léttleika og glettni, sem landar hans kunna svo vel að meta. Á átjándu öldinni einkenndi ingar bera gleggst vitni. Og þeim, sem lesið hafa rit Shakes- peares, mun vart koma það á óvænt, þótt Bretum láti það vel að beita kímni og orðsnilld í ræðu og riti. Alþýðublaðið. ■ “Að tjarga gult” í kaupstað úti á landi var einu sinni danskur kaupmaður, en hann var með þeim ósköpum fæddur að geta ekki lært ís- lenzku, þrátt fyrir langa dvöl hér á landi. Einn • góðan sumarmorgun var hann á gangi um kaupstað- inn og gekk þá fram hjá Jakobi gamla, sem var að mála húsið sitt með gulri málningu. Kaup- maður staðnæmdist og kallar: “God eruð tá Dag Jakob minn, tér að tjarga gult,” No. 25 E.M.C. Business and Professional Cards Ulei/en SjUulips JBUL /Mopccwhic otfmf/mmmOmm urlegri og hryggilegri vegna það hvern mann, er kvaddi sér þess, að við höfum haft af ljósi menningarinnar að segja. Við skulum því bindast fast í bræðralag og gera skyldu okk- ar minnug þess, að ef Bretland og brezka samveldið stenzt þessa raun munu menn að þús- und árum liðnum komast að orði á þessa lund: “Þetta var örlagaríkasta stund sögu Breta veldis.” Þá mun eg hörfa til kafla úr annarri ræðu, sem haldin var nær mánuði síðar, þegar við- horfin voru orðin enn ískyggi- legri og stjórn Pétains hafði rof- ið öll tengsl við Bretland. “En allt er nú komið undir lífsmætti hins brezka kyn- stofns, hvar sem hann dvelst í heiminum, og allra hinna sam- einuðu þjóða og vina okkar í sérhverju landi, sem leggja sig alla fram dag og nótt, sem láta allt af mörkum, þora allt, standast allt, þrauka til þraut- ar. Þetta er ekki styrjöld um höfðingja eða konungssyni, kon- ungaættir eða metorðagirnd þjóða, þetta er styrjöld um hljóð á þingi eða utan þess, að hann lagði mikla áherzlu á það að nota málshætti og líkingar og beita glöggum og skýrum setningum. Þetta var og ein- kenni á ræðulist nítjándu ald- arinnar að minnsta kosti fram- an af. Þeir, sem eru það gamlir, að þeir muna eftir ræðumönn- um, sem uppi voru fyrir hálfri öld, munu staðfesta þetta og minnast mælsku þeirra. Engum datt í hug, að enda þótt mikil ræða væri afrek, væri hún ekki sýningaratriði jafnframt. Eg minnist þess, að eg spurði einu sinni . Hilaire Belloc, skömmu eftir hinn mikla kosn- ingasigur frjálslynda flokksins undir forustu Campbells Ban- nermans, hvort hann hefði enn- þá flutt snjalla ræðu í neðri málstofunni. “Snjalla ræðu í neðri málstofunni!” svaraði hann. “Það væri eins og að syngja við miðdegisverð.” En ræðusnilld á sér mun eldri sögu meðal hinnar brezku þjóð- ar eins og bókmenntir frá ríkis- stjórnarárum Elísabetar drottn' Phone 49 469 Radio Service Specialists ELECTRONIC LABS. H. THORKELSON, Prop. The most up-to-date Sound Equipment System. 130 OSBORNE ST., WINNIPEG 224 Notre Oeme- MANITOBA FISHERIES WINNIPEa, MAN. T. Bercovitch, framkv.stj. Verzla I heUdsölu meC nýjan og frosinn flsk. 303 OWENA ST. Skrifstofusími 25 355 Heimasimi 55 463 Blóm stundvíslega afgreidd THt ROSERY StofnaC 1905 427 Portage Ave. Winnipeg. LTD. G. F. Jonasson, Pres. & Man. Dlr. S. M. Backman, Sec. Keystone Fisheries Limited 404 Scott Block Wholesale Distributors of FRESH AND FROZEN FISH EYOLFSON’S DRUG PARK RIVER, N.D. tslenzkur lyfsali P61k getur pantaC meöul og annaö með pðsti. Pljöt afgreiðsla. J. J. SWANSON & CO. LIMITED 308 AVENUE BLDG., WPO. • Pasteignasalar. Leigja hús. Ot- vega peningalán og eldsSbyrgð. bifreiða&byrgð, o. s. frv. Phone 2 6 821 TELEPHONE 96 010 H. J. PALMASON & CO. Chartered Accountants 1103 McARTHUR BUILDING WINNIPEG, CANADA Legsleinar sem skara framúr Orvals blágrýti og Manitoba marmarl Skrifiö eftir veröskrd GILLIS QUARRIES, LTD. 1400 SPRUCE ST. Wlnnipeg, Man. DR. A. BLONDAL i Physician & Surgeon 602 MEDICAL ARTS BLDG. Stmi 22 296 Heimili: 108 Chataway Slmi 61 023 Frá vini fej ÓHONE 96 647 U CANADIAN FISH PRODUCERS, LTD. J. fí Pone, Hfanaping Directof Wholesale Distributors of Fresh and Frozen Fish. 311 Chambers St. Office Phone S6 651. Res Phone 73 917. Office Phnne Res. Phone 88 033 72 409 Dr. L. A. Sigurdson 166 MEDICAL ARTS BLDG. Offlce*Hours: 4 p.m.—6 p.m. and by appointment ANDREWS, ANDREWS THORV ALDSON AND EGGERTSON Lögfrœöingar 209 Bank of Nova Scotla Bldg. Portage og Garry St. Sími 98 291 DR. A. V. JOHNSON Dentist 506 SOMERSET BLDG. Telephone 88 124 Home Telephone 203 398 DRS. H. R. and H. W. TWEED Tannlœknar • 406 TORONTO GEN. TRCSTS BUILDING Cor. Portage Ave. og Smith St PHONE 26 545 WINNIPÉÖ A. S. BARDAL 848 SHERBROOK ST. Selur Ukkistur og annast um flt- farlr. Allur útbúnaður sá beztl. Ennfremur selur hann allskonar minnisvarða og legstelna. Skrifstofu talslml 86 607 Heimilis talsfmi 26 444 DR. ROBERT BLACK Sérfræðingur I eyrna, augna, nef og hálssjúkdðmum 416 Medical Arts Bldg. • Cor. Graham & Kennedy Vlðtalstimi — 11 til 1 og 2 til 5 Skrlfstofusfmi 22 2 61 Heimllisslmi 401 991 Dr. S. J. Johann«sson 215 RUBY STREET (Beint suður af Bannlng) Talslmi 30 877 Vlðtalstimi 3—6 e. h. GUNDRY & PYMORE LTD. Britísh Quality — Fish Netting 60 VICTORIA STREET Phone 98 211 Winnipeg Manager, T. R. THORVALDSON Your patronage will be appreciated

x

Lögberg

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Lögberg
https://timarit.is/publication/132

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.