Lögberg - 12.10.1944, Síða 1
57. ÁRGANGUR LÖGBERG, FIMTUDAGINN 12. OKTÓBER, 1944 NÚMER 34
%
Fræðslustarf í íslenzku,
sögu íslands og
bókmentum
Eins og getið var um í blöð-
unum í vor hefir Icelandic Cana-
dian Club í samráði við Þjóð-
ræknisfélagið ákveðið að setja
á stofn fræðslustarf í íslenzku,
sem hefst nú í þessum mánuði.
1 nefndinni sem starfar að þessu
máli eru: W. S. Jonasson, Rev.
H. E. Johnson og Hólmfríður
Danielson fyrir hönd Icel. Can.
Club og Ingibjörg Jónsson og
Vilborg Eyjólfson fyrir hönd
Þjóðræknisfélagsins.
Nefndin bygði á þeim grund-
velli að ekki væri nægilegt að
kenna aðeins íslenzkt mál, þar
sem mikil nauðsyn er á því að
kynna ísland yngra fólkinu og
vekja áhuga þess fyrir menn-
ingarerfðum síns eigin stofns.
Var því afráðið að samhliða ís-
lenzku kenslunni skyldi vera
fyrirlestrar á ensku, sem fjalla
um íslenzk efni, sögu, bókment-
ir, o. s. frv. Við, sem störfum í
nefndinni höfum hlotið allmikla
hjálp og uppörfun frá okkar
allra færustu mentamönnum hér
sem skilja vel hve afar nauð-
synlegt er að gefa yngri kynslóð-
inni tækifæri að kynnast ætt-
landinu og fræðast um menningu
þess; og eru þeir einróma um
það, að þetta fyrirtæki muni ná
miklum vinsældum.
Fyrirlestrar þessir og fræðslu-
starf verður einnig til þess að
vekja áhuga hjá foreldrum til
að senda börn sín á laugardags-
skólann og stuðla að stofnun ís-
lenzku kenslu við Manitoba há-
skólann. Starf þetta hefir ekk-
ert verið auglýst enn, þó hafa
komið umsóknir úr öllum áttum
frá yngri og eldri, sem vilja
njóta þessarar uppfræðslu.
Nokkrar annara þjóða konur,
sem giftar eru ísíenzkum mönn-
um eru nú þegar skrásettar á
nemenda skránni.
Starfið hefir nú verið skipu-
lagt og hefst mánudagskveldið
23. október í fundarsal Fyrstu
lútersku kirkju. Fyrirlestrar
verða tólf að tölu og er þeim svo
til hagað að þeir gefa gott heild-
aryfirlit yfir sögu og bókmentir
íslands. Kenslustundir verða
tvisvar í mánuði. Hinir fróðustu
og snjöllustu menn og konur,
sem völ er á, hafa lofað að flytja
fyrirlestra og er það gott merki
þess hvaða álit þeir hafa á þessu
starfi, og erum við þess fullviss
að ísl. almenningur hefir svo
mikinn áhuga fyrir þessum mál-
um að tækifæri annað eins og
þetta verður vel notað.
Til þess að gefa sem- flest-
um færi á að nota kensluna,
verður skrásetningargjald mjög
lágt, aðeins $2.00 fyrir alt kenslu-
tímabilið; en fyrirlestrar verða
opnir fyrir almenning og að-
gangur 25c fyrir þá, sem ekki
eru skrásettir.
Allar upplýsingar fást að 869
N Garfield St. Phone 3 528. Einn-
ig verður starfið betur auglýst í
næstu blöðum. Munið eftir deg-
inum 23. október, kl. 8 e.h., og
hentugast væri að skrásetjast
fyrir þann tíma.
Hólmfríður Danielson,
Ingibjörg Jónsson.
FJÖLMENNT
KVEÐJUSAMSÆTI
Á miðvikudagskveldið í vik-
unni sem leið, var þeim Eggert
lækni Steinþórssyni og frú Gerði
Steinþórsson, haldið fjölmennt
kveðjusamsæti á Marlborough
hótelinu hér í borginni, en þau
eru nú á förum suður til New
York, þar sem þau munu dvelja
í vetur.
Til samsætis þessa var stofnað
af hálfu Þjóðræknisfélagsins, og
stjórnaði því vara-forseti þess,
séra Valdimar J. Eylands. Séra
Philip M. Pétursson mælti fyrir
minni íslands, Mr. S. O. Bjerring
mintist heiðursgestanna beggja,
séra Egill H. Fáfnis mælti fyrir
minni Eggerts læknis, en séra
Valdimar fyrir minni frúarinnar.
Frú Hólmfríður Danielson mint-
ist heiðursgestanna og sonar
þeirra fyrir hönd Icelandic
Canadian Club, en Dr. P. H. T.
Thorlakson mintist sérstaklega
Eggerts læknis, og fór fögrum
orðum um skyldurækni hans og
áhuga á sviði læknavísindanna.
Frú Lilja Eylands afhenti frú
Steinþórsson forkunnar fagran
blómvönd. Einsöngva sungu
þeir Pétur Magnús og séra Egill
H. Fáfnis, en Gunnar Erlendsson
var ,við hljóðfærið. Mr. Magnús
hafði forustu um almennan söng.
Þau Eggert læknir og frú
Gerður þökkuðu fagurlega hvort
í sínu lagi þá sæmd, er þeim
hefði fallið í skaut með þessu
fjölmenna kveðjusamsæti, -og
kváðust verða mundu langminn-
ug þeirrar góðvildar, er þau
hvarvetna hefðu mætt af hálfu
V estur-íslendinga.
Þau Eggert læknir og frú hans
hafa með ljúfmannlegri fram-
komu sinni og virkri þátttöku í
íslenzkum mannfélagsmálum,
eignast hér stóran hóp vina, er
nú þakkar þeim innilega fyrir
samveruna og óskar þeim góðs
brautargengis.
•
GÓÐIR GESTIR AÐ HEIMAN
Til borgarinnar kom á sunnu-
dagsmorguninn var, herra Ás-
geir Jónasson skipstjóri á því
skipi Eimskipafélags íslands, er
Fjallfoss nefnist; í för með hon-
um var dóttir hans, Helga Hólm-
fríður, glæsileg ung stúlka.
Ásgeir skipstjóri er ættaður
frá Hrauntúni í Þingvallasveit,
gáfumaður mikill og fróður um
margt; hann hefir verið í þjón-
ustu Eimskipafélagsins frá stofn-
un þess, og er hinn fyrsti af
skipstjórum þess, sem til Win-
nipeg hefir komið; dvelur hann
hér í borginni fram á næsta
sunnudag, og fer þá flugleiðis
austur í Halifax þar sem skip
hans er í viðgerð. Systir Ásgeirs
skipstjóra, Jónína, frá Seattle,
Wash., kom hingað til fundar
við bróður sinn, og með henni
þangað vestur, fer áminst bróð-
urdóttir hennar að heiman í
kynnisför.
WENDELL L. WILLKIE
LÁTINN
Síðastliðinn sunnudag lézt á
sjúkrahúsi í New York, Wendell
L. Willkie, sá er kepti um for-
setatign af hálfu Republicana
við forsetakosningar Bandaríkj-
anna árið 1940. Mr. Willkie var
fæddur í Indianaríkinu, og lauk
ungur háskólaprófi í lögfræði;
hann var á mörgum sviðum
sjaldgæfur áhrifamaður, víðsýnn
og einbeittur, og gætti áhrifa
hans vítt um heim; sem rithöf-
undur hlaut hann víðfrægð fyr-
ir bók sína “One World.” Mr.
Willkie var 52 ára, er dauða hans
bar að.
íslenzkir hermenn
fallnir, soerðir eða
teknir til fanga
Pte. Joel T. Björnsson féll á
vígvellinum í ítalíu, 18. sept.,
samkvæmt skeyti, sem móðir
hans Mrs. E. M. Ólafson, Ste. 21
Elsinore Apts., barst nýlega. —
Pte. Björnsson var 25 ára að
aldri og var fæddur í Winnipeg.
Hann gekk í herinn stuttu eftir
að stríðið braust út. Auk móður
sinnar lætur hann eftir sig tvær
ungar systur, Dorothy og Edith.
O.D. John Sigurdson, R.C.N.-
V.R. lézt þann 5. þ. m. að Corn-
wallis, Nova Scotia, þar sem
hann var við flugæfingar. Hann
var 20 ára að aldri, fæddur að
Víðir, Manitoba, en fluttist með
móður sinni til Selkirk fyrir
tveimur árum. Faðir hans, Jón
Sigurdson, lézt 1935. Auk móð-
ur sinnar, Mrs. Sigrún Sigurd-
son, lætur hann eftir sig sex
bræður, Baldvin og Torfa í her-
þjónustu; Sigurð í Wirmipeg;
Björn, Franklin og Marino heima
hjá móður sinni, og þrjár systur,
Mrs. J. Halldórsson, Víðir, Man.
og Guðrún og Helga heima. O.D.
Sigurdson var jarðsettur að
Víðir, Man.
B.D.R. Frederick Guttormson
særðist á Frakklandi 15. ágúst
s.l. Foreldrar hans eru Mr. og
Mrs. E. Guttormson, Poplar
Park.
Pte. Fjölnir Goodman særðist
á vígvellinum í Belgíu nýlega.
Foreldrar hans eru Mr. og Mrs.
J. Goodman, Lundar, Man.
Rfn. Finnur S. Finnson, son-
ur Mrs. J. Finnson, Swan River
er lítillega særður, samkvæmt
frétt, sem birtist í Free Press 5.
október.
F.O. Hannes Kristinn Vidal er
fangi á Þýzkalandi, samkvæmt
frétt, sem birtist í dagblöðunum
5. október. Faðir hans er Sig-
valdi Vidal, Hnausa, Man.
•
Skarar fram úr öllum
í öllu
Blaðið Ottawa Citizen flutti
eftirfarandi frétt 5. þ. m.:
“HEIÐURSLAUN AFHENT
FRAMÚRSKARANDI NEM-
ANDA.”
W. G. Story, forstöðumaður
Hopewell skólans afhenti al-
þýðuskóla verðlaun nemandan-
um Franklyn Hjörleifson á
fundi í iðnaðarskólanum í dag
(5. okt.). Verðlaunin eru veitt
af skólaráðinu þeim nemanda,
sem skarar fram úr öllum í al-
þýðuskólunum. Þau eru $10.00.
Franklyn Hjörleifson vann
einnig $5.00 verðlaun við Hope-
well skólann fyrir bezta frammi-
stöðu í námi, leiðtoga hæfileika
og leikfimi.”
Þessi piltur er sonur Skúla
Hjörleifsons, sem vinnur fyrir
sambandsstjórninni í Ottawa
og Óskar konu hans; hann
flutti þangað frá Riverton,
og pilturinn, sem aðeins er 15
ára, fékk mest af alþýðuskóla-
mentun sinni í Riverton; er það
heiður og gleðiefni þeim, sem
þar hafa verið kennarar hans.
Hann lauk alþýðuskóla námi í
fyrra og gengur nú á iðnskólann
í Ottawa.
Sig. Júl. Jóhannesson.
•
Samkvæmt yfirlýsingu frá
flugmálaráðherra sambands-
stjórnarinnar, Mr. Powers, er nú
liðssöfnun til canadiska flug-
hersins lokið, með því að svo
er litið á, að nægilegt varalið sé
fyrir hendi.
FALLINN
«
• Stefan August Loptson
Sú harmafregn hefir borist
þeim Mr. og Mrs. B. M. Loptson
að Lundar, að sonur þeirra, Ser-
geant Stefan August, sem var í
canadiska flugliðinu, hafi látið
líf sitt í herþjónustu; þessi ungi
og efnilegi maður var fæddur að
Lundar 26. maí 1923, en innrit-
aðist í flugherinn 5. nóvember
1942; hann fór austur um haf í
ágústmánuði árið eftir.
Auk foreldra sinna lætur
þessi ungi, burtkallaði flugmað-
ur, eftir sig þrjá bræður, Munda,
sem er í herþjónustu, Barney í
Winnipeg og Konrad í heimahús-
um; ennfremur fimm systur:
Mrs. Ingu Einarsson, Clarkleigh,
Mrs. Helgu Björnson,' Lundar,
Mrs. Lenu Treaner, Ontario,
Þóru í Winnipeg og Ásu í for-
eldragarði.
Nýjustu fréttir
Bandaríkjaherinn krafðist þess
á mánudaginn, að Þjóðverjar í
Aachen legði þá samstundis skil-
yrðislaust niður vopn, því að
öðrum kosti yrði borgin jöfnuð
við jörðu og eigi fyr skilist við*
en hver einasti og einn þýzkur
hermaður þar um slóðir, hefði
látið lífið; við þessari kröfu
skeltu þýzk hernaðarvöld skoll-
eyrum, og verður því úr þessu
barist um borgina unz yfir lýkur
með fullnaðarsigri af hálfu aiííe-
ríska hersins.
Frá Rómaborg er símað á mið-
vikudagsmorguninn, að Þjóð-
verjar séu önnum kafnir við að
reyna að koma undan sem mestu
af liði sínu, sem verið hefir á
Grikklandi, þó litlar líkur séu á
að þeim takist það, því innrás-
arherjum sameinuðu þjóðanna í
landinu, vex jafnt og þétt fiskur
um hrygg; nú hafa þeir náð á
vald sitt borginni Korinth, og
þess vænst, að höfuðborgin
Aþena, muni þá og þegar falla.
♦
Þeir Churchill forsætisráð-
herra og Eden utanríkisráðherra
Breta, eru staddir í Moskva um
þessar mundir og sitja þar á
ráðstefnu við Joseph Stalin;
hvað þessum stjórnmálaskörung-
um hefir farið á milli á þessum
óvænta fundi, er enn eigi að
fullu vitað, þó víst þyki, að um-
ræðurnar hafi einkum og sér í
lagi snúist um það, að reyna að
binda enda á Norðurálfustyrjöld-
ina á yfirstandandi hausti.
-f
Aðptoðar utanríkisráðherra
Bandaríkjanna, Mr. Stettinus,
hefir gert kunnugt, að í ráði sé,
að sameinuðu þjóðirnar allar,
að loknu stríði, myndi nýtt
þjóðabandalag, er að því leyti
til verði frábrugðið þjóðabanda-
laginu frá 1919, að því verði gert
að skyldu, að hafa ávalt til taks
nægan herstyrk til þess að fyr-
irbyggja yfirgang og ásælni
hvaða þjóðar sem sé.
Fjallkonan frjáls
Heill sé þér á heiðursdegi,
Hafi girta fjalla drotning.
Einni þér nú allir hneigji
Andlit sín í djúpri lotning.
Síðan Hjálmar heitinn krafði
Hjálpar-eið af guði sínum,
Framgang þinn og frelsi tafði
Forað margt á vegi þínum.
Gegnum hungur, bál og bylji
Barstu flest þín mein í hljóði.
Frelsisþrá og fastur vilji
Fyltu brjóstið guðamóði.
Meðan lýðir lostnir æði
Löðra jörð í sifja blóði.
Af þér kross og konungræði
Kaupir þú með andans sjóði.
Þjóðræðis og þínga móðir,
þú ert ennþá leiðarstjarna;
Eins og blys um andans slóðir,
Áttaviti lífsins barna.
Fúna menning fyrri alda
Flúðir þú með ljósið dýra.
Oft þó gyldi illra valda,
Altaf blakti nokkur týra.
Nú er síðsta skugga-skýið
Skafið burt af himni þínum,
þar, sem fyrsta frelsis-vígið
Forðum stóð í ljóma sínum.
P. B.
LAUGARDAGSSKÓLINN
Um allmörg ár hefir Þjóð-
ræknisfélagið starfrækt skóla
árdegis á laugardögum, þar sem
börnum og unglingum er veitt
ókeypis tilsögn í íslenzkri tungu.
Þetta fyrirtæki hefir mætt verð-
ugum vinsældum, og fjöldi barna
hafa á þennan hátt fengið hald-
góða undirstöðuþekking á máli
feðra sinna, eins og lokasamkom-
ur skólans ár hvert hafa sýnt.
Ágætir og reyndir kennarar hafa
annast kensluna undanfarin ár,
og er svo enn. Skólmn hefir; nú
nokkur síðustu árin, verið hald-
inn til skiftis í íslenzku kirkj-
unum hér í Winnipeg, og ættu
allir að láta sér þann jöfnuð vel
líka. Skólinn hófst á laugar-
daginn var í Sambandskirkjunni
á Banning Street, kl. 10 f. h., og
þar verður hann haldinn, og á
•þeim tíma hvern laugardag í vet-
ur, svo framarlega að hæfileg
aðsókn fáist.
Viljum vér í fullri alvöru á-
minna alla foreldra, sem skiln-
ing hafa á verðmæti íslenzkrar
tungu um að senda börn sín á
skólann reglulega og stundvís-
lega kl. 10.
Fjöldi fræðimanna víðsvegar
um heiminn leggja á sig mikinn
tilkostnað og ærna fyrirhöfn til
að læra íslenzka tungu. Þetta
nám er nú lagt upp í hendur ís-
lenzkra barna í borginni og víðs-
vegar út um bygðir fyrir tilstilli
félags vors og deilda þess, þeim
að kostnaðarlausu og með lítilli
fyrirhöfn. Islenzkir foreldrar,
þér unnið börnum ykkar hins
bezta. Látið þá ekki þetta tæki-
færi fara fram hjá þefm.
Stjórnarnefnd
Þjóðræknisfélagsins.
17. júní 1944
f
Horf langt yfir alheiminn íslenzk þjóð,
ver aflstöð, sem hækkar þann lága.
þú samdir um aldirnar sögur og ljóð,
og sýndir í fjarskanum bláa
að andi, sem fóstraði ís og glóð,
á orku, að gefa þeim smáa.
Við fögnum af alhuga frelsinu því,
sem fangajárn stjórnarfars brýtur;
þó enn byrgi himinin önnur ský,
er óveðurs-stormurinn þýtur,
sem svæfir í fæðingu sannindi ný,
og samúð af rótinni slítur.
Hið sannasta frelsi á sigurbraut
er samstilling hugsananna,
sem gleyma því hvorki í gleði né þraut,
að Guð er í sálum manna,
sem horfa langt yfir himinskaut
og huldu vegina kanna.
Við óskum að kreppi þig engin bönd
vor íslenzka, hjartkæra móðir.
Við sendum þér kveðju af Kyrrahafströnd,
— á krossgötum tímanna hljóðir.
Við réttum þér öll yfir hafið hönd,
og himnarnir verndi þig góðir.
J. S. frá Kaldbak.