Lögberg - 12.10.1944, Blaðsíða 8

Lögberg - 12.10.1944, Blaðsíða 8
8 . LÖGBERG. FIMTUDAGINN 12. OKTÓBER, 1944 Or borg og bygð Þjóðræknisdeildin Esjan í Ár- borg, heldur skemtifund sunnud. þ. 22. þ. m., að heimili Dr. og Mrs. Björnsson. Fundurinn byrj- ar kl. 2 e. h. Hefir Esjan ákveðið að bjóða öllum þeim frá deild- unum þrem, í Selkirk, Gimli og Riverton, sem kynnu að hafa tækifæri á að sækja þetta gleði- mót. Vonast hún eftir húsfylli, til aukinnar samvinnu og vax- andi áhuga fyrir þjóðræknis- starfinu. S. E. B. ÞAKKLÆTI Gefið í byggingarsjóð Banda- lags lúterskra kvenna: Mr. Hall- dór Johnson, 1088 Downing St., Winnipeg, $25.00. Kærar þakkir, Hólmfríður Danielson. 9 Þriðjudaginn 3. þ. m. barst séra Sigurði Ólafssyni í Selkirk, skeyti frá Reykjavík að móðir hans, ekkjufrú Guðríður Þor- steinsdóttir hefði látist þar 2. okt. Hún var 87 ára að aldri, þróttmikil trúkona og prýðisvel hagorð. Eiginmann sinn Ólaf Erlendsson smið^misti hún 1925. Af 9 börnum þeirra eru á lífi: Þórunn, gift kona í Reykjavík; Erlendur, sjómaður, kvæntur, búsettur að Barónsstíg 21, Reykjavík og séra Sigurður, í Selkirk. Barnabörn eru 13 á lífi, en barnabarnabörn 4. —“Enginn kendi mér eins og þú hið eilífa’ og stóra, um kraft . og trú, né gaf mér svo guðlegar myndir.” (Matth. Jochumsson). • Á fimtudaginn þann 5. október voru gefin saman í hjónaband í Westminster kirkjunni þau Halldór Guðjón Finnsson og Maxine Esther Buchanan. Er brúðurin dóttir þeirra Mr. og Mrs. J. B. Buchanan, Minitonas, Man., en brúðguminn sonur þeirra Mr. og Mrs. K. G. Finns- son, Bessborough Apts., Winni- peg. Rev. Dr. E. Howse fram- kvæmdi hjónavígsluna. Miss Agnes Sigurdson var við hljóð- færið. Wren Margaret Finnsson og Fraser Buchanan aðstoðuðu brúðhjónin. — Eftir giftinguna fór fram samsæti að heimili Mr. og Mrs. M. Sigurdson að 98 Kingsway. Unigu hjónin fóru giftingarferðina til Vancouver. Heimili þeirra verður að 38 Bessborough Apts., Winnipeg. Mrs. K. G. Finnsson. • Þakkarhátíðin, sem fram fór í Fyrstu lútersku kirkju síðastlið- ið mánudagskvöld undir umsjón hins eldra kvenfélags safnaðar- ins, var svo fjölsótt, að fleiri gátu ekki undir neinum kringumstæð- um setið til borðs; var þarna um ánægjulegan og ógleymanlegan mannfagnað að ræða; þótti öll- um viðstöddum mikið koma til ræðu séra Valdimars, er fjallaði um nýlega afstaðna för hans til New York; alt annað, er um hönd var haft til skemtunar, tókst álíka vel; enda hefir kven- félagið orð á sér fyrir að undir- búa prýðilega samkomur sínar og taka höfðinglega á móti gest- um. • Miss Lára Elíasson, sem starf- að hefir í Ottawa undanfarin ár í þjónustu sambandsstjórnarinn- ar, kom til borgarinnar á sunnu- dagsmorguninn og hygst að setj- ast hér að; hún er dóttir þeirra Mr. og Mrs. Elías Elíasson, sem lengi áttu heima í Árborg. • ATHYGLI Hin árlega sjúkrasióðs Tombóla stúkunnar Heklu, I.O.G.T., verð- ur haldin mánudaginn 13. nóv. n.k. — Nánar auglýst síðar. Dr. Richard Beck kom til borg- arinnar á föstudaginn og flutti fyrirlestur í Selkirk kvöldið eft- ir; einnig stofnaði hann hér til fundar í framkvæmdarnefnd Þjóðræknisfélagsins. * Þeir séra Sigurður ólafsson og Mr. S. O. Bjerring, lögðu af stað suður til Minneapolis. Minn. til þess að sitja þar fyrir hönd íslenzka lúterska kirkjufélagsins, þing Sameinuðu lútersku kirkj- unnar í Norður Ameríku. Erind- rekar sunnan landamæranna, verða þeir Dr. Haraldur Sigmar og W. Hillman. Messuboð Fyrsta lúterska kirkja Séra Valdimar J. Eylands, prestur, Heimili: 776 Victor St. Sími 29 017. Guðsþjónustur á sunnudögum. Kl. 11 f. h. á ensku. Kl. 12.15 sunnudagaskóli. Kl. 7 e. h. á íslenzku. Söngæfingar: Eldri söngflokkurinn á fimtu- dögum kl. 8. Yngri söngflokkurinn á föstu- dögum kl. 8. Buðsþjónusta í Vancouver, á ensku máli, kl. 7,30 e. h., sunnudaginn 15. okt., í dönsku kirkjunni á E. 19th Ave. og Burns St. Allir velkomnir. R. Marteinsson. Prestákall Norður Nýja Islands 15. okt.—Víðir, messa kl. 8.30 eftir hádegi. 22. okt.—Hnausa, messa og ársfundur kl. 2 e. h.; Árborg, ís- lenzk messa kl. 8 e. ,h. B. A. Bjarnason. © Áætlaðar messur í Selkirk um næstu sunnudaga: Sunnudaginn 15. október— Sunnudagaskóli kl. 11 árdegis Ensk messa kl. 7 síðdegis. Sunnudaginn 22. október— Sunnudagaskóli kl. 11 árdegis, íslenzk messa kl. 7 síðdegis. S. Ólafsson. Árni G. Eggertson, K.C. fór austur til Ottawa og Montreal á laugardaginn var, og ráðgerði einnig að heimsækja New York borg. • Lieut-Col. Pencier hefir verið útnefndur af hálfu Progressive- Conservative flokksins sem þing- mannsefni í Selkirk kjördæmi við næstu sambandskosningar. Vinaminni Næstliðinn laugardag, 7. októ- ber heimsóttu nokkrir góðvinir Stefáns Guttormssonar og Ragn- hildar Gísladóttur þau hjón í tilefni af því að þau höfðu þá verið búin að starfa saman í ást- ríku hjónabandi í 25 ár, og áttu þá silfurbrúðkaupsdag. Frú Ragnhildur flutti ung tii þessa lands, 1903, frá Eskifirði, og stundaði skólanám mörg ár, og var svo alþýðu skólakennari ein 10 ár í grend við Narrows P.O., eða þar til hún kaus sér til lífsfélaga hinn fluggáfaða, háskólamentaða listamann Stefán Guttormsson, Þorsteinssonar sterka, Guðmundssonar sýslu- manns, Péturssonar sýslumanns, Þorsteinssonar sýslumanns Sig- urðssonar frá Haukadal í Dala- sýslu. Þeir feðgar voru sýslu- menn í Múlaþingi í full 100 ár— frá 1708—1811, og voru svo kyn- sælir, áð rita mætti fróðlega ættarsögu um þá, fyrir næstliðin 200 ár. Stefán og Ragnhildur eru svo einstaklega látlaus, prúð og kurteis í framkomu, að það hefir djúp áhrif á mann, að kynnast þeim. Stefán á mikið og verðmætt bókasafn, sem hann hefir lesið alt, og skilið, enda er hann lík- lega einhver fróðasti Islending- ur í Canada. Laugardags kvöldstundin var skemtileg í húsi þeirra hjóna; minni brúðhjónanna var drukk- ið í góðum veigum, og setið við söng og samræður til miðnættis. Vinir þeirra gáfu þeim hundr- að silfurs í góðum gripum til minja. Þeim hjónum hefir ekki orðið barna auðið, en alið upp 3 fóst- urbörn, mentað þau og mannað vel. Margir höfðingjar fluttu í Múlaþing af Norðurlandi, og einkennilegt er það, að enginn þeirra flutti þaðan sem einu sinni settist þar að, og orðlagðir eru Austfirðingar fyrir spaklyndi og gestrisni, og búmenn eru þeir miklir. Sigurður Baldvinsson. ÞAKKARORÐ Um leið og við biðjum um að Lögberg verði sent hér eftir til Lundar til okkar, viljum við'taka tækifærið og biðja það fyrir fá- ein kveðju- og þakkarorð til landa okkar í Keewatin. Þar eru samferðamenn okkar fyrir síðustu 28 ár, margar hug- ljúfar endurminningar eigum við frá þessum tíma, en við ætl- um í þetta sinn að minnast seinni parts eins sunnudags, rétt áður en. við fórum, er nálega allir lanáarnir komu heim til okkar okkur að óvörum, þótt út á Iand væri að fara, og færðu okkur að gjöf peningaveski fult af peningum og kort með áletr- un frá vinum í Keewatin. Fyrir gjöfina, nærveruna og ánægjustundina þökkum við inni lega og geymum hana í vissu hólfi í hjörtum okkar. Og Keewatin — hver er sá Keewatin-búi, sem ekki elskar það pláss — hin unaðslega feg- Innköllunarmenr. LÖGBERGS Amaranth, Man.............. B. G. Kjartanson Akra, N. Dak. ............B. S. Thorvarðson Árborg, Man ............ K. N. S. Fridfinnson Árnes, Man..................... M. Einarsson Baldur, Man. ................. O. Anderson Bantry, N. Dak........... Einar J. Breiðfjörð Bellingham, Wash.......................Árni Símonarson Blaine, Wash.... Árni Símonarson Cavalier, N. Dak.......... B. S. Thorvarðson Cypress River, Man. O. Anderson Dafoe, Sask. ................ S. S. Anderson Edinburg, N. Dak Páll B. Olafson Elfros, Sask........... Mrs. J. H. Goodman Garðar, N. Dak............. Páll B. Olafson Gerald, Sask.................... C. Paulson Geysir, Man. K. N. S. Friðfinnson Gimli, Man. ........... O. N. Kárdal Glenboro, Man ................ O. Anderson Hallson, N. Dak............. Páll B. Olafson Hnausa, Man. ...........K. N. S. Fridfinnson Husavick, Man................ O. N. Kárdal Ivanhoe, Minn................ Miss P. Bárdal Langruth, Man............. John Valdimarson Leslie, Sask. ................. Jón Ólafsson Kandahar, Sask. ............. S. S. Anderson Lundar, Man. .................. Dan. Lindal Minneota, Minn...............Miss P. Bárdal Mountain, N. Dak.............Páll B. Olafson Mozart, Sask. ...............S. S. Anderson Otto, Man. ................... Dan. Lindal Point Roberts, Wash........... S. J. Mýrdal Reykjavík, Man................ Árni Paulson Riverton, Man. K. N. S. Friðfinnson Seattle, Wash. ................ J. J. Middal Selkirk, Man. S. W. Nordal Tantallon, Sask. ........... J. Kr. Johnson Upham, N. Dak. Einar J. Breiðfjörð Víðir, Man. K. N. S. Friðfinnson Westbourne, Man............ Jón Valdimarson Winnipeg Beach, Man. O. N. Kárdal Wynyard, Sask.............. S. S. Anderson Tombóla og Dans 23. október Goodtemplarastúkan Skuld heldur sína árlegu tombólu fyrir sjúkrasjóðinn; hún hefir ávalt reynst sú vinsælasta; allir drættir nýir og vandaðir. Fyrir dansinum spilar Josephine and her Gypsies. Byrjar kl. .7.30 Inngangur og einn dráttur 25c Kaffiveitingar á 15c 1 neðri salnum. urð, sem alstaðar blasir við aug- um mitt í gegnum hrjóstrið, dregur að sér huga manns og vanalega er samt, ef einhver fer burt: “Þú kemur fljótt aft- ur.” Og í mörgum tilfellum hef- ir það orðið svo. Það var einnig sagt við okkur, en við búumst nú við að hafa notið þeirrar á- nægju til enda, að hafa lifað þar. Og þó ekki, því það er ein af hinum mörgu góðu gjöfum, sem oss mönnunum hafa verið gefn- ar, að við getum jafnvel tekið með okkur plássið og vinsemd fólksins, þegar við förum burt. að vísu getum við ekki gengið á grasinu og steinunum þar, ekki mætt kunningjunum á götunni og tekið í hendina, en við höf- um þetta fyrir augunum og geymuni það í hugskotinu og stundum varir þessi auður þeg- ar sá auður, sem talinn er í pen- ingum, hefir á einhvern hátt horfið. Við komum til Keewatin með fögnuði og förum þaðan með eftirsjá. Við óskum blessunar löndum okkar og öllum öðrum þar, með þökk fyrir samfylgd- ina. Halldóra Johnson Carl og Matthildur Málmquist Wartime Priees and Trade Board Skömtunarbók númer fimm Nýju skömtunarseðla bækurn- ar verða gefnar út á tímabilinu frá 14. til 21. október. Tilteknir dagar, staðir og tímar verða aug- lýstir fyrirfram í hverju bygð- arlagi fyrir sig. 1 Winnipeg bæ hafa lyfsalar enn einu sinni boð- ist til að lána húspláss. Úthlutun- arskrifstofur verða því þar eins og að undanförnu. Dagarnir eru 17., 18. og 19 október; skrifstofu- tímar frá því búðirnar opnast og þangað til klukkan sex að kvöld- inu. Mrs. Wathne verður við af- greiðslu í Sargent Pharmacy, Toronto og Sargent, alla þrjá dagana. 1 þetta sinn er ekkert sérstakt spjald lagt til, en í þess stað á að nota aftasta blaðið í bók númer fjögur, K síðuna. Fyllið út með nafni og heimilisfangi, en skrifið stafi og númer bókarinn- ar aftan á síðuna. Losið ekki blaðið úr bókinni, það verður gert af þeim, sem afgreiðir og HOUSES FOR SALE -r- GIMLI A lovely stucco bungalow of 6 rooms and sunroom, extra good basement and furnace, large corner lot, garage; it’s a real home, offered at a very reason- able price, large cash payment required. Immediate possession. Call Sigmar of J. J. Swanson and Co. Ltd. Phone 26 821 or Evgs. 21418. Minniát BETEL í erfðaskrám yðar bókinni svo skilað aftur ásamt nýju bókinni. Bækur hverrar fjölskyldu mega sendast með einum meðlim, ef hann er eldri en sextán ára. Afgreiðslufólki er ekki leyft að afhenda bækur unglingum innan sextán ara. Fólk er góðfúslega beðið að koma sem fyrst til þess að ekki verði of mikil ös síðasta daginn. Surningar og svör Spurt—Mega félög, sem halda sölur á heimatilbúnum mat, selja niðursoðna ávexti, “jams og jellies”? Svar—Já. Félög mega selja sætmeti sem gefið hefir verið af meðlimum og vinum, en það verður fyrst að fá leyfi hjá Local Ration Board. Spurt — Mig langar til að kaupa vetrarforða af hunangi i gegnum póstinn, en má ekki senda lausa sætmetisseðla. Verð eg að senda bókina eins og hun er og láta þann sem selur taka seðlana úr henni? Svar—Nei. Þú getur fengið huniangs “Voucher” hjá Local Ration Board með því að af- henda þar seðla, sem svara þvi er þú ætlar að kaupa. Þú færð átta punda hunangs “voucher með hverjum fjórum sætmetis- seðlum. Spurt — Eru nokkrir seðlar gildir í bók númer þrjú? Svar—Ekki nema það séu ó- notaðir sykurseðlar, D-seðlar eða itiðu(rsuðu|Bykuf seðilar F 1-10 eftir í henni. Allir seðlar í bók númer þrjú og bók númer fjögur falla úr gildi 31. desember 1944. Spurt—Okkur skilst að meiri sykur hafi verið framleiddur i Canada þetta ár en nokkru sinni áður. Hvernig stendur þá á þvi að sykurskortur er altaf jafn mikill? Svar—Canada framleiðir ekki nema 20% af þeim sykri sem notaður er í landinu, alt hitt er aðflutt. Þegar farið verður að hjálpa Evrópuþjóðunum líka, ma búast við enn meiri skorti. Það getur meira að segja skeð að það verði þá nauðsynlegt að minka okkar skamt. Smjörseðlar 80, 81 ganga í gildi 12. október. Spurningum á íslenzku svarað á íslenzku af Mrs. Albert Wathne 700 Banning St., Winnipeg. The Swan Manufacturíng Oo. Manufacturers of SWAN WEATHER-STRIP Winnipeg. Halldór Methusalems Swan Eigandi 281 James Street Phone 22 641 FARIÐ EKKI Á MIS VIÐ HIN UNDURSAMLEGU KAUP Á LCÆJFÖTUM HJÁ Perth’s 1945 TÍZKA ÚRVALSEFNI ÓVIÐJAFNANLEG GÆÐl Heimsœkið PERTH’S MASTER FURRIERS 436 PORTAGE AVE. Just west of the Ma-ll Verum samtaka um stuðning við allar líknarstofnanir hverju nafni, sem þær nefnast, og látum ekki undir höfuð leggjast, að kaupa stríðssparnaðar skírteini. DREWRYS LIMITED /

x

Lögberg

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Lögberg
https://timarit.is/publication/132

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.