Lögberg - 02.11.1944, Side 2

Lögberg - 02.11.1944, Side 2
2 20 námsmeyjar í ræðuátólnum Við uppsögn kvennaskólans í Hveragerði síðastliðið vor, hlust- aði ritstjóri blaðsins á allar náms meyjarnar flytja ræður. Þær fluttu þær blaðalaust, en áttu þær þó skrifaðar. Birtast nú hér ýmist kaflar úr ræðunum eða þær í heilu lagi. Allar voru þær stuttar. Gleðin. Hlutverk mitt er veglegt, að flytja minni gleðinnar. Gleðin er hin sanna heilsulind og lækn- ing við hvers konar sléni og drunga. Þar er bezt á haldið, þar sem saman fer skyldurækni, létt lund og gerhygli. Sá, sem ræktar hjá sér starfsgleðina á alltaf glaðvakandi áhuga fyrir öllu vel gerðu, Hér, á þessum stað, a gleðin heima ásamt starfinu. Oft hlæjum við án þess að vita gerla, hvert tilefnið var. Þannig er gleðin okkur unga fólkinu eigin- leg, og satt segir einn af okkar góðu hagyrðingum: “Gleðin, hún er sú rauða rós, sem rjóðar veikan og bleikan. Það er hún, sem leiðir í ljós lífið og ódauð- leikann”. Og annað skáld segir um gleðina: “Fagra gleði, guða- logi, er gimsteinn lífsiins”. Sólveig GíslacLóttir, Skógargerði, Fljótsdalshéraði. Skyldurækni. Við kunnum öll söguna um ungu mennina þrjá, er lögðu af stað út í heiminn. Einn leitaði auðlegðar, annar gleðinnar og hinn þriðji skyldurækninnar. Tveir hinir fyrstu fundu að vísu það, sem þeir leituðu að, en urðu þó hamingjusnauðir. Hinn þriðji ástundaði skylduræknina ag varð bæði ríkur og farsæll. Æskumenn óska sér bæði auð- legðar og gleðskapar, en skyldu- ræknin er oft afrækt. Skemmt- —r-------------------------------- analeitin leiðir oft til sársauka og mikilla vonbrigða, en þá vakn ar líka oftast áhuginn fyrir ýmsu því, er skyldan býður. 1 ríkidæmi skyldurækninnar get- ur tómleikinn aldrei náð tökum á okkur. Skylduræknin er jafn göfug dyggð, hvort sem unnin eru fjósastörf eða gegnt pró- fessorsembætti. Munum ungu mennina þrjá og það, að skylduræknin færir bæði giftu og gengi. Valgerður Sigtryggsdóttir/ Langanesi. Viljinn. Viljinn er að mestu leyti afl þess, er gera skal. Aumari mann- veru er ekki hægi að hugsa sér en hinn vilja'lausa. Áhyggjur og allur kvíði fyrir starfi og erfið- leikum, hverfur fyrir valdi vilj- ans. Eg vil og skal, er lykill að flestu ef festa og orka fylgir. En hörmunigum getur sá sterki vilji valdið, ef ranglátir menn eru að verki. Fátt er jafn leitt og það að vinna með lötu fólki, eiga við löt börn eða hjú, eða eiga slíka húsbændur. Viljann má glæða og temja. f öllum skólum hlýtur viljaþrekið að vera í-hávegum haft, og þess hef eg orðið vör hér. Minnumst svo orða tónskálds- ins mikla, Beethovens: “Enginn getur sagt við ástundunina og hugvitið: hingað og ekki lengra.” Auður Marínósd.óttir, Vestmannaeyjum. Skemmtanir. Sannarlega má margt segja og margt er sagt um skemmtanir. ... “Þær eru eins ag bifurkollan”, sagði maður nokkur við mig eitt sinn, ‘sé bifurkollan snert, fellur höfuðskrautið af”. ... Því miður 0 o o VILJIÐ ÞÉR HJÁLPA TIL I VETUR? Sé yðar ekki brýn þörf á búgarðinum í vetur, ættuð þér að stunda aðra atvinnu. Þörf er á aukamönnum í vetur við timburtekju, bæði til pappírsgerðar og eldsneytis, svo og til málm- og kolatekju, vinnu við sláturhús, kornflutning, járn- brauta aðgerðir, stálsmiðjur og margt fleira. k Bjóðið fram þjónustu yðar hjá: Næstu ráðninga eða Selective Service skrifstofu, eða Næsta fylkisstjórnar landbúnaðar umboðs- manni, eða Nœstu Búnaðarmálanefnd. Góðar undirtektir við þessu, eru nauðsynlegar vegna velferðar canadisku þjóðarinnar — bregðist skjótt við. Undanþága frá heræfingum er í gildi þar sem um rœðir nauðsynjastörf anarsstaðar en á búgarðinum. NATIONAL SELECTIVE SERVICE DEPARTMENT OF LABOUR HUMPHREY MITCHELL A. MacNAMARA Verkamálaráðherra Forstjóri National Selective Service Þessi auglýsing er birt að tilstuðlan verkamála- ráðuneytis sambandsstjórnar, til fulltingis við Dominion-Provincial verkamála stefnuskrána. LÖGBERG, FIMTUDAGINN 2. NÓVEMBER, 1944 - - - - _"J_ ^ ■■ ... Mynd þessi er af brezku fótgönguliði, sem er að vaða í land af barða einum allmiklum. eru til skemmtanir, sem líkja má við sker. Á þeim strandar unga fólkið oft. Slíkar skemmt- anir ætti enginn að bjóða sér, en heilbrigðar skemmtanir eru öllum nauðsynlegar, og þær geta verið margvíslegar, til dæmis ferðalög, íþróttir, leikir., dans og samræður við skemmtilegt fólk.. ... Nauðsynleg störf má helzt áldrei setja til hliðar vegna skemmtana, en þau skyldu unn- in með sömu gleði og skemmt- ana er notið, þá er vel á haldið og okkur borgið. Þá verður skemmtanalíf okkar með öðrum blæ, en þar, sem menn koma drukknir til skemmtana og fara drukknir, og fáráðlingar þvælast í hópi þeirra. Guðríður Ársælsdóttir, svikum gera menn sig að and- legum og líkamlegum ræflum, er fara alveg á mis við hina sönnu vinnugleði. Þeir hugsa um það helzt að koma vinnunni á aðra, en fá sem mesta peninga, era alltaf þreyttir, hve lítið sem þeir vinna og alltaf hálf óánægð- ir af því, að þeim finnst annarra hlutur betri. Unga fólk. Þetta skyldi hver maður varast. Vinnið störf ykkar vel, hvort sem þið vinnið ykkur sjálfum eða öðrum og hve lítil- fjörleg, sem þau kunna að vera. Það mun áreiðanlega borga sig bezt. Þyki störfin leiðinleg, er þeim mun meiri ástæða að drífa sig, því fyrr er það búið. Unga fólk. Landið okkar bíður Tökum höndum saman og setj- um okkur það mark, að vinna okkur sjáifum og landi okkar til sæmdar. Unnur Jónsdóttir, Ytri-Skörðum, Skagafjarðarsýslu. Tíminn. Við hugsum einkennilega um tímann og tekur hann þá á sig ótal myndir í huga okkar: tími vinnunnar, tími svefnsins, tími gleði og sorgar, tími tómleika og leiðinda, og mætti svo lengi telja. En tíminn er glettinn. Hann er alveg hlutlaus. Hann aðeins líður. En við förum aftur í tímann, gröfum við upp iiðna æfi, vel og illa unnin störf, stund- ir gleði og sorgar og margt ag margt. Þá lifum við í tímanum og reynum svo að sjá fram í tím- ann og höfum fullt fangið af gerðum okkar frá liðinni stund. Fátt útheimtir meiri athygli en tíminn. Ónotuð tækifæri koma aldrei aftur. Höldum svo á, að hver stund og öll störf miði til blessunar. Líf hvers manns er stutt, en tíminn er endalaus. Sigríður Guðmundsdóttir, Böðmóðsstöðum, Laugardal, Árn. Reynslan. Efni þetta er víðtækt, en eg er fáfróð. Samt veit eg þetta, að allar athafnir okkar skapa reynslu. Allt okkar skólalíf og nám er mismunandi reynsla, en til er reynsla, sem flestir vilja umflýja — nauðug kvöð, djúp sorg og söknuður. Þá reynir a dug og kjark. Til eru menn, sem æðrast yfir smámunum, en segja ekki æðruorð í hinni þyngstu raun. Vissulega ættum við að hugsa vel um að efla þann þrótt og þá manndáð, sem þorir að leggja á brattann, því að sá sem hræðist fjallið og alltaf aftur snýr, fær aldrei leyst þá gátu, hvað hinum megin býr. — “Reynsluna og tækifærin eigum við að meta sem gimsteina,” var sagt við mig hér í skólanum, og eg veit, að þetta var sagt sam- kvæmt reynslu. Halla Gísladóttir, Vestmannaeyjum. Frh. í næsta blaði. Eystri-Tungu, V.-Landeyjum, Rang. Bernskan. Bernskan er eins og nýsprottin jurt, sem óvíst er um, hvernig reiðir af. — Löngum hafa menn reynt að búa bernskunni skjól móti sólu, en getan og kunnátt- an verið mismunandi og stund- um virðist sem engin veraldar- gæði nægði til þess að tryggja heill og hamingju hins uppvax- andi unglings. Fleira en frost- nætur og næðingar geta skaðað. Mörg örsmá frækorn, sem sáð er í bamshugann bera ávöxt á sínum tíma. Lífið er leyndar- dómsfullt og blóm bernskunnar þarf að annast af þolinmæði, ástríki og skilningi. Bernskan er oftast fljót til, hugsunarlaus og ógætin. Ein skólasystir mín segir svo frá: “Eitt sinn datt mér og syst- ur minni í hug á bernskuárum okkar, að gaman væri að stinga höfðinu niður í hveitipoka. Þetta gerðum við og jusum hveitinu sem bezt við bátum yfir höfuðið hvor á annari. Allt í einu heyrð- ist til pabba og stökk þá önnur okkar út um gluggann á korn- vörugeymslunni, út í storminn, en hin reyndi að þvo sér um höfuðið og varð þá allt hárið að einni hveitiklessu”. Þannig eru vegir bernskunnar og fer oft mis- jafnvlega, en “holt er að þola heitt og kalt hjá meðan æskan líður”, segir skáldið. Guðleif Vigfúsdóttir, Holtl, Vestmannaeyjum. Vinnan — starfið. Hverjum manni er það fyrir beztu að venjast þegar í æsku við ýmiss konar störf. — Störf- in eru óteljandi. Gamalt orðtak segir: Snemma beygist krókur- inn til þess, er verða vill. Oft má sjá á leikjum barna, hvaða störf þeim muni henta bezt vöxn um. Það er um að gera fyrir hvern mann, að velja sér það starf, sem honum er hugleikn- ast, aðeins þannig fá kraftar hans notið sín til fulls. En því miður, eru þeir of margir, sem ekki eiga kost á slíku vali. Störfin krefjast þess, að þau séu leyst af hendi með óskiptum hug. Virðist sem margur maður inn hugsi nú lítt um slíkt. Al- gengt er að sjá menn við vinnu, t. d. vegavinnu, standa tímum saman masandi og taka aðeins eitt og eitt handtak á milli. Svo langt hefur þetta nú gengið, að vinnusvikin hafa hlotið almenna umkvörtun. Með slíkum vinnu- r*ANADABÚAR hafa lært list varð- ^ veitzlunnar. Yfir stríðsárin hafa hlut- ir, sem var unt að endurkaupa, verið varðveittir og þeim haldið við, viðgerðir hafa vaxið í áliti og þeim hefir fjölgað. Fyrir töfra efnavísindanna, hefir endur- bætt málningarvara, ásamf gljákvoðu, mjög stuðlað að varðveizlu yfirborðs húsa og hluta, sem voru að ganga úr sér. Hlutir úr tré og málmi hafa verði vernd- aðir gegn tönn tímans og náttúruöflun- um; hefir þetta haft í för með sér end- urnýaða fegrun. Málningar og gljákvoðu deild Canadian Industries Limited hefir í samvinnu við ýmis verksmiðjufélög, lagt sig í líma um framleiðslu áminstra vörutegunda, sem reynst hafa bændum og búalýð veruleg hjálpanhella. Látlausar, vísindalegar tilraunir hafa lagt grundvöll að fullkomnustu máln- ingarvöru fyrir skip, verksmiðjubygg- ingar, flugáhöld og skreytingar á heimil- um utan jafnt sem innan. Á þennan hátt hefir málningar og gljá- kvoðudeildin lagt stóran skerf til iðnað- ar og heimilisþarfa í Canada og vöru- merkið C-I-L er nú táknrænt þjónustu- merki um landið þvert og endilangt. CANADIAN INDUSTRIES LIMITED PA-306

x

Lögberg

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Lögberg
https://timarit.is/publication/132

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.