Lögberg - 09.11.1944, Page 1
PHONES 86 311
Seven Lines
, For Better
Dry Cleaning
and Laundry
PHONES 86 311
Seven Lines
Coí-
d Cl2lO^
, * Service
and
Satisfaction
57. ÁRGANGUR
LÖGBERG, FIMTUDAGINN 9. NÓVEMBER, 1944
NÚMER 4^£>
Bregðist ekki þegnskyidu yðar
við Canada með vanrækslu við Sigurlánið
Ráðherraskifti í Ottawa
SÍÐASTLIÐINN föstudag breiddust út eins og eldur í sinu frá
Ottawa um landið þvert og endilangt þau tíðindi, að hermála-
ráðherrann, Col. J. L. Ralston, hefði látið af embætti, en General
A. G. McNaughton, fyrrum höfuðsmaður canadiska hersins á
Bretlandi, væri orðinn eftirmaður hans; tíðindi þessi komu vafa-
laust harla flatt upp á þjóðina. Col. Ralston hafði notið, og vita-
Gen. A. G. L. McNoughton
skuld nýtur enn, hvarvetna
trausts og vinsælda; hann tók
þátt í fyrri heimsstyrjöldinni, og
varð þá hermálaráðherra um
hríð; hann gengdi fjármálaráð-
herra embætti, og nú um nokkur
ár hefir hann haft með höndum
forustu hervarnaráðuneytisins
við hinn bezta orðstír.
Símfregnir og blöð höfðu,
nokkru áður en ráðherraskiptin
fóru fram, látið þess getið, að
ráðuneytisfundir hefðu þá dag-
lega haldnir verið, og spáð því
að eitthvað mikið stæði til. Col.
Ralston var fyrir skömmu kom-
inn heim úr ferðalagi um Norð-
urálfuna, og hafði meðal annars
heimsótt megin vígstöðvar cana-
diska hersins bæði á Italíu og
Frakklandi og jafnvel víðar.
Canada hefir um þessar mund-
ir nálega 400,000 vígra manna á
hinum ýmsu orustustöðvum
Norðurálfunnar, auk landvarnar-
liðs heima fyri, sem teiur eitt-
hvað um 50 þúsundir; ástæðan
fyrir embættisafsögn Col. Ral-
ston er talin sú, að hann hafi
talið það nauðsynlegt, að land-
varnarliðið yrði sent austur um
haf til styrktar canadiska hern-
um, sem þar er fyrir; að því er
bezt verður séð, var King for-
sætisráðherra á öðru máli, og
kvað skoðun sína óbreytta á því,
að beinnar herskyldu væri ekki
þörf, með því að sjálfboðaliðs-
söfnunin hefði að flestra manna
dómi reynst fullnægjandi; tjáð-
ist hann því hlyntur, að þeir
sem í landvarnarhernum væru,
skyldu teknir til iðju heima fyr-
ir, án þess þeir þó yrði leystir
frá landvarnarherþjónustu, með
því að stríðsiðnaðurinn og fram-
leiðslan í heild, krefðist meiri
og meiri mannafla.
Og nú hefir General McNaugh-
ton aflagt embættiseið, og lýst
yfir því í sinni fyrstu ráðherra-
ræðu, að hann’ teldi sjálfboða-
liðs aðferðina hafa gefist vel.
Hvort fleiri breytingar verða
á ráðuneytinu, er enn eigi vitað;
yfir höfuð virðist val General
McNaughtons mælast vel fyrir.
Foringi C.C.F. flokksins, Mr.
Coldwell, telur Mr. King hafa
verið heppinn í vali. og er hið
sama um Mr. Blackmore, þing-
leiðtoga Social Credit flokksins
að segja. En Mr. Bracken er ó-
ánægður, og Col. Drew hefir
enn ekki látið frá sér heyra.
TVENN GULLBRÚÐHJÓN
HEIÐRUÐ
Að aflokinni guðsþjónustu í
Fyrstu lútersku kirkju síðastl.
sunnudagskvöld, efndi hið eldra
kvenfélag safnaðarins til sam-
sætis í fundarsalnum til heiðurs
við tvenn velþekt gullbrúðhjón,
þau Mr. og Mrs. J. J. Vopni og
Mr. og Mrs. Finnur Johnson. Við
háborð sátu heiðursgestir ásamt
sifjaliði, og þeim, er í skemti-
skrá tóku þátt. Veizlustjórn hafði
með höndum prestur safnaðarins,
séra Valdimar J. Eylands. For-
seti fyrsta lúterska safnaðar,
herra G. F. Jónasson, ávarpaði
Roosevelt endurkosinn með yfirgnæfandi
meiri hluta
Franklin D. Roosevelt
Forsetakosningum Bandaríkjanna, sem fram fóru á þriðju-
daginn, lauk með glæsilegum sigri fyrir Roosevelt forseta dg
Ðemokrataflokkinn; jókst flokknum fylgi mikið í báðum þing-
deildum. Kosningarnar voru sóttar af óvenjulegu kappi, og varð
almenn þátttaka í þeim langtum umfangsmeiri, en í fyrstu hafði
verið búist við.
Sigur Roosevelts verður að skoðast mikilvægur sigur fyrir
mannúðarstefnuna á vettvangi heimsmálanna.
Tilkynning frá sendiráði íslands í Washington
ísland tekur þátt í alþjóðaráðstefnu um flugmál.
Bandaríkjastjórn hefir boðað til alþjóðaflugmálaráðstefnu
í Chicago 1. nóvember 1944. íslancli hefir verið boðin þátttaka
í ráðstefnunni og hefir íslenzka ríkisstjórnin þegið boðið. Þessir
menn hafa verið skipaðir til þess að sitja ráðstefnuna af
íslands hálfu:
Thor Thors, sendiherra, formaður ísl. nefndarinnar.
Guðmundur Hlíðdal, póst- og símamálastjóri.
Agnar Kofoed-Hansen, flugmálaráðunautur ríkisins.
Sigurður Thoroddsen, verkfræðingur, alþingismaður.
Ráðgert er að ráðstefnan standi yfir í þrjár vikur, og fjalli
aðallega um:
1. Ákveða bráðabirgðaflugleiðir í lok Evrópustyrjaldarinnar,
svo að tryggt sé að flugferðir með póst- og farþega geti þá
hafist.
2. Setja á laggirnar bráðabirgða ráð til að hafa yfirumsjón
með flugi og flugleiðum um víða veröld.
3. Ráðstefnan mun leggja drög að alþjóðlegri stofnun til eftir-
lits eða jafnvel yfirstjórnar alþjóðlegra flugmála.
Washington, D.C., 30. okt. 1944.
Thor Thors.
gullbrúðhjónin fyrir safnaðarins
hönd, og þakkaði þeim langt og
dyggilegt starf þeirra að mál-
efnum kirkjunnar. Dr. Sig Júl.
Jóhannesson mælti fyrir minni
þeirra Mr. og Mrs. Vopni, en J.
J. Bíldfell fyrir minni þeirra Mr.
og Mrs. Johnson; gullbrúðhjón-
unum, hvorum um sig, voru af-
hentir að gjöf forkunnar fagrir
borðlampar til minja um hinn
merka áfanga í lífi þeirra. For-
seti kvenfélagsins, Mrs. A. S.
Bardal, afhenti gjafirnar, og
flutti um leið einkarhlýlega og
fagra ræðu.
Ungfrú Margrét Helgason
skemmti með einsöng, en við
hljóðfærið var ungfrú Snjólaug
Sigurðsson. Um 200 manns sóttu
þenna minnisstæða mannfagnað.
I samkomulok ávörpuðu gull-
brúðgumarnir veizlugesti og
þökkuðu fyrir gjafirnar og þá
góðvild, er samsætið bæri vott
um; bar öllum viðstöddum sam-
an um það, að mannfagnaður
þessi hefði verið um alt hinn
virðulegasti.
Bæði gullbrúðhjónin hafa um
langt skeið verið öflugar stoðir
Fyrsta lúterska safnaðar, og
tekið margháttaðan þátt í ís-
lenzkum mannfélagsmálum.
TVEIR ÍSLENDINGAR
FÁ VIÐURKENNINGU FYRIR
'FRÁBÆRA ÁSTUNDUN
'ViÐ NÁM
Á samkomu, sem United Col-
lege efndi í Westminster kirkj-
unni hér í borginni í vikunni,
sem leið, urðu tveir íslenzkir nem
endur við áminsta menntastofn-
un, aðnjótandi viðurkenningar
fyrir hæfileika sína og frábæra
ástundun við nám; þessir ungu
menn voru þeir Ernest Peter
Johnston, sonur frú Helgu John-
ston, 708 Banning St., og Jónas,
sonur séra Skúla J. Sigurgeirs-
sonar á Gimli og frú Sigríðar
Sigurgeirsson. Hinn fyrnefndi
hlaut bronsmedalíu, en* hinn
síðarnefndi 70 dollara peninga-
verðlaun.
Lynn Grimson Serves With
Hodges’ Army.
Rugby, N. D.—Capt. Lynn
Grimson, son of Judge G. Grim-
son and Mrs. Grimson of Rugby,
is one of the North Dakota soldi-
ers serving with Lieut. Gen.
Courtney H. Hodges’ First Army
on the western front in Europe.
He is attadhed to headquarters
of the Fifth corps which, with
the Seventlí Corps, composes the
First army.
Captain Grimson’s experiences,
prior to the present intensive
action against the Sigfried line
in Germany, have included the
invasion of Normandy, the break-
thru into Brittany and other
service in France, Belgium and
Luxemburg. — Minot Daily
News, Oct. 28, 1944.
•
Thorlákur Thorfinnsson, um
langt skeið búsettur að Mountain
N.-Dak., er nýlega látinn, hinn
vinsælasti maður, er mjög lét sér
annt um íslenzk þjóðræknismál.
•
Félag það í Sambandssöfnuð-
inum í Winnipeg, sem Evening
Alliance nefnist, heldur “Tea” í
fundarsal kirkjunnar, Sargent og
Banning, frá kl. 2.30 til 6 e. h.
á laugardaginn þann 18. þ. m.
Góðir gestir að heiman
Dr. Hallgrímur Björnsson
Eins og þegar hefir verið skýrt
frá, eru nýlega komin frá ís-
landi hingað til borgarinnar, þau
Hallgrímur læknir Björnsson og
frú hans Helga Haraldsdóttir;
mun svo um hnúta búið að þessi
mætu hjón dvelji hér um slóðir
að minsta kosti árlangt.
Hallgrímur læknir er fæddur í
Reykjavík, en alinn upp í Sand-
gerði í Gullbringu- og Kjósar-
sýslu; hann er sonur Björns
Hallgrímssonar skipstjóra og
konu hans Stefaníu Magnús-
dóttur. Hallgrímur læknir lauk
stúdentsprófi við Menntaskólann
í Reykjavík 1926, en tók embættis
prói í iæknisfræði við Háskóla
íslands 1932. Síðan 1934 hefir
hann verið starfandi læknir á
Akranesi; mun svo til ætlast, að
þessi nýkomni, góði gestur, starfi
við framhaldsnám sitt hér eins
og Eggert læknir Steinþórsson
Frú Helga Björnsson
hefir gert, í sambandi við Dr.
P. H. T. Thorlakson, bæði við
Almenna spítalann og eins við
Winnipeg Clinic.
Hallgrímur læknir er kvænt-
ur Helgu Haraldsdóttur Böðvars-
sonar frá Akranesi, hinni glæsi-
legustu konu; er faðir hennar
einn hinn voldugasti útgerðar-
maður á íslandi og þjóðkunnut____
héraðshöfðingfT^fóðir frú Helgu
er Ingunn, dóttir Sveins Guð-
mundssonar, sem um langt skeið
gaf sig við kaupsýslu á Akranesi.
Þeir Haraldur faðir frú Helgu
og Dr. B. J. Brandson, voru syst-
kinasynir.
Þau Hallgrímur læknir og frú
Helga eru bæði framúrskarandi
ljúf í viðmóti, og munu því, áður
en langt um líður, eignast hér
fjölda vina. Lögberg býður þau
innilega ’ velkomin í íslenzka
mannfélagið í þessari börg.
0r borg og bygð
Minningarathöfn 12. nóvember.
Jón Sigurðsson félagið heldur
hátíðlega minningarathöfn í
Fyrstu lút. kirkju, sunnudaginn
12. nóv. kl. 3 e. h., til minningar
um fallna hermenn. Verður til-
högun samkomunnar svipuð eins
og undanfarin ár, síðan félagið
tók að sér að standa fyrir hinni
árlegu minningarathöfn.
Séra V. J. Evlands, prestur
Fyrsta lút. kirkju og séra P. M.
Pétursson, prestur Sambands
kirkju lesa biblíu kafla og flytja
bænir. G. S. Thorvaldson, K.C.,
flytur ávarp, “Tribute to the
Fallen.” A. G. Eggertson, K.C.,
flytur ávarp til þess að bjóða
velkomna heimkomna hermenn.
Sameinaður söngflokkur frá báð-
um kirkjunum syngur, og Kerr
Wilson syngur einsöng.
Það er mjög tilhlýðilegt að
fólk okkar alt sameinist á ein-
um stað hér í borg og minnist
með söknuði og samúð æsku-
manna vorra, sem fórnað hafa
lífi sínu fyrir landið og fyrir
okkur sem í landinu búum. En
mitt í skýjum sorgar og saknað-
ar má nú finna ofurlítinn sól-
skinsblett þar sem stendur hóp-
ur af ungum gjörfilegum mönn-
um, sem hafa verið heimtir úr
helju og komnir eru aftur til
foreldrahúsa, og því ber að fagna
og þakka.
Jón Sigurðsson félagið býður
öllum að sækja þessa minningar
athöfn og vonar að fólk fjöl-
menni.
•
Það verður glatt á hjalla á
Sólskinsmóti í Vancouver, mið-
vikudaginn, 15. nóv. í mörg ár
hefir kvenfélagið “Sólskin” efnt
til slíks gleðimóts. Að vanda’, verð
ur í þetta sinn framreidd al-ís-
lenzk máltíð. Ennfremur verða
þar til skemtunar ræður, söng-
ur, kvæði, og dans. Samkoman
fer fram í Swedish Hall, 1320
E. Hastings St., og hefst kl. 6,45
að kvöldinu.
•
Þakklæti.
Við undirrituð viljum hér með
votta innilegt þakklæti fyrir
þann heiður, sem okkur var
sýndur með fjölmennu samsæti
er okkur var haldið í samkomu-
húsinu í Árborg 21. maí s. 1. Var
það samsæti haldið til að minn-
ast tuttugu og fimm ára gift-
ingarafmælis okkar.
Vildum við þakka konunum,
sem fyrir samsætinu stóðu und-
ir forystu Mrs. H. S. Erlendson
og Mrs. D. H. Gourd. — Þakka
hinar fögru ræður, sem fluttar
voru af Mrs. Ingibjörgu Ólafs-
son, Selkirk, Mrs. Sigríði Ander-
son, Árborg, Mr. Böðvari Jakobs-
syni, Geysir og Mr. S. V. Sigurð-
son, Riverton. — Þakka einnig
hinar mörgu dýrindis gjafir er
okkur voru gefna. Og fremur
öllu þökkum við vinarþelið og
kærleikann, sem þetta alt túlk-
aði svo fagurlega.
Guð blessi ykkur öll, sem tók-
uð höndum saman til að gefa
okkur þessa ógleymanlegu gleði-
stund.
Sigrún og Oddleifur Oddleifsson.
•
Við morgunguðsþjónustu í
Fyrstu lútersku kirkju á sunnu-
daginn var, flutti Mr. S. O.
Bjerring prýðilega samið og eink
ar fróðlegt erindi um nýafstaðið
þing Sameinuðu lútersku kirkj-
unnar í Norður-Ameríku, sem
haldið var í Minneapolis *