Lögberg - 07.12.1944, Page 1

Lögberg - 07.12.1944, Page 1
PHONES 83 311 Seven Lines AvwV^ X \ A1 «o7*6 anA For Better Coí- , Dry Cleaning and Lanndry PHONES 86 311 Seven Lines U\\vW iot teA , prU L ,erers a"' 10 ^ Service Co^- Satisfaction 57. ÁRGANGUR LÖGBERG, FIMTUDAGIN.N 7. DESEMBER, 1944 NÚMER 4^ Námsmenn frá Islandi “Kátir piltar”, karlakór er syngur á Æringjamóti, sem haldið verður í Sambandskirkjunni 8. desember. Fremri röð, frá vinstri: Jóhannes Markússon, Jóhann Pálsson, Gunnar Erlendsson, söngstjóri, Guðjón Guðmunds- son, Gústaf Jónsson. Aftari röð, frá vinstri: Anton Axelsson, Kristján Mikaels- son, Magnús Ágústsson, Hjalti Tómasson, Jón Sveinsson, Halldór Bech, Gunnar Fredireksen. SVEITAFÉLAGA SAMTÖKIN í MANITOBA. Samtök þessi hafa nýlega lokið ársþingi sínu hér í borg- inni, og eftir þeim skýrslum, sem fram voru lagðar, stendur hagur þeirra nú í miklum blóma. Sveitamálefna-ráðherra fylkis- stjórnarinnar, Hon. William Morton, s k ý r ð i erindrekum þingsins frá því, að við árslok 1943 hefðu 130 sveitir af 17U>, átt inneignir í bönkunum, sem num- ið hefðu $1,700,000. Árið 1933 voru það aðeins 25 sveitir, sem höfðu tekjuafgang í peningum. Mr. Marton beindi athygli erind- reka að því, að ems og sakir stæðu, teldi hann ekki ráðlegt að lækka skatta. Þá lét Mr. Marton þess jafnframt getið, að við fjársafnanir til sigurlánsins, hefðu sveitarfélaga samtökin fylkisins, keypt freklega $2,500,- 000 í Sigurláns verðbréfum. Áminst ársþing var næsta fjöl- sótt, og yfir því ríkti hvarvetna hin ákjósanlegasta eining. Til forseta fyrir sveitafélaga- samtök þessi yfir næsta starfsár, var kosinn Hugh Maclntyre frá Pipestone. FYLLIR SJÖUNDA TUGINN. Þann 30. nóvember síðastlið- inn, átti forsætisráðherra Breta, Mr. Winston Churchill, sjötugs- afmæli; var hann hyltur í á- kafa af öllum þingflokkum, er hann gekk til þingsætis síns þá um daginn; elzti þingmaður n e ð r i málstofunnar, Will. Thorne, 87 ára að aldri, sem jafnan hefir talist til hins ó- háða verkamannaflokks, varð til þess fyrstur þingmanna, að flytja Mr. Churchill persónu- legar árnaðaróskir. Mr. Church- ill nýtur enn beztu heilsu; hann rís árla úr rekkju, og gengur eins og berserkur að hinum dag- legu störfum sínum þegar eftir morgunverð; hann er enn sami vinnuvíkingurinn og hlífir sér lítt. Síðustu tvö stríðsárin hefir Mr. Churchill verið á ferð og flugi um allar lifandi jarðir, og setið ráðstefnur með forustu- mönnum hinna sameinuðu þjóða, ýmist í Washington, Que- bec, Teheran, Cairo, eða Mosk- va; það sýnist ekki skipta miklu máli hvað Mr. Churchill leggur á sig; honum segist svo frá, að hann finni sjaldan til slíkrar þreytu, er orð sé á gerandi. HÚSATJÓN Á ENGLANDI. Churchill forsætisráðherra skýrði nýverið frá því í brezka þinginu að frá þeim tíma, er Þjóðverjar fyrst hófu hinar grimmúðugu sprengjuárásir á London og Suður England, hafi þriðjungur allra húsa á þessu svæði annaðhvort verið jafnað- ur við jörðu, eða sætt mikjls- háttar skemdum; það fylgir sögu, að hinar mannlausu flug- vélar Nazista, hafi valdið mestu tjóninu. En þrátt fyrir alt þetta hefir brezka þjóðin ekki látið nokkurn minsta bilbug á sér finna; hún hefir tekið þessum áföllum eins og svo mörgum öðrum með stillingu og dæma- fárri hugprýði; hún hefir marg- faldað vopnaframleiðslu sína eftir sem áður, og framleitt jafnframt meira af matvælum en nokkru sinni fyr. EKKI MYRKUR í MÁLI. Hon. Solon Low, leiðtogi So- cial Credit samtakanna í Can- ada, komst svo að orði um póli- tíska þrumuveðrið, sem geysað hefir í Ottawa undanfarið, að það væri “glæpsamleg flónska að knýja stjórnina um þessar mundir til kosningabaráttu, eins og stríðsviðhorfinu, og aðstæð- um heimafyrir, nú væri háttað. EFTIRMAÐUR CORDELLS HULL Roosevelt forseti hefir valið Edward B. Stettinius, yngri, til þess að takast á hendur forustu utanríkisráðuneytisins í stað Cordells Hull, er nýverið lét af embætti vegna helsubilunar. Mr. Stettinius hefir verið að stoðar utanríkisráðherra um nokkurt skeið við góðan orðstír. • NÁLGAST LANDAMÆRl AUSTURRÍKIS. Rússneskar hersveitír e r komnar yfir Danube um 100 mílur frá Búdapest, og hafa náð hinu rammbyggilega Pecsvígi þaðan sækja þær fram í ákafa á leið til Balatonvatns og austur rísku landamæranna; þá hafa rússnesku herjirnir einnig rutt sér braut með heljarafli-yfir tor- færa fjallvegi í austuhluta Slóv- akíu, þrátt fyrir ítrekaðar til- raunir Þjóðverja til gagnsóknar. Fregnir frá Moskva gefa í skyn, að jafnskjótt og Ungverjaland sé leyst úr þrælaviðjum, megi Austur-Prússland eiga von á góflunni. Hersveitir Rússa á áminstum vígsvæðum, eru undir forustu Fedor Tolbukhins yfir- hershöfðingja, þess, sem hrifsaði Belgrade úr klóm Nazista í okt- óbermánuði síðastliðnum. HERSKYLDU MÓTMÆLT t Nokkur hluti landvarnarliðs- ins Canadiska, sem bækistöð hafði í Vernon, B.C., hélt mót- mælafundi vegna þeirrar ráð- stöfunnar sambandsstjórnar, að hrinda í framkvæmd lagaheim- ild, sem afgreidd var á þinginu veturinn 1942, er veitti stjórn- inni sjálfdæmi til þess, að kveðja menn til herþjónustu utan Can- ada, ef hún kæmist að niður- stöðu um, að slíks væri brýn þörf. Nú hefir hinn nýi her- málaráðherra, General Mc- Naughton, gefið þjóðinni þær upplýsingar, að meginþorri hins canadiska landvarnarliðs á á- minstum stað, hafi tekið hinni nýju stjórnarráðstöfun með fullri stillingu, og að það hafi verið innan við tuttugu og fimm af hundraði, er sýndi mótþróa eða andúð. DREGUR SIG í HLÉ. Hon. C. G. Power, er nýlega sagði af sér flugmálaráðherra embætti í sambandsstjórn vegna ágreinings út af herskyldumál- inu,hefir lýst yfir því, að hann muni að fullu og öllu draga sig í hlé af vettvangi stjórnmálanna, og gefa sig framvegis við mála færslu. Hann hefir átt sæti í þingi síðan 1917 sem þingmaður fyrir Quebeckjördæmið hið syðra. RÍKISSJÓÐUR MEÐEIGANDI í FLUGFÉLAGI ÍSLANDS MEÐ 50% HLUTAFJÁREIGN Fram er komið á Alþing stjórnarfrumvarp, þar sem ríkis- stjórninni er heimilað að leggja fram fé, úr ríkissjóði til aukn- ingar á hlutafé Flugfélags ís- lands, þannig að ríkissjóður elgi 50% af öllu hlutaféinu. Þegar Flugfélag fslands hefir breytt samþyktum sínum í sanv ræmi við þetta og ríkissjóður er orðinn eigandi að helmingi hlutafjár félagsins, getur atvinnu málaráðherra veitt félaginu einkarétt til flugferða hér landi og til útlanda með far þega, póst- og farangur (3. gr frv.) Félagið skal þá og vera undanþegið tekju- og eignar skatti og útsvarsgreiðslu eftir efnum og ástæðum. í greinargerð segir svo: Flugsamgöngurnar eru nu orðnar svo verulegur þáttur samgöngumálum vorum, að nauð syn ber til að ríkisvaldið hafi veruleg afskifti af rekstri þeirra og styrki þær eftir því sem föng eru á. í þessu augnamiði er lagt til í frumvarpi þesm. að ríkis sjóður efli Flugfélag íslands h.f. með verulegum fjárframlög- um. Hlutafé Flugfélagsins er nú um 1.000.000 kr., en heimilt er samkvæmt samþyktum þess að auka það upp í 1.500.000 kr. Framlag ríkissjóðs gæti þá orðið samkvæmt frumvarpinu um 1.500.000 kr. Ef þessi leið yrði farin, verð- ur að teljast eðlilegt, að Flug- fqlagi íslands h.f. yrði veittur einkaréttur til flugferðA hér á landi og til útlanda með farþega, póst og farangur. Með þessu fyr- irkomulagi yrði stjórn þessara mála einfaldari, reksturinn örugg ari og ódýrari. Skipulag það, sem frumvarpið gerir ráð fyrir, er sniðið eftir því fyrirkomulagi, sem haft var á flugsamgöngum flestra Evrópu landa fyrir núverandi styrjöld. MbJ. 22. sept. BÆNDASKÓLI fSKÁLHOLTI Eiríkur Einarsson hefir ný- lega borið fram frumvarp í Efri deild, þess efnis, að skóli sá, er ákveðið er í lögum að reistur skuli á Suðurlandi, verði í Skál- holti. , •í 1. gr. frumvarpsins segir, að þrír skólar skuli vera hér á landi, sem veita bændaeínum nauðsynlega sérþekkingu til undirbúnings stöðu þeirra. Skal einn skólinn vera á Hólum í Hjaltadal, annar á Hvanneyri í Borgarfirði og hinn þriðji í Skál- holti í Biskupstungum. 1 greinargerð seg:'r m. a. að Búnaðarfélag fsland:, hafi á sín-’ um tíma tilnefnt 3. menn til að gera tillögur um hvar hinn fyr- irhugaði bændaskóli Sunnlend- inga skyldi standa. En svo illa hafi til tekizt, að nefndarmenn hafi ekki orðið sammála. Hafi 2 þeirra, Steingrímur Steinþórs- son búnaðarmálastjóri og Jón Sigurðsson alþm. lagt til að skól- inn yrði í Skálholti, en einn, Guðm. Þorbjarnarson Stóra- Hofi, hafi lagt til að skólinn yrði í Kálfholti í Ásahreppi (Rangár- vallasýslu). Þá bendir flutningsmaður í greinargerð á ýms atriði, sem hann telur mæla með því, að skólinn verði reistur í Skálholti frekar en í Kálfholti m. a. það, að miklir möguleikar séu til fjölbreyttra búnaðarfram- kvæmda í Skálholti, landrými sé þar nægilegt, nógur jarðhiti og jörðin prýðilega í sveit kom- in, þegar hin fyrirhugaða Hvít- árbrú hjá Iðu verður reist. Vísir, 22. sept. 0r borg og bygð Minningarsjóður frú Jórunnar Líndal Mr. Ralph Maybank, M. P. $25.00. Elín Anderson, Winnipeg $10.00. Mrs. John Bracken, Ott- awa $25.00. Með þakklæti. Mrs. J. B. Skaptason. KAPELLA VIGÐ AÐ DRANGANESI. Sunnudaginn 3. sept. var vígð kapella á Dranganesi í Stranda- prófastsdæmi og voru um 300 manns viðstaddir, og er það ó- venjulegt, að svo margir menn séu samankomnir þar á staðn- um. Biskup framkvæmdi vígsl- una, en sóknarpresturinn, séra Ingólfur Ástmarsson að stað í Steingrímsfirði, var honum til aðstoðar, á s a m t prófasti Strandaprófastsdæmis, s é r a Jóni Brandssyni. Kapella þessi er sambyggð skólahúsinu. En prédikunarstóll og altari haganlega og smekk- lega fyrir komið í' austurenda byggingarinnar. Þegar kennsla fer fram í skólahúsinu, er lokað fyrir kór- inn með sérstökm útbúnaði. Kapellan, ásamt kenslustof- unni rúmar alls að 200 manns í sæti. Vígsluathöfnin fór mjög há- tíðlega fram og var húsið yfir- fullt af fólki. Söngur var á- gætur og hafði hann verið æfð- ur sérstaklega undir þessa at- höfn. Eftir vígsluathöfnina fluttu þeir ávörp og erindi, biskup, prófastur og sóknar- prestur. Athöfnin stóð yfir rúmar 3 klst. Ríkti almenn á- nægja meðal fólksins yfir deg- inum. Veður var hið bezta. Ástæðan til þess að horfið var að því ráði að gera kapellu í skólahúsinu, var sú, að Drangs- nessbúar hafa til þessa átt kirkj- usókn að Kaldrananesi, en þang- að er svo langt frá Dranganesi, að ókleyft má teljast fyrir sókn- armenp að sækja kirkju að vetrarlagi. Vegna þessa kom kirkjustjórninni . og fræðslu- málastjóra saman um það, að rétt væri í þessu tilfelli að veita leyfi til þess að skóli og kirkja yrðu sambyggð, þar eð hin fá- menna byggð á Drangsnesi væri Dess ekki umkomin að byggja sína eigin kirkju. —Vísir, bf. sept. Icelandic Canadian Evening School. Þann 27. nóv. flutti Dr. R. Beck fyrirlestur, “The Classical literature of Iceland”. Þeim sem á erindið hlýddu getur ekki dul- ist hvern fjársjóð er að finna í gullaldarbókmenntum íslands; og verður það nemendum skól- ans enn ný hvatning til þess að fullnuma sig í íslenzku, svo þeir fái kynnt sér þessar frægu bók menntir á frummálinu. Næsta kenslustund verður mánu^agskvöldið, 11. desember, í Fyrstu lút. kirkju, séra H. E Johnson flytur fyrirlestur á ensku, “The Icelandic Republic 930—1262”. Allir eru beðnir að vera komn- ir í sæti sín |yrir kl. 8.15. ís- lenzkukenslan byrjar kl. 9. Aðgangur 25c. fyrir þá sem ekki eru innritaðir. H. D. •• Dagblöðin í WinnÍDeg létu þess getið í fyrri viku, að Joe Magnús son fiskimaður í Riverton, mundi hafa drukknað í Winnipegvatni niður um veikan ís. • Þann 12. október s. 1., voru gefin saman í hjónaband London á Englandi, Pilot Officer Leonard Skúli Guðiaugsson og Miss Debora Tomlinson. Brúð guminn er sonur Magnúsar G Guðlaugssonar og Ólínu konu hans, sem búsett eru að Clair- mont, Alta. KOSTAR VM 2 MILLJÓNIR AÐ ENDURBYGGJA ÖLFUSÁRBRÚ Nefndarálit um tillögu til þingsál. um endurbyggingu Ölf- usárbrúar hefir nú verið lagt fyrir sameinað þing og í því segir meðal annars: Fyrir all- löngu hefir vegamálastjóri lok- ið við að gera uppdrátt og á- ætlun um kostnað við smíði nýrrar brúar á þessum stað, og var kostnaður við brúargerðina áætlaður 1.600 þús. kr. Gera má samt ráð fyrir, að kostnaður við hana nemi nú um tveim millj. kr. Fjárveitinganefnd leggur ein dregið til, að hafinn verði nú þegar undirbúningur að smíði nýrrar brúar og því verði hrað- að svo sem mest eru föng á. Vísir 22. sept. EMBÆTTISMENN ÞJÓÐRÆKNISDEIDARINNAR % “FRÓN” Guðmann Levy, forseti. Jónbjörn Gíslason, vara-forseti. Sigurbj örn Sigurðsson, ritari Ólafur Jónasson, vara-ritari. Jochum Ásgeirsson, féhirðir. Davíð Björnsson, vara-féhirðir. Karl Jónasson, fjármálaritari. Yf irskoðunar menn: Grettir L. Jóhannsson. J. Th. Beck. KOMNIR INN I SAARDALINN Amerískar hersveitir eru komnar inn í Saardalinn, sem er eitt auðugasta landsvæði Þjóð verja af hverskonar náttúrufríð- indum; einkum eru þar kolanám- ur miklar, sem Þjcðverjar, að minsta kosti á stríðstímum mega illa án vera; hafa Bandaríkja- menn þegar tekið bæinn Soor- lautern, sem er aðeins um sex mílur frá höfuðborg Saarhéraðs- ins. ymimmmmmijwmm Dr. Richard Beck Valinkunni vestur-íslendingur, vorrar þjóðar ljós á rnennta braut, okkar feðra eðli hlaustu slyngur öruggur að heyja dagsins þraut. Lýst af frelsi landsins unga merki lyfti þinni sál með dáð og fjör, drenglundaður dags að skyldu verki djarft þú beittir glæstum andans hjör. Þinna kosta þættir aldrei leyndust, þér var gefin festa, táp og dygð, holl og vinsæl ráð þín jafnan reyndust rakin glöggt af lífsins mennt og trygð. Ætíð varstu oss í fjarlægðinni einlæg bending til að stefna rétt, Geyma íslands óð og sögn í minni áform þitt var traustu ráði sett. Frjáls og glaður fram í raun og verki fús þú réttir styrka bróður hönd. Víkings ættar viljinn þátta sterki vígði brú að kærri feðra strönd. Þú varst líf og þróttur okkar máli, þakkir lýða og virðing hlaust í gjöld. Undan þínu andans segulstáli eldur brann, og fægði dagsins skjöld. Norræn þjóð í nýju fósturlandi nam og geymdi dýran ættar sjóð ! Vestræn menning, víkings hönd og andi vafurlogum gyllir tímans flóð. Lifðu, Beck, um langa heiða daga ljúfar þakkir fyrir göfugt starf.— Lifi manndáð, mál og ljóð og saga, móðurlandið sem oss gaf í arf. — M. Markússon.

x

Lögberg

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Lögberg
https://timarit.is/publication/132

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.