Lögberg


Lögberg - 07.12.1944, Qupperneq 3

Lögberg - 07.12.1944, Qupperneq 3
LÖGBERG, FIMTUDAGINN 7. DESEMBER. 1944 3 Ársskýrsla skrifara Fyráta lút. safnaðar fyrir 1 944 Herra forseti! Kæru safnaðar- meðlimir og vinir Fyrsta lút. safnaðar! Sem skrifari fulltrúanefndar- innar legg eg fram eftirfarandi skýrslu. Starf fulltrúanna er að gæta hagsmuna og fjármála safn- aðarins. Skýrsla þessi verður að- eins samandráttur á því, sem hefir gjörst á árinu og sem alla- reiðu hefir verið birt vikulega í blaðinu okkar, og sem ykkur öllum er að mestu ieyti kunn- ugt, ennfremur mun eg leggja fram eitthað af því sem fram undan liggur. Fyrsti lúterski söfnuður hefir haft mörg merkis ár á þessum síðastliðnum 66 ár- um, og er það skoðun mín að síðastliðið ár standi þeim fylli- lega á sporði. Veðskuldin. Fyrsta verk framkvæmdar- nefndarinnar var, að komast niður á einhvert fyrirkomulag með að ná upp nægilegu fé til að borga kirkjueignina að fullu. Skipulagning sú, er var gerð, reyndist ótrúlega vel fallin, og hafðist upp upphæð sú, sem var farið fram á, $4500.00, á mjög skömmum tíma. Það er ekki full- trúunum að þakka heldur safn- aðarmeðlimunum í heild, sem urðu við tilmælum okkar í svo ríkum mæli; og sýnir það glöggt hvað safnað&rmeðlimir vilja leggja á sig fyrir kirkju sína. Er það góðs viti. Að lokinni fjársöfnuninni var efnt til samkomu þar sem veð- bréfið var brennt með virðu- legri og ánægjulegri athöfn. Nú er kirkjan okkar eign, og von- um við, sem elskum þessa stofn- un, að aldrei muni aftur hvíla skuld á henni. Við þökkum öll- um, sem hlut áttu að máli með að koma þessu í verk. Viögerðir. Mörgum var farið áð þykja að neðri salurinn væri farinn að þurfa hreingerningar við. En þegar sú frétt barst okkur til eyrna, að hinn vel æruverðugi biskup yfir íslandi væri að koma vestur um haf sem erindreki ís- lenzkra stjórnarvalda til að sitja 25. ársþing Þjóðræknisfélags ís- lendinga í Vesturheimi, ákvað stjórnarnefndin að hefjast handa og gjöra smá breytingar og mála neðri salinn. Nokkrir úr stjórn- arnefndinni tóku að sér að veita forstöðu þessu verki. Vegna þess, hve tíminn var naumur, leituð- um við til safnaðarmeðlima og annara til að vinna þetta verk. Var unnið að kappi og áhuga og verkið búið á skömmum tíma, þótt allmikið þurfti að gjöra. Söfnuðurinn er í þakkarskuld við utansafnaðarfólk, sem lagði vinnu sína til þessa verks án nokkurrar borgunar. Það var að- eins borgað fyrir efni. Merkisatburðir. Til merkisatburða á liðnu ári ber fyrst að minnast þess, að einn af hinum áhrifamiklu safn- aðarmeðlimum, Hjálmar A. Berg man, var skipaður dómari í hæstarétti Manitoba fylkis. Seinna var hann gerður að for- manni framkvæmdarnefndar Manitoba háskólans, Nefndin og söfnuðurinn samgleðjast honum með þennan tvöfalda heiður. Söfnuðurinn finnur djúpt til þess mikla missis er hann beið við fráfall heiðursforseta safn- aðarins, Dr. B. J. Brandson, er verið hafði áratugi einn af hin- um sterkustu og einlægustu máttarstoðum safnaðarins. Það vakti almennan fögnuð meðal safnaðarmeðlima er Dr. B. J. Brandson var, skömmu fyrir andlát sitt, gerður heiðursdoktor í lögum við Manitoba háskól- ann. Þá var það og söfnuðinum fagnaðarefni er forseti íslenzka kirkjufélagsins, séra Haraldur Sigmar, var sæmdur doktors- gráðu í guðfræði við Uníted College í vor sem leið. Þann 19. ágúst s. 1. var presti safnaðarins, séra Valdimar J. Eylands, boðið til New York til fundar við fyrsta lýðveldisforseta íslands, herra Svein Björnsson. Full- trúanefndin hélt fund jafnskjótt og henni barst fregnin um heim- boðjð til eyrna og taldj það sjálfsagt, að hann fengi frí frá embættisstörfum til þess að takast áminsta ferð á hendur. Frá ferðinni skýrði séra Valdi- mar all ítarlega í ræðu, sem hann flutti í kirkjunni og síðar var birt í báðum íslenzku vikublöð- unum. . Vert er að þess sé getið, að safnaðarnefndin lánaði fúslega kirkjuna fyrir glæsilega hátíð, sem þar var haldin að kvöldi þess 16. júní í tilefni af endur- reisn ísl. lýðveldisins, sem fram fór á Þingvöllum daginn eftir. Séra Valdimar var forseti þess- arar hátíðar. Biskupinn yfir tslandi, Dr. Sigurgeir Sigurðsson, sem eins og kunnugt er heimsótti þjóðar- brot vort, sem send'fulltrúi ís- lands stjórnar á 25. ársþingi Þjóðræknisfélagsins og auðsýndi söfnuðinum margháttac5a sæmd, meðal annars með því að flytja útvarpsprédikun frá kirkjunni, verður koma hans til okkar seint fullþökkuð. Skrá yfir meðlimi í herþjónustu. 5. desember síðastliðinn, fór fram guðsþjónusta, sem tileink- uð var meðlimum og vinum þessa safnaðar, sem höfðu hlýtt kalli til herþjónustu. Skrautrituð skrá með nöfnum þessa fólks var gerð af hr. Gissuri Elías- syni. Hinn alúðlegi fylkisstjóri Manitoba, hr. R. F. McWilliams, K.C., sýndi söfnuðinum þá sæmd að vera við morgunguðsþjón- ustuna og að henni lokinni af- hjúpaði hann skrána, sem var búið að innramma. Var hugur safnaðarins samstilltur í sökn- uði og bæn við þetta tækifæri. Olíumynd. Safnaðarnefndin hafði leng. fundið til þess, að það væri óvið- unandi að mynd af Dr. B. B. Jónssyni heitnum væri ekki í kirkjunni. Nefndin ákvað s. 1. marz, að þetta mætti ekki drag- ast, og afréði að láta mála mynd af Dr. Jónssyni hjá einum af nafnfrægustu listamönnum þess- ar borgar. Var sérstök minn- ingarguðsþjónusta helguð Dr. B. B. Jónssyni, sem um næstum því aldarfjórðung hafði þjónað söfnuði þessum með myndar- skap, dygð, einlægni og trú- mensku. Aldavinur Dr. Jónsson- ar, Dr. B. J. Brandson, afhjúp- aði myndina. Athöfn þessi fór fram 19. marz að viðstöddu miklu fjölmenni. Starfsfólkið. I byrjun þessa starfsárs, eða réttara sagt í september byrjun, lét hr. Einar Haralds af embætti sem eftirlitsmaður kirkjunnar, eftir margra ára vel unnið starf í því embætti. Safnaðarnefndin var svo lánsöm að eiga kost á að ráða hr. Sigurð Einarsson, sem eftirmann hans, og er það von okkar að hann múni reyn- ast söfnuðinum ágætur starfs- maður, og bjóðum við hann vel- kominn, og einnig bjóðum við honum alla þá samvinnu, sem við getum látið honum í té. Um sama leyti urðu breytnig- ar um organista og söngstjóra, Mrs. E. ísfeld, sem hafði gengt starfinu með hinni mestu prýði og einlægni í tvö ár. lét af því starfi, var henni þakkað fyrir alla fyrirgreiðsluna í söngmálum safnaðarins. Miss Snjólaug Sig- urðson, sem safnaðarnefndin hafði gefið “leave of absence” tveimur árum áður, var ráðin a ný til að stjórna báðum kórun- um og einnig sem organisti, við bjóðum hana velkomna. Nefndin fór þess á leit við Mrs. Lincoln Johnson, að hún gerðist einsöngvari í kórnum, og varð frúin góðfúslega við til- mælum okkar. Nefndin er viss um það, að hin fagra rödd Mrs. Johnsons mun styrkja kórinn að miklum mun. Látnir nefndarmenn. Síðastliðinn febrúar varð nefndin og söfnuðurinn í heild fyrir því tjóni að missa einn af sínum ötulustu stuðningsmönn- um, hr. Thorstein Stone, sem um margra ára skeið hafði a margvíslegan hátt unnið og styrkt að málefnum safnaðarins með einlægni og kristilegum á- huga. Við samnefndarmenn hans söknum hans mikið, og sannast raumferulega máltækið “Eigi veit hvað átt hefir fyr en mist hefur.” Hinn elskaði heiðursforseti safnaðarins og nefndarinnar var kallaður seinna. Nefndin hefir jafnan metið með aðdáun þann mikla styrk, sem hann veitti okkur á svo margan hátt til að ráða fram úr vandamálum okk- ar, hann var okkur ráðhollur í öllu, þegar við leituðum ráða til hans. Hans starf fyrir þenn- an söfnuð mun lengi verða minnst. Nefndin tjáir ekkjum þessara starfsbræðra, og einnig sifjaliði þeirra, alúðarfyllstu hluttekn- ingu í sorg þeirra. Guð blessi minningu þeirra. Fjármál. Féhirðir safnaðarins mun skýra ykkur all-ítarlega frá fjár- hag safnaðarins. Nefndin er í þakkarskuld við safnaðarmeð • limi fyrir það, hve vel þeir hafa brugðist við er nefndin hefir leitað til þeirra um peningafram lög; ef á annan veg hefði verið hefði nefndin ekki getað afkast- að því starfi, sem hún hafði hug á að vinna. Þið hafið gjört okk- ur verkið létt og ánægjulegt. Við þökkum ykkur öllum fyrir samvinnuna. Breytingar á hitaveitunni. f haust þegar við tókum til starfa með endurnýjuðum kröft- um eftir sumarið, var tekið til alvarlegrar íhugunar þá nauð- syn,' að til að spara eldiviðar- kostnað þyrfti að gjöra eitthvað við miðstöðvarofninn. Var kos- in nefnd til að fá sérfræðinga til að fá tillögur þeirra í þessu vandamáli. Niðurstaðan varð sú, að okkur var ráðlagt að setja inn “Stoker” og einnig að breyta til með hitunarfyrirkomu lagið. Voru mörg tilboð lögð fram til að gjöra þetta verk, og eftir mörg fundarhöld og heila- brot, var verkið gefið út. Nú er kominn “Stoker”, sem dælir kolum í ofninn, og. er það von okkar, að hann spari okkur tölu- vert árlega í peningaútlátum, þó' ekki sé minnst á vinnu eftirlits- mannsins. Ennfremur var svo breytt til með leiðslur, svo að nú er hægt að hita annan hvorn salinn út af fyrir sig einan, eða báða til samans, eins og þörí gjörist. Það er von okkar, að þessi breyting verði til hags- muna og einnig til þæginda fyrir söfnuðinn. Það má geta þess hér, að ekki er farið að borga fyrir þessi nýju tæki. Starfsemin. Nefndin hefir haft fundi á ár- inu, auk þess hafa aukanefndir haft með sér ótal fundi, og ein- staklingar eitt miklum tíma í ýmislegt. Forsetinn okkar hefir verið ósérhlífinn í þágu safn- aðarins. Samvinnan hefir verið í bezta lagi. Kirkjuráðið, þ. e. a. s. fulltrú- arnir, djáknarnir, og presturinn hafa haft einn furd á árinu. Á þeim fundi var rætt all-ítar- lega, hvernig hægt væri að auka kirkjusókn. Var ákveðið að kirkjuráðið kæmi saman aftur eftir ársfundinn til þess að skipu leggja þetta mál og hefjast handa með það, að reyna að fylla kirkj- una á hverjum sunnudegi. Hinn vinsæli og ágæti prest- ur okkar, séra Valdimar J. Ey- lands, hefir verið áhugasamur í starfinu, og hefir lagt mikið á sig til að þjóna söfnuðinum sem best. Safnaðarnefndin vill tjá honum þakklæti sitt fyrir vel unnið verk, og um leið óska, að hann njóti blessunar guðs í ríkum mæli. Nefndin er þakklát hinum mörgu deildum innan safnaðar- ins fyrir ágæta frammistöðu söfnuðinum til blessunar, einnig þakkar hún einstaklmgum fyrir margan auðsýndan vilvilja. Bending. Eins og ykkur er ljóst, verða 100 ár liðin næsta ár, frá fæð- ingardegi Dr. Jóns Bjarnason- ar. Kirkjuþingið mun koma saman hér í júní n. k., og á þá að halda upp á 60 ára afmæli þess. Ef að þið lítið í kring um ykkur og upp í mæninn, munið þið sannfærast um. að nauð- synlegt er að gera við “plaster” og mála kirkjuna áður en á- minst hátíðahöld fara fram. Þetta þarf hin nýia nefnd að fratnkvæma með ykkar hjálp. Það væri hægt að telja fleira sem nauðsynlegt er að gera, en þar sem þessi skýrsla hefir orðið lengri en eg ætlaðist til, læt eg hér staðar numið. Eg bið af- sökunar á því, ef eg hefi gleymt einhverju, sem ætti að vera í þessari skýrslu. Guð blessi kirkjuna, söfnuð- inn, prestinn og starfsemina. Grettir Leo Johannson. skrifari. Blekplöntur Mest af bleki þvi, sem notað er nú á tímum, er samansett eftir efnafræðilegum forrkriftum. Og lítið af efnum þeim, sem í blek- inu eru, eiga rót sína að rekja til jurtaefna. Það er all margbrotið að fram- leiða gott blek. En í Columbia í Suður-Ameríku vex planta, sem framleiðir í stönglinum, sem er ágætis blek, án þess að það sé nokkuð fyrir því haft. Fyrst er blekið rauðbrúnt þegar skrifað er með því, en dökknar fljótt og verður kol- svart. Þetta blek kvað vera endingargott, betra en annað blek. Sögur herma að þegar Spán- verjar höfðu yfirráð yfir Colum- bia, er þá nefndist Nýja Granada voru nokkur áríðandi skjöl send þaðan til Spánar. Sum voru rit- uð með plöntubleki, en hin með tilbúnu bleki. Á leiðinni yfir hafið komst sjór í skjölin. Það kom þá í ljós, að skjölin er rituð voru með plöntublekinu héldu sér algerlega. Það er að segja letur þeirra hafði ekki máðst út. En hin skjölin var tæplega hægt að lesa. Fyrirskipaði nú spánska stjórn in að öll skjöl skyldu rituð með plöntubleki “chanchi”. En ekki vitum við, hvort þetta blek er ennþá notað. Nýtt um tunglið Stjörnufræðingar síðustu alda og þessarar hafa “slegið því föstu”, að ekkert líf geti þrifist í tunglinu. Það hefir verið talið “dauð stjarna” þó að það togi sjóinn hérna á jörðinni til sín og valdi þannig flóði og fjöru. En ameríski stjarnfræðingurinn W. H. Pickering prófessor var á öðru máli og færði sönnur á að andrúmsloft eða gufuhvolf væri kringum tunglið, en það er talið frumskilyrði alls lífs. Að vísu væri þetta gufuhvolf tíu þúsund sinnum þynnra en jarð- arinnar. Síðar fór enski stjarn- fræðingurinn Robert Barker að kynna sér kenningar Pickerings og gaf út ritgerð um málið. Þar segir meðal annars að jurtagróð- ur sé á tunglinu, og verði hann fullþroska á 14% sólarhring. En jurtagróður er skilyrði fyrir dýralífi og oftast fylgist þetta að. Séu kenningar Barkers rétt- ar væri því hugsanlegt að bæði jurtir og dýr væru á tunglinu. En líklega er þetta hvorttveggja skrambi ólíkt því, sem gerist hér á jörðu. Business and Professional Cards DR. A. BLONDAL Dr. S. J. Johannesson Physiclan & Surgeon 215 RUBT STRKET 602 MEDICAL ARTS BLDG (Belnt suður af Bannlng) Talsími 30 877 SJmi 22 296 Heimili: 108 Chataway • Simi 61 023 VlÖtalstími 3—5 ©. h. DR. A. V. JOHNSON Dentist 6 06 SOMERSET BLDG. Telephone 88 124 Home Telephone 202 398 Fiá vini Dr. E. JOHNSON 304 Eveline St. Selkirk Office hrs. 2.30—6 P.M. Phone office 26. Res. 230 Office Phone Res. Phone 88 033 72 409 Dr. L. A. Sigurdson 166 MEDICAL ARTS BLDG. Offlce Hours: 4 p.m.—6 p.m. and by appolntment DR. ROBERT BLACK Sérfræðingur 1 Augna, Eyrna, nef og hálssjökdómum 416 Medical Arts Building, Graham and Kennedy St. Skrifstofusimi 22 251 Heimasími 42 154 DRS. H. R. and H. W. TWEED Tannlœknar • 406 TORONTO GEN. TRCSTS BUILDING Cor. Portage Ave. og Sniith St. PHONE 26 545 WINNIPEÖ EYOLFSON’S DRUG PARK RIVER, N.D. tslenzkur lyfsali Pólk getur pantað meCul og annað með pðsti. Fljðt afgreiðsla. A. S. BARDAL 848 SHERBROOK ST. Selur llkkistur og annast um ttt- farir. Allur ötbttnaður sö beztL Ennfremur selur hann allakonar minnisvarða og legsteina. Skrifstofu talslml 86 607 Heimilis talsimi 26 444 nmei/ets SÍMMdÍQS JBd* PMoycaphic OifnmjatwnBt Canmdm --T. l|>6 Dj|me. PHONE 96 647 Legsteinar sem skara framör Úrvals blágrýti og Manitoba marmari SkrifiO eftlr verOskrd GILLIS QUARRIES, LTD. 1400 SPRUCE ST. Winnipeg, Man. HALDOR HALDORSON 'bypgingameistari 23 Music and Art Building Broadway and Hargrave Winnipeg, Canada Phone 21 455 J. J. SWANSON & CO. LIMITED 308 AVENUE BLDG„ WPG. • Fasteignasalar. Lelgja hös. Ot- vega peningalán og eldsábyrgð. bifreiðaábyrgð, o. s. frv. Phone 26 821 INSURE your property with HOME SECURITIES LTEÍ 468 MAIN ST. Leo E. Johnson A. I. I. A. Mgr. Phones Bus. 23 377 Res. 39 433 ANDREWS. ANDREWS THORVALDSON AND EGGERTSON LðofrcéOingor 209 Bank of Nova Scotla Bldg. Portage og Garry St. Stmi 98 291 TELEPHONE 96 010 H. J. PALMASON & CO. Chartered Accountants 1101 McARTHUR BUILDING WINNIPEG, CANADA Blóm stundvíslega afgreidd TK ROSERY lto. Stofnað 1905 427 Portage Ave. Winnipeg. Phone 49 469 Radio Service Specialista GIINDRY & PYMORE LTD. ELECTRONIG Brittoh Quality — Ftoh Nettlng 60 VICTORIA STREET LABS. Phone 98 211 H. THORKELSON, Prop. Vtnnlpeg The most up-to-date Sound Manager, T. R. THORVALDBOJf Equipment System. four patronage wlU be 130 OSBORNE ST.t WINNIPEG ippceciated G. F. Jonasson, Pres. & Man. Dir. S. M. Backman, Sec. Keystone Fisheries Limited 404 Scott Block Wholesale Distributors of FRESH AND FROZEN FISH CANADIAN FISH PRODUCERS, LTD. J. H. Page, Managing Director Wholesale Distributors of Fresh and Frozen Fish. 311 Chambers St. Office Phone 86 6B1. Res Phone 73 917. MANITOBA FISHERIES WINNIPEG, MAN. T. Bercovitch, fram.kv.st). Verzla I heildsölu með nýjan og frosinn flsk. 308 OWENA ST. Skrifstofustml 25 355 Heimasimi 65 463 i

x

Lögberg

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Lögberg
https://timarit.is/publication/132

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.