Lögberg - 07.12.1944, Síða 7

Lögberg - 07.12.1944, Síða 7
LÖGBERG, FIMTUDAGINN 7. DESEMBER, 1944 7 Yngstu lesendurnir Island Á mynd þessari sézt canadiskur hermaður, þar sem hann er að gera að sárum þýzks fanga, eftir eina stórorustuna í Normandy, en á þeim vettvangi féllu Þjóðverjar í þúsunda- tali, auk alls þess grúa, sem sameinuðu herjirnir handtóku. Loftslag. Drengir og stúlkur: Þegar þið athugið legu íslands á kortinu, þá sáuð þið að land- ið var svo norðarlega að nyrsti' tanginn, Rifstangi, nær norður í Norður-íshafið. Vegna legu landsins, halda mav-gir að þar sé afar kalt og að fólkið gangi þar í þykkum loðfeldum, eins og það gerir hér í Vesturheimi á sömu breidd jarðar. Hvar liggur heimskautabaug- urinn um Canada? Hverjir búa þar? Þegar ferðamenn koma til Is- lands, verða þeir meir en lítið hissa, þegar þeir komast að þvi, að þar er eins hlý+t á vetrum eins og langt suður í löndum. í hausf kom hin fræga leik- kona, Marlene Dietrich til ts- lands frá Grænlandi. Eins og þið vitið, þá eru amerískir her- menn núna á Grænlandi og ts- landi. Marlene og leikflokkur hennar heimsækja ameríska her- menn um víða veröld til þess að skemta þeim, því oft leiðist hermönnunum að vera svona langt í burtu að heiman. Þegar Marlene kom til Græn- lands, sá hún land, sem var að mestu þakið snjó og hafísar voru á sveimi meðfram ströndum þess. Svo flaug hún til Islands. Hún var alveg hissa þegar hún kom þangað, því hún bjóst við að þar væri líkt umhorfs og á Grwnlandi. t stað bess, sá hún dökkgrænar grundir. Þegar eg las um þetta, mundi eg upphafið af vísu sem amma raulaði stundum þegar hún hugsaði heim til tslands: “Man eg grænar grundir, glitra sil- ungsár o. s. frv.” Marlene Dietrich sagði ís- lenzku blaðamönnunum, sem komu á fund hennar, að með réttu ætti ísland að heita Græn- land en Grænland ætti að heita ísland. Nú skulum við athuga af hverju loftslag er svona miklu mildara á landinu en við mætti búast eftir hnattstöðu þess. ísland er eyland. Eins og þið hafið lært í landafræðinni ykk- ar, þá er loftslagið á eylöndum jafnara en í meginlöndum langt frá hafinu. Hafið dregur úr vetrarkuldunum en gerir sumr- in svöl. Sjórinn umhverfis ísland er miklu heitari en við önnur lönd jafnnorðarlega. Hlýr hafstraum- ur kemur suðvestan frá Mexiko- flóa. Hann heitir Golfstraumur. Hann vermir sjóinn umhverfis landið. Það er honum að þakka hve hlýtt er í veðri á íslandi. Golfstraumurinn kemur með yl- inn og lífið. En norðan að landinu kemur annar hafstraumur, norðan úr Ishafinu. Hann er kaldur og flyt- ur stundum með sér hafís að strönd norðurlands. Þessi straum ur heitir Pólstraumur. Hann kemur með kulda, þokur og súldir. Þessir tveir straumar berjast um völdin. Þegar Pólstraumur- inn kemur með hafís, þá deyr gróðurinn. Eitt skáldið nefnir hafísinn “hinn forna fjanda”. Sem betur fer er hlýi straumur- inn oftast sterkari. Hafís hefur ekki sést við strendur tslands í marga tugi ára. Það rignir mikið á íslandi, einkum á Suðurlandi og oft er þar þoka. I næsta blaði ætla eg að segja ykkur frá því, hvernig þetta land, sem hefur eins hlýtt lofts- lag og Pennsylvania fékk þetta kalda nafn — ísland. Orðasafn. loftslag — climate athugaðu — observe nyrzti — most northerly loðfeldum — fur coats breidd jarðar — latitude ferðamenn — travellers hissa — astonished fræga — famous leikkona — actress hermenn — soldiers skemta — entertain þakið — covered hafís — polar ice strönd — shore grundir — grass fields upphafið — beginning raulaði — hummed blaðamenn — reporters eyland — Island jafnara — more moderate meginland — continent umhverfis — surrounding hafstraumur —: ocean current Golfstraumur — Golf stream íshafið — Arctic Ocean Pólstraumur — Polar current berjast — fight völdin — power gróðurinn — vegetation tugir — decades Frekari trásagnir af Goðafoss slysinu Fyrsti stýrimaður segir frá: Tundurskeyti kom á skipið mitt og sprengdi þegar á það stórt gat Eymundur Magnússon fyrsti stýrimaður skýrir pannig frá í viðtali við Alþýðublaðið: — Við vorum komnir hér inn á Faxaflóa, þegar við urðum kaf- bátsins varir. Fram að því hafði ferðin gengið ágætlega og við höfðum engrar truflunar orðið varir. Kl. 1 eftir hádegi á föstudag- inn, er við áttum eftir um tveggja og hálfs tima siglingu til Reykjavíkur, var tundur- skeyti skotið að okkur frá kaf- báti, og kom það á mitt skipið bakborðsmegin og reif gat á það á stóru svæði. Gekk þilfarið upp í skipinu allt frá fyrsta farrými aftur að þriðja lestaropi og munu þá vél- stjórar og kyndarar þeir, sem fórust, strax hafa látist. Þegar tundurskeytið hitti Goðafoss, var fólkið flest upp á þilfari eða í reykingasal. Gengu nú allir, sem uppi við voru, að því að losa fleka og bát, sem heill var, stjórnborðs- megin á skipinu að framan, en bátarnir á þeirri hlið, sem fyrir tundurskeytinu var, voru möl- brotnir, og til bátanna aftur á var ekki hægt að komast, því eins og áður er sagt var þilfar- ið rifið upp aftur að þriðja lest- aropi og skipið þá þegar farið að síga mjög í sjó að aftan. Var því aðeins um fremri stjórn- borðs bátinn að ræða. Sá nú fólkið hað verða vildi ig fór því hver af öðrum að kasta sér í sjóinn til þess að reyna að komast upp á fleka þá, sem búið var að losa og setja niður. Eg vil taka það fram, að allir sýndu mestu hugprýði og létu enga æðru á sér finna. Eg var að reyna að losa fleka upp við brú skipsins, rétt áður en það sökk, en hætti við það og fleygði mér í sjóinn, af því eg treysti því ekki, að hann losnaði frá skipinu og flyti upp er það sykki. Eftir að eg hafði synt um stund náði eg í fleka, og held eg helzt að það hafi ver- ið fleki sá, er eg fór síðast frá á skipinu, en þegar eg var kom- inn upp á flekann var skipið sokkið.” — Hve lengi haldið þér að skipið hafi verið að sökkva? “Eg ímynda mér, að ekki hafi liðið nema tæpar tíu mínútur frá því að tundurskeytið hitti skipíð og þar til það var alger- lega horfið”. — Hvað komust margir á flek- ann með yður? “Við vorum sex saman á fleka. Einn þeirra var Eyjólf- ur Edvaldsson loftskeytamað- ur, sem lézt um borð í björgun- arskipinu á leiðinni í land. Á meðian hann var á flekanum virtist hann hinn hraustasti og bar sig mjög karlmannlega.” — Hvað vorðu þið lengi á flekanum áður en skipin lcomu ykkur til hjálpar? “Það munu hafa verið um tvær klukkustundir.” — Voruð þið ekki orðnir mjög þjakaðir eftir svona lang- an tíma? “Okkur var náttúrlega orðið kalt, því við sátum upp að mitti í sjónum á flekanum. En svo fengum við strax þurr föt, þeg- ar við komum um borð í björg- unarskipið, og aðbúð öll var hin bezta.” — Sáuð þið nokkuð til fólks- ins, sem fórst með skipinu? “Þetta gerðist allt á svip- stundu. Eg ímynda mér, að all- ir þeir sem fórust, hafi strax sogast niður með skipinu um leið og það sökk. Þeir sem á flekana komust, hafa verið bún- ir að sýnda það langt frá skip- inu, þegar það sökk, að sog það sem myndaðist í kringum það um leið og það sekkur hafi ekki náð til þeirra.” — Hvenær komuð þið svo til Reykjavíkur? “Fyrra skipið kom rétt fyr- ir kl. 12 á miðnætti, en með því skipi voru aðeins tveir menn af Goðafossi. Hitt skipið kom ekki til Reykjavíkur fyrr en klukkan að byrja að ganga þrjú um nóttina.” — Þið hafið verið lengi í land af árásarstaðnum? “Bj örgunarskipin voru lengi kringum hann eftir að okkur var bjargað um borð. Ennfrem- ur var flugvél á þessum slóð- um fram í myrkur.” — Og svo var farið með ykkur í sjúkrahúsið á Laugarnesi. “Já, við fengum ekki að fara heim til okkar, fyrr en við vorum búin að fá þá hjúkr- un og aðhlynningu, sem talið var að við þyrftum. Þar fengum við föt okkar þurrkuð og allt var gert til þess að okkur gæti lið- ið sem bezt, og svo fórum við heim um morguninn.” Áslaug Sigurðardótlir segir frá: “Allt gerðist með svo skjótum hætti að það var ekki tími til að hugsa.” Annar farþeganna, sem kom- ust lífs af, var Aslaug Sigurðar- dóttir, Þórólfssonar á Hvítár- bakka. Hún hafði dvalið vestra, við Teachers’ College, Columbia University, um tveggia ára skeið og numið barnauppeldi og kynnt sér rekstur dagheimila. Hún var nú að koma heim að afloknu námi. 4 — Hvar voruð þér staddar, þegar tundurskeytið hæfði skip- ið? “Eg var í ganginum, framan við borðsalinn og var að tala við Sverri litla, son Friðgeirs læknis. Þá heyrðíst allt í einu hár hvellur eða dynkur og skipið tók þegar að hallast. Maður, sem þarna var, fór að festa björgun- arbeltið á Sverri litla, en síðan gerðist allt með svo skjótum hætti, að erfitt er að segja frá því, sem á eftir fór, í réttri at- burðaröð. Manni gafst einhvern- veginn ekki tími til að hugsa. Þó var ekki óðagot á neinum. allir virtúst æðrulausir og ró- legir, engin hróp eða köll.” — Þér komust á fleka, var ekki svo? “Fyrst fór eg upp í björgunar- bát á bátaþilfarinu. Frímann bryti tók í mig og við komumst upp í bátinn, sem enn hékk í davíðunum, en svo renndum við okkur niður á flekann fyrir neð- an. Þá var skipið mjög djúpt í sjó. Allt gerðist með svo skjótri svipan, að eg á erfitt með að átta mig á því öllu, er eg hugsa til þess. Svo sökk skipið, skutur- inn fyrst, en stefnið stóð síðast upp úr sjónum. Sogið var mik- ið, er skipið fór niður og við gripum það, sem héndi var næst til þess að koma okkur sem lengst frá því. Svo komum við að öðrum fleka og bundum hann við okkar fleka. Ekki get eg sagt, að neinn hafi verið hrædd- ur á flekanum, við vissum, að okkur myndi verða bjargað, en okkur var mjög kalt. Raunar var mér ekki svo kalt, eg blotn- aði ekkert fyrr en á flekanum sjálfum, því við vorum mörg á honum og hann var svo djúpt í sjó. Þegar við höfðum bundið saman flekana leið öllum betur.” Sumum var afskaplega kalt, einkum þeim, sem höfðu lent i sjónum, en við hristum hvert annað og börðum til þess að koma blóðinu á hreyfingu. Svo fundum við skjólföt í flekanum og breiddum segl í kringum okk- ur og fór strax að líða betur. Við vorum tvo tíma á flekan- um, þar til okkur var bjargað um borð í togara og fengum þar hina beztu aðhlynningu. Svo komum við til Reykjavíkur milli kl. 2 og 3. um nóttina. Fiestir munu hafa verið fluttir í sjúkra- hús, en eg fékk að fara heim strax, enda leið mér vel þá.” — Hvernig var yður innan- brjósts meðan gekk á öllu þessu? “Eg fann ekkert til verulegs æsings eða ofboðs, allt skeði svo fljótt. Maður hafði ekki tíma til þess að hugsa eða veita því eft- irtekt, sem fram fór í kringum mann. En viðbrigðin komu á eftir. Þegar eg kom um borð í björgunarskipið, riðaði eg á fót- unum af þreytu. En það vildi eg segja, að allir, sem með mér voru á flekanum voru hinir vösk- ustu, þeir stóðu sig eins og hetj- Ur fréttaskýrslu Frh. af 2. bls. einn af flugmönnum flugfélags- ins, og hafði hann verið sendur vestur Erni til aðstoðar. Véla- menn voru tveir, annar banda- rískur, en hinn Sigurður Ingólfs- son, sem er að koma frá námi í Ameríku og er ráðinn hjá Flug- félaginu. Örn O. Johnson fór til Banda- ríkjanna'í byrjun júlímánaðar í sumar til þess að leita fyrir sér um kaup á flugvél fyrir hönd félagsins. Um mánaðarmótin ágúst—sept. festi hann kaup á Katalína-flugbát þeim, sem nú er kominn til Reykjavíkur, en hann hafði áður verið notaður til flutninga í Suður-Ameríku. Hann var smíðaður í fyrravor. Flugbáturinn hefir tvo hreifla, 1200 hestafla hvorn vænghafið er rúmir 30 metrar, hann vegur 15 smálestir fullhlaðinn, og mun flytja rúmlega 20 farþega. Lítils háttar breýtingar voru gerðar á honum vestra, áður en lagt var af stað í ferðina hingað, en nú þarf mikilla breytinga við til þess að búa flugbátinn til far- þegaflutnings og munu þær taka langan tíma, því að félagið skort- ir enn mikið af nauðsynlegu efni til þeirra. Gert er ráð fyrir þriggja manna áhöfn á flug- bátnum í ferðum við strendur landsins, en fleiri í millilanda- flugi. Flugfélag íslands átti þrjár landflugvélar fyrir, allar tveggja hreyfla, og hefur að undan- förnu aukið starfsemi sína jafnt og þétt, jafnframt því að áhugi almennings á flugsamgöngum hefur farið vaxandi, skilyrðí batnað og tæki. Með kaupum þessarar flugvélar, fyrstu milli- landaflugvélarinnar, sem íslend- ingar eignast, hefst nýr þáttur í sögu íslenzkra flugmála. Nýir stafir höfðu verið mál- aðir á kirkjuhliðið. Þar stcð: Þetta er hlið himnanna. En á meðan stafirnir voru að þorna, var hengdur upp bréf- miði með þessum orðum: Gerið svo vel að fara hina leiðina. Maðiír nokkur hafði numið staðar á fjölfarinni götu. Lög- regluþjónn gekk til hans og sagði, að hann mætti ekki standa kyrr á svona fjölförnum stað og bætti við: — Ef allir menn stæðu kyrrir eins og þér, þá kæmist enginn framhjá. • “Þér ljúgið svo klaufalega,” sagði dómarinn við ákærða, “að eg ráðlegg yður í mestu einlægm að fá yður lögfræðing til að- stoðar.” Sigurði Kriáljánssyni sýndur heiður Forseti tslands veitti, að tillögu orðunefndar Sigurði Kristjáns- syni hinn 23. þ. m. stjörnu stór- riddara hinnar íslenzku Fálka- orðu. Sigurður hefir unnið íslenzkri bókaútgáfu mikið gagn og stuðl- að meðal annars að því með ódýrri heildarútgáfu íslendinga- sagnanna, að þær urðu almenn- ingseign. Forsetinn heimsótti Sigurð á 90 ára afmæli hans og afhenti honum orðuna. Þá heimsótti Sigurð þenna dag stjórn Hins íslenzka prent- arafélags, sem færði honum heiðursskjal, undirritað af öll- um prenturum í Revkjavík. Fulltrúar Oddfellowreglunnar, Félags ísl. prentsmiðjueigenda og Bóksalafélags voru einnig meðal gesta Sigurðar s. 1. laugardag. Vísir. 27. sept. Verðskulduð þökk Stjórnarnefnd Þjóðræknisfél. íslendinga í Vesturheimi, hefir nýlega meðtekið mikilsverða bókagjöf frá Miss Margréti Vig- fússon á Betel. Gjöfin er sam- ansafn af ýmiskonar fróðleik úr vestur-íslenzkum vikublöðum, snyrtilega frágengið og hagan- lega fyrirkomið. Nær safnið yfir all-mörg síðari ár; hefur mikil vinna og fyrirhöfn verið lögð í verkið af hálfu gefanda. Vottar Stjórnarnefnd félagsins Miss Vigfússon alúðar þakkir fyr ir gjöfina og hlýhug þann er hún túlkar. I umboði Stjórnarnefndarinnar, S Ólafsson, skrifari. — Þegar eg fæ inflúensu kaupi eg flösku af wisky við henni, og eftir klukkutíma er hún farin. —Það er stuttur tími til að losna við inflúensu á. — Nei, ekki inflúensan. Það er flaskan sem er farin. ur. Alþbl. 12. nóv. ■■■ ........ Frá akuryrkju- og innflutningsmálaráðnueytinu. Búið alifugla vel undir markað Bændur í Manitoba tapa talsverðum peningum á því, að búa ekki alifugla vel undir markað. Algengustu, ágallarnir eru þessir: 1. Blóð er skilið eftir í munninum; þetta á að þvo burt með volgu vatni áður en fuglinn kólnar. 2. Óhreinir fætur. Um að gera að þvo fætur vandlega. 3. Öllum loftopum þarf að halda vandlega tómum. 4. Fuglinn þarf að reita svo vandlega að engin fjöður sé eftirskilin. Reglugerðir viðvíkjandi “Live Stock og Live Stock Products Act”, gilda um alt landið. Vanræksla í þessu efni veldur peningatapi. D. L. CAMPBELL Akuryrkju- og Innflutningsmálaráðherra Desember 1944

x

Lögberg

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Lögberg
https://timarit.is/publication/132

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.