Lögberg - 21.12.1944, Side 1

Lögberg - 21.12.1944, Side 1
PHONES 86 3H Seven Lines LÍOt a Vl ».• "ow rvcr* DrV f^G't0^ yiíÞÞ' For Better Dry Cleaning and Laundry 59. ÁRGANGUR NÚMER 51 5 2» H AUST Þrauta ríkt er þetta haust þrútið loft og sólarlaust. Dauðans þunga drynur raust dimt og kalt er alheims naust. Drottinn vertu veikra skjól veit þeim frið og gleði um jól. Láttu þína líknar sól lýsa og verma alheims ból. V. J. Guttormsson. Frelsi og brœðralag Eftir próf. RICHARD BECK Ræða flutt við guðsþjónustu í Hallgrímssöfnuði Reykjavík og í ýmsum íslenzkum kirkjum vestan hafs. Hið nýja ráðuneyti Ólafs Thors á Islandi Frá vinstri til hægri: Brynjólfur Bjarnason, mentamálaráð- herra; Emil Jónsson, atvinnumálaráðherra; Pétur Magnús- son, fjármálaráðherra; Ólafur Thors, forsætis- og utanríkis- ráðherra; Finnur Jónsson, dómsmálaráðherra; Áki Jakobs- son, fiskiveiðaráðherra. Eg vil leiða athygli yðar að spádómsorðum Krists um fæðing arhríðarnar, en *í þeim leggur hann oss þau djúpu sannindi á hjarta, að þroskabraut mannkyns ins er þyrnum stráður vegur þungra þjáninga og mikilla fórna, að þjóðfélagslegar umbætur í heimi hér eru keyptar við dýru verði blóðs og tára. En þannig hljóða þau spádómsorð: “Þér munuð heyra um hernað og spyrja hernaðartíðindi. Þjóð mun rísa gegn þjóð og konungs- ríki gegn konungsríki. Bæði mun verða hallæri og landskjálftar á ýmsum stöðum, og á jörðinni angist meðal þjóðanna í ráðaleysi við dunur hafs og brimgný.” Með þessi örlagaþrungnu spá- dómsorð í baksýn, hefi eg valið mér að umræðuefni: “Frelsi og bræðralag”. Einhverjum kann nú að þykja sem það sé æði óheppi- lega valinn ræðutexti, þar sem fjölmargar þjóðir heims, mikill hluti mannkynsins alls, stynur undir járnhæl ránsmanna og kúgara; og eigi síður vegna hins, að segja má, að gjörvallur heim- urinn sé nú eitt logandi ófriðar- bál, sem teygir hramma eyði- leggingar sinnar um alla jörð. Jafnvel vor friðsama og hug- umkæra ættþjóð, sem býr “við hin yztu höf”, hefir dregist inn á hættusvæði styrjaldarinnar og synir hennar og dætur orðið öfl- um eyðileggingarinnar að bráð. Eðlilega verður oss að spyrja, er vér lítum til lofts og sjáum þar biksvört ófriðarskýin, enda þótt nú sé, góðu heilli, farið að rofa fyrir betra degi: “Vöku- maður, hvað líður nóttinni?” Rauntrútt og myndauðugt svar við þeirri spurningu, eins og nú er umhorfs í heiminum, hefir Davíð skáld Stefánsson gefið oss í kvæði sínu undir sama nafni: “Hægt líður nóttin ... Ennþá er myrkur í öllum lönd- um. Ennþá er barist. Skothríð dynur. Fallandi þegnar fórna höndum. Stríð fyrir ströndum. Stríð í borgum. Miljónir falla. Miljónir kveina af hungri og sorgum, svo heyrist um heima alla. Fánum er lyft ... Lúðrar gjalla, uns lyginnar musteri hrynur. öll skepnan stynur. í öllum löndum rís andinn nýi gegn valdhafans vígi, sem ver sig, blindur í eigin sök. Hersveitir berjast til heimalanda. Helreykur stígur úr hverri vök. Píslarvottar með bogin bök í brjóstfylkingu sannleikans standa”. Hér er ekki aðeisn, af mikilli mælsku og andríki, brugðið upp átakanlegri mynd af hinni ógur- legu styrjöld, sem sogað hefir æ fleiri þjóðir niður í hringiðu ömurlegrar eyðileggingar sinnar; hér er einnig í skýrum dráttum gefið í skyn, hvað um er verið að berjast, því að skáldið talar um hinn nýja anda, sem “rís gegn valdhafans vígi”, eða með öðrum orðum um þann frelsis- og framsóknaranda hinna undir- okuðu, sem brýtur af sér bönd kúgunar og þrælkunar; skáldið ræðir einnig um þær hersveitir, sem “berjast til heimalanda”, um þá, sem eiga land sitt, heimili og ástvini að verja gegn ofur- efli harðvítugra árásarmanna, og hversu stór er eigi hópur slíkra manna á vorum dögum? Þá eru lokaorðin í þeim ljóðlínum skálds ins, sem vitnað var til: “Píslar- vottar með bogin bök í brjóst- fylking sannileikans standa.” Hversu sönn eru þau orð eigi og táknandi um þá menn og þær konur, sem fórna miklu, jafn- vel öllu, pjálfu lífi sínu, til þess, að léttlæti og sannleikur gangi sigrandi af hólmi í þeim mikla hildarleik, sem nú er háður í heiminum. Og þegar vér förum að skoða heimsstyrjöldina í því ljósi, frá því sjónarmiði, hvað þar sé í rauninni barist um, þá fer oss eflaust að skiljast það, að það er eigi nein fjarstæða, að gera sér frelsi og bræðralag að um- talsefni einmitt nú, þá er þær hugsjónir eiga sérstaklega í vök að verjast; sannleikurinn er sá, að þar er um að ræða hið tíma- bærasta umræðuefni og um- hugsunar. I styrjöld þeirri, sem nú geisar í heiminum, er um annað fram að ræða um átök milli andstæðra hugsjóna og lífsskoðana. Eg fæ ekki betur séð, en að það, sem nú er sérstaklega barist um, sé þetta, sagt á mjög einfaldan hátt: frelsi eða harðstjórn. Þessvegna var það, að lýðræðisþjóðirnar, þó að þær væru svo illa undir þau hernaðarátök búin, að þær súpa enn seyðið af því, hófu upp sverð sitt gegn kúgun og ofbeldi þeirra einræðisherra, sem auðsjáanlega dreymdi um ver- aldarvíð yfirráð. En í einni af hinni miklu ræðum sínum um heimsmálin fórust Roosevelt for- seta þannig orð um það, sem Bandaríkjaþjóðin og samherjar hennar eru að berjast fyrir. “Vér berjumst fyrir öryggi, framsókn og friði, eigi aðeins sjálfum oss til handa, heldur öllum mönnum, eigí aðeins í þágu einnar kynslóðar, heldur allra kynslóða. Vér berjumst til að hreinsa heiminn af gömlum glæpum og meinum. Óvinir vor- ir hafa að leiðarstjörnu grimmi- lega harðúð og vanhelga fyrir- litningu fyrir mannkyninu. Vér höfum hitann úr trú, sem á ræt- ur sínar að rekja alla leið um aldaraðir aftur í fyrsta kapítula Móse-bókar: “Og Guð skapaði manninn efti/sinni mynd; hann skapaði hann eftir Guðs mynd.” Vér leitumst við að vera trúir þeirri guðbornu arfleifð. Eins og feður vorir fyrrum, berjumst vér til þess, að halda við lýði þeirri kenplinigu, að allir menn séu jafnir fyrir augliti Drottins. Andstæðingar vorir leitast hins- vegar við að uppræta þessa djúp- stæðu trú og skapa nýjan heim í sinni eigin mynd, heim kúg- unar, harðýðgi og þrældóms.” Og Roosevelt forseti bætti þVí við, að engin málamiðlun gæti bundið enda p átökin milli þeirra hugsjóna og lífsskoðana, sem um er að ræða, því að aldrei verði, svo að til blessunar leiði, miðlað málum milli góðs og ills, ljóss og myrkurs. Þau eru ekki af sama heimi. Davíð skáld Stefánsson hafði rétt að mæla, er hann segir í einu merkiskvæði sinna: “Vér sjáum öll hvað söguspjöldin geyma, af sumum.rýkur níðingsblóð, og allir þeri, sem guði sínum gleyma, peir glata fyrstir sinni þjóð.” En það er eigi aðeins þjóð- 'relsið eitt, lýðræðishugsjónin sjálf, sem í húfi er í styrjöld Deirri, sem nú æðir um heiminn, jrœðralagshugsjónin er þar í jafn mikilli hættu, því að þessar hug- sjónir eru svo nátengdar, að þær verða eigi aðskildar. Bræðralags- hugsjónin, sem byggist á gildi og helgi einstaklingsins fær eigi þróast í hlekkjum áþjánar; hún sprettur aðeins upp úr jarðvegi frelsis og réttlaétis, því að ein- ungis undir þeim skilyrðum hef- ir einstaklingurinn svigrúm til að lifa lífi sínu til fullnustu, þroska persónuleika sinn og leggja skerf til heilla og velferð- ar þjóðfélagsins. Þessu til stað- festingar þarf eigi annað en minna á, hvað orðið hefir um hin ýmsu bræðrafélög í löndum þeim, sem einræðisherrarnir hafa bælt undir sig. Það hefir verið eitthvert hið fyrsta verk árásar- mannanna, að eyðileggja slík félög og uppræta. Lýðfrelsi og bræðralag verða því aðeins framtíðarhlutskipti þjóðanna, að einræðisstefnan (totalitarianism), sem gerir ein- staklinginn að auðmjúkum þræl ríkisheildarinnar, eða öllu heldur að verkfæri í hendi hans, sé brot,- in á bak aftur. Þessvegna verð- um vér fúslega að leggja miklar fórnir í sölurnar fyrir það, að eigi slokni á blysi lýðræðishug- sjónarinnar, því að hún er sá viti, sem vísar veginn inn í fram- tíðarland drauma vorra og vona í þjóðfélagsmálum. En hér eiga við markviss orð íslenzks kenni- manns (séra Benjamíns Kristjáns sonar), er hann viðhafði um endurheimt fullveldi ættþjóðar vorrar: “Þessi sigur frelsisins, hann er fyrst og fremst kominn að innan! Hann er getinn af andanum, borinn og barnfædd- ur í sálinni. Frelsið, það er fyrst og fremst hugarástand, það er inni í oss sjálfum. Ef vér af- neitum því þar, og ef vér týn- um trúnni á það, þá munum vér glata því einnig hið ytra. En ef vér trúum á það, ef vér elskum það í hugum vorum, og þráum það samtaka með brennandi á- huga, þá mun oss hlotnast það.” En einræðisstefnan, sem gerir ríkið og þjóðina að guði sínum, er eigi aðeins jafn fjarlæg lýð- ræðisstefnunni eins og norðrið er suðrinu, heldur er hún einnig jafn fjarskyld og andvíg kristin- dóminum og kenningum hans. Því að aldrei verður of miki áherzla lögð á það, að nútíðar lýðræðis- og bræðralagshugsjón vor stendur djúpum rótum í manngildis og siðferðiskenning- um Krists. Þessvegna hafði próf. Ásmundur Guðmundsson lauk- rétt að mæla, er hann sagði í merkilegri tímaritsgrein um “Kirkjuna og verkamannahreyf- inguna”: “Ekkert hefir verið né er heiminum önnur eins eggjan og hvöt til umbóta í mannfélags- málum og kenning kristindóms- ins um gildi hvers manns, kær- ' eiksboðskapur hans og bræðra- ^lagshugsjón. Og vinnan hefir einnig öðlast nýtt gildi frá sjón- armiði kristindómsins”. Þá er það einnig auðskiljanlegt hvers vegna menn eins og einræðis- herrann Hitler og fylgifiskar hans vilja kristindóminn feigan og hafa hafið herför á hendur honum í ræðu og riti. “En borgir falla ekki fyrir stóryrðum”, má segja um það. Voldugir verald- arhöfðingjar hafa fyrri lagt út á sömu braut, og jafnan beðið ósigur, því að allir. hversu sterkir, sem þeir kunna að sýn- ast vera, verða um síðir að lúta lögmáli hins eilífa sannleika. Þegar vér, hinsvegar, Jjerum það í minni, að frelsi- og bræðra- lagshugsjónir vorar eru svo göf- ugrar ættar, sprottnar upp íir sjálfu skauti kristindómsins, þá ætti það bæði að vera oss áminn- ing um ómetanlegt dýrmæti þeirra og trygging þess, að þær eigi lífrænt og varanlegt gildi. Látum oss þessvegna eigi, þrátt fyrir það mikla myrkur styrj- aldarinnar, sem nú grúfir yfir jörðinni, tapa trúnni á hið guð- lega þroskaeðli, sem með mann- inum býr; trúnni á meðfædda löngun hans og hæfileika til fram sóknar, þó brattur og blóðugur sé þroskavegur hans, því að “ógurleg er andans leið upp á sigurhæðir”. Minnumst trúar- máttarins í orðum sama skálds, séra Matthíasar Jochumssonar, er hann stóð frammi fyrir ham- förum reginelfds Dettifoss: “Hert þig, hojjarbleikur, hræða skalt ei mig. Guðdómsgeislinn leikur gegnum sjálfan þig.” t Höfum einnig hugföst orð hins mikla trúboða Stanley Jones um örninn: “Þegar stormviðri skell- ur á erni, heldur hann vængjun- um þannig, að loftsstraumarnir lyfta honum af afli upp yfir storminn. Vængstaðan veldur því. Kristnum manni er ekki hlíft við sársauka, sorgum og sjúkdómum, sem annað fólk verður fyrir, en honum er gefin sú vængstaða andans, að hann hefst upp yfir raunirnar af afli sjálfra þeirra.” Vér kristnir menn og konur þurfum eigi að örvænta um sigur sannleika og réttlætis að lokum, ef vér sækjum fram undir merk- um konungs lífs og ljóss og hik- um eigi við að taka oss á herðar HAUST Nei, það er ekki dauði — þó í draumi sé dregin hendi yfir lífsins brá á leiksviði, og stýrt sé tímans straumi er stormar draga vetrar-tjöldin frá, og fyrir eyrum haustsins gígjur gjalli og glæstir litir skreyti blöð í falli. Þar opnast heimur, breiður, blár og fagur í bylgjum ljóss, við yzta sjónar hring, þar birtist helgur heiðríkjunnar dagur því himins stjörnu dýrð er alt um kring, og norður ljósin mála meginn dráttinn á meðan haustið leikur síðsta þáttinn. En öldungur með gráum, gömlum hárum, nú gengur fram við hljómleikanna són. á ströndinni hjá bláum hafsins bárum, hann bregður hendi að enni og skerpir sjón. En kvöldið fellir kristals stjörnu skara á klæði hans, og spurningu hans svara. Þar sameinast nú alt sem lífið átti, en aðeins lítill hluti af þessum draum var hann, sem átti þátt í haustsins þátti, og þátt, frá vorsins lífgefandi straum. En draumurinn á skylt við alt og alla, — að enda leiksins — vetrar-tjöldin falla. Pálmi. (Frh. á bls. 12) JÓLIN 1944 Austur, heim til íslands fjalla, andinn lyftir sér í dag, þar sem kátir fossar falla fram af bjargsins traustum stalla, fagna landsins frelsis hag. Stjarna ljós frá himni heiðum hlær við fanna slæðum breiðum. Nóttin hljómar lífsins lag. Lít eg kot við litla hólinn, liggja þar mín fyrstu spor, systkin mín þar sitja jólin, svalt þó blási um Tindastólinn inni ríkir von og vor. Mamma þylur mætar sögur meðan kertaljósin fögur, vekja fögnuð þrótt og þor. Síðan mörg eg séð hef jólin signd af kærleik, von og frið, ennþá ljómar lífsins sólin lítinn bæ við kæra hólinn, minnar æsku sjónar svið. Lát mig drottinn gullin geyma glöðu jóla ljósin heima, sem eg ungur undi við. M. Markússon.

x

Lögberg

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Lögberg
https://timarit.is/publication/132

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.