Lögberg - 01.03.1945, Blaðsíða 2

Lögberg - 01.03.1945, Blaðsíða 2
2 Útvarpsrœða Eftir Mr. J. Gray, blaöamann við Winnipeg Free Press Lausl. þýtt af Jónbirni Gíslasyni Sunnudaginn 11. þ. m. hélt Mr. Gray blaðamaður, ræðu yfir útvarpið, er vakti svo athygli mína að eg fór strax næsta dag og fann hann að máli á skrifstofu hans og bað hann um handritið til þýðing- ar í íslenzkt vikublað. Það var auðsótt og kunni eg hon- um bestu þökk fyrir. Ræðan er að mínu áliti mjög merkileg; þar koma fram skoð- anir, sem lítið hefir verið haldið á lofti, en hafa vafa- laust við töluverð rök að stiðj- ast. Mér kom í hug að lesend- um Lögbergs — sumum hverj- um — mundi þykja fróðlegt að kynnast skoðunum Mr. Gray. Eg vil taka fram að. þýðingin er afar lausleg, en ekkert held eg að tapist sem máli skiptir og engu er bætt við. J. G. Einn vinur minn hefir myndað sér vissa skoðun um þá farvegi er stríðsmálin eru líkleg að falla í á komandi tíma, og því er koma mun að því loknu; þessar skoð- anir hans læt eg yður hér með í té til yfirvegunar. Eg get ekki, að vissum ástæð- um, opinberað nafn hans, en eg vil fullvissa yður um, að enginn hér í Canada þekkir nasistana betur en hann, sömuleiðis er kunnleiki hans af Rússum djúp- ur og víðtækur. Hann var í Þýzkalandi undir stjórn nazista og einnig í Rússlandi hjá kom- múnistum. Af þessum ástæðum er skoðun hans á þessum mál- um, bygð á óyggjandi reynslu. Eg veit að vísu að sumir aðrir hafa öðlast uppfræðingu af líku tagi, en hafa reynst óáreiðan- legir í spádómum sínum. Við hér við blaðið Free Press, höfum lært að treysta framsýni þessa vinar míns, vegna þess að hann hefir á undanförnum árum “hitt naflann á höfuðið” mörg- um sinnum. Hann sagði mér á síðasta sumri, suma þá hluti sem nú eru að gjörast 1 Þýzkalandi. Á þeim tíma er tilgátur voru á sveimi um þá möguleika að Nazistar mundu opna allar dyr inn í landið, fyrir bandamönn- um að vestan, vegna haturs þeirra og ótta við Rússa, ef þeir yrðu fyrri til Berlínar, talaði eg við þennan vin minn og leitaði álits hans. Tilgátur þessar byggð- ust á því, að Þjóðverjar, eftir öll sín illvirki í Rússlandi, töldu sig mundu öðlast betri friðar- skilmála ef bandamenn að vest- an yrðu fyrri til að taka landið; þessvegna mundu þeir senda sem mest varalið gegn Rússum, til að halda þeim úti, samtímis því er hinir kæmu inn að vest- an. Vinur minn brosti jafn mikið að þessari skoðun eins og hinni að Þjóðverjar væru rétt að gef- ast upp og stríðið væri sama sem unnið. Hann áleit að Þjóð- verjar mundu — ef þeir ættu völ á — að austur víglína þeirra bilaði heldur en sú að vestan. Fyrir þessari skoðun sinni færði hann eftirtaldar ástæður: Þjóðverjum er vel kunnugt um, að í flestum lýðveldum heimsins eru ekki einungis fasc- ista sinnaðir flokkar manna — þeir sem sungu Hitler lof og dýrð fyrir slátrun Gyðinganna — heldur einnig rótgróin tor- trygni til Rússa. Hin eina von Nazista um að geta bjargað ein- hverju frá algjörri tortímingu nú, er því að slá á þessa strengi og skapa þannig skoðana mis- mun og óeiningu meðal banda- manna, með aðstoð þessa facist- iska minni hluta. Rússland er ein samfeld heild, án slíks minni hluta sem önnur ríki hafa og Nazistar geta vænzt styrks frá; þar eru engir flokkar manna eða flokkasambönd er hata lýðræðisstefnu stórveld- anna. Ef þessvegna bandamenn að vestan, flæddu fyr inn á Þýzkaland, mundi það engann óróa eða tortryggni vekja meðal Rússa, af þeirri einföldu ástæðu að þar eru engir til, er mundu nota slíkt til sundurlyndis og grunsemdar. Ef Rússar aftur á móti yrðu fyrri inn, sem sigur- vegarar, mundi hin gamla kommúnista gríla rísa upp end- urvakin með atbeina . áður- nefndra minni hjuta vesturríkj- anna, og illa gróin sár Pólsku málanna mundu ýfast að nýju, og öll andstöðuöfl Rússlands.öðl- ast nýtt líf og nýjann kraft. Nazistar athuguðu með stakri ánægju þá erviðleika er mættu bandamönnum í Grikklandi, ítalíu og Belgíu og vonuðu að slíkt mundi aukast og margfald- ast með innrás Rússa í Þýzka- land. Vinur minn áleit að Naz- istar mundu tæplega geta staðið gegn þeirri freistingu að draga sig til baka að austan og gefa herfylkingum Rússa tækifæri að koma inn. Nú er spurningin, drógu þeir sig til baka, eða var þeim varpað afturábak af yfir- burða afli Rússa? 1 þessu efni er ekki hægt að leiða bein rök, en ýms atvik mæla hér bæði með og móti. Þegar Rússum að lokum heppnaðist að brjótast yfir Vistúla elfuna, fundu þeir borgina Warsjá mannlausa. Opn- ar sléttur Póllands blöstu við og þeir æddu yfir þær með meiri hraða en herflokkar venjulega hafa; það bendir til að þegar Vistúla fljótið var unnið, hafi lítil eða engin mótspyrna mætt þeim fyr en við Oder. Algjör frelsun Póllands opn- aði vissulega allar flóðgáttir áróðurs og andmæla af hálfu félagsbundinna Rússa hatara, er hafa kostað'öllu til að fá oss til að gleyma að vér berjumst gegn Þjóðverjum en ekki Rússum. Nazistar sjálfir hefðu engu slíku getað komið af stað af eigin ramleik, þó biljón dala hefði verið í boði, og undir engum kringumstæðum væri mögulegt að reisa slíka andmæla öldu í Rússlandi gegn öðrum banda- mönnum, til röskunar fullri sam- vinnu, þó þeir yrðu á undan til Berlínar. Við allar . vorar at’huganir gagnvart Þýzkalandi, verðum vér að gjöra oss fulla grein fyr- ir ástandinu innbyrðis og hugs- unarhætti þjóðarinnar. Eftir tlu ára þrotlausann níðsöng um Rússa og átakanlegustu lýsingar á innræti kommúnistanna, og að fjögurra ára viðbættri frásögn nazista hve fastráðnir Rússar séu í að eyðileggja Þýzkaland að fullu og öllu, er tæpast vonlaust að meðalgáfaður Þjóðverji elski Rússa svo neinu nemi. Óttinn er einn sterkasti og afdrifarík- asti þáttur mannlegra kenda og Þjóðverjum hefir verið innrætt að hræðast og hata Rússa meira en alt annað í veröldinni. Ef nokkur hlutur var megnuður að endurvekja hið dvínandi hug- rekki Þjóðverja á Prússnesku vígvöllunum, þá var það hin hættulega nærvera Rússa. Rússneskir fréttaritarar lýsa að nokkru þeirri grimd sem bar- ist er af í Slesíu og Austur-Prúss- landi; þeir fullyrða að Konen marskálkur hafi tekið 21.000 fanga og drepið 60.000 á tíu dög- um. Af 4.000 manna sterkum herflokk, féll hver einasti mað- ur. Þeir telja að þar hafi eyði- lagst af Þjóðverjum: 750 orustu skriðdrekar, 1.500 bissur og 22.000 flutningavélar. Þessi helj- arsókn Rússa, hefir sjáanlega komið Þjóðverjum á óvart, vegna þess að gnægð herfangs féll þar í hendur Rússa. Hinir varkáru og hagsýnu nazistar hefðu ekki látið slíkt falla í hendur óvina sinna af ásettu ráði. Á miðvígvöllunum fyrir neð- an Warsaw, treystu þeir á frem- ur veigalitla varnarlínu, án allra bakvarna. Vafalaust treystu þeir LÖGBERG, FIMTUDAGINN, 1. MARZ, 1945 Mynd þessi sýnir hina svonefndu “Crocodile” éldvörpu, sem er í flokki hinna allra ægilegustu vopna. því að þessi hraða framsókn Rússa, einmitt á þessu svæði, mundi slá óhug og ótta á aðra bandamenn og rugla alt sam- komulag, en þeir munu ekki af ásettu ráði hafa leift Rússum inn í Silesíu, Austur-Prússland, eða í áttina til Stettin. Ef Þjóðverjar hefðu barist af sama vaskleik við Vistúla elfuna og þeir gjörðu í Silesíu og á Stettin línunni, mundu þeir ekki heyja vonlausa baráttu við Oder nú í dag. Ef til vill er svarið það, að þeir hafi fyrir brýna nauðsyn látið undan síga af ásettu ráði. Þeir vissu vel að þeim var ómögulegt að standa gegn Rúss- um á allri hinni löngu víglínu, þeir treystu því varnir sínar þar sem mestu varðaði — að sunnan og norðan — á kostnað miðlín- unnar. Að þessu leiti létu þeir Rússa fara í gegn, af því þeir gátu ekki mætt þeim alstaðar samtímis og treystu því eins og áður er sagt, að slíkt mundi sigla samvinnu bandamanna í strand. Sem betur fer, eru samvinnu tengsl samherjanna tryggari en svo að slíkt fái veikt þau. Sá tími er liðinn hjá og borgarar lýðveldisríkjanna eru þroskaðri en svo að þeir leggi trúnað á sögur gamalla drauga og upp- vakninga. Þeir vita vel að Rússar hafa rotslegið nazistana; þeír vita einnig að milljónir Rússa hafa látið lífið i vörn föður- lands síns, gegn vorum sameigin- lega óvini. * * * > Vinur minn — er eg gat um í upphafi þessa máls — taldi lán- beiðni Rússa til Bandaríkjanna, fyrir 6 biljón dala, hið merkasta atriði á pólitískum vettvangi nú sem stæði. Hver er ástæðan fyrir þeirri beiðni og hv^ð er þar á bak við? Látum oss líta á Rúss- land rannsóknaraugum og sjá- um hvers vér verðum varir. Evrópu-Rússland má, heita gjör- samlega eyðilagt; þar eru allar borgir og öll þorp milli Lenin- grad og Rostov, meira og minna í rústum af völdum ófriðarins. Á þessum svæðum áttu bygðir og bú, hér um bil 60 milljónir Rússa, er eitt sinn hófu þjóð- félagslega byltingu og unnu hana með tiltölulega litlu manntjóni; þeir voru þvingaðir út í gagn- byltingu, er var hræðilega mann- skæð; þeir mættu stormasömum tímum, ofsóknum, hungursneyð og ýmsu enn verra. Fyrstu árin voru einn samfeldur voðadraum- ur, þeir bjuggust við að auð- valdsríkin mundu hvenær sem væri koma og eyðileggja þeirra “self styled” sósíalistiska föður- land og þá sjálfa. Þeir helguðu því blóð sitt, svita og tár, þeirri hugsjón að byggja upp voldugan her og vopnaverksmiðjur. Stjórn in tók þá föstu stefnu að stofn- setja víðtækann stóriðnað fyrir fjárhag ríkisins. Framleiðsla neysluvöru varð að vanrækjast og af því leiddi, að lífskjör verkamanna tóku ekki miklum umbótum, en þeir lifðu í þeirri von að betri dagar kæmu þegar stóriðnaðurinn væri kom- inn á fastann grundvöll — þá kæmu gnægðir allra góðra og nauðsynlegra hluta. Sú stað- reynd að sumir meðal þeirra áttu bifreið, var hinum gleðileg bending uip hvað framtíðin geymdi í skauti sínu, einnig fyr- ir þá sjálfa. En þá kom stríðið og allar vonir dóu — í bili. Ó- friðnum hefir þó ekki tekist að fyrirkoma framt-íðardraumum þeirra, frekar en vorum draum- um, hér heima 'hjá oss. Bjartsýni Rússa kemur ljós- lega fram í kynningu þeirra við Bandaríkjamenn; þegar Amerík- anar benda með stolti á sinn ágæta klæðnað, flutningtæki, út- varpsáhöld, flutningssjúkrahús og kælivélar, verður Rússum eitthvað þessu líkt að orði: “Já, þið Amefíkumenn hafið alla þessa hluti nú, en þið sköpuðuð ekki alt af engu á einum 20 árum; bíðið þið bara þangað til ófriðnum líkur, þá munum við hafa alt þetta líka, jafnvel meira og fullkomnara, þið skuluð nú sjá það”. Látum oss nú athuga alla mála- vexti: hér er land sem er næst- um gjöreyðilagt og þjóð sem er alveg sannfærð um að dagsbrún- in verði á sólbjörtum degi þeg- ar ófriðnum linnir. Stjórnin þekk ir sitt fólk og sína þjóð; hún veit vel að endurbygging landsins af þeirra eigin ramleik, tekur að minsta kosti mannsaldur; hún veit að rússneska þjóðin getur ekki óendanlega lifað á óupp- fyltum vonum; hún veit að þjóð- inni verður að borga eftir föng- um allar hennar þjáningar. Alt þetta samanlagt, leggur flest pólitísk há-spil í hendur vestur lýðveldanna. Rússar þarfnast sár lega hjálpar til að græða sitt sundurflakandi föðurland; 6 biljón dala lánbeiðnin er sönnun þess. Vissulega verða lifandi áhuga- mál þeirra að standa í vináttu- samböndum við lýðveldi heims- ins í framtíðinni. Eru þeir þá líklegir til að vinna að útbreyðslu kommúnisma í Vestur-Evrópu? Ekki er það skoðun mín, né vin- ar míns. Rússnesk utanríkispólitík er líkleg til að stefna að undir- stöðumálefnum þeirra sjálfra, en ekki að útflutningi á kommún- isma eða heimsbyltingu. Ef þessi skoðun reynist rétt, mun fult bræðralag ríkja milli þeirra og vor. Meðal annars af því að þeim er áríðandi að vinsamleg sam- vinna haldist, er eg sannfærður um að þeir verða sanngjarnan í samningum, á yfirstandandi fundi hinna þriggja leiðtoga, en sumir dómarar þeirra eru vilj- ugir að viðurkenna. Þeir þekkja vora viðkvæmu staði og Stalin veit hvar hans samninga tæki- færi eru veik og hvar sterk. Sama má segja um Mr. Rooseelt og Mr. Churchill; þeir vita glögg- lega að enginn friður er trygður til frambúðar, án fullrar þátt- töku og samvinnu Rússa, og þeir vita einnig hve mjög Rússar þarfnast umheimsins. Eftir allar málsástæður athug- aðar, munum við — eg og vinur minn — hliðra rússnesku gríl- unni afsíðis og gleyma henni, en láta reynsluna skera úr, hvernig oss semur við Rússa á komandi árum. * * * Hvað stríðinu sjálfu viðvíkur, vil eg benda á eitt eða tvö atriði: Hvað getur bjargað menningunni? Synódus erindi 1944. Eftir séra Benjamín Kristjánsson I. Eg nefni þetta erindi: Hvað getur bjargað menningunni? En áður en vikið er að þeirri spurn- ingu, væri rétt, að gera sér þess ofurlitla grein, hvað menning er. Sú spurning er að vísu talsverr úmfangsmikil, en þó vil eg, til glöggvunar, gera nokkura tilraun til að svara henni í stuttu máli í meginatriðum. Menning er það, sem greini- legast skilur háttu manna frá háttum dýra. Siðmenning er samfélag, sem stjómað er af viti, samúð og kærleika. Þar sem maðurinn á meiri hugsun, meira ímyndunarafl, stærri von og rík- ari samábyrgðartilfinningu en dýrin, byrjar menningin. Lengi héldu sálfræðingar því fram, að á viti mannsins og félagshvötum væri fremur stigs- munur en eðlismunur í saman- burði við dýrin. En nú eru hinir vitrustu þeirra farnir að skilja, að þegar um ímyndunarafl mannsins, trú hans og von er að ræða, kemur nýtt atriði til greina, sem dýralífið þekkir ekki. Vil eg í því sambandi vekja at- hygli á hinu ágæta riti: Vísindin og andinn, eftir prófessor Thomas Jessop, sem dr. Guð- mundur Finnbogason hefir ný- lega íslenzkað. Hann segir: “Það er frumvilla, að skilgreina eðli vort þannig, að það sé blátt áfram það, sem vér byrjuðum með. Eðlishvatimar eru undir- staðan í þeim einfalda, bókstaf- lega skilningi, sem grunnur húss er það — hann er húsinu nauðsynlegur, en er lægsti hluti þess”. (bls. 63). Enn segir hann: “Eg get ekki fundið neina raun- hæfa merkingu í hinni algengu sálfræðiskenningu, að hugsjóna- lífið sé aðeins framlenging eðlis- hvatalífsins” (bls. 45). “Skilning- ur vor á hugsjónum gerir oss að mönnum. Vér erum ekki fæddir með hugsjónum, og eg er ekki viss um, að vér höfum með- fædda hvöt til að leita þeirra. — Hið fyrra er, að Zukov marskálk- ur er stjórnaði her Rússa á mið- vígstöðvunum, er talinn einn af gætnustu herforingjum Rússa; framkvæmdir hans síðustu viku sanna það. Hann gefur Þjóðverj- um ekkert tækifæri til að koma sér í opna skjöldu og varpa sér þannig úr jafnvægi á Rundsteds vísu. Þess vegna hefir aðalher- styrkur hans tekið stefnu til norðurs, í áttina til Stettin, til að hindra áhlaup Þjóðverja á hægri arm hersins. Mín hug- mynd er sú, að hann muni hreinsa upp alt norð-austur Prússland, áður en hann tekur stefnuna beint til Berlínar. Vor eigin Canadiski her, sæk- ir á enn að nýju. Eins og fyr, fellur höfuðþungi bardagans á fótgönguliðið. Aukist sóknarmátt ur þeirra, eru þeir líklegir til að verða fremstir í innrásinni á Ruhr. En nú sem stendur eru þeir í slæmri aðstöðu — aðeins á tuttugu mílna breiðri spildu, milli ánna Mass og Rhine; þær aðstæður minna á hve mikill harmleikur og tjón var að tapa Arnheim, vegna þess að hefði sú fótfesta haldist, væru vorir menn nú líinu megin fljótsins með nægt olnibogarúm. Ef sókn vorra manna nær veru legri framsókn er Ruhrdalurinn alt Norður-Þýzkaland', opið fyr- ir innrás. Af því Arnheim tapaðist, er sóknin torveldari en ella; vorir menn verða að sækja inn mjóa landspildu, þar sem óhægt er um allar stöðubreytingar og verkefni fótgönguliðsins að öllu leyti örðugra. ENDIR. Vér fæðumst til að verða mennsk ir í mannlegu umhverfi. — Hug- myndin um hið fullkomna við- helzt sakir andlegra • viðskipta kynslóðanna” (bls. 42—43). Þetta þýðir á guðfræðilegu máli, að mennirnir eru komnir að ofan. Hún er opinberun, sem kynslóðirnar hafa öðlazt og reynt að viðhalda og ávaxta mannkyninu til blessunar. Hug- sjónirnar, trúin á hið guðdóm- lega, þetta hefir verið eldstólp- inn í eyðimerkurgöngu þjóðanna,^ meginhvötin til umbóta, aflvak- inn til að sækja lengra fram og hærra upp. Hverf eg þá að aðalumræðu- efninu. II. Þegar vér virðum fyrir oss þær hörmungar, sem nú ganga yfir lönd og lýði, blasir við augum sú staðreynd, að vísindin geta ekki bjargað menningunni. Þau hafa að vísu látið henni mörg fríðindi í té. En vér sjáum nú, að þau eru ekki einhlít. Mann- kynið þarf annars og meira við. Fyrir hálfri öld síðan heyrð- ust ýmsar raddir úr herbúðum vísindamannanna um það, að frelsa þyrfti mannkynið undan áþján trúarbragðanna. Litið var á þau af furðu mörgum, er miklir þóttust fyrir sér í vís- dómi, sem úreltan hleypidóm, er hverfa myndi með vaxandi þekk- ingu. Og þau voru meira að segja talin skaðlegur hleypidómur, sem ástæða þótti til að vara ungu kynslóðina við. Vísindin, og þar með var átt við náttúruvísindin, voru hinsvegar talin hið mikla ljós, er frelsa mundi heiminn og allir settu von sína á. Nú hafa orðið nokkur stefnu- hvörf um þetta. Nú á vorum tím- um er ekki laust við, að nýir og auknir sigrar vísindanna setji ugg að mönnum, eins og vísind- in eru einkum notuð í þjónustu dauðans og djöfulsins, og menn spyrja efablandnir: Er það þá víst, að framfarir vísindanna muni gera þetta líf svo miklu sælla og betra? Þurf- um vér ekki eitthvað meira en vísindin? Það er satt, að uppgötvanir vísindanna hafa fengið mönnum í hendur langsamlega meira vald en nokkur undangengin kynslóð gat látið sig dreyma um. Orka, sem nemur miljónum hestafla, er beizluð. Miklu erfiði ætti sú vélaorka að geta lyft af herðum mannkynsins. En til hvers notar maðurinn alla þessa óhemju- orku? Notar hann hana til að bæta kjör sín, til að lifa sælla og fegurra lífi á jörðu, eða notar hann hana eins mikið til eyði- leggingar og tortímingar? Styrjöldin, sem nú geisar, svar- ar þeirri spurningu. III. Rétt áður en styrjöldin brauzt út, ritaði einn af frægustu vís- indamönnum Breta, Julian Huxley, þessi orð: “Engin spurning er jafn þýð- ingarmikil og uggvænleg og sú, hvað mannkynið muni gera við alla þá óhemjuorku, sem vísind- in hafa fengið því í hendur. Sem stendur, segir hann, mætti helzt samlíkja mannkyninu við ábýrgð arlaust og ófyrirleitið barn, sem fengið hefir að leikfangi skað- legt vopn: Tundurbirgðir og eld- spýtnastokk. Hvemig hyggjast trúarbrögð- in að stöðva ógæfuna, áður en barnið skaðar sig og sprengir sjálft sig í loft upp?” Það er athyglisvert, að þessum ágæta vísindamanni er það ljóst, að vísindin ein duga ekki til að bjarga mannkyninu. Hann segir ekki: Hvernig geta vísindin stöðv að ógæfuna? Hann spyr: Hvernig ætla trúarbrögðin að fara að því? Hér kveður því við annan tón en áður. Þessi gáfaði vísinda- maður skiliír, að til þess að stöðva ógæfuna þarf fyrst og fremst trúarbrögð, religion, því að það, sem maðurinn gerir eða

x

Lögberg

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Lögberg
https://timarit.is/publication/132

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.