Lögberg - 13.12.1945, Side 1

Lögberg - 13.12.1945, Side 1
PHONE 21374 »**ÍSsM .nd íW Complete Cleaning Institution PHONE 21374 \\\UW LoU1'1' ,ð,ere ' A Complete Cleaning Institution 58. ARGANGUR WINNIPEG, FIMTUDAGINN 13. DESEMBER, 1945 NÚMER 50 GUÐMUNDUR DANÍELSSON: Menn — Vér fylktum voru liði, vér hófum mikið stríð. — Vér berjumst fyrir fj-iði og frelsi um alla tíð. 1 morgun var messa sungin, um miðaftan soðið stál. 1 kvöld var svo sprengjan sprungin. Hvar sprakk hún? — I vorri sál! — Vér létum heiminn hverfa í helvítis bál og reyk. Og þú átt öskuna að erfa, ástin mín, grönn og veik. Vit okkar reyndist grunnt — grunnt. Hvað — gráthljóð í bjöllunum? — Látum oss biðja: — Trunt — trunt og tröllin í fjöllunum! — Réttarhöldin í Nurenberg Tiltölulega fáyrtar fréttir hafa fram að þessu borist af réttar- höldunum yfir Nazista foringj- unum þýzku í Nurenberg. er Mr. Jackson, dómari í hæztarétti Bandaríkjanna hefir með hönd- um. Eins og þegar er vitað, telja allir sakborningarnir sig, tuttugu og tveir að tölu, hreina og sak- lausa engla, er ekkert annað hafi áðhafst en það, sem skyldan við föðurlandið bauð. í fyrradag voru sýndar kvik- myndir af þessum legátum í saln- um þar, sem réttarhöldin fóru fram, að flestum þeirra viðstödd- um; sáust þeir á myndunum í glæsilegum einkennisbúningum. Einhvern veginn fór það svo, að Hermann Goering virtist ekki allskostar ánægður með útlit sitt á myndinni; rak hann þá upp kaldhæðnishlátur, og komst svo að orði: “Þið hefðuð átt að sjá mig í allri minni raunverulegu dýrð á hátindi frægðar minnar 1939.” Ekki alt með feldu Á nýafstöðn^ín C.C.F. fundi í Winnipeg, var S. J. Farmer end- urkosinn foringi og framsögu- maður flokks síns í fylkisþing- inu í Manitoba; þetta var í eðli sínu sjálfsagt, þar sem hann hef- ir nú um langt skeið haft flokks- forustuna á hendi, en þrátt fyr- ir þetta, sýnist enn ekki alt með feldu í herbúðum C.C.F.-liða. Berry Richards, sá, er endurkos- inn var í Pas-kjördæmi sem ó- háður C.C.F. stuðningsmaður, var nú þveginn af allri synd, og formlega tekinn inn í flokkinn á ný. En öðru máli var að gegna með Dr. Johnson frá Brandon, sem ekki náði kosningu; hann fann ekki neina náð í augum flokksbræðra sinna, heldur verð- ur framvegis í pólitískum skiln- ingi, að liggja úti á klakanum; nú hafa þessir tveir menn gefið út í sameiningu yfirlýsingu þess efnis, að þeir séu enn óánægðir með margt í orðum og athöfn- um C.C.F. höfðingjanna, svo sem hina þrálátu andúð þeirra gegn rússnesku ráðstjrnarríkj- unum. Valdimar Björnsson sjóliðsforingi komion hingað Valdimar Björnsson sjóliðs- foringi er kominn hingað til bæj- arins og mun dvelja hér á landi um hríð. Þegar hann fór vestur í frí í sumar, fréttist, að hann myndi verða sendur til Norður- landa, en einhver töf verður á því, að hann fari þangað og mun hann taka við hinum fýrri blaða- fulltrúastörfum sínum hér á landi. Hinir fjölmörgu vinir og kunn- ingjar Valdimars hér á landi munu fagna því, að fá tækifæri til að sjá hann aftur. —Mbl. 20. okt. KAUPA FISK A SPÁNI Bretar hafa ákveðið að kaupa næstum alla fiskframleiðslu Spénar. Er hér aðallega um sardínur að ræða, og eru farmar af þeim á leiðinni til Bretlands. Ráðherrafundur Svo hefir skipast til að utan- ríkisráðherrar Bretlands, Rúss- lands og Bandaríkjanna, eigi með sér fund í Moskva, er hefjist þann 15. yfirstandandi mánaðar; megin verkefni fundarins er sagt að vera það, að taka ákvarð- anir varðandi atómsprengjuna, og reyna að útiloka þann háska sem notkun hennar óhjákvæmi- lega yrði samfara í þeim styrj- öldum sem háðar kynnu að verða í framtíðinni. Bretland, Canada og Banda- ríkin, hafa eins og vitað er, rætt þetta mikla vandamál á fundi í Washington, sem haldinn var 1 nóvembermánuði síðastliðnum, og varð sú skoðun þar ríkjandi, að hinn “óttalegi leyndardómur” atómsprengjunnar hlyti í eðli sínu að verða sameign allra sam- einuðu þjóðanna, og undir eftir- liti hins væntanlega, nýja þjóða- bandalags. Ganga má út frá því sem gefnu að fleiri mál en það, sem að atómsprengjunni lýtur, verði tekin til yfirvegunar á á- minstum fundi fulltrúa hinna þriggja stórvelda. Sendiuefnd Frá Ottawa hafa nýverið borist þær fregnir, að sambandsstjórn hafi ákveðið að senda nefnd manna til London upp úr hátjíð- unum með það fyrir augum, að hefja á ný við brezk stjórnar- völd málaleitanir um verzlunar- samninga milli Canada og Bret- lands, og reyna að koma því til leiðar, að brezka stjórnin hætti við það auglýsta áform sitt, að takmarka til muna vörukaup héðan úr landi. VAKAÐ YFIR VELLI i. Austrið roðnar, geislaglæður gulli skýrri fylla skörð; fuglar hefja söngva sína silfurdaggir blika á jörð. Tekur á rás um haga hjörðin, hesturinn í túnfót stelst, undir vesturhliðar lxamri hnípinn óttaskuggi felst. Yfir bæ sem bœn til himins blárra reykja strókur hefst. Húsfreyjan er árla uppi, ýmsra starfa skyldan krefst, Lífið vaknar úti og inni, önnin grípur hverja hönd, þegar yfir austurfjöllin ársól gullin lyftir rönd. II. Fyrir nyrzta nesi dýfir náttsól roðin brún í sœ; skín af fegurð fjallahringur, friður er yfir hverjum bæ, sefur undir örmum fjalla unaðssæl hin forna bygð, út að sól x geislagára glitrar unnin fagurskygð. Ár og síð í faðmlög falla fyrir utan Skagatá léttar slwður Ijósrar þoku leggjast yfir athöfn þá. Vökusveinn á velli hvikur vætir silfur döggvum fót, brott úr auga strýkur stýru, starir degi og framtíð mót. P. Guðmundsson. Horfinn heim ymm —— f--—r—rr......"""imiiqp Guðmundur Daníelsson Rétt áður en Guðmundur skáld Daníelsson frá Guttormshaga steig á skipsfjöl í -Halifax á leið til fósturjarðar sinnar, skrifaði hann ritstjóra þessa blaðs, og sendi honum þrjú nýsamin kvæði, og skal slíkt að makleik- um þakkað. Guðmundur Daníelsson er eigi aðeins merkur skáldsagna höf- undur; hann er líka frumlegt ljóðskáld, eins og kvæði hans, þau, er Lögberg hefir birt, bera svo ljóst vitni um; kvæði hans, mörg hver, eru djúpúðug og blóðrík; hann fer ekki troðnar almenningsgötur, hann siglir sinn eigin sjó, og hefir í ýmiss- um tilfellum skapað alveg nýtt ljóðform; með þessu hefir hann stækkað landnám íslenzkrar ljóðagerðar. í áminstu bréfi til ritstjóra Lögbergs, hét Guðmundur skáld blaðinu því, að senda því öðru hvoru fréttapistla að heiman, og má nærri geta hvort slíkt ve+Si eigi lesendum til drjúgs fagnað- arauka. Lögberg árnar skáldinu góðs brautargengis og heillar heim- komu. Aðalfundur félags Vestur-lslendinga Aðalfundur Vestur-íslendinga- félagsins í Reykjavík var hald- inn í gærkveldi. — í stjórn voru kosnir: Hálfdán Eiríksson, form., Þór- arinn Gr. Víkingur, ritari, Guðni Sigurðsson, gjaldkeri. — Vara- formaður sr. Jakob Jónsson. Staddur var á fundinum Emil Guðmundsson frá Lundar, Mani- toba. Verður hann nemandi í guðfræðideild Háskólans í vet- ur. Bauð biskupinn þenna nýja guðfræðinema velkominn til náms og dvalar hér. — Þá mint- ist sr. Jakob Jónsson með mjög hlýjum orðum, vestur-íslenzka skáldsins hr. Magnúsar Bjarna- sonar og konu hans, er nú eru nýlátin, og bað alla að heiðra minningu þeirra merkishjóna með því að rísa úr sætum. Fél. bárust kveðjur vestan um haf frá Ragnari H. Ragnar, Gretti Ásmundssyni og Ásmundi P. Jóhannssyni. Fundurinn var fjölmennur og ánægjulegur og mikill starfs- hugur og bjartsýni ríkti meðal félagsmanna. —Morgunbl. 26. okt. Vilja fá meira Eftir alllangt þóf milli ame- rískra og brezkra stjórnarvalda, varð það að ráði, að Bandaríkja- stjórn lánaði Bretum 4 biljónir dollara. Mörg brezk blöð eru ó- flnægð með upphæðina, og krefj- ast þess að fá meira, jafnvel miklu meira. Bandaríkin segjast hafa meira en nóg með peninga sína að gera heimafyrir. 0r borg og bygð í fyrri viku voru staddir hér í borginni frá Islandi, þeir Jó- hannes Snorrason flugmáður og Gunnar Jónsson flugvélavirki; komu þeir hingað til lands til þess að festa kaup í tveimur tuttugu og tveggja farþega Catalína-flugvélum fyrir Flug- félag íslands. Jóhannes er fyrsti íslenzki flugmaðurinn að heim- an, er lauk prófi við flugskóla Konnie Jóhannessonar; hann er kvæntur vestur-íslenzkri konu, Alice Halldórsson frá Riverton, og skrapp þangað norður í heim- sókn til tengdaforeldra sinna, þeirra Mr. og Mrs. Herbert Hall- dórsson. Þeir Jóhannes og Gunnar fóru héðan á sunnudagskvöldið á leið til Islands, og mun sá fyrnefndi væntanlegur hingað síðari hluta næsta mánaðar til að sækja aðra hinna nýkeyptu flugvéla. ' + Samkvæmi fyrir heimkomna hermgnn Jón Sigurðsson félagið með aðstoð Icelandic Canadian Club er að stofna til gleðimóts til þess að bjóða velkomna heim úr her- þjónustu alla þá, sem af íslenzku bergi eru brotnir. Samkvæmið fer fram í Marlborough Hotel 15 janúar n.k. Fyrst verður kveldverður og svo dans og spil á eftir. Félögin biðja aðstandendur allra, sem hafa verið í herþjón- ustu og búast við að verða stadd- ir í Winnipeg þetta áminsta kvöld, að senda nöfn þeirra og núverandi heimilisfang til Mrs. J. B. Skaptason, 378 Maryland St., fyrir desember lok, svo tími gefist til þess að senda þeim boðsbréf og fá svar í tæka tíð. Það er mjög áríðandi að fólk verði við þessari bón sem fyrst svo unt sé að gera unga fólkinu okkar heimkomuna ánægjulega með öllu móti. + Ritstjóra Lögbergs barst síðast- liðinn mánudag bréf frá upplýs- ingastjóra Reconstruction ráðu- neytinu í Ottawa, þar sem hon- um var boðið að koma til Ottawa og sitja þar blaðamannafund undir forustu vara-ráðherra á- minstrar stjórnardeildar, og hlýða á ýmissa forvígismenn canadisku þjflðarinnar, sem ný- komnir eru úr Norðurálfuferð, og frá mörgu hafa að segja varð- andi ástandið í Þýzkalandi, Belgíu, Hollandi og víðar. Fund- urirtn verður á föstudaginn, en vegna anna við undirbúning jólablaðsins, treystist ritstjórinn ekki til að taka þessu virðulega boði. J * Ræðismannsskrifstofunni hef- ir borist bréf frá utanríkisráðu- neyti íslands þar sem skýrt er frá því, að við skifti á dánarbúi Oddnýjar S. Sverrisson hafi Sara Þórðardóttir, sem mun vera bú- sett í Ameríku, og Anna Þórð- ardóttir, sem er dáin, en var bú- sett í Winnipeg, hlotið arf. Er ræðismannsskrifstofan beðin að leita upplýsinga um heimilisföng Söru Þórðardóttur og barna önnu Þórðardóttur, svo hægt sé að greiða þeim arfshluti þeirra. Er því ofangreint fólk beðið að snúa sér til ræðismanns Islands í Winnipeg, Grettis L. Johann- son, 910 Palmerston Avenue. Ræðismannsskrifstofa íslands í Winnipeg. Söngvari að kveðja Birgir Halldórsson Birgir Halldórsson, sem hér hefir dvalið í sumar og ferðast all- víða um land og efnt til söng- skemmtana, er senn á förum. Mun hann halda kveðjuhljóm- leika í Gamla Bíó í kvöld. Birgir hefir áður haldið tvær söngskemmtanir hér í Reykja- vík, og á ferðalagi sínu um land- ið söng hann einnig við hina á- gætustu aðsókn. Meðal annars skrifuðu tónskáldin Björgvin Guðmundsson og Áskell Snorra- son um hann í Akureyrarblöðin og báru mikið lof á frammistöðu hans. Birgir hefir stundað söngnám í New York í hálft þriðja ár. Gat hann sér fljótlega góðan orðstír meðal kennara sinna, og í þennan skóla ætlar hann til framhaldsnáms er hann kemur vestu'r. Jlafnlframt námi sínu gerir hann sér vonir um að fá starf við útvarpsstöð í New York — verða þar fastur söngv- ari. Hefir Birgir oft komið fram opinberlega, meðal annars í óuerettunni “Oklahoma,” er synd var í New York átta sinnum í viku í tvö ár, og þar áður í óperettu, sem nefnist “Vaga- bond King.” Á ferð sinni um Vestur- og Norðurland söng Birgir meðal annars lög eftir vestur-íslenzka tónskáldið Steingrím Hall. En á söngskránni í kvöld eru ein- göngu lög, sem hann hefir eigi sungið áður í íslandsferð sinni. Þar á meðal eru þýzk og frönsk lög og ný lög eftir Helga Pálsson, Björgvin Guðmundsson og Hall- grím Helgason. Við erlendu lög- in öll eru íslenzkir textar. Tónlistarfélagið hefir gert ítrekaðar tilraunir til þess að fá Birgir til þess að syngja og leika í óperettu þeirri, sem það hyggst að sýna í Reykjavík í vetur. En söngvarinn hefir ekki fengizt til þess að fresta vesturför sinni. Hins vegar ráðgerir hann að koma aftur heim til gamla landsins þegar betur hentar hon- um og eiga hér þá lengri dvöl. Hafa honum líkað mætavel kynn- in af löndunum hérna megin At- lantshafsins og vill gjarna, að þau geti orðið meiri. Birgir Halldórsson er Reyk- víkingur að uppruna, en fór átta ára gamall vestur um haf með móður sinni. Dvaldi hann síðan í Kanada, unz hann hóf söng- nám sitt í New York fyrir þrem árum. Tíminn, 15. okt. Að veigum í gær varð eg aftur ungur, fann eldinn læsast um blóð, hjarta mitt hrifið af gleði og huga minn upprisuljóð. Veigarnar gneistuðu og glumdu og glóðin um æðarnar rann; hver vöðvi varð æsku-efldur og áhuginn forni brann. Og drottinn frestaði dómum, og dauðinn slíðraði Ijá. Hvað munar drottinn um daginn og dauðann um fölnandi strá? P. G. 1'iiwSwiÍY/ IVVftvivfliWiwMMSrfSéMnihiSvfavftV/' wwwwwmwmmm"

x

Lögberg

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Lögberg
https://timarit.is/publication/132

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.