Lögberg - 13.12.1945, Síða 6

Lögberg - 13.12.1945, Síða 6
4 LÖGBERG, FIMTUDAGINN 13. DESEMBER, 1945 lögberg QeflC út hvern fimtudag aí THE COLUMBIA PRESS, LIMITED 695 Sargent Ave., Winnipeg, Manitoba Utanáakrlft ritstjórana: EDITOR LÖGBERG, 695 Sargent Ave., Winnipeg, Man. Editor: EINAR P. JÓNSSON Verð $3.00 um árið — Borgist fyrirfram The "Lögberg” is printed and published by The Columbia Press, Limited, 695 Sargent Avenue Winnipeg, Manitoba PHONE 21 804 ---------<f llllllllllllllllllll!llllll!lllllllllllllll!lllll!!!l!!!llllll{|||ll!llllllllllllll!!!llllll!lllllllllllll!llllllll!!!!!lll!lllllllllllllllllllllll!llllll!!lllllllllllllllllllll!llinitl Ur ríki bókmenntanna wniiiii!iniiinou:miiiin)mii!!iíH;"i!'''iioiii'i!ii!iiiiiiin{Miii'ii'':ii!ii!miiini'i[i[r!Hf|ii!ir"i!in;!iiiiinnm]mnin!i]ii)iiniii!iwmniiimiiitBni I. Sveinn E. Björnsson: Á heiðarbrún, kvæði, Viking Press Limited, 1945. Það er nú liðinn rúmur aldarfjórðungur síðan Sveinn E. Björnsson læknir frá Hróalds- stöðum í Vopnafirði, kvaddi sér ljóðs á vett- vangi vestur-íslenzkra skálda; hann fór hóf- lega af stað, og kvæði hans iétu ekki mikið yfir sér; franpan af veittist höfundi harla torsótt að yrkja; fyrstu kvæði hans voru fremur stirð, og skorti til muna þá kliðmýkt, er hin síðari kvæði hans búa yfir í allverulegum mæli. Þetta er fyrsta heildarsafnið af kvæðum Sveins læknis, og bókin einkum sérstæð vegna þess, hve mikið hún hefir að geyma af tækifæris kvæðum, en þau eru þar í miklum meiri hluta; mörg þessara kvæða eru vel gerð og drengileg, þótt af beri “Föðurminning,” eða ljóðið sem helgað er minningu • föður skáldsins, Eiríks Björnssonar, og mun það, að öllu athuguðu, vera bezta kvæðið í bókinni, en tvö fyrstu erindin eru á þessa leið: Varst þú vorbarni vegarstjarna. Leiddir þú löngum lítilmagna. Grandvar þú gekkst á guðsvegum, í orði og athöfn, ást og trú. Hljóð er nú þín hvíla sem heilög jörð. Hnígur sviphrein sól um sumarkveld. Vakna vafurlogar um vesturhvel; Koss Kveldröðuls: Hann er kveðja þín. í undirvitund Sveins skálds ómar viðkvæmur strengur sanneinlægrar trúar og kemur þetta glögt fram í þeim ljóðum sem hann kveður um jólin. í Jólavísum, bls. 67, er meðal annars þetta erindi: Og eitt er víst, þó ár í höfin renni og eldar grandi vorri frjóu jörð. Þó eignir manna og bygðir allar brenni á bænalífið sína þakkargjörð. Annað kvæði, helgað jólunum, bls. 72, er sviphreint. og frumlega orkt; í því eru eftir greind erindi: Sjá snjókornin falla í foldarskaut! Þau fjúka um stundar bil. Þannig er æfin sem augnablik í aldanna djúpa hyl. En augnablikið á útsýn þá, sem öldunum stærri var. og snjókornsins máttur ei fyrirferst þó fjöllin sigi í mar. Aí brimróti aldanna sviphrein sól nú svífur um dapran hug er ylríkir geislar frá geimsins hæð grípa sitt vængjaflug. Þótt ísköld sé foldin og fenni í skjól er fögnuður inst í sál, því konungur lífsins kennir þar um kærleik og friðarmál. Sveinn skáld er sterk-norrænn í anda; hann ber djúpa lotningu fyrir íslenzkum menn- ingarerfðum, og ann Islandi hugástum; kemur þetta víða fram í ljóðum hans á fagurlegan hátt; má í rauninni svo segja, að ástin til ís- lands sé tvinnuð inn í skapgerð hans; enda benda mörg kvæðin ljóslega til þess, hve tíð- . hugsað honum verður heim; og heim ætti hann að fara, þó ekki væri nema snögga ferð; það mundi afla honum fjölbreyttari yrkisefna. Talsvert er í bók þessari af smellnum lausa- vísum, og nægir í því efni, að benda á eftirfar- andi vísu, bls. 81: Fyrir gjafir gleymskunnar góða stjórn má prísa, er upp úr hafi heimskunnar hundaþúfur rísa. í kvæðinu Island, bls. 7, farast skáldinu þannig orð: Fjarst í austri er þín mæra mynd, er miðnætursól um fjallatind vefur þig ástarörmum. Eilífðin sjálf þar á sinn draum, er opnast þín blóm við ljóssins straum með krystalla tár á hvörmum. Naumast verður sagt, að í áminstri bók Sveins læknis, sé margt um veruleg tilþrifa- kvæði; en engu að síður er innan spjalda henn- ar að finna all mörg fáguð og ljóðræn kvæði, sem búa yfir drengilegum og fögrum hugsunum, er minna á Ijóðlínur Guttorms um Káinn: “Það er merkur, mætur heill maður á bak við kvæðin.” Um ytri frágang bókarinnar má ekki tæp- ara standa, að hann geti talist samboðinn ljóð- unum; og þótt pappírinn sé viðimandi, þá er innhefting slík, að naumast er unnt að blaða í bókinni nema einu sinni, án þess hún gliðni öll í sundur; óþarflega mikið er af prentvillum í bók þessari, og það sumum meinlegum, svo sem í vísunni “Undir áhrifum.” En þar verður fyrir lesendunum meinleg hornskekkja: • “Ef þú hefðir sjálfa sjón ég held þú gætir staðið.” Fyrri ljóðlínan á auðsæilega að vera: “Ef þú hefðir hálfa sjón,” o.s.fr. Ágæt mynd af höfundi fylgir bókinni. Áminst ljóðabók er 231 blaðsíða að stærð, að meðtöldu efnisyfirliti; hún kostar í kápu $2.50, og fæst á skrifstofu Viking Press Ltd., Sargent og Banning, eða í Björnsson’s Book- store, 702 Sargent Avenue.— II. HELGI P. BRIEM: Iceland and the Icelanders. Litmyndir eftir Vigfús Sigurgeirsson. Útgefandi John Francis McKenna Company, Maplewood, New Jersey. Með samningu þessarar bókar hefir Dr. Helgi P. Breim unnið hið þarfasta þjóðræknis- verk, því naumast getur betri þjóðrækni en þá, að fræða erlendar þjóðir um ísland, þjóðina, sem landið byggir og þau menningarlegu sér- kenni, sem með henni hafa skapast frá önd- verðri landnámstíð. Bók þessi, sem er 96 blað- síður að stærð í stóru broti, prentuð með stóru og glæsilegu letri, og skreytt fjölda óvenjufag- urra litmynda af landslagi og sögustöðum, hefir til brunns að bera glögt, en samanþjappað menn- ingarsögulegt yfirlit yfir þróun íslenzku þjóðar- innar frá fornri tíð til vorra daga; en þótt víða sé, vegna takmarkaðs rúms í ekki stærri bók, að- eins stiklað á steinum, sýnist þetta hvergi koma að sök, né trufla samhengið, þó æskilegt hefði verið, að bókmenntum þjóðarinnar hefði verið gerð nokkru ítarlegri skil; á hinn bóginn skal það þó að verðugu metið hve drepið er á margt í andlegu og efnahagslegu lífi Islendinga, er skjótt nær föstum tökum á lesandanum; upp- runa þjóðarihnar er skilmerkilega lýst, sem og atvinnuháttum, hennar, vísindaiðkunum, mál- aralist og söngmennt, ásamt nokkrum dráttum, er að bókmentunum lúta, bæði að fornu og nýju; alt er þetta íslendingum sjálfum kunnugt, enda er bókin auðsjáanlega, einkum og sér í lagi, ætluð enskumælandi lýð til lesturs, og á þeim vettvangi myndi hún koma að ómetanlegu gagni, fengi hún verskuldaða útbreiðslu; en nú vill svo illa til, að slíks er naumast að vænta, að minsta kosti ekki fyrst um sinr), vegna þess, að því er höfundinum segist frá í bréfi til ritstjóra Lögbergs, að íslenzku bókaverzlanirnar keyptu allt upplagið, að frátöldum þeim eintökum, er hann sendi vinum sínum í jólagjöf; vonandi verður þess ekki langt að bíða, að þessi gagn- merka bók verði endurprentuð, og komi að þeim notum, sem henni frá hendi höfundarins voru ætluð; hún myndi verða æskulýð vorum í þessu landi kærkomin, og vekja hann til með- vitundar um uppruna sinn og ætt, en slíks var jafnan full þörf, auk þess sem eldra fólkið myndi jafnframt njóta ánægju af því, að hvíla hugann við línur og liti þeirra fögru mynda af af ættjörð þess, er bókina prýða; þær eru marg- ar af þeim stöðum, sem það elskaði. Að bók þessari er íslenzku þjóðinni mikill menningargróði, og hún stendur í stórri þakkar- skuld við Dr. Helga fyrir að hafa búið hana svona vel úr garði. ÁGÚST G. POLSON MINNINGARORÐ Á uppvaxtarárum mínum í Winnipeg, veitti eg eftirtekt ung- um manni, sem mér fanst óvana- lega nettur í allri framkomu. Hann var svo einstaklega smekk- lega og fallega búinn, og yfir höfuð var öll hans persóna að- laðandi. Á þessum fyrstu árum kyntist eg honum ekki persónu- lega, en eg vissi hver hann var og man vel eftir föður hans. Þessi ungi maður var Ágúst Polson. Seinna lágu leiðir okkar saman á Gimli, þegar eg var þar prest- ur. Ágúst var fæddur í Austur- görðum í Þingeyjarsýslu, 29. dag júní-mánaðar, árið 1855. For- eldrar hans vpru þau hjónin Gunnar Pálsson og Jóhanna Ingjaldsdóttir prests Reykjalín. Bræður Gunnars voru: Jóhann, faðir Páls Jóhannssonar (Col. Paul Johnson), sem um eitt skeið var þingmaður í Norður-Dakota. Jón, faðir Sigríðar heitinn- ar, konu Þorsteins Thórarinsson- ar, er lengi var verzlunarmaður í Winnipeg; Guðmundur, og Sig- mundur á Ljósastöðum í Skaga- firði; Margrét í Austara-Landi í Þingeyjarsýslu var systir þeirra. Móðir Jóhönnu var Helga, al- systir Erlendar Gottskálkssonar í Garði í Kelduhverfi, er var faðir Jóns Eldons, sem um tíma var ritstjóri Heimskringlu í Win- nipeg. Ágúst ólst upp með foreldr- um sínum. Árið 1879 flutti fjöl- skyldan vestur um haf, tók sér bólfestu í Nýja Islandi, settist að á landi, sem nefnt var Brautar- holt í svonefndri Víðinesbygð, ekki langt frá þar sem nú er Husavick pósthús og-járnbraut- arstöð. Um veturinn naut hann kenslu hjá frú Láru, konu séra Jóns Bjarnasonar, sem þá var prestur í Nýja íslandi og átti heima á Gimli. Næsta vor var Ágúst fermdur af honum. Seinna þetta sama vor, fluttu hjónin og börnin til Winnipeg og þar var heimili þeirra mörg ár. Fljótt fór Ágúst að vinna. Fyrsta sumarið í Winnipeg, og tvö næstu sumrin, vann hann á gufuskip- um, sem gengu eftir Rauðá. Hvar var þá tækifæri til ment- unar fyrir þessa íslenzku ungl- inga? Allir voru fátækir, og drengir og stúlkur urðu að fará í vinnu eins fljótt og auðið var. Það er þessum fyrstu íslending- um í Manitoba til heiðurs, að þeir höfðu sjálfir samtök með það, að veita börnum tilsögn. Þetta var tilfellið bæði í Nýja ís- landi og í Winnipeg. Til þess að hjálpa unglingum þeim, sem ekki áttu kost á að njóta alþýðuskól- anna, stofnuðu íslendingar í Winnipeg námsskeið nokkurn tíma vetrarins. Sumir þeirra, er kendu í þessum skóla voru: Magnús Paulson; Stefán Paulson, er síðar fór til Chicago; Guð- mundur (Björnsson) Anderson, er síðar fór til Vancouver; Christian Johnson frá Héðins- höfða og fleiri. Ágúst færði sér vel í nyt þá tilsögn, sem þessi skóli veitti, enda mun það satt, að alla sína æfi var hann að læra. Eftir að Ágúst hætti þessari sumarvinnu á skipum, fékk hann búðarvinnu. Var hann við þess háttar starf mörg ár. Þrjú ár vann hann hjá Sanderson nokkr- um, er sá um og seldi það sem þurfti til að mála og pappíra hús; 4 ár hjá Jobin & Marrin, er starfræktu matvöruverzlun; 11 ár hjá öðrum matsala, C. D. Anderson; og ’ý ár hjá Robert Wyatt, járnvörukaupm. Vetur- inn ý885-86 veiktist faðir Ágústs, og fékk hann aldrei fulla heilsu eftir það. Varð Ágúst þá fyrir- vinna heimilisins, en á þvf voru þá, auk foreldra Ágústs og hans sjálfs, Snæbjörn, yngsti bróðir hans og 7 ára gömul stúlka, Fjóla, dóttir Pálínu systur hans. Er hún var fullorðin, giftist hún Sæmundi Sæmundssyni. Þegar Ágúst var rétt að segja 23 ára gamall, hinn 3. dag júní- mánaðar, árið 1888, giftist hann Elísabetu Þuríði Gísladóttur. Var hún dóttir Gísla Konráðs Eiríks- sonar og Elísabetar Þuríðar Jóns- dóttur. Séra Jón Bjarnason fram- kvæmdi hjónavígsluna. Tóku ungu hjónin að sér heimili það, sem Ágúst hafði séð um. Héldu þau áfram að vera í Winnipeg til ársins 1901. 1 Nýja íslandi bjuggu þau frá 1901 til 1919. Nokkurn hluta þess tíma bjuggu þau á landi skamt fyrir vestan Gimli-bæ; en síðar fluttu þau inn í bæinn. Á þess- um árum vann Mr. Polson hjá ýmsum: J. G. Christie; H. P. Ter^esen, járnvörukaupmanni; Sigiirdson-Thorvaldson, verzlun- armönnum; og Hrólfi Sigurdson, kaupmanni að Árnes, Man. For- eldrar Mr. Polsons héldu áfram að hafa heimili hjá honum og Mrs. Polson, nema það að síð- asta ár æfinnar var faðir hans á heimili í Portage la Prairie, þurfti meiri umönnun en unt var að veita honum heima. Þar andaðist hann árið 1903; en móð- ir hans dó hjá þeim fjórum ár- um síðar. Árið 1919 fluttu þau aftur til Winnipeg. Fékk hann fljótt vinnu hjá Marshall-Wells félag- inu, járnvörukaupmönnum, og vann hann þar þangað til hann var 65 ára. Hafði hann þá náð aldurstakmarki elli-hvíldar, en með aðstoð góðra manna fékk hann að halda áfram vinnu hjá International Laboratories, sem er undir umsjón sama félagsins, og þar vann hann, að heita mátti það sem eftir var æfi. Á þessu Winnipeg tímabili áttu þau 20 ár heima að 118 Emily Street; en það hús var síðasta heimili séra Jóns Bjarnasonar. Þaðan fluttu þau með tengda- syni og dóttur, Paul og Línu Goodman, að 652 Golding St. Þar var síðasta heimili hans. Þau hjónin bjuggu þar við hina beztu aðbúð. “Enginn sonur,” segir Mrs. Polson, “hefði getað verið þeim betri en Mr. Goodman var,” enda hafði allur ástvinahópurinn þeirra hinn sama anda að geyma, og lét þeim í té alla þá hjálpsemi og ástúð, sem unt var að veita. Mikinn hluta æfinnar naut Ágúst góðrar heilsu, enda kom sér það vel fyrir mann, sem var stöðugt í vinnu. Á síðari árum fór nokkuð að bera á hjartabilun, og varð hann því að fara varlega Svo bar slys að hendi. Hinn 29. dag ágústmánaðar í fyrra, 1944, er hann var við vinnu sína hjá Marshall-Wells félaginu, varð hann fyrir því óhappi, “að hurð fauk opin og hitti hann svo ó- þyrmilega að hann kastaðist út af palli, er hann stóð á, og henti honum 5 fet til jarðar. Kom hann svo hart niður, að hann mjaðmarbrotnaði.” Var hann tafarlaust fluttur á almenna sjúkrahúsið í borginni. Var hann þar nokkurn tíma, kom svo heim og var þar tvær vikur, en svo var ekki um neitt annað að gjöra en fara aftur á sjúkrahúsið. Hjúkrun fékk hann ágæta, bæði á sjúkrahúsinu og eins heima. Báðar þær dætur hans, sem eru hjúkrunarkonur, þær Mrs. B. Bjarnarson og Mrs. B. M. Paul- son, tóku þátt í hjúkruninni heima, og allir ástvinirnir, sem áttu þess kost, liðsintu á allan þann hátt, sem unt var. Sömu- leiðis gjörðu læknarnir, sem stunduðu hann, sér far um að veita honum alla þá hjálp, sem varð veitt. Hann var þakklátur fyrir alla hjálp og vinsemd, og glaður í anda, þrátt fyrir það sem hann leið; en að hinu eina dró: hann andaðist laugardag- inn 14. október. • Útförin fór fram miðvikudag- inn 18. okt. og var fjölmenn. Kveðjumálin flutti sóknarprest- ur hans, séra Valdimar J. Ey- lands í Fyrstu lútersku kirkju, en síðasta athöfnin var fram- kvæmd í Brookside-grafreit. Þar hvíla hinar jarðnesku leifar, en andinn hjá Guði, sem gaf hann. Þau hjónin, Ágúst og Elísabet, eignuðust 11 börn 1. Elzt þeirra er Jóhanna, gift Frank Ward; bjuggu þau lengi að Erinview, Man., en eiga nú heim í Winnipeg. Dóttir þeirra, Leona Jean, er gift Bruce Moore, og eiga þau einnig heima í Win- nipeg. Önnur börn Wards-hjón- anna eru Shirley og Archibald Frank. 2. Elísabet Hazeltine er gift Birni Bjarnarsyni, kaupmanni að Langruth, Man. Dóttir þeirra er Inez Bonnie. 3. Archibald Jón Polson, var í fyrra veraldar-stríðinu og dó i sjúkrahúsi á Englandi. 4. Florence Nightingale var gift Birni M. Paulson, lögmanni og sveitarskrifara í Bifröst-sveit, að Árborg, en hann er nýlega dáinn. Dóttir þeirra er Elísabet Ólöf. 5. Margrét er gift Valdimar Bjarnarsyni, bónda og útvegs- manni að Langruth, Man. Börn þeirra eru Isobel June og Valdi- mar Wallace. 6. Agústa Sigríður Björg er gift Dr. John M. Jackson, lækni í Essondale í British Columbia. Sonur þeirra er Robert Wyatt. 7. Robert Wyatt Polson er kvæntur Ólöfu Egilson, og búa þau að Lake Francis, Man., og starfrækja þar verzlun. Sonur þeirra er Robert Ólafur. 8. Drengur, er dó svo ungur, að hann náði ekki skírn. 9. Lína Byron er gift Paul Goodman, í Winnipeg, og hefir (Frh. á bls. 5)

x

Lögberg

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Lögberg
https://timarit.is/publication/132

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.