Lögberg - 07.03.1946, Qupperneq 3
LÖGBERG, FIMTUDAGINiN 7. MARZ, 1946
3
má hins bezta af honum í því
efni bæði um efnisval og allan
frágang. Mrs. P. S. Pálsson hefir
aftur í ár annast söfnun auglýs-
inga í ritið, með miklum dugnaði
og ágætum árangri. Með þakk-
læti skal þess getið, að Þjóð-
ræknisfélagið á Islandi hefir sem
undanfarin ár, pantað 750 ein-
tök ar fitinu til útbýtingar meðal
félagsmanna sinna, og er upplag
þess því aftur með allra stærsta
móti.
Ásamt “Icelandic Canadian
Club” átti félagið einnig hlut að
útgáfu fyrirlestrasafnsins Ice-
land's Thousand Years, er út kom
undir ritstjórn prófessor Skúla
Johnson, og fór ágætlega á þeirri
tilhögun, því að félögin höfðu
átt samvinnu um fræðslunáms-
skeið þar sem fyrirlestrarnir voru
haldnir, og fólk út stjórnarnefnd-
inni flutt marga þeirra. Hefir
erindasafn þetta fengið ágæta
dóma, og er talið hið þarfasta
rit; vil eg því eindregið hvetja
deildir félagsins til þess að stuðla
se mmest að útbreiðslu þess, því
að það á sérstakt erindi til æsku-
lýðs vors.
Þá er nýútkomið 3. bindi Sögu
tslendinga í Vesturheimi eftir
Þorstein Þ. Þorsteinsson, mikið
rit og merkilegt, þrungið að fróð-
leik og vel samið. Vil eg minna
félagsfólk vort og deildir á það,
að rit þetta heldur áfram að koma
út undir nafni félagsins, þó að
sérstök nefnd áhugamanna á út-
gáfunni annist hana að öllu leyti.
Má ekki minna vera, en félag
vort stuðli af frekasta mætti að
útbreiðslu sögunnar, enda var
tilboð nefndar þeirrar, er.stend-
ur straum af útgáfunni, sam-
þykt af stjórnarnefnd vorri með
því skilyrði, að félagið “geri sitt
ítrasta til þess að selja og út-
breiða bókina í samvinnu við
uefndina.”
Agnesar-sjóðurinn.
Eins og þegar er kunnugt, hóf
Þjóðræknisfélagið fyrir stuttu
síðan almenna fjársöfnun í náms-
sjóð til styrktar hinni óvenjulega
gáfuðu listakonu, Agnesi Sig-
urdsson píanó-leikara, til þess að
gera henni fært að stunda fram-
haldsnám í New York. Hafa þeir
vara-forseti, féhirðir og skjala-
vörður þetta mál með höndum af
hálfu félagsins, og hafa undir-
tektir almennings þegar orðið
góðar. Er félagið þakklátt fyrir
það. En betur má þó, ef duga
skal, því að hér er um langt og
kostnaðarsamt nám að ræða. Eigi
getur heldur fegurra eða þarfara
þjóðræknisverk en það, að styðja
þá á framsóknarbrautinni í list
sinni, sem jafn líklegir eru til
þess að auka á hróður vorn og
settþjóðar vorrar eins og þessi
glæsilega listakona er.
önnur mál
Auk milliþinganefnda þeirra,
sem þegar voru taldar, munu
eftirfarandi nefndir leggja fram
skýrslur sínar: minjasafns-nefnd,
tormaður Bergþór E. Johnson;
Leifs Eiríkssonar myndastyttu-
nefnd, formaður Ásmundur P.
Jóhannsson; húsábyggingar-
nefnd, formaður séra Halldór E.
Johnson; og nefnd, er annast
söfnun sögugagna og þjóðlegs
fróðleiks, formaður séra Sigurð-
or Ólafsson. Venju samkvæmt
verða einnig lagðar fram prent-
aðar skýrslur féhirðis, fjármála-
ritara og skjalavarðar, og nægir
að vísa til þeirra um fjármál fé-
iagsins.
Niðurlagsorð.
Á þinginu í fyrra tók eg endur-
kosningu í forsetaembættið fyrir
emdregnar áskoranir úr mörg-
urn áttum, en setti jafnframt það
skilyrði, að eg yrði eigi í kjöri
aftur 1 ár. Sú ákvörðun mín
stendur óbreytt, og biðst eg
einnig undan að taka annað sæti
1 stjórnarnefndinni að þessu
sjnni. Vona eg, að enginn mis-
s hji þá afstöðu mína, því að hún
er hvorki sprottin af minkandi
áhuga á þjóðræknismálunum, né
heldur af vanþakklæti til yðar,
sem hvað eftir annað hafið sýnt
mér traust og sóma. Ein af höfuð
ástæðunum til þessarar ákvörð-
unar minnar er sú, að eg hefi
undanfarin ár, vegna félags-
starfsins, orðið að leggja á hill-
una ritstörf um íslenzk efni, sem
mér ber að vinna, og þá sérstak-
lega að ljúka við að rita minn
hluta af sögu íslenzkra nútíðar-
bókmenta á ensku, sem dr. Stefán
Einarsson og eg erum að vinna
að í sameiningu, en Alþingi ís-
lands hefir veitt fé til útgáfunn-
ar. Væri það því ódrengskapur
að láta það verk lengur óunnið,
að ótöldum mörgum öðrum rit-
störfum, sem eg hefi lofað *-að
vinna á næstunni, svo sem end-
urskoðuð útgáfa af þýðingasafn-
inu Icelandic Lyrics.
Hitt þarf eg vart að taka fram,
að eg er jafn fasttrúaður og eg
hefi altaf verið á nauðsyn og
gildi þjóðræknisstarfsemi vorr-
ar í landi hér og reiðubúinn að
leggja félagi voru og málum þess
lið í ræðu og riti, eða með öðrum
hætti, eftir því sem ástæður mín-
ar leyfa.
Með tilliti til ofangreindrar á-
kvörðunar minnar, vil eg þá
þakka innilega öllum þeim, sem
átt hafa sæti í stjórnarnefndinni
í forsetatíð minni, fyrir ágæta
og ánægjulega samvinnu, enn-
fremur ritstjóra tímarits félags-
ins, forsetum og öðrum embættis-
mönnum deilda þess og sam-
bandsdeilda, ritstjórum vestur-
íslenzku vikublaðanna, sendi-
herra Islands í Washington, aðal-
ræðismanni þess í New York,
ræðismönn muþess í Chicago og
Winnipeg og stjórnarnefnd Þjóð-
ræknisfélagsins á íslandi. Öllum
þessum aðilum á félagið og eg
sem forseti þess undanfarin sex
ár mikla skuld að gjalda. Það á
einnig sérstaklega við um for-
seta íslands, herra Svein Björns-
son, heiðursverndara félags vors,
og ríkisstjórnir íslands á um-
ræddu tímabili sem sýnt hafa
oss frábæra góðvild og mikinn
sóma, svo sem með því að senda
biskup Islands sem fulltrúa á
aldarfjórðungs-afmæli félags
vors og bjóða fulltrúa af vorri
hálfu á lýðveldishátíðina. Loks
þakka eg félagsfólki voru í heild
sinni hjartanlega fyrir alla til-
trúna sem það hefir sýnt mér,
og hin mörgu uppörvunarorð í
bréfum og samtölum, sem verið
hafa mér byr undir vængi í starf-
inu og óræk sönnun þess, hve
málstaður vor á víðtækar og
djúpar rætur í hugum fólks vors.
Þó sjálfsagt sé að horfast hrein-
skilningslega í augu við þá erfið-
leika, sem vér eigum vig að
strída í félagsmálum vorum, og
þar er um margt á brattan ag
sækja, fæ eg eigi annað séð, er
eg lít yfir starfið undanfarin ár
og horfi fram á við, en að þessi
starfsemi geti enn átt langt líf
fyrir höndum, ef að henni er
unnið af einlægni, áhuga, sam-
huga og fornsýni. Það eru hinir
traustu hornsteinar allrar farsæl-
llegrar og varanlegrar félags-
starfsemi.
Hinn mikilhæfi og spakvitri
forseti Bandaríkjanna, Franklin
D. Roosevelt, komst svo að orði í
einni af hinum frægu hvatning-
arræðum sínum til þjóðar sinn-
ar á stríðsárunum, að það eina,
sem menn þyrftu að hræðast væri
óttinn sjálfur. Það er sama hugs-
unin og fram kemur í kvæði hins
snjalla skálds vors Hannesar
Hafstein, sem einnig var bjart-
sýnn og brattsækinn leiðtogi
þjóðar sinnar:
Öllum hafís verri er hjartans ís,
sém heltekur skyldunnar þor.
Ef grípur hann þjóð, þá er, glöt-
unin vís,
þá gagnar ei sól né vor.
Vörumst að láta þann klaka
spenna helgreipar sínar um
hjartarætur vorar, draga oss
kjark úr brjósti og orku úr taug-
um. “Trúin flytur fjöll,” stendur
skrifað. Trúin á málstaðinn flyt-
Gullbrúðkaup
Það var glatt á hjalla á heim-
ili þeirra Thorvaldar og Halldóru
Sveinsson í Hvarfi, í Viðirnes-
bygð, í Nýja Islandi, sunnudag-
inn 20. janúar s.l.
Þrátt fyrir vont veður og ó-
færar brautir þyrptust bygðar-
búar þangað heim, til að minn-
ast 50 ára giftingar afmælis
hjónanna.
Herra Helgi Johnson hafði for-
ustuna á hendi—og óskaði þeim,
fyrir hönd allra bygðarbúa, til
lukku og blessunar á þessum
heiðursdegi þeirra— og þakkaði
þeim samveru liðnu áranna.—
Afhenti hann Gullbrúðkaups-
hjónunum $60.00 í peningum,
gjöf frá bygðarbúum. Notuðu
börn þeirra einnig tækifærið að
minnast ástríkra foreldra, og
gáfu þeim sinn gullhringinn
hvoru.
Svo voru ræður haldnar og
söngvar silngnir. Þessir tóku
til máls: Mr. og Mrs. Skapti
Arason, Þorsteinn Johnson, Arn-
ór Hólm, Andrés og Eddi Thor-
steinsson, Mrs. J. Sigurdsson,
Mrs. Helgi Johnson. Einnig var
lesið frumort kvæði, eftir skáld-
ið Þ. Þ. Þ., ort fyrir tækifærið.
Að lokum báru konur bygðar-
innar fram rausnarlegar veit-
ingar.
Gullbrúðkaupshjónin þökkuðu
fyrir sig, og báðu bygðarfólki
allra heilla.
Héldu svo allir heim til. sín
glaðir og ánægðir.
ur hann fram til sigurs, því að
hún heldur vakandi eldi áhug-
ans. í þeirri trú kveð eg yður
til starfa á þessu 27. þingi Þjóð-
ræknisfélags íslendinga í Vestur-
heimi og bið um líftrú og eld-
móð oss til handa í kröftugum
og tímabærum orðum skáldsins,
sem eg vitnaði til áðan:
Þrengdu þér gegnum lands og
þjóðar lund,
lífga hið veika, efl og bæt hið
sterka,
lát alt sem dáðlaust sefur bregða
blund,
til bjartra, góðra, drengilegra
verka.
Jón Vídalín og Oddur Sigurðsson
Litlir voru þeir vinir Oddur
lögm. Sigurðsson og biskup sem
Þorvaldur Sveinsson og kona
hans Halldóra Albertsdóttir frá
Steinstöðum í Víðirnesbygð hafa
ávaxtað sitt pund með afbrygð-
um vel, þessi 50 ár, sem þau
hafa búið í bygðinni.—
Á tímabili var Thorvaldur að-
al forustumaður í félagsmálum
bygðarinnar. Hann sat í skóla-
ráði og var safnaðarförseti í
mörg ár—Einnig aðal ræðumað-
ur og samkomustjóri.
Hjónaband þeirra Thorvalds
og Halldóru hefir verið og er
fyrirmyndar hjónaband.
Sökum heilsubilunar, gat Hall-
dóra ekki unnið mikið að félags-
málum, en hún skildi fullkom-
lega skyldu kristinnar eigin-
konu og móður. Hún innrætti
börnum sínum sannkristið hug-
arfar og gerði heimilið að sælu-
reit fjölskyldunnar. Svo mikill
kærleikur og • samræmi var á
milli hjónann^, foreldra og barna,
að fá dæmi eru slík.
Börn þeirra Thorvaldar og
Halldóru eru: Elín—Tók kenn-
arapróf og kendi 10 ár víðsvegar
í Manitoba. Gift Kristjáni Sig-
urdssyni, Sandy Hook. Lilja
Valdína—Kendi í Nýja íslandi.
Gift Valdimar Sveinssyni, Camp
Morton. Pétur Skúli — Giftur
Jóhönnu Skaftfeld, Sandy Hook.
Albert Valtýr—Giftur Marin
Stanley, Húsavick. Anna Soffia
—Gift Skafta Anderson, Sandy
Hook. Theodora Thorsteina —
Gift Sigurði Martin, Husavick.
Einar Emil—Ógiftur, heima.
Kunnugur.
sjá má af því, að eitt sumar er
Jón hélt ræðu, að sagt er, á Al-
þingi, vildi Oddur ekki brjóta
svo mikinn odd af oflæti sínu
að hlusta á hann, heldur sendi
þjón sinn, og bað hann segja sér
úr ræðunni. Sú ræða er orðlögð
er hann hélt þá . En er sumum
þótti nóg um, ætluðu þeir að
ganga út. Hafði þá biskup tekið
dæmi að Dathau og þeim félög-
um, og skipaði jörðinni að
svelgja þá óguðlegu, er ekki
eirðu því að heyra orð hans.
Fanst þeim þá jörðin skjálfa
og settust niður. En er ræðunni
var lokið, fór þjónn Odds til
hans féll á kné og las honum ræð-
unna upp úr sér. Þá hafði Oddi
orðið þetta að orði: “Mikill and-
skotans kjaftur er á honum
Jóni.”
GULLBRÚÐKAUPVÍSUR
18. jan., 1896—18. jan., 1946
til Þorvaldar Sveinssonar bónda að Hvarfi í Víðirnesbygð í Nýja
íslandi, og konu hans Halldóru Guðrúnar Albertsdóttur Þiðriks-
sonar frá Steinsstöðum í sömu bygð, frá börnum þeirra hjóna.
Faðir, þakkir þér
þelhlý kveðja ber
fyrir gleði og gæfuarfinn bezta.
Móðir, þökk sé þér,
þú gafst ylinn mér:
Kærleiks andann, konung heimsins mesta.
Hér sveif íslenzk önd
yfir skógarströnd,
Vatnið minti á Skagafjörðinn fríða;
kvað við móðurmál,
minning geymdi sál
milli fjalls og fjöru, dals og hlíða.
Fenna flestra spor,
fyrnist landnámsvor,
ísland vestra gerist grátt í vöngum;
samt er eftir enn
aldnar konur, menn,
sem að dvelja í huga heima löngum.
Ykkar ævistarf
æ skal minna á Hvarf,
unz að gerast glæður landnáms kaldar.
Blessun bjó í hag
brúðkaups langa dag
ristan gullnum rúnum hálfrar aldar.
Ykkur — öllum þeim,
er um Vesturheim
dagsverk hafa heiðri feðra unnið,
þakkar þjóð vor mest
því hún skilur bezt:
gott var band í gömlu plöggin spunnið.
Þ. Þ. Þ.
Business and Professional Cards
DR. A. V. JOHNSON Dentist 506 SOMERSET BUILDING Telephone 97 932 Home Telephone 202 398 DR. A. BLONDAL Physician and Surgeon 602 MEDICAL ARTS BLDG. Slmi 93 996 Heimili: 108 CHATAWAY Slmi 61 023
Talslmi 95 826 Heimilis 53 893 Dr. S. J. Jóhannesson
DR. K. J. AUSTMANN
Sérfrœöingur i augna, eyrna, nef 215 RUBY STREET
og kverka sjúkdómum. 704 McARTHUR BUILDING (Beint suður af Banning)
Cor. Portage & Main Talslmi 30 877
Stofutlmi 4.30 — 6.30 Laugardögum 2 — 4 Viðtalstlmi 3—5 eftir hádegi
DR. ROBERT BLACK
Sérfrœöingur í augna, eyma,
nef og hálssjúkdómum.
416 MEDICAL ARTS BLDG.
Graham and Kennedy St.
Skrifstofusími 93 851
Heimasími 42 154
DR. E. JOHNSON
304 EVELINE STREET
Selkirk. Man.
Office hrs. 2.30—6 p.m.
l*hones: Office 26 — Res. 230
EYOLFSON’S DRUG
PARIv RIVER, N. DAK.
íslcnzkur lyfsali
Fólk getur pantað meðul og
annað með pósti.
Fljót afgreiðsla.
Office Phone Res Phone
94 762 72 409
Dr. L. A. Sigurdson
116 MEDICAL ARTS BLDG.
Office Hours: 4 p.m.—6 p.m.
and by appolntment
A. S. B A R D A L
848 SHERBROOK STREET
Selur líkkistur og annast um út-
farir. Allur fltbúnaður sá bezti.
Ennfremur selur hann ailskonar
minnisvarða og legsteina.
Skrifstofu talsími 27 324
Heimilis talsimi 26 444
Drs. H. R. and H. W.
TWEED
Tannlœknar
406 TORONTO GEN. TRUSTS
BUILDING
Cor. Portage Ave. og Smith St.
PHONE 96 952 WINNIPEG
Haldor Haldorson DR. J. A. HILLSMAN
byggingameistari • Surgeon
Cor. Broadway and Edmonton
Winnipeg, Canada 308 MEDICAL ARTS BLDG
Slmi 93 055 Phone 97 329
INSURE your Property with
HOME SECURITIES
Limited
468 MAIN STREET
Leo E. Johnson, A.I.I.A. Mgr.
Phones: Bus. 23 377 Res. 39 433
Dr. Charles R. Oke
Tannlæknir
For Appointments Phone 94 908
Office Hours 9—6
404 TORONTO GEN. TRUSTS
BUILDING •
283 PORTAGE AVE. '
Winnipeg, Man.
TELEPHONE 94 358
H. J. PALMASON
and Company
Chartered Accountants
1101 McARTHUR BUILDING
Winnipeg, Canada
Phone 49 469
Radio Service Specialists
ELECTRONIC LABS.
H. THORKELSON, Prop.
The most up-to-date Sound
Equipment System.
130 OSBORNE ST., WINNIPEG
G. F. Jonasson, Pres. & Man. Dir.
Keystone Fisheries
Limited
404 SCOTT BLOCK SlMI 95 227
Wholesale Distributors of
FRESH AND FROZEN FISH
Manitoba Fisheries
WINNIPEG, MAN.
T. Bercovitch, framkv.stj.
Verzla 1 heildsölu með nýjan og
frosinn fisk.
303 OWENA STREET
Skrifst.slmi 26 355 Heima 65 462
Legsteinar, sem skara fram úr.
Úrvals blágrýti og Manitoba
marmari.
Skrifiö eftir veröskrá
Gillis Quarries, Limited
1400 SPRUCE ST. SÍMI 28 893
Winnipeg, Man.
J. J. SWANSON & CO.
LIMITED
308 AVENUE BLDG WPG.
Fasteignasalar. Leigja hús. Út-
vega peningalán og eldsábyrgð.
bifreiðaábyrgð, o. s. frv.
PHONE 97 538
Andrews, Andrews,
Thorvaldson and
Eggertson
Lögfrœöingar
209BANK OF NOVA SCOTIA BG.
Portage og Garry St.
Slmi 98 291
Blóm stundvlslega afgreidd
THE ROSERY, LTD.
Stofnað 1905
427 PORTAGE AVE., WINNIPEG
Slmi 97 466
VJ HAGBORG u n FUEL CO. n • Dial 21 331 NaFlí) 21 331 GUNDRY PYMORE Limited British Quality Fish Netting 60 VICTORIA ST., WINNIPEG Phone 98 211 Manager T. R. THORVALDSON Your patronage will be appreciated
Argue Brothers Ltd. Real Estate, Financial, Insurance V CANADIAN FISH PRODUCERS, LTD. J. H. PAOE, Managing Dlrector
LOMBARD BLDG., WINNIPEG Wholesale Distributors of Fresh
J. Davidson, Representative and Frozen Fish.
Phone 97 291 311 CHAMBERS STREET
Office Ph. 26 328 Res. Ph. 73 917