Lögberg - 07.03.1946, Síða 4

Lögberg - 07.03.1946, Síða 4
4 LÖGBERG, FIMTUDAGINN, 7. MARZ, 1946 *---------Hogberg-------------------* Gefið út hvern fimtudag af THE COLUMBIA PRESS, LIMITED 695 Sargent Ave., Winnipeg, Manitoba Utanáskrift ritstjórans: EUITOR LOGBERG 605 Sargent Ave., Winnipeg, Man. Ritstjóri: EINAR P. JÓNSSON Verð $3.00 um árið—Borgist fyrirfram The "Líögberg” is printed and published by The Columbia Press, Limited, 695 Sargent Avei ue, Winnipeg, Manitoba, Canada. PHONE 21 804 Þeir óánægðu Sá órói í mannsáliuni, sem stafar frá umbótaþrá, er sjálfsagður og hollur; hann örvar menn til sterkari átaka og nytjaverka, í stað þeirrar jórturværðar, er heltekur vitundarkerfi hinna, sem sætta sig við Status Quo, eða að alt hjakki í sama farinu. “Það er svo bágt að standa í stað, því mönnunum munar annaðhvort aftur á bak, ellegar nokkuð á leið.” Sumir menn eru óánægðir við alt og alla og hafa alt á hornum sér; séu þeir spurðir hverju slíkt sæti, verður svarið jafnan hikandi og þokukent; það sýn- ist skipta minstu þó menn þessir hafi í rauninni alt, sem hendi þarf til að taka; þeir eru stútfullir af dutlungum og svip- sýru eins fyrir því; þeir úthúða stjórnar- farinu heima fyrir, en lofsyngja eitt- hvert annað stjórnarfar langt í burtu, og sem þeir bera nauðalítið skynbragð á; þeir skilja ekki, eða vilja ekki skilja sérkosti hins brezka stjórnarfars, er skipar virðuleik einstaklingsins í önd- vegi; þeir halda a^ Rússinn sé þess einn megnugur, að skapa himnaríki á þess- ari jörð, og eru þó næsta ófróðir um það, hvernig til hagi þar í landi, sem vonlegt er; þetta er ekki sagt á nokkurn hátt til að draga úr þeim framförum, sem skapast hafa á Rússlandi frá því á tím- um rauðu byltingarinnar, því þær eru gagnmerkar um margt; á hinn bóginn er það sýnt, að um lýðræði í Rússlandi, í sama skilningi og vestrænar þjóðir búa við, er naumast að ræða; þar er í raun- inni einungis einn stjórnmálaflokkur, kommúnistaflokkurinn; og þó kosning- ar fari fram í landinu, eins og nýlega varð raun á, bera þær lýðræðisfyrir- komulaginu slælegt vitni, því þenna eina flokk verða allir að kjósa, er á annað borð leggja það á sig að koma á kjör- stað. Rússland er hernaðareinveldi, þar sem þegnarnir verða að lúta boði og banni eins einasta valdmanns með gaddakylfu í hendi; vera má að þetta eigi við, eða jafnvel fullnægi slafneskri þjóðarsál; en engu að síður er slíkt í beinni mótsögn við lífskoðanir vest- rænna og norrænna manna, er jafnan setja helgi persónuleikans ofar litdaufri _ hópsál. — Einn þeirra manna, er sæti áttu á fundi sameinuðu þjóðanna í London fyrir hönd Canadastjórnar, var Mr. Stanley Knowles, C.C.F. þingmaður fyrir Mið-Winnipeg kjördæmið hið nyrðra; eftir að áminstum fundi var frestað, sennilega fram í maí, brá Mr. Knowles sér til Rússlands til þess að kynnast með eigiir augum lífsvið- horfi rússnesku þjóðarinnar; hann lét vel af ýmsu, er fyrir augu og eyru bar; eftir að Mr. Knowles kom til London úr áminstri Rússlandsför, rekst hann á fréttaritara, Richardson að nafni, er spurði hann hvernig Rússinn, auðsjá- anlega í menningarlegum efnum, mæld- is á móts við Breta og Bandaríkjamenn. Mr. Knowles svaraði á þessa leið: “Rússneska þjóðin stendur okkur enn að baki.” Aldrei hefir Mr. Knowles, svo vitað sé, verið borinn á brýn kali í garð rúss- nesku ráðstjórnarríkjanna. — Þingræðið er fjöregg lýðræðisins; veikist virðing hins fyrnefnda, missa rætur hins síðarnefnda safa sinn. — Naumast verður um það deilt, að í þessu fagra landi, hafi líðan fólks verið betri um allmörg undanfarin ár, en með flestum öðrum þjóðum heims, nema ef vera skyldi á íslandi; óskynsamlegrar og ósanngjarnar óánægju, hefði því í rauninni ekki átt að hafa orðið vart, en þó var þessu ekki að heilsa; þeir óá- nægðu hristu höfuð sín eins fyrir því.— Canadiska þjóðin er eina þjóðin í heimi, sem með viturlegri löggjöf þá er síðasta heimsstyrjöld brauzt út, kom í veg fyrir skaðlega verðþenslu, og skap- aði með því slíkt jafnvægi innan vé- banda þjóðfélagsins, að segja má, að þrátt fyrir hin risafengnu stríðsátök, héldist lifnaðarhættir þjóðarinnar og efnaleg afkoma hennar, að mestu leyti normal. Og hvað var þá óánægjuefnið, er öllu var á botninn hvolft? Minti það ekki á orð skáldsins: “Reykur, bóla, vindaský.”— Öll óánægja verður að grundvallast í styrkum rökum, en ekki á fálmandi sálsýki. Avarp við setningu 27. ársþings Þjóðræknis- félags íslendinga í Vesturheimi, 25. feb. 1946, fluít af sendifulltrúa íslands, Ingólfi lækni Gíslasyni. — Herra forseti, kæru landar— Eg er kominn um langan veg, og það gleður mig að fá tækifæri til að heilsa ykkur, og eg þakka ykkur inni- lega fyrir þann sóma og vináttu, er þið sýnduð okkur hjónunum með því að bjóða okkur á þessa virðulegu sam- komu. Eg freistast til að segja ykkur hvað mér datt í hug áðan þegar forsetinn var að kynna okkur—það var svo sem ekk- ert ljótt; það var ein bænin úr Faðirvor- inu: Leið oss ekki í freistni. Eg hafði altaf farið lauslega yfir þessa bæn, því mér fanst að til slíks mundi alls ekki koma, en ekkert var það annað en góð- semi, kærleikur, og máske glettur skáldaguðsins, sem komu honum til að segja sumt lofið um okkur—lofið, sem hafði ekki nógu trausta undirbyggingu. En eg er ekkert betri; eg freistaðist til að hálf þykja vænt um þetta, og þakka öll hin fögru lofsyrði, þótt sum væru óverðskulduð. En aðallega er eg hingað kominn til þess að flytja ykkur kærar kveðjur og hamingjuóskir að heiman, frá íslandi, frá ríkisstjórninni, frá Þjóðræknisfélagi íslendinga, frá sendiherra íslands í Washington, og frá íslenzku þjóðinni í heild. Mig hafði ekki dreymt um að það ætti fyrir mér að liggja að ferðast um þessar slóðir, en forlögin hafa nú hagað þessu svona. Það gleður okkur mikið, landa ykkar heima, að vita til þess að þið hafið svo öflugan og öruggan áhuga á því að viðhalda þjóðerni og tungu ættjarðarinnar. Ek sagði af ásettu ráði: “Vita til þess,” vegna þess að sundið eða víkin á milli vinanna er svo breið, og sain- göngur lengi vel svo erfiðar, að fæstir okkar gátu litið þessa grein þjóðarmeið- sins og landnám ykkar eigin augum. Mér er í barnsminni frostveturinn mikli á íslandi. Eg var fæddur og uppalinn í litlum sveitabæ í afskektum dal á Norð- urlandi. Það var seinni part þessa vetr- ar, þykk fönn hafði hulið jörðina marga mánuði, það var fóðurskortur fyrir fé- naðinn og eg var að tálga börk af litlum hríslum, sem höggnar höfðu verið þar sem til þeirra náðist í landareigninni. Þennan börk og fínustu greinarnar átti svo að gefa fénu til að seðja hungur þess. Þá komu gestir, náið frændfólk okkar—föðursystir mín, með barnahóp- inn sinn; þau voru að kveðja, því þau ætluðu til Ameríku. Eg fór að gráta, því eg sá eftir þessu vinafólki okkar og leiksystkinum; það lagðist í mig að eg mundi aldrei sjá þau aftur, enda fór það svo. En þegar eg fór að hugsa um það, við hve mikla erfiðleika við áttum að stríða, t.d. hve mér var kalt á fingrun- um við að byrkja ungu fallegu hríslurn- ar, þá fanst mér eðlilegt að þessir vinir mínir flyttu sig þangað sem lífskjörin yrðu máske betri og hægra að vinna sér brauð. Mér varð það brátt ljóst að það var frelsisþráin,, sem olli því að for- feður vorir.fluttu sig til íslands og sett- ust þar að,og að enn var það frelsisþrá- in, sem hvatti til þessa nýja skrefs, var driffjöðrin í þessum nýju fólksflutning- um enn lengra vestur á bóginn, til Vín- lands hins Góða, sem landi okkar Leifur heppni hafði fundið fyrir 900 árum. En raunar var það ekki samskonar frelsi. Höfðingjarnir gömlu flýðu stjórnarfars- legt ófrelsi, en nú var það fátækt fólk— að vísu göfugt og gott en kúgað af als- konar óáran, sem flúði hið efnahagslega ófrelsi — vildi reyna að komast þangað sem það gæti komist úr kröggunum, fengið betra tækifæri til að sjá sér og sínum borgið í lífsbaráttunni, og beitt kröftum sínum haganlegar. Við heyrðum axarhöggin þegar landnemarnir nýju voru að fella stóru trén á bökkum Winnipegvatns, og því miður heyrðum við stundum fyrstu árin lágar stunur og andvörp þegar bólan, aðrir sjúkdómar og erfiðleik- ar mœddu á þessum frænd- um okkar, og við hrygð- umst innilega yfir því, en svo fór smátt og smátt að glaðna yfir okkur þegar góðu fréttirnar fóru að koma, fréttirnar um það að þessi nýja grein fór að blómgast og vekja traust og að- dáun sambýlismannanna í nýja landinu. Þið megið trúa því að við glöddumst innilega yfir hverjum unnum sigri; ef stúdent skaraði framúr í einhverri grein, listamaður fékk góða dóma, stjórnmálamaður varð þingmað- ur eða ráðherra, læknir eða prest- ur unnu stórvirki, bóndi varð sveitarhöfðingi—nei, það er ó- mögulegt að telja upp alla sig- urvinningana, en Fjallkonan er ykkur þakklát fyrir að þið hafið glatt hana og gert henni sóma. Þegar eg hugsa betur um, virð- ist mér fleiri drög hafa legið til vesturflutningsins en fátækt og óblíð veðrátta. Landið heima var fremur hrjóstrugt, íbúarnir höfðu öld eftir öld lifað á jörð- inni án þess að gjalda henni nokkuð teljandi í staðinn—nokk- urskonar rányrkja, eitthvað sem minti á hirðingjalíf. Tæki voru engin til að bæta jörðina, og á- burður mjög af skornum skamti. Með lélegum tækjum varð að reita saman strá og strá út um mýrar og sund, höggva skógana til eldiviðar og jafnvel skepnu- fóðurs, og dreifa búfénaðinum um víðlenda haga til að leita sér fæðu.' Sumum ahafnamönnum fanst því of þröngt um sig, þótt annars -væri vítt til veggja. Þeir vildu fá nýja bújörð og rýma um leið fyrir hinum; þeir vildu komast þangað sem tækni væri á hærra stigi og auðveldara að reka búskap á myndarlegri hátt, rækta jörðina, sá—og uppskera svo samkvæmt því; þeir vildu halda réttlátan rekning við frjó- moldina, vildu fá að halda próf í karlmensku sinni, og til allrar hamingju stóðust þeir prófið og sýndu að íslenzki kynþátturinn stóð ekki öðrum þjóðflokkum að baki. Þið vitið, kæru tilheyrendur, hve við erum fáir og smáir heim- afyrir og skiljið hve eðlilegt það er að okkur þykir vænt um að greinarnar hér í Ameríku sýna svo mikla trygð og áhuga fyrir því að viðhalda sambandinu við stofninn; okkur finst að við vera stærri og sterkari þegar þið eruð með okkur, við metum mikils ritverk ykkar í bundnu og ó- bundnu máli og fögnum því þeg- ar gestir kojna að vestan til að segja fréttir og auka þekkingu og hlýhug. Má í því sambandi geta þess að fulltrúi ykkar á lýð- veldishátíðinni, Dr. Richard Beck, var mikill aufúsu gestur, okkur til gagns og gleði, og ykkur til sóma. Gamla máltækið segir: “Svo fyrnast ástir sem fundir.” Móti slíku verður hægra að ham- la eftir því sem samgöngur batna og nú er sú leið farin á miíli mjalta, sem áður tók 1—2 mán- uði. Má því búast við fjölþættari viðskiftum og meiri samgöngum í framtíðinni. Afar ykkar og ömmur gætu sagt ykkur frá því hve mikilli gleði það olli í sveitabæunum í langa íslenzka dalnum þegar gest bar að garði á kvöldvökunni; stúlkurnar stöðvuðu rokkhjólið, piltarnir lögðu frá sér kambana og sögulesarinn eða kvæðamað- urinn lokaði bókinni, gestinum var fagnað og veittur beini og svo varð hann að svara spurn- ingum, segja fréttir, skila kveðj- um og máske bréfum og blöðum. Þið minnist þess að þá voru engir vegir milli bæja nema troðning- ar eftir hesta, sem voru einu samgöngutækin, sárfáar og smá- ar brýr yfir ár og læki, vagnar voru ekki til, járnbrautarlest hef- ur aldrei sést þar, bíía og flug- vélar hafði engan dreymt um og því síður um síma og útvarp og fréttablöð voru mjög sjald- séð. En nú er öðru máli að gegna, brýr komnar á flestar ár, sæmi- legir vegir hafa verið bygðir um flestar sveitir landsins, er tengja þær saman og svo aukaspottar út frá þeim heim að flestum bæj- unum. Auðvitað er þessum brautum í mörgu ábótavant, en það stendur til bóta og nú þjóta bílarnir eftir aðalvegunum alt sumarið og sumstaðar mikinn part verarins. Sími tengir líka saman sveitirnar og greinar hans ná heim á fjölda bæja. Útvarps- tœki eru komin á flest heimili og svo fá menn vikublöðin og ‘jafnvel dagblöðin með póstinum. Dagblöðin sem koma út í Reykjavík á morgnana eru lesin víða um land á kvöldin þann tíma ársins sem samgöngur eru nokk- urnveginn greiðar, og nú eru flugvélarnar farnar að svífa yfir landið með póst og farþega þegar veður leyfir. Hverjum og ein- um hlýtur að skiljast að allar þessar framkvæmdir og fram- farir hafa valdið stórfeldum breytingum á lifnaðarháttum og líðan manna, ásamt batnandi efnahag, og ekki má gleyma því að tíðarfarið hefur verið að mun mildara, veturnir snjóminni og sumurin stundum sólríkari, síð- asta aldarfjórðunginn, meira að segja talað um að rjúpunni og jafnvel síldinni þyki fullheitt, og þessir dýrmætu og okkur kæru dýraflokkar hvarfli stundum frá þess vegna. Það eru nú liðnir nokkrir ára- tugir síðan íslendingar hættu að mestu að flytja sig búferlum vestur um haf. Þeir sem ekki una sveitalífinu flytja inn í sjáv- arþorpin eða kaupstaðina. 1 þorpunum stunda þeir sjávar- útveg, smá iðnað, verzlun, bíl- keyrslu um þorpið og út um sveitirnar, og reka sumir smábú- skap og jarðrækt sér til hagræðis. 1 Reykjavík eru allar þessar at- vinnugreinar stundaðar nema- búskapurinn. Þar lifir nú rúm- ur þriðjungur þjóðarinnar, eða um 45 þúsundir manna, og það hefur verið svo síðustu árin að höfuðstaðurinn hefur tekið á móti allri fólksfjölguninni, sem orðið hefur í landinur sem sé 15—16 hundruð manns. á ári. Myndast þar því 4—5 hundruð ný heimili árlega. Fólkinu þykja lífsþægindin meiri þar en í sveit- unum—því rafmagnið.unnið úr krafti fossanna, sér fyrir ljósum, suðu, vélarekstri og fjölmörgu öðru—jafnvel hita að nokkru leyti. En heita vatnið úr iðrum jarðar er leitt í stórum pípum til borgarinnar og um hana alla og sér það fyrir upphitun að mestu. Fjöldi þorpa ag sveitabæja njóta nú svipaðra hlunninda, að minsta kosti hvað rafmagnið snertir og notkun heita vatnsins er líka að færast í vöxt bæði til ijpphitunar og svo hefur verið bygður fjöldi gróðurhúsa, sem hituð eru með iveravatni, og eru þar ræktuð alskonar aldini — tomatar, agur- kur, melónur, vínber og jafnvel bananar. Þar að auki ýmiskonar grænmeti og blóm. Þið vitis að landið okkar hefur efnast mikið síðustu árin og má nú heita vel- stœtt. Auðvitað er það áhugamál allra góðra manna að halda nú í horfinu, reyna að ávaxta vel pundið. í því skyni hefur stjórn og þing tekið þá stefnu að kaupa til landsins sem mest af atvinnu- tækjum, svo sem fiskiskipum og landvinnuvélum, t.d. eiga 30 nýj- ir togarar að koma heim í við- bót við flotann á þessu og næsta ári og mikið af mótorskipum er keypt frá Svíþjóð og þó verið að ^míða mörg í landinu. Það lítur því út fyrir að sjávarútvegur- inn aukist mikið á næstunni, og að vélar verði keyptar til að hag- nýta betur allan fiskúrgang svo ekkert spillist. Síldarverksmiðj- ur eru nú orðnar 10 eða 12 og alt- af verið að fjölga þeim, svo ef síldin kemur, sem hún oftast . gerir á sumrin, þá verður nú : farið að taka vel á móti henni. Þetta er alt mikilsvert því að langmestur hluti útflutningsvöru okkar eru sjáfarafurðir. En hitt er ekki síður gleðiefni, ef skrið- ur kemst á landbúnaðinn. Landið er stórt og að mestu óunnið. Móa- og mýraflákar liggja alstaðar og brosa við sólu nákvæmlega eins á sig komnar og þær voru er guð gekk frá þeim í fyrstu, og svo bullar sjóðandi vatn upp úr jörðinni við næsta leiti og freið- andi foss sveiflar sér fram af klettinum uppi í hálsinum og raular sama lagið og hann söng fyrir landnámsmennina í gamla daga. Mýrin heldur að alt sé í lagi því hún þekkir pálinn og rekuna og veit að það eru ekki hættuleg verkfæri, en hugsast getur að henni bregði í brún þegar hún sér stóru Amerísku skurðgröfurnar koma æðandi í hælunum á allskonar dráttarvél- um og plógbáknum, þá getur farið af þeim brosið í svip meðan á operationunum stendur, en svo fara þær vonandi að brosa aftur þegar þær eru grónar sára sinna og skarta með alskonar gróðri. Það gæti líka hugsast að hverum og fossum kæmi það ónotalega þegar þeir verða alt í einu heftir og beislaðir; þá er eg hræddur um að skvaldrið í hverunum og söngur fossins breytist, en við- búið er að þessa verði ekki langt að bíða ef mannafli fæst til fram- kvæmda, en það verður máske hæpið vegna þess hve mikið þarf að byggja af hafnarmannvirkj- um og húsum. Jæja, kæru tilheyrendur, eg má ekki þreyta ykkur, en eitt- hvað varð eg að segja ykkur í fréttum, úr því að eg varð gestur ykkar hér, en svo &r mér ljúft að skila líka bréfum og boðsending- um, sem að eg veit að yður eru kærkomnar: Þið vitið að þjóðræknisfélagið heima hefur allan hug á því að færast í aukana og að landið vill halda sem nánustu sambandi við öll sín börn og barnabörn. Sést það, meðal annars, á því að Rauðikross íslands sendi, strax og stríðinu lauk, duglegan mann suður um alla Evrópu til að ná í og liðsinna fólki, sem af ísl. bergi var brotið. Mér er sagt að þau munu vera færri þorpin og borgirnar hér í Norður-Ameríku, sem ekki hýsa fleira eða færra af löndum okk- ar, meðal annars hafa hermenn- irnir kvongast íslenzkum kon- um og flutt þær og börnin þeirra vestur um haf. Það fer að verða mikið starf fyrir félögin hér og heima að gefa þessu öllu gætur og máske rétta hjálparhönd ef á liggur. Það er stöðug von okkar allra að sambandið milli greinanná, sem vaxið hafa út frá ísl. þjóðar- meiðnum viðhaldist og eflist. Eg óska þessu félagi margra góðra og blessunarríkra lífdaga og bið því, og öilum Vestur-ís- lendingum, allra heilla. Er hún dóttir ykkar búin að læra að tala? Það er nú líklega, nú erum við að reyna að kenna henni að þegja. * Jæja, Kalli minn, hvenær sást þú fyrst dagsins ljós? Fyrir tveim árum. En þú ert þó meira en tveggja ára? Já, en jeg flutti ekki í bæinn fyr en jeg var fimm ára. + Afinn: — Hver er vinsælast- ur af skólabræðrum þínum? Nonni: — Síðasta missiri var það hann Siggi, hann smitaði okkur öll af mislingum. + Góð kona gaf Tomma litla appelsínu. — Hvað segir þú við svona góða konu, sem gefur þjer appelsínu? sagði móðir hans. Tommi: — Skrældu hana.

x

Lögberg

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Lögberg
https://timarit.is/publication/132

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.