Lögberg - 07.03.1946, Side 5

Lögberg - 07.03.1946, Side 5
LÖGBERG, FIMTUDAGINN, 7. MARZ, 1946 v 5 /iliLSAMAL LVCNN/L Ritstjóri: INGIBJÖRG JÓNSSON Þær rauðhærðu eru hættulegar Kleopatra, Elísabet Englands- drottning, Lafði Hamilton, Ma- dame Lupescu, voru allar rauð- hœrðar og Greer Garson er það líka. Rauðhœrðar konur eru ýmist hataðar eða dáðar, eða þá hvorttveggja. — Þær eru hættulegustu kvenmenn í heimi —hvernig stendur á því ? Hafið þér nokkurntíma brotið heilann um þær rauðhærðu? Líklega ekki nema þá að þér séuð rauðhærð sjálf, og hafið reynt að leyna freknunum síðan um fermingu. Á miðöldum var það ekki fá- títt að fólk elti rauðhærðar kon- ur á röndum til þess að láta brenna þær á báli fyrir galdra. Það þykir lýgilegt og villimanns- legt núna, en heimildir eru itil fyrir því, sem ekki verða rengd- ar. Það var gengið á bug við rauðhærð börn, því að sú var trúin að rautt hár væri sönnun þess, að viðkomandi væri í makki við illa anda. Það var því eðli- legt að rauðhærðu veslingarnir yrðu öðruvísi en annað fólk og yrðu ýmist sjálfum sér eða öðr- um til tjóns, ýmist vegna hræðslu eða reiði. Þeir urðu mannfælnir, en það var talið vottur þess, að þeir væru á valdi kölska. Það voru sérstaklega rauð- hærðu stúlkurnar, sem ofsóttar voru. Hvítt hörund og eldrautt hár hefir jafnan valdið athygli og enda aðdáun, en á miðöldunum var aðdáunin oft hatri blandin. Hjátrúin var í algleymingi og fólk trúði á galdranornir. Munk- ar og prestar gerðu ítarlegar lýs- ingar á þeim — það voru losta- fullar konur, mjallhvítar á hör- und með eldrautt hár, er lokkaði til syndar, og þær riðu gand- reið á hrífusköftum á tunglskins- nóttum og áttu mök við djöfulinn og ára hans. Rauðhærðu konurnar voru dregnar út úr híbýlum sínum og leiddar fyrir dómarann. — Með- gaktu ! öskraði fólkið til þeirra. Ef þær gerðu það ekki var þeim slengt á kvalabekkinn, og í pynt- ingunum meðgengu þær oft alt það, sem af þeim var krafist: þær meðgengu að hafa haft sam- band við djöfulinn, dansað trylli- dans á Blokksbjargi eða — gefið króa grannkonunnar eitur. Böð- ullinn rakaði rauða hárið af písl- arvættinum, færði syndaselinn í hrosshársskyrtu og stakk logandi kerti í höndina á konunni, en áhorfendurnir hlógu dátt að þess- ari sýningu. Og svo var haldið með fórnarlambið á bálköstinn. i Nú er öldin önnur ! Á þessari öld verður rauðhærða konan oft umræðuefni! Blaða- maðurinn skrifar ef til vill um hana, að hún hafi fegursta rauða hárið í heimi, og nokkrum vikum seinna þekkir allur heimurinn þessa undursamlegu veru. Sjón- varpsfélögin komast yfir stúlku með fallegt, rautt hár, til þess að sýna í firðsjá. Það er nefnilega enginn litur, sem nýtur sín eins vel í sjónvarpi og rauði liturinn. Og það er eldrauða hárið, eins og h d. á Greer Garson, sem nýtur sm allra bezt. Hár, sem enginn bársnyrtingameistari getur selt. Nú er leitað með logandi ljósi eftir rauðhærðum stúlkum — ®kki til þess að brenna þær á báli eldur til þess að borga þeim of Jar fyrir að sýna sig í kvikmynd- ^alnum. Eldrauða hárið er orð- eftirspurð markaðsvara. 2 % rauðhœrðar. Áhugi vorra tíma fyrir rauða hárinu stafar þannig mest af því að það nýtur sín svo vel í lit- kvikmynduim og fjarsýni. En af því leiðir aftur, að það þykir fínt að vera rauðhærður, og nú grátbæna stúlkur u-m allan heim hárgreiðslustúlku sína um að lita hárið á sér “henna-rautt,” “sól- gullið,” “tizianrautt” eða hvað það nú heitir. Þannig eru þær rauðhærðu eltar á röndum enn í dag, þó að ástæðan sé önnur en á miðöld- unum. Samkvæmt skýrslum fæðast aðeins 2% af mannkyn- inu með eldrautt hár. Það sker úr fjöldanum, en það er ekki hollt. I hænsnahópnum eru þau altaf ofsótt, greyin, sem skera sig úr, og þetta kemur víðar fram. En svo kemur það fyrir, að það sem sker úr vekur hrifn- ingu. Hvað rauðhærðar stúlkur snertir- þá eru þær að jafnaði mjög fallegar eða fremur ljótar. Hörundið venjulega mjög hvítt, en líka oft freknótt, og augun eru fjólublá, vatnsblá eða með grænum blæ. ■* I Erfiðustu eiginkonurnar. Það er almenn trú að rauð- hærðar konur séu öðrum fremur geðvondar, og víst er að sumar þeirra eru það. En geðvonzkan getur leynst undir öllum háralit. Ameríkanskur sálfræðingur hefir fengist við að rannsaka þetta og segir — en það eru aðeins am- erískar konur, sem hann hefir rannsakað — að rauðhærðar kon- ur séu harðgeðja og stefnufastar, og flestar þeirra mjög metorða- gjarnar. Þær hafa verið þess meðvitandi frá baræsku, að vegna háralitarins voru þær öðruvísi en önnur börn. Sumar telpurnar verða erfiðar og stund- um hefnigjarnar, þegar önnur börn erta þær með rauða hárinu. En aðrar eru upp með sér af hár- inu og þykjast færar í allan sjó og þykir mikið til um sjálfar sig. Prófessorinn segir að rauðhærð- ar konur séu mjög erfiðar í hjóna- bandi, og þó sé ekki dekrað eins mikið við neinar og þær. Maður- inn, sem heldur upp á rauða hár- ið, gerir það jafnaðarlega alla sína ævi, hvernig sem veltist. Og rauðhærða konan gerir sér ljóst að hún hefir mikið vald— allar fagrar konur gera það.' Það er aldrei það sama að lita á sér hárið og að hafa fallega rautt hár, því að hið einkennilega að- dráttarafl rauðhærðra kvenna er ekki aðeins háralitnum að þakka heldur öllu fremur harðskeytni og viljaþreki kvennanna, sigur- vissu kveneðli þeirra og bjarg- fastri trú á, að þær hafi alltaf rétt fyrir sér. Svo segir að minsta kosti ameríski prófessorinn. Vinnustúlkan heimsfrœga. Geri maður sér ljóst eðli hinna rauðhærðu þarf engan að undra að ýmsar af frægustu og mest umtöluðu konum veraldarinnar voru úr þeim flokki. Lafði Hamilton er eitt dæmi af mörgum. Æfisaga þessarar ensku vinnustúlku og það, hvern- ig hún varð á fáeinum árum mest umtalaða kona veraldarinnar, er talandi sönnun þeirra undra- verðu áhrifa, sem rauðhærðar konur eru gæddar. Því að lafði Hamilton hafði ekki annað til síns ágætis en undraverða feg- urð og glórautt hár — að við- bættri takmarkalausri metorða- girnd. Hún gat að öðru leyti þakkað mönnunum, sem hún gerði að þrælum sínum, frægð sína. Margir eru þeir, sem í orðum og myndum hafa reynt að endur- spegla fegurð lafði Hamilton. Þegar Goethe fór til ítalíu var eitt erindi hans það að heim- sækja lafði Hamilton. Hann vildi sjá með eigin augum hina undur- fögru konu, sem öll veröldin tal- aði um. Þegar hann hafði séð hana, settist hann við skrifborðið sitt og fór að leita að orðum til að lýsa hinum undraverðu áhrif- um, er hann hafði orðið fyrir. Hinn heimsfrægi enski málari Romney þreyttist aldrei á að lýsa línum þeim og litum, sem hann sá í andliti hennar. Hann bland- aði hvað éftir annað rauðum og gulum litum til að festa á strig- ann, og aftur og aftur reyndi hann að ná lostafullu brosi henn- ar og ljómanum í augum hennar. Hann málaði um 20 myndir af lafði Hamilton. En hver var lafði Hamilton? Hún var lausaleiksbarn og varð vinnustúlka. Um.fermingu þvoði hún gólf og gætti barna á litlu heimili. Tveimur árum síðar skaut henni upp á markaðssýn- ingum. og sýndi sig þar sem “lif- andi styttu.” Ungur aðalsmaður varð hrifinn af þessari undur- fögru stúlku ag varð elskhugi hennar. Og nú fékk hún í fyrsta skifti að klæðast pelli og purp- ura og skreyta sig gimsteinum. Mars og Venus. Ungi maðurinn fékk auðvitað margt illt orð að heyra hjá fjöl- skyldu sinni og loks afréð hann að kynna hana höfuðsmanninum Sir William Hamilton, sem þá var sendiherra Englendinga við hirð konungsins í Neapel. Sir William mundi samþykkja ráða- haginn er hann sæi stúlkuna, og skilja ástir hins unga manns. Emma fór til Neapel og var leidd fyrir Sir William, sem varð ást- fanginn af henni þegar í stað. Og áður en varði var vinnustúlkan Emma Hart orðin lafði Hamilton, seýidiherrafrú og ein af ráðandi konum Evrópu! Hinn ungi ætt- ingi Sir Williams gleymdist. Lafði Hamilton hafði óstjórn- legan áhuga fyrir stjórnmálum og varð náinn vinur drottningar- innar í Neapel. Var það ekki ó- eðlilegt þó að hún yrði bráðlega riðin við ýmsar stjórnmálabrell- ur, og að hún vakti umtal í öllum hirðsölum Evrópu. I sölum henn- ar hittust frægustu menn þeirra tíma og það leið ekki á löngu þangað til það var talin sérstök upphefð að vera kyntur henni. Þarf því engan áð furða þó að sjóhetjan fræga, Horatio Nelson, væri boðinn þangað. En þarna urðu afdrifaríkir samfundir Mars og Venusar. Þau urðu ástfangin hvort af öðru. Lafði Hamilton lét sendiherr- ann sigla sinn sjó og fór á burt með Nelson. Nú hafði hún nefni- lega orðið ástfangin í fyrsta sinn á ævinni. Hún eignaðist dóttur með Nelson og var ,hún skírð Horatia, og þau elskendurnir settust að í litlu húsi fyrir utan London. En þetta gaman stóð ekki lengi. Nelson féll, en lafði Hamilton hélt sig ríkmannlega áfram og komst innan skamms á vonarvöl. Og nú varð hin fer- •tuga, fagra kona alt í einu gömul og óásjáleg og lífsþrótturinn bil- aði allt í einu. Skuldirnar hrúg- uðust saman, og loks sá hún ekki annað vænna en að flýja úr landi undan lánardrottnunum. Og einn góðan veðurdag fanst kona í tötrum deyjandi í lélegu gistiherbergi í Calais. Hún kvaðst vera hin fræga lafði Hamilton, en var ekki trúað fyrr en sólar- geislarnir komu inn um gluggann og hár hennar ljómaði gullrauð- um lit. Framhald— Hvað hefurðu mörg ár í Hol- land? Hafðu þau þrjú til að vera viss. Annual Report of Jóq Sigurdson Chapter, 1.0. D.E. In reviewing efforts and a- chievements within our Chap- ter this past year, we find that, through the kindly co-operation and generous support of our members and friends, we are able to present the following re- port of activities since February, 1945. , FINANCIAL STATEMENT Mrs. J. S. Gillies, Treasurer. General Account. Balance on hand , Jan. 15, 1945 $247.87 Reeipts from Jan. 15, 1945 to Jan. 15, 1946 ... 714.51 Disbursement for the year $461.10 Balance on hand Jan 15, 1946 501.28 War Service Fund. Balance on hand Jan. 15, 1945 $ 59.42 Receipts from Jan. 15, 1945 to Jan: 15, 1946 306.52 Disbursements for ithe year $133.78 Balance on hand Jan. 15, 1946 232.16 Sources of revenue to both these accounts have come from membership fees, from Teas, our annual Tea at Eaton’s and from generous donations from mem- bers and friends. Disbursements have been for regular outlays, such as: Con- vention railway fares, delegate fees, officers’ tax, endowment fund, to various scholarships sponsored by our Order, our mus- ic scholarship, tuition for vocal lessons, Christmas ýheer, welfare and hospital visits, and donations to other worthy causes. EDUCATIQNAL Miss Jonasson, Convener. Manitoba University has a- warded our annual music schol- arship of $50.00 to Margaret Mac- Keen, 14 years old. Twenty-five dollars was con- tributed towards tuition for vocal lessons :to a young lady of prom- ising ability. Twenty-five dollars was do- nated to the Agnes Sigurdson Fund. Contribuitions to scholarship funds sponsored by the Order. A flag was presented to a group of Girl Guides and reading mat- ter sent to bed-ridden patients in hospitals and in private homes. EMPIRE STUDY Mrs. O. Stephenson, Convener Articles dealing with timely subjects and current events have been read at meetings. Guest speakers: Mrs. Hart, our representative at the annual National Convention at Regina, gave an interesting and compre- hensive report on their post-war program of work for this first year of reconstruction. Mrs. Scott, Municipal convener for Empire Study, gave a talk on plans for Empire study. Major J. Hjalmarson’s topic was “Can- ada’s Contribution.” ECHOES Mrs. A. F. Wilson, Convener Fifteen subscriptions paid for 30 calendars disposed of. Articles written and sent to ithe maga- zine. HOSPITAL VISITING Twelve visits to the St. Boni- face Sanatarium, carrying cheer and comforts to service men and women and to the nursing sis- ters. Sixty-seven patients have been visited and $44.75 contrib- uted by our Chapter. Many homes where illness has been, hve been visited by our two hospital visiting ladies, Mrs. R. G. Nicholson and Mrs. J. F. Kristjanson. UNORGANIZED DISTRICTS Mrs. Sivertson, Convener. Knitted garments: 9 sweaters, 5 prs. mittens, a cap and a dress —sent to needy families in these districts. SEWING ROOM Mrs. Summers, Convener Ninety-six hours 20 min. have been given to the making of 180 garments, 22 prs. hospital slip- pers cut and assembled, buttins and button holes sewn. Four members have given time and service to this work. WELFARE WORK Miss Vala Jonasson, Convener Three boxes of clothing sent to needy families of ex-service men. Approx. value $40.00. Five Dollars and $9.00 donated to vet- erans. WAR SERVICE Mrs. E. A. Isfeld, Convener Twenty-five parcels were sent overseas at Christmas. Fifty- ithree knitted articles to British headquarters and 25 knitted art- icles sent overseas to our boys. Money spent in various activities relating to war work, amounts to $133.78 for the year. Mrs. C. G. McKeag and Mrs. J. F. Kris- tjanson convened the book drive tn their alatted districts and with their volunteers collected -560.00. * To these reports we may add contributions and services ren- dered to the Red Cross Drive, to the Order’s annual Tag Day, the Navy League Tag Day, to clothes drives, to a day at the Salvage Centre, and five of our members gave each an afternoon at the Musical Festival. Our Regent, Mrs. Skaptason, and other members have repre- sented our Chapter at various Provincial and Municipal gath- erings. A hundred dollar bond was bought from our life member- ship fund. As in previous years, a Mem- orial Service, sponsored by our Chapter was a decided success, if we may judge by the inspiring service and a house filled to capacity in the First Lutheran Church, Nov. llth. A luncheon was given to a our past regent and a continuous supporter, Mrs. Soffia Brynolf- son, a visitor from San Fran- cisco, last August. A party was given to a group of non-members who have knit- ted innumerable articles for our Chapter, throughout these six years. As a climax to this year’s ac- tivities, the Jon Sigurdson Chap- ter with the assistance of the Icelandic Canadian Club and the generosity of many friends, gave a grand Welcome Home Resep- tion to our returned boys and girls, in the Royal Alexandra Hotel, Feb. 18th. On that same day, flowers were sent to moth- ers of boys who will not return. Election of Officers for 1946: Hon. Regents — Mrs. B. J. Brandson; Mrs. B. B. Jónsson; Mrs. R. Petursson; Mrs. V. J. Ey- lands; Mrs. Philip Petursson. Regent—Mrs. B. S. Benson. Vice-Regents—Mrs. E. A. Is- feld; Mrs. H. A. Bergman. Secretary—Mrs. H. G. Hen- rickson. Treasurer—Mrs. J. S. Gillies. Educational Convener — Miss Vala Jonasson. Empiré Study—Mrs. O. Steph- enson. Hospital visitors — Mrs. H. G. Nicholson; Mrs. J. F. Kristjanson. Echoes—Mrs. A. F. Wilson. Standard Bearer—Mrs. E. W. Perry. Unorganized Districts — Mrs. P. J. Sivertson; Welfare—Miss Jonasson. Councillors : Mrs. L. E. Sum- mers; Mrs. P. J. Sivertson; Mrs. G. F. Jonasson; Mrs. L. J. Hall- grimson; Mrs. O. Cain. In conclusion, may we extend our sincere gratitude to all our members and friends who have supported our efforts so whole- heartedly and generously. To generous patrons of our recent Welcome Home reception, to in- dividuals, business firms and to the two Icelandic weekly pap- ers, Logberg and Heimskringla, our thanks and good wishes. Al- so to the Ioelandic Canadian Club, whose members have giv- en us continued support and co- operation throughout the year. May prosperity and peace come to all in these serious yet hopeful times. J ohanna G. Skaptason, Regent. Thjodbjorg Henrickson, Secretary. February 21st, 1946. Leiðrétting Kæri ritstjóri Lögbergs, vilt þú gera svo vel og birta eftirfar- andi línur í þínu heiðraða blaði. í Lögbergi dagsettu 3. jan. síðastl. birtist ritgerð með fyrir- sögninni “Ferðalög og flutning- ar á Winnipegvatni.” Ritgerð þessi er skemtileg og víðasthvar rétt með farið, en þó hefir slæðst þar með rakalaus vitleysa; hefir einhver gert höfundi ritgerðar- innar þann ógreiða að gefa hon- um algerlega rangur upplýsing- ar. Þar stendur skrifuð eftirfar- andi klausa: “Mikleyingar höfðu seglbát eða skonnortu í förum milli Selkirk og Mikleyjar; þessi seglbátur, Sigurrós’ var smíðað- ur norður við fljót 1893, og rúm- aði 21 farþega. Eigandi var Ei- ríkur Eymundsson, en skipstjóri Oddur Eiríksson. Þessi bátur hélt uppi ferðum í mörg ár og má nærri geta hvort Mikleying- um hafi ekki þótt vænt um.” Hér er algerlega með rangt mál farið. Kristjón kaupmaður Finnsson lét byggja Sigurrósu og var einn eigandi hennar; flutti hún vörur fyrir verzlun hans og borðvið, sem hann lét saga í sögunar- mylnu sinni. Eg efast um að Sigurrós hafi komið til Mikleyj- ar, að minsta kosti hélt hún aldrei uppi neinum reglubundnum flutningum þaðan. Yfirsmiður að Sigurrósu var Eiríkur Eymunds- son og* aðstoðarmenn hans voru allir búsettir hér við Fljótið og tveir úr svokallaðri ísafoldar- bygð. Eiríkur bjó allan sinn bú- skap að Odda hér við Fljótið. Sigurrós var heitin eftir dóttur Kristjóns, sem var yngst dætra hans, sem þá voru fæddar. Eg man vel þegar Sigurrósu var hleypt af stokkum, það var indæll júní-dagur, fólkið hafði safnast að Lundi þorps messubúið að klæðum og hátíðabragur var yfir öllum. Aðalræðumaður við það tækifæri var Tómas Jónas- son á Engimýri og hefi eg hugs- að eftir því síðan, hvað snjall ræðumaður Tómas hefði orðið, ef hann hefði æft þá list, en eg heyrði Tómas aldrei halda ræðu fyr né síðar. Tómas hóf mál sitt á þessa leið: “Eg var staddur í búð Friðjóns Friðrikssonar, einn kaldan jólaföstudag fyrir nokkr- um árum síðan, kom þá inn í búðina ungur maður, snarlegur og stuttur í spuna, lítt var hann klæðum búinn fyrir þann tíma árs; hann ávarpaði Friðjón: ‘Get eg fengið eitthvað að gera hjá ykkur?’ sagði ungi maðurinn hranalega. Með sinni alþektu ljúfmensku svaraði Friðión: ‘Já, þó þú hefðir ekki nefnt það, Kristjón minn.’ ” Ekki sagði ræðumaður að sig hefði órað fyrir því þá, að innan fárra ára yrði þessi maður orð- (Frh. á bls. 8)

x

Lögberg

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Lögberg
https://timarit.is/publication/132

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.