Lögberg - 18.07.1946, Blaðsíða 4
4
LÖGBERG, FIMTUDAGINN 18. JÚLÍ, 1946
--------Hogberg---------------------
GefltS út hvern fimtudag af
THE COLUMBIA PRESS, LIMITED
695 Largent Ave., Winnipeg, Manitoba
Utanáskrift ritstjórans:
EDITOR LÖGBERG
595 Sargent Ave., Winnipeg, Man.
Ri tstjóri: EINAR P. JÓNSSON
Verð $3.00 um árið—Borgist fyrirfram
The •'Lögberg" is printed and published by
The Columbia Press, Limited, 695 Sargent
.Avenue, Winnipeg, Manitoba, Canada.
Authorized as Second Class Mail,
Post Office Dept., Ottawa.
PHONE 21 804
Dardanelles spursmálið
einu sinni enn
Dardanelles-sundið, eða sundin hafa
verið bitbein á meðal manna, nærri
eins lengi og sögur fara af.
Tyrkir ráða yfir sundinu nú, en Rúss-
ar vilja ná yfirráðum yfir því.
Það er ekki einasta að
sundið sé frægt í söng og
er það ein af lífæðum verslunarviðskift-
anna; að minsta kosti hvað Rússlands
Svartahafs siglingar snertir, því þær
eiga hvergi útleið til hafs nema í gegn-
um það sund.
í rauninni eru sundin tvö; annað
þeirra sem ber nafnið Bosporus, og
liggur á milli Svartahafsins og Marmara
sjúvarins er grunnt og hvergi breiðara
en tvær mílur á átján mílna svæði. Við
enda Bosporus-sundsins er hin víð-
kunna höfn Gullna Hornið (The Golden
Horn), en við höfn þá stendur borgin
Istanbul, sem forðum hét Byzantium,
síðar Constantínópel og var lengi höfuð-
borg Tyrkja. Þó þeir nú hafi gjört
Ankara, sem liggur langt inni í landi, að
höfuðborg sinni, er Istanbul samt ein af
þýðingarmestu borgum Tyrklands frá
verzlunarlegu og hermálalegu sjónar-
miði.
Hitt er Dardanelles-sundið, og ligg-
ur það úr Marmarasjónum og inn í
Agean arm Miðjarðarhafsins Það sund
er rúmar fjörutíu mílur á lengd og er
Evrópa annars vegar við það, en Asía
hins vegar. Meðfram þessum sundum
báðum getur að líta vígi, yfirgefna og
hálfhrunda kastala og þorp með rauðum
húsþökum.
í fornöld voru sund þessi kölluð
' Hellespont og ekki langt í burtu frá
þeim stóð hin söguríka Tróju-borg og
þarna við Hellespont gjörðist ástarsaga
í íornöld, sem lifað hefir æ síðan, og
lifa mun til daganna enda.
Lender frá Abydos feldi ást til hof-
gyðjunnar Hero hinnar fögru frá Sestos.
Foreldrar Hero fyrirbuðu þeim að hittast
eða talast við, svo þau komu sér saman
um að hann skyldi synda yfir Helles-
pont á nóttunum, og að Hero skyldi láta
ljós loga við gluggann í turni sínum, hon-
um til leiðbeiningar. Þetta gekk alt að
óskum, þar til nótt eina í hvössu veðri
að ljósið í turninum sloknaði og Lender
druknaði í Hellespont. Um morguninn,
þegar Hero frétti um drukknun ásthuga
síns, gekk hún í sjóinn og fvrirfór sér.
En það er ekki um fornsögn þessa
söguríka héraðs, sem nú er að ræða,
heldur aðstæðurnar, eins og þær nú eru.
Að loknu fyrra alheimsstríðinu voru um-
ráðin yfir Dardanelles fengin í hendur
alþjóðanefnd, með þeim fyrirvara þó,
að ekki mætti vígbúa þau; og öllum
þjóðum skyldi frjálst að sigla um sund-
in, hvort heldur um væri að ræða á
friðar- eða ófriðar-tímum. Fyrirkomu
lag þetta eða samningur hélst þar til
árið 1936, að skuggar frá herundirbún-
ingi Hitlers fóru að fylia menn óhug og
kvíða, þá fóru Tyrkir þess á leit við þá,
sem undirrituðu samninginn viðvíkjandi
Dardanelles í Lausanne, að þeir fengju
að víggirða Dardanelles-sundin, og varð
það að samkomulagi á fundi í Montreux
að nefndin sem stjórnað hafði sundun-
um skyldi afhenda umsjón þeirra í hend-
ur Tyrkja. En þegar leyfi það var veitt,
var það tilskilið að Rússar hefðu frjáls
og full not af sundunum, ef til ófriðar
kæmi.
Þessi samningmv sem gjörður var í
Montreux 1936, er enn í gildi, og hafa
Tyrkir haldið hann, að því er samherja
snertir, þó þeir auðvitað víggirtu sund-
in rammlega, sem þó hafði enga þýðingu
eftir að Þjóðverjar tóku Krít og komu
þangað með loftflota sinn, því ekki eitt
Dardanelles-
sögur heldur
einasta skip gat farið um sundin á með-
an Þjóðverjar sátu á Krít og loftfloti
þeirra sveimaði yfir sundiínum. Þessu
geta Rússar auðvitað ekki gleymt. Þeir
geta ekki gleymt, að á meðan þannig
stóð voru þeir lokaðir inni með korn frá
Úkraníu, olíu frá Kákasus og timbur
frá Danube og gátu hvergi komið því út
frá sér til markaðar.
Fyrir þessar ástæður og fleiri er
varla að furða sig á þó Rússar vilji hafa
hönd í bagga þegar um framtíðar ráð-
stafanir Dardanelles-sundanna er að
ræða, enda hafa leiðtogar þeirra þegar
farið fram á að Montreux samningurinn
sé endurskoðaður, en að því hefir lítill
gaumur verið gefinn enn, að undantekn-
um Bandaríkjunum, sem hafa tilkynt,
að þau séú hlynt breytingum á Montreux
sáttmálanum. Hverjar þær breytingar
eru, er enn ekki kunnugt og það er held-
ur ekki kunnugt hverjar kröfur Rússa
eru í sambandi við Dardanelles spurs-
málið. En menn telja víst, að þeir muni
krefjast réttar til að vígbúa og ráða yfir
svæðum meðfram Dardanelles sundinu
og fullra yfiráða á Kors og Ardahn fylkj-
unum sem nú heyra Tyrkjum til. Kras-
fylkið liggur að Trans-Cakasus hérað-
inu að norð-austan, er rúmar sjö þús-
und fermílur að stærð og telur 200 þús-
und íbúa. Fylki þetta heyrði Rússum til
þar til árið 1821 að það komst undir yfir-
ráð Tyrkja.
Arhahn-fylkið tilheyrði Armeníu fyr-
ir 1878, en það ár var það gefið Rússum,
sem héldu því í 43 ár, eða þar til 1921, að
Tyrkir náðu haldi á því aftur.
Ólgan út af Dardanelles er að byrja
á ný; ómögulegt er að segja, eða sjá
hvernig eða hvenær að henni muni
lægja.
Fróðleg álaðarsaga
Eftir prófessor Richard Beck
Þættir úr sögu Möðrudals á Efra-
Fjalli. Eftir Halldór Stefánsson.
Útgefandi: Þorsteinn M. Jónsson,
Akureyri, 1943.
Einn af þeim stöðum, sem mér eru
sérstaklega minnisstæðir úr íslandsferð
minni fyrir tveim árum síðan, er Möðru-
dalur á Fjöllum, eins og hann er oft
nefndur, enda var eg frábærlega hepp-
inn með ferðaveður á þeim söguríku og
svipmiklu slóðum og naut því til fulls
hins víðáttumikla útsýnis og þeirrar
fjölbreyttu og tilkomumiklu náttúrufeg-
urðar, sem þar blasir við augum á heið-
um sumardegi.
Hló mér sú fagra mynd íslenzkrar
fjalladýrðar í sumarljóma aftur við hug-
skotssjónum, þegar. eg fór að lesa Þætti
úr sögu Möðrudals á Efra-Fjalli eftir
Halldór Stefánsson forstjóra og fyrv.
alþingismann, en það er ein af hinum
mörgu staðalýsingum og staðasögum,
sem út hafa komið á íslandi á síðari ár-
um. Eru slíkar bæl^ur góðra gjalda
verðar, ekki sízt, þegar jafn fræðimann-
lega er með efnið farið eins og hér er
gert, því að frásögnin er bæði skipuleg
glögg, og skemtileg aflestrar.
Sem einkunnarorð og inngang að
sögu staðarins hefir höfundur valið hið
snildarlega kvæði Jóns Magnússonar
um Möðrudal, sem menn verða að vísu
að lesa í heild sinni til þess að njóta þess
fyllilega, en þó gefa eftirfarandi erindi
nokrka hugmynd um það, með hverjum
ágætum töfrum náttúrufegurðarinnar
er þar lýst:
Gengur um grundir
gróðurangan
þrungin ást og yndi.
Klappar á kinnar
kossamjúkur
blær af bláfjöllum.
Yfir fríða
fjallaþyrping
horfir Herðubreið,
hamrabeltuð,
himinljómuð,
sindruð sólarmistrum.
Dreymdi hana daga
dýrðarríka
fyrr eh fólk vissi.
Ófu morgnar
meginbjartir
gull í grænum hlíðum..
Greru sóleyjar
sumarglaðar,
drifnar dögg og geislum.
Brosti Herðubreið
blómi hverju
eins og ástrík móðir.
Síðan hefst aðalefni rits-
ins með lýsingu á staðnum
sjálfum, legu hans, upphafi
bygðarinnar, munnmælum
varðandi hann, landa-
merkjum, gróðurfari og
landkostum, en Möðrudal-
ur hefir, eins og höfundur
dregur réttilega athygli að,
“frá öndverðu verið talinn
á meðal höfuðbóla í ís-
lenzkri bygðarsögu”, og
Ijafnframt, Vegna afstöðu
sinnar. á krossgötum milli
landsfjórðunga og héraða,
verið mikilvægur hlekkur í
samgöngunum um landið.
Útsýn og náttúrufegurð
Möðrudal lýsir höfundur
þessum orðum, og er þar
ekkert ofmælt:
“Útsýni frá Möðrudal er
alt í senn, mikil, fögur,
stórfengleg og tignarleg.
Hin mikla öræfavíðátta og
myndgnótt fær vald á huga
og geðblæ. Öræfanna andi
á hér sannarlega ríki og
völd, — ekki harðstjórnar-
völd, heldur mild og töfr-
andi. Mesta prýði útsýnis-
ins erHerðubreið (1660 m.)
—Gömul vísa lýsir töfrum
Möðrudals og Heröubreið-
ar á þessa leið:
Frjálst er hér í fjallasal,
fagurt er í Möðrudal:
Gnæfir hátt við himintjald
Herðubreið með hvítan
fald.
— höfingleg og dökk á
brún.—
Öræfanna drottning dýr
mót dalnum fagra brosir
hýr.
I óbundnu máli hefir
Herðubreið verið svo -lýst,
að hún væri, að sjá frá
Möðrudal, eins og kona í
bláum möttli. Þar af mun
vera dregið nafnið.”
Þá er rakin saga Möðru-
dalskirkju, og síðan taldir
ábúendur á staðnum, prest-
ar og bændur, fram á þenn-
an dag. Er það meginhluti
bókarinnar, og mikið á
honum að græða, því að
höfundur hefir þar dregið
saman margvíslegan fróð-
leik, ættfærslur, mannlýs-
ingar á búskaparháttum.
Mun ýmsum í hópi eldra
fólksins hér vestra þykja
gaman af að kynnast því,
hvernig nú er búið í Möðru-
dal, en þar búa nú hjónin
Jón A. Stefánsson og Þór-
unn Vilhjálmsdóttir, hin
mestu merkishjón, annáluð
fyrir gestrisni og greiða-
semi.
í bréfi, sem Jón skrifaði
höfundi umraéddrar bókar
í ársbyrjun 1940, lýsir hann
búskajmum í Möðrudal
meðal annars á þessa leið:
“Nú eru hér 700 kindur, 40
hestar, 14 nautgripir og 30
geitur. Heyfengur var í
haust 1200 hestar.
Um aldamótin voru hér
litlar engjar, mest melengi,
lítið eitt mýrengi. í sumar
var heyskapurinn allur
grashey, ekektr melhey og
hefði mátt heyja aðra 1200
hesta.”
Möðrudalsbygðin hefir
sveipast æfintýrablæ í hug-
um almennings og margar
þjóðsagnir myndast um
hana, eins og algengt er um
sérstæða staði og fjarri
meginbygðum. í lokakafla
bókarinnar eru skráðar ó-
prentáðar sagnir um
Möðrudal, sem til hefir
náðst, og einnig tekið upp
hið snjalla kvæði “Klerkur-
inn í Möðrudal” eftir Stefán
frá Hvítadal. Þá fylgir skrá
yfir prentaðar sagnir uní
Alþingiskosningar,
30. júní 1946.
Þingmenn kjömir—
Alþýðuflokkurinn, 11911 , at-
kvæði, 9 þingmenn:
Gilfi Þ. Gíslason, Reykjavík.
Emil Jónsson, Hafnarfirði.
Finnur Jónsson, ísafirði.
Ásgeir Ásgeirsson, V.-Isafjarð-
arsýslu.
Landskjörnir
Sigurður Ólafsson, Reykjavík.
Guðmundur I. Guðmundsson,
Gullbringu og Kjósarsýslu.
Stefán Jóh. Stefánsson, Eyja-
fjarðarsýslu.
Hannibal Valdimarsson, N.-Isa-
fjarðarsýslu.
Barði Guðmundsson, Seyðis-
firði.
Framsóknarflokkurinn, 15072
atkvæði, 13 þingmenn:
Bjarni Ásgeirsson, Mýrarsýslu.
Hermann Jónasson, Stranda-
sýslu.
Skúli Guðmundsson, V.-Húna-
vatnssýslu.
Bernhard Stefánsson, Eyja-
fjarðarsýslu.
Jónas Jónsson, S.-Þingeyjar-
sýslu.
Bjöm Kristjánsson, N.-Þing-
eyjarsýslu.
Stein-grímur Steinjþórsson,
Skagafjarðarsýslu.
Halldór Ásgrímsson, N.-Múla-
sýslu.
Páll Sophanfasson, N.-Múla-
sýslu.
Ingvar Pálmasón, S.-Múla-
sýslu.
Páll Þorsteinsson, A.-Skafta-
fellssýslu.
Helgi Jónasson, Rangárvallar-
sýslu.
Jörundur Brynjólfsson, Árnes-
sýslu.
Kommúnistaflokkurinn, 13049
atkvæði, 10 þingmenn:
Einar Olgeirsson, Reikjavík.
Sigfús Sigurhjartarson, Reykj-
avík.
Sigurður Guðnason, Reykja-
vík.
Áki Jakohsson, Siglufjörður.
Lúðvík Jósefsson, S.-Múla-
sýslu. •
Landskjórnir
Katrín Thoroddsen, Reykjavík.
Brynjólfur Bjamason, Vest-
mannaeyjum.
Steingrímur Aðalsteinsson,
Akureyri.
Hermann Guðmundsson, Hafn-
arfirði.
Ásmundur Sigurðsson, A.-
Skaftafellssýslu.
Sj álfstæðisf lokkurinn, 26428
atkvæði, 20 þingmenn:
Pétur Magnússon, Reykjavík.
Hallgrímur Benediktsson,
Reykjavík.
Sigurður Kristjánsson, Reykj-
avík.
Jóhann Hafsteinn, Reykjavík.
Ólafur Thors, Gullbringu og
Kjósarsýslu.
Pétur Ottesen, Borgarfjarðar-
sýslu.
Gunnar Thoroddsen, Snæ-
fellsnessýslu.
Þorstein Thorsteinsson, Dala-
sýslu.
Gísli Jónsson, Barðastranda-
sýslu.
Sigurður Bjamason, N.-ísa-
fjarðarsýslu.
staðinn, ábúendatal, ör-
nefnaskrá og heimildaskrá.
Elykur það á gildi bókar-
innar, sem er vel gerð og
snotur að ytra frágangi.
Margir af Möðrudalsætt
fluttust til Vesturheims, og
á því heill hópur fólks í
landi hér þangað ættir að
rekja . Minnist eg þessara
af hinni eldri kynslóð: Jóns
Metúsalemssonar, land-
námsmanns í íslenzku
bygðunum við Manitoba-
vatn; Guðmundar Stefáns-
sonar, bróður söguhöfund-
ar alþýðuskólakennara í
Minneota; og frú Soffíu.
konu Jóns J. Bíldfell í Win-
nipeg.
Jón Pálmason, A.-Húnavatns-
sýslu.
Jón Sigurðsson, Skagafjarðar-
sýslu.
Garðar Þorsteinsson, Eyja-
fjarðarsýslu.
Sigurður Hlíðar, Akureyri.
Lárus Jóhannesson, Seyðis-
firði.
Gísli Sveinsson, V.-Skaftafells-
sýslu.
Jóhann Jósefsson, Vestmanna-
eyjum.
Ingólfur Jónsson, Rangárvall-
arsýslu.
Eiríkur Einarsson, Árnessýslu.
Landskjörinn:
Bjarni Benediktsson, Reykja-
vík.
FRÉTTIR
(Framh. frá bls. 1)
er vaxtalaust í fimm fyrstu árin,
svo 2% árlega þar eftir unz lán-
ið er upp borgað. Þó er tekið
fram í lánsamningnum, að ef
uppskerubrestur eða önnur ó-
höpp koma fyrir á Bretlandi
þurfi vextir eða afborgun ekki
að greiðast meðan á óhöppunum
stendur. Enn fremur lofast
Bretar til að ryðja úr vegi öllum
sérstökum hömlum sem frá
þeirra hálfu standa í vegi fyrir
viðskiftum Bandaríkjamanna við
þá og ljá lið sitt til Iþess að höft
á alþjóða viðskiftum séu leyst
sem mest, og sem hagkvæmleg-
ast að föng eru á.
♦♦♦
Þegar að verðlagsskrá Banda-
ríkjastjómarinnar dó út af 30.
júní s.l. og öll verðlagshöft voru
slitin, létu stóriðnaðarfélögin
þar syðra, sem róið höfðu öllum
árum að eyðilegging verðhaft-
anna í ljósi að engin hætta væri
á að vörur myndu hækka frá því
sem áður var. Sögðu sum þeirra:
“Verðhöftin hafa verið slitin og
verð á öllum vörum er óhaggað
hjá okkur.” — Fomans-Garr Co.
“Við Jiöfum ekki breytt einum
einasta verðlista.” — Fish Furni-
ture Co., Chicago. “Það sem þið
viljið að mennirnir gjöri yður,
það skuluð þér og þeim gjöra.
Svo við segjum allir: Hækkið
ekki ’húsaleiguna.” Félag fast-
eignasala í Miami. “Við viljurn
verða við óskum forsetans, og
seljum vörur okkar á sama verði
og áður.” — Emporium, San
Francisco. “ísverð okkar er fros-
ið enn.” ísfélag Detroit.
Fyrstu þrjá dagana eftir að
verðhöftin voru leyst, fóru vörur
upp í verði um 10% að jafnaði!
♦♦♦
JOHN QUEEN LÁTINN
Hann lézt að heimili sínu hér í
Winnipeg síðastliðinn sunnu-
dagsmorgun. A. M. Campbell,
læknir kom heim til John Queen
samkvæmt símkalli klukkan 4.30
að morgni suánudagsins og fann
hann örendann.
7
John Queen hefir komið mik-
ið við sögu Winnipegborgar og
Manitobafylkis í iþau 40 ár sem
hann átti hér heima. Hann var
tilkomumikill maður að vallar-
sýn, fríður maður og vel vaxinn
og þróttmikill bæði andlega og
líkamlega.
John Queen kemur fyrst opin-
>erlega við sögu Manitobafylkis
í verkfallinu — eða þó öllu held-
ur verkamanna upphlaupinu
1919. Fyrir þátttöku sína í því
uppistandi var hann dæmdur 1
eins árs fanlegsisvist. En meðan
á vist þeirri stóð, var hann kos-
inn á fylkisþing í Norður-Winni-
peg kjördæmdnu árið 1920. Var
endurkosinn á þing 4 sinnum og
var íeiðtogi verkamannaflokks á
jingi og í héraði frá 1930. Hann
var kosinn borgarstjóri Winnipeg
borg 1935 og 1936. Hann var
aftur kosinn borgarstjóri 1938 og
1939.
John Queen var miklum ledð-
togaihæfileikum gæddur. Var vel
máli farinn, mannblendinn,
greiðugur, samvinnuþýður og
sáttfús.