Lögberg - 16.10.1947, Side 1

Lögberg - 16.10.1947, Side 1
PHONE 21 374 4 VSKí' Complele Cleaning Inslilulion PHONE 21 374 4ot »V* B“®K5S®» Clcan VauTldf\J^ ^ A C< mplele Cl< aning Insi ilulion 60. ÁRGANGUR WINNIPEG, FIMTUDAGINN 16. OKTÓBER, 1947. NÚMER 41. Frá Vancouver, British Columbia 8. október 1947 ------------ Þó hin indæla veðrátta haldist hér við, þá er margt sem minnir okkur á, að haustið er komið. — Skógurinn er farinn að missa hinn fagurgræna sumarskrúða sinn. Þokan er farin að gjöra vart við sig, svo nokkrum sinn- um hefir það teft fyrir um alla umferð á sjó og landi, og loftleið is, því þegar mikil þoka er, þá eru öll loftför “grounded”, þar til birtir upp. Það hefir ekki verið fjörugt hjá okkur félagslífið í seinni tíð. Engir fundir né samkomur haldn ar, yfir sumar mánuðina. Er nú gott útlit fyrir að það fari að lifna við aftur úr þessu. Þann 19. sept. hélt “Ströndin” sinn fyrsta fund eftir þriggja mánaða hvíld. Eftir að fundar- störfum var lokið, skemti Mr. Kristján Isfjörð með að spila nokkur íslenzk lög á Phonograph eftir frægustu íslenzka söngvara. Var það þakkað með fjörugu lófaklappi. Hér hefir lömunarveikin — POLLO — verið að gjöra vart við sig, meira en vanalega hefir átt sér stað. Hafa um 150 manns veikst af þeim sjúkdómi í British Columbia, aðeins þrír hafa dáið. Margir af þeim sjúku eru komn- ir heim til sín frá sjúkrahúsun- um, sem læknar segja að séu al- bata aftur. Fjöldi af íslenzku ferðafólki hafa verið hér á ferðinni í sum- ar, komið úr öllum áttum. Það lítur út fyrir að leiðir flestra ís- lendinga liggi til Vancouver nú í seinni tíð. Vancouverbúar hafa ekkert á mótti því, heldur bjóða þau öll velkominn. Nokkur dauðsföll hafa átt sér stað í seinni tíð. Jónas Pálsson píanókennari og skáld lést að heimili sínu 4. sept. Jarðarförin fór fram þann 11. sept. frá Roselawn útfarastofn- uninni Var þar fjöldi fólks sam- ankominn, bæði Islendingar og aannara þjóða fólk. Séra A. B. Kristjánsson frá Blaine, Wash., þjónustaði við útförina. — And- láts Mr. Pálssonar hefir verið getið í íslenzku blöðunum og hans minnst þar að verðugleik- um. Þann 6. ágúst lést Mrs. Sig- rún Foote 88 ára. Hana lifa einn sonur A. C. Orr í Vancouver, ein dóttir Mrs. A. W. McKee í Winni peg. Tvær systur, Mrs. Runa Nylander í Vancouver og Mrs. K. Thordarson í Winnipeg. Jarð arförin fór fram þann 11. ágúst frá “The Chapel of Chimes”. Hin látna kona var félagi í Rebekah Lodge No. 44 IOOF. Tók það fé- lag þátt í útförinni samkvæmt þeirra reglum. Rev. A. M. Stan- ford D. D. þjónustaði við útför- ina. Þann 31. sept. vildi til það hörmulega slys, að ungur Islend ingur Stefán P. Arngrímsson 27 ára gamall, dó hér af slysför- um. Slasaðist hann svo að hann dó nærri samstundis. Níu manns var í báðum bílunum, en hann var sá eini sem beið bana, allir hinir meiddust en ekki hættu- lega. Jarðarförin fór fram frá The Georgia Chapel of Center of Hanna, 6. sept. Dr. H. Sigmar þjónustaði við útförina. Stefán heitinn var fóstursonur Mr. og Mrs. Stefáns Arngrímssonar í Vancouver. Auk þeirra lifa hann tvær íóstursystur, Mrs. Beatrice Arnasón í Campbell River B. C. og Mrs. C. A. Newton og fóstur- bróðir Thorhallur í Vancouver. Hafði Stefán heitinn verið nýlega leystur úr Canadahernum og var félagi í “Army Navy and Airforce Veterans in Canada”. og tók sá félagsskapur nokkurn þátt í útförinni. Kistan var sveip uð brezka fánanum, og voru nokkrir af félögum hans sem voru “Honorary Pall bearers”. Stóðu í tveimur röðum og var kistan borin út á milli þeirra út í líkvagninn. Líka sendi þetta fé- lag blóm og hluttekningarskeyti til foreldranna. Stefán heitinn var mesti myndarmaður bæði að vallarsýn og í allri framkomu. Hann var búinn að vera hér að- eins eitt ár, en hafði áunnið sér marga vini og kunningja. — Það kom bezt í ljós er svo margir voru við jarðarförina, er höfðu sent blóm og hluttekningarskeyti til ættingja hins látnta. Þann 29. sept. andaðist Ásgeir V. H. Baldvin 96 ára og 10 mán- aða. Hann lifa einn bróðir E. T. * Baldwin í Oregon, tvær systur- dætur, Mrs. Ruddell í Vancouver og Mrs. Harry Kyle í Poulsbo, Wash., tveir systrasynir R. Tomp son í Vancouver og Walter Free- man í Grave Junction, Oregon.— Jarðarförin fór fram í Campbell River B. C. þar sem konan hans var jarðsett fyrir nokkrum ár- um. Mr. Baldwin var víst sá elsti Islendingur hér á vesturströnd- inni. Hann kom víst frá íslandi 1874, og var einn af þeim íslend- ingum sem tóku sér bólfestu í Ontario og bjó þar um langt skeið. Hann stofnaði þar Póst- húsið “Hekla” sem ég held að sé starfrækt ennþá. Hann var líka eftir því sem ég bezt veit, fyrsti íslendingurinn til að verða jarð eigandi í Canada. Hann keypti dálítinn landblett með húskofa á, og fékk eignarrétt á því. Nokkru áður en Mr. Baldwin lést, varð hann fyrir þeim áfelli að fótbrotna, og var hann búinn að vera rúmfastur um nokkrar vikur. Það er vert að geta þess hér, að systurdóttir hans og mað- ur hennar, Harry Kyle ,sem eru búsett í Poulsbo í Wash. voru hér í margar vikur áður en hann lést, og annaðist Mrs. Kyle um hann með mestu alúð og nær- gætni þangað til hann fékk hvíld frá öllum sínum þjáningum. Mr. og Mrs. Bjarni Kolbeins eru farin í skemmtitúr til íslands þar sem Mr. Kolbeinn á nokkra ttingja. Mrs. Kolbeinn er af ensk um ættum, og á hún ættfólk á lífi á Englandi, svo þau heim- sækja það um leið. Mr. Kolbeinn fór með bíl sinn með sér, svo þau geta ferðast þar um, eftir því sem þeim best líkar. Mr. og Mrs. Thórdur Helga- son eru komin heim aftur úr ferðalagi til St. Paul og Minnea- polis Minn., þar sem þau voru að heimsækja tvær dætur sínar, sem eru þar búsettar. — Nokkru eftir að Mr. Helgason kom til baka, varð hann veikur og er nú á sjúkrahúsi, en er nú heldur í afturbata. Hinir mörgu vinir hans óska þess, að hann komist til heilsu aftur sem fyrst. Mrs. Jónína Johnston fór aust- ur til Toronto, í heimsókn til dóttur sinnar sem þar er búsett. Bjóst hún við að dvelja þar um tveggja mánaða tíma. Mr. Vigfús J. Guttormsson og frú hans frá Lundar Man., hafa verið að ferðast hér vestra sér til skemmtunar, og heimsækja kunningja og venzlafólk sem hann á hér. Þau ferðuðust til P r i n c e Rupert, Vanderhof og fleiri staða í British Columbia. Kanske Mr. Guttormsson segi okkur eitthvað af ferðasögu sinni í ljóði eða óbundnu máli, því þau ferðuðust hér víðar yf- ir en flestir af þeim sem koma hingað vestur, sem láta hér ekki staðað numið og máske skreppa til Victoria til að fá að koma á flot yfir sundið. Mrs. Sofía Kristjánsson frá California hefir verið að heim- sækja föður sinn hér, Mr. Elías Vatnsdal og systir sína Miss Anna Vatnsdal. Hún bjóst við að dvelja hér um tveggja mán- aða tíma. Kvenfélagið “Sólskin” hafði fjölmenna samkomu hér þann 30 sept. Komu þar saman um 300 manns. Mr. Páll S. Pálsson frá Winnipeg skemti þar með upplestri og söng og aðstoðaði Mrs. Frank Frederickson hann við hljóðfærið. Það var nokkuð nýtt fyrir okkur að hlusta á Mr. Pálsson, því við höfum enga hér sem eru gæddir þeim hæfileikum sem hann hefir á þeim sviðum. Hann kom fram á skemtiskránni þrisvar sinnum og var alltaf tek ið með fjörugu lófaklappi. Mrs. Björnsson söng tvær sólós, og spilaði undir með henni Mrs. Dorothy Lympus. Eru þær báðar listfengar á þeim sviðum. — Var þeim tekið með fjörugu lófa- klappi. Eftir skemtiskrána og á- gæta veizlu sem framreidd var, sem var mestmegnis íslenzkir .réttir, var stiginn dans til mið- nættis. Mrs. Thora Orr sem er núverandi forseti félagsins stjórn EFNILEG STÚLKA Samkvæmt frásögn í “Grand Forks Herald” þ. 28. septmeber, var Margaret Helen Beck ein af tveim fyrsta árs stúdentum á ríkisháskólanum í Norður- Dakota (University of North Dakota), er hlutu hæsta einkunn yið inntökupróf í ensku. Yfir 600 stúdentar tóku þátt í umræddu prófi. Margaret, sem er 18 ára gömul o g 1 a u k gagnfræðaprófi með heiðri á miðskólanum í Grand Forks síðastliðið vor, dóttir þeir- ra Dr. og Mrs. Richard Beck. aði samkomunni. Allur ágóðinn af samkomunni, létu konurnar ganga í Elliheimilis-sjóðinn. — Sem hafa verið yfir $300.00. — Gamla fólkið á þar góðan hauk í horni. Mr. og Mrs. Páll S. í’álsson skáld, og Mr. og Mrs. J. T. Beck ráðsmaður Lögbergs, öll frá Winnipeg, hafa verið hér á ferð- inni um tíma sér og öðrum til skemtunar. Þetta fólk ferðaðist alt til Blaine og Seattle. Ekki er ólíklegt að blaðamennirnir minn- ist eitthvað á ferðalög sín hér vestra, og hvernig þeim kom hér alt fyrir sjónir. Mr. og Mrs. Sigurður Sigurðs son frá Galgary komu hingað í bíl sínum sem Sigurdson er ný- búinn að kaupa, sem hefir allar nýjustu umbætur. Var Mr. Sig- urdson að skýra það fyrir mér, en það var alt eins og hann væri að tala við mig grísku, því það er ekki snefill af “mechanic” í mér. 1 för með þeim hjónum var bróðir hans, Halldór Sigurðsson og kona hans frá Seattle. — Fór þetta fólk alt til Vivtoria og ef til vill víðar á Vancauver-eyj- unni. Var þetta fólk hér, er Elli- heimilið var opnað þann 5. sept. B æ 11 i Mr. Sigurðsson $100.00 vifi Elliheimilis-sjóðinn um leið og hann kvaddi. Þá «er íslenzka Elliheimilið í Vancouver komið á stað, og farið að taka á móti gestum. Það er óhætt að segja að sér sé farið menningarlega og myndarlega á stað. 30 manns er búist við að verði tekið á móti nú strax, en það segir ekki mikið, því hingað hugsar gamla fólkið úr öllum átt um, svo það má ekki láta hér staðar nema, heldur halda áfram þar til takmarkinu er náð, að all- ir gamlir íslendingar, sem óska þess, geti fengið hér gistingu. Eg skýri frá Elliheimilinu bráðlega í sérstakri grein. Þetta er orðið svo langt mál, að ég má búast við að ritstjóri Lögberjyi reki mig á dyr, með alt saman. S. Guðmundsson. Mr. Justice H. A. Bergman Kjörinn doktor í lögum Síðastliðinn miðvikudag var Mr. Justice H. A. Bergman dómari í yfirrétti Manitobafylk is, kjörinn heiðursdoktor í lög- um við Manitoba háskólann; var hann fyrir löngu “drápunn- ar verður”, eins og hið forn- kveðna segir. Hinn nýi heiðursdoktor er frábær lærdómsmaður í lög- vísi og málafylgjumaður hinn við Manitobaháskólann mesti; hann hefir jafnan látið sér hugarhaldið um verndun íslenzkra menningarerfða í þessari álfu, og hefir með marg- þættri, menningarlegri starf- semi sinni, aukið mjög á hróður ættþjóðar sinnar. Lögberg flyt- ur hinum nýja heiðursdoktor hugheilar árnaðaróskir í tilefni af þeirri maklegu viðurkenn- ingu, sem honum nú hefir fallið í skaut. Úr borg og bygð Heiman af íslandi komu til borgarinnar síðastliðinn laugar dag, Miss Guðbjörg Sigurðsson, er dvalið hefir á ættjörðinni síðan í júní í sumar, og ungfrú Katrín Brynjólfsdóttir, systir séra Eiríks Brynjólfssonar; hafði hún dvalið undanfarinn ár hjá bróður sínum á Útskálum við bústjóm og heimilisstörf; hún sagði allt gott í fréttum að heiman. ^ ♦ Mr. J. B. Johnson úr Brown byggðinni í grend við Morden, var staddur í borginni í byrjun vikunnar. ♦ Tvær svargreinar frá Mr. J. J. Bildfell til Tryggva»Thor steinssonar og Jónbjarnar Gíslasonar verða að bíða til næstu viku, vegna þess að ekki var unnið í prentsmiðjunni á mánudaginn, og vegna þess hve blaðinu um elleftu stundu, barst mikið af auglýsingum vegna bæjarstjórnarkosning- anna. ♦ Ritgerð eftir Dr. Richard Beck verður að bíða næsta blaðs vegna rúmleysis í blaðinu þessa viku. — Karlakór íslendinga í Winnipeg Hefir í hyggju að efna til söngskemmtunar mánudaginn, 24 nóvember n. k. — Verður vandað til efnisskrárinnar eins og frekast er unt. Allir söng- unnendur eru beðnir að veita athygli auglýsingu er birt verð- ur í ísl. blöðunum innan stund- ar, og verður þá nánar getið um tilhögun og efnisval. Victor B. Anderson Tryggið Mr. Anderson endur- kosningu í bæjarráð fyrir 2. kjördeild þann 22. þ. m. Jack St. John Leitar endurkosningar til bæj- arstjórnar þann 22. þ. m. Veitið honum einhuga fylgi. James Black Endurkjósið James Black í bæjarráð fyrir 2. kjördeild þann 22. þ. m. A. F. McCrierie Kjósið McCrierie í skólaráð fyr- ir 2. kjördeild þann 22. þ. m. Séra Philip M. Pétursson Vinnið að endurkosningu séra Philips Péturssonar í skólaráð fyrir 2. kjördeild þ. 22. þ. m.

x

Lögberg

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Lögberg
https://timarit.is/publication/132

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.