Lögberg - 10.06.1948, Page 1
Ihaldsflokkurinn endurkosinn
í Ontario með minkað fylgi
Síðastliðinn mánudag fóru
fram kosningar til fylkisþingsins
í Ontario, og lauk þeim með
endurkosningu íhaldsflokksins og
Drew-stjórnarinnar; tala þing-
manna í Ontario er 90, en af
þeirri tölu hlutu íhaldsmenn 53
þingsæti; áður höfðu þeir 66
þingsæti. Drew forsætisráð-
herra féll í kjördæmi sínu High
Park, og verður því að leita end-
urkosningar; landbúnaðarráð-
herrann, sem kosinn var í Peel-
kjördæminu, bauðst þegar til að
rýma fyrir honum sæti. C.C.F.-
flokkurinn þrefaldaði þingstyrk
sinn og hefir nú 22 sæti; Liberal-
ar fengu 12 sæti, og bæta kanske
við sig tveimur; tveir Labor-
Progressives náðu endurkosn-
ingu í Toronto.
Foringi Liberala, Mr. Oliver,
var endurkosinn í South Grey
og leiðtogi C.C.F.-sinna, Mr.
Jolliffé, vann kosningu í South
York.
Svipar saman
um margt
Dr. Victor Nef, sendiherra
Svisslands í Canada, flutti ræðu
í Rotary-klúbbnum hér í borg á
miðvikudaginn í fyrri viku, þar
sem hann lét þess getið, að
stjórnarfarslegum aðstæðum í
landi sínu og Canada svipaði
saman um margt; í Canada væri
tvö megin þjóðerni, það brezka
og hið franska, og tvenskonar
trúarbrögð undir forustu sam-
einuðu kirkjunnar og hinnar
kaþólsku kirkju; tvö opinber
tungumál væri löghelguð í
Svisslandi eins og viðgengist í
Canada og þetta sýndist aldrei
koma að sök, og aldrei valda
neinum þjóðernislegum klofn-
ingi; þetta væri lærdómsríkt og
ætti að geta orðið öðrum þjóð-
um til fyrirmyndar.
Dr. Nef kvað það hafa verið
miklum vanda bundið fyrir
svissnesku þjóðina að gæta hlut-
leysis síns meðan á síðustu
heimsstyrjöld stóð, þó það að
vísu hefði lánast; þá hefði og
öflun hráefna reynst örðug, og
mikinn hluta þeirra hefði orðið
að flytja með vörubílum alla
leið frá Portúgal.
Lincoln Paul Sveinson
B. Sc.
Þessi ungi og glæsilegi maður,
Lincoln Paul Sveinson, lauk í
vor fullnaðarprófi í lyfjafræði
við Manitobaháskólann; hann er
sonur Mrs. Minnie Sveinson hér
í borg og Paul heitins Sveinson,
fyrrum kaupmanns í Wynyard,
Sask. Hinn ungi lyfjafræðingur
er fæddur í Winnipeg 27. janúar
1925. Um þriggja ára skeið var
Lincoln í canadiska sjóflotanum;
hann hefir nú tekist á hendur
ábyrgðarstöðu hjá Frank W.
Horner Limited, kunnu lyfjafé-
lagi í Montreal, Quebec, og
dvelst þar eystra.
“Musica”
nýtt tónlistarrit
Nýtt tónlistartímarit “Musica”
er komið á bókamarkaðinn.
Vísi hefir borizt fyrsta tbl. 1.
árgangs og virðist ritið ágætlega
úr garði gert, smekklegt og flyt-
ur margar ágætar greinar um
tónlist, bæði klassiska og eins
jazz. Virðist hæfilega mikið af
hvoru til þess að gera það að-
gengilegt öllum tónlistarvinum.
Af efni ritsins að þessu sinni
má nefna skemmtilgt og fróðlegt
viðtal við dr. Pál ísólfsson tón-
skáld. Þá er þar minnzt 25 ára
starfsafmælis Sigurðar H. Briem
kennara, en hann hefir, eins og
kunnugt er, unnið mikið og gott
starf í þágu íslenzkrar tónmenn-
ingar.
Annars er efnið fjölbreytt, m.
a. fréttir úr hljómlistarlífinu
innanlands og utan. Margar
myndir prýða ritið.
Útgefandi er Drangeyjarútgáf-
an, en ritstjóri Tage Ammen-
drup.
Vísir 11. maí
Hefir drepið
1 50 minka
Undanfarið hefir borið mjög
mikið á villiminkum suður með
sjó og víðar.
Maður að nafni Karl Karlsson,
sem stundað hefir villiminka-
veiðar s.l. mánuði hefir s k ý r t
blaðinu frá því, að hann h a f i
drepið í allt um 150 minka. 1 s.l.
viku drap hann fjögur kvendýr,
sem voru k o m i n að gotum.
Reyndust vera í þeim 33 fóstur.
Sýnir þetta gleggzt hve örvið-
koma minkanna er.
Karl Karlsson veiðir minkana
aðallega í gildrur, en auk þess
hefir hann drepið allmarga með
haglabyssu. Segir hann, að á
svæðinu frá Hafnarfirði og alla
leið austur í ölvus séu þúsundir
af minkum og fari þeim stöðugt
fjölgandi.
Vísir, 11. maí
Betur má ef
duga skal
í lok fyrri viku nam söfnunin
til hins fyrirhugaða barnaspítala
í Winnipeg hálfri miljón dollara
og verður í rauninni ekki annað
sagt, en vel hafi verið af stað
farið, þó enn vanti tvo þriðju
þeirrar upphæðar, sem nauðsyn
leg er talin; hér er um svo mikið
nauðsynjamál að ræða, eigi að-
eins fyrir Winnipegborg, heldur
og fylkið í heild, að vonandi er
að allir leggist á eitt um fram-
gang þess. Gamli barnaspítalinn
í þessari borg á langa og merka
sögu að baki, en nú er hann orð-
inn langt of lítill til þess að full-
nægja sívaxandi kröfum stækk-
andi mannfélags.
íslenzkir námsmenn við Manitoba
Háskólann hljóta námsverðiaun
Thora Ásgeirson
Richard Leonard Beck
Thora Ásgeirson: University
Women’s Club, scholarship in
Music for highest standing in the
school of music, $25.00; Sellers
scholarship in Arts, $100.
. Richard Leonard Beck: Isbister
scholarship Electrical engineer-
ing, Third year, $80.00.
Fred Ruppel: Isbister Schol
arship in Pharmacy, $60.00;
Charles E. Frosst Proficiency
Award, $50.00; Harman Award,
$25.00.
Carl Thorsíeinson: Isbister
scholarship, $60.00. French
Government book prize.
Irene Thorbjörg Sigurdson:
Richardson scholarship in arts,
$200.00.
Erlingur Kári Eggerlson:
Sellers scholarship in arts
second year, $100.00.
Bodvar Bjarki Jakobson: —
Tucker scholarship in science.
first and second year, $200.00.
löndum til þess að geta varizt
innrás á sjálf Bandaríkin.
Þarf samþykki hlutaðeigandi
Kenneth Royalls tók það fram,
að Bandaríkin gætu ekki fengið
herstöðvar í löndum þessum,
nema með samþykki hlutaðeig-
andi þjóða og þau myndu fara
lagalega leið, ef til þess kæmi,
að á bækistöðvunum þyrfti að
halda. Fjárveitinganefnd öld-
ungadeildar Bandaríkjaþings
hefir nú til meðferðar fjárveit-
ingar til hersins, er Truman for-
seti hefir farið fram á samkvæmt
tillögum hernaðarsérfræðinga
sinna. Skýrsla hermálaráðherr-
ans er gefin í‘ sambandi við þær
áætlanir. Vísir, 3. maí 1948
Miss Agnes Sigurdson hylt í Reykjavík
Fred Ruppel
Hermálaráðherra Bandaríkjanna
segir:
Bandaríkin þurfa
baekistöðvar á íslandi,
Azoreyjum og Grænlandi
Á föstudagskvöldið þann 4. þ.
m., efndi Miss Agnes Sigurdson
til hljómleika í Reykjavík fyrir
fullu húsi áheyrenda og við
geisihrifningu; þegar að hljóm-
leikunum afstöðnum, barst for-
eldrum Agnesar hér í borg svo-
látandi símskeyti:
“Reykjavík, 4. júní 1948.
Sigurdson, 100 Lenore Street,
Winnipeg.
Agnes Object Western Pride
and Icelandic Admiration
Tonight.
Capacity Concert. Greetings.
Bishop Sigurdson,
Lilja and Valdimar”.
Sama daginn barst séra Philip
M. Péturssyni forseta Þjóðrækn-
isfélags íslendinga í Vestur
heimi, eftirgreint símskeyti frá
Þjóðræknisfélagi Islands: *
“Agnes spilaði í fyrsta sinn í
kvöld við stórkostlega hrifningu.
Frábær fulltrúi Islendinga
vestra”. ,
Af áminstum skeytum frá
Reykjavík, er það nú að fullu
ljóst, hve Miss Agnes Sigurðsson
hefir hrifið hugi áheyrenda
sinna með sinni óviðjafnanlegu
tækni, tóntúlkun og snild; öll
sæti að hljómleikum hennar
voru seld löngu fyrirfram, og
Bækislöðvar nauðsynlegar
þess að verjasl innrás í
Bandaríkin
iil
íbúar Reykjavíkur
nærri 54 þúsund
íbúunum í Reykjavík hefir
fjölgað um rúmlega 5650 á síðast-
liðnum tveim árum, þar af um
rösklega 2 þúsund 1946 og um
tæp 3 þúsund sl. ár.
Við síðasta manntal voru íbú-
arnir í Reykjavík samtals um
53.840. Eru þar með taldir allir
þeir, sem skráðir voru í bænum
við manntalið sl. haust, einnig
fólk, sem telur sig eiga lögheim-
ili annars staðar.
Haustið 1946 voru íbúar Rvík-
ur skráðir 51.011, en árið áður
48.186.
hið sama var að segja um aðra
samkomu, sem hún ætlaði að
halda skömmu seinna; nú hefir
það verið bundið fastmælum, að
Agnes haldi einnig hljómleika í
Hafnarfirði og á Akureyri.
Fögnuður heimaþjóðarinna^
yfir heimsókn Agnesar er mikill,
og metnaður okkar Vestur-ís-
lendinga yfir sigurför hennar
hlýtur að verða að sama skapi.
Islendingar hér um slóðir
eru fyrir löngu farnir að hlakka
til hljómleikanna, sem Agnes
heldur í Winnipeg Auditorium
þann 7. október næstkomandi, og
frá verður frekar skýrt eftir því,
sem á líður sumar.
Fjárstuðuingur við
British Columbia
King forsætisráðherra skýrði
frá því í sambandsþinginu síðast
liðinn fimtudag, að óhjákvæmi-
legt væri að stjórnarvöldin í
Ottawa hlypi undir bagga og
veitti British Columbia fylki
fjárhagslegan stuðning vegna
þess gífurlega tjóns, sem hlotist
hefir af völdum áflæðis í fylk-
inu, einkum þó í Fraserdalnum,
en þar er búist við að eignatjón
nemi um 20 miljónum dollara.
Mr. Byron Johnson forsætisráð-
herra fylkisins, hefir skipað sér-
staka nefnd til þess að vinna að
viðreisnarstarfsemi hins fagra
frjósama Fraserdals.
Tvær systur
útskrifast
. Á ný afstöðnum háskólapróf-
um útkrifaðist Donna Shirley
Armstrong sem Bachelor of Sci-
ence og systir hennar Suzanne
Marie Armstrong útskrifaðist
með heiðri sem hjúkrunarkona.
Þær eru dætur Mr. og Mrs. Roy
H. Armstrong, 1019 Dominion
Str. Móðir þeirra er íslenzk.
Thorun Helga Arngrímson
fra Saskatchewan útskrifaðist
með heiðri sem hjúkrunarkona.
Ennfremur útskrifuðust í hjúkr-
unarfræði, Marian Emma Helga-
son og Margaret Ása Sigmund-
son. —
Bandaríkjunum er nauðsyn á
að hafa bækistöðvar á íslandi,
Azoreyjum og Grænlandi til
þess að koma í veg fyrir innrás
í Bandaríkin.
Leggi óvinveiti þjóð Banda-
ríkjunum undir sig meginland
Evrópu, er okkur nauðsynlegt að
hafa herlið á íslandi eins fljótt
og okkur er það unnt, segir í
skýrslu, er Kenneth Royalls,
hermálaráðherra Bandaríkjanna
gaf fjárveitinganefnd öldunga-
deildarinnar.
Hervarnir Bandaríkjanna
Hermálaráðherra Bandaríkj-
anna, Kenneth Royalls, hefir
sent fjárveitinganefnd öldunga-
deildarinnar skýrslu um nauðsyn
legar hervarmr Bandaríkjanna
og þær varúðarráðstafanir, er
þeim væru nauðsyplegar. Þessi
skýrsla hermálaráðherrans hefir
vakið mikla athygli, sérstaklega
þar sem hann tekur fram, að
Bandaríkjunum séu herbæki-
stöðvar nauðsynlegar í öðrum
Skakkur útreikningur
Fjármálaráðherra Breta, Sir
Stafford Cripps, gerði nýlega yf-
irlýsingu í þinginu þess efnis, að
stjórninni hefði yfirsézt varð-
andi útreikning sinn um væntan
legan viðskiftahalla á fyrri sex
mánuðum yfirstandandi fjár-
hagsárs; nú yrði sú staðreynd
eigi umflúin, að hallinn myndi
nema að minsta kosti 292 miljón
um dollara; ekki var laust við að
ýmissum þingmanna þætti þessi
mistök næsta furðuleg.
Skógareldar
Háskalegir skógareldar geisa
um þessar mundir í Missisagi og
Chapleau héruðunum í Ontario,
og ekki hefir það bætt úr skák,
að þar hefir ekki í háa herrans
tíð komið deigur dropi úr lofti;
á svæðunum umhverfis Flin
Flon og Bird River í Manitoba,
hefir nokkuð dregið úr skógareld
um vegna talsverðrar rigningar,
sem þar kom á fimtudaginn var
og aðfaranótt föstudagsins.
Dr. Rúnólfur Marteinsson og frú Ingunn
Á mynd þessari getur aSj líta
Dr. Rúnólf Marteinsson í doktors
skrúðb, ásamt frú Ingunni
Marteinsson, þar sem hann veit-
ir viðtöku heiðursskírteini sínu
við uppsögn Gustaphus Adolp-
hus mentaskólans í St. Peter,
Minn., þann 30. maí síðastliðinn.
Prófessor Ove Olson, yfirkenn
ari við fræðsludeild áminstrar
mentastofnunar, kynti séra
Rúnólf skólastjóra, Dr. Edgar
Carlson, og rakti æviferil hans í
megindráttum.
Við þessa virðulegu athöfn
voru stödd Gunnar B. Björnson
og frú, Valdimar vararæðismað-
ur Björnsson og frú og tengda-
systir hans, ungfrú Herdís Jóns-
dóttir af ísafirði.