Lögberg - 07.10.1948, Blaðsíða 1

Lögberg - 07.10.1948, Blaðsíða 1
PHONE 21374 *otc\ Cleaning Inslilulion PHONE 21374 j mM JrttU ^clett^5 & A Complele Cleaning Inslitution 61. ÁHGANGUR WINNIPEG, FIMTUDAGINN, 7. OKTÓBER, 1948 NÚMER 41 Or borg og bygð Gjafir til Sunrise Lutheran Camp Mrs. P. Peterson, Langruth, $10.00; Mrs. Kr. Goodman, Sel- kirk $5.00 í minningu um tengda- son Larry Davies. (Hlutaðeigendur eru beðnir fyrirgefningar á villu í síðasta gjafa lista er gjöf Mrs. Goodman var auglýst.) Með innilegu þakklæti Anna Magnusson, Box 296 Selkirk, Man. ■* Gjafir til Sunxise Lutheran Camp> Leiðrétting. í síðasta tölublaði iögbergs var prentvilla á upphæð, sem gefin var. Átti að vera: A friend — Winnipeg, $105.00. Með þakklæti, Anna Magnusson. Kvennfélag Sambandssafnaðar efnir til þakklætis Hátíðar Sam- komu næstkomandi Mánudags- kvöld þann 11. okt. Fjölbreytt skemtiskrá hefir verið undirbúin, og ókeypis veitingar fyrir alla. Þetta er tækifæri sem margir nota að mæta kunningjum og ræð yfir kaffibolla eftir að njóta góðrar skemtunar. Mánudags- kvöldið kl. 8:15 í Sambandskirkj- unni á Banning og Sargent. + Að afstaðinni tilkomumikilli guðsþjónustu í Fyrstu lútersku kirkju síðastliðið sunnudags- kvöld, efndi safnaðarráðið til móttökufagnaðar fyrir séra Valdimar J. Eylands og fjöl- skyldu í tilefni af heimkomunni frá Islaridi. Forseti safnaðarins Mr. Linc- oln Johnson, bauð prestsfjöl- skylduna velkomna með viðeig- andi hlýyrðum, en Arni G. Eggertson, K.C. flutti sköruglega ræðu fyrir hönd hinna ýmsu fé- lagsdeilda safnaðarins. Séra Valdimar þakkaði góð- vildina í garð sinn og fjölskyldu sinnar, og sagði frá ýmsu, er fyrir augu og eyru bar á íslandi, mæltist honum að vanda hið bezta. 1 fundarsal kirkjunnar höfðu konur framreitt ágætar veiting- ar. 4- Hin merka og gáfaða kona frú Hansína Olson átti 85 ára aldurs- afmæli síðastliðinn laugardag, í tilefni af þessum merka atburði safnaðist mikill fjöldi aðdáenda og vina á hinu fagra heimili Dr. Baldurs sonar hinnar aldur- hnignu konu að 72 Eastgate, og var þangað gott og gaman að koma, synir frú Hansínu þeir Dr. Baldur og W. H. Olson, stóðu fyr- ir þessum virðulega mannfagn- aði. Um frú Hansínu má rétti- lega segja: “Fögur sál er ávalt ung undir silfurhærum.” Frú Salome Backman er ný- lega komin heim eftir 3 mánaða- dvöl vestur á Kyrrahafströnd, dvalartíma sínum vestra skipti hún niður milli Victoria, Van- couver og Seattle, bað hún Lög- berg að flytja vinum sínum á Ströndinni þakkir fyrir ástúð- legar viðtökur. ■f Hr. Tryggve Thorstensen vél- setjari lagið af stað áleiðis til ís- lands á laugardaginn var, ásamt fjölskyldu sinni. Lögberg óskar fjölskyldu þessari góðs brautar- gengis. ■♦■ Mr. og Mrs. B. J. Lífman frá Árborg og dóttir þeirra Laufey sem búsett er í Saskatoon, voru stödd í borginni í vikunni. Dr. P. H. T. Thorlakson, frú og dóttir, nýkomin heim úr íslands- för, og ferðalagi um Skandinavíu og meginland Norðurálfunnar, myndin tekin á heimleið í Mont- real. Ferðafólk þetta kom heim síðastliðin föstudag. 3200 ÁRA GÖMUL BORG FINNST í EGIPTLANDI Ur borg og bygð Fornfræðingar hafa fundið í Egiptalandi, það sem er gulli dýrmætara í þeirra augum — forna borg í auðnum landsins. Er borg þessi rétt við landa- mæri Súdans og virðist hafa ver- ið einskonar varðstöð á leið úl- faldalesta um þessa slóðir. Hún er talin frá dögum Setis 1. Fara- ós, sem var uppi fyrir meira en 3200 árum. Borgin var orpin sandi, sem var sex feta djúpur og var það hrein tilviljun, að menn skyldu finna hana. Segja fornfræðingar að fornleifarnar þarna eigi sér ekki líka í sögu Egiptalands. Vísir 18. Ágúst Mr. og Mrs. G. J. Oleson frá Glenboro voru stödd í borginni í fyrri viku. Kveðjuorð til íslenzku samtakanna í Winnipeg Eg vildi nota þetta tækifæri til að þakka starfsfólki Col- umbia Press fyrir þann heiður er það sýndi mér með kveðju- samsæti nýverið, ásamt ágæta göf er það leysti mig út með. Eg þakka hr. Einari P. Jónssyni og frú fyrir ágætt samstarf og hin hlýju orð þeirra í minn garð. — Einnig þakka eg hr. J. Th. Beck og Mr. T. Downie fyrir hinar ágætu ræður þeirra. Er það mikill heiður fyrir mig að hafa kynnst þessu áigæta fólki. Eg þakka Miss Eydal fyrir alla hjálpsemi í minn garði þar sem eg hefi verið meðlimur karlakórs íslendinga í Vestur- heimi, bið eg söngfélaga mína að meðtaka mínar innilegustu þakkir fyrir ágæta viðkynninga og ánægjulegar stundir. þakka eg hr. Sigurbirni Sigurðson, Davíð Bjömson og Guðm., Stefanssyni ásamt konum þeirra ýmsa velvild mér sýnda. Og þá er það söngflokkur Fyrstu lút., kirkjunnar, sem eg hefi haft þann heiður að syngja með. — Þakka eg þessu fólki alla á' nægjulegar stundir og alla vel- vild. Þakka eg Mr. og Mrs. Lin- coln Johnson, forseta lút. safn- aðarins fyrir góða viðkynningu og gestrisni einnig söngstjóra kirkjukórsins, Mr.Paul Bardal. Lifið öll heil! Tryggve Thorstensen ■♦■ Þakkarávarp Þar sem við undirrituð erum nú á förum alfarin heim til ís- lands, viljum við biðja frændur okkar, vini og kunningja að með taka okkur innilegustu þakkir fyrir alla vinsemd og gestrisni oss auðsýnda. Við þökkum af hjarta þá miklu rausn er frænd- ur vorir í Argyle-bygð sýndu okkur nýverið. Þá er þeir efndu til kveðjusamsætis að hinu nausnarlega heimili Mrs. Emily Sigmar og leystu okkur út með dýrindis gjöfum. Einnig þökk- um vér Mr. og Mrs. Heimir Thorgrímsson, þá er þau hjón buðu okkur að dvelja nokkra daga að sumarheimili þeirra við Manitoba-vatn, munum vér seint gleyma vinsemd þeirra í okkar garð. Margir aðrir hafa sýnt okkur mikla velvild, en of- langt mál yrði að telja upp öll nöfn hlutaðeigenda. Þá ber að þakka af alhug þeim heiðurs- hjónum Mr. og Mrs. Joh. Beck forstjóra í það, sem þau hafa gert fyrir okkur, megnum vér eigi að meta sem skyldi, þau hjón hafa sýnt okkur svo mikla ástúð og umhyggjusemi, að orð fá eigi lýst. Biðjum vér fóðan alföður að laun þeim fyrir okkur svo og öllum, sem sýnt hafa okkur vin- semd á einn eða annan hátt. Það er vor innilega bæn að sól rétt lætis og bræðralags og kærleika megi varpa geislum sínum yfir láð og lög hins íslenzka þjóðar- brots í Vesturheimi. — Lifið heil! Anna, Tryggve Thorstensen Helga Svanlaugs. Ottawa, September 30, 1948 EDITOR LÖGBERG. WINNIPEG Dear Sir: I know pou will be interested to learn that as part of the CBC series “The Nation’s Business” the Honourable Paul Martin, Minister of National Health and Welfare, will discuss the Nation- al Health Program on Thursday October 7th: In English: 8:45 p.m. A.S.T. 7:45 p.m. E.S.T., 10:30 p.m, C.S.T. 9:30 p.m. M.S.T., 8:30 p.m. P.S.T. In French: .10:15 p.m. E.S.T. So many enquiries have been made and such great interest shown in the implementátion of this program, that it was thought you might like to pass this in- formation on to your readers so that they may secure first-hand information from the Minister who was primarily concerned with its introduction. Yours sincerely, D.G. Emerson Private Secretary -f Lárus Pálsson og Margret Sigurveig Johnson voru gefin saman í hjónaband 26. sept. s.l. Séra B. A. Bjarnason gifti og fór athöfnin fram á heimili hans í Arborg, Man. Brúðkaupssam- sæti var síðan haldið á heimili foreldra brúðarinnar, Mr. og Mrs. Valdimar Johnson, í River- to, Man. Foreldrar brúðgumans eru Mr. og Mrs. Lárus Pálsson, í grend við Arborg. Heimili ungu hjónanna verður í Arborg, þar sem brúðguminn starfar í þjón- ustu Manitoba Pool Elevators. ■f Walter McGregor Dryden og Guðrún Sigurlaug Helgason voru gefin saman í hjónaband 24. sept. s.l. í lútersku kirkjunni við Hnausa, Man. Séra B. A. Bjarna- son gifti. Vegleg brúðkaups- veizla var setin í Hnausa Hall. Brúðguminn er umsjónarmaður fyrir Manitoba Power Commiss- ion í Nýja Islandi. Brúðurin er dóttir Mr. og Mrs. Helgi Helga- son, Hnausa, Man. Heimili ungu hjónanna verður í Gimli, Man. í þeirri von að þér gæluð verið mér og konu minni hjálplegir við að fá fregnir af bróður henn- ar Ásmundi Árnasyni, Eiriks- sonar, kaupmanns og leikara frá Reykjavík. Svo er mál með vexti að Ás- mundur fór vestur um haf 1919 eða 1920 og settist að í Canada. Fyrstu árin skrifaði hann nokkr- um sinnum heim, en er lengra leið strjáluðust skriftirnar og er síðasta bréfið sent frá Waterhen í Manitobafylki þ. 30. júní 1927. Skrifaði hann sig þá A. A. Eiriks- son. Áður hafði hann verið í Brookdale í sama fylki; en hvenær eða hve lengi hann hefir verið þar vitum við ekki nú. Nánustu ættingjar Ásmundar á fclandi eru fjögur hálfsyst- kini, börn Árna og síðari konu hans, en hjá henni ólst hann upp etfir lát móður sinnar. Hefir ættfólk hans verið að vonast eftir að heyra frá honum en eftir því, sem árin hafa liðið hefir vonin orðið veikari og varla að vænta frétta af honum nú, nema að ^era sig eftir þeim. Eg og kona mín Þóra, dveljum í New York nú um sinn. Höfum við átt tal um þetta við Vestur- íslendinga, sem kunnugir eru staðháttum og hafa þeir tjáð okkur að íslenzku blöðin í Can ada nái til flestra ef ekki allra íslendinga þar um slóðir og fá ist engar upplýsingar um Ás- mund með þeirra liðsinni, þurfi ekki lengur að reyna. Og nú skrifum við yður til þess að spyrja hvort þér mynd- uð hafa rúm í blaði yðar fyrir smáklausu, þar sem leitað væri eftir upplýsingum um Ásmund til þeirra sem kynnu að þekkja á honum deili eða vita um af- drif hans sé hann ekki lengur lífs. Eg veit ekki hvert gjald kemur fyrir " slíkar fyrirspurnir, en vænti reiknings frá yður. Með fyrirfram þökk. Virðingarfyllst, BJARNI JÓNSSON, læknir HON. GEORGE DREW hinn nýkjörin leiðtogi íhalds- flokksins Joseph Soffanias Johnson og Metta Guðrún Thorkelson voru gefin saman í hjónaband 4. sept. s.l. í lútersku kirkjunni við Árnes, man. Á sama tíma og sama stað, voru einnig gefin saman í hjónaband Hörður Sig- urvin Guðbjartson og Emilia Júlana Thorkelson. Séra B. A. Bjamason framkvæmdi hjóna- vígslurnar í fjarveru sóknar- prestsins. Metta Guðrún og Emilia Júliana eru systur, en foreldrar þeirra eru Mr. og Mrs. Sigurður J. Thorkelson, Árnes, Man. Fyrnefndi brúðguminn, Mr. Johnson, er kaupmaður við Ed- dystone, Man., og er sonur Mr. og Mrs. Steini Johnson, Lonely Lake, Man. Hörður er sonur Mr. og Mrs. Andrés Guðbjartson, Hnausa, Man., og stundar land- búnað. Að hjónavígslunum af- stöðnum var samsæti haldið að heimili Mr. og Mrs. Thorkelson. ■f BRÉF TIL LÖGBERGS 86-15 Elmhurst Ave. 4H, Elmhurst-Long Island New York, N.Y. 21. sept., 1948 Herra ristjóri Einar P. Jónsson, Winnipeg. Hr. ritstjóri: Eg leyfi mér að leita til yðar Lúterska kvenfélagið, á Gimli, heldur sína árslegu þakkargjörð- ar samkomu í kirkjunni þriðju- daginn, 12. okt. n.k. hl. 8:15 e.h. Vandað hefir verið mjög til þessarar Samkomu. Á fjöl- breyttri Skemtiskrá er meðal annars ræðuhöld, söngur piano solos. Aðal ræðumaður kveldsins er Mr. Menzies, skóla umsjónar- maður. Að endalokum verða bornar fram veitingar. Mr. og Mrs. J. H. Norman frá Gimli komu til borgarinnar á mánudaginn. ■♦ Mr. og Mrs. Sigurður Einars- son eru nýkomin norðan frá Flin Flon. ♦ Mrs. Arni Helgason frá Chi- cago var stödd í borginni í fyrri viku, og hélt héðan suður í North Dakota í heimsókn til ættingja og vina. ♦ Vantar Kvennmann miðaldra eða yngri sem allra fyrst, til að líta eftir lösnum gamalmennum að Betel. Snúi sér til Mrs. Brand- son sími 403 288. ■f The Junior Ladies aid will not meet next Tuesday. The fall silver tea will be held in T. Eaton’s Assembly Hall, Saturday October 16, and the next meeting in the church parlors on Tuesday October 19. ♦ Laugardaginn 25. september voru gefin saman í hjónaband að heimili Lúterska sóknarprestsins í Selkirk. ■♦■ Valdi Jóhannesson, bóndi við Víðir, Man., og Guðrún Thora Peterson, Arborg, Man. Gifting- arvottar voru Miss Dagmar Jó- hannesson, systir brúðgumans og Miss Freda Magnússon. Brúður- in er dóttir Mr. og Mrs. Sigfús F r a n k 1 i n Peterson, Arborg. Brúðguminn er sonur Mr. og Mrs. Valdimar Jóhannesson í Arborg. Ungu hjónin setjast að í Víðirbygð. Miss Agnes Sigurdson Recital Patrons: His Honor, R. F. McWilliams, K.C., Lieut. Govenor of Mani- toba. The Honorable Stuart S. Garson, Premier of Manitoba. His Worship Lt. Col. G. C. Mac Lean, Mayor of St. Boniface. His Worship Garnet Coulter, Mayor of Winnipeg. ■♦■ Mr. and Mrs. H. Marteinson on Spruce St. have returfied from Banff and the West Coast, where they spent a lovely week. 4- Fjölmennið á þakkarhátíðar samkomuna sem hið eldra kvenn félag Fyrsta lúterska safnaðar efnir til í fundarsal kirkjunnar á mánudagskvöldið þann 11 þ.m. þar fer fram vönduð og fjöbreytt skemtiskrá. 4- Mr. og Mrs. Hallgrímur Sig- urðsson frá Gimli dvelja í borg- inni þessa dagana. SNJÓLAUG SIGURDSON Rétt áður en blaðið var svo segja fullbúið til prentunar barst því sú fregn, að Miss Sigurdson, hinn kunni og ágæti píanisti, hefði ákveðið að efna til hljóm- leika í Harding-Kennedy Hall í New York á fimtudagskvöldið þann 14 þ.m. Hljómleikar þessir verða haldnir á vegum W.S.C.S. fyrir atbeina Mrs. Harold Lind- berg.

x

Lögberg

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Lögberg
https://timarit.is/publication/132

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.