Lögberg - 07.10.1948, Qupperneq 2
2
LÖGBERG, FIMTUDAGINN, 7. OKTÓBER, 1948
--------i.ogtjerg-------------------
&efið út hyern fimtudag af
THE COLUMBIA PRESS, LIMITED
695 Sargent Ave., Winnipeg, Manitoba
Utanáskrift ritstjörans:
EDITOR LfiGBERG
<59S Sargent Ave., Winnlpeg, Man
• Ritstjóri: EINAR P. JÓNSSON'
Verð $3.00 um árið—Borgist fyrirfram
The "Lögberg” is printed and pubiished b>
The Columbia Press, Limited, 695 Sargent
’ Avenue, Winnipeg, Manitoba, Canada
Authorized as-S-icond Ciass Mail
Post Office Dept., Ottawa.
PHONE 21 804
íhaldsmenn veija sér leiðtoga
Landsþingi íhaldsmanna lauk í
Ottawa á laugardaginn eftir þriggja-
daga setu, var þingið eins og vænta
mátti fjölsótt og að sögn allmiklu fjör-
legra en fundurinn í Winnipeg er kaus
Mr. Bracken að leiötoga, hafa sendi-
fulltrúar hins nýafstaðna landsþings
auðsjáanlega haft það á vitund, að nú
væri ekki um anað að ræða en duga eða
drepast og þessvegna myndi sá vegur-
inn viturlegastur að bera sig karlmann- *
lega og láta sem í ekkert heföi skorist
þó hagur flokksins hefði ekki verið sem
allra ákjósanlegastur undanfarin ár.
Samkvæmt hinni nýju stefnuskrá,
er íhaldsflokkurinn næsta örlátur á lof-
orð, og má vera að honum sé það í raun-
inni ekki láandi, því nú eru ábærilega
góð ráð dýr, hann hikar ekki við að lofa
stórvægilegri lækkun skatta, þó hann á
hinn bóginn krefjist aukinna hervarna,
er flestum skilst að hafa muni þó nokk-
urn aukakostnað í för með sér, hann
mælir með ríflegari undaþágun frá
tekjuskatti en fram að þessu hefir geng-
ist við, að undanþágur kvæntra manna
verði bundnar við $2,500 en einhleypra
manna og kvenna við $1,250. Þetta er í
sjálfu sér blessað og gott komi skynsam-
legri leiðir til tekjuöflunar í staðinn en
þær, sem fram að þessu hafa valdar ver-
ið, hann mælir með hækkun ellistyrks,
það hafa hinir flokkarnir gert líka, og
þetta er alt saman blessað og gott, endi
ekki alt við orðin tómi, þá er og rík
áherzla lögð ástóraukna vinslu náttúru
fríðinda landsins, og er um það að sjálf-
sögðu ekki nema gott eitt að segja, en
þetta hafa hinir flokkarnir gert líka
og í því efni skilur þá ekki neitt.
Að því er kornræktina áhrærir
Jýsti áminst flokkþing óánægju sinni
yfir gerðum kornsöluráðsins, sem í raun
og veru væri ekki annað en sósíalistik
stjórnardeild, er orsakað hefði bændum
geisilegt tap, hallaðist þingið á þá sveif,
að bændum yrði jafnframt gefinn kost-
ur á að selja korn sitt á frjálsum mark-
aði eftir því sem þeim þætti bezt henta,
hvort heldur væri á kornmiðlarahöllinni
í Winnipeg eða annars staðar.
En er til þess korri að velja eftirmann
Mr. Brackens, var landsþing flokksins
ekki í neinum vafa um afstöðu sína,
gengið var til atkvæða um þrjá menn,
og var George Drew forsætisráðherra í
Ontario þegar kjörinn til leiðtoga við
fyrstu atkvæðagreiðslu við miklu afli
atkvæéa, hlaut hann 837 atkvæði, John
D. Diefenbaker 311 en Donald Fleming
104.
Er kunnugt .varð um úrslit, var Mr.
Drew þegar hyltur mjög af hinum mikla
mannsöfnuði, en keppinautar hans báð-
ir mæltu með því kosning hans yrði lýst
yfir í einu hljóði og varð það að ráði.
Mr. Drew þakkaði það traust er
flokkurinn hefði látið sér í té, og kvaðst
aldrei mundi bregðast því.
Val Mr. Drews til flokksforustunn-
ar, mun ekki hafa komið neinum á óvart,
hann er glæsimenni í framgöngu,
mælskur vel," og hefir veitt Ontario
örugga stjórnarforustu.
Allmargir, ekki sízt í Vesturland-
inu, munu harma það, að Mr. Diefen-
baker skyldi ekki ná kosningu til
foringjatignar, en um slíkt þýðir ekki
að sakast eftir dúk og disk.
Hvort Mr. Drew verður forsætis-
ráðherra í Canada eða ekki, er enn falið
hulinshjálmi framtíðarinnar, en víst má
telja, að hann 'verði að minsta kosti
formaður stjórnarandstöðunnar á
næsta þingi, og á þeim vettvangi skarar
hann alveg vafalaust langt fram úr Mr.
Bracken, að honum alveg ólöstuðum.
Er Mr. Drew lætur af stjórnarfor-
ustu í Ontario sem verða mun bráðlega,
tekur við stjórnartaumunum þar í fylk-
inu Mr. Thomas Laird Kennedy, land-
búnaðar ráðherra fylkisstjórnarinnar.
♦ -f
Agnes Helga Sigurdson
Á fimtudagskvöldið þann 14. þ.m.
efnir ungfrú Agnes Helga Sigurdson til
pianohljómleika í Playhouse hér í borg-
inni, eins og áður hefir verið vikið að hér
í blaðinu.
Þó orðið sé all langt um liðið síöan
Winnipegbúum hefir gefist þess kostur
að hlýða á tóntúlkun Agriesa, þá stendur
mönnum enn í fersku minni með hve
miklum ágætum ti-1 tókst um hljómleika
hennar, og hve óvenjulega fagra dóma
tóntúikun' hennar þá hlaut í dagblöðun-
um þessarar borgar, síðan hefir Agnes
um langt skeið stundað kappamlega
nám hjá víðfrægum kennurum í New
York og tekið glæsilegum þroska í hinni
fögru og ódauðlegu list.
Agnes er fyrir skömmu komin heim
úr Norðurálfuför, hún heimsótti ísland
og hélt þar nokkura hljómleika við mikla
hrifningu og ástúðlega viðtökur, um-
mæli dr. Páls ísólfsonar um hljómleika
Agnesar í Reyltjavík, voru á sínum tíma
birt hér í blaðinu og þau þurfa ekki
endurtekningar við, þau voru í öllum
efnum hin lofsamlegustu, og kallar þó
dr. Páll ekki alt ömmu sína, er hann
dæmir um hljómleika.
Vafalaust bíða flestir með óþreyju,
að hlusta á hina væntanlegu hljómleika
Agnesar, og þessvegna má þess óhætt
vænta, að þangað komi allir sem vetlingi
geta valdið þann 14 yfirstandandi
mánaðar.
Varðandi sölu aðgöngumiða vísast
til auglýsingarinnar um áminsta hljóm-
leika, sem birt er á öðrum stað hér í
blaðinu. Að hljómleikum þessum stend-
ur framkvæmdarnefnd Þjóðræknisfé-
lags íslendinga í Vesturheimi.
+ + +
Líknarsamlagið
Svo að segja alveg nýverið er hafin
fjársöfnun í starfrækslusjóð Líknar-
samlags Winnipegborgar, eins og við
hefir gengist á undarförnum árum,
Stofnanir þær sem Líknarsamlagið
annast um, eða í raunréftri ber á hönd-
um sér eru margar og þær þurfa allar
fjárstuðnings við, umkomulaus börn og
örvasa gamalmenni þurfa á hjálp að
halda, ekki sízt eftir að hinn kaldrifjaði
Manitoba vetur gengur í garð, því þó
enn sé sólfar mikið og dýrðar blíða
blessi alt sem hér lifi, er ekki lengi að
breytast veður í lofti, ekki sízt eins ög
nú er liðið á haust. Auðugur í dag, snauð-
ur á morgun, heill í dag, sjúkur á
morgun, sprækur í dag, hrumur á morg-
un. Þetta verða menn að hafa hugfast,
er umboðsmenn Líknarsamlags borgar-
innar inna af hendi húsVitjanir sínar, og
þetta eiga menn raunar að hafa hugfast
allan ársins liring.
F.O.B. WPC.
36? BAG
Covering Cap. 10 tq. ft.
Long Lasting, Trouble Free
INSULATION
See Your Lumber or Building Suþply Dealer
CANADIAN
PH. 201 185
WESTERN
BOX CO. LTD.
ST. BONIFACE
• No Lower Cost Insulation
• Vermin Proof
• Easy to Install
• Cool in Surnmer — Warm
in Winter
AH
Heilsuvernd barnn
Á síðari árum er áherzla mikil
lögð á heilsuvernd og ýmisar
aðgerðir er koma í veg fyrir
sýkingu og sjúkleika; heilsuv-
erndarstöðvar eru nú víðast í
borgum og bæjum og mikið
sóttar.
Leon Baumgartper heitir kona
sem er læknir og var nýlega
forseti á heilsuverndaþingi í
Washington, en sú deild þingsins
fjallaði aðallega um heilsuvernd
barna og kvenna. Ummæli þau
sem á eftir fara eru eftir henni
höfð.
„Heilsa“ er ekki eingöngu það
að vera ekki sjúkur, heldur og
vellíðan, þar sem líkami, hugur
og tilfinningar eru í góðujafnv-
ægi og starfa eðlilega. Það er
nauðsyn á að fólk skilji að „til-
finning“ heyrir undir heilsuna.
T. d. getur magaverkurinn, sem
barnið kvartar um, er það hef.r
áhyggjur af kunnáttu sinni í
skólanum, verið alveg eins
raunverulegur og magaverkur
sem það finnur til frá botnlan-
ganum.
Það er skoðun þeirra sem um
heilsuvernd fjalla, að það sé
ástæða til að veita athygli líðan
barna sem eru frisk, engu siður
en að hjúkra sjúkum börnum.
Hjúkrun barna er auðveldari
nú en áður, t. d. hafa penicillin
og sulfa meðöl komið í veg fyrir
langar legur eftir lungnobólgu
og eru oft til bóta við eyrnabólgu
o. fl.
Framfarir hafa orðið miklar í
hjartaaðgerðum og eykur það
vonir um að hjálpa megi hinum
svokölluðu bláu bömum. Talið
er að „fluorine“ muni minnka
mjög tannskemmdir barna. Sum-
staðar hefir sá siður verið tekinn
upp að láta fluorsölt í drykkjarv-
atnið.
Og rannsóknir sýna að tannsk-
emmdir barna minnka 40%,
þegar smurt er á tennurnar
vissri blöndu af „sodium fluo-
UG/1M4L
IWENNA
NGIRIORG JÓNSSON
ride“.
Nú eru og fáanleg hin svo-
köllud sefjunarlyf sem bæta
mjög líðan barna og eru notuð
við ýmiskonar ofnæmi. önnur
tegund er notuð handa þeim
börnum, sem hættir við að frá
krampa eða flog og gerir þeim
ært að lifa eðlilegu lífi.
Rannsáknir hafa sýnt hversu
iiíðandi það sé að þunguð kona
leg^i sér hollan mat til munns.
Nægar sannanir eru fyrir því, að
það é hinu ófædda barni skil-
vrði fyrir góðri heilsu, að móð-
Tin hafi vit á að velja sér heil-
næma fæðu.
Dr Baumgartner mælir með
innsprautingum, sem nú eru al-
gengar gegn smitandi sjúkdóm-
um. Við mislingum og kíghósta
eru bólusetningar þó ekki al-
gerlega öruggar, en fái börnin
þessa sjúkdóma, samt sem áður
verða þeir vægari. Hin uppruna-
lega bólusetning við bólu) er
sjálfsögð og einnig við barna-
veiki. Sumstaðar, Bandaríkju-
um eru einnig gefnar inn-
sprautingar við taugaveíki og
enda í sumum héruðum við
stífkrampa.
Slysahætta hefir alstaðar auk
izt. Foreldrar ættu að kenna
börnum sínum að fara gætilega
án þess þó að hræða þau um of.
Hyggilegt er að hafa góða gát á
heilsufari barnanna og leita
læknis ef þörf gerist, en forðast
þó sífelldar áhyggjur og
hræðslu um börnin. Það er
bæði mæðrum og börnum til
skaða.
Þegar börnin eru að læra að
ganga hættir þeim við að detta,
en það fer með aldrinum. Og
skrómur og smá meiðsli koma
síðar þegar börnin eru orðin
stærri og leika sér úti og inni.
Slík meiðsli eru ekki hættuleg,
en ástæða er til að benda böm-
unum á að vera ekki of ærsla-
fengin. Hættulegra er ef eitt-
hvert eitur er til í húsinu. Þess-
konar ætti alltaf að geyma á
hæstvj hillum eða í lokuðum
hirslum og aldrei þar sem börn
geta náð í það. —Vísir
il'
l'1
l||
I1
l|
RlPIÐ tækifærið
Eins og samkepni á sviði viðskiptalífsins nú er
háttað, liggur það í augum uppi hve mikilvægt
það sé, að piltar og stúlkur fái notið hagkvæmrar
mentunar í öllu því, sem að skrifstofustörfum
lýtur; slíka mentun verður fólk að sækja á Business
College. Það verður nemendum til ómetanlegra
hagsmuna, að leita upplýsinga á skrifstofu Lög-
bergs í sambandi við verzlunarskólanámsskeið.
Þau fást með aðgengilegum kjörum.
GRÍPIÐ TÆKIFÆRIÐ!
THE COLUMBIA PRESS LTD.
695 SARGENT AVENUE
WINNIPEG.
f r AtcrWinnip«S
í~\ i ní Ol‘edlCr
„ilV C^G2.St y0iiilo6a
, , n JS6
Tilephonc t
rni
|ai« s,ree‘
,al varíSandi
■'**vi
rsainlag8 ^„iaríélagi1"1 1
n er a® *££**<*«*'■ . & sam9tart8,
1 „nari, en a ■ „ tvrir
úegaV’ llknarsamlaJ« ^aC tj
• «*-TEjSffS£S. S-ToST-í
°rm a
ta!r t iyrit 'janKa’ um aS
I »rlr rnka’ i6 vlss nrn
ta ^ getiö verlö
r íVrnarsamlagi0 g mUr
i^Ugangi sínum. _,ama6urinn n,
r ívmarsamlagi® g mur,
u88int
Vegar Rea nan hfvtt g
a8 &■ enga lC a5
num VCar' V
7t»«“' *no*n „ ».)»-
”” 5“r- „ «. «nir^«w“o“o-
ibíum *eng bygKUegrar t.
aöniötanð. virSingarfV „
28 Red Featuer Ser
“Your 2»
:
CHítdroti^ Aid Socíety of E. Manitoba
ChiMten'a Aid Society of Winnipoy
Children'i: Home of Winnipeg
jewish ChUdren's Home and Aid Society
Joan of At'it Day Nursery
Kindergartcn Settlement Association
Knowvles Stfjbool for Boys
Mothers'' Association Day Nursery
St. Agnes1' Pxiory
St. Jos«*ph'* Vocational Schopl
Tamily But^u of Winnipeg
Hottu* Wetfare Association
Jewish Otd Ifölks' Hpnte
Middlechurch Hoffle
Canadian National Institute for the Blind
Cancer Relief & Research Institute
Children's Hospital of Wi/tnipeg
Victoria n Order of Nurses
Winnipeg General H.ospital
B'nai B'rith rSoVh Air Camp
Girls' Residential Club (Sisters of Service)
Morton Fresh Air Camp
Robertson Fresh Air Camp a
Salvation Arjmy Fresh A»r Cíimp
Spariing Ttesh Air Camp
Young Men's Christian Association
Young Women'i Christian Association
Councii of Social Agencies of Greator Winnipeg
19 4 8
A.F P l A l
' v) c
B E G I N S M 0 N
0 C T 0 B E R
1