Lögberg - 18.11.1948, Síða 2

Lögberg - 18.11.1948, Síða 2
2 LÖGBERG, FIMTUDAGINN, 18. NÓVEMBER, 1S48 Hogberg GefiS út hvern fimtudag af THE COLUMBIA PRESS LIMITED 695 SARGENT AVENUE, WINNIPEG, MANITOBA Utanáskrift ritstjórans: EDITOR LÖGBERG, 695 SARGENT AVENUE, WINNIPEG, MAN. PHONE 21 804 Ritstjóri: EINAR P. JÓNSSON Verð $3.00 um árið—Borgist fyrirfram The “Lögberg” is printed and published by The Columbia Press Ltd. 695 Sargent Avenue, Winnipeg, Manitoba, Canada. Authorized as Second Class Mail, Post Office Department, Ottawa GUTTORMUR J. GUTTORMSSON SKÁLD sjötugur Eftir prófessor RICHARD BECK Ræða flutt á afmælishátíð í Riverton 14. nóvember, 1948 Herra forseti! Heiðursgestur og fjölskylda! Kæru landar! Heill sé ykkur, Ný-íslendingum, fyrir að hafa efnt til þessa mannfagnaðar til heiðurs sveitunga ykkar, skáldinu Guttormi J. Guttormsson. Það ber bæði vitni drengskap og lofsverðum skilningi á menningarlegum verðmætum og á þeim mönnum, sem helga ævistarf sitt um annað fram andlegri iðju. Sjálfur tel eg mér það einnig mikinn sóma að hafa verið beðinn að flytja aðalræðuna fyrir minni skáldsins í þessu afmælishófi; eg á honum, eigi síður en þið, mikla og margfalda skuld að gjalda, fyrir gleðina og andlega gróðann, sém kvæði hans og leikrit hafa flutt mér, og fyrir meir en tveggja áratuga holla og drenglundaða vináttu. Þar að auki erum við báðir Austfirðingar og teljum ennfremur til frændsemi. Til þess er einkum ætlast, að eg tali hér um skáld- ið Guttorm J. Guttormsson, og er það veglegt og ljúft hlutverk, en skáldskapur hans er ósjaldan svo persónu- legur, sprottinn upp úr jarðvegi umhverfis hans og eigin reynslu, að eigi verður svo rætt um skáldið, að mannin- um sjálfum verði eigi að meira eða minna leyti lýst um leið. Jafnframt vil eg í byrjun máls míns leggja áhrezlu á það, að skáldskaparsvið Guttorms J. Guttormsson er svo víðlent, að í hálftíma ræðu verður aðeins unnt að litast þar um af hæstu hnjúkum og tína nokkur bragablóm úr þeim f jölskrúðuga gróðri, sem þar hlær við sjónum. Guttormur er hið eina meiriháttar ljóðskáld okkar íslendinga í Vesturheimi, sem fæddur er hér í landi. Að því leyti skipar hann sérstöðu í skáldahópnum ís- lenzka beggja megin hafsins. En vitanlega tryggir það eitt honum ekki varanlegan sess í íslenzkum bók- menntum, heldur hitt, að hann er óvenjulega svipmikið skáld, frumlegur og þróttmikill í skáldskap sínum. Afrek hans á því sviði eru þeim mun aðdáunar- verðari, þegar í minni er borið, að hann er maður lítt skólagenginn og hefir löngum um ævina átt við andvíg kjör að búa til bókmenntalegra starfa. EJn honum var bókmennta og bókhneigð í blóð borin, og hann hefir bætt sér þannig upp stutta og slitrótta skólagöngu sína, að hann er orðinn óvenjulega víðlesinn maður, svo víðleöinn, að margur háskólagenginn maður stend- ur honum þar að baki. í sambandi við víðtækan lestur hans, á íslenzku og erlendum málum, sem hér er eigi tími til að rekja nánar, vil eg draga athyglina að þessum ummælum hans: “Eg hefi einnig gert mér það að ófrá- víkjanlegri reglu að lesa nokkrar íslendingasögur ár- lega. ekki efnisins, heldur málsins vegna.” Þessi ágæta venja skáldins er mjög til fyrirmyndar. Bókmenntastarfsemi Guttorms hefir verið harla miki! að vöxtum og fjölbreytt að sama skapi. Hann hefir gefið út fjórar ljóðabækur, sem nú, að viðbættum kvæðum hans frá síðustu árum, eru nýkomnar út í heildaEútgáfu heima á Íslandi, og auk þess heilt safn leikrita, sem skipa sérstæðan sess í íslenzkri leikrita- gerð, vegna frumleiks þeirra og spaklegrar hugsunar. Hafa eigi allfá af kvæðum hans verið þýdd bæði á ensku og frönsku, og komið út í ljóðasöfnum og merkum tíma- ritum bæði hér í Vesturheimi og í Norðurálfu. Merkileg verk á sviði skáldskaparins hefir hann því sannarlega unnið í hjáverkum frá búskaparstritinu, þessi sveitungi ykkar, landneminn í Grunnavatnsbyggð og bóndinn á Víðivöllum. Réttilega hefir hann talinn verið höfuðskáld ís- lenzkrar landnámstíðar vestan hafs og hetjuanda hennar. Líf og stríð landnemanna þekkir hann af eigin sjón og reynd; foreldrar hans höfðu bæði hnigið að velli um aldur fram í þeirri harðvítugu baráttu. Enginn hefir heldur sungið íslenzkum landemum sannari eða fegurri lofsöng heldur en hann gerir í kvæðinu “Sandy Bar”, þar sem mikið andríki og listrænt ljóðform fallast í faðma; “Að mér sóttu þeirra þrautir, þar um espihól og lautir, fann eg enda brendar brautir, beðið hafði dauðinn þar. Þegar elding loftið lýsti, leiði margt eg sá, er hýsti landnámsmanns og landnámskonu ' lík — í jörð á Sandy Bar, menn, sem lífið, launað engu, létu fyrr á Sandy Bar . Heimanfarar fyrri tíða fluttust hingað til að líða, sigurlaust að lifa, stríða, leggja í sölur heilsufar, falla, en þrá að því að stefna, þetta heit að fullu efna: Meginbraut að marki ryðja merkta út frá Sandy Bar, braut til sigurs rakleitt, rétta, ryðja út frá Sandy Bar.” Brautina ruddu þeir til sigur, til áfangans, þar sem þið standið niðjar þeirra, sem nú byggið hið forna landnáni, og vissulega skyldi það í minni geymast, hve dýru verði sá sigur var keyptur, við “svita, blóði og tárum”. í öðrum kvæðum Guttorms, svo sem í söguljóði hans. Jón Austfirðingur, er einnig brugðið upp mörgum glöggum og átakanlegum myndum úr frumbyggjalífi og baráttu íslendinga á þessum slóðum, samfara skáld- legum og ranusönnum lýsingum á náttúrufegurð land- námsins. Eitt er vist, að í kvæðum sínum hefi Guttormur sett Nýja-ísland á landabréf íslenzkra bók- mennta með þeirri snilld og þeim varanleika, að það mun seint þurkast þar út. Enginn fær heldur lesið svo kvæði hans um líf og baráttu íslenzkra landnema vestan hafs, að hann finni eigi, hve djúpstæð samúð er þar hin sterka undiralda og þá er komið að öðrum meginþætti í skáldskap hans og lífshorfi. Hann hefir verið nefndur “skáld þeirra, sem eru minni máttar.” Þetta kemur fagurlega og á áhrifamikinn hátt fram í hinu yndislega kvæði hans: “Góða nótt”: “Tak þú, svefn, í ástararma alla menn, sem þjást og harma, legg þinn væng á lukta hvarma, láttu öllum verða rótt, leyf þeim, draumur, lengi að njóta lífsins sem í vöku brjóta skipin sín í flök og fljóta fram hjá öllu. — Góða nótt! þeim, sem fram hjá fegurð lífsins fara í vöku. Góða nótt!” \ Hér er hátt til lofts og vítt til veggja, f a n g v í ð samúð, sem nær til allra þeirra mannanna barna, er bera skarðan hlut frá lífsins borði og eiga undir högg að sækja. Þessi víðfeðma samúð, sem á sér rætur í djúpri réttlætistilfinningu, er einnig undirstraumurinn í hvass- yrtum og oft framúrskarandi markvissum ádeilukvæð- um skáldsins, þar sem hann vegur djarft að misrétti og óheilindum, harðýðgi og heimsku. Hér er eigi svigrúm til að ræða nánar hin lengri kvæði hans af því tagi, en kaldhæðnin missir ekki marksins í vísunni “Gáfna- merki”: “Gáfnamerki gott: að þegja, glotta að því, sem aðrir segja, hafa spekinssvip á sér; aldrei viðtals virða neina, virðast hugsa margt, en leyna því, sem raunar ekkert er. En þó Guttormur láti svipu háðnepju sinnar dynja á yfirborðsmennsku og smásálarskap, kann hann jafn vel að meta manndóm og drengskap, eins og mörg kvæði hans til samferðamanna og kvenna votta ótvírætt. Sannleikurinn er einnig sá, að þó hann sé ósjaldan bituryrtur og meinhæðinn, liggur honum einnig græsku- laust gaman létt á tungu, eins og í vísunni “Trú á sigur hins góða”, sem orðin er húsgangur meðal landa hans beggja megin hafsins: “Komir þú í hús þar sem kaffi er ekki á borðum, kunnifðu ekki vel við að biðja um það með orðum, stattu þá hjá frúnni um stund án þess að tala, strjúktu á henni bakið og þá fer hún að mala.” Ennfremur er löngum grunnt á alvörunni í kýmni- kvæðum Guttorms, enda er því jafnan þannig háttað um hin sönnu kýmniskáld. Það er einnig mála sannast, að hann er í ríkum mæli skáld íhyggli og innsæis. Lýsir það sér glöggt í hinum táknrænu (symbolic) kvæðum hans, sem bæði eru frumleg og mörg hver snilldarleg að öðru leyti, svo sem “Býflugnaræktin” og “Birnir,” hvort öðru ágætara, að tvö ein séu nefnd, en verða að lesast í heild sinni til þess, að menn njóti þeirra til fulls. Og sannarlega ber það fagurt vitni skarpri athyglis- gáfu skáldsins og þróttmikilli skáldgáfu hans, að hon- um verður eins algengt fyrirbrigði og býflugnaræktin áhrifamikil og algild táknmynd andlegrar harmsögu þeirra allra, sem fátæktar vegna eða af öðrum ástæðum sjá eigi drauma sína rætast ,en verða að sætta sig við það harða hlutskipti, að listgáfu þeirra fái eigi að vaxa vængir nema að litlu leyti. Guttormur er jafnframt skáld fegurðarinnar, eins og lýsir sér ágætlega, í náttúrulýsingum hans, bæði í kvæðum hans og lausavísum, sem eru merkur þáttur í skáldskap hans. Eftirfarandi lýsing hans á Indíána- sumri, sem við þekkjum öll af eigin reynd, er einhver allra skáldegasta og ljóðrænasta náttúrulýsing hans: “Indíána sumar er svanni með svart og mikið hár, koparlitt, æskuslétt andlit og ylhýrar dökkar brár. Hárið er skammdegis húmið að hníga, með stjörnuglans, hörundsliturin haustleg hálmbleikja akurlands, Laufum með regnbogalitum, litum hins dýrasta ríms, skrýðist hin prúða og prýðist perlum daggar og hríms. /4n K AAtÁL IWENNA Ritstjóri: INGIBJÖRG JÓNSSON Skapar tæknin lífshamingju? Eg hefi verið að fletta einu hinna myndauðugu og lit- fögru tímarita og skoða allar hinar lokkandi auglýsing- ar. Auglýsingar um hin og önnur ný tæki og vélar, sem sagt er að geri manni lífið léttara, skemtilegra og hamingjusamara, og jafnvel geri mann að betri manni. Þarna er húsfreyja, glöð og ánægð, að þvo í nýtízku þvottavél, þarna er mynd af fjölskyldu, ljómandi af gleði yfir nýja bílnum. Og að eignast þetta sjónvarp hlýtur ^að vera hámark hamingjunnar eftir auglýsing- unni að dæma. Þessar auglýsinga'r eru grund- vallaðar á þeirri forsendu að hamingja mannins sé komin und ir framförum 1 vélatækninni; að þær breytingar á ytri kringum- stæðum, sem tæknin skapar, færi honum fullkomna ánægju og gleði. Og margir virðast trúa þessu og berjast því alla sína æfi til þess aðeins að útvega sér sem flest af þesssum nýustu þægind- um, sem altaf er verið að finna upp og fullkomna. Ef að tæknin færlr manninum eins mikla hamingju eins og lát- ið er í veðri vaka, þá ættum við að vera miklu ánægðari og ham- ingjusamari en foreldrar okkar voru og börn okkar ættu að vera ennþá ánægðari en við sem ekki höfum enn eignast sjónvarp og annað nýjasta nýtt. — Það er satt, að hafi einstakling- urinn átt við skort að búa, lýður honum betur ef hann kemst í þær kringumstæður að hafa nægi legan mat, fatnað og viðunanlegt húsnæði. En eigi hann við sæmi- lega efnalega ákomu að búa, þá finnur hann lítið til þess þó hún breytist nokkuð til þess betra. Ástæðan er sú að maðurinn venst ótrúlega fljótt við breyttar kring- umstæður og telur þær sjálfsagð- ar. Til dæmis ferðaðist fólk á hestum eða fótgangandi fyrir nokkrum tugum ára. Það var sjálfsagt og engum fanst til um það. En svo voru bílar framleidd- ir og þá hefir sennilega mörgum fundist að þeir myndu himininn höndum taka ef þeir eignuðust bíl. En nú finst fólki eins sjálf- sagt að ferðast á bíl eins og áður á hestum. Það er ekki sífelt að hugsa um þessa breytingu, eða fagna yfir henni, það tekur bíl- ana sem sjálfsögð þægindi, og er því ekkert hamingjusamara en fólk áður var. Og sama er að segja um fleiri tæki vélamenn- ingarinnar. Annað sýnishorn af þessari kenn ingu að hamingja og velsæld mannsins sé aðallega komin und- ir efnalegri afkomu hans, er að finna í einræðisríkjunum. Ein- ræðisherrarnir telja fólkinu trú um að það verði að fylgja ein- hverri 5 ára eða 10 ára áætlun til þess að öðlast einhverja Útó- píu, sem bæti þeim fyrir þær hörmungar, sem það líður með degi hverjum; að nútíminn sé skref í áttina til þessa nýja ríkis þar sem allir muni lifa í vellyst- ingum praktuglega; að tilgang- urinn helgi meðalið og þeir megi því löglega kvelja og þrælka fólk í dag í nafni hins dýrlega ríkis, sem væntanlegt er fram- tíðinni. Vitaskuld er þetta alt blekk- ing og gagnstætt kenningum Krists og kenningum allar hinna gömlu spekinga, þeir kendu að hamingjuna væri að finna í þroska hins innra manns en ekki algerlega í utanað komandi breytingum. Þeir menn og þær konur sem treysta algerlega, hlutunum, efn- inu, tækninni, þægindum, fyrir lífshamingju sinni, það fólk verð- ur óánægðara eftir því sem ald- urinn færist yfir það og þeir kvillar sem honum eru samfara. Þegar líkaminn í afturför þá er lítil ánægja í hinni efnalegu og tæknislegu framför. En sá sem hefir lagt aðallega áherzlu á að þroska sinn innra mann að viti þekkingu og kærleika er á stöðugu framfaraskeiði og verður ánægðari og betri maður með degi hverjum til æfiloka. ♦ Æfiferill mikilmennis Þegar þér finst álánið elta þig og þú bíður hvern ósigurinn á fætur öðrum í lífsbaráttunni, kjarkurinn bilaður, framtíðin virðist vonlaus og þú ert í þann veginn að gefast upp, þá skalt þú stanza eina mínútu og íhuga æfiferil þessa manns: Varð gjaldþrota, ......... 1831 Tapaði kosningu í rikisþingið ............. 1832 Mistókst aftur í viðskiptalífinu.......... 1833 Kosin á ríkisþing .........1834 Heitmey hans deyr ........ 1835 Þjáist af taugaveiklun .... 1836 Tapar kosningu sem forseti þingsins ........ 1838 Fær ekki stöðu í stjórnarráðinu........... 1843 Tapar kosningu til neðri málastofu-landsins 1843 Nær kosningu í neðri málsiofu 1846 Nær ekki endurkosningu 1848 Tapar kosningu til efri málstofu ................ 1855 Nær ekki kosningu sem varaforseti ............. 1856 Nær ekki kosningu til efri málstofu ........... 1858 Kosinn forseii ......... 1860 Hver var þessi maður? Umkomulaus sveitadrengur, sem ekki hafði notið nokkurrar mentunar. Hann sætti sig ekki við það, að vera atkvæðalítill og mentunarsnauður. Hann mentaði sig sjálfur. Hann kendi ekki áláni um það, að hann tapaði. Ósigrar gátu ekki bugað hann, hann af- sagði að leggja árar í bát þótt flest virtist snúast á móti honum. Hann treysti og trúði á einlægni, ráðvendni, iðni, þolgæði, um- burðarlyndi, mannelsku og trú- mensku. Hann var Abraham Lincoln. (Þýtt) Svo kastar hún laufakjólnum — kuldi fyrir’ dyrum er; í kríthvíta ísbjarnar kápu klæðir hún sig og fer.” Hve glögg er ekki sú myndin af índíána-stúlkunni, sem hér er brugðið upp, og samlíkingin snjöll í heild, sinni! Hvergi kynnist lesandinn betur hugmyndagnótt skáldsins og frumlegum og skáldlegum samlíkingum hans, heldur en í náttúrulýsingum hans. Þær eru einnig, margar hverjar, dýrt kveðnar og ágæt dæmi rímfimi hans, en mikillar fjölbreytni gætir í bragarháttum hans, sem eru annarsvegar harðsnúnir og þungstígir, en hins- (Frh. á bls. 4.)

x

Lögberg

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Lögberg
https://timarit.is/publication/132

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.