Lögberg - 27.10.1949, Blaðsíða 4

Lögberg - 27.10.1949, Blaðsíða 4
4 LÖGBERG, FIMTUDAGLNN, 27. OKTÓBER, 1949. loBlitrg Geíift út hvern fimtudag af THE COLUMBIA PRESS LIMITED 68e SARGENT AVENUE, WINNIPEG, MANITOBA Utanáskrift ritstjórans: EDITOR i ÖGBERG, 695 SARGENT AVENUE, WINNIPEG, MAN. PHONE 21 804 Ritstjóri: EINAR P. JÓNSSON Verð $3.00 um árið—Borgist fyrirfram The “Lögberg” is printed and published by The Columbia Press Ltd. 695 Sargent Avenue, Winnipeg, Manitoba, Canada. Authorlzed as Second Class Mail, Post Office Department, Ottawa ÍSLENDINGAR í VALI TIL FYLKISÞINGS Þrír íslendingar bjóða sig fram til fylkisþingsins í Manitoba við kosningar þær, sem fram fara þann 10. nóvember næstkomandi; þeir eru allir mætir rnenn, sem mikið hafa verið við opinber mál riðnir, og reynst liðtækir vel í sínum verkahring; menn þessir eru þeir Dr. S. O. Thompson, sem leitar endurkosningar í Gimli kjördæmi, Chris Halldórson, sem nýiega hefir verið endurútnefndur í St. George og Paul Bardal, fyrrum bæjarfulltrúi og fylkisþingmaður, sem býður sig fram í Winnipeg Centre; allir leita þeir kosninga undir merkj- um samvinnustjórnarinnar, er Liberalar, Konservatív- ar og Social Credit-sinnar standa að. Að öllu athuguðu, veröur ekki annað sagt, en Mani- tobafylki hafi búið við góða og ráðdeildarsama stjórn síðustu kjörtímabilin; fjárhagur fylkisins stendur á traustum grunni og heilbrigðis og mentamálum hefir miðað röggsamlega áfram í ákveðna þróunarátt; í ráðuneytinu hefir jafnan ríkt góð eining, enda vitur maður og valinn í hverju skipsrúmi. Að framboði Dr. Thompsons var vikið stuttlega í fyrri viku, og er þar í rauninni litlu við að bæta; það er á allra vitorði hvílíkur mannkostamaður hann er, sam- vizkusamur læknir og mikill héraðshöfðingi; ekki myndi það veikja fylkisstjórnina þó Dr. Thompson yrði á sín- um tíma skipaður heilbrigðismálaráðherra. Chris Halldórsson hefir einnig reynst liðtækur mað- ur á þingi; hann er dugnaðarmaður hinn mesti og hefir unnið kjördæmi sínu mikið gagn; báðir þessir ágætu menn ættu að verða kosnir gagnsóknarlaust í hlutað- eigandi kjördæmum. Paul Bardal er borinn og barnfæddur í Winnipeg Centre. þar sem hann nú leitar kosninga til þings; hann er drenglyndur og hygginn sæmdarmaður, sem um langt skeið hefir tekið mikinn og giftudrjúgan þátt í félagsmálum íslendinga, auk athafna sinna í víðari verkahring; hann hefir starfað mikið á vettvangi mann- úðarmálanna og haft þar víðtæk áhrif. íslenzkir kjós- endur í North Centre verða að sameinast um það, að greiða honum forgangsatkvæði og tryggja kosningu hans. Þegar íslendingar, sem bjóða sig fram til opin- berrar þjónustu, eru eigi aðeins jafnhæfir, heldur hæf- ari þeim öðrum, sem í vali eru, er það metnaðarmál og þjóðræknisleg skylda, að veita þeim fulltingi. ★ ★ ★ LÍKNARSAMLAG WINNIPEGBORGAR Þessa dagana stendur yfir hin árlega fjársöfnun til Líknarsamlags Wlnnipegborgar, er gengur undir nafn- inu The Winnipeg Community Chest; þessi samtök hafa það markmið, að safna í einu lagi fé til 28 líknarstofn- ana, er það göfuga hlutverk hafa með höndum, að hlynna að umkomulausum börnum og aldurhnignu fólki, sem enga á að; nú er kaldrifjaður vetur í þann veginn að ganga í garð, og hann getur orðið bæði lang- ur og strangur; og til þess að hann leiki ekki um of grátt þá, sem umkomulausir eru, verður að hafa við- búnað líkan þeim, sem við hefir gengist á undanförn- um árum; það verður að tryggja því fólki öldnu og ungu, sem hjálpar þarf við, skýli yfir höfuðið, föt og fæði, og annan þann aðbúnað, er siðmennt mannfélag krefst; nauðsynjavörur allar hafa hækkað tilfinnanlega í verði, og það liggur þar af leiðandi í augum uppi, að framlög- in til líknarþarfa þurfi að verða drjúgum ríflegri nú, en þau voru í fyrra; allir verða að leggja eitthvað af mörk- um, því margt smátt gerir eitt stórt. Áminst söfnunarferð hefir reynst margfalt happa- sælli en sú, sem áður gekst við, að hver hokraði á sínu horni, ef svo mætti að orði kveða, og burðaðist með sína eigin líknarstofnun, án samstiltra, utan að kom- andi átaka. Fólk getur hvort, sem vera vill, greitt framlög sín til Líknarsamlagsins í einu lagi, eða gegn mánaðarleg- um greiðslum. ★ ★ ★ ÞÖRF OG ÞAKKARVERÐ STOFNUN Um nokkur undanfarin ár hefir við góðum árangri starfað í þessu landi stofnun mikilsvirtra og þjóðhollra sjálfboðaliða, er gengur undir nafninu Canadian Citi- zenship Council og að því markmiði stefnir, að glæða skilning almennings á forréttindum, eðli og anda cana- dísks þegnréttar; að þessu er unnið með það fyrir aug- um, að vekja í landinu samræmda þjóðarvitund landi og lýð til blessunar; þetta er göfugt hlutverk, sem vera skyldi að fullu metið. í áminstu þegnskaparráði á sæti fyrir hönd Mani- tobafylkis W. J. Lindal dómari, er unnið hefir á þessum vettvangi mikið hlutverk og engin ómök talið eftir sér. Nýlega lét Lindal dómari svo um mælt, að það væri engan veginn fullnægjandi að taka hlýlega í hendina á þeim nýliðum, sem væru að koma inn í landið og ætl- uðu að taka sér hér bólfestu; þeir þyrftu á stöðugri samúð og stöðugum leiðbeiningum að halda til að ná canadískri fótfestu. „Lengstu jarðgöng heimsins“ Algert myrkur þegar farið er um Porkala Eftir ÞORBJÖRN GUÐMUNDSSON Þið vitið það kannske ekki, en á leiðinni til Helsingfors farið þið í gegnum lengstu jarðgöng heimsins, sagði finnskur stú- dent, sem ég gaf mig á tal við í Abo. — Nei, ég hafði ekki heyrt getið um slík járnbrautargöng á flatlendi Suður-Finnlands. Finninn sá, hve vantrúaður ég var. — Ja, sko, hélt hann áfram, ég á við Porkala-svæðið. Við köllum það lengstu jarðgöng heimsins. Þið skiljið hvers vegna, þegar þið farið þar í gegn. Það höfðu allir heyrt getið um Porkala, strandlengjuna með fram Finnska flóanum, sem Rússar tóku af Finnum við frið- arsamningana. Þetta svæði ligg- ur á milli tveggja stærstu borga landsins, Abo og Helsingfors, en þó miklu nær höfuðborginni. Eitt af því fyrsta, sem menn reka augun í í járnbrautarlest- inni, er spjald með eftirfarandi aðvörun: — Stranglega er bannað, þeg- ar farið er í gegnum Porkala- svæðið, að fara út í vagngang- inn eða út á stöðvarpallana, sem og hver tilraun til þess að sjá landið, sem farið er um. Ekið frá Abo. Sveitirnar, sem farið er um frá Abo eru blómlegar. Þar skiptust á víðáttumiklir akrar og skóglendi með stórum og smá- um vötnum hér og þar. Það hreif að sjá þessa miklu gróður- sæld. Veðrið var einnig dásam- legt, sólskin og mikill hiti. Garð yrkjumennirnir, sem voru með í ferðinni, veittu því þó strax at- hygli, að hér höfðu verið nætur- frost, þótt ekki væri sýnilegt, að þau hefðu valdið mjög tilfinnan- legu tjóni. Sveitabæirnir eru allir úr timbri, enda er timbrið þar bygg ingarefnið, sem mest er af í land inu sjálfu. Sérstaka eftirtekt vakti, hve víða hafa verið reist nýbýli og byggðin aukist. Ástæð an fyrir þessu er sú, að eftir að Rússar fengu yfirráð yfir Por- kala, Kirjálaeiði og fleiri finnsk- um héruðum, urðu þeir Finnar, sem þar bjuggu, að yfirgefa heimili sín. Var þessu fólki kom- ið fyrir víðsvegar í landinu. En til þess, að svo mætti vera, urðu þeir, sem fyrir voru, að þrengja að sér. Komið að Porkala-svœðinu. í bænum Karis urðu menn fyrst varir við nálægð Porkala. Þá voru hlerar settir fyrir glugg ana á annari hlið járnbrautar- vagnana og byrgt fyrir útsýnið. Þar varð einnig fyrst vart við hermenn. Viðbúnaðurinn varð þó enn meiri, þegar komið var að ,Jandamærunum“. Þá var nýr eimvagn settur fyrir lest- ina og alveg skipt um áhöfn. Þeir, sem höfðu stjórnað henni frá Abo, fengu ekki að halda á- fram. Rússneskir hermenn komu nú til skjalanna og byrgðu alla glugga mjög vendilega og inn- sigluðu þá. Síðan lokuðu þeir öll um dyrum með innsigli, þannig að engum var kleift að fara á milli vagna. í hverjum vagni var svo sérstakur eftirlitsmaður. Þegar rússneski hermaðurinn kom til þess að loka dyrunum á „okkar“ vagni, stóðu tveir Is- lendingar hjá eftirlitsmannin- um. Eftirlitsmaðurinn og Rúss- inn skiptust á sígarettum, og þegar Rússinn einnið bauð ís- lendingunum sígarettu, buðu þeir honum „Chesterfield“. — og bað Finnann um að túlka. Hann hristi höfuðið afsakandi að hann mætti ekki taka við þeim, þar sem þær væru amer- ískar. Andrúmsloftið breytist. Lestin hafði „stungið“ sér nið- ur í jarðgöngin — eða var það kannske járntjaldið, sem hér hafði fallið? Andrúmsloftið var gjörbreytt. Menn reyndu að vera kátir og glaðir eins, og áður og gera að gamni sínu, en það var eins og allir fyndu að það var uppgerð. Enda fór það svo að drungi færð ist yfir flesta. Finnar — þessi þrautseiga og menntaða þjóð, sem framar öllu öðru vill fá að lifa í friði í landi sínu, hvað hafði hún til þess unnið að þurfa að ferðast um svæði af sínu eigin landi í algeru myrkri? Og þurfa að bjóða gestum sínum upp á það sama. — Jú, hún elskaði landið, sem hún byggði, og frelsi sitt og sjálfstæði svo mjög, að hún vildi leggja allt i sölurnar fyrir það. Verja það eins lengi og kostur væri. Það kostaði fórnir. Miklar fórnir. Porkala var ein þeirra. Að sjálf- sögðu mikil fórn þó kannske hverfandi hjá þeim tugum þús- unda ungra manna, sem létu líf sitt í baráttunni fyrir föður- landið. ,JVýr dagur“. Lestin stansaði 2—3 sinnum á leiðinni. 1 hvert skipti vonuðum við, að nú væri „myrkvuninni“ lokið. Fyrst eftir nokkuð á aðra klukkustund, voru hler- arnir teknir frá gluggunum og sólin fékk að skína inn í klef- SJÖTTA ársþing norðlenskra presta, kennara og annara áhuga manna um kristna og þjóðlega menningu, var haldið á Húsavík 17. og 18. sept. s.l. Framsöguer- indi fluttu: Jónas Jónsson, kenn ari, Akureyri, um þegnskyldu- vinnu, séra Benjamín Kristjáns- son, um gamla og nýja guðfræði, séra Páll Þorleifsson, um Barth- guðfræðina, Eiríkur Sigurðsson, kennari, um guðspeki, og Sig- urður Gunnarsson, skólastjóri, Húsavík, um skógræktarmál. Þingið samþykkti þessar álykt- anir: I. Fundur norðlenskra presta, kennara o. s. frv. lítur svo á að íslenzka þjóðin sé nú í alvar- legri hættu stödd varðandi upp- eldi, þegnskap, skyldurækni og viðhorf til líkamlegrar vinnu, einkum sá hluti hennar, sem býr í kaupstöðum, og sé þess brýn nauðsyn, að leitað sé úrræða og umbóta. Telur fundurinn í því sambandi tímabært að endur- vekja þegnskylduvinnumálið. Æskilegt sé að þegnskyldu- vinna, samræmd nútíma við- horfi, verði í einhverri mynd framkvæmd í landinu. Vill fundurinn benda á eftirfarandi leiðir: 1) Kaupstaðir og hreppar dragi ekki lengur að taka til um- ræðu framkvæmd heimildar- laga um þegnskyldu, nr. 63, frá 27. júní 1941. Sjái þessir aðilar sér ekki fært að fram- kvæma heimildarlögin, þá geri þeir tillögur um þegn- skyldulöggjöf, sem betur henti þjóð vorri eins og nú hagar til, t. d. að ríkið efni til framkvæmda, svo sem við ræktun byggingu nýbýla á völdum stöðum með þegn- skylduvinnu. 2) Þegnskyldumálið verði tengt skólalöggjöfinni á þá leið, að ana. „Það er eins og kominn sé nýr dagur“, varð einum landan- um að orði um leið og hann reis upp úr sæti sínu. Sennilega hef- ir hann túlkað hugsanir okkar allra. Hjá flestum hafði „nóttin“ ver ið andvökunótt, þótt sumir hefðu fengið sér dúr og verið hálf utangátta, þegar einkennis- klæddur embættismaður vakti þá til að sjá farmiðana. Ég veit ekki hvort tilfinning- ar Finnanna voru svipaðar og okkar, eða hvort fyrir þeim rann upp nýr dagur. Vildum fá hreint loft, en brutum af okkur. Loftið í járnbrautarklefunum var orðið þungt eftir innilokun- ina. Við íslendingarnir vorum fljótir að ryðjast út úr lestinni, nær strax og hurðin var opnuð, til þess að anda að okkur hreinu lofti. Rússneskir hermenn voru að rífa innsiglin frá og draga gluggahlerana til hliðar. Nú var einnig verið að skipta um eim- vagn. Vagninn, sem dregið hafði lestina yfir Porkala-svæðið, los- aður frá og annar settur í stað- inn. „En Adam var ekki lengi í Paradís“. Við höfðum gert það, sem við máttum ekki. Vopnaður hermaður kom auga á okkur. Hann hraðaði sér til okkar og rak alla aftur inn í vagninn. En nú sakaði það ekki. Klefinn var aftur orðinn vistlegur. Lengstu „jarðgöng“ heimsins voru að baki. Það kvað við hvellur hlát- ur. Menn höfðu aftur tekið gleði sína. Nokkrum mínútum síðar ók lestin inn í Helsingfors, hina fögru höfuðborg Finnlands. i Mbl. 12. okt. síðasta ár skólaskyldunnar verði notað til verknáms í þegnskylduanda. Beinir fundurinn þessari á- lyktun til menntamálaráðuneyt- isins og heitir á hin ýmsu félags- samtök í landinu að taka þegn- skyldu vinnumálið til rækilegr- ar umræðu og ályktana. Fundur presta, kennara o. s. frv. telur skógræktina, hvort sem er til prýði eða nytja, mik- ilvæga framtíðar og menningar- starfsemi. Telur hann að leggja beri mjög aukna áherzlu á skóg- ræktarmálin í náinni framtíð, og hvetur alla til að leggja þeim lið. III. Fundurinn lítur svo á, að mik- il þörf sé á auknu starfi til efl- ingar kirkju- og kristnilífi í landinu, og hvetur bæði kenni- menn og leikmenn eindregið til 'stærri átaka á þeim vettvangi. IV. Fundurinn telur þá stefnu heillavænlegasta í guðfræði, sem öðru, að ganga ávalt og ótta laust því á hönd, „sem sannara reynist“, samkvæmt rannsókn, rökum og beztu þekkingu hvers tíma. Það er von fundarins og bæn, að jafnframt því, að hin íslenzka þjóð gerir kröfu til að vera stjórnarfarslega frjáls, megi hún bera giftu til að rísa undir hin- um vegsamlega vanda andlegs frelsis. __*__ Mótinu lauk með guðsþjón- ustu í Húsavíkurkirkju. Séra Pétur Sigurgeirsson, prédikaði. Fr. A. Fr. Dbl. 12. okt. Sjötta þing norðlenzkra presta og kennara „Hvítsandar4* — ný skáld- saga eftir Þóri Bergsson KOMIN er út ný skáldsaga eftir Þóri Bergsson rithöfund, er hann efnir „Hvítsandar“. Er það íslenzk nútímasaga, sem gerist í afskektri sveit. Þórir Bergsson er þegar þjóð- kunnur rithöfundur, sem hefir aflað sér mikilla vinsælda. — sérstaklega hefir hann fengist við smásagnagerð, en einnig skrifað skáldsögur og sent frá sér ljóðakver. Mun þessari nýju skáldsögu Þóris Bergssonar áreiðanlega verða vel tekið, en nú eru liðin tvö ár síðan komið hefir út bók eftir hann. Bókfellsútgáfan gefur „Hvít- sanda“ út. Hún er um 200 bls. að stærð og frágangur allur vandaður. — Mbl. 12 okt. Fáein orð um íslenzku blöðin okkar, Lögberg og Heimskringlu Af því ég er innköllunarmað- ur annars blaðsins þá á ég oft samtal við kaupendur blaðanna og koma þá mismunandi skoð- anir þeirra fram, um gildi blað- anna og framtíð þeirra og þeir spyrja: „Hvers vegna eru heilir og hálfir dálkar í þeim á ensku, sem fréttir af okkar starfi og það virðist fara vaxandi.“ En það versta er þegar það kemur frá okkar þjóðræknislega hugsandi mönnum, sem eiga að vera tals- menn íslenzkunnar. Ég finn til þess, að þetta er rétt og satt, því ef einn má skrifa á ensku í íslenzku blöðin, þá hefir sá næsti sama rétt til þess, og þá eru þau ekki lengur íslenzk fréttablöð. Ég hef svar- að þessu á þessa leið: Eins og þið vitið, er takmark- aður vinnukraftur blaðanna og fjárhagur þeirra, og þar af leið- andi ekki kringumstæður til að þýða þær fréttir. En ég held að það sé ekki kominn tími til þess ennþá, að skrifa á ensku í ís- lenzku blöðin okkar. Ef þið ætl- ið að halda þessum fáu kaup- endum, sem þið hafið nú, sér- staðlega þegar árgjaldið er sett upp í 5 dali, sem er sanngjarnt og rétt og hefði átt að gjöra fyr- ir 3—4 árum síðan. Og ég álít það ekki mikla þjóðrækni hjá þeim kaupendum blaðanna, sem segja þeim upp fyrir það, þótt þau yrðu að neyðast til að hækka verðið um 2 dali, því ef maður lítur til baka yfir liðinn tíma og hugsar um hvað þau hafa verið okkur gagnleg fyrir öll okkar fé- lagsmál út um allar bygðir ís- lendinga. Og við værum týndir hver öðrum fyrir löngu síðan, ef íslenzku blaðanna hefði ekki notið við. Þetta þurfa kaupendur blað- anna að hafa hugfast. Svo er annað, sem hefir verið fundið að um blöðin, að það sé tekið of mikið rúm upp í þeim fyrir auglýsingar, sú aðfinsla er al gjörlega röng, því á því lifa dag- blöð og tímarit, og þau geta ekki fengið nóg af þeim. Okkar blöð hafa mikla erfiðleika að afla sér þeirra, því að við erum of fá- mennir fyrir hérlenda þjóð að auglýsa fyrir þá. Það er bara stórundravert hvað íslenzku blöðin hafa get- að aflað sér af auglýsingum og sýnir það dugnað þeirra í fylsta máta. Allir vita hvað Þjóðræknisfé- lagið okkar hér vestra hefir lyft miklu Grettistaki út um bygð- ir íslendinga. Mundu þeir ekki vilja gjörast talsmenn íslenzku blaðanna okkar, það tilheyrir þjóðrækni og ég treysti þeim manna bezt til þess. Því það eru margir íslendingar enn til, sem lesa og skrifa íslenzku, en kaupa ekki blöðin. Skyldi engum hafa dottið í, hug að gera íslenzku blöðin okkar hér vestra hundr- að ára gömul? Sá minnisvarði stæði alltaf. Svo óska ég íslenzku blöðun- um langra lífdaga. Vancouver 24. október 1949 I. O. Lyngdal

x

Lögberg

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Lögberg
https://timarit.is/publication/132

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.