Lögberg - 24.11.1949, Side 4
4
LÖGBERG, FIMTUDAGINN, 24. NÓVEMBER, 1949
Hosbcrs
Gefið út hvern fimtudag af
THE COLUMBIA PRESS LIMITED
69» SARGENT AVENUE, WINNIPEG, MANITOBA
Vtandskrift ritstjórans:
EDITOR ) ÖGBERG, 695 SARGENT AVENUE, WINNIPEG, MAN.
PHONE 21 804
Ritstjóri: EINAR P. JÓNSSON
Verð $5.00 um árið—Borgist fyrirfram
The “Lögberg” is printed and published by The Columbia Press Ltd.
695 Sargent Avenue, Winnipeg, Manitoba, Canada.
Authorized as Second Class Maíl, Post Office Department, Ottawa
FISKIÐNAÐURINN OG ÞRÓUN HANS
Fiskiveiðar í þessu landi, engu síður en á íslandi,
grípa djúpt inn í hina efnahagslegu afkomu canadísku
þjóðarinnar; við austur og vesturströnd landsins, er
sjór sóttur í stórum stíl og af miklu kappi, og nú ,með
inngöngu Newfoundlands í fylkjasambandið, hafa fiski-
miðin fært út kvíar til verulegra muna. er þess því að
vænta, að mikilvægi fiskframleiðslunnar komi því skýr-
ar í ljós, er ár líða. Það er ekki einasta, að fiskiveiöar
hér um slóðir séu stundaðar á höfum úti, heldur er og
krökt af innanlandsvötnum, sem gefið hafa tíðum af
sér ríkulegan arð, og fært þúsundum heimila björg og
blessun í bú; en þrátt fyrir þetta, mun það sönnu næst,
að lengi vel væri fiskiveiðunum hvergi nærri sá sómi
sýndur, er þær í eðli sínu verðskulduðu, þó nú sé all-
mjög farið að breytast til hins betra í þessum efnum, og
var þess sízt vanþörf.
Á sviði landbúnaðarins eru föst samtök fyrir löngu
komin á hátt stig, er komið hafa að ómetanlegum not-
um; nægir í því efni að vitna til akuryrkjuráðsins The
Canadian Council Agriculture, er haft hefir víðtæk á-
hrif á vöruvöndun og markaðskilyrði korntegunda.
Nú eru stjórnarvöld landsins farin að vakna til með-
vitundar um það, að eitthvað sé á sig leggjandi varðandi
viðreisn fiskiðnaðarins og þróun hans í hinum ýmsu
greinum; þetta má glögt ráða af því, er forsætisráð-
herra Canada, Louis St. Laurent, sagði í ræðu, er hann
flutti þann 13. september síðastliðinn á fundi canadíska
fiskiveiðaráðsins, The Fisheries Council of Canada þar
sem hann lýsti yfir því, að fiskiðnaðurinn mætti í fram-
tíðinni vænta meiri stuðnings af hálfu hins opinbera,
en fram að þessu hefði gengist við; hann fór ekki dult
með þá skoðun sína, að tími væri til þess kominn að
hefjast handa um raunverulegar úrbætur varðandi þró-
un fiskiðnaðarins, er til skamms tíma hefði verið sett-
ur hjá; hann tjáðist sannfærður um, að það væri mikil-
vægt hagsmunamál, bæði fyrir sambandsstjórn og
stjórnir hinna einstöku fylkja, að stuðla að auknum
verðmætum fiskiframleiðslunnar.
Með hliðsjón af ráðstöfunum fiskiveiðaráðherrans,
Mr. Mayhews í maímánuði síðastliðnum varðandi að-
stoð við fiskiveiðarnar, lét forsætisráðherra þess getið,
að þar væri frekar um byrjunarstig að ræða en fulln-
aðarákvarðanir, en þó væri auðsjáanlega með því stig-
ið skref í rétta átt.
„Stjórnin hefir enga tilhneigingu til þess, að ráð-
ast inn á verksvið ykkar“, sagði forsætisráðherra við
forustumenn fiskiveiðafélaganna“, en engu að síður er
henni ant um að kanna nýjar leiðir á vettvangi sam-
bands- og fylkisstjórna, er verða megi þessum mikil-
væga atvinnuvegi raunveruleg lyftistöng í framtíðinni“.
Að hér fylgi hugur máli, má ótvírætt ráða af því, hve
drengilega stjórnin hljóp undir bagga við fiskimenn á
öndverðu yfirstandandi ári. „Stjórnin getur ekki eins
og sakir standa tekist á hendur ákveðnar skuldbind-
ingar“, bætti forsætisráðherra við, „þó hún sá staðráð-
in í að láta einskis þess ófreistað, er hefja megi fiski-
framleiðslu canadísku þjóðarinnar í hærra veldi“.
Af eftirgreindum uppástungum, sem lagðar voru
fram fyrir fiskiveiðaráðherrann, Mr. Mayhew, bland-
ast engum hugur um það, að fiskiveiðaráðið hafi unnið
hið þarfasta verk með hag fiskimanna og fiskiðnaðar-
ins fyrir augum, en umbótatillögurnar eru í megindrátt-
um á þessa leið: Að rannsóknir varðandi fiskiðnaðinn
af hálfu rannsóknadeildar fiskiveiðaráðuneytisins, fari
fram á sem allra breiðustum grundvelli, að umdæma-
nefndir annist um að skoðanir fiskimanna verði tekn-
ar þar að fullu til greina; að sambandsstjórn stuðli að
aukinni fræðlustarfsemi meðal fiskimanna; að annast
sé um nákvæma skoðun og flokkun fiskjar; ennfremur
um skoðun fiskibáta, geymslu og rekstrarstöðva og
öðru þar að lútandi aðbúnaði; að stuðla að útvegun
nýrra útflutningssambanda; að járnbrautarfélög ann-
ist um viðeigandi kæligeyma í samræmi við tilhögun
rannsóknarráðs; að sameiginlegar rannsóknir af hálfu
stjórnarvalda og verksmiðjuframleiðenda fari fram
með það fyrir augum, að greiða fyrir smásölu fiskjar
svo sem framast mætti verða.
Fiskiveiðaráðið tjáðist ófrávíkjanlega þeirrar skoð-
unar, að með aukinni auglýsinga- og fræðslustarfsemi
mætti auka til muna neyzlu fiskjar innanlands, og sann
færa með því almenning um næringargildi þessarar
hollu fæðutegundar; allar þessar uppástungur miða til
bóta, og ætti þar af leiðandi að verða hvarvetna tekið
hið bezta.
Þeir menn, af íslenzkum stofni, sem fiskiveiðar
stunda í þessu landi, eru hlutfallslega fleiri en menn af
nokkrum öðrum þjóðflokkum, er gefa sig við slíkri at-
vinnu, og framleiðsla þeirra í svipuðum hlutföllum
meiri; undir arði veiðinnar er lífsafkoma þeirra að lang-
mestu leyti komin; þeir þreyta tíðum krapparóður við
harðsnúin náttúruöfl, og þeir eiga það í öllum efnum
skilið, að hagsmuna þeirra sé gætt svo sem föng standa
frekast til.
Gerir skip sín út við Nýfundnaland í vetur
ísfirzku Grænlandsförin á leið þangað
á
Björgvin Bjarnason, útgerðarmaður frá ísafirði, er nú á leið
á fiskimiðin við Nýfundnaland með fiskiskipaflota sinn, en þar
ætlar hann að stunda veiðar fram á næsta sumar eftir því sem
Vísir hefir frétt. — Svo sem kunnugt er, fór Björgvin Bjarnason
með fjögur fiskiskip sín, Gróttu, Richard, Huginn I. og II. á Græn-
landsmið og hefir stundað veiðar þar í sumar. Voru skip Björgvins
með þeim aflahæstu við Grænland í ár.
Þrem dögum eftir að Eldborg
fór frá Grænlandi, lagði Björg-
vin af stað með skip sín til Ný-
fundnalands. Sagði hann þá að
hann ætlaði að stunda veiðar við
svokallaðar Frönsku eyjar, sem
eru fyrir sunnan Nýfundnaland.
Á þeim slóðum eru góð fiski-
mið og veiðar stundaðar allt
fram í nóvember, en aðalvertíð-
in hefst í marzmánuði.
Áhajnir koma heim
íslenzkar áhafnir sigla skip-
um Björgvins til Nýfundna-
lands, en síðan mun hluti þeirra
koma flugleiðis hingað aftur.
Mun Björgvin ætla að ráða er-
| lenda fiskimenn á skip sín.
Björgvin Bjarnason mun vera
fyrsti íslenzki útgerðarmaður-
inn, sem gerir út á fiskimiðin
við Nýfundnaland, en þau eru
mjög auðug, svo sem menn vita
og mjög sótt af þekktustu sjó-
sóknurum á austurströnd N.-
Ameríku. Frönsku eyjarnar, sem
Vísir hefir heyrt sagt, að Björg-
vin muni hafa bækistöð sína á,
eru við suðurströnd Nýfundna-
lands og heita Stóra og Litla
Miquelon. — VÍSIR, 5. okt.
Barnablaðið
Æskan 50 ára
Barnablaðið Æskan er 50 ára
í dag. Tildrögin að upphafi Æsk-
unnar eru þau, að á þingi Stór-
stúku íslands árið 1897 var bor-
in fram tillaga af unglingareglu-
nefndinni, fyrir atbeina þáver-
andi stórgæzlumanns unglinga-
starfs, Þorvarðar Þorvarðarson-
ar, síðar prentsmiðjustjóra, um
útgáfu barnablaðs til eflingar
bindindi, góðu siðferði og mennt
un unglinga yfirleitt, — óskir
um slíkt blað sem þetta hafði Þ.
Þ. borizt frá ýmsum stúkum í
landinu. Jafnframt samþykkt
þingsins um útgáfu blaðsins var
og samþykkt heimild um að
verja í þessum tilgangi 150 krón
ur, ef hæfir menn fengjust til að
annast ritstjórn þess og útgáfu.
Skipuð var þriggja manna nefnd
til þess að hrinda málinu í fram-
kvæmd, þeim: Sigurði Júl. Jó-
hannessyni, Ólafíu Jóhannsdótt-
ur og Þorvarði Þorvarðssyni.
Árangurinn var að hafizt var
handa um útgáfu barnablaðs
sem hlaut nafnið Æskan og
fyrsti ritstjóri þess var ráðinn
Sigurður Júl. Jóhannesson. Þeir
aðrir sem verið hafa ritstjórar
Æskunnar eru: Ólafía Jóhanns-
dóttir, Hjálmar Sigurðsson, séra
Friðrik Friðriksson, Sigurjón
Jónsson, Aðalbjörn Stefánsson,
Margrét Jónsdóttir, Guðmund-
ur Gíslason og Guðjón Guðjóns-
son skólastj. í Hafnarfirði, sem
er ritstjóri hennar nú.
Æskan hefir alltaf verið í eigu
Stórstúku Bslands en fram til
ársins 1928 hafa ýmsir góðir
menn annast um útgáfu hennar,
en síðan þá hefir hún verið gef-
in út af Stórstúkunni.
Árið 1930 hóf Æskan útgáfu
barnabóka. Fyrsta bókin sem út
kom á forlagi hennar var eftir
fyrsta ritstjóra hennar, Sig. Júl.
Jóhannesson og heitir Sögur
Æskunnar. Á forlagi Æskunnar
hafa komið á tæplega 100 barna-
bækur fram til þessa, og í til-
efni af 50 ára afmælinu koma út
4 bækur.
Árið 1940 setti Stórstúkan á
stofn bókabúð sem ber nafnið
Bókabúð Æskunnar.
Æskan hóf göngu sína með um
600 kaupendum en nú telur hún
tæplega 10 þúsund kaupendur.
Alþbl. 5. okt.
Maður nokkur, sem þótti gam-
an að fiska, hafði þann sið að
stoppa upp stærstu laxana, sem
hann náði í og hafa þá í glerskáp
í stofunni. En langstærsti skáp-
urinn var tómur. Dag nokkurn
spurði einn af kunningjum hans,
hvernig á þessu stæði.
— Það var sá stóri, sem ég
missti, svaraði maðurinn.
Þér lofuðuð mér launahækk-
un, ef þér yrðuð ánægður með
mig, sagði Skotinn við vinnu-
veitanda sinn.
Eg get ómögulega verið ánægð
ur með mann, sem heimtar launa
hækkun.
☆
Betlari barði að dyrum húss
eins í Skotlandi. Frúin kom til
dyra.
Kæra frú, getið þér ekki liðsinnt
mér. Eg hef misst hægri fótinn.
Hann er ekki hér, svaraði frú-
in og lokaði hurðinni. ,
☆
Skoti keypti á uppboði flibba,
sem var tveimur númerum of
lítill. Hann fór strax að megra
sig.
Nýr flugvöllur bygður við
Sauðárkrók í sumar
í SUMAR hefir verið unnið að flugvallargerð við Sauðárkrók
og er völlurinn nú svo að segja fullgerður. í fyrradag lenti fyrsta
flugvélin á vellinum, og var það flugvél frá Flugfélagi Islands, er
var á reynsluflugi, en með henni voru auk flugstjórans, Þorsteins
Jónssonar, flugvallarstjóri ríkisins, Alfreð Elíasson frá Loftleið-
um h.f. og Sigurður Jónsson frá Flugfélagi Islands.
Skoðuðu þeir flugvöllinn og
New British Deaf-Aid Also
Receives Radio Programme
leizt mjög vel á vallarstæðið og
aðstæður allar. Flugvöllur þessi
er um 800 metra á lengd og 60
metra á breidd, en í ráði mun
vera að bæta annarri flugbraut
við síðar.
Sjálfur völlurinn er fullgerð-
ur, en verið er að breyta síma-
línu, sem liggur við völlinn og
nærri honum, og þegar því er
lokið, mun flugvöllurinn verða
tekinn í notkun og reglubundn-
ar flugferðir hefjast til Sauðár-
króks.
Flugvöllurinn er sunnan og
austan við Sauðárkrók, aðeins
nokkur hundruð metra frá kaup-
staðnum. — Alþbl., 16. okt.
Framhaldsskólakennari tók
það fram í skólasetningarræðu
sinni eitt haustið, að ekki mætti
skrópa í skólanum og ekki koma
of seint.
—. Annað hvort kemur maður
eða maður er dauður.
Dag nokkurn bar svo við að
kennarinn sjálfur kom of seint.
Nemendurnir biðu stundarkom,
en fóru því næst allir nema einn.
Loks kom kennarinn, litaðist
um, en sá aðeins einn nemanda
og spurði undrandi:
— Hvar eru allir nemendurn-
ir?
— Þeir eru farnir út að kaupa
kransinn, sagði nemandinn
This picture shows the “Bel-
clere” Radio Monopack deaf-aid
which was demonstrated at the
recent British National Radio
exhibition at Olympia, London.
The set is a high-fidelity single-
unit hearing aid suitable for use
in either slight or severe cases
of deafness; it is easy to wear
and is alsö extraordinarily eco-
nomical in battery-replacement.
Privision is also made for re-
ceiving one radio programme
without any extra control than
a change-over switch. A volume
control and switch are provided
in addition to an ifinitely vari-
able tone control. No external
aerial is -neeessary. Miniature
crystal or magnetic earpieces
can be supplied.
Kvikmyndahúseigandi í Aber-
deen vildi sýna höfðingsskap í
tilefni af því, að kvikmyndahús
hans átti merkisafmæli. Ekki
vildi hann þó eyða í það miklum
fjármunum. Hann lét því, að
vandlega athuguðu máli, festa
yfir dyrnar á kvikmyndahúsi
sínu, þar sem á var letrað með
stórum stöfum:
Allir. sem komnir eru yfir átt-
rætt, fá ókeypis aðganga, ef þeir
eru í fylgd með foreldrum sín-
um.
Larsen liðsforingi datt af hest-
baki og braut í sér þrjú rifbein.
Hann var lagður inn á sjúkra-
hús. Dag nokkurn kom ung
stúlka í heimsókn til Larsens.
Gömul og virðuleg kona tók á
móti henni og hélt ungfrúin að
þetta væri yfirhjúkrunarkonan.
Gamla konan sagði vingjarn-
lega:
— Það er nú víst komið fram
yfir venjulegan heimsóknartíma,
en ef þér þekkið hann vel, þá . . .
Hvort ég þekki hann, ég er
systir hans.
— Það er einkennilegt, ég er
nefnilega móðir hans, sagði
gamla konan.
☆
Hvernig getur þér dottið í hug,
sagði Skotinn við konu sína. að
kaupa tvo happdrættismiða, þeg-
ar aðalvinningurinn er ekki
nema einn.
Ný íslenzk kvikmynd frumsýnd í janúar n. k.
Óskar Gíslason tók myndina eftir sögu
Lofts Guðmundssonar
Bíógestir eiga von á góðri skemmtun í janúarmánuði næstkom-
andi, en þá verður frumsýnd ný íslenzk kvikmynd, er Óskar Gísla-
son ljósmyndari hefir gert.
Vísir náði tali af Óskari Gísla-
syni í morgun og innti hann eft-
ir þessari nýju kvikmynd, því
að enn er nýnæmi að kvikmynda
töku hér á landi og munu marg-
ir hlakka til að sjá hana.
Unnið að myndinni í sumar
Óskar hefir unnið að kvik-
myndatökunni í sumar, en hér
er um að ræða ævintýramynd í
þjóðsagnarstíl, eftir sögu Lofts
Guðmundssonar. Þorleifur Þor-
leifsson hefir svo samið handrit-
ið eftir sögunni, til kvikmynd-
unar. Myndin hefir verið tekin
bæði úti og inni, eins og að lík-
um lætur.
Útimyndirnar hafa flestar ver
ið teknar í nágrenni Reykjavík-
ur, í Kjós, Ölfusi og Hafnarfirði,
en innimyndirnar að Árbæ, þar
sem útbúin var baðstofa í forn-
um stíl. Hefir Óskar lagt mikla
vinnu í kvikmyndatökuna og má
vænta hins bezta af þessu.
Meðal leikenda eru Jón Aðils,
Þóra Borg Einarsson, Erna Sig-
urleifsdóttir, Valdimar Lárus-
son (úr leikskóla Ævars Kvar-
an) og Ævar R. Kvaran, sem
jáfnframt er leikstjóri. Þá má
geta þess að tveir stærstu lög-
regluþjónar á íslandi leika í
myndinni, þeir Ólafur Guð-
mundsson og Valdimar Guð-
mundsson og leika þeir ferlega
tröllkarla. Þá hafa tvö börn,
Friðrikka Geirsdóttir og Valur
Gústafsson, allmikil hlutverk í
myndinni.
Kvikmyndin er talmynd, þó
ekki 100% talmynd, eins og það
er kallað, en tekin í eðlilegum
litum.
Væntanlega verður nánar
skýrt frá þessari nýju kvikmynd
síðar, en frumsýningin verður í
janúar eins og fyrr getur.
VÍSIR, 6. okt.
Tveir kaupsýslumenn höfðu
brugðið sér suður til ítalíu og
dvalizt þar um þriggja vikna
skeið. Þegar þeir komu heim,
mættu þeir kunningja sínum,
sem spurði:
— Hvernig fóruð þið að því að
gera ykkur skiljanlega þarna
suðurfrá?
Annr ferðalangurinn benti á
brjóstvasa sinn og sagði:
— Við höfðum peningaveskin
meðferðis, og þau töluðu fyrsta
flokks latínu!
☆
Húshóndinn: — James, ég
þori að veðja um að þú hefur
drukkið af Whiskyinu mínu.
Þjónninn: — Fyrirgefið,
herra, ég veðja aldrei.
☆
Unga konan: — Ertu að hugsa
um að baða barnið úr þessu,
stúlka? Það vantar mikið á, að
það sé 35 stiga heitt?
Vinnukonan: — Það skiptir
ekki máli, kona, því ekki hefur
krakkinn neina hugmynd um
hitastig. — Víkingur
BRITISH 1950 CARS AT EXHIBITION IN LONDON
This picture shows the British “Triumph” ‘Mayflower’ 10
hp. saloon car, which was shown at the recent International Motor
Exhibition at Earls Court, London. The Mayflower is an entirely
new product in the range of the Triumph Co., of Coventry, Eng-
land, and is in the luxury class of the smaller vehicles, although
the price is medium. The side valve engine is of 1,250 c.c. (about
11 hp.) and gives a top cruising speed of 55 mph. Forward gears
are synchromesh and front suspension is independent. The attrac-
tive bodywork is of the ‘razor edge’ design, a compromise between
the British and the latest American styles. The model shown is
of the two-door type with folding front seats.