Lögberg


Lögberg - 02.03.1950, Qupperneq 1

Lögberg - 02.03.1950, Qupperneq 1
PHONE 21 374 ktO*4 CVeOtieT* pnl ~ Ua^^p-fl. sT A Complete Cleaning Inslituiion PHONE 21 374 U"?!6 L<>,tnd^3B S<V A Complefe Cleaning Institution 64. ÁRGANGUR LÖGBERG, FIMTUDAGINN, 2. MARZ, 1950 NÚMER 9 Slefán Einarsson ritstjóri Heimskringlu G. J. Oleson fyrrum blaðamaður í Glenboro Einar P. Jónsson ritstjóri Lögbergs Þingkosningar á Bretlandi nólguðust pólitískt jafntefli Þann 23. febrúar síðastliðinn fóru fram almennar þingkosn- ingar á Bretlandi, og lauk þeim með örlitlu meirihlutafylgi fyrir núverandi stjórnarflokk, eða flokk þinna óháðu verkamanna; það var flokkur íhaldsmanna, er næstur gekk stjórnarflokknum að þingfylgi. Liberalflokkurinn sætti hinni verstu útreið, og flokkur kommúnista þurkaðist alveg út, og á nú engan fulltrúa á þingi. Það liggur í augum uppi að Attlee-stjórnin eigi við ramm- an reip að draga og sé ekki öf- undsverð, þar sem hún nú styðst aðeins við sjö þingmanna meiri hluta; brezka þingið telur eins og sakir standa 625 þingmenn, en af þeirri tölu vann stjórnar- flokkurinn einungis 315 þing- sæti. Öll brezk blöð, án tillits til flokkslegrar aðstöðu, telja óhjá- kvæmilegt, að gengið verði til kosninga á ný, jafnvel innan þriggja mánaða eða svo. Stjórnin mun ekki leggja út í fleiri þjóðnýtingar ráðstafanir að sinni, eins og högum hennar nú er háttað. Viðskiptafundur r • • i aosigi Mr. John A. Marsh, formaður samtaka þeirra kaupsýslumanna hér í landi, er við vöruútflutn- ingi héðan sérstaklega gefa sig, flutti seinni part fyrri viku ræðu í Port Arthur, þar sem hann lagði áherzlu á og taldi nauðsynlegt að Canada beitti sér fyrir um að kveðja til fundar þar sem mættir yrði erindrekar frá öllum brezku samveldisþjóðun- um með það fyrir augum, að treysta eins og framast mætti auðið verða innbyrðis viðskipt- in þeirra á meðal; kvaðst hann vonast til að ráðstafanir í þessa átt yrði ekki dregnar á langinn, því fyrsti tími væri beztur. Mr. Marsh taldi ástæðulítið að gera ráð fyrir viðskiptakreppu í þessu landi, og með hliðsjón af fram- tíðinni væri ekki annað sjáan- legt en að hún yrði heillavæn- leg og björt; þá taldi og Mr. Marsh það æskilegt, að Banda- ríkin lækkuðu til muna tollmúra sína gegn canadískri útflutnings vöru. Úr borg og bygð Dr. P. H. T. Thorlakson Kjörinn forseti læknafélags Á aðalfundi skurðlæknafélags ins í Vestur Canada, sem hald- inn var í Edmonton þann 22. febrúar síðastliðinn, var hinn mikilhæfi og víðfrægi skurð- læknir, Dr. P. H. T. Thorlakson, kjörinn forseti þessara víðtæku og áhrifamiklu samtaka á vett- vangi læknavísindanna. Það er ekki einasta að Dr. Thorlakson sé kunnur um þetta mikla meg- inland sem framúrskarandi læknir, heldur er hann einnig búinn sjaldgæfum forustuhæfi- leikum á mörgum öðrum svið- um, eins og átök hans í háskóla- máli okkar bera svo glögg merki um. The Women’s Association of the First Lutheran Church Victor st. will hold a regular meeting in the church parlor Tuesday March 7th at 2 p.m. There will be a guest speaker. ☆ Þakklæli Mitt innilegasta hjartans þakk læti votta ég vinum og vanda- mönnum, er veittu mér marg- víslega aðstoð í tilefni af fráfalli míns elskaða eiginmanns, Jó- hanns Philips Markússonar, er lézt þann 20. febrúar síðastlið- inn; bið ég guð að launa öllu þessu góða fólki Mrs. Ásta Markússon, 500 Waterloo Street ☆ Herbergi með húsgögnum fæst til leigu nú þegar að 639% Lang- side Street hér í borginni. Aukin fjárveiting fil beilbrigðismála Samkvæmt yfirlýsingu frá fjármálaráðherra sambands- stjórnarinnar, Mr. Abbott, er ráðgert að verja 44 miljónum dollara stærri upphæð til heil- brigðismálanna í þessu landi á næsta fjárhagsári en raun varð á fyrra; þetta er viturleg ráðstöf- un, því heilbrigði þjóðarinnar er fyrir öllu. Núverandi heilbrigðismálaráð herra sambandsstjórnar, Mr. Martin, er mikill áhuga og elju- maður, sem lætur því meira til sín taka sem hann situr lengur í ráðuneytinu. VogrekiS er úr „Helga", finst í Rauðasandi og Barðaströnd Brakið úr björgunarbátnum gaf fyrsl bendingu um það Fréttaritari Mbl. ú Patreksfirði, símaði Mbl. í gærkvöldi, að fullvíst þætti og sönnur á því fengnar að vogrek það er fanst á Rauðasandi og Barðaströnd sé úr vélskipinu Helga frá Vestmanna- eyjum, er fórst á Faxaskeri í byrjun þessa mánaðar. í því aftaka suðvestan veðri er Helgi fórst í, og eigi slotaði fyrr en eftir 2 sólarhringa, er talið að brak þetta hafi borist undan vindi og sjó fyrir Reykja- nes. Síðan hefir sem kunnugt er gengið á með mjög snörpum suð vestan veðrum. Þau hafa ásamt straumnum borið rekaldið alla leið inn á Breiðafjörð. Vogrek það er fanst á fjörun- um í fyrradag, var dregið á þurt og látið þorna. Kom þá fram svo auðveldlega mátti greina, stórt „H“ í brakinu úr björgunarbátn- um. Einnig fanst á björgunar- bátsbrakinu síðasti endi orðs sem var „eyjum“. — Báturinn, hurðir, brak úr byrðingi skips- ins og annað, ber alt sömu liti og Helgi bar. Hefir rekaldinu verið lýst nákvæmlega fyrir eig- anda Helga og hefir lýsingin komið heim við þá liti er Helgi bar. Auk þess, sem þrýstidælu rak, 5” í þvermál, og kom það líka heim við vél Helga. Mbl. 28. jan. Mesta veðurhæð I janúar geisuðu iðulega storm ar hér í Reykjavík og var mest- ur vindhraðinn — fárviðri — sunnudaginn þ. 22. jan., er veður hæðin náði 14. stigum eða 81—89 hnútum. Samsvarar það því, að vindhraðinn hafi verið 150—165 km. á klukkustund. Þessi mikla veðurhæð stóð aðeins skamma stund, en samt nógu lengi til þess að valda spjöllum á íbúðar- husum og mannvirkjum. Annars náði veðurhæðin iðulega 12 stig um hér í Reykjavík, en það sam svarar um það bil 120 km. hraða á Klukkustund. I janúarmánuði kom það fyr- ir, sem er mjög óvenjulegt, að vindmælir, sem Veðurstofan hef ir í vitanum á Stórhöfða í Vest- mannaeyjum, skemmdist tvisv- ar í fárviðri. Á veðurstofan fjóra aðra slíka mæla víðsvegar um land, en ekkert slíkt óhapp hefir hent þá. Vísir, 2. febr. Tryggvi J. Oleson, Dr. Phil. Hlýtur doktors gráðu í heimspeki Hr. Tryggvi J. Oleson pró- fessor í sagnfræði við United College í Winnipeg, hefir nýlega varið doktorsritgerð sína um sögu Breta á ejleftu öld við há- skólann í Toronto, og hlotið gráðuna Doctor of Philosophy; hefir hann unnið að verki þessu um allangt skeið af mikilli vand virkni, og mun hér verða um stóreflis bók að ræða, er hún hleypur af stokkunum. Dr. Tryggvi er enn maður á ungum aldri og á vafalaust eftir að inna af hendi margvísleg afrek á vettvangi sagnfræðinnar og víðar; hann er mikill eljumað- ur við störf og vandvirkur að sama skapi. Dr. Tryggvi er fæddur í Glen- boro, sonur hinna valinkunnu hjóna Mr. og Mrs. G. J. Oleson; hann er kvæntur Elvu Hall- grímsdóttur Eyford, sem útskrif- uð er af háskóla Manitobafylkis, og eiga þau tvö mannvænleg börn. Lögberg flytur Dr. Tryggva hugheilar árnaðaróskir í tilefni af þeirri sæmd, er honum að makleikum nú hefir fallið í skaut. Séra Philip M. Pétursson Endurkosinn forseti Þjóðræknis- félagsins Framkvæmdanefnd félagsins var öll endurkosin á síðasta þingi, eins og frá er skýrt á rit- stjórnarsíðu þessa blaðs, og er þannig skipuð: Séra Philip M. Pétursson, for- seti; Dr. Tryggvi J. Oleson, vara- forseti; J. J. Bildfell, skrifari; Frú Ingibjörg Jónsson, vara- skrifari; Grettir L. Jóhannson, féhirðir; Grettir Eggertson, vara féhirðir; Guðmann Levy, fjár- ^álaritari; Árni G. Eggertson, K- C., varafjármálaritari; Ólaf- Ur Pétursson, skjalavörður. Endurskoðendur: Steindór S. Jakobsson, Th. Beck. Nýkjörnir heiðursfélagar Þjóðræknisfélagsins Bergthor Emil Johnson látinn Að morgni síðastliðins laugar- dags lézt að heimili sínu 1059 Dominion Street hér í borginni, Bergthor Emil Johnson rúmlega 53 ára að aldri, gáfaður maður og vinsæll, er um langt skeið tók virkan þátt í íslenzkum mann- félagsmálum, og lagði mikla rækt við íslenzkar menningar- erfðir; hann var útskrifaður af Jóns Bjarnasonar skóla, gegndi skrifaraembætti í framkvæmda nefnd Þjóðræknisfélagsins og hafði með höndum ráðsmensku barnablaðsins Baldursbrár með- an það var við líði; einnig var hann um tímabil forseti Sam- bandssafnaðar í Winnipeg og tók mikinn þátt í starfsemi hans. Um allmörg undanfarin ár starfaði Bergthor Emil fyrir fé- sýslufyrirtæki þeirra Pétursón- bræðra, The Union Loan and Investment Company, og aflaði sér þar sem annarsstaðar trausts og velvildar samferðamanna sinna; hann var skáldmæltur vel og unni mjög íslenzkri ljóða- gerð. Bergthor Emil var fæddur í Mikley, hinn 1. dag september mánaðar árið 1896. Foreldrar hans voru þau Einar Johnson og Oddfríður Thórðardóttir, mæt og vel metin hjón. Bergthor Em- il var kvæntur Kristínu Björns- dóttur Byron, mikilhæfri ágæt- iskonu, er lifir mann sinn ásamt einni dóttur, frú Lilju Árnason, er heima á í þessari borg. Faðir hins látna, Einar, hniginn að aldri, er enn á lífi, og hefir dval- ið á heimili sonar og tengdadótt- ur að 1059 Dominion Street um allmörg undanfarin ár við mikið ástríki; þá lætur og hinn látni eftir sig einn bróður, hinn vel- metna lækni Kjartan Johnson á Gimli. Berthor Emil var góðhjartað- ur maður og vinfastur, og víst er um það, að margir sakna hans; hann sat nýafstaðið þjóð- ræknisþing og andlátsfregn hans, svo skömmu síðar, kom eins og skúr úr heiðskíru lofti. Lögberg vottar sifjaliði hins látna innilega samúð í þeim djúpa harmi, sem að því hefir kveðinn verið. Útförin fór fram frá Sam- bandskirkju að viðstöddu miklu Berglhor Emil Johnson fjölmenni á miðvikudaginn und- ir forustu séra Philips M. Pét- urssonar. Vinsæll namsmaður Síðastliðna viku var Adrian Gorick kosinn forseti fyrir næst komandi ár fyrir þá nemendur, er stunda þá nám í þriðja bekk í Arts deildinni við Manitoba- háskólann; hlaut Adrian fleiri atkvæði en hinir frambjóðend- urnir þrír til samans, og sýnir það hve vinsæll hann er meðal bekkjarsystkina sinna. Faðir hans, Thomas Gorick, er af ensk um ættum en móðir hans er ís- lenzk, Oddný Frederickson Gorick, ættuð frá Vatnabygð- um; systir hennar, Björg, var fyrrum píanókennari í Winni- peg, en bróðir hennar, Carl Frederickson, lézt fyrir nokkr- um árum. Adrian Gorick hefir í hyggju að ná B. A. stigi við háskólann og leggja síðan stund á lögfræði. Fremur slæmt heilsufar í bænum Heilsufar í Reykjavík má telj- ast fremur slæmt um þessar mundir, að því er Vísi hefir ver- ið tjáð. Hefir verið á ferðinni háls- bólga og allmikil brögð að kvefi. Ennfremur hefir skarlatssótt stungið sér niður á nokkrum stöðum í bænum, Vísir, 2. febr. Miðstöð Aluminium iðnaðarins Bærinn Arvida, sem liggur um áttatíu mílur frá Quebec- borg, er aðalmiðstöð Alumíum framleiðslunnar í Canada; þetta er fallegur bær og þrifalegur. Félagið, sem á bæinn, The Alum inum Company of Canada, hef- ir um 6 þúsund manns í þjón- ustu sinni. Barnaspítali í uppsiglingu Undirbúningsráðstöfunum er nú lokið varðandi byggingu barnaspítala í Winnipeg, að því er spítalaráð borgarinnar skýrir frá; áætlað er að kostnaður við bygginguna nemi $2,700.000. Lóð in undir spítalann kostaði $91, 071. Nú er það næst á dagskrá að afla nauðsynlegs fjár og kem- ur það þá vitanlega til kasta bæjarstjórar, fylkisstjórnar og sambandsstjórnar að ráða fram úr þeim vanda; auk þess er gert ráð fyrir, að einstaklingar og fé- lög láti ekki sinn hlut ekki eftir liggja varðandi framkvæmdir þessa mikla velferðarmáls, því oft var þörf, en nú er nauðsyn. Mr. G. F. Jónasson Endurkosinn til forseta Á fundi, sem haldinn var á Fort Garry hótelinu hér í borg- inni um miðja fyrri viku, var Mr. G. F. Jonasson framkvæmd- arstjóri Keystone Fisheries Limited, endurkosinn forseti Prairie Fisheries Federation. Mr. Jonasson er mikill atorku maður, og hefir gefið sig meiri hluta ævinnar að fiskiveiðamál- efnum.

x

Lögberg

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Lögberg
https://timarit.is/publication/132

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.