Lögberg - 02.03.1950, Qupperneq 3
LÖGBERG, FIMTUDAGINN, 2. MARZ, 1950
3
Haukadalur í Dalasýslu
Eins og menn vita, er Haukadalur
1 DalasýsJu fögur sveit, sem mjög
kemur vtð sögu landsins; einn af
sonum hennar, Kristvarður Por-
varðsson, áður skólakennari, sendi
bróður sinum, J. J. porvarðssyni
fyrrum kaupmanni, sem hér er bú-
settur, þá fallegu lýsingu af fæð-
ingarsvelt þeirra, er hér fer á eftir,
og lét hann Lögbergi hana góðfús-
lega í té til birtingar. — Ritstj.
Dalurinn liggur í austur, aust-
an til er hann mjór, en breikkar
eftir því, sem vestar kemur.
Beggja megin við hann eru há
fjöll og brattar hlíðar, með hjöll
um og háum björgum hér og
þar. Niður hlíðarnar falla lækir
og gil í þröngum klettagljúfr-
um, og steypast lækirnir víða
fram af hjallabrúnum, og gilin
hafa sumstaðar myndað fossa,
sem steypast niður í kletta-
gljúfrin. í vorleysingum er tign-
arleg sjón að sjá hina rjúkandi
fossa í giljum og lækjum, og
veltandi vatnsstrauminn falla
niður hlíðarnar með miklu afli
og straumnið
Að 'norðanverðu er dalurinn
víða grasi vaxinn upp á fjalla
brúnir og þar eru víða góðir
slægjublettir á sumrum. Að
sunnanverðu við dalinn eru fjöll
in há og hrikaleg og hlíðarnar
ekki eins grasi vaxnar og að
norðanverðu. Af því að fjöllin
eru svo há að sunnanverðu í
dalnum, er þar oft dimmt og
skuggalegt framan af vetri, og
þeim megin sést ekki sól á sum-
um bæjum fyr en á Góu, þó að
glaðasólskin sé að norðanverðu
í dalnum. En dalbúnar að sunn-
anverðu sjá þó sólskinið hinu
megin í dalnum þegar sólskin er.
Eftir miðjum dalnum fellur
Haukadalsá. Beggja megin við
hana eru engjar dalbúa. Áin fell-
ur í Haukadalsvatn, sem er vest-
an til í dalnum, og úr vatninu
fellur áin í Hvammsföjrð. Bæ-
irnir í Haukadal eru í röðum
beggja megin við ána neðan til
í hlíðunum, og eru þeir sums-
staðar í dalnum hvor á móti öðr
um að norðan og sunnan verðu
við ána, og er því þar mjög stutt
á milli bæja. Austan til er
Haukadalur þröngur og hólótt-
ur og lítið undirlendi. og er þar
því lítið útsýni. En þegar kem-
ur vestur í miðjan dalinn, er
hann þar breiðari og fegurri, og
þar þykir mörgum ferðamönn-
um, sem ferðast um Haukadal
í júlímánuði, vera mjög fagurt
á kveldin, þegar sól er í vestur-
átt.
Hlíðin 1 miðjum Haukadal að
norðanverðu er mjög fögur í
júlí og ágúst; þá er hún með
grænum blágresis brekkum og
í þeim eru bláber og krækiber.
Fagurtærir lækir og gil með
smá fossum renna niður hlíðina
hér og þar. Og sums staðar á
milli giljanna standa þverhnýpt
björg og klettasnasir, sem gnæfa
hátt eins og verðir yfir dalnum.
Áin rennur í bugðum niður
dalinn í hið fagra vatn, sem áð-
ur er nefnt. Beggja megin við
ána eru grænar og grösugar
engjar. Og á kvöldin rétt fyrir
sólarlag sýnist hún með sínum
kvíslum, síkjum og lækjum, sem
i hana renna, vera eins og silfur-
tærir þræðir ofnir í hinn fagra
óúk engjanna. Haukadalsvatn
þá spegilfagurt, og stundum
sest þá á því eins og sólbrú. Svo
guæfa yfir fegurðardýrðina bæ-
irnir meg græna túnbaugina í
kring í bæina, glóandi af fíflum,
sóleyjum og fjólum.
Um aldamótin 1900 voru bæir
í Haukadal 20; 12 að norðan-
verðu við Haukadalsá, en 8 að
sunnanverðu við hana. En nú
eru byggðir bæir í Haukadal að-
eins 14, en 6 hafa lagst í eyði.
Nú er enginn bóndi í Hauka-
dal, sem bjó þar fyrir aldamót-
in 1900; flestir dánir, 2 lifandi
hér í Reykjavík.
í miðjum Haukadal að norð-
anverðu eru Leikskálar. Bærinn
stendur neðst í hlíðinni og nær
efri hluti túnsins dálítið upp í
hlíðina.
Fyrir ofan túnið er brött hlíð
og mörg gil og lækir renna nið-
ur hana. Einn lækurinn rennur
ofan í gegnum mitt túnið og
niður hjá fjósveggnum og heit-
ir hann Bæjarlækur
Annar lækur rennur niður
með túninu að vestanverðu og
heitir Mjólkurlækur. Og niður
með túninu að austanverðu renn
ur gil, sem heitir Húsagil. Það
rennur rétt fyrir austan fjár-
húsin og svo á milli aðaltúnsins
og hesthústúnsins. Gilið og læk-
irnir hafa upptök sín hátt upp í
fjalli og bera því stundum nið-
ur í túnið aur og grjót; en það
hefir alltaf verið hreinsað á vor
in og borið burt, svo að túnið
minkar ekki fyrir framburð gils
ins og lækjanna.
Árið 1918, um páskaleytið,
velti Húsagilið fram feikna
miklu snjóflóði með aur og
grjóti; flóðið lenti á fjárhúsun-
um, og drap yfir 100 kindur og
stórskemmdi túnið. Eftir það
voru fjárhúsin flutt austur fyrir
tún. Skammt fyrir sunnan tún-
ið rennur Haukadalsá niður dal
inn, og með fram henni eru engj-
ar, eins og áður er nefnt. Líka
er heyjað upp í fjalli, en erfitt
þótti að flytja heyið úr fjallinu
og heim, því hlíðin er mjög
brött, og vildi þá stundum bagg-
arnir og reiðingurinn fara fram
af hestunum, og ultu þá stund-
um sáturnar langa leið niður
hlíðina.
Heimreið að Leikskálum eru
eyrarnar með fram ánni, og þótti
mörgum reiðmanninum skemti-
legt að láta spretta úr spori
heim á hlaðið.
Bærinn snýr fram að ánni, og
voru þar á honum 7 bleik þil
með rauðum vindskeiðum: Vest
asta húsið var baðstofa, þá bæj-
ardyr, svo stofa með lofti yfir,
næst var búr, og eldhús bak við
búrið, þá eldiviðarhús, og svo
tvær skemmur, en sund var á
milli þeirra, og einnig var sund
á milli bæjarhúsanna og skemm
anna. Fyrir austan skemmurnar
var fjósið, en norðan við það var
þurkhjallur, og norður af hon-
um reiðhesta-hesthús, og fyrir
vestan hesthúsið var smiðja.
Rétt fyrir austan túnið á Leik-
skálum er rennislétt grund, sem
var girt og borinn á áburður og
notuð sem tún; munu formenn
hafa notað þá grund fyrir leik-
völl, og byggt þar skála, til að
dvelja á meðan á leikjum stóð.
Og í túninu rétt fyrir vestan
bæinn er hár klettur, sem heitir
Skjaldhamar; þar munu forn-
menn hafa geymt vopn sín með-
an að leikar stóðu yfir, því til
leika mátti enginn bera vopn.
Á móti Leikskálum fyrir sunn
an ána er Jörvi; þar var haldin
Jörvagleði, sem þjóðsögur okkar
segja frá. Og það er sagt, að
prestar hafi séð um, að sú skemt-
un var lögð niður, af því að á
síðustu skemtuninni hafi 19 til
2o4)örn átt að koma undir!!
Hátt fjall er beint fyrir ofan
bæinn á Jörva, sem heitir Jörva-
hnúkur.
Á Leikskálum hafa forfeður
mínir í föðurætt búið síðan á 17.
öld til 1916:
Árið 1673 drukknaði í Hauka-
dalsvatnsósi Þorvarður sonur
Runólfs sýslumanns Sigurðsson-
ar. Þorvarður bjó á Leikskálum.
Hann átti fyrir konu Halldóru
Egilsdóttur. Þe;rra son var Berg
þór, og hann bjó á Leikskálum;
kona hans var Bergljót Kolbeins
dóttir. Sonur þeirra var Þor-
varður, fæddur á Leikskálum
1760, dó 27. desember 1823. Kona
hans var Þjóðhildur Jósepsdótt-
ir, fædd 1768, dó 23. marz 1854.
Þeirra son var Bergþór, fæddur
1788, dó 21. maí 1853; átti Björgu
Hallsdóttur, fædd 15. desember
1792 í Sælingsdalstungu, dó á
Leikskálum 17. marz 1871. Þeirra
son var — faðir minn — Þor-
varður, fæddur á Leikskálum 4.
febrúnar 1836, dó sumarið 1918,
átti Kristínu Jónasdótfur —
móður mína — fædd á Innra-
leiti á Skógarströnd 17. nóvem-
ber 1835, dó 21. júlí 1916 í Stóra
skógi í Miðdölum.
Foreldrar mínir bjuggu góðu
búi á Leikskálum í Haukadal og
áttu 14 börn. 7 stúlkur og 7 pilta.
Allir þessir forfeður, sem hétu
á víxl, Þorvarður og Bergþór,
bjuggu á Leikskálum í meir en
tvær aldir. Nú er jörðin farin
úr ættinni. Faðir minn Þorvarð-
ur Bergþórsson var duglegur
bóndi og átti margar skepnur
t. d. 7 kýr, 800 fjár, 12 fullorðna
hesta, þar af voru venjulega
tveir reiðhestar. Hann byggði
upp bæinn og öll peningshús,
Hann var hreppstjóri og sýslu-
nefndarmaður í mörg ár og réði
mestu í hreppnum. Haukdælum
þótti gott að leita ráða til hans,
því hann þótti ráðhollur, þegar
til hans var leitað.
Störf móður minnar voru að-
allega bundin við heimilið og i
börnin. Hún var trú meðhjálp
manni sínum, alúðarrík móðir
barna sinna og umhyggjusöm
húsmóðir á heimilinu. Hún var
hjálpsöm og kærleiksrík við fá-
tæka, sem leituðu hjálpar henn-
ar. Þungbærar lífsraunir urðu
hlutskipti hennar, en hún var
svo vel gefin, að hún lét ekki
lífsbölið yfirbuga sig. Hún var
svo vel trúuð og vönduð, að hún
mátti ekki vamm sitt vita.
Nú lifir hún sæl hjá guði.
Krisívarður Þorvarðsson
Merkileg minningabók
„Minningar Ara Arnalds“ heitir bók, sem nýlega er komin út
og'mér hefir borist. Það er gamall og góður siður margra íslendinga
að skrá minningar sínar, en hitt hefir ekki tíðkast fyrr en a siðan
árum að margar minningabækur komi ut arlega. Kaupgeta
almennings leyfði það ekki. Og þá sjaldan þessháttar bækur komu
út var frágangurinn fátæklegur, því að allt varð að spara._
Bókin, sem hér verður nokkuð "
vikið að er bæði falleg og prýði-
lega samin og rituð. Eg þykist
ekki gera neinum minningarhöf-
undi rangt til þó að mér þyki
vænna um hana en allar aðrar
bækur þessarar tegundar, sem
komið hafa fyrir mín augu hin
síðari ár, og met ég þó margar
þeirra mikils.
Ari Arnalds gerir sér ekkert
far um að rita samanhangandi
ævisögu sína og tína sem flest
til. En hann skrifar þætti um
það, sem honum þykir merkileg-
ast af því, sem fyrir hann hefir
borið og þá þætti skrifar hann
ítarlega og snilldarlega, eins og
þegar gott skáld lýsir atburðum,
svo að frásögnin hrífur og heill-
ar, bindur hug lesandans,
skemmtir honum eða lætur hann
finna til, eftir því sem við á. Og
hann bregður stundum einskon
ar huliðsbjarma yfir frásögnina,
þannig að lesandinn spyr sjálfan
sig, hvort hann sé nú að segja frá
raunverulegum atburðum eða
hugsuðum. En lifuð mannleg ör-
lög eru að baki allra þáttanna,
líka ævisögubrotsins og sögunni
af Silfursalanum og urðarbúan-
um. t»ær sögur eru hins vegar
svo vel sagðar, að hvert góðskáld
væri vel sæmt af.
Lengsti kafli bókarinnar segir
frá æsku höfundar og námi,
heima og erlendis, uppvextinum,
baráttunni fyrir því að komast
til mennta, Hafnarárunum og
veru hans í Noregi — en þar
dvaldi hann sér til heilsubótar,
skrifaði jafnframt nokkuð í
„Verdens Gang“, sem þá var
undir stjórn Ole Thomesens,
mesta blaðamanns Noregs á
þessari Öld, og var svo heppinn
að upplifa skilnaðinn milli Nor-
egs og Svíþjóðar, mesta stjórn-
málaviðburð þeirra tíma. Frá
skilnaðinum, er framkvæmdur
var í norska Stórþinginu 7. júní
1905, segir hann greinil. í sér-
stökum þætti, sem margir munu
kannast við og muna, sem
heyrðu hann í útvarpinu fyrir 5
árum.
III. kaflinn er næstlengstur og
segir þann þátt úr stjórnmála
sögu landsins, sem mótaðist af
starfi Landvarnarflokksins, árin
1902—’12 deilunni um ríkisráðs-
ákvæðið, sambandslagabarátt-
unni og hversu Landvarnar-
stefnan náði smámsaman tökum
á Framsóknarflokknum gamla
og síðar Þjóðræðisflokki, og
muldi utan úr Heimastjórnar-
flokknum. Þingvallafundurinn
1907 markar þar tímamót. Blaða-
mannaávarpið frá 1906 varð til
að sameina menn um þann fund,
en kosningarnar 1908, sem forð-
uðu þjóðinni frá samþykkt sam-
bandslagauppkastsins frá sama
ári, skáru úr um að þjóðin
mundi fylgja frelsiskröfum sín-
um fram til sigurs. — Þeir Ari
og Benedikt Sveinson voru sjálf-
ir framaralega í Landvarnarbar-
áttu, sem ritstjórar blaðakosts
flokksins, hreinskilnir og hálf-
yðralausir, en vel fylgnir máli
sínu. Það er gaman að lesa þenn-
an þátt eftir mann sem sjálfur
var í eldinum, en skrifar þó
hlutlaust um það sem gerðist og
á ekki hnjóðyrði handa nokkr-
um andstæðingi. — Nú er farið
að fyrnast yfir hina sólríku vor-
öld Landvarnarflokksins hér á
SELKIRK METAL PRODUCTS LTD.
Reykháfar, öruggasta eldsvörn,
og ávalt hreinir. Hitaeinlngar-
rör, ný uppfynding. Sparar eldi-
viö, heldur hita frá að rjúka út
meíS reyknum — Skrifið símið til
KELLY SVEINSSON
187 Sutherland Ave., Winnipeg
Sími 54 358
S. O. BJERRING
Canadian Stamp Co.
RUBBER & METAL STAMPS
NOTARY & CORPORATE SEALS
CELLULOID BUTTONS
324 Smith St. Winnipeg
Phone 924 624
Office Ph, 925 668
Res, 4C4 319
landi, og unga kynslóðin þekkir
hana ekki nema af mismunandi
réttri afspurn. Þessi þáttur Ara
er því kærkomin gjöf þeim til
handa sem vilja kynna sér hvern
ig íglenskur sjálfstæðishugur
þroskaðist hér á landi í by^jun
þeirrar aldar, sem nú er að
hálfnast.
Um þrjá siðustu þættina get
ég verið fáorður. Tvo þeirra hefi
ég drepið á áður. Segir annar
þeirra frá atburði, sem gerðist
hér á landi og vestur í Kaliforn-
íu fyrir 70 árum, hinn frá 120
ára gömlum atburði austan úr
Múlasýslu nyrðri, sem engin
skýring fékkst á fyrr en öld síð-
ar. Þriðji þáttrinn segir frá at-
burði, sem kemur fyrir sýslu-
mann í embættisrekstri hans: a'ð
þurfa að dæma sauðaþjóf, — og
hvernig embættisraaðurinn telur
sér skylt að firra vandræðum og
getur með fortölum sínum af
stýrt þeim og komið málinu i
farsældarhöfn fyrir sakborning
inn og fjöldskyldu hans. Frá-
sögnimlýsir því, að sumir verðir
laganna telja sér jafnframt skylt
að vera mannvinir og hjálpa um
leið og þeir dæma. Sú stefna hef-
ir nú náð viðurkenningu allra
fremstu menningarþjóða, en það
geta ekki aðrir en góðir menn og
gáfaðir framkvæmt hana.
Ari Arnalds tók ungur þátt í
stjórnmálum og var formaður í
Stúdentafélaginu í Kaupmanna-
höfn um það leyti, sem Land-
varnarstefnan hófst. Þegar heim
kom að loknu laganámi gerðist
hann fyrst ritstjóri „Dagfara“ á
Eskifirði og síðan meðritstjóri
„Ingólfs" en jafnframt fulltrúi í
Stjórnarráðinu, og var kosinn á
þing haustið 1908 fyrir Stranda-
sýslu, en sat þar aðeins það eina
kjörtímabil, til 1911. Hann hvarf
þannig á brott bæði frá blaða-
mennsku og stjórnmálum og
gerðist sýslumaður og gegndi
héraðsdómaraembætti eftir það.
Það er rómað hve röggsamur en
jafnframt vinsæll hann var í því
starfi. En samt finnst mér það
sárt — og það mun fleirum
þykja, sem „Minningar“ hans
lesa — að blaðamannastéttin
skyldi ekki fá að njóta hans leng
ur í sínum flokki. Og sama munu
ýmsir segja, sem við stjórnmál
fást — að hann hefði átt að vera
þar áfram. Því að það sem ein-
kennir bók Ara Arnalds er fyrst
og fremst ritsnilld og frábær frá
sagnargáfa og svo þessi mannúð
og vilji á að gera öðrum rétt til,
sem hlýjar lesandanum svo vel,
á þessum tímum harðneskjunn-
ar.
Dr. Sigurður Nordal hefir rit-
að formála fyrir bókinni. Hann
gefur þar nokkra skýringu á
hæfileikum höfundarins með því
að benda á, að hann sé þremenn-
ingur við bæði Björn Jónson rit-
stjóra og Gest Pálsson skáld. Jú,
slíkir hæfileikar hafa gengið í
ættir löngum, ekki síst sá, sem
kennist af þeim síðarnefnda.
Allmargar myndir fylgja bók-
inni, frá þeim stöðum, sem koma
við sögu, og af mönnum, sem
höf. minnist á. Og frágangurinn
er allur til sóma útgefandanum,
Hlaðbúð. Hún hefir fengið
happadrátt á öngulinn þar sem
eru „Minningar Ara Arnalds“.
&k. Sk. — Fálkinn
N0RMAN S. BERGMAN, B.A..LL.B.
Barrister, Solicitor, etc.
411 Childs Bldg,
WINNIPEG CANADA
AUo
íeMÉ
EWELLEF
123
JENTH ST.
JEWELLERSjj BRANDON
447 Portage Ave, * Ph, 926 885
Phone 21 101
ESTIMATES
FREE
J. M. INGIMUNDS0N
Asphalt Roofs and Insulated
Sidíng — Repairs
632 Simcoe St.
Winnlpeg, Man.
DR. A. V. JOHNSON
Dentist
506 SOMERSET BUILDING
Telephone 97 932
Home Telephone 202 398
Talsími 925 826 HelmiUs 404 630
DR. K. J. AUSTMANN
BérJrœOingur i augna, eyrna, nef
og kverka sjúkdómum.
209 Medical Arts Bldg.
Stofutlmi: 2.00 til 5.00 e. h.
DR. ROBERT BLACK
Bérfrœöingur < augna, eyrna,
nef og hdlssjúkdómum.
401 MEDICAL ARTS BLDG
Graham and Kennedy St.
Skrifstofuslmi 923 851
Heimaslml 403 794
EYOLFSON’S DRUG
PARK RIVER, N. DAK.
islemkur lyfsali
Fölk getur pantað meðul og
annað með pösU.
Fljöt afgreiðsla.
A. S. B A R D A L
848 SHERBROOK STREET
Selur llkkistur og annast um Ot-
farir. Allur fltbúnaður sá bezti.
Ennfremur selur hann allskonar
minnisvarða og legsteina.
Skrifstofu talstml 27 324
Heimllis talslmi 26 444
Dr. P. H. T. Thorlakson
WINNIPEG CLINIC
St. Mary’s and Vaughan, Wpg.
Phone 926 441
Phone 927 025
H. J. H. Palmason. C.A.
H. J. PALMASON & CO.
Chartered Acconntants
505 Confederatlon Life Bldg.
Wtnnipeg Manltoba
PARKER, PARKER
& KRISTJANSSON
Barristers - Solicitor*
Ben C. Parker, K.C.
B. Stuart Parker. A. F. KrUtjansson
500 Canadian Bank of Commerce
Chambers
Winnipeg, Man. Phone 923 561
Phone 49 469
Radio Service Speciallsts
ELECTRONIC LABS,
H. THORKELBON, Prop.
The most up-to-date Sound
Equlpment System.
592 ERIN St. WINNIPEG
JOHTÍ A. HILLSMAN.
M.D., Ch. M.
332 Medical Arts. Bldg.
OFFICE 929 349 Home 403 288
Phone 724 944
Dr. S. J. Jóhannesson
SUITE 6 — 652 HOME ST,
viðtalsttml 3—5 efUr h°l
DR. E. JOHNSON
304 EVELINE STREET
Selkirk. Man.
Oftlce hrs. 2.30—6 p.m.
Phones: Office 26 — Res. 230
Offlce Phone Res Phone
924 762 726 115
Dr. L. A. Sigurdson
528 MEDICAL ARTS BLDQ.
Office Hours: 4 p.m.—6 p.m.
and by appolntment
Drs. H. R. and H. W.
TWEED
Tannlceknar
406
TRUBT8
TORONTO QEN.
BUILDINO
Cor. Portage Ave. og Smlth St.
Phone 926 952 WINNIPEO
Cars Bought and Sold
SQUARE DEAL
MOTOR SALES
"The Working Man’s Friend’’
tiL iiui 297 Princess Strbet
VK L0404 Half Biock N. Logan
SARGENT TAXI
Phon* 722 401
FOR QUICK RELIABLE
SERVICE
J. J. SWANSON & CO.
LIMITED
308 AVENUE BLDQ WPO.
Fasteignaaalar. Leigja hös. Gt-
vega peningalán og eldsábyrgð.
bifreiðaábyrgð, o. ». frv.
Phone 927 538
Andrews, Andrews,
Thorvaldson and
Eggertson
LögfrœSingar
209BANK OF NOVA SCOTIA BQ.
Portage og Oarry St.
Phone 928 291
GUNDRY PYMORE
Limited
British Quality Fish Nettlng
68 VICTORIA ST„ WINNIPEQ
Phone 92 8211
Uanager T. R. TBORVALDBON
Your patronage will be appreclated
C A N A D I A N FISH |
PRODUCERS, LTD.
J. H. PAOE, Managing Ditector
Wholesale Distributors of Fr38h
and Frozen Fish.
311 CHAMBERS STREET
Office Ph. 26 328 Res. Ph. 73 917
Q. F. Jonasson, Pres. & Man. Dir.
Keystone Fisheries
Limited
404 SCOTT BLK, 8Iml »25 227
Wholesale Distributors of
FRESH AND FROZEN FISH