Lögberg - 02.03.1950, Side 6

Lögberg - 02.03.1950, Side 6
6 LÖGBERG, FIMTUDAGINN, 2. MARZ, 1950 FORRÉTTINDI Eftir GILBERT PARKER J, J. Bildfell þýddi. — Ljóöin i þessari söqu eru þýdd af Dr. Síq. Júl. Jóhannessyni. Maximillian Cour, var maðurinn sem mestan þáttinn átti í því að undirbúa leikinn. Hann átti sjálfur yfir óvanalega mikilli dramatískri hneigð að ráða. Hann æfði fólkið á Chaudiere og Indí- ánana vestur á fjórum fjöllum. Hann hafði gengið til prestsins á hverjum degi og talað við hann um leikinn og sent hann til skraddarans, sem í síðustu sex mánuðina hafði haldið sig meira og meira út frá öllu sambandi við þorps- búana, nálega lokað sig inni. Það þorði enginn að heimsækja hann, nema að um brýnt erindi væri að ræða, svo sem verzlunarerindi, ölmusuleit, eða um ráð leggingar í ráðaleysi annara. Slíkum veitti hann ávalt viðtal. Auk Portugais, var það Maximillian Cour, sem skraddarinn veitti ávalt við- töku. Hann kendi bakaranum, með al- úð og nákvæmni, hvernig að hann ætti að meðhöndla aðalatriði leiksins, og bakarinn varð upp með sér, af þessu sambandi sínu við skraddarann, þó að raunasvipurinn á andliti Charley færi honum aldrei úr minni, hvorki nótt né dag. Örgeðja og ákafur, með hæfileika til að ná siðum og vana, sem eins vel gat leitt til einþykni, eins og alúðar. Þau einkenni hans féllu í geð Charley, sem sá að Maximillian var heiðvirður borgari, aðeins fyrir tilviljun. Bakarinn hafði frá því fyrsta lifað lífi sem þræddi ákveðinn skylduveg kirkjunnar, sama tilfinningalífið undir öðrum kringum- stæðum hefði getað knúð hann með jafnmiklum áhuga inn á hinar breiðu ginningargötur lífsins. Á kveldin og á sunnudögum hafði Charley unnið að því að gera uppdrætti að leiktjöldum og búningum fyrir leik- inn og hann hafði lokið við að þýða leikinn á frönsku; en það voru sumir dagar, sem hann gat ekki tekið sér penna í hönd. Lífið var honum nú ægi- leg auðn — síðan daginn, sem hann var við hörþreskjaraplássið, því Rósalie hafði verið að heiman. Morguninn eftir að þau mættust við ána, hafði hún farið með föður sínum veikum til Montreal — ekki til Quebec í þetta sinn, eftir ráð- leggingu signorsins, sem hélt að lífs- vonin væri frekar þar. Hún hafði að- eins skrifað eitt bréf, síðan að hann sá hana síðast í vagni signorsins, um morguninn þegar að hún lagði af stað til Montreal með föður sinn veikan, og augnatillitið, sem hún gaf honum þá, fylgdi honum bæði dag og nótt. Hún hafði skrifað honum eitt bréf, og hann hafði svarað því, og ekkert meira. Þó að hann væri kærulaus, að því er hann sjálfan snerti í þessum efnum, þá gætti hann allrar varúðar hvað hana snerti, hann varð að gjöra það. Að vernda hana ef hann gæti, frá sjálfum sér! Ef að hann gæti sett klukkuna til baka. í bréfi sínu til hennar, hafði hann aðeins sýnt henpi fram á, að það væri vissara fyrir þau, að skiptast ekki á bréfum, því systir prestsins í pósthúsinu tæki má- ske eftir því, og þá hlyti það að vekja grun. Hann gat ekki áttað sig á því, hvað bezt væri að gjöra, og ekki heldur á, hvað rétt væri að gjöra. Að bíða á- tekta fanst honum eina úrlausnin, og þetta eina bréf hans endaði með þess- um orðum: „Rósalie, ég lifi aðeins í umhugsun- inni um þig. Það líður ekki ein kveld- stund svo, að þú sért ekki í huga mér, ekki ein mínúta svo, að þú sért ekki hjá mér. Þá fullkomnustu sönnun, sem unt er að gefa, fyrir ást minni, gef ég þér um tíð þá alla, er örlögin úthluta okk- ur. En við verðum að bíða — við verðum að bíða, Rósalie. Þú skalt ekki skrifa mér, en viltu, að ef ég gæti komið til þín, þá kæmi ég. Ef að ég gæti sagt þér að koma til mín þá gerði ég það. Ef að ég með lífi mínu gæti varnað þér sárs- auka og sorgar, þá gæfi ég það fúslega“. Þegar að Charley sat við vinnu sína, þá fanst honum stundum að hún væri hjá sér, og oftar en einu sinni sneri hann sér snögglega við, eins og að hún væri komin inn til hans. Hugur hans var altaf hjá henni og oft með sárum kvíða. Hún stóð fyrir hugskotssjónum hans, föl og angurvær, og í augum hennar sá hann hræðslu og örvæntingarangur, þegar að hún fórog hvarf á bak við hæð- imar. En vikurnar höfðu liðið. Svo kom signorinn, sem hafði verið í Montreal, heim með þær fréttir, að Rósalie liði vel og að hún væri fögur eins og gyðja — fullþroskuð kona að fegurð og vexti. Fríð eins og sú fegursta kona, sem Vatteau hefir nokkru sinni málað, sagði hann við prestinn, þegar þeir mættust í skraddarabúðinni. „Hún er í góðra manna höndum“, svaraði presturinn, „sem að ég vísaði henni til, eftir bendingu ábótans, en •samt er ég ekki allskostar ánægður í sambandi við hana. Þegar hún mætir erfiðleikum“. — Nálin í höndum Char- ley snerist og stakk hann inn að beini. — „Þegar að faðir hennar deyr, sem hann áreiðanlega gjörir, þá verður hún þar á meðal alókunnugs fólks og heyrir ekki eitt kunnuglegt orðatiltæki“. „Þar-skjátlast þér, minn kæri“, sagði signorinn. „Það verður persóna þar yfir frá, sem henni er mjög geðþekk og mál- rómur, sem hljómar vel í eyra henni“. Charley sneri baki við þeim, er þessi samræða þeirra fór fram, sem hann var þakklátur fyrir, því það sem þeir sögðu, hafði sannarlega engin uppörfandi á- hrif á hann, og honum fanst óra tími liði þar til að presturinn sagði: „Hvern meinarðu, Maurice?“ „Frú Flynn, auðvitað“, svaraði sign- orinn. „Ég sendi hana á morgun“. Frú Flynn var farin, en það bætti lítið fyrir Charley, í sumum tilfellum fannst honum, að Rósalie mundi allt eins vilja vera á meðal ókunnugra, eins og að hafa hin spurulu vinaraugu Maríu Flynn hvílandi á sér. Vikur og mánuðir liðu og engar frétt ir komu — engar nema þær, sem prest- urinn minntist lítillega, eða, sem að friðdómarinn, sem allt slúður heyrði, var að tína saman. En fréttir prestsins voru þær einu, sem byggjandi var á, og Charley sá hann aldrei, en hann vonað- ist eftir að hitta hann og heyra hann segja, að Rósalie kæmi bráðum heim. En svo kom spursmálið um hvað hann gæti gjört þegar að hún kæmi? Það var margt í vegi — glæpurinn, sem hann eða Billy urðu að taka út hegningu fyr- ir, en hugur hans kólnaði æ meir og meir í sambandi við þann glæp sökum Rósa- lie, og það var Kathleen — og Rósalie var nú í bænum, þar sem að hún átti heima, og þær gátu mæst þá og þegar. Það var ein úrlausn til — ef að Kathleen skyldi deyja! Hann fyrirvarð sig fyrir þá hugsun, þó honum fyndist fróun í henni. Ef að Kathleen skyldi deyja, þá væri hann frjáls til að giftast Rósalie — giftast henni til hvers? Til þess, að leiða hana inn í hættur og hefnd laganna? Og svo, þó að Kathleen væri ekki í veg- inum, þá mundi enginn kaþólskur prest- ur, hvorki presturinn í Chaudiere né neinn annar kaþólskur prestur fást til að gifta þau, án þess að ganga úr skugga um hinn fyrri æviferil hans. Pro- tistantiskur prestur mundi máske gjöra það, en mundi Rósalie verða fús á að snúa baki við kirkju sinni og fylgja honum, án velþóknunar sinnar eigin kirkju. Hún yrði að fótum troða allar hugljúfar endurminningar og söguleg sambönd fortíðarinnar, taka á móti fyrirlitningu trúbræðra sinna og systra, eyðileggja hjartafrið sinn, því að trúar- hollusta forfeðra hennar var henni dýr- mætt hnoss. Hvílíkur þorparaskapur í hennar garð! En var það nú virkilega satt, að hann þyrfti ekki annað en kalla á hana og að þá myndi hún koma til hans? Var það ekki eins sennilegt, að hún væri farin að fyrirlíta hann, finna til þess, hve ó- drengilegt það hefði verið af honum, að taka á móti ást hennar, sem honum hafði 'verið rétt í ósíngjarnri einlægni og óflekkaðri lífsgleði eins og hljómi him infuglanna í fullsælu sinni — að taka á móti hinum sólbjörtu lífsvonum henn- ar, en gefa ekkert í staðinn, annað, en auða hönd, óvissa framtíð og leyndar sorgir. Það var ekkert sem gat lægt hugar- angur Charley Steele. Hin holdlega hneigð hans krafðist látlausrar svölun- ar. Aftur og aftur barðist hann á móti hinum gamla óvini sínum með öllu afli huga síns og vilja. Að falla fyrir víninu aftur var sama og að gefast upp með öllu. Hann barðist því gegn því ákveðið, þó hugsjúkur, með litlum lífsmetn- aði, með öllum hinum fyrri þráláta viljakrafti sínum horfnum, en með nýrri lífskend. Hugur hans hafði að síðustu vaknað. Mánuðir liðu. M. Evanturel hjarði, og Rósalie kom ekki. Að síðustu varð aðstaðan Charley óþolandi. I vikunni fyrir páska, þegar að flestir úr sveitinni, voru vestur á Fjórum fjöllum, önnum kafnir við að undirbúa sorgarleikinn — æfa sig, sníða og sauma búninga, byggja hús, búa til sæti, fella tré, reisa krossa og Calvaris, sagði Charley Jó frá fyi’ir- ætlun sinni. Fyrri part vetrarins höfðu þeir Jó og hann hist tvisvar í viku, en nú var Jó kominn til hans í vinnustofuna til að hjálpa Charley til. Þeir voru þögulir og samrýmdir. Þeir skildu hvor annan og í þeim skilningi var falið bæði líf og dauði, því úr minni Jó fór aldrei, að hann, ári eftir að hann skriftaði, var hann fast ráðinn í að gefa sig lögunum á vald. Það gjörði honum engan óróa. Hann hugsaði meira um Charley, en um sjálfan sig. Jó var að gjöra bæn sína, þegar að Charley sagði honum frá fyr- irætlun sinni. Charley hafði oft séð Jó krjúpa niður í bæn upp á síðkastið, og hann hafði verið að hugsa, en ekki leng- ur með sinni ísköldu trúleysishugsun. „Jó“, sagði hann. „Ég ætla að fara í burtu — fara til Montreal“. „Til Montreal!“ sagði Jó, þurlega. „Þú ætlar að fara alfarinn?” „Nei, það ætla ég ekki — ég ætla að fara til að sjá Rósalie Evanturel“. Jó var í hálfgerðum vandræðum, en náði sér. Augu hans höfðu smátt og smátt verið að opnast fyrir því, að Charley mundi elska hana, þó að hann hefði enga ástæðu til að halda það, og vilji svo algjörlega á vildi hins manns- ins að hans eigin hugsanir urðu að nokkurskonar endurminningum. Hann svaraði þessu engu, en aðeins kinkaði kollinum. „Ég vil að þú sért hérna Jó, ef að ég kem ekki til baka — og — og ef að hún kemur, að líta til með henni, Jó, ég má treysta þér“. „Þú kemur til baka, monsieur“ — „þú kemur til baka“, sagði Jó og var þungur á brúnina. „Ef að ég get, Jó — ef að ég get“, svaraði Charley. Löngu eftir að Charley var farinn, gekk Jó fram og aftur undir trjánum við áarbrautina, sem Charley hafði far- ið eftir, þegar að hann hvarf úr aug- sýn, með sleða hans og hunda, og hristi raunalega höfuðið. XLVI. KAPÍTULI Maðurinn, sem enginn mundi Það var páskadagsmorgun, dásam- legur vordagur, og sólin sem var að rísa, björt og hlý, gyllti hlíðina fyrir ofan borgina og roðaði með rósrauðum geislum sínum möstrin á skipunum, sem lágu meðfram strönd St. Lawrence fljótsins. Borgin var að vakna af næt- urkyrrðinni, þó að ennþá væri ekki um mikla umferð að ræða, en hljómur kirkjuklukknanna barst út yfir borgina og ána. Það var hljótt á götunum, að- eins einstaka áhugasamur prestur var á.ferð og nokkrir mjólkurvagnar. Á ein- staka húsi voru gluggar opnaðir og fólk með stírur í augum gægðist út um þá, sem ekki sáu annað en nýmóðins, en alskeggjaðan landbónda, með sex hunda fyrir sleða, sem hann ók í hægð- um sínum eftir götunni. Það var sjáan- legt að hann var langt að kominn, lík- lega einhversstaðar austan af fjöllum, þar sem fátt var hrossa, en hundar, birkibátar og uxar voru aðal flutninga- tækin. Það var auðséð, þó að maðurinn færi gætilega, að hundar hans voru með fullu fjöri, þó að hann væri langt að kominn og það einkennilega við hann var, að hann hafði augun á göunni, en var ekki með þau út um allt eins og langt aðkomandi bænda er siður. Hreyf ingar þessa manns voru frjálsmannleg- ar og djarfar og ólíkar hreyfingum skóg iðjumanna eða vatnsflutningamanna — hann hafði hvorki eyrhring eða mitt- isband eins og þeir og hann var ekki innskeifur eins og viðarhöggsmenn, en þó bar hann það með sér að hann var einhversstaðar ofan af fjöllum. Maðurinn með hundasleðann skipti sér ekki um andlitin forvitnu, sem voru að athuga hann, heldur hélt sína leið niðurlútur eins og að hann Væri að ferð ast um heima haga. Hann talaði við og við til hundana og einu sinni stansaði hann fyrir framan blaðaskrifstofu, sem að auglýsingaspjald var framan á og á það var letrað: „Sorgarleikurinn mikli, verður sýndur í Chudiere-dalnum“. Maðurinn horfði á auglýsinguna eins og í leiðslu, því þó að honum kæmi leikurinn við, þá var hann eins og fjar- skynjun ein fyrir hann eins og á stóð. Hugur hans var öðru háður. Þó að maður þessi liti hvorki til hægri né vinstri, þá hafði allt sem í kringum hann var djúp áhrif á hann. Að síðustu kom hann að vissu stræti, þar sem að hann herti á ferðinni. Stræt ið eða gatan lá inn á torg, þar sem kirkjuklukkum var hringt í sífellu. Sölu búðir og skrifstofur voru við það torg, en þær voru allar lokaðar, nema veit- ingahús, sem þar var, var opið og yfir dyrum þess stóð: Jean Joliceuar Li- cence to sell Wine, Beer, and other Spirituous and Fermented Liqours. Nærri því beint á móti veitingahús- inu var Málafærslumanna skrifstofa með alveg nýmáluðu skilti yfir dyrun- um. Það hafði einu sinni staðið á því Charley Steele, Barrister etc., með svörtu letri. Nú stóð á því með útflúr- uðu logagylltu letri: Bockwell and Tremblay Barristers attorneys, etc. Hér leit maðurinn upp raunalega. Hann gat séð, þó óglögt væri, skrifborð- in innan við gluggann, sem að hann sat við forðum, og kortið, sem hékk á veggn um og sólin skein á. Hann hélt áfram, fram hjá veitingahúsinu. Dyrnar á því voru opnar og veitingahússtjórinn stóð í dyrnum snöggklæddur. Hann kom út á gangstéttarbrúnina og heilsaði hon- um. „Ert þú langt að kominn, monsie- ur?“ spurði hann. „Fjögra daga leið“, svaraði maður- inn snúðugt, og leit framan í veitinga- hússhaldarann. Ef að þessi veitinga- hússhaldari, sem hafði séð hann svooft til forna, þekkti hann ekki, þá mundu aðrir sannarlega ekki gjöra það, en samt meira af ásetningi, en vana þreif- aði hann eftir augnagleri sínu, sem að hann þó hafði skilið eftir í Chaudiere, á meðan að veitingahússmaðurinn horfði á hann. Það var eins og Jean Jolicoeur í svip reyndi að átta sig á ein- hverju, en sú hugsun hvarf honum brátt og hann sagði: „Þetta eru fallegir hundar! við sjá- um slíka aldrei nú hér í kring, mon- sieur!“ „Hefir þú nokkurntíma komið í borgina áður?“ „Ég hefi aldrei verið lángt í burtu frá heimili mínu áður“, svaraði maðurinn gleymdi. „Það er betra fyrir þig, kunningi, að hafa augun hjá þér — eins skörp eins og augu Beauty Steele voru. Það eru óþokkar í öllum veitingahúsum hér með fram ánni, sem ekki láta vinstri hendi sína vita, hvað sú hægri gjörir“. „Hundarnir mínir og ég treystum al- drei neinum“, sagði maðurinn gleymdi, og rétt í því, að hann sagði þetta, gleps- aði einn hundur hans til handar veit- ingamannsins, sem hann var að strjúka hundinum með. „Svo ég get séð um sjálfan mig, þó að ég hafi ekki augun hans Beauty Steele, hver svo sem að hann var“. Veitingahússmaðurinn hlóg. „Feg- urðin er ekki þykkri, en skinnið, segja þeir. Charley Steele var málaflutnings- maður; skrifstofa nhans var þarna yfir frá, og hann benti með hendinni yfir götuna. Hann lenti á glapstigum. Hann kom hingað of oft, en á því átti ég enga sök. Augun voru hvöss eins og í fálka, og þú gast ekki lesið neitt úr þeim. Þó var einhver ylur til í þeim. Þau voru hörð og köld eins og veturinn — fimm fet af frosti og engin þýða þar á bak við — frosin til botns. Tungu hafði hann eins og nýskerptar tennur á sög. Hann er nú á botni St. Lawrence fljótsins og skildi hlutina eftir í mestu óreiðu. En komdu inn og fáðu þér eitt staup, lags- maður“. Hann benti með fingrinum til baka til veitingahússdyranna. „Það er sunnudagur og stolinn dropi er góm- sætur“. Maðurinn gleymdi hristi höfuðið. „Ég drekk ekki vín“, sagði hann. „Það gjörði þér samt gott. Þú ert dauðþreyttur. Þú hefir haldið vel áfram — er ekki svo?“ „Ég er kominn að langa leið og var á ferðinni í alla nótt“. „Ætlarðu að halda lengra?“ „Ég ætla að fara aftur á morgun“. „í verzlunarerindum?“ Charley kinkaði kolli iil samþykkis — og leit ósjálfrátt á skiltið hinu megin í götunni. Jean Jolicoeur sá augnaráðið. — „Máske að þú sért að finna málafærslu- mann?“ „Já, að sjá málafærslumann“. „Já, bara að Charley Steele væri hér!“ „Ég hefi eins góðan málafærslu- mann eins og —“ Veitingahússtjórinn hló fyrirlitlega- „Hann er nú ekki til. Hvar ætlar þú ac5 vera hér, monsieur?“ „Á einhverjum ódýrum stað, niður við ána“, svaraði maðurinn gleymdi.

x

Lögberg

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Lögberg
https://timarit.is/publication/132

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.