Lögberg


Lögberg - 02.03.1950, Qupperneq 7

Lögberg - 02.03.1950, Qupperneq 7
LÖGBERG, FIMTUDAGINN, 2. MARZ, 1950 l Ávarp og ársskýrsla forseta Þjóðræknisfélagsins, séra Philips M. Péturssonar, 20. feb. 1950 Ég vil bjóða alla gesti og full- trúa velkomna á þetta 31. þing Þjóðræknisfélags Islendinga í Vesturheimi og láta í ljósi á- nægju mína og fögnuð yfir því, að þrátt fyrir örðugleika af ýmsu tagi í sambandi við rekst- ur félagsins og deilda þess, er félagið enn við góðu lífi og margt í sambandi við starf þess, deilda og einstaklinga innan þeirra, bendir til þess að þó að oss finnist að mörgu sé ábóta- vant, geti framtíðin verið oss björt og giftudrjúg er einu tak- marki á fætur öðru er náð. Al- drei verður hægt að framkvæma alt, sem vér setjum oss í einu. Vér verðum heldur, eins og gert hefir verið, að vinna hægt og stöðugt, standa í skilum við menn og málefni, og missa al- drei sjónar á aðalmarkmiðinu, sem er ræktarsemi við þá þjóð, sem vér erum orðin partar af, og sem margir á meðal vor eru inn- fæddir borgarar í. Á þessu miðaldar ári höldum vér þrítugasta og fyrsta ársþing félags vors, og horfum fram til ókomins tíma til að rýna eftir því, sem mun verða á hinum síðari helmingi tuttugustu ald- arinnar. Út á við í heiminum eru fram- tíðarhorfur bjartar eða dimmar eftir því hvernig menn líta á hlutina, með bjartsýni eða svart- sýni, og hvernig menn túlka það, sem er að gerast meðal þjóðanna. Það má segja með sanni, að möguleikar til ills í heiminum hafi aldrei verið meiri, eða ógnað heiminum meir en nú, en á sama tíma hafa mögu leikarnir til góðs aldrei verið meiri en einmitt á þessum tímum. Það fer allt eftir því hvernig menn og þjóð- ir beita þeim kröftum og þeim völdum, sem þær nú ráða yfir. Og eins fer í öllum málum. Mikill sanuleikur er í því fólg- inn, sem einn maður sagði einu sinni, að einstaklingar í hverju þjóðfélagi gætu trygt framtíð heimsins bezt, ekki með því að lifa óttafullu lífi vegna þess, sem gæti orðið, en með því að vinna það verk, sem þeim er falið að vinna, þó lítið sýnist stundum vera og ómerkilegt, með trú- mensku og dugnaði, í anda kær- leika og einlægni. — Og þá, er fjöldinn fylgir þessari reglu, og hefir unnið það verk, sem hon- um hefir verið falið, með trygð °g einlægni, hefir hann gert það, sem í hans valdi stendur til að tryggja framtíðina, og eng- inn getur heimtað meira, hvorki guð né mennirnir, því hver ein- staklingur getur unnið aðeins eftir meðsköpuðum hæfileikum °S gáfum. Meira getur hann ekki gert. — Gjörum við þetta í starfsemi v°rri, sem félagsmenn og konur ^jóðræknisfélags vors, innan og utan félagsins, þá gjörum við e^ki aðeins alt, sem heimtað get- Ur verið af oss, en vér tryggj- um á sama tíma framtíð félags- ms, 0g þar ag auki, sem nýtir borgarar þjóða vorra, hvort sem ^anacfa e^a Bandaríkjanna, aJstands, tryggjum vér fram- 1 þeirra og líka framtíð heims- ms. Stofnendur félags vors lögðu smn skerf til málanna. Vér, sem nu erum við störfin verðum að ara eftir dæmi þeirra, svo að ver á vorum tíma getum gefið þeim í arf, Sem á eftir koma, stofnun, stefnu og eftirdæmi, sem verði þeim hvatning til göf- ugs starfs í framtíðinni. Vér vit- um ekki hvernig hún verður. En með bjartsýni og góðri von um hana getum vér haldið áfram því verki, sem vér nú vinnum kvíðalausir og án ótta, því trú vor og sannfæring um verðmæti þess, sem vér vinnum að, hefir skapandi mátt. En þó að svo væri ekki, hvað hefði langt verið komist, þegar Þjóðræknisfélagið var fyrst stofnað, ef alt hefði verið gert með hangandi hendi? Ég er sannfærður um að aldrei hefði félagið náð þeim aldri, sem það nú hefir náð, og aldrei verið við eins góðu lífi. Þeir hafa verið margir, sem unnið hafa að málum þess og stutt að þeim. Margir þeirra eru nú horfnir þessu lífi og vér minn umst þeirra í kærleika. Á hverju ári bætast aðrir við í tölu hinna framliðnu. Vér söknum þeirra altaf mikils. Þeir hafa unnið starf sitt vel og hafa reynst góð- ir og nýtir félagsmenn. Ég hefi nokkur nöfn manna, sem fallið hafa frá á hinu liðna ári, sem ég vil lesa upp til minn- ingar um þá, því þeir unnu vel og dyggilega að félagsmálunum og verðskulda að vera minst. Fyrst á listanum er nafn heið- ursfélaga, séra Friðriks Hall- grímssonar, dómprófasts á ís- landi. Hann var gerður að heið- ursfélaga á þinginu í fyrra, en dó á árinu sem líðið er. Næst eru nöfn stjórnarnefnd- armanna tveggja, sem störfuðu báðir í stjórnarnefndini um nokkurra ára skeið, Sveinn Thor valdson, M B E, fyrv. varafor- seti aðalfélagsins og fyrv. for- seti deildarinnar „lsafold“ í Riverton, og séra Halldór E. Johnson, fyrv. ritari félagsins og fyrv. meðlimur deildarinnar á Lundar. Hann fórst, eins og menn vita, í sjóslysi við Vest- mannaeyjar 8. janúar s.l. ásamt níu mönnum öðrum. Minningar- athöfn var honum haldin í gær í Fyrstu Sambandskirkju hér í bæ. Aðrir meðlimir Þjóðræknis- félagsins, sem dáið hafa á árinu eru: Gísli Sigmundsson, Gimli; Sigurður Sigfússon, Oak View; A. E. (Eldjárn) Johnson, Glen- boro; Mrs. María Straumfjörð, Seattle; Guðjón Johnson, Win- nipeg; Mrs. Kristín Erlendson, Winnipeg; Karl Jónasson, Win- nipeg; Eiríkur Thorbergson, Winnipeg; Mrs. Ovída Sveins- son, Winnipeg; Eyjólfur Sveins- son, Winnipeg; Mrs. Guðrún Sól- mundson, Winnipeg. Og svo vil ég bæta hér inn í listann nafni, sem af einhverri ófyrirgefan- legri vangá, var ekki talið upp á listanum í fyrra, sem hefði þó átt að vera. Það er nafns skálds, sem víðþekt var bæði á fyrri og seinni tíð, hér og heima á Is- landi, það er nafn Magnúsar Markússonar ömmubróður míns, sem dó 20. október 1948. Ég vil nú bæta yfirsjónina upp og færa nafn hans inn á lista þessa árs. Félagið hefir haft margt með höndum á hinu liðna ári, síðan að við komum síðast saman, og' þar á meðal þýðingarmikla starf semi af ýmslu tagi og á ýmsum sviðum, sem margsannar gildi félagsins og réttlætir tilveru þess, bæði sem þjóðræknisfé- lags, þar sem menn og konur af íslenzku bergi brotin, ná saman og vinna í sameiningu að mál- um sem alla varða. Meðal þeirra mála var t. d. þátttaka íslend- inga í 75 ára afmælishátíð Win- nipeg borgar. Fyrstu fundir í þvi máli, sem Þjóðræknisfélagið stóð fyrir, og sem fulltrúar ann- ara félaga Islendingar 1 Win- nipeg tóku þátt í, voru kallaðir saman í aprílmánuði. Mörg voru ráðin, sem lögð voru fram, og margir voru þeir, sem tóku þátt í verkinu, sem þessi hátíðanefnd tók að sér að vinna. Ég varð að hverfa frá beinni þátttöku í þess ari starfsemi snemma í maí, en verkið var í ágætum höndum og eins og raun ber vitni þurfti ég engar áhyggjur að hafa út af því að þurfa að ganga úr nefnd- inni. Skrifari félagsins tók for- mensku nefndarinnar og stóð vel í þeirri stöðu. Peningasöfnun var hafin og gengið var til verks að smíða stóran og veglegan skrautvagn, eða „Float“, sem átti að tákna þátttöku íslend- inga í byggingu Winnipegborg- ar. Gissur Elíasson sá um verk- ið og leysti hann það vel af hendi. Svo vel tókst honum, með hjálp og aðstoð nefndarmanna, að vagn Islendinga var talinn meðal hinna fyrstu tuttugu og fimm beztu skrautvagna, sem í skrúðgöngunni voru, sem námu alls eitthvað á annað hundrað. íslendingadagsnefndin, sem með hafði verið í þessari þátttöku og lagt í hátíðarsjóðinn nokkra upphæð af peningum, notaði vagninn í sambandi við íslend- ingadagshátíðina á Gimli s.l. sumar. Hve vel íslendingum tókst í þessu máli ætti að vera góðs viti um hátíðahaldið, sem haldið verður væntanlega seinna í sum ar til minningar um 75 ára há- tíð landnáms íslendinga í þessu fylki. íslendingar settust fyrst að í Winnipeg um haustið 1875 og fóru svo héðan sama haust norður til Nýja-Islands og sett- ust þar að. Nefndir hafa verið settar í þetta mál, bæði þjóð- ræknisnefnd, nefnd íslendinga- dagsins og nefnd Nýja-íslands. Þessum nefndum hefir ekki enn tekist að ná saman að fullu leyti, en það verður að vera meðal hinna fyrstu hlutverka innan næstu daga eftir að þingið er búið, að halda fund og ráðstafa viðeigandi hátíð. Það getur ver- ið, og væri viðeigandi, að menn tækju þetta mál fyrir hér á þinginu. Hér eru fulltrúar frá deildum norðan að og hér eru líka fulltrúar deildarinar í Win- nipeg. Það væri gott að fá grein- argerð frá þeim hvað þeir hugsa um málið, um ráðstafanir, sem þegar hafa verið gerðar og um hugmyndir sem hinir ýmsu full- trúar kunna að hafa um málið. Eitt mál, sem komið hefir fram á dagskrá þingsins á hverju ári nokkur undanfarin ár, verð- ur ekki tekið upp þetta ár, því það mál er nú útkljáð. Það er námstyrkssjóður Agnesar Sig- urðson. Hún er nú búin að miklu leyti að fullkomna sig og ná því takmarki, sem til var ætlast, og er ekki lengur nemandi, sem leit ar styrks. Hún er orðin framúr- skarandi góður píanisti, og hef- ir hlotið ágæta dóma í New York og víðar. Oss er heiður og sómi af að hafa þekt hæfileika hennar og að hafa styrkt hana til framhaldsnáms og hjálpað henni til að ná því stigi í píanó- spili, sem hún nú er á. Nú er það mál hvað henni viðvíkur út- kljáð. En þar sem að þetta félag er menningarStofnun og hefir áður styrkt listafólk, væri það ekki úr vegi, að athuga mögu- leika til að veita öðrum ungum hæfileika piltum eða stúlkum styrk til framhaldsnáms, þeim, sem þess þurfa, til að fullkomna sig. Það er fátt sem gæti verið íslendingum meira til heiðurs og sóma en að geta styrkt ungt hæfi leikafólk á einhverju listasviði, og hjálpað þeim til að fullkomna sig, eða að minsta kosti kvatt það til þess. Annað mál, sem verður að öll- um líkindum ekki mikið meira en drepið á, á þessu þingi, er sögumálið, nema ef það væri að- eins til að fá skýringar frá for- manni eða skrifara þeirrar nefnd ar, um gang málsins. Á síðasta þingi bar ritari sögunefndar fram skýrslu um samning milli nefndarinnar og mentamálaráðs á Islandi. Hann útskýrði það, að mentamálaráðið hefði farið fram á að maður yrði fenginn hér til að halda verkinu áfram. Milli- göngumaður mentamálaráðsins fékk próf. Tryggva Oleson til að taka það verk að sér og er hann nú að draga saman fjórða hefti sögunnar. Þar stendur málið, að því er ég bezt veit. En ef að möguleikar eru á, og ef að nefnd in hefir einhverja skýrslu til að bera fram, þá fær þingið hana til afgreiðslu áður en því lýkur. Svo eru tvö mál, sem liggja fyrir og sem tilkynt hafa verið stjórnarnefndinni á löglegan hátt. Annað þessara mála er um breytingu á þingtímanum, sem borið var fram fyrir þing fyrir einu ári. Nefnd verður sett í það mál ef nauðsyn þykir og til- laga borin fram. Hitt málið er í sambandi við ársgjald með- lima. Skriflegur fyrirvari um það mál var borinn fram á fundi stjórnarnefndar s.l. nóvember- mánuð, þ. e. a. s. með fullum þrigja mánaða fyrirvara eins og lög félagsins krefjast. Það er skoðun framsögumanns, að árs- gjaldið sé altof lítið og ætti að vera ekki minna en tveir doll- arar á ári. En nefnd verður einn ig sett í það mál og það rætt og afgreitt seinna á þinginu. En nú vil ég fara örfáum orðum um önnur mál, sem unn- ið hefir verið að á árinu, sum með góðum árangri, og sum sem betur hefði e. t. v. getað ræzt úr. En hvað sem á vantar að full- komlega hafi verið gengið frá öllum • málum félagsins er það ekki vegna viljaleysis, heldur vegna þess, að unnið er að öllum málum félagsins í hjáverkum frá öðrum störfum. Nefndar- mennirnir allir hafa mörgu öðru að sinna, og mér finst það stund- um undravert, hve mikið er í raun ög veru hægt að leysa af hendi. En það er aðallega vegna hjálpar og aðstoðar margra góðra manna, sem eru oft óspar- ir á tíma og kröftum til þess að mál vor fái framgang. Ég hefi í huga hér meðal ann- ars, er ég minnist á útgáfumál, útgáfu Tímaritsins, og ósér- hlífni ritstjórans, hr. Gísla Jóns- sonar í því máli. Tímarit Þjóð- ræknisfélagsins jafnast á við hin beztu ársrit af líku tagi, sem gefin eru út, bæði að efni og frá- gangi. Það er með sömu ágætum nú og það hefir ávalt verið á þessum þrjátíu árum, sem það hefir komið út, og vér eigum rit- stjóra vorum miklar þakkir skildar fyrir ágætlega og sam- vizkusamlega unnið verk. Ég vona að félagið fái að njóta hans um margra ára skeið enn. Og svo fyrir auglýsingasöfnun í rit- ið, á Mrs. P. S. Pálsson sérstak- ar þakkir, því án hennar og án auglýsinganna væri það kostn- aðarins vegna, oss ómögulegt að gefa ritið út. Ársgjald félaga hrykki aldrei til þess. Þess vegna hefir því verið haldið fram, að hækka ætti ársgjald félaga, því það er ógjörningur að hugsa sér að Islendingar vilji halda félagi sínu við og starfrækja það af ölmusugjöfiim frá auglýsendum. En það mál verður nánar rætt síðar. Orð fá ekki lýst í hve mikilli þakkarskul vér erum við kenn- ara íslenzku skólana, hvort sem er hér í Wpg. eða út um bygðir, þar sem slíkir skólar eru. Það er mikið og ábyrgðarfult starf, og þeim tekst að vinna það að- eins, sem hafa huga og sál við það. Ég hefi ekki fullkomnar upplýsingar um starfið út urn bygðir, í deildum þar, en ég veit, að tilraun var gerð í Selkirk í haust sem leið til að koma á fót líkri kenslu og þar hafði verið árið áður. I því tilefni var sam- koma haldin þar og flutti séra Valdimar J. Eylands, fyrv. for- seti félagsins, erindi um ísland og ferð sína þangað og dvöl þar, og sýndi einnig hreyfimyndir. Tilraun hefir líka verið gerð á Gimli til að halda uppi íslenzku kenslu, og svo hér í Winnipeg. I Riverton hefir verið starfrækt „study group“, sem mætti telj- ast undir þessum lið, þó að eldra fólk hafi þar aðallega tekið þátt í starfi þess hóps í stað unglinga. En starfið hefir borið góðan ár- angur eins og skýrsla, sem seinna verður borin hér inn á þing, sýnir. I Winnipeg s. 1. vor var skól- inn undir stjórn Miss Salóme Halldórsson og hélt skólinn lokasamkomu í Fyrstu Sam- bandskirkju, 30. apríl, sem ágæt- ur rómur var gerður að. Miss Halldórsson vildi losna úr skóla- stjórastöðunni í haust og tók Mrs. Ingibjörg Jónsson við af henni, en Miss Halldórsson er enn einn kennaranna. Skólinn hefir verið starfræktur í Fyrstu lútersku kirkju í hausLog vetur. Kennarar við hann eru: Mrs. Ragnhildur Guttormsson; Miss Stefanía Eyfod og Mrs, Helen Guðlaugsson. Lítil stúlka, Miss Ruth Horn, spilar undir við söngæfingar skólabarnanna. Ég má ekki láta tækifærið sleppa að auglýsa þakklæti mitt og nefndarinnar, fyrir hina ágætu starfsemi þessara kennara í skólanum. Það eru þeir, meðal annara, sem ég á við, þegar ég segi að það er mörgum ágætum mönnum og konum að þakka, að nefndin hefir getað leyst það starf af hendi, sem hún hefir getað gert á þessu liðna ári. Án þeirrar hjálpar væri starfsemin margsinnis minni og fátæklegri. I sambandi við skólann ber einnig að minnast gjafar frá Birni Ólafi Pálssyni, sem var hér í Wpg. um tíma, er hann stundaði nám við kennaraskól- ann. Hann tók þátt í kennara- starfsemi í íslenzku skólunum. Hann sendi heiman frá íslandi tvo árganga af barnaritinu „Vorið“, fjögur eintök af hverj- um árgangi, til notkunar í skól- anum hér í Wpg. Félagið er hon um þakklátt fyrir þessa ágætu gjöf, og kennararnir með. Þeir hafa tilkynt nefndinni, að þetta rit geti orðið skólanum að ágæt- um notum. Með slíka hjálp og stuðning, sem vér njótum í skóla vorum, ætti enginn vandi að vera að starfrækja skóla- kenslu, enda hefir það enginn vandi verið, nema e. t. v. hvað vér vildum að fleiri börn sæktu skólann en raun er á. En hvort sem þau eru mörg eða fá, þá er verið að vinna þarft verk og lof- samlegt, sem verður talið oss til ágætis. Frá skólamálum er eðlilegt spor til útbreiðslumálanna, og í þeim efnum hefði meira mátt komnast í framkvæmd en reynd- ist. En samt höfum vér ekki legið í algjöru aðgerðarleysi í því sambandi. Og hér aftur, hafa nokkrir góðir menn orðið okkur að liði. Meðal þeirra má telja tvo fyrv. forseta félagsins, þá séra Valdimar J. Eylands og Dr. Richard Beck — auk annara. I maímánuði í fyrravor var samkoma haldin af deildinni „Brúin“, Selkirk, og kom ég þangað og flutti örfá orð, sem kveðju frá Þjóðræknisfélaginu, og sýndi hreyfimyndir. Og aft- ur í haust í septembermánuði, var samkoma haldin í Selkirk, eins og búið er að minnast á, og fór þá séra Valdimar J. Ey- lands þangað með myndir og ræðu. Ég kom fram á íslendinga- dagshátíðum á Hnausum í júní, og á Gimli í ágúst og flutti kveðj ur fyrir hönd Þjóðræknisfélags- ins á báðum stöðum. Fimtánda júlí í sumar sem leið, var haldið upp á fimtíu ára afmæli Brown bygðar og eftir beiðni bygðarmanna var ég þar viðstaddur og talaði fyrir hönd Þjóðræknisfélagsins og flutti kveðjuorð. Hátíðahaldið var hið ágætasta í alla staði. Þar voru menn samankomnir úr bygðinni og aðrir langt að, frumbyggjar og ættingjar þeirra, sem fyrst settust þar að. Veður var gott og fólkið glatt, og að lokinni skemtuninni, sem stóð yfir all- an daginn og langt fram á nótt, voru allir samdóma um, að svona ættu bygðarafmæli að vera. Seinna um sumarið fór ég ferð norður til Árborgar og hafði meðferðis Dr. Kristjönu Ólafs- son, séra Halldór E. Johnson og Ragnar Stefánsson, sem tóku öll þátt í skemtun, sem deildin „Esja“ efndi til. Þar kom einnig fram Dr. A. H. S. Gillson, for- seti Manitobaháskólans. Sam- kepni fór fram í framsögn með- al yngri drengja og stúlkna, og flutti forseti háskólans erindi. Samkoman var hin bezta og eiga þjóðræknismenn í Árborg þakk- ir skilið fyrir ágæta frammi- stöðu í þjóðræknismálum. Seinna um haustið, 14. sept., fór ég ferð norður til Riverton og Árborgar með Dr. Þorkel Jó- hannesson og frú Hrefnu í heim- sókn til Guttorms skálds Gutt- ormssonar, sem var farinn sama daginn upp eftir til Wpg., en við hittum hann þar næsta dag, og til Gunnars Sæmundssonar, for- seta „Esjunnar“. Viðtökur voru hinar ágætustu. Aðrar bygðir hefi ég komið í, en ekki altaf í béinum þjóðrækn iserindum, en samt blandast þau mál vanalega öll saman. Og líka hafa aðrir menn unnið þjóð- ræknisstörf bæði beinlínis og ó- beinlínis. Þar teljast prestarnir allir með, því verksvið þeirra tekur inn þjóðræknina og heldur henni við. Þar að auki hefir Dr. Richard Beck, fyrv. forseti, eins og altaf, með ýmsum hætti sýnt í verki, áhuga sinn fyrir starfi félagsins og málstað. I tilefni af 30 ára afmæli félagsins ritaði hann um það ítarlega grein, sem birtist í sumar í blaðinu „Akra- nes“ á íslandi. Hann hefir einnig ritað greinar um Vestur-íslend- inga og félagsmál vor í önnur íslenzkt blöð og tímarit, meðal annars ítarlega ritgerð um hfeið- ursfélaga vorn, Dr. Joseph T. Thorson dómstjóra, í rit Biskups tungnamanna, „Inn til fjalla“, er út kom nýlega. Auk þess hefir Dr. Beck haldið áfram þjóð- ræknis- og landkynningarstarf- semi sinni, bæði í ræðu og riti hérna megin hafsins, á íslenzku og ensku. Hann flutti meðal annars, aðalræðuna á 50 ára landnámshátíð íslenzku bygðar- innar í Brown, Man., sem ég mintist, sem Þjóðræknisdeildin „ísland stóð að, og á lýðveldis- hátíðinni að Mountain, N. Dak., sem Þjóðræknisdeildin „Báran“ efndi til. Loks má geta þess, að hann hefir nú lokið við rit sitt um íslenzk skáld, „Icelandic Poets, 1800—1940“, sem nú er í prentun hjá Cornell University Press og kemur að öllu forfalla- lausu út seinna í vetur eða með vorinu. Dr. Beck vinnur með áhuga og elju fyrir málefnum félagsins og vil ég votta honum þakkir fyrir og vona að vér megum lengi njóta hans. I sumar sem leið ferðaðist gjaldkeri félagsins, hr. Grettir Jóhannsson suður til Minne- apolis á hátíð fornmanna þar og var við afhjúpunarathöfn Leifs styttu, sem Norðmenn stóðu fyr- ir og hann skilaði kveðju Þjóð- ræknisfélagsins til þeirra. Eins gerði varagjaldkeri hr. Árni Eggertson, er hann fór suður til Mountain, N. Dak. og var stadd- ur við vígsluathöfn gamalmenna heimilisins þar, þar sem að les- in var upp kveðja frá félaginu. Heillaóskaskeyti og bréf hafa í viðbót verið send víðsvegar til hátíðahalda og annara athafna, og sambönd haldist með deildum og félögum. En samt er margt, sem mátt hefði vinna í viðbót, ef að tími og möguleikar hefðu leyft. En eins og ég gat um er tími nefndarmanna takmarkað- ur og öll starfsemin unnin í hjá- verkum. Verksviðið er stórt en tími og kraftar oft mjög tak- markaðir. Framhald Minnist BCTEL f erfðaskrám yðar /

x

Lögberg

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Lögberg
https://timarit.is/publication/132

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.