Lögberg - 01.06.1950, Blaðsíða 5
LÖGBERG, FIMTUDAGINN, 1. JÚNÍ, 1950
5
ÁliDGAMÍI
KVENNA
Ritstjóri: INGIBJÖRG JÓNSSON
MATREIÐSLUBÓKIN ER KOMIN ÚT
Vinsælar bækur
Hin margeftirspurða mat-
reiðslubók, er D o r c a s-félag
Fyrsta lúterska safnaðar í Win-
nipeg hefir verið, í marga mán-
uði að búa undir prentun, hljóp
af stokkunum síðastliðna viku.
Verður hún vafalaust eins vin-
sæl eins og fyrirrennarar henn-
ar voru. Þetta er þriðja mat-
reiðslubókin, er kvenfélög safn-
aðarins hafa gefið út, og eru
hinar fyrri útseldar fyrir löngu,
en eftirspurnin hefir haldið á-
fram, og mun það sjaldgæft í
bókaútgáfusögu Vestur-fslend-
inga að bækur hafi náð slíkri
hylli. Til þess ber margt.
Fyrsia bókin
íslenzkar konur, m a r g a r
hverjar, hafa getið sér þess orðs
að vera snillingar við tilbúning
og framreiðslu matar; það var
því þörf og ágæt hugmynd, þeg-
ar Kvenfélag safnaðarins, fyrir
mörgum árum, tók að safna frá
ýmsum konum, bæði hér í borg
°g í byggðunum, matarupp-
skriftum í þeim tilgangi að koma
þeim á prent. Uppskriftirnar
voru ekki allar endilega af rétt-
um, sem þær höfðu fundið upp
sjálfar, en jafnframt uppskriftir,
sem þær höfðu margnotað, og
sem höfðu reynst þeim áreiðan-
legar og góðar.
Fyrsta bókin flaug út; pant-
anir komu víðsvegar úr álfunni
og jafnvel frá öðrum löndum. —
Húsmæður sóttust eftir bókinni;
það varð og að hefð, .að gefa
stulkum bókina, sem voru í þann
veginn að ganga í hjónabandið,
enda gátu þær ekki eignast þarf-
legri bók til aðstoðar í starfinu
sem fram undan beið. — Á
skömmum tíma var upplag bók-
arinnar uppselt.
Önnur bókin
Vegna hinnar stöðugu eftir-
spurnar eftir bókinni, réðust
kvenfélögin tvö í, að gefa út
niatreiðslubók á ný. Endur-
prentaðar voru margar vinsæl-
ustu uppskriftirnar úr gömlu
bókinni og fjölda nýrra upp-
skrifta bætt við, og varð þessi
bók 26 blaðsíðum stærri en sú
fyrri og engu að síður vinsæl.
Nýja bókin
Hin nýja og þriðja matreiðslu-
bók — sem yngsta kvenfélag
safnaðarins hefir nú annast um
og gefið út, er 18 blaðsíðum
stærri en bókin á undan. Valdar
hafa verið margar vinsælustu
uppskriftirnar úr báðum fyrri
bókunum, en auk þeirra eru í
henni fjöldi nýrra uppskrifta, og
einnig kaflar, sem ekki voru í
hinum bókunum, eins og kafl-
arnir með uppskriftum fyrir mat
sjúklinga, og léttan mat —
snacks.
fslenzku uppskriftirnar
Það eykur mikið á gildi þess-
arar nýju bókar að í henni eru
uúklu fleiri uppskriftir af ís-
lenzkum réttum en hinum fyrri
bókum. Slíkar uppskriftir fást
ekki í öðrum matreiðslubókum
hérlendis. Til dæmis eru þar upp
skriftir fyrir íslenzkt jólabrauð;
islenzkt brúnbrauð, sem er svo
fystugt með rúllupylsu — og
bangikets-sneiðum; tvær upp-
skriftir fyrir vínartertu og tvær
fyrir íslenzkar pönnukökur, og
oppskriftir fyrir f 1 a t b r a u ð,
kæfu, skyr, mysuost, rúllupylsu,
^skibollur, sætsúpu, smérkringl-
Ur °g lyfrapylsu, og er sú síðast-
JJefnda ágæt að því leyti, að
bægt er að búa til eftir henni lít-
lð af lifrapylsu í e'inu, en það er
joiklu þægilegra fyrir fámenn
eimili, eða þar sem ekki er
ægt að geyma hana; ennfrem-
Ur má nota Graham mél í stað
rúgméls, sem reynist oft erfitt
að útvega.
Fiskuppskriftirnar
Þá var það ágætlega ráðið að
fjölga fiskuppskriftunum, en
þær eru allar endurprentaðar úr
báðum fyrri bókunum og nýj-
um bætt við; þær hefðu þó
gjarnan mátt vera fleiri. Við bú-
um svo nálægt vötnunum, að við
getum fengið glænýjan fisk á
vertíðunum; og fáir réttir jafn-
ast á við vel tilreiddan fisk, að
heilnæmi og ljúffengi. Ennfrem-
ur er stór hluti vestur-íslenzkra
húsmæðra fiskimannakonur,
sem matbúa oft fisk, og þær
kunna að gera það vel. f bók-
inni eru nokkrar ágætar upp-
skriftir fyrir hinn góða fisk í
Manitobavötnunum, en mig lang
ar til að bæta við einni mat-
reiðsluaðferð, sem ein hin bezta
íslenzka matreiðslukona við
Winnipegvatn notar við hinn
ljúffenga hvítfisk og er hún
svona: —
Glænýr hvítfiskur, hreistrað-
ur, gerður til, flattur, skorinn í
stykki og þveginn úr saltvatni;
stykkin mökuð í hveiti sem salt
og pipar er í; stykkjunum rað-
að þétt í vel smurða pönnu; ný-
mjólk helt yfir stykkin svo að
þau rétt sjáist upp úr; ofurlítið
smér hér og þar á stykkjunum;
ofurlitlu parsley stráð yfir fisk-
inn. Fiskurinn bakaður þar til
hann er laus frá dálkinum. Bor-
inn rjúkandi á borðið. — Dá-
samlegur réttur! —
Sem sagt, það er ánægjuefni
hve margar fiskiuppskriftir eru
í þessari bók.
Fjölbreyli efni
Þessi nýja matreiðslubók er
mjög fjölbreytt eins og efnis-
skráin gefur til kynna: — bread
recipes; cakes; candy; cocktails
and cooling drinks; cookies;
doughnuts and fried cakes; fish;
food equivalents; frozen des-
serts; household hints; Icelandic
dishes; icings and frostings; in-
valid cookery; meals; pies,
tarts, fillings and mince meat;
pickles and preserves; poultry
and poultry dressing; preserves,
jams and jellies; puddings; rolls
scones and small cakes; salad
and salad dressing; sandwiches
and sandwich fillings; snacks;
soups; time and temperature
charts; oven temperatures for
flour mixtures; roasting temp-
eratures; substitutions; vege-
tables; casserole dishes; eggs
and omelettes.
Á fyrstu blaðsíðu er fögur
borðbæn eftir séra Valdimar J.
Eylands og mynd af Fyrstu lút-
ersku kirkjunni.
Frágangur bókarinnar er hinn
vandaðasti; kjölurinn úr hringj-
um þannig að hún liggur flöt
á borðinu þegar henni er flett;
prentuð hjá The Columbia Press
Ltd.; verð $1.50.
Þetta er heimilisbókin, sem
allir þurfa að eignast; sendið
pantanir til Mrs. H. Halldórson
1014 Dominion Str.; Mrs. L. S.
Gibson 4 Wakefield apts, Strad-
brooke Str., eða til annara með-
lima Dorcas félagsins eða til
Columbia Press Ltd. 695 Sar-
gent Ave., Winnipeg.
GÖMUL BLAÐSÍÐA
(780)
Andi orustunnar og Napole-
ons sveimaði í misþykkri móðu
yfir hugum tilheyrenda, en eng-
ill dauðans eða líkn lífsins
breiddi yfir sárin og friðaði
hugina ásamt fjarlægð tíma og
rúms. Þá heyrðist hjarta hins
stórhuga manns berjast gegn
ryfjunum eins og vildi það
hlaupa út milli þeirra og út úr
Brynleifur
yfirkennari
Svo illa fylgist ég með aldri
vina minna, að ég hafði ekki at-
hugað það, að Brynleifur Tob-
íasson ætti sextugsafmæli á
sumardaginn fyrsta í ár. Þó
hefði ég piátt vita það, að hann
hefir alltaf verið sumarsins
barn. Honum hefir alltaf fylgt
hlýja og heilbrigð vinátta. öll
hans störf og barátta hafa fylgt
„sumarsins blæ“, Hann hefir léð
góðum málum lið og hvergi
hvikað frá þeim.
Kynni okkar Brynleifs hófust
hér 1 Reykjavík þegar á skóla-
árum hans. Hann var með mér
í stjórn Umdæmisstúku Suður-
lands 1918—1919, og þá þegar
reyndi ég það, að betri og ör-
uggari samstarfsmann var ekki
hægt að kjósa sér, og sú reynsla
hefir styrkzt og staðizt síðan
gegnum alla okkar samvinnu.
Á árunum 1924—’27 var hann
ísfirðingar fagna björgunarskútu Vestfjarða
For some time Tiltman Langley Laboratories, Ltd.
have studied the possibility of applying gas turbine
technology to industry, and this led to the design and
development of a new type of grass drier. The grass
drier employs a burner of the type used in gas turbine
aricraft engines. A thin layer of grass is dried in a
rotating drum, the warm air being circulated by means
of a fan. A small amonut of the moist air is expelled
and rr>p]aced by the fresh air used for combustion. The
drier is designed for the use of the small farmer and
can b'' moved with ease by a tractor and can be driven
either by the “pulley take-off of the tractor or by a
separate engine.
Mikil hækkun á póstburðar- og
símskey cgjaldi innanlands
Frá viðtökum Maríu Júlíu
á ísafirði
ÞEGAR að björgunarskúta
Vestfjarða, María Júlía, kom til
ísafjarðar um klukkan tvö á
þriðjudag, var henni fagnað á-
kaflega. Hafði mikill mannfjöldi
safnast saman á bryggjunni, sem
skipið lagðist að. Fánar voru
dregnir að hún um allan kaup-
staðinn og sölubúðum var lokað.
Fyrstu ræðuna, sem haldin
var, flutti Guðbjartur Ólafsson,
forseti Slysavarnafélags íslands.
Árnaði hann Vestfirðingum til
hamingju með hið nýja og glæsi-
lega björgunarskip og þakkaði
þeim fyrir baráttu þeirra fyrir
því.
Frú Sigríður Jónsdóttir, for-
maður kvennadeildar Slysa-
varnafélagsins á ísafirði hélt því
næst ræðu og bauð Maríu Júlíu
velkomna til Vestfjarða. Enn-
fremur flutti Arngrímur Fr.
Bjarnason, formaður björgunar-
skútunefndar ræðu. Sunnukór-
inn söng. Síðan var gengið til
kirkju og flutti séra Sigurður
Kristjánsson þar minningar-
ræðu um þau Maríu Júlíu Gísla
dóttur og Guðmund Br. Guð-
mundsson mann hennar, sem
gáfu eignir sínar í björgunar-
skútusjóð. Bað hann skipinu síð
an allrar blessunar.
Síðan átti almenningur þess
kost að skoða skipið og leist
mönnum almennt vel á það í
alla staði.
Kvöldsamkvæmi.
Um kveldið var skipshöfninni
svo haldið samsæti. Sátu það
einnig fjöldi annara gesta. Með-
al ræðumanna þar voru frú Sig-
ríður Jónsdóttir, M a 11 h í a s
Bjarnason, forseti bæjarstjórn-
ar ísafjarðar, Þorleifur Guð-
mundsson forstjóri, Arngrímur
Fr. Bjarnason og Jóhann Gunn-
ar Ólafsson bæj«rfógeti, sem
flutti árnaðaróskir fyrir hönd
sýslunefnda Norður- og Vestur-
Isaf j arðarsýslna.
Mikil ánægja ríkir yfir komu
hins nýja björgunarskips á
Mbl. 28. apríl Vestfjörðum.
höndum óvinanna, er sigruðu
hann og handtóku. — En það
var kyrt og bandinginn frægi
var kyr í höndum óvina sinna.
Sagan hans með afrekum og of-
raun hélt uppi dimmum skugg-
um yfir hugum tilheyrenda, jafn
vel eftir að söngurinn dó út, og
það voru sérlega heppileg um-
skipti að Hagel læknir kom þar
næst með Tunglskinssónötu
Beethovens. Læknirinn fór nógu
vel með efnið til þess að til-
heyrendur gætu notið mikils af
samfylgdinni með þessum leift-
ursbera á milli himins og jarð-
ar. En þegar kveðjusamsætið
var úti, var það bænin enska
drengsins á tveim hækjum, sem
föstustum tökum hélt um hugi
manna: „Guð blessi okkur öll“.
1925. — R. K. G. S.
Burðargjald fyrir einfalt bréf
innanlands hækkar úr 75 aurum
í eina krónu.
VEGNA gengislækkunarinnar
hefir orðið að hækka allverulega
póstburðargj öld og símagjöld,
hefir ný gjaldskrá verið gefin
út af þessu tilefni, er gildir frá
1. maí næstkomandi og birt er
í Stjórnartíðindunum. Þannig
hækkar burðargjald fyrir einfalt
bréf (20 gr.) innanlands og til
Norðurlanda úr 75 aurum í
100 aura, en burðargjald fyrir
bréf til annara landa helzt ó-
breytt.
Símskeytagjöld innanlands
hækka um 11% (nema blaða-
skeyti), talsímanotendagjöld um
25—36%, en talstöðvaleigur
nokkru meira. Hins vegar verð-
ur ekki hækkun á símtala- og
loftskeytagjaldi til skipa, en
símtöl innanlands hækka að
meðaltali um ca. 30%. Þó er eng-
in hækkun á símtalagjaldi um
vegalengd innan 25 km.
Símtalafjöldi í Reykjavík og
ísland fær
2.1 millj. dollara
Efnahagssamvirinustjórnin 1
Washington hefir nýlega ákveðið
að veita íslandi 2.100.000 dollara
sem jafngilda 34.272.000 krón-
um.
Hefir Island þar með fengið
úthlutað af efnahagssamvinnu-
stjórninni 7 milljónum dollara
fyrir árið 1949—50, en samtals
nema framlögin 15.3 milljónum
dollara frá byrjun Marshall-
áætlunarinnar.
VÍSIR, 3. maí
Ali Kahn á
Keflavíkurflugvelli
Liequat Ali Kahn, forsætis-
ráðherra Pakistan, kom með
einkaflugvél Trumans Banda-
ríkjaforseta til Keflavíkur í gær
kveldi og gisti á hóteli flugvall-
arins í nótt.
Snemma i morgun var síðan
förinni haldið áfram vestur um
haf, en Ali Kahn er ásamt konu
sinni og föruneyti á leið til
Bandaríkjanna í heimsókn til
Trumans forseta. Með forsætis-
ráðherranum er Ikramullah ut-
anríkisráðherra Pakistans og
ýmsir aðstoðarmenn.
Auk þess var með vélinni
William Harset, ritari Trumans.
Skoðaði hann ásamt ýmsum
öðrum Keflavík og nágrenni í
gærkveldi.
VÍSIR, 3. maí
Bill: „Fjórði í bridge?“
Jim: „Allt í lagi“.
Bill: „Fínt. Þá vantar okkur
ekkert nema annan og þriðja“.
Hafnarfirði, sem innifalinn er
í hinu fasta afnotagjaldi, lækk-
ar um 50 símtöl á ársfjórðungi
þ. e. úr 850 símtölum í 800 sím-
töl á ársfjórðungi, en hins vegar
teljast símtöl milli Reykjavíkur
og Hafnarfjarðar aðeins sem 3
innanbæjarsímtöl í stað 4 áður.
Gjaldskrárbreytingin n æ r
ekki til símgjalda, sem féllu í
gjalddaga fyrir 1. maí þ. á. og
hækka því t. d. ekki talstöðva-
leigur, sem féllu í gjalddaga 1.
apríl s.l. fyrr en 1. janúar 1951.
Alþbl. 30. apríl
Fanney reynir
a.m.k. 6 gerðir
af flotvörpum
Mun hefja tilraunirnar
einhvern næstu daga.
Á næstunni mun vélskipið
Fanney hefja tilraunir með nýj-
ar gerðir af veiðarfærum til
síldveiða.
Að undanförnu hefir verið
unnið að því að búa skipið til
þessara veiða og verið sett í það
m. a. togvinda í því skyni, auk
ýmislegs annars útbúnaðar, sem
nauðsynlegur getur talizt.
Mun Fanney reyna hér í Faxa
flóa og við Suðurland um fimm
tegundir af nýjum íslenzkum
flotvörpum, auk hinnar dönsku
flotvörpu, sem kennd er við
Larsen. — Mun skipið gera til-
raunir með önnur hliðstæð veið-
arfæri, ef þessi tæki þykja ekki
reynast vel.
Svo sem Vísir gat um fyrir
nokkru, fékk Fiskideild atvinnu
deildar Háskólans Fanneyju til
þess að leita að hrygningarstöðv
um síldarinnar á svæðinu frá
Reykjanesi að Snæfellsnesi. Var
þetta gert, en um árangur er
enn ekki kunnugt. Hins vegar
getur komið til mála, að jafn-
hliða því, að gera tilraunir með
þessi nýju veiðitæki, þ. e. hin-
ar mismunandi flotvörpur, að
skipið leiti jafnframt að hrygn-
ingarstöðvum síldarinnar.
Útvegsmenn og sjómenn gera,
sér miklar vonir um, að takast
megi að finna hentugt veiðar-
færi til síldveiða hér í Faxaflóa
og við Suðurland. Það hefir kom
ið greinilega í ljós, að síld er í
sjónum á þessu svæði, en ein-
ungis hefir vantað heppilegt
veiðarfæri til þess að ná til henn
ar.
Þessar tilraunir, sem Fanney
mun annast, eru gerðar að til-
hlutan nefndar þeirar, sem rík-
isstjórnin skipaði á sínum tíma
til þess að athuga möguleika á
nýjum veiðitækjum til síldveiða.
Formaður nefndarinnar er Þor-
leifur Jónsson.
Tobíasson
sextugur
stórtemplar, og var ég þá með
honum í framkvæmdanefnd. Að
öllum ólöstuðum, er stjórnað
hafa góðtemplarareglunni á ís-
landi, er Brynleifur þar í
fremstu röð. Hann mat enga
starfsemi meira og vék aldrei til
hliðar fyrir öðrum skoðunum, —-
engum stjórnmálaflokki eða
hreyfingu.
Þó að ég nefni hér helzt störf
Brynleifs fyrir bindindismálið,
þá veit ég vel, að þau störf hafá
hjá honum sem öðrum verið
aukastörf. Hann hefir verið ein-
stakur athafna- og eljumaður,
góður kennari, rithöfundur, full
trúi við opinber störf, forseti
bæjarstjórnar og margt fleira,
sem ekki verður rakið hér. Eng-
an hef ég þann fyrir fundið, sem
ekki hafi vottað og viðurkennt,
að öll þau störf, sem hann hefir
haft með höndum, hafi hann
unnið vel.
í stuttri afmælisgrein er ekki
rúm til að lýsa svo mörgum og
umfangsmiklum störfum, sem
Brynleifur hefir unnið. Ekki er
laust við það, að mér hafi fund-
izt furðu hljótt um störf hans.
Ef til vill er hann einn þeirra
manna, sem goldið hafa þess, að
hafa trú;lega eytt tíma og kröft-
um við að verja þjóðina fyrir á-
fengiseymdinni og eru auk þess
einlægir trúmenn. En til er, sem
betur fer, allmargt fólk, sem er
honum þakklátt fyrir þau störf
og þann stuðning. Hinir mörgu
félagar hans munu við þessi
tímamót senda honum hugheilar
þakkir og hamingjuóskir og
óska þess, að krafta hans megi
sem lengst njtóa við. Sjálfur
vildi ég geta sent honum betri og
fullkomnari þakkir. — En þetta
verður að duga. Aðeins skulu
fylgja því góðar hugsanir og
skilningur á störfum hans, þó að
ég fái það ekki allt á pappírinn
nú. — Felix Guðmundsson
Alþbl. 26. apríl.
Heildarfisk aflinn í
ár nemur 71.513
smálesfum
Mest hefir verið saltað
eða 28.696 smálestir
Heildaraflinn á tímibilinu frá
janúar til marzloka nam sam-
tals 71.513 smálestum, að því er
Fiskifélag íslands tjáði Vísi í
morgun.
Til samanburðar má geta þess,
að eftir sama tímabil í fyrra nam
heildaraflinn 72.753 smál., en af
því var síld 638 smál., en í ár
hefir ekki verið um neina síld-
veiði að ræða.
Skipting aflans í ár er nokkuð
frábrugðin því er var í fyrra,
því í ár hefir mest af fiskinum
verið saltað, eða 28.696 smál., en
í fyrra nam söltunin 10.633 smál.
Eigin afli fiskiskipa og flutt
út af þeim, þ. e. ísfiskur togar-
anna er í ár 17.158 smál., en var
í fyrra 24.972 lestir. Auk þess
fluttu þá út fiskkaupaskip 4172
lestir, en í ár hefir ekki verið
um það að ræða.
Til frystingar hafa farið 24.812
smál. á móti 31.512 lestum í
fyrra. Til niðursuðu 35 smál. á
móti 99 smál. í fyrra og neyzlan
innanlands nemur í ár 463 smál.
á móti 666 smál. í fyrra.
VÍSIR, 3. maí
María: „Hefurðu tekið eftir
því, að síðan amma lét klippa
hárið á sér svona stutt og liða
það, lítur hún alls ekki út eins og
gömul kona lengur?“
Fanney: „Já, hún lítur út „al-
veg eins og gamall maður“.
☆
Þau voru ein. „Kysstu mig,
Dóra“, sagði hann.
„Nei“, sagði hún, „ég held að
mig langi ekki til þess“.
„Það gerir ekkert til, vina“,
sagði hann, „ég er búinn að vera
að velta því sama fyrir mér“.