Lögberg - 28.06.1951, Síða 2
2
LÖGBERG, FIMTUDAGINN 28. JÚNÍ, 1951
Einar Markússon fyrrum ríkisbókari lótinn í Reykjavík
Einar Markússon og Pétur Östlund dóttursonur hans
(HÚSKVEÐJA)
Náð sé með yður og friður
frá Guði föður vorum og
Drottni Jesú Krisli, Amen.
Þegar Einar Markússon kveð-
ur oss eftir langan, starfssaman
og farsælan æfidag, þá er oss
ljóst hve Guðs náð er mikil og
hve vísdómur hans og forsjón
er mikil í sambandi við líf vort
mannanna og þau ár, sem oss
eru úthlutuð hér á jörðu.
Líf mannanna hér á jörðu eru
á svo margan hátt skylt bárum
hafsins, því sumar þeirra rísa
og falla strax, aðrar rísa og falla
með langbroti og andvarpi upp
við ströndina og alveg á sama
hátt er líf manna, sumir koma
og fara fljótt, aðrir lifa og starfa
langt árabil og vér sjáum af lífi
þeirra og þreki og starfi að þeim
hefir verið ákveðið langt árabil,
löng, starfsöm og merk æfi, þar
sem þeim var ætlað að stríða og
starfa og marka spcfr á strönd
lífsins og falla að lokum og
hníga að strönd eilífðarinnar
eftir langan og stórbrotinn æfi-
dag með mikla reynslu og lífs-
starf að baki. Einn af þessum
mönnum, sem hlaut þessa miklu
gjöf, þennan langa frest hér í
heimi og þrek til að afkasta
miklu starfi var Einar Markús-
son, fyrv. ríkisbókari, sem vér
kveðjum hér í dag, sem rúm-
lega 86 ára er nú farinn frá oss.
Mér er það ljóst þegar ég hugsa
um hann að vel hefir Drottinn
útbúið hann til lífsins með
gjörfulleik og góðum gáfum og
listasmekk, sem alt entist hon-
um til síðustu stundar.
Ég* kyntist Einan aðeins á
þessum síðustu 10 æfiárum hans,
en þótt aldurinn væri þá orðinn
hár hjá honum þá var þó per-
sóna hans enn stórbrotin og
virðuleg og alt ytra far hans
sagði þegjandi til sín um það
að hér var á ferð hreingerður og
kynborinn maður, sem bar með
sér stórt ættarmót, karlmensku,
kraft og hæfileika, sem hlutu
að verða þeim minnisstæðir, sem
kyntust honum og áttu með hon-
um samleið.
Hann var af góðu og traustu
fólki kominn og fékk hann ætt-
ararf, sem varð á farsælan hátt
kjölfesta í hans eigin lífi í hverju
því, sem hann tók sér fyrir
hendur að leysa. Og æfi. hans
varð bæði tilbreytingarrík og
starfsöm. Hann naut góðrar
mentunar í föðurhúsum og síð-
ar í verzlunarfræði erlendis.
Lífsstarf hans byrjar í Ólafsvík,
þar sem hann frá 1891—1910 er
verzlunarstjóri, kaupmaður, út-
gerðarmaður og umboðsmaður
Arnarstapaumboðs.
Á þessum árum voru höfuð-
atvinnugreinar Ólafsvíkur í
höndum hans og samtvinnaðar
lífi hans, enda*hefir hann eflaust
á þessum árum safnað þeirri
verkþekkingu og reglu, sem ein-
kendi líf hans, og hjá honum
hefir þá vaxið sá þróttur og
dugnaður, sem einkendi starf
hans alla tíð eftir það. I Ólafs-
vík stóð hann fyrir miklum
verklegum framkvæmdum, stór-
byggingum og lendingarbótum,
en samfara því var hann hinn
listræni maður á sviðum andans,
lífið og sálin söng af hljómlistar-
lífi þar vestra.
Gamall maður, sem ég talaði
við fyrir 7 árum, sagði mér að
Einar hefði haft dásamlega
söngrödd á yngri árum, hreina,
háa og hljómmikla, og hárfínan
smekk í sambandi við söng og
hljóðfæri, og eyddi hann hverri
stund, sem afgangs var til þess
að efla bæði kirkjusöng og kór-
söng þar vestra.
Ráðsmaður Laugarnesspítala
var hann eftir að hann fluttist
hingað suður, frá 1910 til 1920,
og væri of langt hér að lýsa því,
hve mikið starf það var þá, og
hve mörgum endurbótum hann
kom þar á, en það merkasta var
það, að hann útvegaði öllum
sjúklingum atvinnu, sem gátu
unnið. Aðalbókari ríkisins var
hann frá 1921—1935, stjórnaði
lífeyrissjóði embættismanna.
•
Einar Markússon fyrrum ríkis-
bókari íslands, var gæddur slík-
um persónustyrk, er ógjarna
fyrnist yfir; maðurinn var að-
sópsmikill langt fram yfir það,
sem alment gerist, og svo fjöl-
hæfur, að til undantekninga
mátti telja; kom slíkt og sér vel,
því mörg og margvísleg voru
þau störf, er honum voru á
hendur falin.
Einar var fæddur að Stafholti
í Mýrasýslu hinn 11. dag júlí-
mánaðar árið 1864. Foreldrar
hans voru þau séra Markús
Gíslason og frú Metta Einars-
dóttir; nokkurrar fræðslu föður
síns naut Einar í heimahúsum,
stundaði verzlunarnám erlendis,
veitti forstöðu verzlun í ólafs-
vík og hafði með höndum um-
boð þjóðjarða; var um hríð
ráðsmaður holdsveikraspítalans
í Laugarnesi, en gerðist ríkis-
bókari íslands 1921 og gegndi
þeim starfa fram í árslok 1935.
Voru störf hans jafnan mótuð
af árvekni og skyldurækni; hann
starfaði ötullega að bindindis-
málum og þótti manna liðtæk-
astur að hverju, sem hann gekk.
Einar var söngvinn maður með
ágætum, og heimilið laðaði að
margmenni þeirra, er sönglist
unnu; hann var nærgætinn og
ástríkur heimilisfaðir, vakinn og
sofinn yfir velferð fjölskyldu
sinnar, sem var stór. Einar var
tvíkvæntur, fyrri kona hans var
Kristín Árnadóttir, en hin síðari
Stefanía Stefánsdóttir.
Meðal barna Einars er óperu-
söngkonan víðkunna, frú María
Markan-östlund; tveir bræður
Einars, þeir Gísli og Sigurður
fluttust vestur um haf og létust
í Winnipeg.
Einar Markússon lézt þann 30.
apríl síðastliðinn, en myndin af
honum, sem hér er birt, var tek-
in af honum 81. árs gömlum;
með Einari hefir safnast til
feðra sinna stórbrotinn höfðingi,
sem gott var að kynnast og
minnast. E. P. J.
Hann var með afbrigðum skýr
og glöggur í embættisfærslu og
reglumaður alla æfi.
Hann var forustumaður í út-
vegsmálum, bindindismálum og
kirkjumálum alla þá tíð, sem
hann dvaldi fyrir vestan. Áhugi
hans og framkvæmdir voru
bæði verklegar og á hinu and-
lega sviði. Hann sameinaði fram-
kvæmdir og hugsjónamál. Hann
skildi að listin og verkmenning-
in eiga að fylgjast að. Menn hins
gamla skóla, sem voru bæði list-
rænir og verkgefnir, gripu til
hinnar listrænu þarfar þegar
þeir fengu innblástur og hvíld
frá daglegri skyldu. Það var oft
farsælt.
í heimilislífi var Éínar mjög
farsæll maður. Guð gaf honum
góða ástvini og efnileg börn, og
eru nú 8 börn hans á lífi, og
hefir sönggáfan verið aðalsmerki
þessarar fjölskyldu.
Þessi dugmikli maður var
einnig fræðimaður og hafði yndi
af hinni gömlu list, ættfræðinni.
Hann var hlýr viðmóts, skemti-
legur og einhver karlmannlegur,
hressandi blær, sem fylgdi hon-
um til þess síðasta.
í hug og hjarta bar hann þetta
sama fasta mót, sem samsvaraði
hans ytra manni. Eins og hann
var karlmannlegur og fyrir-
mannlegur, eins var hann í hugs-
un, ákveðinn, fastur fyrir, mik-
ill trúmaður, öruggur í Guðs
trausti, viss í voninni um eilíft
líf.
Hann sagði við konu sína þeg-
ar stundaglas æfinnar var að
tæmast: „Ég dey í Kristi“.
Ég votta þér eftirlifandi konu
hans, hjartans samúð vora allra
og kveð þig frá honum með
hjartans þakklæti fyrir það hve
ágæt og dýrmæt þú varst hon-
um alla tíð.
Ég kveð ykkur elskuleg börn-
in hans og minnist sérstaklega
tveggja elskandi dætra hans í
fjarlægð og sonar hans, sem
einnig er erlendis. Ég kveð
fósturson, og tengdabörnin,
barnabörn hans og stjúpbörn
nær og fjær og systur vors látna
bróður, sem lifir hann.
öuð blessi ykkur alla ástvin-
ina hans, nærstadda og erlendis.
Guðs blessuh og farsæld sé
með ykkur öllum.
Ég kveð þetta heimili hans,
Guð blessi það.
Nú lifir minningin um glæsi-
legan, duglegan og listhneigðan
mann, sem var traustur í lífs-
starfi og fjölhæfur, glaður og
góður samferðamaður, ágætur
heimilisfaðir og elskulegur faðir;
unnandi drotningu listanna,
sönggáfunni, nú er hann sjálfur
að flytja héðan til sönglistarinn-
ar æðsta lands, en um það segir
heilög ritning, að engir geti num-
ið söng til fulls fyr en þeir séu
útleystir af jörðunni. Ég sé hann
þar í anda verða ungan aftur
með öndurborna söngrödd sína,
segja eins og söngmaðurinn
mikli sagði forðum:
Með engla kvaki ég mun þar
undir taka glaður
á nýjum akri eilífðar endur-
vakinn maður.
18 þúsund lestir af grjóli.
Unnið er með jarðýtu að því
að jafna jarðveginn og ryðja
burtu bökkum, en mannvirkið
verður byggt alyeg fram á klapp
irnar og bryggja kemur framan
við verksmiðjuna.
Þá er unnið að endurbótum á
götum, sem liggja að verksmiðju
svæðinu, þar sem aðflutningur
á'efni fer um.
Boðið hefir verið út verkefni
við að flytja að byggingunni 18
þúsund smálestir af grjóti, og
munu nokkrir aðilar hafa boðið
í verkið. Lægsta tilboð mun hafa
komið frá Þorgeiri Jósefssyni og
hljóðar á 30 krónur á smálest.
Hyggst hann að flytja grjótið
úr svonefndum Holtum við
Berjadalsá, skammt fyrir innan
Akranes, og ná því þar með
sprengingum.
Vörubílstöðin á Akranesi hef-
ir einnig gert tilboð, sem miðast
við það að sækja grjótið nokkru
lengra, eða inn að Innra-Hólmi,
sunnan undir Akrafjalli.
Grjótflutningar þessir eiga að
fara fram í sumar. Er gert ráð
fyrir, að einnig verði í sumar
Drottinn, þú sem ert líf vort
og ljós og athvarf frá kyni til
kyns, þér felum vér þennan
bróður vorn með hjartans þakk-
læti fyrir líf hans og starf og
megi þinn kærleikur verða líf
hans og styrkur og þín blessuð
varðveizla og vernd verða leiðar-
ljós hans að eilífu.
Far þú í friði
friður Guðs þig blessi
í Jesú nafni
Amen.
Síra Jón Thorarensen
----☆----
Athugasemd við vísuna
í raeðunni:
Síra F r i ð r i k Thorarensen,
Breiðabólstað í Vesturhópi.
F. 1763, vígður 1789, d. 1817.
(Föðurbróðir Bjarna Thoraren-
sen)
Kveðið til síra Friðriks:
„Þegar hittumst himnum á
hvorugur verður móður;
Syngja skulum saman þá,
síra Friðrik góður“.
Þá svaraði síra Friðrik með
vísunni, sem notuð.,er í ræðunni.
steyptur garður framan við
verksmiðjuna, og ef til vill byrj-
að á bryggjusmíði.
Staðarvali verður ekki breytt.
Úr því sem komið er, verður
því ekki brbytt, að sementsverk-
smiðjan rísi upp á Akranesi. En
til skamms tíma hafa ýmsir að-
ilar reynt að hafl áhrif á það og
fá breytt fyrri ákvörðun um
staðsetningu verksmiðjunnar á
Akranesi. Er þess skemmst að
minnast, að bæjarstjórn Reykja-
víkur lét athuga um staðsetn-
ingu hennar á Seltjarnarnesi
fyrir skömmu.
Eins og mörgum er kunnugt,
var það Bjarni Ásgeirsson, þá-
verandi atvinnumálaráðherra,
sem tók endanlega ákvörðun um
það, að verksmiðjan skyldi reist
á Akranesi. Er það Akurnesing-
u mmikið ánægjuefni, að þessari
ákvörðun þáverandi atvinnu-
málaráðherra skuli ekki hafa
verið breytt, og nú byrjað á bygg
ingu verksmiðjunnar á Akra-
nesi.
—TIMINN, 18. júní
Unnið aS sementsverksmiðju á Akranesi
fyrir tvær miljónir króna í sumar
Gengið verður frá grunni, garður steyptur, götur endurbættar
og bryggjusmíði hafin
Vinna við byggingu sementsverksmiðju á Akranesi er
hafin. Er verið að grafa fyrir byggingunni og jafna til á
Ivarshúsaklöppunum, þar se mverksmiðjan á að standa,
á bakkanum inn undir Langasandi. Er ráðgert að vinna
að byggingarframkvæmdum við verksmiðjuna fyrir tvær
milljónir króna í sumar.
Glæsileg hótíðahöld 17. júní í fögru og
blíðu veðri um aílf land
Hátíðahöldin 17. júní hafa verið hin glæsilegustu um allt
land að því er til hefir frétzt, enda var veður með ein-
dæmum gott. Hér í Reykjavík var mannfjöldinn meiri en
dæmi eru til áður og fóru hátíðahöldin hið bezta fram og
alveg samkvæmt dagskránni, er áður hefir verið skýrt frá.
Ræða Steingríms Steinþórs-
sonar af svölum alþingishússins
var eftirtektarverð og þróttmik-
il hvatning á alvörustund og
vakti óskipta athygli. Forseti ís-
lands lagði blómsveig á fótstall
styttu Jóns Sigurðssonar að
vanda og forseti bæjarstjórnar
lagði blómsveig á leiði hans í
kirkjugarðinum. Frú Guðrún
Indriðason var glæsileg 1 gerfi
fjallkonunnar er hún las kvæði
Tómasar Guðmundssonar. En
það var til leiðinda, að hátalarar
voru í ólagi, er hún flutti
kvæðið.
S^uður á íþróttavelli var margt
til skemmtunar. Fóru þar fram
íþrótta- og fimleikasýningar,
bæði í gamni og alvöru. Erlend-
ur ó. Pétursson dæmdi knatt-
spyrnuleik stúlkna og vakti
margan hlátur.
Á Arnarhóli hófst hátíðin
klukkan rúmlega átta. Var þar
geysilegur mannfjöldi, sem
hlýddi á dagskrána með hrifn-
ingu í kvöldkyrrðinni. Karla-
kórarnir sungu þar og einnig
Guðmundur Jónsson. Ágætir
fimleikamenn sýndu þar einnig
undir stjórn Benedikts Jakobs-
sonar, Lárus Pálsson las kvæði
og Páll ísólfsson stjórnaði þjóð-
kórnum að vanda. Var það al-
mannarómur, að sjaldan eða al-
drei hefði verið betur tekið
undir.
Dansað var á þrem stöðum,
Lækjartorgi, við Búnaðarfélags-
húsið og á lóð Hótel Islands við
Aðalstræti. Var mikil þátttaka í
dansinum, og er það haft fyrir
satt, að svo hafi ákafinn verið
mikill, að eitt par hafi verið svo
annars hugar í dansinum, að það
sá ekki fótum sínum forráð og
dansaði fram af tjarnarbakkan-
um. En sem betur fór mun hafa
sannazt þar hið gamla og karl-
mannlega máltæki, að enginn er
verri, þótt hann vökni.
Ölvun var ekki teljandi, þótt
vín sæist á einstaka manni, þeg-
ar leið að lokum klukkan tvö um
nóttina. Erlendur Ó. Pétursson
stjórnaði dansinum af dugnaði
sínum og gamansemi.
Hátíðahöldin úti á landi voru
með glæsibrag og þátttaka alls
staðar mikil en fregnir eru ekki
fyrir hendi af þeim hvarvetna.
Fyrri hluta dags 17. júní var
skógræktardagur í Dalasýslu, og
var þá plantað trjáplöntum, bæði
að Hvammi í Dölum og Búðar-
dal. Að Hvammi var plantað
5000 barplöntum, en 900 plönt-
um í Búðardal.
Að Hvammi hófst samkoma
klukkan eitt, og setti séra Pétur
T. Oddson hana í hlíðinni utan
við Hvamm, þar sem verið er að
fullgera skógargirðingu til vernd
ar einu skógarleifunum, er finn-
ast þar á stóru svæði. Síðan söng
blandaður kór undir stjórn séra
Péturs, en Daníel Kristjánsson,
skógarvörður á Hreðavatni
flutti ávarp og stjórnaði gróður-
setningunni, sem um 200 manns
unnu að. Var elztur þátttakenda
við það starf Guðjón Ásgeirsson
á Kýrunnarstöðum, 76 ára. Að
því loknu var kaffi drukkið og
sungið og loks gengið til kirkju,
þar sem séra Pétur prédikaði, en
blandaður kór undir stjórn Mar-
kúsar Torfasonar í ólafsdal
söng.
Um kvöldið var samkoma að
Sælingsdalslaug, og sóttu hana
um 300 manns. Fluttu þar meðal
annars fimm Dalamenn frumort
kvæði.
I Vík í Mýrdal hófust hátíða-
höld með guðþjónustu í Víkur-
kirkju og messaði séra Jón Þor-
varðarson, sóknarprestUr. Söng
önnuðust kirkjukórarnir frá öll-
um kirkjum 1 Mýrdal sameigin-
lega. Orgelleikari var Óskar
Jónsson, bókári.
Síðar um daginn hófst sam-
koma í samkomuhúsinu. Ræður
fluttp Sveinn Einarsson, bóndi á
Reyni, og Gunnar Þorsteinsson,
bóndi á Ketilsstöðum. Óskar
Jónsson flutti kvæði eftir Stefán
Hannesson kennara. Á milli
ræðna sungu kirkjukórarnir og
stjórnuðu söngnum frú Ástríður
Stefánsdóttir og Óskar Jónsson.
Síðan voru sýndar íslenzkar
kvikmyndir og loks dansað eftir
hljómsveit staðarins og útvarps-
músik til skiptis. Fékk útvarps-
músikin hið mesta hrós dans-
endanna að þessu sinni.
Hátíðahöldin undirbjuggu
kirkjukórarnir í Mýrdal. Fjöl-
menni var mikið.
Á Akureyri voru mikil og fjöl-
þætt hátíðahöld, og yrði of langt
að rekja gang þeirra. Fóru þau
fram úti enda var veður hið
fegursta og mikið fjölmenni tók
þátt í þeim. Dansað var úti fram
eftir nóttu. —TÍMINN, 19. júní
Malreiðslubók
Dorcasfélag Fyrsta lúterska
safnaðar hefir nú til sölu splunk-
urnýja matreiðslubók, er það
hefir safnað til og gefið út; bók
þessi er með svipuðum hætti og
hinar fyrri, vinsælu matreiðslu-
bækur, er Kvenfélög safnaðar-
ins stóðu að; þetta er afar falleg
bók með fjölda gamalla og nýrra
uppskrifta, sem koma sér vel á
hvaða heimili, sem er.
Matreiðslubók þessi kostar
$1.50 að viðbættu 10 centa burð-
argjaldi.
Pantanir, ásamt andvirði,
sendist:
Mrs. A. MacDonald
11 Regal Ave. St. Vital
Sími 205 242
Mrs. H. Woodcock
9 St. Louis Road, St. Vital
Sími 209 078
eða til Columbia Press Limited.
695 Sargent Ave.
Sími 21 804.
Kaupið
þennan
stóra
pakka
AF
VINDL-
INGA
TÓBAKI
vegna
verðgildis