Lögberg - 23.08.1951, Síða 1

Lögberg - 23.08.1951, Síða 1
PHONE 21 374 , A U«"*e cw«ers Lautldr\JÍ'. A Complete Cleaning Institution PHONE 21 374 toii U«*e R.U'1'1 ««4JS?ge 5,10 » CleaTl' A Complete Cleaning Institulion e*í|Íp»» 84. ARGANGUR V'INNÍPEG, FIMTUDAGINN, 23. ÁGÚST, 1951 Minningarorð um merka og góða konu Að kvöldi þess 7. yfirstandandi mránaðar lézt á Grace sjúkrahús- inu hér í borginni frú Jóhanna Ingibjörg Pétursson 82 ára að aldri, gáfuð kona og híbýlaprúð; hún var fædd að Ánabrekku í Borgarhreppi í Mýrasýslu hinn 6. dag júlímánaðar árið 1869. Foreldrar hennar voru þau Þórður Guðmundsson og Berg- þóra K. Bergþórsdóttir; hún var tekin til fósturs af Ingibjörgu móðursystur sinni og dvaldist á hennar vegum fram að þeim tíma, er hún giftist Pétri Pét- urssyni frá Fornaseli í Álftanes- hreppi árið 1887, sem hún misti í Winnipeg 1931. Þau Pétur og Jóhanna fluttust vestur um haf 1901 og dvöldu fyrst árlangt í Mikley; þaðan lögðu þau því næst leið sína til Grunnavatnsbygðar við Mani- tobavatn, en settust að í Winni- peg 1928. Eftir lát manns síns bjó Jóhanna með dætrum sínum hér í borg við mikið ástríki. Þeim Pétri og Jóhönnu varð tólf barna auðið, og af þeim dóu fjögur í æsku, en átta komust til fullorðins ára; af þeim gjörfu- lega hópi lézt ein dóttirin, Sig- ríður, fyrir þremur árum; á lífi eru Mrs. Kristín Thorsteinsson, Mrs. Ó. Jónasson, Mrs. John Johnson, Mrs. James Hatchard, þær ungfrúrnar Ingibjörg og Björg, og Pétur Konráð, sem bú- settur er í Vancouver; á heimili þeirra Péturs og Jóhönnu ólust einnig upp að mestu leyti þau Þórður Sigurðsson og Mrs. P. Anderson. Alsystkini frú Jó- hönnu, sem öll eru látin, voru Bergthor, Oddfríður, Valgerður og Kristín; af hálfsystkinum hennar eru tvö á lífi, þau Ingi- mundur Sigurðsson og Gróa Sigurðsson, sem bæði eiga heima að Lundar; barnabörnin eru seytján að tölu, en barnabarna- börn níu. Það liggur í augum uppi, að þau Pétur og Jóhanna hafi tíð- um orðið að láta hendur standa fram úr ermum við uppeldi jafn fjölmenns barnahóps; á hinn bóginn var til mikils að vinna, og lífssfgurinn mikill, þar sem Jóhanna Ingibjörg Pétursson börnin urðu eins ágætt og vel mannað fólk, sem raun er orðin á. Frú Jóhanna var bókelsk og bókfróð kona, er jafnan braut ítarlega til mergjar allt, sem hún las, og hún kallaði í þeim efnum heldur ekki alt ömmu sína; hún kunni utanbókar kynstrin öll af Ijóðum og var fljót að átta sig á hvar feitt var á stykkinu; hún unni íslandi hugástum og henni varð tíðrætt um æskustöðvar sínar, einkum fossinn sinn, Skuggafoss á Mýrum, ef ég fer rétt með nafnið; hún var víðsýn kona og félagslynd, og við, sem áttum með henni samleið í þess- ari borg, minnumst þess með þakklátum huga, hve reglu- bundið hún sótti íslenzkar mann- félagssamkomur, fundi Þjóð- ræknisfélagsins, eða aðra mann- Stórkosílegt uppskerutjón Um síðastliðna helgi dundi yfir Langruth-bygðina við Mani- tobavatn slíkur feikna hagl- stormur, að margir íslenzkir bændur í grend við bæinn og eins að Big Point, mistu alla uppskeru sína; mælt er að eng- inn þessara bænda hafi haft haglsábyrgð á uppskerunni, og er því tjónið gífurlegt. fagnaði þar, var mælt. sem íslenzkt mál Frú Jóhanna var um nokkurt skeið nábýliskona okkar hjón- anna í Acadia-byggingunni á Victorstræti, og hún var yndis- legur og ógleymanlegur ná- granni, ávalt jafn orðfim, hrein- skilin og prúð; við hjónin vorum fjarverandi, er dauða hennar bar að, og áttum þess eigi kost, að fylgja henni til grafar, sem við annars hefðum að sjálfsögðu gert; við söknum hennar og við finnurn til þess hve umhverfið er fáskrúðugra eftir að vegir skildust; en við þetta verður okkur það ljósara, hve djúp- stæður hljóti að vera söknuður þeirra, er stóðu henni næst. Minningarathöfn um frú Jó- hönnu fór fram í Sambands- kirkjunni í Winnipeg þann 10. þ. m. og samdægurs að Lundar; á báðum stöðum talaði séra Philip M. Pétursson yfir mold- um þessarar merku og góðu konu. Einar P. Jónsson Lík fundéð og jarðsett- í fyrri viku fanst lík Hjartar Guðmundssonar, er drukknaði í Winnipegvatni fyrripart sum- ars; var það flutt til Gimli, en jarðsetning fór fram að Árnes á sunnudagskvöldið var undir forustu sóknarprestsins, séra Haralds S. Sigmar; um undir- búning útfararinnar annaðist Alan Couch útfararstjóri á Gimli. MISS SNJÓLAUG SIGURDSON \ Efnir f-il hljómleika í Fyrstu lútersku kirkju Á mánudagskvöldið þann 10. september næstkomandi, efnir hinn kunni og ágæti píanisti, Miss Snjólaug Sigurdson, til hljómleika í Fyrstu lútersku kirkju, sem vinir hennar og unnendur hinnar fögru hljómlistar, bíða eftir með óþreyju. Miss Sigurdson á djúp ítök í hjörtum Vestur-íslendinga, eigi aðeins vegna fágaðrar listar sinnar, heldur og engu síður vegna persónuleika sín sjálfrar; hún hefir í síðastliðin fimm ár stundað framhaldsnám og kenslustörf í New York við glæsilegan orðstír; til hljómleika þessara er stofnað fyrir atbeina Icelandic Canadian Club Scholarship nefndarinnar; arði hljómleikanna verður varið til stuðnings við ungan, íslenzkan píanista, sem er að ryðja sér glæsilega braut; á Miss Sigurdson miklar þakkir skildar fyrir fagurt fordæmi í þessu efni. NÚMER 34 Ný verzlun tekur f-il starfo Á öðrum stað hér í blaðinu birtist auglýsing frá nýrri karl\ mannafatnaðarverzlun, sem í &ag hefur göngu sína hér í borg- inni, og gengur undir nafninu Dorchester Shops með bækistöð að 546 Main Street, rétt við James Avenue; þetta verður ein af mörgum útibúum þessara keðjubúða, sem reka viðskipti í flestum stærstu borgum lands- ins; er það íbúum V/innipeg- borgar að sjálfsögðu mikið fagnaðarefni, er ný fyrirtæki skjóta hér rótum, því í slíku felst ómótmælanlegt traust á framtíð borgarinnar. Þessi nýja búð er að öllu hin veglegasta og verzlar aðeins með fyrsta flokks vörur; hún býður almenningi einnig nýja greiðslu- skilmála, Dorchester Continuing Budget Account, þar sem við- skiptavinir ákveða sjálfir um mánaðarlegar greiðslur. Fellibylur veldur gífurlegu martn- og eignatjóni Um síðustu helgi fór yfir Jamaica sá ægilegasti fellibylur, sem um getur í þrjú hundruð ára sögu landsins; vitað er, að 109 manns týndu lífi af völdum þessara náttúruhamfara, þó vel megi vera, að dánar- og slysa- talan verði mun hærri um það, er öll kurl koma til grafar; eignatjón er metið á 60 miljónir dala, þó enn sé að vísu í þessu efni um bráðabirgðamat að ræða. Höfuðborgin Kingston varð einna harðast leikin, símasam- bönd rofnuðu með öllu og íbúar ar- og verzlunarhús jöfnuðust, við jörðu. Rauði Krossinn kom þegar á vettvang ásamt öðrum líknar- stofnunum til að ráða fram úr hinum margháttuðu vandamál- um þar, sem þörfin var mest; í kjölfar fellibylsins sigldi síðan ákaft regn, er orsakaði 17 þuml- unga djúpan vatnsaga. Skipt um forustu utanríkismála Frá Washington berast þær fregnir, að miklar líkur séu á, að Dean Acheson, núverandi utanríkisráðherra Bandaríkj- anna, láti af embætti seinnipart næstkomandi mánaðar, að lok- inni staðfestingu friðarsamning- anna við Japan, sem þá verða undirritaðir í San Francisco; fylgir það sögu, að Mr. Acheson sé farinn að verða næsta þreytt- ur á stjórnmálaþófinu, og vilji hefja á ný málaflutningsstörf í Connecticut-ríki, en þar er hann borinn og barnfæddur, nú er þess getið til, að Averell Harri- man, sérstakur sendiherra Trumans forseta vítt um jarðir, verði eftirmaður Mr. Acheson’s. Sem stendur er Mr. Harriman staddur í Iran að fyrirmælum Trumans forseta vegna olíudeil- unnar milli Breta og Persa, ef unt yrði að greiða úr ágreinings- málunum, er harla tvísýnt þykir. MINNI ÍSLANDS eftir TRAUSTA G. ÍSFELD Rís með tign úr ættlands álum eyjan forna sögusling, þar var unnið mest að málum, mynduð lög og fyrst sett þing. Tylftardóms mun frœgð ei fyrnast fer um alla jarðarslóð, íslendinga gáfur girnast göfgir menn hjá hverri þjóð. Sjáið landið sylgjum þakið sígræn engi og fögur tún, Gunnarshólmann, Grettistakið gamla Njál á feigðarbrún, Borgar feðga, Flosa og Kára frœgstur allra á landi var, mörgum veitti sorgir sára, sagan þetta með sér bar. Slíðruð sverð á landi Ijóða líf og eignir mönnum tryggðar, það var landsins gæfan góða að gœta sinnar heima byggðar. Yfirgang má enginn brúka allir hlýði settum lögum arfasátan aldrei rjúka allir bindist kærleiks högum. Himinblámans heiðu tjöldin hylla morgun sólarbál, þá er eins og fjalla fjöldinn fengið hafi mannsins sál. Hljóðaklettar allir óma undir tekur gljúfraþröng, lífið virðist leyst úr dróma, lifnar allt við fuglasöng. Blessað Island, bjartar nætur, blómin fegurst gróa í jörð, upp við jökúlrendar rætur renna tár um kalinn svörð. Þó'að ís og eldar œði allt að reiðskjálfi ber, Þitt haggast aldrei græna græði. Guð og lukkan fylgi þér. Giflingar framkvaemdar af séra Sigurði Ólafssyni: Á prestssetrinu 1 Selkirk, 16. ágúst, Freeman Sigurjón Brand- son, Árborg, Man., og Lillian Ásbjörg Snifeld, Hnausa, Man. í kirkju Selkirk-safnaðar, 18. ágúst, Harry James Baker, Sel- kirk, og Dorothy May Henrik- son, sama staðar. í kirkju Geysis-safnaðar, 18. ágúst, Magnús Ingiberg Daníels- son, Hnausa, Man., og Margaret Sigurrós Sigvaldason. Kjörinn forsetf blaðascmbands Úr borg og bygð — ÞAKKARQRÐ — Við undirrituð finnum okkur það skylt, að þakka af alhug séra Philip M. Péturssyni fyrir samúð og fögur kveðjuorð við útför okkar elskuðu móður, frú Jóhönnu Pétursson; við þökkum einnig frú Elmu Gíslason fyrir inndælan einsöng í Sambands- kirkjunni 1 Winnipeg, sem og söngflokki safnaðarins og organ- ista. Einnig þökkum við ástúð og umhyggju þeirra Mr. og Mrs. Ingimundur Sigurðsson og fjöl- skyldu, að Lundar, ásamt söng- fólki byggðarinnar undir stjórn Vigfúsar Guttormssonar, er lék fagurlega á orgelið. Öllum þeim, er sendu blómagjafir eða vott- uðu á annan hátt virðingu sína við þá látnu ,þökkum við af hrærðu hjarta. Börn hinnar látnu ☆ Kveðju- og þakkarorð Þegar við erum nú að fara heim aftur, getum við ekki látið hjá líða að þakka fyrir hinar rausnarlegu og alúðar viðtökur hér hjá öllum í Canada, þessu yndislega landi ykkar. Við þökk- um þó sérstaklega mági og syst- ur minni, Mr. og Mrs. P. Ander- son hið rausnarlega boð þeirra og alla þá miklu rausn, sem okk- ur hefir verið veitt hér á vegum þeirra og barna þeirra þessa tvo mánuði, sem við höfum dvalið hér. Við getum ekki með fátæk- legum orðum þakkað alla þá umönnun, sem það allt hefir lát- ið okkur í té. Ennfremur þökk- um við systur minni og mági Kristínu og Sigurði í Elfros, Sask. og börnum þeirra fyrir allt, sem þau hafa fyrir okkur gert til þess að gleðja okkur. Við biðjum guð að blessa allt þetta fólk og land þeirra, sem hefir verið þeim svo stórgjöfult, og við vonum að svo verði einnig í framtíðinni. LIFIÐ HEIL! Svanhildur Jóhannsdóttir Þorbjörn Jónsson Reykjavík, Island A. W. Hanks Á nýlega afstöðnu ársþingi vikublaðasambandsins c a n a - d í s k a, sem haldið var hér í borg, var Mr. A. W. Hanks, rit- stjóri og eigandi blaðsins St. James Leader, kjörinn forseti þessara mikilvægu blaðasam- taka fyrir næsta ár; er hann hinn vinsælasti maður og áhuga- samur um mannfélagsmál. Látin í Selkirk þann 14. ágúst Mrs. Guðlaug María Sigfús- dóttir Johnson, ekkja Jóns Jóns- sonar smiðs frá Stóra-Steinsvaði í Norður-Múlasýslu. Frú Guð- laug var móðir Dr. Eyjólfs Johnson í Selkirk og þeirra syst- kina, hin merkasta ágætiskona. Mun hennar verða nánar getið síðar.

x

Lögberg

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Lögberg
https://timarit.is/publication/132

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.