Lögberg - 23.08.1951, Page 8

Lögberg - 23.08.1951, Page 8
8 LÖGBERG, FIMTUDAGINN, 23. ÁGÚST, 1951 Úr borg og bygð Hjónaband — Gefin voru saman í hjónaband laugardaginn þ. 4. ágúst á Lundar, af séra Jóhanni Fred- riksson, Bruno Michel Dudara- vicius og Ása Jónasína Elsie Loftson. Brúðurin er yngsta dóttir Mr. og Mrs. Bjarna M. Loftsonar á Lundar. Brúðgum- inn, fyrir stuttu kominn frá Þýzkalandi, er sonur Mr. og Mrs. M. Dudaravicius frá Stutt- gart, Þýzkalandi. — Foreldrar brúðarínnar buðu gestum til veglegrar veizlu á heimili sínu Að veizlunni lokinni lögðu ungu hjónin af stað í skemtiferð til Kenora, Ont. Þau verða til heim- ilis í Winnipeg. •Sr Einar Björgvin Johnson, son- ur Mr. og Mrs. J. B. Johnson frá Churchbridge, Sask. og Doreen Björg Ingjaldsson, elsta dóttir Mr. og Mrs. E. Ingjaldsson frá Tantallon, Sask. voru gefin sam- an í hjónaband þ. 7 júlí af séra Jóhanni Fredriksson í Hóla- samkomuhúsinu. Yfir hundrað manns sátu veizlu á heimili brúðarinnar. Ungu hjónin fóru í skemtiferð vestur í land. Þau setjast að á bújörð sinni í Churchbridge. GIMLI FUNERAL HOME 51 First Avenue Ný útfararatofa meS þelm full- komnasta útbúnaði, scrn völ er ft. annast vírSuleija um útfarir, selur líkkistur, minnisvarSa og legsteina. Alan Couch, Funeral Director Phone—Business 32 Residence 59 Gefin saman í hjónaband í Lútersku kirkjunni í Selkirk af sóknarpresti, laugardaginn 11. ágúst, Frank Russell McBride, Selkirk, Man. og Gwendolyne Sylvia Joyce Bell, sama staðar Þau voru aðstoðuð af Mrs. Victor McDonald og Mr. Kristinn Gladstone Bell, systkinum brúð- arinnar auk annara. Ungu hjón- in setjast að í Selkirk. ☆ Gefin saman í hjónaband á föstudaginn 17. ágúst, í Fyrstu lútersku kirkju, voru þau James Edward Britton, vélfræðingur hér í borginni, og Clara Lillian Johnson dóttir Árna fiskikaup- manns Johnson, og Jónínu konu hans. Vegleg brúðkaupsveizla fór fram á Marlborough hótel- inu að afstaðinni hjónavígslunni. Miss Evelyn Thorvaldson söng en við hljóðfærið var Mrs. ísfeld. ☆ Á fregnmiða frá Winnipeg; General Hospital, sém prentað- ur var þann 2. yfirstandandi mánaðar er þess getið, að ís- lenzka kvenfélagið hér í borg- irini hafi árið 1894 safnað $75.00 gjöf til áminsts sjúkrahúss; má af þessu ljóslega ráða hve snemma á tíð íslenzka kvenfé- lagsstarfsemin hér um slóðir hafði líknar- og mannúðarmálin efst á stefnuskrá sinni. ☆ Norðan úr Reykjavíkpóst- héraði að vestanverðu við Mani- tobavatn, komu á mánudaginn þau Mr. og Mrs. Chris Alfred, sem um eitt skeið áttu heima hér í borg og eiga margt vina hér um slóðir, og dvöldu í borg- inni fram um miðja vikuna; með þeim komu þær systurnar, Mar- ! grét, Regina og Kristín Sigurd- son, sem uppaldar eru norður þar, en nú eiga heima í þessari borg; þau Mr. og Mrs. Klein frá Reykjavík, eru einnig hér stödd þessa dagana; er Mrs. Klein af íslenzkum ættum. ☆ GJAFIR TIL BETEL — LtTILI, BLÓMVÖNDUR A LKIÐI Btefáns Andersonar, fyrrnm bónda við Lcslir, Saskatchcwan Þau Stefán og Gyðríður And- erson bjuggu í þessu nágrenni við rausn og myndarskap um þrjátíu ára skeið. Þau voru gest- risin og vinföst og nutu bæði hlýhugar og virðingar sam- ferðamannanna. Við vorum í of mikilli fjarlægð, þegar Stefán féll frá, til þess að vita um jarð- arför hans. Við viljum því biðja Mr. J. J. Swanson að gera svo vel að veita þessu lítilræði, tíu dölum, viðtöku til Betel í minn- ingu um Stefán Anderson. — Lítinn blómavönd á leiði hans með þakklæti fyrir alt gamalt og gott. Og sömuleiðis að gera svo vel að láta þessar línur í Lögberg. Leslie, Sask., 19. júní, 1951 Sigurður og Rannveig K. G. Sigbjörnsson ☆ Frú Laufey Helgason fór norð- ur til Reykjavíkur um miðja vikuna og dvelur þar um hríð í gistivináttu þeirra Mr. og Mrs. Chris Alfred. ísland og íslendingar (Framhald af bls. 7) hversdagsmál þjóðarbrotsins ís- lenzka? Sumir viríust telja, að það væri alls ómögulegt, og að þess vegna væri í rauninni óhjá- kvæmilegt að leggja árar í bát í því máli nú. Aðrir voru mikið á báðum áttum. Og enn aðrir héldu því fast fram, að jafnvel þó það væri ákaflega sárt að tapa íslenzkunni sem hversdags- máli fólks af íslenzkum ættum, þá væri samt enn hægt að halda uppi mikilsverðri þjóðræknis- -tarfsemi og baráttu fyrir hin- urn dýrmætu þjóðareríðum, sem við mættum ekki glata. Þessi síðastnefnda afstaða virðist mér vera réttmæt. Á liðnum árum hafa íslend- ingar í Ameríku reist fjögur elli- heimili meðal annara stofnana. Mér virðist það hafa verið dá- samlegt Grettistak á hverjum stað, að reisa og starfrækja þau ágætu heimili. Og ég tel það mikilsverða þjóðræknisstarfemi, að opna frumherjum þjóðar- brotsins og öðrum, sem koma á eftir kost á slíkum griðastað í kveldkyrð ævinnar, þar sem unt er að njóta móðurmálsins að svo miklu leyti, og ýmsra gómsætra rétta, er eiga uppruna sinn á ís- landi, og að leggja rækt við ýms þjóðareinkenni og erfðir. Ég gleðst nú við þá hugsun, að hér erum við stödd í næsta ná- munda við eitt af þessum ágætu heimilum; og fólkið, sem hér er viðstatt, hefir átt svo stóran þátt í að reisa og starfrækja tvö af þeim með drengilegri hjálp ©orctater^hops OPNA FULLKOMNUSTU FATNAÐARBÚÐ í Winnipeg MISSIÐ EKKI AF ÞESSUM BYRJUNARKJDRKAUPUM Sporið olt að $12.50 KARLA REGNKÁPUR 276 aðeins $14.99 Þeim fyrstu 276 mönnum, sem kaupa í hinu nýja Dorchester Shop 276 innfluttar og heimaunnar regnkápur úr bezta, hugsanlega efni, sérstaklega valdar vegna opnunar þessarar nýju búðar í Winnipeg, á slíku verði, að þér sparið $12.50! Slétt bak, eða með belti, úr húðsterku poplins eða gabardine- efni, með nýtízku sniði. Komið snemma og forðist vonbrigði — 276 regnkápur fljúga fljótt út. Vanaverð $27.50..Sölukjörkaup, $14.99 hver. Hvítar Tooke SKYRTUR Þér verðið að skoða þessar skyrtur til að sannfærast um gildi þeirra! Opnunarsala, $3.95 hver. • Geta ekki hlaupið • Áfasíur kragi eða af Vindsorgerð • Úr ekta baðmull, hvítar aðeins • Úr öllum stærðum að velja $3.95 FÓÐRUÐ ULLARBINDI $1.50 Verðið eigi af þessu: • Skraulleg rayon satin hálsbindi, haustlitir • Fullkomnar stærðir, ullarfóður • Ýmsar handmálaðar íegundir í þessu úrvali Argyle Diamond SOKKAR Vanaverð $2.25 $1.25 Þér getið farið um allan bæinn og finnið hvergi slíka sokka fyrir $1.25. Þetta eru kjörkaup á $2.25, en óviðjafnanleg kaup á opnunarsölunni fyrir $1.25! • Argyle demantsgerðarþykt • Hæfileg lengd • Oxford, bláir, brúnir og vínlitir og grænir með auka demantsskrauti! Þessi nýjasta verzlun í hinni miklu Dorchester búðarkeðju, tekur til starfa í Winnipeg á morgun. Látið ekki hjá líða að notfæra yður kjörkaupin! Þér sannfærist um að það borgi sig, að verzla hjá Dor’chester búðunum . • Dorchester föt eru ávalt seld við sannvirði • Dorchester föt eru ávalt úr bezla efni og fyrirmynd að frágangi • Dorchester föt eru búin lil í okkar eigin saumastofum og seld beint til nolenda • Dorchesler karlmannabúnaður er úr úrvalsefni — keypt yður til gagns og gleði, og verð í samræmi við gæðin. Spyrjist fyrir um hina nýju greiðsluskilmóla Dorchesterbúðimar eru að innleiða nýja greiðsluskilmála, þar sem þið ákveðið sjálf mánaðargreiðslur. Þetta gengur undir nafninu Dorchester Continuing Budget Account. Engin önnur búð í Winnipeg býður slíka, gr eiðsluskilmála! Lítið inn og látið okkur útskýra hvernig bezt sé að verja fatnaðardollurum sam- kvæmt Dorchester Continuing Budget Account. Fáheyrð kjörkaupákarlmannsfötum Alfatnaðir $47'50 $55-°° $5950 Veljið föt til haustsins úr þessum miklu birgðum af ekta þaullituðu Worsteads, Flannels, Gabardines og Sergessniði og saumuð af sérfræðingum, alt af nýjustu gerð. Veitið athygli þessum þrennskonar kjörkaupum samkvæmt greiðsluskilmálum okkar á verði frá $47.50 til $59.50. YFIRFRAKKAR frá $40-5otii $63-75 Þérmunuð fá þann frakka, er yður vanhagar um úr ekta Covert efni, Tweed, Cheviot og Gabardine — með fögru, karlmannlegu sniði fyrir haustið. Og verðið á engan sinn líka, frá $40.50 til $63.75. ©orchestcr^hops 536 Main St. og James Ave. annara, sem voru nokkru fjær. Og hin tvö heimilin, sem eru í miklu meiri fjarlægð hafa verið reist af sama áhuga, drenglyndi og fórnfýsi. Þetta sýnir, meðal annars, að margt fjallið getum við íslendingar fært úr stað, ef trúin er nógu máttug. Og einnig sýna þessi heimili það, að merki- leg þjóðræknisstarfsemi er hér enn á ferð. Kenslustóllinn í íslenzkum fræðum við háskólann í Mani- toba, sem svo kappsamlega hef- ir verið unnið að, að koma á fót, af mörgum duglegum og þjóð- ræknum íslendingum, bæði eldri og yngri, og sumum þeirra, máske að einhverju leyti mál- lausum á feðratunguna, er nú orðinn að veruleika. Fólki þjóð- ar vorrar hlýtur að finnast það hafa verið merkilegt og mikil- fenglegt þjóðræknisstarf, er seint fyrnist yfir. En ekki ætla ég að sú stofnun geti mögulega megnað að varðveita íslenzk- una, sem hversdagsmál alls þjóðarbrotsins íslenzka. En kenslustóllinn getur vissu- lega veitt einhverjum hluta þess fólks og einnig fólki af öðrum ættstofni mikilfenglega fræðslu í íslenzku, svo að það fólk fái drukkið af þeim lindum fræðslu og fegurðar, vísdóms og speki, sem íslenzkar bókmentir, fornar og nýjar, hafa að bjóða í svo ríkum mæli, og síðar á margvís- legan hátt miðlað öðrum af sinni dýrmætu fræðslu. Og ekki getur okkur þá dulist að hér sé líka heilbrigð og ágæt þjóðræknis- starfsemi á ferðinni. íslenzkan er undur fagurt mál, því verður ekki neitað. Við, sem erum af íslenzkum stofni, hljót- um að meta hana og elska, og margir aðrir líka. Jafnvel er hún okkur innilega kær, sem kunnum hana bara þó að nokkru leyti. Hún er okkur kær eins fyrir því, þó að hún geti ekki orðið eins og hunangseimur á vörum okkar, af því að við stóð- um ekki nógu nærri þeim lind- um, þar sem unt var að bergja hana eins hreina, tæra og hreim- fagra, eins og á íslandi sjálfu. En þó að örlögin kunni að verða þau, að „ástkæra ylhýra málið“ tapist okkur hér í álfu sem hversdagsmál fjöldans af íslenzkri ætt, er enn hin fylsta ástæða til að halda uppi öflugri þjóðræknisstarfsemi á heilbrigð um grundvelli og reyna af fremsta megni að varðveita þjóðararfinn mikilvæga og leggja hann með sér til gagn- semi og blessunar inn í það þjóð- erni og þjóðlíf, sem jafnvel enn er hér á ýmsan hátt að myndast. Guð blessi ísland! Guð blessi íslendinga „heima“ og hér! Hann gefi þeim alls staðar og ávalt; stóran og göfugan þátt í því að blessa mannkynið og að dýrka drottinn. (N.B. Erindi þetta var flutt „blaðalaust“ á hátíðinni. Er því að sjálfsögðu nokkur orða- breyting. En í hugsun og efni engin veruleg breyting. —H.S. MESSUBOÐ Fyrsta Lúterska Kirkja Séra Vaidimar J. Eylands. Heimili 686 Banning Street. Sími 30 744. Guðsþjónustur á hverjum sunnudegi: A ensku kl. 11 f. h. Á íslenzku kl. 7 e. h. Sunnudagaskóla kl. 12.15 e. h. Allir ævinlega velkomnir. ☆ Lúterska kirkjan í Selkirk Sunnud. 26. ágúst Ensk messa kl. 11 árd. íslenzk messa kl. 7 síðd. S. Ólafsson ☆ — Churchbridge Sask. — Sunnudaginn þ. 26. ágúst Messa í Concordia kl. 1 e. h. ' Söngsamkoma í Concordia kl. 8 um kvöldið. Sunnudaginn þ. 2. sept. Messa í Lögberg kl. 11 f. h. .Messa í Concordia kl. 1 e. h. J. Fredriksson ☆ — Lundar Prestakall — Sunnudaginn þ. 9. sept Messa á íslenzku kl. 2 e. h. Messa á ensku kl. 7.30 e. h. Allir boðnir velkomnir! J. Fredriksson ☆ — Gimli presiakall — Sunnudaginn 26. ágúst Betel, kl 9 f. h. Húsavík, kl. 1.30 e. h. Gimli, kl. 7 e. h. Daylight Saving Time. Árborg, kl. 8.30, Central Standard Time. Harald S. Sigmar Þau Þorbjörn Jónsson og Svanhildur Jóhannsdóttir úr Reykjavík, sem dvalið hafa vestra í tvo mánuði á vegum þeirra Mr. og Mrs. Peter Ander- son, lögðu af stað flugleiðis til Islands á sunnudaginn. WEED CONTROL IN BARLEY There is no “Royal Road” to weed control in barley. The barley grower must use every means at his command and be persistent in seaosn and out. SEED CONTROL To obtain a clean crop the grower must not sow weed seeds. Clean seed is, therefore, the first requirement. ROTATION CONTROL To produce clean barley, it must be sown on clean land, i.e., after summer fallow, intertilled crop, or grass and clover crop. CULTURAL CONTROL Every means of cultural control should be used, such as killing weeds by cultivation before sowing, harrowing the seeded land before the crop emerges, and if necessary using a weeder or light harrow on the crop after it has started to grow. This latter must be done with great care, for barley does not stand harrowing as well as some of the other crops, such as wheat. CHEMICAL CONTROL Science has come to the aid of the barley grower by giving him selective weed killing chemicals. These chemicals when sprayed or dusted on the growing crop will kill many of the broad-leaved weeds, with little or no damage to the barley. For further information, write to Barley Improvement Institute, 206 Grain Exchange Building, Winnipeg. Tenth of series of advertisements. Clip for scrap book. This space contributed by SHEA'S WiNNIPEG BREWERY LTD. MD-291

x

Lögberg

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Lögberg
https://timarit.is/publication/132

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.