Lögberg - 20.03.1952, Blaðsíða 1
PHONE 21 374
k*Ot*
U">i,e
Cle^cTS
,-b>g£_
A Complele
Cleaning
Insiiíution
La«nd^3ti S>t0 A Complete
Cleaning
Insiitution
65. ÁRGANGUR
WINNIPEG, FIMTUDAGINN, 20. MARZ, 1952
NÚMER 12
Saskatchewan K.C. Award Honored By
Manitoba Government
A king’s counsel award grant-
ed to Winnipeg barrister Arni
G. Eggertson in Saskatchewan
in 1937 will be honored in Mani-
toba and a patent will be issued
to confirm this, Hon. C. Rhodes
Smith, attorney-general, re-
vealed Friday.
It is the first time in the mem-
ory of provincial legal officals
that a K.C. awarded in another
Canadian province has been
honored in Manitoba by the
granting of a patent.
Insofar as is known, Manitoba
is the only province to have
made provision in its Law
Society act for a K.C. moving
Enn fró
Þoriáksbibííu
Þau mistök urðu, er skýrt var
frá Þorláksbiblíu í síðasta blaði,
að sagt var, að prentun hennar
hefði verið lokið árið 1664, en
átti að vera 1644 (biblían prentuð
á árunum 1637—1644). Fremst í
bókinni hefur verið komið fyrir
skrautritaðri tileinkun, bæði á
ensku og íslenzku, og skal hin
íslenzka sett hér, því nokkur
ruglingur varð á nöfnum í síð-
asta blaði.
Tileinkunin er svo hljóðandi:
„Gjöf til kennarastólsins í ís-
lenzku og íslenzkum bókmennt-
um við hasKoia Manitobafylkis,
Winnipeg, Canada, í minningu
um foreldra mína, Helgu Þor-
steinsdóttur Ingjaldssonar frá
Skildinganesi á Seltjarnarnesi,
og Magnús Jónsson Magnússon-
ar hreppstjóra frá Hofsstöðum í
Álftavatnshreppi í Mýrasýslu,
er fluttust til Canada árið 1888,
frá elskandi dóttur Mrs. George
Wm. Harpell, 521 Dominion St.,
Winnipeg. — Aðrir meðlimir
fjölskyldunnar á lífi, er þessi
gjöf er afhent, eru: Jón Magnús-
son Borgfjörð og Guðmundur
Magnússon Borgfjörð, báðir í
Árborg, Man., og Mrs. Sigríður
Landy, Cypress River, Man.“
Úrslit prófkosninga
Um miðja fyrri viku varð
kunnugt um úrslit prófkosning-
anna, sem þá voru nýverið um
garð gengnar í New Hamps-
hireríkinu, en þar leiddu saman
hesta sína fjórir garpar, er auga-
stað hafa á því, að setjast að í
Hvítahúsinu í Washington að
afstöðnum næstu forsetakosn-
ingum í Bandaríkjunum, sem
fram fara í öndverðum nóvem-
bermánuði næstkomandi; af
hálfu Republicana var kosið um
þá Eisenhower hershöfðingja og
Senator Taft og gekk hinn fyr-
nefndi sigrandi af hólmi með
miklu afli atkvæða, og fékk alla
þá 14 kjörmenn, sem flokkurinn
sendir á aðalútnefningarþingið
í Chicago.
Demokratar völdu um þá
Senator Estes Kefauver frá Ten-
nessee og Truman forseta, og
urðu úrslit þau, að forsetinn beið
lægra hlut.
Ekki þykir ólíklegt, að áminst
New Hampshire prófkosning
geti haft víðtæk áhrif á fram-
boðsþingin og með því einnig
á forsetakosningarnar sjálfar.
Arni G. Eggerlson, Q.C.
from another province to retain
automatically his apointment.
Elsewhere, by such a move a
K.C. is forfeited.
Mr. Smith said, after the mat-
ter was considered by the Mani-
toba government, he gave in-
structions for a K.C. patent to
be prepared for Mr. Eggertson.
Mr. Eggertson was born in
Winnipeg in 1896, and received
his education in this city,
graduating from the University
of Manitoba. He was called to
the Manitoba bar in 1921 and to
the Saskatchewan bar in 1922.
He returned to Manitoba in
June, 1939, to join the firm of
Andrews, Andrews, Thorvald-
son and Eggertson.
Winnipeg Free Press,
Jan. 1952
Ósvífnar ákærur
Rússar hafa kært fyrir sam-
einuðu þjóðunum, að Bandarík-
in hafi stofnað til sýklahernað-
ar í Norður-Kóreu og jafnvel á
meginlandi Kína; líklegt þykir
að drepsóttir geysi í báðum
þessum löndum, þó öllum heil-
vita mönnum skiljist ljóslega,
að amerísk hernaðarvöld eigi
þar enga sök á, enda hafa Banda
ríkin og sameinuðu þjóðirnar í
heild mótmælt ákærum Rússa
sem ósvífnum heilaspuna.
Yfirhershöfðingi Norðmanna,
sem nýkominn er heim úr eftir-
litsferð um Kóreu, taldi ummæli
Rússa helber, vísvitandi ósann-
indi; enda þyrfti ekki að flytja
sýkla inn í Kóreu, því þar væri
nóg af þeim fyrirliggjandi.
Aðalritari
Atlantshafsráðsins
Lávarður Ismay, kunnur hern-
aðarsérfræðingur, er sæti hefir
átt í brezka ráðuneytinu frá
þeim tíma, er Churchillstjórnin
kom til valda, hefir verið kjör-
inn hinn fyrsti aðalritari At-
lantshafsráðsins með búsetu í
París; aðrir menn, sem til mála
komu vegna þessa nýja embætt-
is og í rauninni var lagt að, voru
þeir Lester B. Pearson utanrík-
isráðherra canadísku stjórnar-
innar og Sir Oliver Franks,
sendiherra Breta í Washington,
en hvorugur þeirra vildi vera í
vali.
Hin nýja staða . lávarðar
Ismay, er hliðstæð við þá stöðu,
er Tryggve Lie skipar með sam-
einuðu þjóðunum.
Barnaheimilið í Laugarási tekur til
starfa næsta sumar
Hið veglega sumardvalar-
heimili fyrir börn, sem
Rauði kross íslands hefir
um alllangt skeið haft í
smíðum austur í Laugarási
í Biskupstungum, mun verða
fullgert á sumri komanda.
Þar eiga 120 börn að geta
eytt sumarleyfi sínu, í hinu
fegursta umhverfi, við hinn
bezta aðbúnað.
Farþegar milli íslands og útlanda
rösklega 18500 á s.l. ári
Fjölgaði um 300 frá árinu áður
Á árinu sem leið ferðuðust
18535 manns milli íslands
og útlanda og er það sem
næst 300 manns fleira en
árið 1950.
Mestir urðu farþegaflutning-
arnir milli Islands og útlanda
1949. Þá nam farþegatalan
23294. Árið 1948 nam hún 19030
og 1947 ferðuðust ekki nema
16681 farþegi milli íslands og út-
landa.
Á árinu sem leið fóru 9671 far-
þegi héðan til útlanda og þar af
voru 5017 íslendingar. Af þeim
sem utan fóru, ferðuðust 5411
manns með skipum, en 4260 með
flugvélum.
Til íslands komu samtals
8864 manns á árinu og af þeim
voru 4780 íslendingar. Með skip-
um kom 5088 manns, en 3776
með flugvélum. Allt að því 2/3
þeirra Islendinga sem ferðuðust
milli landa á árinu sem leið
ferðuðust með skipum.
Þeim fjölgar stöðugt farþeg-
unum, sem ferðast með skipum
milli íslands og útlanda og fækk
ar hins vegar þeim, sem nota
Mr. Campbell
í Ottawa
Forsætisráðherra Manitoba-
fylkis, Douglas L. Campbell, er
nú kominn til Ottawa ásamt
fríðu föruneyti til að gæta hags-
muna fylkisbúa varðandi jöfn-
un og lækkun flutningsgjalda
héðan að vestan og til Austur-
Canada; vill hann ógjarna að
snúið sé 'á kjósendur sína og
skjólstæðinga.
flugvélar að farkosti. — Sést
þetta bezt á því, að af þeim
rúmlega 18500 manns, sem ferð-
uðust milli íslands og útlanda í
ár, völdu ekki nema 8000 farþeg-
anna flugvélar að farkosti. Ef
árið 1949 er tekið til samanburð'
ar þá flugu um 15700 þeirra
23 þús. farþega sem tóku sér far
milli íslands og útlanda.
Á árinu sem leið voru far-
þegaflutningarnir langmestir í
júlí- og ágústmánuðum. I júlí
nam farþegafjöldinn 3649, en í
ágúst 3417.
—VÍSIR, 22. febr.
Sumardvalarheimili þetta hef-
ir verið Rauða krossi íslands
æði kostnaðarsöm stofnun. Þeg-
ar hefir úr sjóði R.K.Í. verið
varið til dvalarheimilisins 900
þúsund krónum.
Góð hús og góður húsbúnaður.
Heimili þetta er í níu sam-
byggðum timburhúsum, af ame-
rískri gerð, sem ríkið gaf RKl,
en húsunum fylgir allmikill og
góður húsbúnaður. Eru húsin
hin vönduðustu. En þau verða
öll hituð upp með hveravatni,
og raflýst frá dieselrafstöð, er
þeim fylgir.
Ríki og bær styrkja.
I fyrravor, er RKI hafði ekki
meiri peninga til að láta í heim-
ilið, og hafði stofnað til skulda,
lét ríkissjóður í það 250 þús. kr.
— og nú fyrir skemmstu lét
Reykjavíkurbær 125 þús. kr. til
heimilisins. — Enn vantar all-
mikið fé til þess að fullgera
heimilið, en ráðamenn RKI eru
vongóðir um að merkjasöludag-
urinn á morgun muni færa
drjúgar tekjur, svo að hægt verði
að ljúka við smíði þessa sumar-
dvalarheimilis á sumri komanda.
Ríkissjóður hefir vegna hins
óvissa ástands í heimsmálunum,
talið rétt að smíði heimilisins
væri flýtt, því slíkt afdrep gæti
verið nauðsynlegt.
Reyk j a ví kur deildin
rekur það.
Sumardvalarheimili þetta er
fjárfrekasta fyrirtækið, sem RKI
hefir lagt út í. Það er fyrsta
barnaheimilið, sem hann byggir.
— Sennilegt er að Reykjavíkur-
deild RKÍ muni annast rekstur
heimilisins, en hversu það hefir
átt erfitt uppdráttar er vegna
fjárskorts sem fyrr segir, svo og
vegna hinnar ört vaxandi dýr-
tíðar.
—Mbl., 26. febr.
Hernaðarbæki-
sföðvar á Spáni
Utanríkisráðherra Bandaríkj-
anna, Dean Acheson, hefir lýst
yfir því, að Bandaríkjastjórn sé
nú í þann veginn að hefja við-
ræður við spænsk stjórnarvöld
um afnot hernaðarlegra bæki-
stöðva á Spáni.
Úr bréfi til ritstjórans
Ferðofólki í
Manitoba fjölgar
2,220,000 farartæki, er höfðu
heimsóknarleyfi, komu til Can-
ada síðastliðið ár; var það 8%
fleiri en árið áður.
Fjölgun gesta var mest í Mani-
toba; þangað komu 35% fleiri
farartæki árið 1951 en 1950.
Reykjavík. 7. marz, 1952
Héðan er fátt frétta, ber
hvorki til titla né tíðinda. Tog-
araverkfall sem staðið hefur, er
nú leyst, ber líklega að lofa guð
fyrir það. Dýrtíð eykst sífellt, at-
vinnpleysi er um land allt, víða
hörmulegt og voðalegt, menn
hafa gleymt hvað orðið hallæri
þýðir í góðærinu undanfarið og
koma því þessir örðugleikar afar
flatt upp á þá, og ríkir nú í
mörgu kotinu hið voðalega von-
leysi er siglir í kjörfar niður-
lægingar atvinnuleysisins. —
Stjórnmálaleiðtogar vorir mega
ekkert vera að því að finna
leiðir til úrbóta, allur þeirra
tími og orka fer í að kenna hver
öðrum um hvernig komið er.
Gæftaleysi hefur verið mikið á
vetrarvertíð og afli lítill þá
sjaldan hefur gefið á sjó. Og
menn eru alltaf jafn spenntir
fyrir að ræða tíðarfar, veðurfar
almennt, veðrið í dag, í gær, í
fyrra o. s. frv., óþrjótandi um-
ræðuefni! Hér í Reykjavík hefur
verið indælis veður síðustu daga,
jafnvel svo að þeir bjartsýnustu
eru eitthvað farnir að minnast
á að kannske komi nú bráðum
vor. En þeir bölsýnu eru búnir
að steingleyma hvað það orð
þýðir. — Menn ræða og af miklu
kappi forsetakjör, virðast þar
margir kallaðir, hinar furðuleg-
ustu persónur. I alvöru er eink-
um rætt um þá Ásgeir Ásgeirs-
son og Sigurð Nordal. Framboðs-
frestur er annars útrunninn í
mánaðarlok, ef ég man rétt. Á
bókmenntahimni vorum blika
nú fáar skærar stjörnur, og
birta flestar villuljós, nú er hins
vegar von á 500 blaðsíðna sögu-
róman frá Kiljan í sumar eða
haust, en hann er nú sólin á
þeim himni, og því skiljanlegt
að beðið sé í ofvæni þessa nýja
pródúkts.
Kjörinn forseti
lúterskra
mannúðarsamtaka
Kyndilmessa sorgarinnar
(Niðurlag Minningarljóða, 2. febrúar 1952)
Drjúpi fánar höfugt við hljóðra klukkna slátt!
— Hjörtu vor í þagnardjúpi sakna. —
Ó, Guð vors lands! — Gef sorg vorri sameiningar-mátt!
Og sjá: I dag mun þjóðarsálin vakna!
Brennið sorgar-kyndlar Bessastaða-ranns!
Bjarminn flæði’ um landið vetrar-bjarta
og myndi skæran ljósbaug um minning forsetans,
sem máist ei úr þjóðarinnar hjarta!
Lýsi’ oss ástar-kyndlar leiðina til hans!
Látið hljóðna starfs-klið sveita’ og borgar!
Svo krjúpum vér harmklökk við kistu forsetans
á Kyndilmessu vorrar þjóðar-sorgarl
Helgi Valtýsson —Lesb. Mbl.
Silfurbrúðkaup
Dr. og Mrs. Hjálmarsson voru
gift af séra Jónasi Sigurðssyni
þann 19. ágúst 1926 í Winni-
pegosis. Þau komu til Lundar
árið 1927 og dvöldu þar í 11 ár.
Hér hafa þau unnið sér hylli
allra. Dr. Hjálmarsson er mikill
og samvizkusamur læknir og
drengur hinn bezti. Mrs. Hjálm-
arsson er útlærð hjúkrunarkona
og í öllu hægri hönd manns síns.
Það var þéttskipað í samkomu-
húsinu á Lundar þann 2. marz
kl. 2 e. h.; byggðarbúar frá Oak
Point, Clarkleigh, Lundar og
víðar hópuðust saman til að
heiðra þau Dr. og Mrs. Hjálmars-
son á 25 ára hjúskaparafmæli
þeirra og þakka þeim fyrir
margra ára starf í bygðinni. Þau
eiga djúp og kærleiksrík ítök í
allra hjörtum.
Miss Irene Guttormsson spil-
aði brúðkaupslagið „Here Comes
the Bride“; Mr. og Mrs. K. Byron
leiddu brúðhjónin til sætis, svo
var sungið O, Canada. Séra Jó-
hann Fredricksson flutti bæn og
stýrði skemtimótinu. Mrs. A. V.
Olson flutti snjalt erindi til
brúðarinnar og Mr. K. Byron
til brúðgumans. Mr. W. Hall-
dórsson söng ástarljóð til brúð-
arinnar; allir tóku eftir að henni
vöknaði um augu, auðsjáanlega
draumalandi sæluríkra endur-
minninga. Mrs. V. Boulangier
spilaði á píanó lagið „The
Daughter of the Regiment “ Svo
rak einn ræðumaðurinn annan:
Mr. O. Hallsson frá Eriksdale,
Mr. O. Thorvaldsson frá Oak
Point, Dr. G. Paulson, Mr. D. J.
Lindal, Mr. A. Eyjólfsson, Mr.
G. Backman, allir frá Lundai
Ræðurnar voru tilfinningaríkar,
þrungnar bróðurhug, þakklæti
og árnaðaróskum til brúðhjón-
anna. Átján börn æfð af Miss M.
Collier sungu tvö lög. Mr. W. F.
Breckman stýrði söng á milli
ræðuhalda, ýmist á íslenzku eða
ensku. Mr. S. D. Hólm flutti
frumort kvæði.
Mrs. Byron afhenti brúðhjón-
unum gjafir frá kvenfélaginu og
Mr. D. J. Lindal frá bygðarbú-
um. Fundarstjórinn bauð Dr. og
Mrs. Hjálmarsson orðið. Þau
rifjuðu upp kærar endurminn-
ingar frá dvöl sinni hér í bygð-
inni, æskuárum hjúskaparlífsins
og þökkuðu öllum fyrir stund-
ina og allt gamalt og gott. Svo
var sungið Eldgamla Isafold og
God save the Queen. Síðan var
sest að borðum og kvenfólkið
veitti rausnarlega.
Dr. og Mrs. Hjálmarsson eiga
nú heima í Woodlands, Mani-
toba. Við söknum sárt, að þau
fluttu héðan, hugurinn dvelur
hjá þeim og við óskum þeim
allra heilla.
J. Fredricksson
Harold M. Easlvold
Maður sá, sem hér um getur,
er fjölda íslendinga hér um slóð-
ir að góðu kunnur frá þeim tíma,
er hann var kennari við Jóns
Bjarnasonar skóla. Nú rekur
Mr. Eastvold umfangsmikil
málafærslustörf í Seattle-borg;
nú fyrir skemstu var hann kjör-
inn forseti lúterskra mannúðaf-
samtaka í Washingtonríkinu, er
ná yfir sex kirkjufélög og nam
fé það, er þau í sameiningu
höfðu yfir að ráða árið, sem leið,
$87,000.00.
Mr. Eastvold er af norskum
uppruna; hann er kvæntur
Eriku Thorlakson, systur P. H. T
Thorlakson og þeirra systkina
Varar yið
vaxandi hættu
Dr. James Conant rektor Har-
vard-háskóla og kunnur kjarn-
orkufræðingur, tjáist þeirrar
skoðunar, að sívaxandi hætta af
völdum kjarnorkusprengju vofi
yfir helztu iðnaðarborgum á
Bretlandi og í Canada og Banda-
ríkjunum ef til ófriðar kynni að
draga á ný; telur hann að fram-
leiðsla Rússa á vopnum þessarar
tegundar fari mánaðarlega svo
í vöxt, að verulegum undrum
sæti. Og til þess að fyrirbyggja
þá tortímingu, er af slíku leiddi,
yrðu menn að koma í veg. fyrir
að þriðja heimsstríðið brytist út,
því að öðrum kosti yrði menn-
ingu mannkynsins stefnt í óút-
reiknanlegan voða.