Lögberg - 20.03.1952, Síða 2

Lögberg - 20.03.1952, Síða 2
2 LÖGBERG, FIMTUDAGINN, 20. MARZ, 1952 P. V. G. KOLKA: Líf og Aðdragandi. FUNDUM okkar gömlu skóla- bræðranna, Valtýs Stefánssonar og mín, bar saman eitt sinn síð- astliðið haust. Fór hann þess á leit við mig, að ég tæki mig til og skrifaði nokkrar greinar um heilbrigðismál, en ég færðist undan í flæmingi, því að með árunum finnur maður það æ betur og betur, að maður er allt af að tapa í kapphlaupinu við hinn mikla göngugarp, hinn líð- andi tíma, og má því illa við því að bæta á sig nokkrum pinklum, sem gera eftirförina ógreiðari. Á hinn bóginn sá ég, að hug- myndin var ágæt og almenningi til þarfa, ef vel tækist til. Almenningur í landi þessu er orðinn talsvert fróðari um margt það, er að heilbrigðismálum lýtur, heldur en þegar það var aðalþrautalendingin í flestum sjúkdómum að taka manni blóð, eða helzta ráðið við gulu var það að éta lifandi marflær, en í ungdæmi mínu þekkti ég fólk, sem hafði gengið gegnum þann „kúr“. En þrátt ' fyrir það minnist maður margra atvika úr þrjátíu ára lækningastarfi bæði við sjó og í sveit, þar sem betur hefði horft, ef fólkið, sem leitaði lækn- is í vanda og raun, hefði verið svolítið fróðara um það, hvernig á að snúast við óvæntum sjúk- dómum eða slysum. Það er því enn þörf á frekari fræðslu um þau mál, auk þess sem margt í starfi lækna fyrr og síðar varpar svo björtu og reyndar mislitu ljósi á lífið sjálft, að það hlýtur að draga að sér athygli og áhuga þeirra, sem á annað borð kæra sig um að kynnast mannkindinni og henn- ar einkennilega háttalagi á leið hennar frá vöggu til grafar. Ekki lækningabók. Áður fyrr, þegar langt var á milli lækna og samgöngur erfið- ar, þóttu lækningabækur hið mesta þing á hverju heimili. Fáir áttu kost á elztu lækninga- bókunum, svo sem hinni stóru lækningabók Þorleifs Björns- sonar frá 15. öld, enda voru þær ekki til nema í handritum og hefir fátt eitt geymzt af þeim fram á þennan dag. Því urðu flestir að komast af með kerl- ingabækurnar, sem voru óskráð- ar, en gengu í munnlegri erfð frá einni kynslóð til annarar. Ég á í fórum mínum þýzka bók, 1500 blaðsíður í stóru broti, með mörgum myndum og til- vitnunum, þar sem gerður er samanburður á kerlingabókum allra þjóða, frá Suðurhafseyjum til Grænlands, og kennir þar margra og kynlegra grasa. Þetta er fróðleg bók, enda fjallar hún um eina grein anthropologiunn- ar, fræðinnar um manninn og menningu hans. Þárna má finna slitur af gam- alli töfratrú, allskonar hindur- vitni og síðast en ekki sízt, leifar af læknisfræði fyrri alda, eins og hún var kennd í frægustu há- skólum, sem menn sóttu að úr fjarlægum löndum. Það er það raunalega við vísindi hverrar aldar, að þau ganga úr sér og gleymast að mestu, nema hvað nokkuð af þeim kemst inn í kerl- ingabækur seinni alda og lifir þar. Það er nokkur bót í máli, að kerlingabækurnar verða svo stundum að vísindum, þegar stundir líða fram. Margar þjóðir, jafnvel þær, sem standa á lágu menningar- stigi, hafa öldum saman notað lýsi við beinkröm eða skarfakál við skyrbjúgi og um síðustu aldamót töldu lærðir læknar þetta kerlingabók. En svo kom fjörefnafræðin til sögunnar og þá sýndi það sig, að þetta voru ágætis vísindi, enda reist á reynslu margra alda og þegar öllu er á botninn hvolft, þá er reynslan alltaf ólygnust. íslenzku lækningabækurnar heilsa P. V. G. Kolka fyrir almenning eru nú orðnar fágætar, og fæstir hafa séð Lækningabók Jóns Péturssonar fjórðungslæknis eða Jónassens landlæknis, drykkjurtabók Alex anders Bjarnasonar eða homeo- patisku lækningabækurnar, sem gefnar voru út nokkru fyrir aldamótin. Þessi tegund læknabókmennta hefir fallið úr tízku, enda hefir stundum verið að þeim tvísýnn fengur. Margt fólk, ekki hvað sízt nú á tímum, hefir svo sjúk- legan áhuga fyrir líkamslíðan sinni, að það má ekki sjá eða heyra lýsingu á neinum manna- meinum án þess að finna berg- mál sjúkdómseinkennanna í ein- hverju siuna eigin líffæra. Lækningabækur eru ekki hollur lestur slíku fólki, frekar en draugasögur þeim krökkum, sem eru frávita af myrkfælni. Þó þarf hver og einn, einkum hús- mæður, að hafa einhverja hug- mynd um, hvað til bragðs ákal taka, þegar slys eða snöggan sjúkdóm ber að höndum og þekkja eitthvað til algengustu sjúkdómseinkenna, sem krefjast skjótrar læknishjálpar. Horft um öxl. Síðari hljiti 19. aldarinnar var eitthvert glæsilegasta tímabil 1 sögu læknavísindanna. Ástæðan til þess var fyrst og fremst sú, að Pasteur tókst að afsanna til fulls kenninguna um generalio spontanea, kvikningu lífs af sjálfu sér. Okkur finnst það nú einfalt mál og sjálfsagt, að hvert kvik- indi, jafnvel gerlar og sýklar, hljóti að eiga sér foreldri, en þetta var þó til skamms tíma umdeilt. Þegar læknarnir fóru að kynn- ast ættfræði sýklanna og áttuðu sig á því, að þeir eru ekki laun- getnir, heldur er hver tauga- veikissýkill skilgetið afkvæmi annars taugaveikissýkilis, enda þótt hann sé í ætt við venjulega ristilgerla, sem eru eins og fá- tækir og fjarskyldir ættingjar, þá sköpuðust skilyrði til þess að halda einstökum ættkvíslum sýkla í skefjum eða jafnvel að útrýma þeim að mestu. Með því tókst ekki aðeins að stemma stigu fyrir næmum sjúkdómum, heldur og sóttmegnun sára, t. d. við skurðlækningar. Heilbrigðis- fræðin og handlæknisfræðin tóku því geysileg stökk fram á við. Þegar ég og jafnaldrar mínir vorum að ljúka námi fyrir 30 árum, virtist læknisfræðin vera komin það langt, að stórra fram- fara innan hennar væri varla að vænta. All-langt að baki lágu þeir könnunarleiðangrar um furðusvæði mannlegs líkama, bæði sjúks og heilbrigðs, sem höfðu orðið til að skapa kerfis- bundna líffærafræði og meina- fræði. Nokkru skemmra undan voru rannsóknir og uppgötvanir hinna miklu lífseðlisfræðinga 19. ald- arinnar. Sýklafræðin var orðin yfirgripsmikil vísindagrein og hugvitsmenn á sviði handlækn- inga, eins og Billroth og Kocher, höfðu skapað fullkomna tækni til aðgerða og viðgerða á flestöll- Hrakningssaga mb. Sigrúnar um líffærum hins lifandi lík- ama. Jafnvel heimsstyrjöldin fyrri, sem veitti mörgum læknum geysimikla æfingu og reynslu.( hafði ekki breytt þessari tækni að verulegu ráði. Helzt var hægt að búast við því, að nýir sýklar fyndust, blóðvatnslækningar og bólusetningar færðust yfir víðari svið og einhverjar endurbætur væri hægt að gera við þeim lyfj- um, sem notuð voru við næm- um sjúkdómum. Fáa mun hafa órað fyrir þeim stórkostlegu breytingum, sem síðan hafa orðið á viðhorfinu til margra sjúkdóma og meðferðar þeirra. En þetta á ekki aðeins við um læknisfræðina. Á engri annari öld hafa hugmyndir manna um himingeiminn yfir höfðum þemra, foldina undir fótum þeirra og lífið sjálft verið svo á hverfandi hveli sem á þessari öld. Sérhver læknir er þátttakandi í örlagaþrungnu drama, þar sem afkoma og lífshamingja meðleik- enda hans er oft undir því kom- in, hversu honum tekst við hlut- verk sitt. Þetta á jafnvel við um hvern sveitalækni. En um þá frumherja vísindanna, sem hafa unnið stórsigra læknisfræðinnar, má það með sanni segja, að starf þeirra hefir oft ráðið alda- hvörfum í lífi og menningu þjóðanna. 1 þáttum þeim, sem þessi er inngangur að og kallaðir verða einu nafni „Líf og heilsa“, mun ég reyna að bregða upp nokkrum blýantsmyndum úr þessu drama, þar sem leiksviðið er lífið sjálft, en baktjaldið brot úr sögu kyn- slóðanna. Mun þá í næsta þætti verða gefin skyndimynd af því markverðasta, sem fram hefir farið síðasta mannsaldurinn. Basútóland — hvað vita les- endur blaðsins um það land? Það er þó viðlíka stórt og Dan- mörk, og þar býr meira en hálf milljón manna. Basútóland er umlukt land- svæði, sem heyrir til Suður- Afríku. Upp að landamærum þess liggja Höfðanýlendan, sem svo var nefnd, Natal og Oranje- fríríkið. Það lýtur Bretum en er eitt þeirra landsvæða, sem Suður-Afríkumenn gera nú á- .kafar kröfur til, en fæstum öðr- um finnst girnilegt að fá þeim í hendur sökum þeirrar kyn- þáttakúgunar, sem komið hefir verið á í Suður-Afríku og mun hvergi vera grimmilegri í heim- inum. Land Sverlingjanna. íbúar landsins eru Batú- Negrar, og tungumál þeirra heitir sesútó. Helmingur þeirra er kristinn. Hvítir menn mega. ekki setjast þar að, nema örfá þúsund, sem gegna ýmsum opin- berum störfum eða fást við við- skipti. Æðsti embættismaður lands- ins er brezkur héraðsstjóri, sem lýtur brezka landstjóranum yfir Basútólandi, Bechúanalandi og Swasílandi. Innlent þing er í Basútólandi, og kjósa íbúar 95 menn á það, en Bretar tilnefna fimm menn. 900 skólar eru í landinu, með öðrum orðum tæp- lega einn á hvert hálft þúsund íbúa. Höfuðstaður landsins er Maserú með 2600 íbúa. Land ofurselí eyðingu. Tveir þungir skuggar hvíla yfir Basútómönnum: Yfirráða- kröfur Suður-Afríkumanna, sem vafalaust yrðu hinum hörunds- dökku í búum landsins þungir í skauti, ef þeir næðu tangarhaldi á því, og eyðing gróðurlendisins. Verulegur hluti landsins er slétta, sem liggur um 150 metra yfir sjó. En austurhluti þess er fjalllendi mikið og lítt byggt, enda ekki talið byggilegt. Á sléttunni er harla þéttsetið. Ð KVÖLDI hins 4. janúar s. 1. var veðurútlit fremur ís- kyggilegt, veðurspá hafði verið óhagstæð allan daginn. Um kvöldið kl. 10 spáði þó veð- urstofan, að ekki myndi hvessa fyrr en upp úr hádegi daginn eftir, og þá af suðaustri, en sú veðurátt er ekki talin hættuleg góðum bátum í norðanverðum Faxaflóa. Það varð því úr, að fjórir bátar réru frá Akranesi þetta kvöld. Meðal þeirra var mb. Sigrún, AK 71, og verður sagt hér frá sjóferð þessari, þar eð hún varð allvið- burðarík. Sigrún lagði af stað í þennan róður kl. 12 á miðnætti. Var þá vindur suðaustan kaldi, 4-5 vind- stig. Haldið var út í norðvestur. Þegar stímað hafði verið í 24 sjómílur var línan lögð í sömu stefnu; var þá vindur orðinn all- hvass af suðaustan, og var þá þegar sjáanlegt, að veður myndi versna fyrr en menn höfðu búizt við. Er ljósbaujan var látin út, sog- aðist færið undir bátinn og lenti í skrúfunni; varð að skera á færið og halda að næstu ljós- bauju, og var andæft við hana til kl. 8 um morguninn. Var þá komið suðaustan stórviðri. Gekk því afar seint að ná inn línunni. Þegar dregin höfðu verið tvö bjóð, reið brotsjór framan yfir bátinn. Tveir menn, er á dekki voru, Gunnar Jörundsson 1. vél- stjóri og Trausti Jónsson háseti, lentu í sjónum og urðu fyrir innvortis meiðslum. Sá nú ekki orðið út fyrir borðstokkinn fyrir veðurofsa og sjóroki; var vindur nú genginn til suðausturs og sjór farinn að aukast. Var því ekki um annað að ræða en reyna að ná landi sem fyrst. Var skipinu Þar er notaður hver skiki af ræktanlegu landi, enda er hvergi jafn þéttbýlt í öllum suðurhluta Afríku, þar sem lifað er af lanc^- búnaði. Og hér er ekki álitlegt um að litast. Jarðvegurinn er þurr og illa farinn. Gróðurmold- in er að sópast brott fyrir vind- um og veðrum og langar geilar teygja fingur sína inn í akrana og herja á þá ár frá ári. Við jaðar akranna eru hvítir steinar, og þangað mega bændurnir plægja, en ekki feti lengra. Það er bannað að ýfa jaðrana og létta vindinum þannig lándeyðing- una. En þessar varúðarráðstaf- anir duga ekki. Horfurnar í Basútólandi eru ekki góðar. Heslarnir eru stolt Basútómanna. Um þrjár milljónir húsdýra eru í landinu, þar á meðal um 150 þúsund hestar, múldýr og asnar. Á það land, þar sem ekki verður við komið plógum, er beitt sauðfé og geitum, en það er örtröð á beitilandinu, svo að því hrakar einnig. Basútómenn gætu sér að meinalitlu fækkað hestum sín- um, en það vilja þeir ógjarna gera. Þeir eru þeirra stolt. Fjalla hestarnir í Basútólandi eru kjör gripir, og Basútómenn hafa lengi lagt rækt við hestakyn sitt. Hestarnir eru fremur smáir vexti, en þolnir og fjörugir, og hinn svarti knapi á hestbaki er kóngur um stund. Það minnir meira á Indíánalíf en Svertingja land, er þeir þeisa í flokkum á reiðskjótum sínum um sléttuna með flaxandi ullardúka sveipaða um axlir sér. Rætist sá draumur? Hina. beztu menn Basútó- manna dreymir um sjálfstætt Svertingjaríki þarna á sléttunni. Þá dreymir um að stöðva eyði- legginguna með nýjum úrræð- um og vísindalegu starfi. En rætist sá draumur? Landið er fátækt, þekking enn á frem- ur lágú stigi, en allt umhverfis Skráð af Hallfreði Guðmunds- syni, eftir frásögn skipstjórans slegið skáhallt undan veðri og haldið til Akraness. Er siglt hafði verið í 20 mínút- ur hóf stórsjór bátinn á loft og kastaði honum niður á bakborðs- kinning af því feikna afli, að ekkert var upp úr nema stjórn- borðssíða. Stýrishús og skip- stjóraherbergi fylltist af sjó, allir gluggar brotnuðu úr brúnni, bakborðslunning og ellefu stytt- ur, ásamt skjólborði, sópaðist burtu. Anker, sem komið var fyrir fram á, kastaðist fyrir borð, á- samt vírrúllu, sem boltuð var í dekkið að framan. Bjóð, lífbátur, ásamt öllu lauslegu, sópaðist fyr- ir borð. Þykkt járngólf, sem er í vélarúmi kastaðist upp og yfir vélina, út til bakborðs. Allt fór í einn hrærigraut í hásetaklefa, rúmbotnar, sængurföt, eldhús- áhöld og allt, sem losnað gat. Skipstjóri var einn í stýrihúsi og stóð hann í hlið stýrihússins, en fór á kaf í sjó. Skipið rétti sig hægt og hægt, þar til það kom svo að segja á réttan kjöl. — 2. vélamaður, Kristján Fredrekssen var á leið aftur skipið, er sjórinn reið undir og hóf það á loft. Hann komst í stigann, sem liggur stjórnborðsmegin upp í brúna, og hélt sér þar, því þeim megin kom enginn sjór á skipið. Taldi skipstjóri ekki fært að halda lengur áfram í því ástandi, sem skipið var, enginn leki kom þó að skipinu, nema lítilsháttar með lunningastyttum þeim, er brotnuðu. Var skipinu snúið upp í og haldið vest til suðvest. Var nú haldið upp í alla nóttina, og gekk allt eftir vonum. Ekki gátu skipverjar kveikt upp eld, þar eð reykrörið fór í fyrsta sjónum, og allt var brotið, sem tilheyrði matartilbúningi.— Kl. 6 um morguninn sáu skip- verjar bregða fyrir vita. Ekki sást hann það lengi, að hægt væri að átta sig á, hvaða viti það væri, en skipstjóri taldi það vera Garðskagavita og reyndist það síðar rétt vera. Var nú haldið upp í til kl. 8 um morguninn, en þá hugðist skip- stjóri reyna landtöku, þar eð birta færi í hönd. Snéri hann skipinu skáhalt undan, jafnframt voru teknar svefndýnur úr rúm- unum, gegnvættar í olíu og heng- dar utan á skipið, en þær tætt- ust í sundur, og naut þessa örygg is skamma hríð. Var þá reynt að hella olíu í sjóinn, en veðurofs- inn tætti hana í allar áttir, og varð ekkert við það ráðið. Skipstjóri telur stóröryggi að því, að skip hefðu ávallt báru- fleyga tilbúna, til öryggis undir slíkum kringumstæðum, sem hér voru. Var nú haldið áfram með hægri ferð og reynt sem unnt var að verja skipið áföllum. Kl. 10 hóf sjór skipið á loft og kastaði því sem daginn áður, en nú rétti það sig samstundis, þar eð lunn- ing og skjólborð voru eigi til fyr- irstöðu. í þessu áfalli tók stýri- manninn, Þórð Sigurðsson, fyrir borð. Hafði hann verið að líta eftir landi, og staðið upp á véla- rúmi, en hafði handfestu í „rekk- verki“ á stýrihúsi. Stýrimann bar fljótt aftur út, þar eð skipið skreið hart undan stórsjó og ofsa veðri. Skipstjóri setti samstund- is á fulla ferð og snéri skipinu upp í, hann missti aldrei sjónir af stýrimanni og tókst að fara svo nærri honum, að skipverjar gátu rétt stýrimanni haka, sem hann greip, og úró sig samstundis að skipinu, en skipverjar náðu til að innbyrða hann. Var nú haldið undan enn á ný, því nú taldi ^kipstjóri sig vera í Garðskagaröst, eftir sjólaginu að land gráðugs kynþáttar, sem fyrirlítur Svertingjana og vill bæla þá undir sig til þess að lyfta sjálfum sér upp til auðs og hóglífis. . —TIMINN, 14. febr. —Mbl., 17. jan. Svipmynd frá Basútólandi, einu verndarríkinu í Suður-Afríku frá Ákranesi dæma, og var þá herzlumunur að ná inn fyrir Garðskaga. Svo var stjórinn geysilegur, að þetta taldi skipstjóri vesta kaflann í öllum þeirra hrakningi.—Skömmu síð- ar komu þeir í betra sjólag, og var þá öruggt að alt var rétt, sem skipstjóri taldi vera um ferðir þeirra. Þegar kom inn undir Gerða- hólma hittu þeir varðskipið Þór, sem fylgdi Sigrúnu til Akraness, og kom hún þangað kl. 5 e. m. og hafði sjóferðin þá staðið í 41 klukkutíma. Óvíst telur skipstjóri, að þeir hefðu náð heimahöfn þennan dag, ef ekki hefði notið aðstoðar björgunarskipsins; svo var þá dimmt af roki og byl, og foráttu- brim. Enginn veit, nema sá er reynir, hversu margháttaður styrkur mönnum er að því undir slíkum kringumstæðum og hér voru, að hitta fyrir skip með öruggum, út- réttum höndum til hjálpar, ef með þarf. Er vonandi, að ís- lenzka þjóðin beri gæfu til að eignast fleiri skip sem „Þór“ og fleiri álíka skipshafnir. Hér lýkur frásögn skipstjóra. * Þessi frásögn þarf ekki skýr- ingar við. Allir þeir, er hér voru að verki, hafa sýnt afburða þrek og dugnað, og þá sérstaklega skipstjórinn, sem ekki vék úr stýrishúsi í 22 klst., en um nótt- ina hvíldi stýrimaður hann við stýrið við og við. Munu hendur hans þá hafa verið farnar að stirðna af kulda, enda ekki að furða, þar sem hann var renn- votur frá hvirfli til lija. Enginn sá skipstjóra brugðið, er að landi kom. Sama festan, hægðin og ró- legheitin, sem einkenna öll mik- ilmenni—þegar á þau reynir. Hallfreður Guðmundsson. — Sjómannablaðið Víkingur. Dánarfregn Sunnudaginn, 24. febrúar, lézt John B. Steinson á sjúkrahúsi í Delta, B.C., rúmlega 50 ára að aldri, fæddur árið 1900. Hafði hann lengi verið mjög farinn að heilsu, og upp á síð- kqstið mjög þungt haldinn. John var sonur hjónanna Torfa og Pálínu Steinson, sem bjuggu í Argyle-bygð og Glen- boro, Man., og síðast í Kandahar, Sask. John fæddist í Argyle- bygð, en ólst að mestu leyti upp í Kandahar, Sask. Hér vestur frá var hann nokk- ur ár á vegum bræðra sinna, Skapta og Björns Steinson og þeirra heimilisfólks, eftir að for- eldrar þeirra voru dáin. Hlynti þetta fólk að honum og hjúkr- aði í sjúkdómi hans af mikilli góðvild og nákvæmni, þar til ó- hjákvæmilegt var að hann flytt- ist á sjúkrahús. Jarðarför John sál. fór fram frá útfararstofu Cloverdale, B.C. fimtudaginn 28. febrúar; og var hinn látni jarðaður þar. Séra Haraldur Sigmar frá Blaine, Wash., flutti kveðjumálin. John sál. var drengur góður, hjálpfÚB og velviljaður, en lengst af æfi mjög bilaður á heilsu. H. S. C0PENHAGEN Bezta munntóbak heimsins

x

Lögberg

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Lögberg
https://timarit.is/publication/132

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.