Lögberg - 20.03.1952, Blaðsíða 4

Lögberg - 20.03.1952, Blaðsíða 4
4 LÖGBERG, FIMTUDAGINN, 20. MARZ, 1952 i.ogtjtrg GefiC út hvern fimtudag af THE COLUMBIA PRESS LIMITED 695 SARGENT AVENUE, WINNIPEG, MANITOBA Utanáskrift ritstjórans: HDITOR LÖGBERG, 695 SARGENT AVENUE, WINNIPEG, MAN. PHONE 21 804 Rritstjóri: EINAR P. JÓNSSON Verð $5.00 um árið—Borgist fyrirfram The “Lögberg” is prlnted and published by The Columbia Press Ltd. 695 Sargent Avenue, Winnipeg, Manitoba, Canada. Authorized as Second Class Mail, Post Office Department, Ottawa Mótfallnir aukinni þjóðnýtingu Þótt jafnaðarmenn, eða Social-Demokratar hafi áratugum saman ráðið lögum og lofum í Svíþjóð, er þó síður en svo að Svíar hafi amast við einstaklingsfram- takinu eða einkarekstri umfangsmikilla fyrirtækja á hinum ýmissu sviðum þjóðfélagsins; þeir eru hagsýnir búmenn, sem vel eru á veg komnir með að gera örbirgð- ina útlæga úr landi sínu; enda mun mega til sanns veg- ar færa, að í sænsku þjóðlífi^sé margfalt minna um öfugþróun, en viðgengst með flestum Norðurálfuþjóð- unum, og væri þá vel, ef íslenzka þjóðin tæki sér slíkt til fyrirmyndar. Varðandi umbætur á vettvangi félagslegrar ör- yggislöggjafar tvo síðustu áratugina, hefir Svíþjóð mið- að svo ört áfram, að landið hefir þráfaldlega verið nefnt. fyrirmyndarríkið í norðri. » Fyrst eftir að síðari heimsstyrjöldinni lauk, sem Svíar sluppu við, þótt þeir að vísu sættu nokkurum ágjöfum og nokkuð saxaðist á skipastól þeirra, fór um landið sterk þjóðnýtingaralda, sem nú hefir svo að segja hjaðnað niður. í kosningabardaganum 1950 komst einn af for- vígismönnum sænskrá Social-Demokrata meðal annars þannig að orði: „Meðan iðjuhöldar og forkólfar einkarekstursins sanna í verki að þeir séu þess umkomnir, að halda fram- leiðslu sinni í heilbrigðu horfi, er ástæðulítið fyrir stjórnarvöldin að blanda sér inn í starfsemi þeirra, og ég er viss um að meirihluti jafnaðarmanna lítur svipuð- um augum á málið.“ í svipaðan streng tekur aðstoðarverkamálaráð- herrann, Dr. Richard Sterner, en honum farast þannig orð: „Það er alls ekki ásetningur okkar, að þjóðnýta allar hiigsanlegar framleiðslugreinar landsins; okkur skilst af reynslunni, og eins með því að skygnast vit- und fram í tímann, að einkarekstur eigi í mörgum efn- um fullan rétt á sér og horfi til þjóðþrifa; en hitt er okkur ant um, að forstjórar og eigendur einkareksturs- ins finni til gleggri lýðræðislegrar ábyrgðar gagnvart þjóðinni allri, en stundum hefir viðgengist í liðinni tíð. „Ég er þeirrar skoðunar“, bætir Dr. Sterner við, að í framtíðinni muni mikið vinnast á með náinni og bættri samvinnu milli þjóðnýtingarstefnunnar og einstaklings- framtaksins; slíkt ætti að geta komið að góðu haldi við framleiðslu byggingarefnis og húsagerð, og þá vita- skuld á mörgum fleiri sviðum.“ Þá leggja og sænsk stjórnarvöld sérstaka áherzlu á það, að í hverri einkaverksmiðju sé til taks nefnd úr starfsliði verkamanna, er stuðli að samræmdri skipu- lagningu vinnubragða og framleiðslu; eykur þetta að jafnaði afköstin og tryggir vinnufriðinn. Það er margt, sem stórþjóðir tíðum geta lært af tiltölulega smáum og fámennum þjóðum, sem komið gæti þeim að varanlegu haldi, og víst er um það, að nú er menningarlegum átökum Norðurlandaþjóðanna meiri athygli veitt en algengt var fyrir nokkrum árum. Kensla í norrænum fræðum Blaðið Scandinavian American, sem gefið er út í borginni Seattle, lætur þess nýlega getið, að um þessar mundir séu við nám í Bandaríkjunum um þrjú þúsund nemendur, er leggi stund á norræn fræði; í gagnfræða- skólum hefir slíkum nemendum allmjög fækkað síð- ustu fimm árin; í mentaskólum er talan lítið breytt, en hefir hækkað að mun í háskólunum. Einar Haugen, amerískur málfræðingur, fæddur í Noregi, lét ofangreindar upplýsingar í té á fundi nor- rænna fræðimanna, sem haldinn var eigi alls fyrir löngu í Stokkhólmi. Prófessor Haugen tjáðist af reynslu sinni sann- færður um það, að í Ameríku væru íslendingar og Finn- ar fastheldnastir norrænna manna við móðurmál sitt. Danir væri fljótgleymnastir, en einhvers staðar mið- skips í þeim efnum mætti telja Norðmenn og Svía. Prófessor Haugen tókst áminsta ferð á hendur með það fyrir augum, að viða að sér efni í kenslubók f Norðurlandamálunum, er nú mun vera í uppsiglingu. Af ofanskráðum upplýsingum má það ljóslega ráða, að það sé síður en svo, að áhugi fyrir viðhaldi norrænna menningarverðmæta sé aidauða í þessu mikla megin- landi þrátt fyrir hrakspár og lítilmannlega svefnværð þeirra, er láta sér á sama standa um alt. Er ekki tími til þess kominn, að við Vestmenn röknum úr okkar þjóðræknislega roti, og minnumst hvatningarinnar miklu: „Rís upp mín sál og bregð nú blundi?“ Aldrei meiri framkvæmdiréFljótsdalenás.l.ári Jónas Pétursson tilraunastjóri á Skriðuklaustri hefir undan- farið setið á fundum tilrauna- ráðs hér syðra. Mbl. hefir hitt hann að máli og leitað tíðinda hjá honum í Fljótsdal og ná- grenni. — Hvernig hefir tíðarfarið verið hjá ykkur í vetur? — Haustið var allgott fram undir nóvémber lok, en frá des- emberbyrjun hefir tíðarfar ver- ið fremur stirt. Janúar var ó- venjulega stórviðrasamur og jarðlag hefir verið slæmt í Fljóts dal. Þó mun hafa gert góða hláku þar um miðjan þennan mánuð.^Leysti þá mjög klaka af láglendi. Á Jökuldal hefir líka verið slæmt urft haga frá því um áramót og haglaust var um allan Jökuldal er ég fór að aust- an. Er hætt við að þessi síðasta hláka hafi komið þeim að litlu gagni, einkum á Efri-Jökuldal. — Eru bændur sæmilega birg- ír með fóður? — Heybirgðir mryiu hafa ver- ið sæmilegar í haust, og ólíkt betri en 1950. — En hey hafa gefist með i'heira móti í minni sveit vegna veðurhamsins. Glöggur bóndi í Fljótsdal, sem heldur gjafaskýrslur, sagði mér, að hann hafði aldrei verið bú- inn að gefa eins mikið og nú í janúarlok á kind, það sem skýrsl ur hans ná eða frá 1917. Hey- birgðir voru athugaðar eftir mið vetur og mun útlit með þær vera sæmilegt. Kjarnfóður, mest síldarmjöl, er alls staðar gefið. Slæm aíkoma. — Hvernig er afkoma bænda um þessar mundir eystra? — Afkoma bænda hefir verið slæm þessi síðustu ár. Ber þar margt til. Illt árferði, margföld hækkun á allri aðkeyptri vöru og tiltölulega mjög lítil hækkun á aðalframleiðsluvörunni, kjöt- inu. Er þó víst, að enginn hrepp- ur hefir sloppið jafn vel við hið erfiða árferði og Fljótsdals- hreppur. T. d. kom enginn baggi af hinu aðkeypta heyi í þann hrepp í fyrra. Kjarnfóðurkaup voru hins vegar mikil, þó senni- lega engu meiri en harða vorið 1949. Vanhöld á sauðfé voru víða mikil s.l. vor og dilkar reyndust léttir í haust. Garna- veiki hefir þó ekki enn gert tjón í Fljótsdal. Segja má að verið hafi erfitt árferði fyrir austan síðan 1947. Af þeim orsökum öll- um, sem ég nú hefi lýst, leiðir það, að afkoma bænda er miður góð í mínu nágrenni. En þegar svo er um hið græna tréð, hvað mun þá um hin, þar sem tíðar- farið var margfalt verra, garna- veiki herjar, og verzlunarhlut- fallið jafn óhagstætt. Ég segi* ekki þá sögu nánar. Mesta framkvæmdasumarið. — Hvaða framkvæmdum hef- ir aðallega verið unnið að und- anfarið? — Helztu framkvæmdir í Fljótsdal voru: Brúarbygging á Jökulsá í Fljótsdal. Er það mik- ið mannvirki, 112 metra löng steinbrú á stöplum. Verkið hófst um 20. júlí og var lokið um 20. okt. Eftir er þó að setja hand- riðið og sömuleiðis að ganga betur frá uppfyllingu við end- ana. Aðra minni brú þarf svo að byggja yfir Kvíslina svo- nefndu, sem fellur meðfram austurlandinu en stór hólmi er milli brúnna og er einnig eftir að leggja veg yfir hann. Þessar brýr gjörbreyta samgöngunum í hreppnum og á Héraðinu í heild, þegar vegur er fullgerður frá brúnni og út um Hallorms- stað að austan. Ennfremur vant- ar brú á Múlann. Þessi brú mun hafa kostað um 1 milljón króna. Verkið gekk mjög vel. Þá voru byggð fjárhús á Skriðuklaustri yfir 500—600 fjár, með þurheys- og votheyshlöðum. Byggingin er að grunnfleti 28x28 metrar. Verður henni lokið til fulls á þessu ári. — Hefir töluvert verið unnið að ræktun á s.l. árum? Það vanlar rækiun og aftur rækiun. Samtal við JÓNAS PÉTURSSON tilraunastjóra á Skriðuklapstri Skurðgrafa vann í hreppnum á s.l. ári. Var hún að störfum frá því í júnílok og til nóvember loka. Verkið gekk mjög vel. voru grafnir 56 þús. teningsm eða tæpir 15 kílómetrar. Kostn- aður á hvern grafinn teningsm. reyndist kr. 2.50. Grafið var hjá 14 búendum í Fljótsdal. Mest var grafið á Skriðuklaustri um 22 þús. rúmmetrar. Vegur var lagður yfir Valþjófsstaðanes að nýju brúnni. Var hann 1 km. á lengd. Ég tel s.l. sumar mesta framkvænidasumarið í sögu Fljótsdals. Framræzla telst náttúrlega til ræktunarfram- kvæmda. En landbrot var lítið, en ég veit ekki um stærð á sáð- sléttum í hreppnum eftir sum- arið. Á Skriðuklaustri var sáð grasfræi í 4 hektara og brotið allmikið meira land. Einstaka bændur höfðu fyrirhugað bygg- ingar, en hættu við þær, bæði vegna .hins erfiða árferðis og svo af gífurlegri hækkun á byggingarefni, sérstaklega járni og timbri. Votheysgryfjur voru gerðar á nokkrum bæjum, en óvíða voru þær steyptar. — Fjölgar fólkinu í sveinni? — Ég var einmitt fyrir skömmu að spyrja sóknarprest- inn um þetta. Er heldur um fækkun að ræða. S.l. ár mun það hafa stafað af fleiri dauðs- föllum en fæðingum. Mikil áithagairyggð. — Hefir margt ungt fólk hafið búskap síðdstu árin? — Þessari spurningu get ég svarað játandi. Ég hefi einkum heyrt talað um tvær sveitir, þar sem ungt fólk unir allvel heima. Eru það Mývatnssveit og Fljóts- dalur. ‘Ég þekki þetta nú orðið af eigin raun með Fljótsdal. Þar er átthagatryggðin mikil. En þac er fremur skortur á jarð- næði og margar jarðir þröngt setnar. Nokkuð er þar af ein- hleypum mönnum, sem hafa sauðfjárbúskap. Þeir eiga líka oftast reiðhest og una hlutskipti sínu mjög vel. Eru samgrónir þessum mállausu vinum, kind- unum og hrossunum. En bregða myndi þeim mönnum ónotalega við, sem vanir eru „Dagsbrúnar- taxta“ fyrir hverja vinnustund, ef þeir reiknuðu út stundakaup þessara manna. Er þó aðstaða þeirra öllu betri en fjölskyldu- bændanna, sem lítil bú hafa. — Hvaða áhrif virðast þér hinir hörðu vetur undanfarið hafa haft á fólkið fyrir austan? — Afleiðingarnar eru fyrst og fremst minnkandi framkvæmda geta. Ég hefi ekki svo mjög orð- ið var bölsýni af þeim sökum. Miklu frekar vekur það mönn- um geig að eiga von á garna- veikinni í fé sitt. Meiri ræktun. — Hvaða framkvæmdir eru mest aðkallandi hjá ykkur? — Það vantar ræktun og aftur ræktun. Heyið, — taðan er undir staða búskaparins og afkomu fólksins. Fljótsdalshérað hefir á- gæt ræktunarskilyrði og eru þau hvergi betri hér á landi, en í beztu sveitum vitanlega svipuð. Það má því aldrei koma fyrir aftur að flytja þurfi hey inn í Héraðið. En þaðan ætti að vera hægt að flytja hey til sjávar- þorpanna fyrir austan, þar sem heyskaparskilyrði eru erfiðari. Vitanlega eru margar umbætur mikil nauðsyn í næstu framtíð. Gripahús eru víða mjög léleg, heygeymslur vantar og vega- sambandið þarf að stórbatna. Og svo þurfa flugsamgöngurnar á Héraðið sjálft að verða öruggar allt árið. Það verður nú vonandi þegar á þessu ári. Flugvallar- gerðin á Egilsstöðum, sem unn- ið var að s.l. haust er það vel á veg komin að völlurinn ætti að verða fullbúinn í sumar. — Hvaða möguleika hafið þið á að fá raforku? — Já, rafmagnið. Hætt er við, að það eigi nokkuð í land ennþá. Ákveðið mun þó að virkja Grímsárfossa milli Sandfells og Sauðhaga og leiða rafmagnið þaðan til fjarðanna og um Hér- aðið eftir því sem kleift reynist, segir Jónas Pétursson að lokum. S. Bj. —Mbl. 27. febr. íslenzkar plastyörur útflutningsyara íslenzk verksmiðja, Plastic, hefir selt talsvert magn af plast- vörum til Danmerkur og er að gera samning um sams konar viðskipti við Norðmenn. Hefir framkvæmdastjóri fyrirtækis- ins, Robert Bendizen, verið á ferð á Norðurlöndum og Þýzka- landi í markaðsleit. Plastvörur þær, sem tekizt hefir að selja, eru skápa- og skúffuhandföng með læsingu. þykir varan góð og smekkleg, og myndi hægt að selja mikið magn til Þýzkalands, ef verðið væri samkeppnisfært þar. Með þessum útflutningi sínum hefir plastverksmiðja þessi sann að myndarlega tilverurétt sinn, en að henni kreppir nú heima fyrir vegna ónógs rekstrarfjár. —TÍMINN, 26. febr. Jafnvel þótt flöskuhús hljóti að teljast meðal sjaldgæfra og einkennilegra bygginga, er vafa- samt hvort hús þetta á metið á því sviði. Það eru til margar furðulegar byggingar í heimin- um. Hertoginn af Portlandi byggði sér hús í Welback Abbe um miðbik aldarinnar er leið. Djúpt í jörðu lét hann gera stóra hvelfingu fyrir bókasafn sitt, en einig var þar salur fyrir borð- knattleik og veizlusalar mikill. Lyftugöng tengdu neðanjarðar- hýsi þetta við sjálfa bygginguna. Lyftan var knúin vatnsafli og bar tuttugu og tvo menn. Það er því óhætt að fullyrða, að hertog- inn hafi verið framsýnn maður, er hann gerði sprengjuheld hí- býli löngu áður en nokkur flug- vél eða flugsprengja var upp fundin. Föstuhugleiðing Endur fyrir löngu hefir kirkjan valið freistingarsöguna í Matteusi (4:1.—11.) sem eins konar inngang að sjövikna- föstunni. Samkvæmt þeirri frásögn eigast þeir orð við, frelsarinn og freistarinn. Frásagan er táknræn um hið eilífa reiptog sem á öllum öldum, og í sálu hvers manns, fer fram milli hins vonda og góða, ljóss og myrkurs, lýgi og sann- léika. Kristur hafði nýlega verið vígður guðlegri vígslu til þess að stofna guðsríki á jörðu. En engu fyrr hafði hann tekið þessa ákvörðun en hann er tekinn á eintal. Þetta er stöðugt að gerast. Þegar menn taka þá ákvörðun að þjóna Guði og samvizku sinni, eru þeir ávalt fyrir hendi sem taka þá áeintal, leitast við að draga úr þeim kjarkinn, og telja þeim hughvarf. Ertu nú viss um að þú getir þetta? Heldurðu að það verði ekki hlegið að þér ef þú ferð að lifa hugsjóna- lífi, og þjóna einhverjum göfugum málstað? Margt segja þeir, og mælskir eru þeir og oft mjög sannfærandi, þessir talsmenn hins vonda anda, sem stöðugt vilja stýfa vængi hugsjónanna og draga menn ofan í skarnið. Það gildir einu hve gamlir við erum, eða þjálfaðir í skóla lífsins, við erum aldrei undanþegnir margvíslegum freistingum. Auðvitað .eru freistingarnar mjög mismunandi eðlis, eftir aldri manna og ástæðum. Freistingar sem voru okkur hættulegar um tvítugsaldurinn, hafa ekki lengur neitt aðdráttarafl fyrir okkur sem erum miðaldra eða eldri; við lítum ekki við þeim. En aðrar hafa komið í staðinn, sem komu ekki til greina þegar við vorum yngri. Ég þarf ekki að telja upp þessar dimmu raddir, sem stöðugt eru að tala til okkar. Þær eru háværastar þegar við erum stödd í eyðimörkinni, þ. e., þegar við gefum okkur á vald einveru, sjálfsmeð- aumkvunar og ömurlegra hugsana. En sú rödd sem hæst talar, og sem allir hlusta á, er rödd efnishyggjunnar. Efnishyggjan er sú mikla drottning sem flestir menn lúta nú með lotningu, og vænta sér góðs af. „Bjóð þú að þessir steinar verði að brauðum“. Brauðið er alt, og alt er brauð, þegar það táknar, eins og það gerir hér, hin almennu hversdagslegu lífsþægindi. Og það er svo Guði fyrir að þakka að við búum í landi mikilla auð- lynda og njótum fleiri og meiri lífsþæginda en nokkur önn- ur kynslóð hefir áður gert. Ef menn gætu lifað á brauði einu saman, þá ætti þetta land vissulega að vera paradís lífshamingjunnar, þá ættu allir að vera farsælir og þakk- látir Guði fyrir dásemdir lífsins. Hugsið ykkur alla fram- leiðslu þessa lands, hugsið um afraksturinn af yfirborði og úr iðrum jarðar, akrana, námurnar, olíulyndirnar, loft- förin, borgirnar, bílana, búðirnar, með öllu því skrauti, nauðsynja- og nautnavörum sem þar eru daglega á boð- stólum. Ef fyrstu hvítu mennirnir sem í öndverðu komu hér vestur á slétturnar, og bjuggu hér við stöðugar hættur og mjög frumstæðan kost, gætu risið upp úr gröfum sínum og horft á alla þá menningu og munað sem við njótum nú, myndu þeir ekki fyllast aðdáun og segja: Hugsið ykkur hve sæl þessi þjóð hlýtur að vera nú, og ánægð með hlutskifti sitt! Ég held að þeir myndu ekki tala á þá leið. Ég er viss um að látnir lifa, og þeir halda áfram að þroskast í dýrðarheimi. Þeir þroskast þá einnig í skilningi á kjörum mannanna, og hinni eilífu órósemi mannlegs hugar. Þeir skilja nú betur en við sem nú dveljum á þessu stigi tilverunnar, í hverju okkur er áfátt, og hrærast vísast oft til meðaumkvunar með okkur í búksorg okkar og brauðstriti. „Bjóð þú að þessir steinar verði að brauðum!" heyrist kallað dimmri og hásri röddu út í eyðimörkinni. En af hæðum heyrist rödd Jesú: „Maðurinn lifir ekki af brauði einu saman“. Nú, hvers vegna ekki? Fyrir þá einföldu á- stæðu að við mennirnir erum annað og meira en dýr merk- urinnar. Brauðið eitt nægir ekki til að svala þörfum okkar, okkur hungrar eftir ýmsu öðru. Við þráum samfélag með- bræðra okkar; okkur langar til, hvort sem okkur er það ljóst eða ekki, og þótt það takist misjafnlega, og misheppn- ist oft, að ganga fram með hreinar hendur og flekklaust hjarta. Við þráum að skilja eitthvað í lífinu, að eignast eitt- hvert takmark fyrir það annað og æðra en samsafn þeirra hluta sem við hljótum að skilja eftir þegar göngunni er lokið, eitthvert markmið sem gefur lífinu varanlegt gildi. Þrá okkar og þorsti beinist að því að eignast trú og von í þessum heimi þar sem alt hið sýnilega hverfur, og þar sem þungir harmar steðja að, sem ekkert hið efnislega, ekkert „brauð“ fæf afstýrt eða læknað. „Maðurinn lifir ekki af brauði einu saman heldur af sérhverju orði sem fram gengur af Guðs munni“. Á föstunni erum við sérstaklega minnt á „orðið“ sem varð hold og bjó með oss. Kristur er „orð“ frá Guði um gildi lífsins, um kærleika, fyrirgefningu og fórnarlund. Látum ekki þá sem hæst hrópa í eyðimörk efnishyggjunnar kefja röddu hans. —V. J. E.

x

Lögberg

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Lögberg
https://timarit.is/publication/132

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.