Lögberg - 20.03.1952, Blaðsíða 8

Lögberg - 20.03.1952, Blaðsíða 8
8 LÖGBERG, FIMTUDAGINN, 20. MARZ, 1952 Breiðfirzkir bátar fiýja miðin undan erlendum togurum Úr borg og bygð Hekla „Samkoman" í Minneapolis, 29. marz Hin árlega samkoma sem ís- lenzka kvenfélagið í Minne- apolis, Hekla-klúbburinn, efnir til, verður haldin á laugardags- kvöldið í næstu viku, 29. marz. í bréfi frá nefndinni, sem Lög- bergi hefir borizt, er öllum lönd- um boðið á samkomuna. Byrjað verður með kvöldverði klukkan sex, og fara skemtiatriði fram kl. 8. Iva Magnuson, sem vinnur við skrifstofustörf í Minneapolis, er forseti Heklu-klúbbsins í ár. Pétur Jökull, skrifstofustjóri tekjuskattadeildar Minnesota- ríkis, stjórnar samsætinu 29. marz; Björn Björnson, ræðis- maður íslands í Minneapolis, flytur ræðu; Óli Kárdal frá Gimli syngur einsöngva, einnig koma aðrir skemtikraftar meðal Minnesota landa fram á sjónar- sviðið. Samkomustaðurinn er American Legion Hall, við 35th Street og Chicago Avenue í Minneapolis. ☆ FRÓNS-fundur. Næsti Frónsfundur verður haldinn í G. T.-húsinu á mánu- daginn, 24. marz n.k., kl. 8 e. h. Eins og sagt var frá í síðasta blaði er fundur þessi boðaður til þess að gefa fólki kost á að ræða tillögur Björns læknis Jónssonar um varðveizlu ís- lenzkra menningarerfða í landi hér. Að öllu forfallalausu munu þessir menn taka þátt í umræð- um: Séra Valdimar J. Eylands, Próf. Finnbogi Guðmundsson og Björn Jónsson læknir. Ekki þarf að taka það fram, að vonast er til að sem flestir verði til þess að láta í ljósi álit sitt á þessu þýðingarmikla máli. Alt bendir til þess að næsti fundur muni verða bæði fróð- legur og skemtilegur. Allir eru boðnir og velkomnir. Aðgangur er ókeypis en samskot verða tekin. i H. THORGRÍMSSON, ritari Fróns ☆ Tvö eintök hinnar fögru út- gáfu Snæbjarnar Jónssonar af Passíusálmunum, sem Lögberg vék að í fyrri viku, fást til kaups á skrifstofu blaðsins, 695 Sargent Ave. Bókin kostar í vönduðu bandi $3.75. ☆ Sveinn E. Björnsson læknir og skáld frá Miniota, Man., kom til borgarinnar um síðustu helgi á- samt frú sinni; dvöldu þau hér fram um miðja viku í heimsókn til venzlafólks og annara vina. ☆ Arni G. Eggertson, Q.C., flaug austur til Toronto á sunnudag- inn og dvaldi þar þrjá daga í lögfræðilegum erindum; hann kom heim í gær. ☆ Finnbogi prófessor Guðmunds- son brá sér suður til Grand Forks, N. D., á fimtudaginn var í heimsókn til þeirra Dr. Ric- hards Beck og frú Berthu Beck; hann kom heim um helgina. Forstöðukona óskast þegar að „Borg“ Elliheimilið „Borg“ að Moun- tain, N. Dak., þarfnast for- stöðukonu (Matron). Nauð- synlegt að umsækjapdi tali íslenzku, æskilegt að þær hafi einhverja reynslu við hjúkr- unarstörf, en mest áríðandi er að þær hafi hæfileika til að veita heimilinu góða um- sjón og vistfólki góða um- önnun. Umsóknir sendist til skrifara nefndarinnar Theo. Thorleiíson Gardar, N. Dak. Mrs. O. Stephensen fór suður til San Diego, Cal., um miðja fyrri viku og mun dvelja þar syðra í tvo mánuði. Sú frétt barst hingað í bréfi frá Reykjavík, að látist hefði þar þann 13. þ. m. Pétur Lárusson starfsmaður á skrifstofu Alþing- is sjötugur að aldri, hinn mesti ágætismaður. Hann var sonur séra Lárusar Halldórssonar frá Hofi í Vopnafirði og frú Kirstín- ar Guðjohnsen, systur frú Láru heitinnar Bjarnason. ☆ Mrs. Herdís Johnson, Árborg, Man., lézt á‘ fimtudaginn 13. marz á Arborg Red Cross spítal- anum, 71 árs að aldri. Hún flutt- ist til Canada árið 1885, og hefir búið í Árborg síðan; maður henn- ar, Guðmundur Johnson, er lát- inn. Hún lætur eftir sig þrjá sonu, Sigurð, Snæbjörn og Jónas, allir búsettir í Árborg; þrjár dætur, Mrs. A. Elíasson, Gimli, Man., Guðrún og Lilja í Árborg; ellefu barna-börn og eitt barna-barna-barn; ennfrem- ur tvær systur, Mrs. J. Pálsson, Geysir og Mrs. J. Guttormsson, Árborg; og tvo bræður, Jónas og Valda í Geysir. Útförin fór fram á þriðjudaginn frá lútersku kirkjunni í Árborg. i ☆ Sigbjörn (Barney) Einarsson, 10 ára gamall, lézt á laugardag- inn 15. marz á Johnson Memorial sjúkrahúsinu á Gimli. Hann var sonur Mr. og Mrs. Jóhann Ein- arsson, Hnausa, Man. Útförin fór fram frá heimilinu á mið- vikudaginn, 19. marz. ☆ Njáll Johnson frá Árborg kom seinni part fyrri viku til Winni- peg eftir tveggja mánaða ferð suður til Florida. ☆ Árni Johnson frá Ashern fór til Vaneouver á þriðjudaginn í fyrri viku í heimsókn til barna sinna, er þar eru búsett; mun hann verða um tvo mánuði 1 ferðinni; með honum fóru sonur hans og tengdadóttir, Mr. og Mrs. Skúli Johnson, ásamt tveim börnum þeirra hjóna, en þessi fjölskylda hefir dvalið hér um slóðir síðan í janúar í heim- sókn til vina og vandamanna. ☆ Mrs. Kristjana Nordal, Gimli, Man., lézt á miðvikudaginn 12. marz í Johnson Memorial sjúkra -húsinu þar í bæ. Hún var 62 ára að aldri og hafði búið í þessu landi í 48 ár. Hún lætur eftir sig eiginmann sinn, Hermann; einn son, Jóhannes, í Victoria, B.C. og tvö barnabörn. Hús- kveðja fór fram á heimilinu á mánudaginn og útförin frá lút- ersku kirkjunni í Selkirk; jarð- sett var í Mapleton lúterska grafreitnum. Séra Sigurður J Ólafsson jiarðsöng. ☆ Þann 4. marz voru gefin sam- an í hjónaband Edith May Hokonson, dóttir Mr. og Mrs. A. M. Hokonson frá Roconville, Sask., og Thorbergur Benjamíns- son, sonur Soffíu og Tómasar heit. Benjamínssonar frá Lund- ar. Giftingin fór fram á heimili brúðgumans. Séra Jóhann Fred- riksson gifti. ☆ Icelandic Canadian Club The regular monthly meeting of the Icelandic Canadian club will be held Monday evening, March 24, in the lower auditor- ium of the First Federated church. A short business meet- ing will start at 8.15 p.m. with the program commencing at 9.00. Walter Lárusson who recently visited Iceland and the contin- ent of Europe will give an ad- dress on “Iceland and the Ice- landic Community of London.” June Elliston and Florence Cle- mentson will entertain with ac- cordian duets. There will be a trained group from the Winni- peg Normal school demonstrat- ing square dancing, to be fol- lowed by a gay social, with folk dancing and refreshments. Laugardagsskóli Þjóðræknisfélagsins verður I Sambandskirkjunni á Banning Str. næsta laugardag, 22. marz, og það sem eftir er af skólahald- inu. Byrjar kl. 10 f. h. ☆ Ársþing Þjóðræknisfélags verður haldið í Winnipeg dagana 2., 3. og 4. júní næstkom- andi. ☆ The second Annual Folk Festi- val, which is held under the auspices of the Winnipeg Y. M. C. A., will take place in April. This Festival will present the music, songs and dances of twenty countries which are re- presented in Winnipeg by as many ethnic groups. The Festi- val will be produced and di- rected by Tom Taylor of the C.B.C. assisted by a committee made up of representatives of each of the ethnic groups; and will feature the mucical heri- tage of these many groups in a traditional setting. The purpose of the Festival is to promote a feeling of appre- ciation and understanding among the many nationalities who make their home in Win- nipeg. Because of the inter- national structure of the Y. M. C. A. it has served as a suitable sponsor for this kind of activity. The Folk Festival will be held in the Playhouse Theatre on Monday and Tuesday, April 21st and 22nd. ☆ Mrs. Carl J. Olson fór fyrir nokkrum vikum suður til Lin- coln, Nebraska en þar skipar hún embætti sem Parish Secre- tary við Grace Evangelical Lutheran Church, er maður hennar, séra Carl heitinn Olson, þjónaði um langt skeið. ☆ Miss Lauga Geir kenslukona frá Mountain, N.D., sem dvalið hefir hér í borg sér til heilsu- bótar undanfarinn hálfsmánað- artíma, lagði af stað heimleiðis ! í gær. : ☆ Miss Helga Agnes Sigurdson, píanóleikarinn ágæti, sem um nokkur undanfarin ár hefir dvalið í New York, lék með hljómsveit og tenórsöngvara í Columbia University á sunnu- dagskveldið; hún mun og halda tvær hljómlistarsamkomur, aðra í apríl og hina í maí næstkom- andi. Hún kemur væntanlega heim í sumar ásamt systur sinni, Louise, hjúkrunarkonu. ☆ Skautasamkomur. Á laugardaginn I. marz sóttu yfir 11 hundruð manns skauta- samkomuna (Ice Carnival), sem haldin var í Gimli Memorial Rink. Drotning dagsins var Miss Helga Peterson, Gimli, Man.; Hon. N. Greenlay, atvinnu- málaráðgjafi Manitobastjórnar krýndi hana; Mr. B. Egilson, bæjarstjóri á Gimli flutti stutta ræðu og síðan fóru fram skauta- sýningar í 2Vz kl.st. og tóku 57 piltar og stúlkur þátt í þeim. Hafði verið fenginn kunnáttu- maður frá Winnipeg, Mr. Eric Abbott, til að æfa það í skauta- list og þótti furðu gegna hve flestum tókst vel, þrátt fyrir stuttan undirbúning. Þær ungfrúrnar Joan Berg- man og Frances Abbot, sem kunnar eru um alt landið fyrir skautalist sína, komu þarna fram og var fagnað vel. Skautasalurinn var fagurlega skreyttur og hafði Mr. Valdi Árnason, verzlunarmaður hjá Self-Serve litið eftir því. — Á laugardaginn 15. marz fór fram önnur meiriháttar skauta- samkoma (Carnival) í hinni stóru skautahöll í Riverton. Miss Myrtle Hurst, dóttir Mr. og Mrs. Gordon Hurst var hlutskörpust í drotningar-kosningunni, en hún var fulltrúi fiskimanna. — Margt skautafólk frá Winnipeg Winter Club skemti á þessari samkomu. Nánari fréttir hafa ekki enn borist af þessjum við- burði aðrar en þær, að aðsókn var geisimikil og skemtunin þótti ágæt. ☆ Heimili þeirra Mr. og Mrs. Charles Mercer, Hecla, Man., brann til kaldra kola fyrir nokkrum vikum. Flestum hús- gögnunum var bjygað úr eldin- um; fyrir drengilega aðstoð byggðarbúa eru þau nú búin að koma sér allvel fyrir aftur. ☆ Á þriðjudaginn hafði kvenna- nefndin, sem styrkir Winnipeg Symphony Orchestra kaffiboð í Beaver Hall hjá Hudson Bay. Þar voru á boðstólum réttir frá 23 þjóðarbrotum, sem hér búa í borginni; íslenzku réttirnir voru vínarterta, skyr og pönnukökur. ☆ Þann 3. febrúar síðast. lézt eftir mánaðarlegu að Quill Lake, Sask., Mrs. Pálína Freemans- son 84 ára aðaldri, hin mesta sæmdarkona; hún var jarðsung- in að viðstöddu fjölmenni þrátt fyrir óhagstætt veðurfar frá United Church að Quill Lake. Hin látna lætur eftir sið eina dóttur, Mrs. R. B. Press að Kelvington, Sask., og fjóra sonu, Björgvin og Vilhjálm á Islandi og Jón og Þorvald í heimhúsum; þessarar mætu konu verður frekar minst síðar. ☆ Gömul skýrsla finst. Þegar verið var að rífa niður gamla samkomuhúsið í Selkirk, sem fyrrum var fiskiklak, fanst gamalt bréf dagsett 24. janúar 1891 ,til fiskiveiða umsjónar- mannsins í Winnipeg. Það var frá Stefáni Jónssyni, Hecla, Man. (Hann bjó á Jónsnesi í Mikley, var faðir Kjartans skip- stjóra og þeirra systkina). Ste- fán var um skeið eftirlitsmaður fiskiveiða við Winnipegvatn. Bréfið er skýrsla um fiskiveið- arnar árið 1890 á verstöðvunum frá Húsavík til Stóratanga (Big Grindstone Point). Ber hún með sér hve geysimikið þessi at- vinnuvegur hefir aukist á síðast- liðnum 60 árum. Á ofangreindu svæði var afl- inn 476,110 pund og söluverðið að meðaltali 1.09 cents er nam $5,183. 1950—’51 var aflinn á vatninu 6,778,900 pund; söluverð að meðaltali 15.62 cents pundið; alls $1,059,026. Árið 1890 seldist hvítfiskur fyrir 3,5 cents pundið; pickeral 2cents; pike og tullibee 1 cents; ruslfiskur % cent. Hér fer á eftir kafli úr bréfinu: „109 menn fiska á þessu svæði (frá Húsavík til Stóratanga og við Dýrey, Svartey og Mikley) á hverju ári, og eru þeir flestir búendur mað fram ströndinni; þeir hafa 96 báta og 10,930 faðma af netum; bátarnir allir eru $940 virði en netin $1000 virði. Flestir bátanna eru litlir róðrarbátar; einn maður á hverj- um, er fiskar skamt frá landi og notar fáein net. Aðeins einn bátur með fjögra manna áhöfn lagði fyrir hvítfisk síðastliðið sumar; aflinn nam 12,000 pund- um. Hinn hvítfiskurinn var veiddur undir ís. í lok hvítfisksvertíðarinnar ferðaðist ég um mitt eftirlits- ^væði og komst að raun um, að fiskiveiðalögunum var alls stað- ar nákvæmlega framfylgt.“ Bréfið sýnir að þá (1890) hafi fiskiútgerð — bátur og net kost- að hvern fiskimann tæplega $20, en nú er talið að úthaldið fyrir hvern fiskimann komi upp á $2,300. Árið 1890 var mest af fiskinum selt í Selkirk og ofurlítið í Win- nipeg; hann var dreginn á hest- um til þessara staða. Comfortex the new sensation for the modern girl and woman. Call Lilly Malihews, 310 Power Bldg., Ph. 927 880 or evenings, 38 711. Fyrir síðustu helgi var afli báta frá Stykkishólmi nokk- uð að glæðast, og virðist sem koma væri á miðin ganga af góðum fiski. En bátarnir sátu skamma stund A meeting of the W. A. First Lutheran Church will be held in the church parlors next Tues- day, March 25th at 2.30 p.m. ☆ Mrs. G. Finnbogason fór þessa viku til Hamilton, Ontario í heimsókn til sonar síns og fjöl- skyldu hans, og verður í burtu í mánaðartíma. ☆ María Nelson, kona Thorlaks Nelson á Lundar, andaðist þann 18. þ. m. Jarðarförin fer fram að Lundar kl. 2 næstkomandi laugardag. ☆ Litmyndir frá íslandi. Ljósmyndir í litum af fögrum og einkennilegum stöðum á ís- landi, einkum frá Vestmanna- eyjum, fást hjá Björnsson Book Store, 702 Sargent Ave. Þessar myndir er uteknar af Gísla F. Jónssyni frá Vestmannaeyjum, en hann hefir getið sér mikinn orðstír fyrir myndatökulist sína. Verðið er $2.00 fyrir mynd 7”x9” á stærð en $4.00 fyrir mynd Il%”xl5” á stærð. ☆ COOK BOOK Matreiðslubók, sem Dorcasfé- lag Fyrsta lúterska safnaðar lét undirbúa og gaf út; þegar þess er gætt, hve bókin er frábærlega vönduð að efni og ytri frágangi, er það undrunarefni hve ódýr hún er; kostar aðeins $1.50 að viðbættu 15 centa burðargjaldi. Pantanir, ásamt andvirði, sendist: Mrs. R. G. Pollock, 708 Banning St. Winnipeg, Sími 36 603 Miss Ruth Bárdal, 5 — 54 Donald St. Winnipeg. Sími 929 037 ☆ KVÖLDVAKA sem Snæbjörn Jónsson, bók- sali í Reykjavík, gefur út, fimm eintök, fást til kaups á skrifstofu Columbia Press Ltd. — Þetta er að þessum fiski, því að er- lendir togarar hafa nú þyrpzt á þetta svæði, svo að bátarnir komast ekki að með veiðarfæri sín. Fiskislóðir þessar eru djúpt í bugtinni við svonefndan Álkant. Sækja bátar frá Grundarfirði og Flatey á þessi sömu mið, en verða nú að horfa á hina erlendu togara sitja að aflanum, þar sem fiskilegast er, af ótta við að missa ella veiðarfæri sín, en leggja sjálfir á aðra staði, þar sem dagaflinn er ekki nema þrjár og í hæsta lagi fjórar lestir. Hinir erlendu togarar virðast fylgjast mjög vel með því, hvar bátarnir afla bezt og hraða sér á þau mið. Þessi sama saga gerð- ist í fyrravetur, og verða þannig landsmenn að flýja sín eigin mið fyrir útlendingunum. Fiskimenn vestra bíða því með mikilli óþreyju eftir því, að hin nýja landhelgi verði sett, svo að unnt verði að stemma stigu við ágengni togaranna og tryggja fiskibátunum frið til að veiða á miðum sínum. MESSU BOÐ Fyrsta Lúterska Kirkja Séra Valdimar J. Eylanda. Heimili 686 Banning Street. Sími 30 744. Guðsþjónustur á hverjum sunnudegi: Á ensku kl. 11 f. h. Á íslenzku kl. 7 e. h. ☆ Lúterska kirkjan í Selkirk Sunnud. 23. marz. Ensk messa kl. 11 árd. Sunnudagaskóli á hádegi. íslenzk messssa kl. 7 síðd. misserisrit, afar vandað að frá- gangi og efnisvali. Árgangurinn, 2 hefti, kostar $2.00. Peningar fylgi pöntun. Messað um föstuna á miðviku- dagskvöldum kl. 7.30. Allir boðnir velkomnir. S. Ólafsson Quality Required in the Milling Industry About 300,000 to 500,000 million bushels of barley are used annually in Canada in the milling industry. In addition to this, Canada has been exporting around 5 million bushels to Japan and other oriental countries, where the pearled barley is used as an admixture with rice in the main food of these peoples. In the milling industry the first process is the removal of the hull; the resultant product is known as pot and pearl barley. To prevent as much loss as possible in the milling process, the kernels should be imiform in size and with a shallow crease. Therefore, the two-row barleys have always been preferred in this industry. In most sections of the Prairies. Hannchen has been the variety used. In recent years the export to Japan has taken large quantities of the Compana barley which is grown on dry land in southem Alberta. In order to produce a nice white pearl, barleys with a white aleurone are the best suited. The crop should be thoroughly matured before harvesting and threshed before it has become discolored by the rains. Briefly, the require- ment is to have a plump, shallow creased two-row barley that is clean and bright. For further information write to BARLEY IMPROVEMENT INSTITUTE 206 Grain Exchange Building, Winnipeg Eighth in series of advertisements. Clip for scrap book. This space contributed. by SHEA’S WINNIPEG BREWERY LIMITED MD-308

x

Lögberg

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Lögberg
https://timarit.is/publication/132

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.