Lögberg - 27.03.1952, Blaðsíða 8

Lögberg - 27.03.1952, Blaðsíða 8
8 LÖGBERG, FIMTUDAGINN, 27. MARZ, 1952 Úr borg og bygð COOK BOOK Matreiðslubók, sem Dorcasfé- lag Fyrsta lúterska safnaðar lét undirbúa og gaf út; þegar þess er gætt, hve bókin er frábærlega vönduð að efni og ytri frágangi, er það undrunarefni hve ódýr hún er; kostar aðeins $1.50 að viðbættu 15 centa burðargjaldi. Pantanir, ásamt andvirði, sendist: Mrs. R. G. Pollock, 708 Banning St. Winnipeg, Sími 36 603 Miss Ruth Bárdal, 5 — 54 Donald St. Winnipeg. Sími 929 037 ☆ Lilmyndir frá íslandi. Ljósmyndir í litum af fögrum og einkennilegum stöðum' á Is- landi, einkum frá Vestmanna- eyjum, fást hjá Björnsson Book Store, 702 Sargent Ave. Þessar myndir eru teknar af Gísla F. Johnsen frá Vestmannaeyjum, en hann hefir getið sér mikinn orðstír fyrir myndatökulist sína. Verðið er $2.00 fyrir mynd 7”x9” á stærð en $4.00 fyrir mynd IIV2”xl5” á stærð. ☆ KVÖLDVAKA sem Snæbjörn Jónsson, bók- sali í Reykjavík, gef«r út, fimm eintök, fást til kaups á skrifstofu Columbia Press Ltd. — Þetta er misserisrit, afar vandað að frá- gangi og efnisvali. Árgangurinn, 2 hefti, kostar $2.00. Peningar fylgi pöntun. ☆ Gefin saman í hjónaband í Selkirk, Man., þann 20. marz, Einar Frederick Guttormsson, Libou, Mantoba, og Caroline Hunnie, sama staðar. Við giftinguna aðstoðuðu: Miss Florence Eileen Guttorms- son og Emil August Anderson. Giftingin var framkvæmd af séra Sigurði Ólafssyni, á prestssetr- inu. ☆ Kvenfélög Fyrsta lúterska safnaðar eru að hlutast til um undirbúning sölu á heimatil- búnum mat, þar sem einnig verður um hönd haft Silver Tea, þann 10. apríl næstkomandi í Eaton’s Assembly Hall, til styrktar við Sunrise Lutheran Camp og verður þar um marg- vísleg kjörkaup að ræða; nánari umsögn síðar. ☆ Þeir Mr. Ari Johnson og Mr. G. O. Einarsson skáld frá. Ár- borg, voru staddir í borginni í byrjun vikunnar. ☆ Mrs. Gerða Ólafsson kom heim á föstudaginn eftir all- langa dvöl hjá dóttur sinni og tengdasyni, Dr. og Mrs. A. W. Leppman í Providence, Rhode Island. Meðan hún var hjá þeim, fæddist þeim hjónum dóttir og var henni gefið nafnið Kareen Gerða. ☆ Fundur í Stukunni HEKLU I.O.G.T. næstkomandi þriðju- dagskvöld á venjulegum stað og tíma. Guðlaugur Ólafsson varð bráðkvaddur á laugardaginn, 22. marz; hann var þá staddur í heimsókn hjá bróður sínum, Bjarna, í Dafoe, Sask. Hann var fæddur í Selkirk 1888. Foreldrar hans voru Jóhannes Ólafsson og kona hans Margrét, ættuð úr Núpdalstungu. Hann fluttist til Dafoe, Sask., árið 1906 og bjó þar í 40 ár, en fluttist til Winni- peg árið 1946. Auk ekkjunnar, Helgu, lætur hann eftir sig einn son, Kjartan; fjórar dætur, Helgu, Mrs. P. Hublet; Fjólu, Mrs. J. Nickolas; Florence, Mrs. Wm. Wagar; Kathleen og 4 barnabörn, öll búsett í Winni- peg; ennfremur ofannefndan bróður. Jarðarförin fór fram á þriðju- daginn frá íslenzku kirkjunni í Wynyard, Sask. Séra Philip M. Pétursson jarðsöng. ☆ Einar Helgason frá Prince Rupert, sonur Mr. og Mrs. Jón- atan Helgason, hefir dvalið hér og í Nýja-lslandi síðan í nóvem- ber í heimsókn hjá skyldfólki og vinum; hann fór heim síðast- liðna viku. ☆ Séra Jóhann Fredricksson prestur að Lundar hefir verið kvaddur til prestsþjónustu í Argylebygð og mun því á sín- um tíma flytja til Glenboro. ☆ Á föstudaginn var haldinn fjölmennur fiskimannafundur á Gimli; sóttu yfir 80 fiskimenn fundinn. Þeir voru aðallega frá Gimli, Árnes, Hnausa, Riverton og Hecla. Á þessu svæði hafa tvær vertíðir brugðist, haustver- tíðin og vetrarvertíðin. Ofan á þetta bættist, að stjórnareftir- litsmenn fiskiveiðanna tóku af þeim í vetur mörg þúsund doll- ara virði af netum, er þeir kváðu hafa ólöglega möskvastærð. — Báru fiskimenn það fram á fund- inum, að sum af þessum netum, sem tekin voru, hafi verið talin lögleg árið áður. Nefnd var kos- in til að ræða um þetta mál við fiskimáladeiíd stjórnarinnar. Dr. S. O. Thompson, fylkis- þingmaður var fundarstjóri. ☆ Nýlega barst bréf frá Miss Thoru Ásgeirsson, píanóleikara, er stundar nám í París á Frakk- landi; lætur hún hið bezta af dvöl sinni þar og stundar námið af kappi. Hún hefir kynst þar þó nokkuð mörgum íslending- um aðallega í boðum hjá sendi- herranum Pétri Benediktssyni og konsúlnum Henrik Björns- syni; hefir margt af því fólki verið námsfólk frá íslandi. Fyr- ir tilstilli hr. Daða Hjörvar, er útvarpar fréttum til íslands frá U. N. O. lék hún inn á hljóm- plötur, sem sendar voru til Is- lands og spilaðar í útvarpinu þar. Thoru langar til að dvelja annað ár í París og heimsækja síðan ættland sitt áður en hún kemur heim. Hún sendir öllum vinum sínum hér alúðarkveðjur og þakkar þeim og öllum þeim félagssamtökum hér, er styrktu hana á einn eða annan hátt til þessarar farar. Bréfið í heild birtist í næsta hefti Icelandic Canadian ritsins. Why . . . V IT PAYS TO SHOP AT EATON’S • EATON Service—Efficient and friendly! • EATON Value—Obtained by buying wisely and in quantity! • EATON Qualily—Guaranteed Satisfactory or money refunded! • EATON Selection—Broad, varied, seasonable! *T. EATON C?,m,ted Þjóðminjasafnsbyggmgm kostaði rúmlega 7,2 milljónir króna máls á fundi blaðamanna í gær. Færði hann próf. Alexander Jó- hannessyni þakkir fyrir vel unnin störf. Minntist hann í því sambandi á hve brýna nauðsyn hafi borið til að Þjóðminjasafns- byggingin kæmist upp. Sagði hann frá hve hann hefði alla tíð óttast að safnið yrði eldi að bráð í bókasafnsbyggingunni við Hverfisgötu. Gat þess, að Lands bankabyggingin brann 1915, þá hefði safnið nýlega verið flutt af loftinu þar í háaloftið í bóka- safriinu. Ef eldur hefði komið þar upp, hefði ekki verið mögu- legt að bjarga þaðan neinu af þessum menningarverðmætum. Hann sagði að ennþá væri mikil hætta á stórkostlegu tjóni í Landsbókasafninu og Þjóðskjala safninu, ef eldur kæmi upp á háaloftinu, væri svo illa gert, að það lekur hverjum dropa, ef þar þyrfti að slökkva eld. —Mbl., 24. febr. Hreindýr tekin í hús með fé ó Austfjörðum og fó hey og mjólk Dónarfregn Á milli jóla og nýárs s.l. and- aðist í Los Angeles, California, Þorsteinn Einarsson 65 ára að aldri; hann var fæddur í Gröf í Húnavatnssýslu, en vestur um haf fluttist hann með foreldrum sínum hinum merku landnáms- hjónum, Indriða Einarssyni og Elinborgu Þorsteinsdóttur, til North Dakota. Kvæntur var hann Soffíu Berndsen. Einka- dóttir þeirra, Anna Passler, er búsett í Los Angeles. Þorsteinn átti við þrálát veik- indi að stríða árum saman, sem að hann bar með mikilli karl- mensku og jafnaðargeði — enda góðum gáfum gæddur. Útför hans fór fram frá litlu blóma kirkjunni í Forest Lawn Memorial Park í Glendale, California, og var bæði fjölmenn og virðuleg. Auk konu sinnar og dóttur og ( dóttursonar, Kenneth Thor- steins, eru þessi systkini hans á lífi: Emilía Ortner og Björn í Los Angeles, Óli Bergman í Cavalier, N.D. og Teitur í Detroit, Mich. Skúli Bjarnason, M ESSU BOÐ Fyrsta Lúterska Kirkja Séra Valdimar J. Eylands. Heimili 686 Banning Street. Sími 30 744. Guðsþjónustur á hverjum sunnudegi: Á ensku kl. 11 f. h. Á íslenzku kl. 7 e. h. ☆ Lúterska kirkjan í Selkirk Sunnud. 30. marz. Ensk messa kl. 11 árd. Sunnudagaskóli kl. 12 Ensk messa kl. 7 síðd. Fólk boðið velkomið. S. Ólafsson ☆ J. Ragnar Johnson, Q.C. frá Toronto og vararæðismaður ís- lands þar í borginni kom hingað um helgina vegna veikinda föður síns, Finns Johnsonar, sem liggur hér á Almenna sjúkrahús- inu, þar sem hann gekk undir uppskurð fyrir nokkru. ☆ Mr. G. J. Oleson, lögreglu- dómari frá Glenboro, er staddur í borginni þessa dagana. SUGAR-GIANT GROUND CHERRY An entirely new type ol the popular Ground Cherry, but a jumbo tn size; richer and sweet- er. Grows from seed the first year and pro- duces an abundance of golden yellow fruits up to 2% inches in dia- ineter 11 k e medium tomatoes in papery husks. Take littlfc garden space. Make delicious pies, preserves and marmalades. Quick, early, thrives everywhere. Be sure to enjoy this valuable new fruit in your garden this season. Pkt. 25c postpaid. F R E E OUR BIG 1952 SEED AND NUBSEBY BOOK Byggingarkostnaður á hvern íeningsm. aðeins kr. 386,10 Byggingarnefndin hefir afhent húsið I fyrrakvöld afhenti bygg- inganefnd Þjóðmingjasafnsins menntamálaráðherra bygging- una með bréfi. Voru þá liðin tæplega 6 ár frá því að byrjað var að grafa fyrir byggingunni, sem er eitt veglegasta hús lands- ins. Þjóðminjasafnsbyggingin kostaði alls kr. 7.238.582.96. — Byggingin er 18.748 teningsm. og varð kostnaðurinn á hvern tengingsmetra kr. 380.10, sem er mjög lágt miðað við núverandi byggingarkostnað. Bygginganefndina s k i p u ð u próf. Alexander Jóhannesson, formaður, Matthías Þórðarson, Valtýr Stefánsson, Kristján Eld- járn og Kristinn Andrésson. Eitt fyrsta verk nefndarinnar var að ráða arkitektana Sigurð Guðmundsson og Eirík Einars- son til þess að gera uppdrætti að byggingunni. Hafizt handa 1946. Fyrsta fjárhæð til Þjóðminja- safnsbyggingarinnar var veitt á fjárlögum ársins 1945, nam sú upphæð 3 millj. kr. Að tillögum byggingarnefndar var talið æski legt að hin fyrirhugaða bygging yrði stækkuð að allt að einum fjórða. Ríkisstjórnin samþykkti þetta með öllum greiddum at- kvæðum ráðherranna og hækk- aði fjárveitinguna um 1 millj- ón kr. Vorið 1946 hófst byggingar- vinnan. Ýmsir erfiðleikar urðu á vegi svo sem það, að verk- smiðja sú í Bretlandi, sem tekið hafði að sér að sjá um hitalögn- ina, varð gjaldþrota og fleira mætti telja. Byggingarkostnaðurinn. Heildarkostnaður við bygg- ingu hússins varð, sem fyrr segir, kr. 7.238.582.96. Skiptist hann í stórum dráttum þannig, að greiddar voru í vinnulaun 3.1 millj. kr., fyrir byggingaefni 1.2 millj. kr., ljós og raflögn rúmlega 500 þús. kr., dúkar og málning 415 þús. kr. Þjóðminja- safnið er hitað upp með geisla- hitun, sem er alldýr í uppsetn- ingu, en á að vera 30% ódýrari í rekstri en venjulegar mið- stöðvarlaganir. Kostaði hún 1,1 millj. kr. Byggingameistarar. Byggingameistarar voru þeir Sigurður Jónsson múarameist- ari og Snorri Halldórsson tré- smíðameistari. Miðstöðvarlögn, niðursetningu hreinlætistækja og aðra slíka vinnu annaðist Helgi Guðmundsson pípulagn- ingameistari. Gísli Halldórsson arkitekt útvegaði geislahitunar- tæki þau, er fengin voru til byggingarinnar. Jón Ólafsson rafvirkjameistari annaðist allar ljósa- og aðrar raflagnir. Máln- ingu annaðist Ósvaldur Knud- sen og Daníel Þorkelsson mál- arameistarar. Dúka alla og kork á gólf lagði Valur Einarsson veggfóðrarameistari. Kopar á þak sá Nýja Blikksmiðjan um, einnig allar loftræstingaleiðslur og annað er að blikksmíði laut. Úlvegun lánsfjár. í sambandi við byggingar- kostnaðinn, sem óhjákvæmilega fór nokkuð fram úr áætlun, vegna síhækkandi tilkostnaðar og verðfalls krónunnar, varð ekki hjá því komist að taka að láni allmiklar fjárupphæðir. Ekki varð um frekara framlag beint úr ríkissjóði að ræða, en orðið var, en ríkisstjórin bauðst til að ganga í ábyrgð fýrir nefnd ina, gæti hún útvegað fé. Lánsútvegunin mæddi einkum á formanni nefndarinnar, Alex- ander Jóhannessyni. Sagði dr. Matthías Þórðarson, að hann teldi engan mann hafa verið betri talsmann um lánsfjárút- vegun en próf. Alexander. Fjár- hæð sú, sem byggingarnefndin útvegaði, nam alls 2,8 milljón- um króna. Loks er svo þess að geta, að á árinu 1951 voru veitt- ar 550 þús. kr. til greiðslu á byggingaskuldum og á þessa árs fjárlögum eru 200 þús. kr. veitt- ar í þessu skyni. — Við höfum nú lokið við greiðslu allra reikninga í sam- bandi við bygginguna og teljum því hlutverki okkar lokið, sagði próf. Alexander. Þó enn muni all-langur tími líða unz safnið verður fullbúið, verður að ganga frá safnmunum til sýningar. En það mun þjóðminjavörður ann- ast. Matthías Þórðarson, hinn ný- kjörni heiðursdoktor, tók til Hreintarfur náðist á sundi í bát á Berufirði, tveir á gjöf á Eyjólfsstöðum. Austur við Berufjörð hafa menn eignazt ný húsdýr. Á tveimur bæjum þar eystra eru nú hreindýr í húsi og þeim gefin mjólk og hey. Una þau vel hag sínum, þótt eldið hafi fáa daga staðið, en annars eru hreindýr mjög mannfælin, enda lengst af langt frá mannabyggðum. TIL FJALLA upp af Austfjörð- um er nú víða hart í ári fyrir hreindýrin og hafa þau talsvert sótt til byggða úr sveltinu og harðindunum hið efra. Fyrst gefið úii. Niðri á fjörðunum er snjólétt. 1 Berufirði, þar sem hreindýrin þrjú eru á gjöf, er jörð alveg auð í byggð, en mikill snjór til fjalla. Fyrir nokkrum dögum. komu tvö hreindýr í byggð og heim undir bæ að Eyjólfsstöðum í Fossárdal. Var þeim gefið úti, og urðu þau spök, eftir því sem hreindýr verða. Dag einn var þeim komið í hús, þar sem þau eru alin með kindunum og fá kjarngott hey og spenvolga ný- mjólk kvölds og morgna. Eliur uppi á bát. Einkennilegri er þó sagan um hreindýrið, sem komið er á gjöf í Berufirði. í fyrradag áttu tveir menn leið þar með sjó fram og gengu þá allt í einu fram á hreintarf, sem var að snuðra niðri í flæðar- málinu. Þegar hann varð mannaferða var, brá honum heldur en ekki, og hljóp hann í ofboðinu út í sjóinn og synti út á fjörðinn, djörfum og kraftmiklum sund- tökum. Mennirnir tveir bruggðu skjótt við. Bjuggust þeir við að hrein- dýrið myndi drukkna á sundinu og hröðuðu ferð sinni að bát, sem var á öðrum stað við sjóinn. s Réru þeir nú allt hvað þeir máttu út á fjörðinni á eftir dýr- inu og komust loks í námunda við það. En hreindýrið varð bátsins vart. Það var lítt þreytt, og náðu bátverjar ekki hrein- tarfinum fyrr en eftir allsnarp- an eltingaleik á Berufirðinum. Strax farinn að spekjasl. Þegar þeir félagar náðu tarfi, tóku þeir hann móðan og að- framkominn upp í bátinn til sín og reru að landi. Var hann nú tekinn í hús í Berufirði og gert gott og hefir síðan verið alinn inni á nýmjólk og töðu. Unir hann hag sínum hið bezta og eru ekki horfur á öðru en hreintarfurinn, sem brá svo mjög í brún við fyrstu kynni sín af mönnunum verði hinn spakasti á hinum austfirzka sveitabæ við Berufjörð. —TIMINN, 28. febr. Einu sinni, endur fyrir löngu, fór fram brúðkaup í sveit á ís- landi. — Brúðhjónin sátu á brúðarbekknum og allir gestirn- ir í kringum þau og dáðust að, hve ástfangin þau voru hvort í öðru. Allt í einu varð brúðgum- anum það á, að hann leysti vind helzt til of hátt. Allir litu á hann og brúðurinn roðnaði upp í hárs- rætur. Þá sagði brúðguminn: — Það er engin synd, þótt búkur- inn leysi vind! IT PAVS TO DEHORN CATTLE % Avold the Marketing Penalty Plan Dehorning Campaigns—Use Caustic for Young Calves. Consult your Agricultural Representative or wriie io The Live Siock Branch. TREAT CATTLE FOR WARBLES Secure Warble Fly Powder through your Municipal Office. Get started on this job now — It will pay dividends. CONTROL CONTAGIOUS ABORTION (Bang's Disease) Plan vaccination campaigns in your district. Consult a regis- tered veterinarian and arrange for his services. A grant of $1.00 per head payable on all calves vaccinated. Improve The Quality Of Your Cattle By Using a Pure Bred Bull Department provides 20% <pf Purchase Price (Maximum grant not to exceed $80.00). Policy available to owners of grade herds only. ANNUAL SALES Due to the outbreak of Foot and Mouth Disease in Saskatche- wan, Association sales have been cancelled or postponed as follows: Horse Breeders’ Sales, Cancelled. Swine Breeders’ Bred Sow Sale, Cancelled. Cattle Breeders’ Bull Sale, Postponed until May 29, 1952. Prospective purchasers are invited to write the Live Stock Branch for listings of animals offered for sale and may arrange to purchase privately. For further particulars apply to the LIVE STOCK BRANCH Department of Agriculture LEGISLATIVE BLDG. WINNIPEG. MAN.

x

Lögberg

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Lögberg
https://timarit.is/publication/132

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.