Lögberg - 15.05.1952, Blaðsíða 4

Lögberg - 15.05.1952, Blaðsíða 4
4 LÖGBERG, FIMTUDAGINN, 15. MAÍ, 1952 Lögberg Gefið út hvern fimtudag af THE COLUMBIA PRESS LIMITED 695 SARGENT AVENUE, WINNIPEG, MANITOBA Utanáskrift ritstjórans: EDITOR LÖGBERG, 695 SARGENT AVENUE, WINNIPEG, MAN. PHONE 21804 Ritstjóri: EINAR P. JÓNSSON Verð $5.00 um árið — Borgist fyrirfram The “Lögberg” is printed and published by The Columbia Press Ltd. 695 Sargent Avenue, Winnipeg, Manitoba, Canada Authorized as Second Class Mail, Post Office Department, Ottawa Blindur er bóklaus maður Ofanskráð orð hafa sama gildi í dag eins og þau höfðu, er þau voru fyrst sögð; það, sem menn hugsuðu og sögðu, hugsa og segja, fegurst og ófegurst, lifir í bók- unum löngu eftir að höfundar þeirra hafa safnast til feðra sinna vegna þess að maðurinn er það, sem hann hugsar. Frá upphafi íslandsbygðar, fékk íslenzka þjóðin orð á sig fyrir lærdóm og bókvísi; ljóðið varð henni „langra kvelda jólaeldur“ og málsmenningin varð hennar sáluhjálp, er hún sigldi fram með Svörtuloftum erlendrar áþjánar, og vissi naumast áttaskil; en er á þolrif reyndi, komu fram á sjónarsviðið djarfir forustumenn, er ekki báðu afsökunar á sínum eigin uppruna, heldur fyltust eldmóði og baráttuhug, sann- færðir um sigurvissu *þess málstaðar, sem hvorki mölur né ryð fær grandað. Svo var eitt sinn mælt, að bókvitið yrði eigi látið í askana og þetta féll alveg í kram þeirra, sem höfðu magann fyrir sinn guð; en jafnvel þá, og vitaskuld löngu áður, var sú lífsskoðun að verki, er sannfærð var um, að maðurinn lifði ekki af einu saman brauði; að eitt- hvað hærra markmið biði framundan en það, að fylla munn og maga, þótt slíkt sé að vísu í samræmi við lífsins lög, geri menn sig ekki seka um ofát, er orsakað getur hvers konar kvilla, er í kjölfar slíks ófagnaðar sigla. Heilbrigður ættarmetnaður er hollur og sjálfsagð- ur, en nái gorgeirinn yfirhönd, er ekki við góðu að búast. Svo að segja daglega okkar á meðal, er mikið talað um þjóðrækni, ást á íslenzkri bókmenning og þar fram eftir götunum; þegar gesti frá íslandi ber að garði, er mjög um það kepst, að snerta klæðafald þeirra, og það jafnvel svo mjög, að flestum nema þeim „fáu útvöldu“, er bolað úti; þetta er ekki ávalt vegna sannrar þjóð- rækni eða ástar á íslenzkri bókmenningu, því tíðum eru þar önnur öfl að verki þar sem persónumetnaður- inn skipar hinn æðsta sess; drauga af þessari tegund þarf að kveða niður; fáment, og illu heilli tvístrað þjóð- arbrot má ekki við slíkum óheilla kynfylgjum, hvorki í dag né á morgun. Við tölum um þjóðrækni og við höldum þing, og þó er nú okkar andlega hag ekki betur komið en það, að við erum hættir að lesa; játað skal það, að íslenzkar bækur hér vestra séu dýrar og þar af leiðandi í raun- inni ekki öllum auðvelt að kaupa þær; þó eru nú enn fáanlegar hér góðar bækur, sem ekki kosta meira en flaska af brennivíni. Mætur íslendingur í þessari borg hefir árum sam- an rekið við tapi íslenzka bókaverzlun; fyrirtækjum, sem þannig er háttað um, lýkur altaf á einn veg. Eru íslendingar vestan hafs ásáttir um það, að þessi eini bókmentaliður milli þeirra sjálfra og stofnþjóðarinnar á Fróni falli niður? Við hælum okkur sjálfir og erum því auðsjáanlega ekki ávalt mótfallnir, að aðrir geri það líka. Getum við sæmdar okkar vegna verið án íslenzkrar bókaverzlun- ar ef við enn viljum teljast menn með mönnum, í stað þess að verða að nátttröllum? Vel mættum við enn minnast spaklegra orða séra Kjartans Helgasonar, er hann heimsótti okkur Vest- menn og lét svo ummælt í einni af hinum fögru ræðum sínum, að þá fyrst hefði íslenzki stofninn greitt að fullu landsskuld sína við lífið, er íslendingur og sannur mað- ur táknaði eitt og hið sama. í heimsókn t-il Bandaríkjanna Forsætisráðherra Svía, Tage Erlander, hefir ný- lega heimsótt Bandaríkin, og var honum hvarvetna vel fagnað sem sendiboða góðviljans; amerískir þegnar af sænskum stofni fögnuðu komu hans, en forsætisráð- herra lagði áherzlu á það, að stofnþjóðin fagnaði yfir hverjum þeim sigri og hverju því afreksverki, er af- komendur hennar ynnu í hinni voldugu vesturálfu heims; slíkt yrði báðum aðiljum til gagnkvæms styrks og sæmdarauka. Varðandi afstöðu Svía til heimsmálanna lét for- sætisráðherra þess getið, að þjóðinni væri fyrst og fremst umhugað um það, að gæta hlutleysis síns svo sem framast mætti verða og komast hjá þátttöku í ófriði í lengstu lög; á hinn bóginn væri sænska þjóðin á einu máli um það, að verja frelsi sitt með oddi og egg ef á hana yrði ráðist úr hvaða átt sem vera kynni, enda væri það fjarskylt norrænu eðli að láta kúga sig eða kyssa á vöndinn. Erlander forsætisráðherra kvað sænsku þjóðina hafa til taks fyrirvaralaust sex hundruð þúsundir vígra manna og tólf hundruð orustuflugvélar af nýjustu og fullkomnustu gerð. Svíþjóð, engu síður en aðrar þjóðir, yrði að vaka á verði framtíðarsjálfstæði sínu til öryggis. Því kemur ekki forsætisráðherra íslands hingað í kynnisför? Einn þeirra fóu Breta, sem Stalin þoldi í stríðinu, varð framkvæmdastjóri Atlantshafsbandalagsins Þrír urðu til að hafna boði um að gerast framkvæmda- stjóri Atlantshafsbandalagsins, þeir Oliver Franks, sendi- herra Breta í Washington, Lester Pearson, utanríkisráð- herra Kanada, og Gladwyn Jeb, fulltrúi Breta hjá Samdín- uðu þjóðunum. Við embættinu tók Ismay lávarður. A Mikilshátlar herforingi Mörgum létti, þegar kunnugt var, að Ismay hefði tekið starf- ann að sér, því að hann er mikils háttar maður á ýmsa lund. Það þótti líka mörgum hæfa, að til þessa embættis veldist maður með hernaðarreynslu að baki. Lávarðurinn er vel þekktur und- ir nafninu Ismay hershöfðingi. í hermálum hefir hann jafnan þótt tillögugóður, enda hafa ekki ómerkari menn en Roose- velt, Stalín, Churchill, Eisen- hower og Montgomery hlýtt á I orð hans með athygli, þegar hann hefir lýst skoðunum sínum. Vinur Churchills Ismay fæddist í Indlandi fyrir 64 árum. Þegar seinasta heims- styrjöld skall á, hafði hann gegnt hermennsku um allan heim, en það, sem mestu skipti raunar fyrir hann, var, að Churchill hafði fengið mætur á honum. Eftir 1930 setti Churchill sig aldrei úr færi að halda þrum- andi ræður yfir yfirvofandi hættu. — Bretar litu þá flestir á hann eins og furðuverk. Það væri þó sannarlega ástæðulaust að vera með hrakspár á þessum góðu árum, þegar mönnum leið svo ágætlega eftir að hafa geng- ið milli bols og höfuðs á efna- hagskreppum fyrri ára. Nú þótt- ust menn hafa unnið til þess að njóta lífsins í næði. Menn þurfa því ekki að furða sig á, þó að Churchill veitti þeim mönnum nokkra athygli, sem voru sama sinnis og hann og hikuðu ekki við að birta þær skoðanir almenningi. Einn þeirra var Ismay hershöfðingi. Á grundvelli þessarar stefnu hittust þeir og unnu samúð hvors annars. Þegar svo ófrið- urinn kom og Churchill var fenginn til að leysa Neville Chamberlain af hólmi, kvaddi hann Ismay til starfa fyrir stjórnina og skipaði hann her- ráðsforingja hennar. Skuggi forsætisráðherrans í þessu embætti féll það í hans hlut að hafa eftirlit með vopna- útbúnaðinum, samræma athafn- ir þjóðarinnar og heimsveldis-: ins í hermálum. En hann varð þó fyrst og fremst trúnaðarmað- ur og ráðunautur forsætisráð- herrans í hermálum, skuggi Churchills, var hann kallaður. En það var líka annað, sem skipaði þessum tveimur mönn- um saman. Churchill hefir allra manna mest yndi af góðum kímnisögum og græzkulausu gamni. í vinahópi hefir hann gaman af að segja sögur sínar og reykja yfir glasi af víni. Churchill dáðist ákaflega af kímnisögum Ismays og alltaf öðru hverju skjóta þær upp kollinum í minnýigum forsætis- réðherrans. Slalín þoldi hann Þegar Rússland og seinna Bandaríkin lentu í stríðinu, jókst verkahringur Ismays. Hans verk var að skýra hug- myndir Churchills og fyrirætl- anir fyrir foringjum banda- mannanna, enda komu þær að kalla heim við hans eigin. Hann var hinn mikli samninga maður og sýndi fljótlega hæfni sína til að samræma sjónarmið, sem í fljótu bragði virtust álls óskyld. Hann var í hópi þeirra fáu Breta, sem Stalín þoldi, og hann vann hylli og vináttu Eisenhowers. Það var engin til- viljun, *að Eisenhower talaði í síma við Ismay fyrstan manna 7. maí 1945, til að tilkynna: — Þjóðverjar hafa undirritað. Því er öllu lokið. Enginn vafi leikur á, að það var mikið áfall fyrir Ismay, að Churchill skyldi fara með ósigur út úr kosningunum 1945. En hann er skyldurækinn og hélt áfram starfi sínu undir stjórn Attlees. Hann fór ásamt Mountbatten lávarði til Indlands sem hern- aðarráðunautur seinasta vara- konungsins, en lífið hafði ekki sömu töfra, þegar Churchill kom hvergi nærri, svo að 1947 sagði hann af sér. „Ég hefi lifað Þökk sé blöðunum, sem hafa sagt frá andláti hennar og út- för. Eftir hér um bil 6 mánaða sjúkdómsstríð andaðist hún á heimili sínu, 519 Toronto St., 23. apríl (síðasta vetrardag). í októ- ber-mánuði varð hún fyrir nokkru áfalli, var flutt á sjúkra- hús, gekk þar undir uppskurð, og var þar mánaðartíma. Síðan var hún heima. Hún var um- vafin elskulegri umhyggju nán- ustu ástvina og fékk alla þá um- önnun, sem unt var að veita, en jarðneska hvíldin nálgaðist. Burtförin var mild og blíð, eins og þreytt barn væri að sofna. Sigþrúður sáluga var fædd 18. júní 1872 í Njarðvík (ekki Reykjavík eins og stóð í Win- nipeg-blöðunum) við Borgar- fjörð í Norður-Múlasýslu á- Is- landi. Foreldrar hennar voru þau hjónin Sigurður Jónsson, bóndi í Njarðvík og Margrét Einarsdóttir, merk hjón af góð- um ættum. Sigurður var sonar- sonur Jóns prests Brynjólfsson- ar á Eiðum í Eiðaþinghá, en Margrét var ættuð úr Breiðdal í Suður-Múlasýslu. Sigþrúður átti eina alsystur, Mrs. Unu Þórunni Líndal, í Winnipeg. Eftir lát fyrri konu sinnar kvæntist Sig- urður Hansínu Jóhannsdóttur, og eignuðust þau 7 börn. Af þeim eru á lífi: Mrs. E. Johnson og Mrs. H. Grant í Winnipeg; Mrs. E. Th. Eyjólfsson 1 Riverton, Man.: Mrs. Th. Kjartansson í Langruth, Man.; og tveir bræð- ur, Jón Sigurdson og Sam Sig- urdson í New Westminster í B.C. Fjölskyldan flutti vestur um haf árið 1893 og settist að við íslendingafljót í Nýja-íslandi, en eldri systurnar Sigþrúður og Una námu staðar í Winnipeg og fengu þar atvinnu. Árið 1902 giftist Sigþrúður Gunnari Goodman, og var heim- ili þeirra, að undanteknum þrem árum í Holland, Man., ávalt í Winnipeg. Hjónaband þeirra var samvinnuríkt og unaðslegt, þrungið sönnum kær- leika. Meðan ég þjónaði í Skjald- borgarsöfnuði í Winnipeg voru þau hjónin meðlimir þar, og börnin þeirra gengu á sunnu- dagaskóla vorn. Blessuð hjón og yndisleg börn. Allar þær endur- minningar eru ljúfar. Sorgin heimsótti þennan elsk- endahóp með láti Mr. Goodmans árið 1949; en Sigþrúður fór failega með þær breyttu ástæð- ur eins og annað á æfileiðinni. Hún var í nánu sambandi við börnin sín það sem eftir var hér- vistarinnar. Hún var jarðsungin af séra margt, og nú er tími kominn til að rita það hjá sér“. Von góðrar samvinnu En honum gafst ekki færi á að ljúka minningum sínum. Það var klukknahljómur í lofti. Churchill geystist fram á víg- völlinn og vann hálfan sigur í janúar 1951 og fullnaðarsigur í október. Það var Ismay mikils virði. Ekki liðu heldur margir dagar áður en Churchill sendi eftir honum og bauð honum að ger- ast samveldismálaráðherra. Al- drei í sögu Bretlands hafa jafn- margir ráðherranna verið einka- vinir forsætisráðherrans og nú. En Churchill lætur ekki standa á svarinu: „Ég hefi alltaf slægzt eftir vinfengi dugnaðarmann- anna, sem ég gæti átt samvinnu við í stjórnmálum.“ Ismay lávarður er einna dug- legastur og liprastur þeirra allra. Og menn veiti athygli hvernig hann kemst í nýju stöð- una: Churchill til annarar hand- ar, Eisenhower til hinnar. Og ef góð samvinna getur ekki orðið úr þessu, þá er hún víðs fjarri. —Mbl., 29. marz Rúnólfi Marteinssyni laugar- daginn, 26. apríl. Athöfnin fór fram í útfararstofu Bardals og í Brookside grafreit. Margt fólk var viðstatt á báðum stöðunum. Mr. Gunnar Erlendsson lék á píanó og Miss Inga Thorarinson söng Faðir vor (á ensku). Bæði málin, enska og íslenzka, voru notuð við kveðjumálin. Börn þeirra hjóna eru 4: tveir synir, Sigurður og Joseph, tvær dætur, Fjóla, Mrs. K. Osland, og Una Sigurlaug, Mrs. J. Capri, öll til heimilis í Winnipeg. — Barnabörn eru 8. Mrs. Goodman var í sannleika ágætis kona, fyrirmyndar eigin- kona og móðir, sem fúslega lagði alt í sölurnar fyrir sanna vel- ferð ástvina sinna. Hún var sannkristin kona með sterkar mætur á orði Guðs í Nýja Testa- mentinu og Passíusálmunum. Hún elskaði Guð af öllu hjarta og sýndi það í dygðaríku líferni. „Far þú í friði, friður Guðs þig blessi, hafðu þökk fyrir alt og alt. Gekst þú með Guði, Guð þér nú fylgi; hans dýrðarhnoss þú hljóta skalt.“ THE Canadian Citizenship Com mittee of the Welfare Council of Greater Winnipeg has plans under way for a Citizenship Day Ceremony to be held in the Law Amendments room in the Legis- lative Building in Winnipeg on Friday, May 23 next. The Canadian Citizenship Com mittee, which was organized a few years ago by Mrs. Robert McQueen, former Executive Di- rector of the Welfare Council of Greater Winnipeg, is a group of representatives from about forty volunteer organizations. T h e present officers are: Judge W. J. Lindal, Chairman; E. H. Morgan, Vice-Chairman, and Mrs. M. A. Fanaro, Secretary. The work of the committee is in the main di- rected to immigrants and their problems and is in four divisions under appropriate sub-comVnit- tees. These are as follows: Rec- reation and Social Contacts, Miss Irene Chapman; Education, Dr. A. S. R. Tweedie; Employment, Dean W. J. Maines; Welfare, Miss Marjorie L. Moore. Recently a special Citizenship Day Committee was formed for the purpose of arranging for a citizenship ceremony on May 23, GAMAN 0G ALVARA I Frúin: — Hvers vegna hafið þér ekki kveikt upp, það er kalt veður í dag? Vinnukonan: — Vegna þess að það eru engin kol til. Frúin: — Hvers vegna sögðuð þér það ekki í gær? Vinnukonan: — Vegna þess að það voru til kol I gær! Frúin (við franska vinnukonu sína): Viljið þér gjöra svo vel og fara fyrir mig út 1 búð og kaupa bók fyrir mig, sem heitir: „Hvernig á að vera sífellt ung og falleg.“ Vinnukonan: — Alveg sjálf- sagt, frú mín góð, og ég skal segja þeim að það sé mjög áríðandi! — Hefurðu hugmynd um, hvað varð af nýja kvöldkjólnum mínum? — Nei, en það var mölfluga að fljúga út úr fataskápnum þínum rétt í þessu. Hún: — Áður en við giftumst þá sagðir þú að ekkert mundi verða þér kærara en að hlusta á hina fallegu rödd mína allt kvöldið og nóttina með. Hann: — Þá datt mér aldrei í hug að ég mundi þurfa að gera það. Hann: — Fyrst við erum gift á annað borð, þá ætla ég að leyfa mér að benda á nokkra áber- andi galla við þig. Hún: — Það er alveg óþarfi, góði minn. Það er vegna þessara galla, sem ég gat ekki fengið betri mann heldur en þig. Hermaðurinn: — Vertu ekki að trufla mig. Vinur hans: — Hvað ertu að gera? Hermaðurinn: — Ég er að skrifa stúlkunni minni bréf. Vinurinn: — Og hvers vegna 'skrifarðu svona hægt? Hermaðurinn: — Vegna þess, að hún getur ekki lesið hratt! Járnbrautarlestin var að koma í smábæ í Bandaríkjunum, og farþegi nokkur sneri sér að þeim, sem sat við hlið hans, og sagði: Þekkið þér nokkuð til í þessum bæ? — Já, ég þekki bæinn vel. — Hvaða hótel ráðleggið þér mér að fara á? — Hótel Herra Smiths. — Hafið þér verið þar? — Nei, en ég hef verið á öllum hinum! which is the day selected two years ago by the Prime Minister, Rt. Hon. L. S. St. Laurent, for citizenship ceremonies in Canada. The Committee is composed of the following: Mrs. Max Wol- insky, Chairman; Mrs. John Allen, Mrs. L. J. Reycraft, Mrs. F. F. Kelly, Mrs. M. Brynicwi- ecki, Miss Mary Elizabets Sayer, J. Steinberg, T. Sasaki, Fraser Earle, A. F. Thompson, Dr. A. S. R. Tweedie, and the general chairman, vice-chairman and secretary. The speakers at the ceremony will be: Hon. R. F. McWilliams, the Lieutenant Governor; Hon. D. L. Campbell, Premier of Man- itoba; Mr. Justice J. B. Coyne, of the Court of Appeal; Hon. N. V. Bachynsky, the Speaker of the Legislative Assembly. Kaupið Lögberg MINNIN G ARORÐ: Mrs. Sigþrúður Goodman Rúnólfur Marteinsson Canadian Citizenship Day Ceremony To be Held in the Legislative Building

x

Lögberg

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Lögberg
https://timarit.is/publication/132

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.