Lögberg - 15.05.1952, Page 7

Lögberg - 15.05.1952, Page 7
X liOGBERG, FIMTUDAGIINíN. 15. MAÍ, 1952 7 Dr. ADAM RUTHERFORD: HARMAGEDDCN Oruslan á hinum mikla degi Drollins allhersjar árin 1955—1956 opinberuð í Pýramidanum mikla (Sieinbiblíunni) „Því að þeir eru djöfla-andar, sem-ganga út til konunga allrar heimsbyggðarinnar til að safna þeim saman til STRIÐSINS A HINUM MIKLA DEGI GUÐS HINS ALVALDA. — SJÁ ÉG KEM EINS OG ÞJÓFUR; sæll er sá sem vakir og varðveitir klæði sín.------- Og þeir söfnuðu þeim saman á þann stað, sem á hebresku kallast HARMAGEDON. Og sjöundi engillinn helti úr skál sinni yfir loftið, og raust mikil kom út úr musterinu, frá hásætinu og sagði: ÞAÐ ER Opinb. 16, 14,—17. FRAM KOMIÐ.“ Samkvæmt spádómum Biblí- unnar og Pýramídans mikla eru árin 1953—1956 tímabil hinna mestu þjóðfélagslegu, stjórn- málalegu og trúarlegu umskipta allra alda, og það eru þessi um- skifti, sem núverandi ringulreið heimsmálanna, og raunar öll rás viðburðanna siðan 1914, hefir stefnt að. Á þessum árum mun „þrengingin mikla“, sem talað er um í spádómunum, „orustan á hinum mikla degi Drottins alls herjar“ — Harmagedon — fara fram. Þetta mun verða hin mikla sprenging, sem þyrlar upp hinni gömlu skipan, en að lokum mun það, eigi að síður, reynast líknar- ráð við hinn hrjáða heim, undir- búningur betri tíma og hátíð- legt upphaf þúsundáraríkisins sjálfs. Tilgangurinn með þessu riti er hvorttveggja í senn: að bera fram sannanir í þessum málum og benda á, hvernig bú- ast skuli undir „hinn mikla dag“ og hver skylda vor er, eins og högum er háttað. Því hefir verið spáð, að yfir- standandi tímabili mundi ljúka með meiri „hörmungatíð“ en áður hefði þekkst. Spámaðurinn Daníel sagði það fyrir á 6. öld f. Kr. og síðan var það endur- tekið á 1. öld hins kristna tíma- bils, af Frelsaranum sjálfum, sem einnig lét svo um mælt, að annað eins myndi aldrei koma fyrir aftur. í Daníelsbók, 12. kap. 1. v., stendur: „Og það skal verða svo mikil hörmungatíð, að slík mun aldrei verið hafa frá því að þjóð varð til og allt til þess tíma.“ En Jesús segir: Því að þá mun verða svo mikil þrenging, að engin hefir þvílík verið frá upphafi heims allt til þessa, né heldur mun verða.“ (Matth. 24, 21.) Þessar hörmungar eru því myrkasta stund í sögu mann- kynsms. Gamalt máltæki segir: ! COPENHAGEN Bezta munntóbak heimsins „Dimmast er rétt fyrir dögun,“ og það sannar einnig saga heimsins, því að um leið og þessu tímabili lýkur með myrk- ustu stund allra alda, rennur upp dýrðlegasta tímabil, sem komið hefir. Skozka skáldið Ro- bert Burns lýsir afbragðs vel hví líkur regin munur er á núver- andi ástandi, sem hin illu yfir- ráð skapa, og því, sem verða mun á hinni dásamlegu öld, sem vér eigum í vændum. Um nú- tíðina segir skáldið: Harðúð manns við mann er böl, múgun lýða sorg og kvöl. En um dýrðardaga hins nýja tíma, sem nú er að nálgast, far- ast honum orð á þessa leið: „Þrátt fyrir allt og þrátt fyrir allt V mun þetta verða um heimsból allt, að maður manni bindist blítt með bróðurhendi þrátt fyrir allt.“ (Stgr. Thorst.) Það kemur hvað eftir annað fyrir þar sem Biblían talar um hina miklu hörmungatíð heims- ins, sem þessu tímabili ljúki með, að hún spáir um leið þeim dýrðartímum, sem á eftir komi. Sumstaðar er hvorttveggja í sömu setningunni, eins og t. d. hjá Haggai (2, 7.), þar sem Guð segir: „Ég mun hræra allar þjóðir, svo að gersemar allra þjóða skulu hingað koma . . .“ Annars staðar kemur það oft fyrir að eitt versið fjallar um hinar miklu hörmungar, en hið næsta um dýrðarástand það, sem hefjist strax á eftir. Sjá t. d. Zefania (3, 8.): „Bíðið mín þess vegna, segir Drottinn, þess dags, er ég rís upp sem vottur, því að það er mitt ásett ráð, að safna saman þjóðum og stefna saman konungsríkjum, til þess að út- hella yfir þá heift minni, allri minni brennandi reiði, því að fyrir eldi vandlætingar minnar skal allt landið verða eytt.“ En í næsta versi er áframhaldið svona: „Já, þá mun ég gefa þjóðunum nýjar hreinar varir, svo að þær ákalli allar nafn Drottins, þjóni honum einum.“ Einnig rekum við okkur oft á það, að þegar talað er um hinar miklu hörmungar í einhverjum kapítula Biblíunnar, þá er í næsta kapitula á eftir sagt frá dýrð þeirrar undraaldar^ sem á eftir komi. Sem dæmi um þetta má nefna Jesaja, 24. og 25 kapi- Business College Education In these modern times Business College Education is not only desirable but almost imperative. The demand íoj: Business College Educa- tion in industry and commerce is steadily s increasing from year to year. Commence Your Business TraintngImmediately! For Scholarships Consult THE COLUMBIA PRESS I.IMI I KI) PHONE 21 804 695 SARGENT AV '. wINNIPEG tula. í 24. kap. segir svo: „Sjá, Drottinn tæmir jörðina og eyðir hana, hann umhverfir ásjónu hennar og tvístrar íbúum henn- ar . . . jörðin viknar og fölnar, tignarmenni lýðsins á jörðu blikna. Jörðin vanhelgast undir fótum þeirra, sem á henni búa . . . þess vegna eyðir bölvan jörðunni og íbúar hennar gjalda, þess vegna farast íbúar jarðar- innar af hita og fáir menn verða eftir . . . jörðin riðar og iðar, jörðin skjögrar eins og drukkinn maður, hristist eins og smákofi, og misgjörð hennar mun liggja þungt á henni, og hún fellur og fær eigi risið upp aftur; og yfir hana mun renna sá dagur, er Drottinn mun hegna hersveit- um hæðanna á hæðum og kon- ungum jarðarinnar á jörðu (vers: 1., 3., 4., 5., 6., 19., 20., 21). En í næsta kapitula stendur: „Og hann mun afmá ' á þessu fjalli hulu þá, sem hylur alla lýði, og þann hjúp, sem breiddur er yfir allar þjóðir. Hann mun sigra dauðann og afmá hann, og Drottinn Guð mun þerra tárin af hverri ásjónu, og svívirðu lýðs síns mun hann nema burt af jörð allri, því að Drottinn hefir það talað. Á þeim degi mun sagt verða: Sjá, þessi er voi*Guð, vér höfum beðið hans, og hann mun frelsa oss, þessi er Drottinn, vér höfum beðið hans, og vér munum gleðjast og fagna yfir hjálpræði hans.“ (Vers 7.—9.) En svo kemur einnig fyrir að heill kapituli fjallar um hörm- ungar endalokanna, en næsti kapituli á eftir er eingöngu helgaður dýrð hins nýja tíma- bils, sem nú er í nánd. Hjá Jesaja 34. og 35. kap. eru dæmi um þetta. 34. kap. byrjar þannig: „Gangið nær þjóðir, svo að þér megið heyra! Hlýðið á, þér lýðir! Heyri það jörðin og allt, sem hann hefir alið, því að reiði Drottins er beint gegn öll- um þjóðum og heift hans gegn öllum herjum þeirra; hann hefir gereytt þeim öllum og ofurselt þá til slátrunar.“ En næsti kapi- tuli (35.) fjallar um það, sem kemur á eftir hinni miklu hörm- ungatíð, og er einn af yndisleg- ustu köflum Biblíunnar. Hann hljóðar svo: „Óbyggðir og afskekkt svæði skulu gleðjast, og eyðimörkin skal fagna og blómgast eins og rós. Þau skulu blómgast ríku- lega og fagna með gleði og söng. Vegsemd Libanons skal veitast þeim, prýði Karmels og Sarons, þau skulu fá að sjá vegsemd Drottins og prýði Guðs vors. Stælið hinar máttvana hendur og styrkið hin skjálfandi kné!“ Segið hinum ístöðulausu: „Verið hughraustir og óttist ekki! Sjá, Guð yðar kemur með hefndina og endurgjaldið. Hann mun koma og frelsa yður. Þá munu augu hinna blindu uppljúkast og eyru hinna dauðu opnast. Þá mun sá halti hlaupa eins og hjörtur og tunga hins máttlausa syngja, því að vatnslyndir spretta upp á öræfunum og læk- ir á eyðimörkunum. Sólbrunnar auðnir skulu verða að tjörnum og þurrlendi að uppsprettum. Þar sem sjaklar höfðu áður bæli, skal gras gróa ásamt sefi og reyr. Þar skal verða þjóðvegur og gata, og skal það nefnast Brautin helga; enginn óhreinn skal um hana ganga. Hún skal vera fyrir vegfarendur, og jafn- vel fáráðlingar villast þar ekki. Þar skal ekkert ljón vera og ekkert glefsandi dýr skal þar um fara — eigi sjást þar — en þeir endurleystu skulu þar ganga. Og þeir sem Drottinn hefir út- leyst skulu aftur hverfa og koma aftur með söng til Zionar, og eilíf gleði skal leika yfir höfðum þeirra, fögnuður og gleði mun fylgja þeim, en hryggð og andvörp flýja.“ ☆ \ Þessi myrka „stund,“ sem er undanfari dögunar hinnar dýrð- legu aldar, verður að sumu leyti miklu verri en Syndaflóðið, því að þá var mannfjöldinn á jörð- unni tiltölulega lítill og tala þeirra, sem týndu lífinu miklu lægri heldur en verða mun í lokahamföjum hinna miklu hörmunga. En nú eru íbúar jarðarinnar yfir 2 þús. milljónir, og Jesús sagði um þessi ragna- rök „ef dagar þessir yrðu ekki styttir, kæmist enginn maður af.“ (Matth. 24, 22.). En.hann bætir við þessum huggunarorð- um: „en sakir hinna útvöldu munu þessir dagar verða styttir.“ Hvers vegna þurfa þessar miklu hörmungar og eyðing að eiga sér stað þegar núverandi skipan lýkur og hin nýja skipan hefst? Svarið við þessari spurn- ingu er að finna hjá Daniel, (2. kap.), þar sem hin heiðnu heimsveldi og ríki síðustu 25 alda eru táknuð með málmlík- neski í mannsmynd og líkams- hlutar þess voru sinn úr hverri málmtegundinni, til að sýna hin ýmsu heimsveldi o. s. frv., sem stjórna myndu heiminum frá dögum Daníels og fram eftir öldum. Gullhöfuðið táknar þá- verandi heimsveldi Babyloníu- manna, og svo voru tímabil síð- ari heimsvelda sýnd með röð málmanna frá höfði niður í tær. Þá er sagt, að stór steinn losnaði úr fjalli, án tilverknaðar manna, lenti á fótum líkneskisins og molaði það mjölinu smærra, en steinninn varð síðan að fjalli, sem tók yfir alla jörðina (Daníel 2, 34.—35.) Ráðningin er í 36.-45. versi, þar sem sýnt er fram á, að steinninn tákni konungsríki Guðs, sem muni gereyða hinum eigingjörnu árásaröflum, leggja undir sig heim allan og standa síðan að eilífu. Þess vegna eru ^hörmungarnar nauðsynlegar, því konungsríki Friðarhöfðingjans verður ekki stofnað hér á jörðu fyrr en hin gamla skipan, með allri sinni spillingu, hefir verið þurrkuð út, en það getur ekki orðið án hörmunga. ☆ En áður en „hörmungatíðin“ mikla gengur í garð og Guðsríki verður stofnað á jörðu, þurfa öll þessi heiðnu heimsveldi, sem sagt er frá í spádómi Daníels, að verða til og renna skeið sitt. Hin mikilvæga spurning málsins er því þessi: Er síðasta tímabil síð- asta heiðingjaveldisins í þessum flokki runnið upp? Ef svo er ekki, þá er hörmungatíðin enn ókomin, en sé svo, þá er „hinn mikli dagur“ mjög nærri. Eru „síðustu dagar“ þessara „kon- ungsríkja heimsins“ komnir, eða svo notuð séu orð Biblíunnar, er „tími endalokanna“ kominn? Bæði í 2. kap. Daníelsbókar, sem áður er nefndur, og 7. kap. er dregin upp spámannleg og stórfengleg mynd af heimsveld- um þeim, eða ráðandi ríkjum, sem rísa muni og hrynja, hvert eftir annað, frá dögum Daníels og fram eftir öldunum að „tíma endalokanna,“ þegar hið eilífa Ríki Guðs verður heimsveldi jarðarinnar. Tölurnar nr. 1—4 hér á eftir sýna nokkur ítarlega spádómana um heimsveldin og röð þeirra, og hvernig þeir hafa ræzt fram til vorra daga. Hver tafla er helguð heimsveldi, sem um var spáð, og þær eru í óslit- inni tímaröð, og myndu þannig samfellda spádómslega og sögu- lega keðju frá 7. öld f. Kr. til endaloka hinna heiðnu heims- heimsyfirráða. 1 fremsta dálki hverrar töflu eru þeir spádóm- ar úr 2. kap. Daníelsb., sem fjalla um hlutaðeigandi heimsveldi. Á sama hátt eru í öðrum dálki töflunnar aðeins spádómar úr 7. kap. í þriðja dálkinum eru aðrir spádómar um þetta sama heims- veldi og í þeim fjórða eru svo loks hinar sögulegu sannanir fyrir því að spádómsorð hinna þriggja dálkanna hafi ræzt. Spádómarnir í töflum þessum sýna, að frá dögum Daníels áttu fjögur heimsveldi að fæðast og falla, en á eftir þeim skyldi hið fimmta verða stofnað og standa að eilífu. í fáum orðum: Guð hefir sjálfur sagt oss, að ríki Babyloníumanna sé fyrsta heims Hvíldardagur— Framhald af bls. 2 en hraðinn á öllum og öllu gerir það að verkum, að maðurinn á erfitt með að laga sig til eftir ástæðunum. Hraðinn hefir tek- ið völdin. Tímaleysið er svo gífurlegt. Þér þekkið það. Það má enginn vera að neinu, því enginn hefir tíma til neins. Að því leyti virðist reglan um vega- lengd standa óhögguð. Hraði og tími í sínum réttu öfugu hlut- föllum þegar hraðinn er mikill, er tíminn lítill, miðað við sömu vegalengd. Hinn ósiðaði Indíáni í frum- skógum Brazilíu er á suman hátt hamingjusamari en nútímamað- urinn. Hann ber ekki kvíðboga fyrir morgundeginum á sama hátt og vér. Þarfir hans eru litlar. Hann á auðvelt með að fullnægja þeim. Hann er miklu síður þræll hraðans. Hann óttast enga kjarnorkusprengju. Það er næsta hlálegt, að menn- irnir noti sér þá Guðs gjöf, skyn- semina, greindina, til þess að eyðileggja með og kvelja. Á stríðstímum verða hinar miklu framfarir. Þá er ekki sparað til að skapa hugvitsmönnunum vinnuskilyrði. Þetta kemur mér til að minnast forns og úrelts hugtaks, sem má ekki lengur minnast á, frekar en hvíldar- daginn, sem sé erfðasyndina. Ætli hún sé ekki raunverulegri en vér viljum vera láta. Ég veit, að þér hljótið að fallast á það, að maðurinn er ekki að öllu leyti góður. Og nú á dögum er varla tóm til að íhuga þetta og leiða hið góða fram í dagsbirt- una, því að oss skortir hvíldar- dag. Þér minnist einnig, að hinir fornu íslenzku galdramenn tóku stundum kölska í sína þjónustu eða einhverja ára hans. Einn yfirburður þeirra var, hve flýót- ir þeir voru að vinna verk sín sem vinnumenn. Manni þykir það jafnan kostur að hafa röska vinnumenn, enda er eftir þeim sótzt. En forfeður vorir voru ekki svo bundnir klöfum af hraðanum, að þeir hefðu engan tíma til að gera sér grein fyrir mismun góðs og ills. Alþýðan bjó til sagnir af galdramönnun- um og röskum vinnumönnum þeirra, púkunum og drísil- djöflunum. Og um leið lét hún skína í þá lífsskoðun sína, að hinn mikli flýtir, hinn mikli hraði, væri af vondum uppruna, eitt einkenni hins djöfullega. veldið, sem við er átt, og hin eru auðfundin á spjöldum sög- unnar. Ríki Meda og Persa tók við af Babylon sem drottnandi heimsveldi. Grikkir tóku við af Medum og Persym, og á eftir gríska heimsveldinu kom hið rómverska, sem varð hin vold- ugasta þeirra allra, eins og spáð hafði verið. Samkvæmt spá- dómnum var þetta „ríki“ úr þrennskonar efni: Gamla, heiðna rómverska heimsveldið (sem táknað er með lærleggjum úr járni í 2. kap. Dan.) fæddi af sér hið svonefnda „Heilaga“ róm- verska heimsveldi páfans (tákn- að með fótum úr járni og leir), sem síðar breyttist í núverandi ríkjaskipun á meginlandi Ev- rópu (ágætlega táknað með tán- um, sem sumpart voru úr járni og sumpart úr leir). Þannig hafa „ríki“ þessi eða heimsveldi risið og horfið í haf sögunnar, einmitt í þeirri röð, sem fyrir var sagt, með ná- kvæmlega sömu einkennum og spáð var, og meira að segja ná- kvæmlega á þeim tíma, sem spáð var (eins og brátt skal sýnt fram á). Og nú er loka þáttur hins síðasta að hefjast á megin- landi Evrópu vorra daga. Það er því augljóst af sönnunum þeim, sem spádómarnir láta oss í té um heimsveldin, að vér lifum ekki aðeins á „tímum endalok- anna,“ heldur er talsvert á þá liðið. Frh. —DAGRENNING Drottínsdagur Vér getum einnig seilzt til hinna fornu Rómverja. Þeir áttu spakmæli er hljóðar svo: Festina lente, flýttu þér hægt. 1 því eru mikil sannindi fólgin. Ég geri ráð fyrir, að spakmæli þetta hafi orðið til af því, að Rómverjar voru miklir stjórnvitringar og skipulagsmenn, svo að af ber. Reynsla þeirra í stjórnmálum og skipulagningu hefir kennt þeim þetta. Enda má í þessu sambandi minnast hins sunnlenzka ,bif- reiðahölds, er segir við undir- menn sína: „Vertu fljótur, en farðu hægt.“ Sú setning þykir fyndin, en 1 henni felst svo mikil reynsla og sannindi, að hún er spakmæli. Ég hefi í dag talað um efni, sem er einkenni nútímans, sem sé hraðann, flýtinn. Yður finnst, ef til vill, að ég hafi gjörtMítið úr honum. Það er ekki svo. Ég vil aðeins benda á það, að sem stendur stjórnar hraðinn mönn- unum. Þeir hafa misst tökin á honum. Hann er orðinn þeirra drottinn. En Guð sjálfur er nú í dag fjarlægur Guð, sem menn- irnir greina óskýrt í fjarska. Þér, hinir ungu, hafið mögu- leika til að venjast hraðanum og stjórna honum. Til þess þarf næman skilning og stórt átak. En það er gerlegt. Eitt ráðið er að fara út í náttúruna. Hún getur talað til yðar sterkara og réttara en nokkur prédikun. Þar getið þér fundið Drottinn yðar, því hjarta yðar er ekki enn orðið sljótt og steinrunnið, ekki enn- þá. Og það er víst, að þér þráið að finna eitthvað, sem er fast og óbreytanlegt í tilverunni. Og hvað er það annað en hinn óum- breytanlegi Guð frá upphafi til eilífðar. Hann, sem er sjálfur upphafið. Það er gleðilegt að sjá, hversu fólkið í bæjunum þráir að koma út í náttúruna og notfærir sér hvert tækifæri til þess. En sú hreyfing er ekki ýkja gömul. Hún hefir skapazt af þrá manns- hjartans að leita hvíldar, að kasta af sér hlekkjum hrað- ans. Hvíldardagurinn birtist í breyttri mynd. Guðstrúin er persónulegri orðin á suman hátt en hún var. Mennirnir leggja meiri rækt við áð lifa heilbrigðu lífi, að svo miklu leyti sem þeim gefur tóm til þess. En það hefir orðið á kostnað trúarlífs sam- félagsins, og er það skaði. Því samfélagið, heildin, er sterkara en einstaklingurinn, getur kom- ið meiru til leiðar. En ef allir væru gegnsýrðir af trúaranda, þá væri heimurinn ofurlítið öðruvísi en hann er........ Þér hinir ungu eruð á leið út í kjarnorkuöldina. Undir yður er komið, hvort lífsstefna eða helstefna eigi að ráða. Skapið yður hvíldardag, er þér getið leitað Guðs og vitjað hans. Þá verðið þér eigi þrælar hraðans, heldur meistarar hans. Á hrað- anum verðið þér að ná tökum. Annars verður líf yðar kvöl. Á fögrum haustdegi hverfur hraði og tími. Hann er sann- kallaður hvíldardagur. í blik- andi haustskrúða náttúrunnar finnum vér bendingu frá þeim er sagði: „Komið til mín, allir þér, sem erfiðið og þunga eruð hlaðnir, og ég mun veita yður hvíld.“ Magnús Már Lárusson —KÍRKJURITIÐ Maður í New Orleans var kærð <4ir fyrir innbrot. Hann hafði höggvið gat á múrvegg og seilzt í gegnum það, svo að hann náði til muna inni fyrir. Verjandi hans staðhæfði, að hann hefði aldrei farið inn í húsið, nema hvað hann rak þar inn höfuðið, og kviðdómurinn dæmdi hann sekan um innbrot „hvað efri hluta líkamans snerti.“ Mannin- um var ennframur í sjálfs vald sett, „hvort hann tæki hinn sak- lausa hluta líkamans með í fangelsið."

x

Lögberg

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Lögberg
https://timarit.is/publication/132

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.