Lögberg - 22.05.1952, Side 3

Lögberg - 22.05.1952, Side 3
LOGBERG. FIMTUDAGINN, 22. MAI, 1952 3 Ra nnsókna rsfr öði ri VÍSINDAMENN hafa lengi vitað að hinn mikli meginlandsjökull á Grænlandi muni hafa geisi- mikla þýðingu fyrir veðráttu á norðurhveli jarðar. Og nú hafa nokkrir franskir menn verið að athuga þetta um nær fimm ára skeið. Þeir hafa blátt áfram hafzt við niðri í sjálfum jöklin- um, en í myrkri og kulda hafa þeir skreiðst upp á yfirborð hans til þess að athuga veðurmæli- tæki sín og senda flugbelgi upp í loftið. Frostið er þarna stund- um 86 stig á Fahrenheit, og er því eigi kunnugt að nokkrir aðrir menn vinni í slíkum kulda. En þeir hafa þraukað hvað sem á hefir gengið. Þessit menn starfa fyrir hinn franska pólrannsókna leiðangur, sem Paul E. Victor stjórnar, einn af þessum frægu norður- förum og á borð við þá Peary, Amundsen og Byrd, sem fræg- astir hafa orðið fyrir ferðir sín- ar um heimskautalöndin. Victor var ekki nema 25 ára gamall er hann fór í fyrsta sinn til Grænlands. Árið 1936 gekk hann þvert yfir Grænlandsjökul. í stríðinu fór hann til Banda- ríkjanna og var þar ráðunautur flughersins um allar flugferðir á nyrztu slóðum. Ep þegar stríðinu var lokið, heillaði Grænland hann aftur, og þá var það að hann fékk hugmyndina um að koma á fót rannsóknarstöð uppi á miðjum jöklinum. Franska stjórnin styrkti hann til þessa fjárhagslega og hann fékk leyfi dönsku stjórnarinnar til þess að fara þangað. Hann safnaði að sér vísindamönnum á ýmsum sviðum til þess að geta fram- kvæmt þær rannsóknir er hann langaði til, þar á meðal að mæla þykkt jökulsins og gera þar veðurathuganir. Sumarið 1948 fór hópur manna til Grænlands til þess að undir- búa aðal leiðangurinn, sem átti að hefjast næsta ár. Hinn 1. júní köstuðu þeir akkerum í firði nokkrum á vesturströnd Græn- lands og skipuðu þar farangri sínum á land, 60 smálestum. Auk þess höfðu þeir meðferðis fimm snjóbíla og 15 sleða úr alumini- um og voru þrír þeirra hlaðnir af áhöldum til vísindarann- sókna. Þeir leiðangursmenn voru 25 talsins. í farangri þeirra var meðal annars 5000 gallon af benzíni, þrjár togvindur og 12.000 fet af stálvír af ýmsum gerðum, loft- á Grænlandsjökli skeytastöð, viðgerðaáhöld og mikið af varahlutum. Tveir þeirra félaga lögðu nú af stað á undan, ásamt fimm Eskimóum, til þess að finna sem bezta leið upp á jökulinn. Komu þeir þá þangað er þverhnýptur hamar gekk fram úr jöklinum og spyrnti baki við honum. — Þarna leizt Victor ákjósanlegur staður, og þegar hann kom aft- ur til félaga sinna, sendi hann símSkeyti til Frakklands og bað verksmiðjuna, er seldi honum stálvírana, um allar upplýsing- ar um það hvernig hann ætti að útbúa vað þarna á hamrinum til þess að draga allan farangurinn þar upp. Skeyti kom aftur frá verksmiðjunni með öllum nauð- synlegum upplýsingum. Var svo farið með togvindu upp á ham- arinn og frá henni lá 2500 feta langur stálvír niður á jafnsléttu, en sjálfur hamarinn var 700 feta hár. Þarna var svo allur farang- urinn dreginn upp og dró tog- vindan stundum 1000 til 1500 pund í einu. All-löng leið var frá hamrin- um upp á jökulbrún og í marga daga voru þeir að selflytja leið- angur sinn þangað. Þar gerðu þeir sér svo bækistöð og að því loknu var lagt inn á hájökulinn. Vikum saman voru þeir á því ferðalagi, en að lokum komust þeir inn á miðjan jökul, þar sem fyrirhugað var að hafa rann- sóknarstöðina. — Þarna gengu þeir nú frá farangrinum og héldu svo sömu leið til baka og sigldu heim til Frakklands. í maímánuði árið eftir lögðu þeir svo enn af stað til Græn- lands. Fóru þeir hina sömu leið og áður og komust slysalaust til stöðvarinnar á miðjum jöklin- um. Þetta var um mitt sumar, en þó var frostið þarna oft um 40 stig á Fahrenheit. Þeir byrj- uðu á því að höggva djúpa og stóra gröf ofan í miðjan jökul- inn. Þar niðri í gröfinni reistu þeir svo hús, sem þeir höfðu haft meðferðis, gerðu sér ýmsar geymslur í jöklinum og bji^ggu eins vel um sig og unnt var. Þá um sumarið fór íslenzk flugvél 13 ferðir vestur yfir til stöðva þeirra og varpaði þar niður ýmsum birgðum í fallhlíf- um. Tókst þetta svo vel, að skemmdir á þeim farangri, sem varpað var niður, námu ekki nema 2%. Seint í ágúst sneru flestir TIL BÚNAÐARUMBÓTA Lán til búnaðarbóta má nota til girðinga, afrenslis og annara umbóta. Upphæðir, sem nema alt að $3,000 eru fáanlegar samkvæmt þar að lútandi ákvörðun, og um afborganir má semja til eins, tveggja eða fleiri ára. Og vextir eru aðeins 5%. Leitið upplýsinga hjá næsta útibúi. 3ÚNAÐARLÁNI iná einnip; verja til Nýrra véla og búsáhalda Nýrra kjallara eSa til kaupa hrænræktaSs búpenings. Nýrra bygginga eSa viSgerða viS eldri hús á býlinu * Raflagna á býlinu GirSinga, afrenslis eSa ann- ara umbóta Biðjið um eintak af pessum 'bœklingi, er ski/rir frá öllu varðandi Púbótamálin. THE ROYAL BANK OFCANADA þér megið treysta "Royar' I Business and-Professional Cards PHONE 724 944 heim aftur, en átta vísindamenn voru skildir eftir uppi í ísbúð- unum, 9.900 fet yfir sjávarmál og 250 mílur frá jökulröndinni. Þetta var einmanalegur staður og vetur fór í hönd með margra mánaða náttmyrkri. Á hverju vori síðan hefir svo farið hópur leiðangursmanna vestur til Grænlands og brotizt upp á jökulinn að ísbúðunum. Þá eru hinir átta vetursetumenn leystir af hólmi, en aðrir átta taka að sér að vera þar næsta vetur. Vetursetumennirnir búa í hús- inu, sem nú er fyrir löngu komið á kaf í hjarn og ís. Frá því liggja 330 feta löng göng til hinna ýmsu geymsluskála, sem hafa verið höggnir út í ísinn. Á hverjum degi dúða mennirnir sig eins og bezt þeir geta og fara út í kuldann og myrkrið til þess að athuga hin ýmsu mælitæki sín, og á hverjum degi eru flugbelgir með mælitækjum sendir upp í loftið. Eftir svo sem klukkutíma eru allar mæl- ingar símaðar út um heim og eru innan stundar komnar til allra flugvalla fyrir norðan mið- jarðarbaug. Veðurathugana- stöðin er ekki nema nokkra faðma frá íbúðarhúsinu, og verða menn að þræða sig þangað 1 eftir streng, því að annars gætu þeir átt á hættu að villast út í myrkrið og kuldann á þessari ó- endanlegu ísbreiðu. Venjulegast verða þeir að moka sig út á hverjum morgni. Það er langur tími að hýrast þarna tíu mánuði samfleytt. En hvað geta þá mennirnir haft til að stytta sér stundir? Þeir eru alltaf nokkra tíma á dag að vinna úr athugunum sínum, en annars stytta þeir sér stundir við grammófón eða útvarp, eða þá að tala við aðrar loftskeyta- stöðvar. Heilsufar hefir verið gott hjá þeim og þeir hafa bláa ljóslampa til þess að bæta sér upp sólarleysið. Á þessum árum hefir tekizt að mæla þykkt jökulsins og ýmsar hreyfingar, sem á honum eru. — Rannsóknunum er langt í frá lokið, en svo er sagt, að þær bendi eindregið í þá átt að rétt sé það, sem sagt hefir verið að Grænlandsjökull ráði að miklu leyti veðráttunni á norð- urhveli jarðar. Og takist mönn- um að finna til fulls hvernig í því liggur, þá verða allar veður- spár fyrir Evrópu miklu áreið- anlegri í framtíðinni en þær hafa verið. (Úr Popular Mechanics) —Lesb. Mbl. Dr. S. J. Jóhannesson SUITE 6—652 HOME ST. Viðtalstími 3—5 e£tir hádeKÍ DR. E. JOHNSON 304 EVELINE STREET Selkirk, Man. Office Hours 2.30 - 6 p.m. Phones: Office 26 — Res. 230 Andrews, Andrews, Thorvaldson and Eggertson liögfrœðimgar 209 BANK OF NOVA SCOTIA BG. Portage og Garry St. Phone 928 291 C A N A D I A N FISH PRODUCERS, LTD. J. B. PAOE, Managing Director Wholesale Dlstributora of Fresh and Frozen Flsh. 311 CHAMBERS STREET Office Ph. 26 328 Res. Ph. 73 917 Office Phone Res. Phone 924 762 726 115 Dr. L. A. Sigurdson 528 MEDICAX, ARTS BLDG. Office Hours: 4 p.m. - 6 p.m. and by appointment. A. S. BARDAL LTD. FUNERAL HOME 843 Sherbrook Street Selur líkkistur og annast um út- farir. Allur útbúnaður sá bezti. Stofnað 1894 Sími 27 324 Phone 23 996 700 Notre Dame Ave. Opposite Maternity Pavillion, General Hospital. Nell’s Flower Shop Wedding Bouquets. Cut Flowers, Funeral Deslgns, Corsages, Bedding Plants Nell Johnson Res. Phone 27 482 Office 933 587 Res. 444 389 THORARINSON & APPLEBY BARRISTERS and SOLICITORS 4th Floor — Crown Trust Bldg. 364 Maln Street WINNIPEG CANADA SELKIRK METAL PRODUCTS Reykháfar, öruggasta eldsvörn, og ávalt hreinir. Hitaeiningar- rör, ný uppfynding. Sparar eldi- viS, heldur hita frá aö rjúka út rneís reyknum.—SkrifitS, slmiö til KELLY SVEINSSON 625 Wall Street Winnipeg Just North of Portage Ave. Simar : 33 744 — 31 431 DR. H. W. TWEED Tannlæknir 508 TORONTO GENERAL TRUSTS BUILDING Cor. Portage Ave. og Smith St. Phone 926 952 WINNIPEG Creators of Distinctive Pringting Columbia Press Ltd. 695 Sargenl Ave., Winnipeg Phone 21804 S. O. BJERRING Canadian Stamp Co. RUBBER & METAL STAMPS NOTARY & CORPORATE SEALS CELLULOID BUTTONS 324 Smilh Sl. Winnipeg PHONE 924 624 Phone 21 101 ESTIMA TES FREE J. M. INGIMUNDS0N Asphalt Roofs and Inxulated Sldlng — Repalrs Country Orders AttendeO To 632 Slmcoe St. Wlnnlpeg. Man. GIMLI FUNERAL HOME 51 Firsi Avenue Ný útfararstofa meö peim full- komnasta útbftnaöi, sem völ er á. annast viröulega um útfarir, selur ltkkistur, minnisvaröa og legsteina. Alan Couch. Funeral Director Phone—Business 32 Residence 59 DR. A. V. JOHNSON Dentist 50tí SOMERSET BUILDINQ Telephone 97 932 Home Telephonpe 202 398 DR. ROBERT BLACK Sérfrœðingur í augna, eyrna, nel og hálssjúkdómum. 401 MEDICAL ARTS BLDG. Graham and Kennedy St. Skrifstofusími 923 815 Heimasimi 403 794 Comfortex the new sensation for the modern girl and woman. Call Lilly Maiihews, 310 Power Bldg., Ph. 927 880 or evenings, 38 711. GUNDRY PYMORE Limited British Quality Fish Nettino 58 VICTORIA ST. WINNIPEG Phone 928 211 Manager T. R. THORVALDSON Your patronage wlli be appreciated Minnist CCTEL í erfðaskrám yðar. Dr. P. H. T. Thorlakson WINNIPEG CLINIC St. Mary'a and Vaughan, Winnlpeg PHONE 928 441 PHONE 927 025 H. J. H. Palmason, C.A. H. J. PALMASON A CO. Chartered Acconntanta 505 Confederation Life Bldg. WINNIPEG MANITOBA PARKER, PARKER & KRISTJANSSON Barrisíers - Solicitors Ben C. Parker. K.C. B. Stuart Parker. A. F. Krlstjanseon 500 Canadlan Bank of Commeree Chambers Wlnnlpeg, Man. Phone SS3M1 G. F. Jonasson, Pres. & Man. Dir. Keystone Fisheries Limited Wholesale Distributors of FRESH AND FROZEN FISH 404 SCOTT BLK, Slmi 925 227 Bullmore Funeral Home Dauphin, Manitoba Eigandi ARNI EGGERTSON, Jr. Hugleiðingar í ellinni: Upp við stofninn Upp við stoininn önd mín grær, þar er andans athvarf fundið; ait er lögum drottins bundið íöstum regium ijær og nær. Nú vill segja sálin mín, við græna tréð er gott að vera, und’ greinum þess fram lofgjörð bera, þau líta á mig laufin þín. í hendi Guðs mitt hjarta slær, Hann mér gefur föt og fæði, fjöðrum sett mín andans klæði, sem hugans þunga lyíting ljær. Hátt frá vegi veraldar, andinn flýgur fjöllum hærra. Flest á jörðu sýnist smærra, er augna yndi áður var. Óðum léttast loftið finn. Gegnum skýin þungu þræða; það er skamt til sigur hæða inn í friðar faðminn þinn. Millibilið örstutt er, andartak og ekki meira. Alstaðar má sjá og heyra orð Guðs óma: „Eg em hér.“ Drottins auglit æ oss sér. Leið vor yíir dimma dalinn svo dásamlega út er valinn að felustaður enginn er. Svo bjart er ljósið Lausnarans, ljóminn til vor talað hefur: „Tilbið þú Guð.“ Þér máttinn gefur, efast ei um áheyrn hans. Eilíf miskunn að oss snýr, ýmislegt vill andan beygja. Ekkert Guði þarf að segja, Hann veit hvað í brjósti býr. í hans skjóli önd mín vex, þar mín gróa sáru sárin. Sú er reynslan gegnum árin, liðin hjá sjötíu’ og sex. Sannleiksröddin segir mér, óðum ljósin dagsins dofna. í drottins vernd er gott að sofna við ljósið, sem að eilíft er. Heimþrá grípur huga minn, ég halla mér að hjarta þínu. Hér á lífsins kveldi mínu, í tjaldbúð þína tak mig inn. Jesús, Guðs son, Jesús minn, reis mig upp í reynslu minni. Réttlætis í hendi þinni, ég veit mig styður styrkur þinn. Faðir ljóssins, faðir minn. Barni þínu blessun veitir um bústað sálarinnar breytir, af djúpi rís upp dagurinn. Febrúar 1952 Ingibjörg Guðmundsson

x

Lögberg

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Lögberg
https://timarit.is/publication/132

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.