Lögberg - 22.05.1952, Síða 5

Lögberg - 22.05.1952, Síða 5
LÖGBEKG, FIMTUDAGINN, 22. MAI, 1952 5 WV'VVVVWVVWVVVVVVWVVVVVVV* ÁHUeA/HÁL LVENNA Ritstjóri: INGIBJÖRG JÓNSSON SLYS Á HEIMILINU Ætla mætti að flest slys ættu sér stað 1 vélaverksmiðjum, á vegunum eða annars staðar utan heimilanna, en svo er ekki; sicýrslur sýna, að á heimilunum sjálfum er hættast við slysum og flest eru það slys, sem auð- velt hefði verið að koma í veg fyrir með því að gæta einfaldra varúðarreglna. Byltur verða á hverju ári þús- undum manna að aldurtila á þeirra eigin heimilum. Margar húsfreyjur hafa ánægju af að prýða stofurnar með litlum gólf- dúkum; þeir eru fallegir en geta orðið heimilisfólkinu stórhættu- legir nema að þeir séu festir við gólfið eða útbúnir þannig, að þeir hreyfist ekki þegar stígið er á þá. Gólf, sem póleruð eru þar til þau glansa eins og spegill eru óneitanlega falleg, en mörgum hefir skrikað fótur á þeim og væri skynsamlegra að pólera þau minna heldur en eiga á hættu að einhver í fjölskyldunni fái slæma byltu. Ef gólfdúkur- inn brettist upp eða göt eru á honum er hann hættulegur, sér- staklega öldruðu fólki, en bein þess eru stökk og lengi að gróa. Á mörgum heimilum er var- úðarreglna gegn slysum ekki gætt, sem myndi vera strang- lega framfylgt í öllum verk- smiðjum. Húsmóðir þarf til dæmis að ná í hlut, sem er hátt uppi; hún hefir ekki stiga við hendina og nær sér í stól, setur upp á hann skemil og klöngrast síðan upp á hann. Hver, sem leyfði sér að nota þannig óhæf áhöld í verksmiðju myndi þegar missa atvinnu sína, og mörg konan, sem reynt hefir að leika þetta, hefir verið frá vinnu í langan tíma vegna brotins handleggs eða mjaðmarbeins. Rafmagnstæki geta og verið mjög hættuleg, ef þau eru notuð í baðherberginu. Komið hefir fyrir að fólk hefir verið að reyna að kæla sig með rafmagns- hreyfli meðan það var í bað- kerinu; hann hefir kippst ofan í baðkerið og rafmagnsstraumur- inn deytt þann, sem í baðinu var. Á sama hátt geta smá út- varpsviðtæki verið hættuleg; ennfremur hárkrullutaugir, ef að tengillinn eða tækið blotnar. í Canada er það á móti lögum að hafa nema einn tengil í bað- herbergi, aðeins fyrir ljósið, vegna þess hve hættulegt er að nota rafmagnstæki nálægt vatni. Mörg konan hefir sprengt heimili sitt í loft upp með því, að reyna að hreinsa föt úr hreinsunarlög. Og þrátt fyrir það þótt öll slysavarnarfélög vari þær við þessu atferli, hætta margar konur þannig enn heim- ili sínu og lífi. Sú kona, sem vill sjálf hreinsa fötin úr hreinsun- arlög ætti að gera það úti undir beru lofti og velja dag þegar vindurinn blæs og feykir gasguf- unni í burt. Rannsóknir hafa sannað að eldhúsið er hættulegasti staður heimilisins. Fitublettir á gólf- inu, hýði af ávöxtum eða græn- meti, hafa orsakað marga slæma byltu. Börn sækja í eldhúsið, því þaðan angar lykt af mörgum góðum réttum og þau eru for- vitin og vilja vita hvað sé ver- ið að matreiða; þau teygja sig upp og ná í hald á potti eða pönnu og steypa yfir sig brenn- heitum mat eða lög. Það er ægi- legt hve mörg börn verða fyrir svona slysum. Snúið höldunum á ílátunum á eldavélinni, altaf inn en ekki út svo börnin nái ekki í þau. Það er altaf hættulegt að skilja börnin eftir ein heima; ekkert smábarn er öruggt einsamalt. Hvað oft sem þú hefir sagt barn- inu að leika sér ekki að eld- spýtum ertu aldrei viss um að það geri það ekki. Ekkert barn er öruggt á heimili sínu nema \alt það, sem getur meitt, skorið, brennt eða eitrað það, s? látið þar, sem það nær ekki til þess. Þá þarf að hafa gætur á því, að flugnaverjur (Screens) á gluggum séu vandlega festar svo barnið geti ekki ýtt þeim út, og stigaop girt svo það fari sér þar ekki að voða. Vegna þess að börnin skortir dómgreind geta þau líka orðið fullorðna fólkinu hættuleg með því að skilja eftir leikföng sín í stigunum eða þrepunum utan hússins, þar sem fólk hrasar um þau í myrkri. Allur er varinn góður; rann- sóknir hafa sannað, að næstum öllum slysum á heimilunum hefði verið auðvelt að varna, ef ofurlítillar varúðar hefði verið gætt í innréttingu hússins og fyrirkomluagi húsgagnanna og húsráðendur aflað sér fræðslu um varnir gegn slysum. ☆ BYRJIÐ SNEMMA Hugsið ykkur hvað það er þýðingarmikið, að börnin venjist á það frá upphafi að hjálpa til heima við — til gleði fyrir hús- móðurina jafnt sem barnið. Hvetjið börnin til þess — og það mun gleðja yður þegar son- ur yðar 10 ára gamall getur sjálfur eldað hafragrautinn, helt upp á könnuna og lagað te o. s. frv. Kemur það honum ekki líka að góðum notum þegar hann sjálfur hefir stofnað heimili? ☆ „HVERS VIRÐI ER LÍFIÐ ÁN BARNA?“ Margra barna móðir komst að orði á þessa leið við konu, sem átti von á fyrsta barni sínu: „Nú kemur að því, að þú get- ur ekki lokað kommóðuskúffu, án þess að^þurfa ekki að aðgæta að litlir fingur komizt ekki í klemmu og þú getur ekki keypt þér kjól á þess að hugleiða hvað börnin vanhagar um. Þú getur ekki farið fram hjá leikfanga- búð, án þess að staðnæmast og ekki heyrt í sjúkravagni, án þess að aðgæta hvar börnin eru. Þú getur ekki leyft þér að vera veik (en þú verður líka heilsuhraust- ari en áður), og þú getur ekki borðað marga munnbita í einu í friði og röð og regla á heimilinu er ekki lengur aðalkeppikefli þitt. Þú getur ekki skoðað rign- ingu eins og hressandi tilbreyt- ingu vegna þess að þá verðurðu að halda börnunum inni og alt kvefað fólk verður óvinir þínir. Þú getur ekki sofið rólega neina nótt, því að undirvitundin held- ur þér hvað eftir annað milli svefns og vöku og barnsgrátur kemur þér altaf við og þú verður fyrst og fremst að metta börn- in þín. Þú getur altaf fengið nóg, eigingirni þín hverfur, fagnaðaróp og hlátrasköll eru ekki lengur neinn hávaði í þín- um eyrum, og hvers virði væri lífið, ef ekki væru börnin.“ ☆ RÁÐNINGAR Á GÁTUM 1. Snjókorn og vindurinn. 2. Sólargeislinn. Þrjár milij. kr. í sjóði Dvalar- heimilis aidraðra sjómanna Hefjast byggingarframkvæmdir á þessu ári? AÐALFUNDUR Sjómannadagsráðs var haldinn s.l. sunnu- dag í skrfstofu Slysavarnafélagsns, Grófin 1. Fundurinn minntist 1 upphafi þeirra manna, er farizt hafa á sjó í vetur. I skýrslu stjórnar ráðsins kom fram, að mikið hefði verið starfað á liðnu ári. Sjóður Dvalarheimilisins er nú þrjár milljónir króna, og hefir eignaaukning á liðnu ári verið rúmlega hálf milljón króna. drættis til eflingar dvalarheim- ilissjóðnum, og eru vinningarnir alls 20. Dregið verður 1. apríl. Næsti sjómannadagur verður 8. júní og voru kosnar nefndir til undirbúnings þeim degi. —Mbl., 18. apríl íslendingur skíðameistari í U.S.A Vísi hafa borizt í hendur blaða úrklippur úr amerískum blöðum, sem greina frá frækilegri fram- göngu ungs Hafnfirðings á skíða móti vestan hafs. Þessi ungi maður heitir Páll Jónsson, og er hann búsettur hjá systur sinni, sem gift er manni að nafni Larry Lalaguna í Red Bluff í Kaliforníu. Hefir hann ný lega tekið þátt í tveim skíðamót- um þar vestra, og varð meistari í stórsvigi í öðru, en í hinu sigr- aði hann bæði í stórsvigi og skíðastökki. Annað skíðamótið var haldið á vegum sambands skíðafélaga í vestanverðum Bandaríkjunum. Var tími Páls þar 55.3 sekúndur. Næstur honum varð maður að nafnf'* Howard Mayer frá San Sunrise Lutheran Camp Once again our Camp is preparing for an^ influx of young and old—all who desire a change of scene and to live outdoors through summer days. Sunrise Camp offers this in generous measure, and more. It offers a smooth, sandy beach, cool breezes off the lake, sunny skies and all the beauties of nature. It offers appetizing meals and dormitories for a good night’s sleep. It offers recreation in form of sports and outdoor study—a study that instills a desire to build character as taught in Bible study. This year we are fortunate in having Miss Katrin Brynjolfson and Mrs. Thora Oliver in charge of all meals; Mr. Hedley, who has had years of experience in leadership and sport, as recreational director; Miss Eleanor Gilstrom will be at camp again to lead in Bible study and Mrs. S. Olafsson will be Camp Director, as she has been in previous years. The purpose of this Camp is to inculcate in individual boys and girls that spirit of honesty and good sportsmanship, unselfish- ness, determination and courage so necessary for all that is big and fine in our Canadian lives. Come to Camp at Husavik and help make camping a thoroughly enjoyable adventure in co-operative social living— doing things together and sharing in the spirit of fine fellowship and genuine toleration. All this you can find at Sunrise Camp, Husavik. Trains and buses stop at the Camp’s gate. Welcome to Sunrise Lutheran Camp. Summer Schedule for 1952 Sunday School Teacher’s Rally—Saturday, 1 p.m., June 28 to Sunday, 5 p.m., June 29. Senior Girls and Boys over 14 years—Wednesday morning, July 2, to Thursday, July 10. Intermediate Boys, 11 to 14 (inclusive)—Thursday, July 10 to Friday, July 18. Junior Boys, 6 to 10 years (inclusive)—Friday, July 18 to Saturday July 26. Open House—Sunday noon to 8 p.m., July 27. A meal will be served at nominal cost. Convention—Young People’s Leagues of the American Lutheran Church—Tuesday morning, July 29 to Sunday evening, Aug. 3. Intermediate Girls, 11 to 14 years—Tuesday, Aug. 5 to Wednesday, Aug. 13. Junior Girls, 6 to 10 years (inclusive)—Thursday, Aug. 14 to Friday Aug. 22. Fees For all age-groups—$10.00 per person for 8 days. Sunday School Teacher’s Rally—$3.00 per person for Rally period Adults—$2.00 per day. Visitors—75 cents per meal. Reservations must be made by letter or phone Camp telephone 306-Ring 22 Gimli. Application forms can be had from and sent to Camp Director, Mrs. S. Olafsson, Box 701, Selkirk, or to— Mrs. A. H. Gray, 1125 Valour Rd., Winnipeg. Mrs. H. S. Erlindson, Arborg, Manitoba. Mrs. B. Bjarnarson, Langruth, Manitoba. Mrs. S. O. Thompson, Riverton, Manitoba. Please register early in June. BOARD of DIRECTORS. Það er Sisf að kyssa á hönd konu Góðar gjafir Hafa byggingarsjóði á árinu borizt margar gjafir, t. d. gaf M. Jessen, skólastjóri, nýja Buick- bifreið og ekkjan Ingiríður Vig- fúsdóttir frá Sandgerði, er lézt í sjúkrahúsi Hafnarfjarðar, arf- leiddi dvalarheimilið að húsi sínu, „Sæhvoli“ í Sandgerði. — Vill Sjómannadagsráðið færa kærar þakkir fyrir þessar gjafir, sem og aðrar ónefndar gjafir. Efling byggingarsjóðsins Einnig kom fram í skýrslu stjórnarinnar, að auk sjálfs sjó- mannadagsins, sem fór hið bezta fram, hefði umfangsmikið starf verið unnið utan hans til efling- ar byggingarsjóði. 27. sept. s.l. fór fram knattspyrnukappleik- ur milli úrvalsliðs frá Hafnar- firði og hins sigursæla knatt- spyrnuliðs m.s. Gullfoss, og end- aði sá leikur með jafntefli, 2:2. Farin var skemmtiferð með m.s. Esju til Akraness 15. júlí og tókst sú ferð 1 alla staði hið bezta. Einnig komu hingað, eins og kunnugt er, erlendir fjöllista- menn, sem skemmtu tvisvar í Austurbæjarbíói, og var Einar Jónsson, gjaldkeri, framkvæmda stjóri þeirra sýninga. Aðal- fundurinn færði Einari Jónssyni þakklæti sitt fyrir hans mikla starf í þágu þessa málefnis, en hann útvegaði þetta fjölista- fólk. Hafa þessar sýningar gefið byggingasjóðnum miklar tekjur. Sljórnarkosning Við stjórnarkosningu, er fór fra má fundinum, var Henrý Hálfdánarson kosinn foramður í 15. sinn, en hann hefir verið formðaur frá upphafi. Gjald- keri var kosinn Þorvarður Björnsson og Pétur Óskarsson ritari, báðir endurkjörnir. í stjórnina voru einnig kjörnir þeir Sigurjón Á. Ólafsson og Björn Ólafsson, og eru þeir til ráðuneytis þegar um fjársöfn- unarmál er rætt. Varamaður þeirra er Tómas ''Sigvaldason, loftskeytamaður. Varaformaður var kjörinn Sigurjón Einarsson, skipstjóri, varagjaldkeri Pétur Jónsson, stýrim^ður og vararit- ari Jens Stefánsson, stýrimaður. Vilja hefja byggingar- framkvæmdir Á fundinum var mikið rætt um byggingu dvalarheimilisins. Björn Ólafsson, formaður bygg- ingarnefndar, hafði framsögu um málið. Eins og kunnugt er, hefir bæjarstjórn Reykjavíkur úthlutað lóð fyrir þetta heimili samvkæmt ósk Sjómannadags- ráðsins, og er sú lóð á Laugarás- hæðinni, og er um 6 hektarar lands. Er ákveðið a ðhefja bygg- ingarframkvæmdir strax og fjárfestingarleyfi fæst, ea hing- að til hefir staðið á leyfi Fjár- hagsráðs. Kom það fram á fund- inum, að fulltrúar í Sjómanna- dagsráði, en þeir eru frá 13 fé- lögum úr öllum greinum sjó- mannastéttarinnar, trúa því ekki að óreyndu, að þetta leyfi fáist ekki. Byggingarnefnd Byggingarnefnd dvalarheimil- isins var endurkjörin, en hana skipa: Björn Ólafsson, Mýrahús- um, formaður,, Sigurjón Á. Ólafsson og Henrý Hálfdánar- son. Til vara Þorvarður Björns- son, Sigurjón Einarsson og Böðvar Steinþórsson. Eins og getið hefir verið í blaðinu, hefir verið efnt til happ- London (UP). — Vinur kær, það er ekki sama, hvernig þú kyssir á hönd konu, sem þú vilt sýna virðingu. Það muntu sanna, ef þú lest einhvern tíma bókina,. sem Dico Dajou er að skrifa og kemur út á næstunni. Dajou heldur því fram, að hann hafi kysst á hönd fleiri frægra og tiginna kvenna en nokkur annar maður, sem nú er uppi, en hann hefir lengi ver- ið hótelstjóri í Berlín, Cannes, París, Buenos Aires og London, og sem slíkur hefir hann kysst á hönd drottninga, prinsessa, fegurðardísa o. s. frv. Hann seg- ist t. d. hafa kysst á hönd Mary ekkjudrottningar, Elisabetar drottningamóður, hertogaynj- unnar af Kent, drottninga Grikk lands, Danmerkur, Noregs, Spán ar, Rúmeníu og Italíu, auk fjölda annarra kvenna af konunga- kyni. „Enginn má ætla“, segir Dajou, „að það sé vandalaust að kyssa á hönd konu, svo að vanza- laust sé. Sumir menn verða kjáríalegir, þegar þeir gera það, en það er af því að þeir kunna ekki listina — en þeir geta lært hana af mér: Maður gengur til móts við konuna með kveðjubrosi. Hún réttir manni höndina, maður má aldrei seilast eftir henni, og maður lætur hana hvíla á hægra lófa sínum. Svo beygir maður sig um mittið, og hefir augun á andliti konunnar, þangað til andartaki áður en varir yðar snerta höndina. Þá fyrst lítur maður niður. En maður kyssir eiginlega ekki, lætur varirnar rétt snerta handarbakið, réttir úr sér og brosir sem fyrrum.“ Jæja, góðir hálsar, nú getið þér æft yður með konunni eða unnustunni, áður en þér farið að „praktíséra" handakossa. Francisco og var hann 58.2 sek- úndur eða næstum þrem sekúnd um á eftir Páli. Til hins mótsins efndi Chico State College, og þar var braut- in míla á lengd eða rúmlega 1600 metrar. Þar var Páll keppandi í C-flokki og var tími hans 65 sek- úndur, svo að hann hefir farið með yfir 90 km. hraða í keppn- inni. Annar að marki í C-flokki varð Armour Smith frá borginni Modesto, en hann var fjórum sekúndum á eftir Páli. Þegar Páll skrifaði heim um þetta, gat hann þess, að meðal keppenda í A-flokki 1 þessari keppni hefði verið maður nokk- ur að nafni Dick Buek, frá Sun Valley, en þar eru einhver beztu og þekktustu skíðalönd í Banda- ríkjunum, og skíðamenn þaðan meðal hinna beztu í Bandaríkj- unum. Buek var 22 sekúndum lengur en Páll, en hann varð samt meðal þeirra manna, sem Bandaríkin völdu til að fara á Olympíuleikana í Oslo í vetur. Á móti Chico State College varð Páll einnig sigurvegari í skíðastökki, svo að hann hefir bersýnilega getið sér hið bezta orð þarna. — VÍSIR, 16. apríl SKÁK OG MÁT Skáktaflið er mjög gömul í- þrótt. Við höfum vissu fyrir því, að Indverjar og Persar tefldu skák þegar á sjöundu öld, og vel má vera að íþrótt þessi sé enn eldri. Skákin er eins konar styrjöld á milli tveggja, jafn lið- sterkra aðila, sem ganga til or- ustu á vígvelli, sem skipt er niður í 64 jafn stóra reiti. Upp- runalega var taflmönnum skip- að til orustu á sama hátt og tíðkaðist liðskipan hjá indversk- um herjum. * * * Hver þátttakandi fyrir sig hafði yfir átta fótgönguliðs- mönnum að ráða, og voru þeir settir fremst í fylkingu. Að baki þeim stóð svo konungurinn og ráðgefandi foringi sinn til hvorr- ar hliðar, næstur í röðinni kom svo orustufill, þá hestur og stríðsvagn. * * * Áhrifa þessara gætir enn varð- andi mannaskipan í skáktaflinu. Það er einkennilegast við leik þennan, að takmarkið er ekki að eyða öllu liði fjandmannsins, heldur að taka foringjann — konunginn — höndum. Eru þá forlög hans ráðin samkvæmt orðunum „skák“ og „mát,“ en þau eru runnin úr arabísku: „Shah“ og „mat“, sem þýða: „Konungurinn er dauður.“ * * * I gömlu, indversku ævintýri er þannig sagt frá upphafi skák- taflsins: Tveir prinsar, sem voru sammæðra, en ekki samfeðra, — en þó báðir konungbornir, vildu báðir erfa konungsríkið. Hét annar bræðranna Talkland; hann var herskár og vígbjó nú allan þann liðstyrk gegn bróður sínum, er hann hafði yfir að ráða. Hinn bróðirinn, Gau, var maður friðsamur að eðlisfari, en varð þó vitanlega að verja hend- ur sínar. Gaf hann hermönnum sínum skipan um að gera sem minnst mannfall í liði bróður síns, og freista að taka hann til fanga, en gera honum ekkert mein. Gau hafði sigur í orust- unni, en bróðir hans framdi sjálfsmorð. , Drottningin, móðir þeirra, á- sakaði Gau um að hafa drepið bróður sinn og tók hann sér það mjög nærri. Til þess að sýna henni, svart á hvítu, hvern- ig orustan var háð, lét hann gera manntaflið. Þegar hann hafði háð orustuna á þessum grund- velli, fékk móðir hans svo mik- inn áhuga fyrir skák, að hún sat dögum saman við taflið og háði þar orustur með skákmönnum. Segir í ævintýrinu, að hún hafi að síðustu hnigið dauð niður við manntaflið.

x

Lögberg

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Lögberg
https://timarit.is/publication/132

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.