Lögberg - 22.05.1952, Síða 8
8
LOUBERG, FIMTUDAGINN, 22. MAÍ, 1952
Úr borg og bygð
Matreiðslubók, sem Dorcasfé-
lag Fyrsta lúterska safnaðar lét
undirbúa og gaf út; þegar þess
er gætt, hve bókin er frábærlega
vönduð að efni og ytri frágangi,
er það undrunarefni hve ódýr
hún er; kostar aðeins $1.50 að
viðbættu 15 centa burðargjaldi.
Pantanir, ásamt andvirði,
sendist:
Mrs. R. G. Pollock,
708 Banning St.
Winnipeg,
Sími 36 603
Miss Rulh Bárdah
5 — 54 Donald St.
Winnipeg.
Sími 929 037
☆
— GULLBRÚÐKAUP —
Mr. og Mrs. Paul Olson, Gimli,
Man., áttu 50 ára brúðkaupsaf-
mæli 9. maí. í tilefni þess söfn-
uðust vinir þeirra og vanda-
menn saman á heimili sonar
þeirra og tengdadóttur, Mr. og
Mrs. Paul Olson, Jr. 11. maí og
fluttu þeim árnaðaróskir og góð-
ar gjafir. Þau hjónin eiga átta
börn á lífi, 17 barnabörn og 1
barnabarnabarn. Tveir synir
þeirra, Paul og Teddy og ein
dóttir .Olga, búa á Gimli; Mrs.
E. A. Bjarnason og Mrs. Allan
McLachlan í Winnipeg; Mrs.
Lawrence Benson í B.C.; Mrs.
A. J. Lutz í Portland, Oregon og
Mrs. B. A. Bjarnason í Pueblo,
Colorado.
☆
— GIFTING —
Á laugardaginn, 10. maí, voru
gefin saman í hjónaband í lút-
ersku kirkjunni á Gimli þau
Eileen Clarie, elzta dóttir Mr.
og Mrs. T. Einarsson, Gimli, sem
bæði eru látin, og Einar Sigur-
jón, sonur Einars heitins Jóns-
sonar fylgisþingmanns og eftir-
lifandi konu hans Önnu Terge-
sen Jónasson. Sóknarpresturinn,
séra Harold S. Sigmar fram-
kvæmdi hjónavígsluna. Brúðar-
meyjar voru Lois Einarsson,
systir brúðarinnar og Miss Anna
Jóhannsson frá Winnipeg. Ken
Burns frá Winnipeg var svara-
maður brúðgumans. Mr. Norman
McLennan söng einsöngva, en
Mrs. Clifford Stevens var við
hljóðfærið.
Vegleg veizla var haldin í
Gimli Parish Hall og kvenfélag
safnaðarins framreiddi veiting-
arnar. Fjöldi utanbæjargesta
sótti brúðkaupið.
Brúðguminn hefir lokið prófi
í jarðbúnaðarfræði við Saskat-
chewan háskólann; heimili ungu
hjónanna verður á Gimli.
Þegar
vinir og frændur
handan hafs
þarfnasf peninga
Canadian Pacific
Express
Greiðslur til
úflanda
•
Heimsækið hvaða Can-
adian Pacific skrifstðfu,
sem er. Greiðið þá upp-
hæð, er þér viljið senda
og fáið kvitteringu.
Skrifstofan setur sig þeg-
ar í samband yið Can-
adian Pacific umboðs-
mann handan hafs og
greiðir hann vini yðar
eða frænda upphæðina
við gildandi gengi. Þetta
3r auðvelt og ábyggilegt.
Umboðsþóknun er lítil
og þér eruð trygðir gegn
tapi.
GíuwuCúmc &ac%Lc
Síðastliðna viku fóru þexr
Douglas Campbell forsætisráð-
herra Manitobafylkis, og Dr. S.
Thompson fylkisþingmaður á-
samt nokkrum öðrurh stjórnar-
mönnum til Hecla. Þeir ferðuð-
ust um þvera og endilanga eyj-
una og athuguðu jarðveginn, er
hin nýja braut liggur um. Töldu
þeir hann mjög frjósaman og
að hægt yrði í framtíðinni að
yrkja jörðina meir en gert hefir
verið fram að þessu. Ennfremur
létu þeir í veðri vaka, að ferja
til eyjarinnar myndi koma á
næstunni. Dr. Thompson hefir
borið hag eyjarinnar fyrir
brjósti og kunna búendur "þar
vel að meta það. — Það var ekki
fyrr en hann gerðist þingmaður,
að verulegar umbætur hafa ver-
ið gerðar þar í byggð: vegur
þvert yfir eyjuna og ferju-
bryggjur beggja vegna mjó-
sundsins og nú hin væntanlega
ferja. Þá var og ruddur vegur
í vetur norður og suður eyjuna
fyrir ofan byggðina til að ræsa
út vatnið, og gera mögulega jarð-
yrkju þar í framtíðinni. Þá mun
og fylkisstjórnin veita raforku
út til eyjarinnar í nálægri fram-
tíð. Þegar alt þetta er komið í
kring mun byggðin eiga blóm-
lega framtíð fyrir höndum, engu
síður en aðrar byggðir Nýja-
íslands.
☆
Nú virðist ráðið fram úr
prestsleysi Norður Ný íslend-
inga a. m. k í bili. Þangað er
nú kominn ungur guðfræðinemi
Virgil Anderson að nafni. Á
hann eftir eitt ár, áður en hann
lýkur námi við lúterska presta-
skólann í Minneapolis, en áður
hafði hann útskrifast frá St.
Olaf College í Northfield, Minn.
Þorbjörg, amma þessa unga
manns og séra Steingrímur heit.
Thorláksson voru systkin, en að
öðru - leyti standa að honum
norskar og sænskar ættir. Þessi
ungi maður mun dvelja í sumar
til skiptis í Riverton og Árborg,
og inna af hendi venjulega
prestsþjónustu innan þeirra tak-
marka, sem óvígðum mönnum
er heimiluð.
☆
Hér eru staddir kærkomnir
gestir frá íslandi, þau Jóhannes
Snorrason flugstjóri og kona
hans Alice dóttir Herberts Bald-
winssonar og konu hans í River-
ton; tvö börn þeirra hjóna eru
í för með þeim. Jóhannes hefir
getið sér ágætis orð á íslandi
fyrir nærgætni í að bregðast
fljótt við þegar mikið lá á, að
koma sjúklingum úr afskekkt-
um sveitum til læknishjálpar.
Þau hjónin ásamt börnum sínum
komu í einkaflugvél til Montreal
en þaðan með eimlest til Winni-
peg á fimtudaginn. Þau fóru
bílleiðis með þeim hjónum,
Marino og Ingibjörgu Thor-
valdson til Riverton í heimsókn
til foreldra og frændfólks frú
Alice og munu dvelja þar í þrjár
vikur. Jóhannes er sonur Snorra
Sigfússonar, námsstjóra á Akur-
eyri og látinnar konu hans; hann
nam flug á flugskóla Connie
Jóhannessonar í Winnipeg.
☆
August Clare Bjarnason, B.A.
frá Fronde, Saskatchewan út-
skrifaðist sem Bachelor of Com-
merce við vorprófin við Saskat-
chewan-háskólann.
☆
Á miðvikudaginn þann 14.
þ. m., lézt að heimili sínu
Blómsturvöllum í Geysisbygð
Svanberg Sigfússon óðalsbóndi
72 ára að aldri; hann lætur eftir
sig ekkju, Áslaugu, ásamt tveim-
ur sonum, Einari og Sigfúsi, og
þremur dætrum, Klöru (Mrs.
Ekenberg), búsettri í Californíu,
Svanlaugu (Mrs,- Eyjólfsson),
Riverton, og Jónínu (Mrs. Gísla-
son); þau búa á Blómsturvöll-
um; einnig lifa Svanberg tvær
systur, frú Indíana Kristinsson,
Árborg og Rrósa, búsett í
Winnipeg.
Útförin fór fram á laugardag-
inn frá heimilinu og kirkju
Geysissafnðaar. Séra Sigurður
Ólafsson jarðsöng.
Samsæti að Víðir
Nýlega var Mr. Jónasi Jónas-
syni, bónda að Víðir, haldið
meiriháttar samsæti í samkomu-
húsi byggðarinnar; voru þar
samankomnir hátt á níunda
hundrað manns. Mr. Jónasson
hefir verið dýralæknir þar í
sveit og sveitunum umhverfis í
meir en 30 ár og vildu vinir
hans sýna honum þannig virð-
ingu og votta honum þakklæti
sitt fyrir hans mikilvæga starf.
Þeir gáfu honum 1952 Plymouth
bíl og afhenti Mr. S. Wopnfjord
oddviti Bifröst-sveitar, heiðurs-
gestinum lyklana að bílnum og
ávarpaði hann hlýjum orðum.
Einnig tók þar til máls Mr. Helgi
Austman, búfræðingur; kvað
hann undursamlegt hve miklu
Mr. Jónasson hefði afkastað á
svo stóru svæði og með því
mikla starfi hefði hann aflað sér
fjölda vina, eins og samsætið
bæri vott um; hann sagði enn-
fremur, að Mr. Jónasson hefði
gefið gott fordæmi í búskapar-
aðferðum, að það væri mikið
honum að þakka, að þetta svæði
væri eins vel skipulagt gegn út-
breiðslu Bangs sýkinnar eins og
nokkurt annað svæði í Manitoba.
☆
Miss Alice Evangeline Sigurd-
son, dóttir Mr. og Mrs. Barney
Sigurdson, Gimli, Man., lauk ný-
lega prófi í hjúkrunarfræði við
Victoriu-spítalann; hún hlaut
heiðursverðlaun fyrir kunnáttu
í yfirsetufræði.
☆
William Carl Steinson hlaut
hæztu verðlaun í söng í músik-
samkeppni í Saskatchewan, fyr-
ir tveimur vikum — Justice
Brown Grand Award for Grade
A vocalists.
Þessi ungi og efnilegi söng-
maður er sonur S. W. Steinson,
fyrrum bónda frá Kandahar, en
nú búsettum í Saskatoon.
☆
Mr. og Mrs. Vilhjálmur Sigur-
geirsson komu frá Jasper, Al-
berta á sunnudagskvöldið, en
þar var Mr. Sigurgeirsson starfs-
maður fyrir Canadian National
Railways. Þau brugðu sér norð-
ur til Riverton í tveggja daga
heimsókn til foreldra og venzla-
liðs, en fara síðan austur til
Minaki, þar sem Mrs. Sigurgeirs-
son starfar sem vélfræðingur
fyrir ofangreint félag.
☆
Tulip teið, sem konur frá
Gimlisöfnuði héldu í Beaver-sal
Hudson Bay félagsins síðastliðna
viku, var mjög fjölsótt og
heppnaðist vel; er þetta víst í
fyrsta sinn að konur þaðan hafa
ráðist í að hafa þessháttar sam-
komu hér í bænum.
☆
Kinsmen klúbburinn á Gimli
lætur mikið til sín taka í alls
konar velferðarmálum; félags-
menn söfnuðu $1530.00 fyrir
páskamerki, en því fé er varið
til varnar gegn berklasjúkdóm-
um. — Mr. Eric Stefánsson er
forseti klúbbsins.
☆
Icelandic Canadian Club
Annual Meeiing
The annual meeting of the
Icelandic Canadian Club will be
held in the lower auditorium of
the First Federated Church,
Monday, May 26, at 8.15 p.m.,
sharp.
Officers reports will be pre-
sented, and the election of offi-
cers and standing committees
will take place. Following will
be musical entertainment, games
and refreshments.
This is a meeting for members
and prospective menrbers, and
all are urged to attend on this
important occasion.
☆
í fjarveru sóknarprestsins
messar séra Clifton Monk, skrif-
stofustjóri Canadian Lutheran
World Relief við árdegisguðs-
þjónustuna í Fyrstu lútersku
kirkju á sunnudaginn kemur,
25. maí, en, séra Rúnólfur Mar-
teinsson, D.D. flytur íslenzku
guðsþjónustuna kl. 7 að kvöldi
sama dags.
Halldór Johnson fasteignasali,
1034 Dominion St., lagði af stað
til íslands síðastliðinn mánudag;
í ferð með honum er sonur hans,
Thor. H. Johnson, nú búsettur
í Kingston, Ontario; sigla þeir
feðgar frá Montreal þann 23.
þessa mánaðar með s.s. Empress
of Scotland; þeir búast við að
verða 2 til 3 mánuði í ferðalag-
inu.
☆
— ÞJÓÐRÆKNISÞINGIÐ —
Eins og þegar hefir verið aug-
lýst í blöðunum verður hið ár-
lega þing Þjóðræknisfélagsins
haldið í Winnipeg dagana
2., 3., og 4. júní. Fara þingfundir
fram í Good Templars Hall á
Sargent Ave. Ágætar skemtanir
og fróðlegar fara fram tvö kveld-
in. Frón heldur sína samkomu á
mánudagskveldið, 2. júní, og
verður séra Valdimar J. Eylands
aðalræðumaður þá, en á sam-
komu Þjóðræknisfélagsins á
þriðjudagskveldið flytur vænt-
anlega ræðu séra Friðrik A.
Friðriksson frá Húsavík. Auk
þess munu á þsssum kveldum
verða fluttar stuttar ræður af
segulbandi eftir málsmetandi
menn á íslandi, er próf. Finn-
bogi Guðmundsson hefir látið
félaginu í té. Margt fleira verð-
ur til skemtunar þessi kveld og
verður frá því skýrt nánar í
blöðunum í næstu viku.
☆
Bergvin Vilhjálmur Johnson,
lézt að heimili sínu 847 Mc-
Dermot Avenue hér í borginni
á föstudaginn var, 16. maí. Hann
var 79 ára að aldri, fæddur að
Syðri-Tungu við Húsavík 14.
ágúst 1872. Til Canada kom
hann árið 1900, og bjó allan
sinn búskap, fram að árinu
1947, í Pipestone byggðinni.
Síðustu árin hefir hann átt
heima hér í borginni. Hann læt-
ur eftir sig ekkju, Kristjönu
Halldórsdóttur frá Félagsgarði
í Reykjavík, og 6 uppkomin
börn. Jarðarförin fór fram frá
útfararstofu Bardals á mánu-
daginn 19. þ. m. Séra Valdimar
•J. Eylands flutti hinztu kveðju-
orðin og jós hinn framliðna
moldu í Brookside grafreit.
☆
Mrs. Norma Sigurdson frá
Fort William, Ont., dvelur í
borginni þessa dagana ásamt
börnum sínum; kom hún hingað
í heimsókn til móður sinnar,
Mrs. B. S. Benson, 757 Home
Street. ☆
Þeir Páll Hallsson kaupmaður
og Benedikt Ólafsson málara-
meistariv leggja af stað flug-
leiðis til íslands á laugardaginn
kemur; ráðgerðu þeir að dvelja
rúman mánuð á íslandi. Páll er
ættaður úr Skagafirði en Bene-
dikt af Akranesi.
☆
Elliheimilið Höfn í Vancouver
vill fá forstöðukonu frá 1. júní
næstkomandi að telja. Um 25
manns eru í vist á heimilinu;
forgangsréttur veittur lærðri
hj úkrunarkonu.
Umsækjendur snúi sér til Mrs.
Thoru Orr, 2365 West Fourteent,
Vancouver, B.C., þar sem skýrt
sé frá hæfni, launakröfum og
aldri. ☆
Mrs. Rósa Jónasson, Kitson
Street, Norwood, er nýlega lögð
af stað í ferðalag vestur um
Kyrrahafsströnd og mun verða
nálægt tveimur mánuðum að
heiman. ☆
Maður kom með járnbrautar-
lest til Kansas og hann greip
með báðum höndum um hatt
sinn, því vindur blés mikið.
— Guð minn góður, sagði
hann, — blæs vindurinn alltaf
svona hérna í Kansas?
Innfæddur Kansasbúi: — ó,
nei, ekki alltaf. Hann blæs af
þessari átt í sex mánuði, og svo
snýst hann við og blæs af hinni
áttinni í sex mánuði.
☆
Betlari: — Frú, ég hefi ekki
séð matarbita í heila viku.
Frúin: — Heyrið þér, María,
viljið þér ekki sýna þessum
betlara matinn!
Guðrún: — Hvað er það, sem
þú hefir svona miklar áhyggjur
út af, Davíð minjn?
Davíð bóndi: — Ég var að
velta því fyrir mér, hvort hann
pabbi mundi vilja mjólka kýrn-
ar mínar á meðan við færum í
brúðkaupsferð, ef þú mundir
segja „já“, ef ég mundi spyrja
þig!
■ír
Ella: — Fólk segir að ég verði
yngri með hverjum degi, sem
líður.
Bella: — Það er engin furða,
fyrir mörgum árum varstu 30
ára og nú ertu orðin 25 ára!
☆
— Ekki mundi ég vilja vera í
yðar sporum, sagði reið kona við
nábúakonu sína, er þær voru
að rífast.
— Þér munduð heldur ekki
komast í mín sþor, þau eru svo
lítil, svaraði nábúakonan.
☆
Hann (með hendurnar yfir
augu hennar): — Ef þú getur
getið hver þetta er, með’því að
geta þrisvar, þá sleppurðu, en
ef þú getur ekki, þá 'ætla ég að
kyssa þig!
Hún: — Skallagrímur á Borg?
Gunnar á Hlíðarenda? Sæmund-
ur fróði?
☆
Páll prestur Tómasson, sem
var á Knappastöðum í Stíflu,
átti son, sem Páll hét. Páll yngri
var mjög elskur að hestum og
átti seinast ljósskjóttan hest,
sem var mikill vexti og ágætur
til reiðar, fallegur og svo fjör-
ugur, að oftast var hann nálega
óviðráðanlegur. — Á þeim árum
var oft róið í hákarl á vetrum
og legið frammi, eftir því sem
veður gáfust. Einhverju sinni
réðst Páll í slíka vetrarlegu, og
þar eð alllangt er frá Knappa-
stöðum til sjávar, tók hann
Ljósaskjóna út úr húsi frá góðu
eldi, en hann var alltaf kappal-
inn á vetrum. Svo brá við 1 þetta
skipti, að þegar Páll steig á bak,
var hesturinn svo níðlatur, að
hann gekk aðeins undan með
höggum, og svo var hann alla
leið til sjávar.
Skip það, sem Páll var ráðinn
á, fórst með allri áhöfn í legu
þessari og hefir aldrei spurzt til
þess síðan. — Hesturinn lifði
nokkur ár eftir þetta, en þótti
ávallt daufur og þungur 1
vöfum. (Gríma).
Séra Valdimar J. Eylands
Heimili 686 Banning Street.
Sími 30 744.
GuðSþjónustur á hverjum
sunnudegi:
Á ensku kl. 11 f. h.
Á íslenzku kl. 7 e. h.
☆
Lúierska kirkjan í Selkirk
Sunnud. 25. maí:
Sunnudagaskóli kl. 10 árd.
Ensk messa kl. 11 árd.
Ferming ungmenna
Altarisganga kl. 7 síðd.
Engin ræða.
Fólk boðið velkomið.
S. Ólafsson
☆
The Luiheran Church
in New Iceland
Sunday, May 25th
2 p.m. (Standard Time) Riverton
7 p.m. (Daylight Saving Time)
Gimli
8.30 p.m. (Standard Time)
Hnausa
Following all these services
there will be a meeting of the -
congregation to elect delegates
to the Synod Convention in
Minneota. Student Pastor Virgil
Anderson will preach at all
these services.
Sunday June lst (Whitsunday)
2 p.m. (Standard Time) Geysir
8.30 p.m. (Standard Time) Arborg
Congregational meeting will
follow.
Pasíor Anderson, Preaching
A service will be conducted
in Gimli June lst at 7 p.m. by
the Rev. E. Martin, RCAF
Chaplain.
☆
Séra Friðrik A. Friðriksson
prófastur á Húsavík í Þingeyjar-
sýslu flytur messu í Sambands-
kirkjunni hér í borg á sunnu-
dagskvöldið kemur kl. 7.
KIRKJUÞINGSBOÐ
Hið 68. ársþing hins Evangeliska lúlerska kirkjufélags
íslendinga í Vesturheimi verður haldið í Minneoia,
Minn. 29. júní til 2. júlí n.k.
Þingið hefst með guðsþjónustu kl. 11 á sunnudags-
morguninn 29. júní, — verður þá vígður til prests,
cand. theol. Stefán Guttormsson, sonur séra Guttorms
í Minneota. Á þriðjudagsmorguninn fara fram kosn-
ingar embættismannaj og er gert ráð fyrir að þingi
verði slitið u mhádegi þann dag.
öllum söfnuðum Kirkjufélagsins ber skylda til að
senda fulltrúa á þingið: einn fulltrúa fyrir hvern
söfnuð sem hefir minna en eitt hundrað fermda með-
limi, auk þess fulltrúa fyrir hvert hundrað meðlima
þar sem um fjölmennari söfnuði er að ræða; þó má
enginn söfnuður senda fleiri en fjóra fulltrúa.
Sendið nöfn erindreka til forseta félagsins séra E. H.
Fáfnis svo fljótt sem unt er.
HAROLD S. SIGMAR, skrifari
/