Lögberg - 06.06.1952, Side 1

Lögberg - 06.06.1952, Side 1
Frét+ir af ársþingi Þjóðræknisfélagsins Guðmundur Magnús Jónsson á Odda Nú er hann fallmn í feðranna reit, hún fækkar nú óðum sú nefnkenda sveit, sem ruddi þær byrjunar brautir. En sporin þau sjást enn> sem lýsa þá leið og landið er ræktað, og ferðin er greið, sem vanst gegnum þrekraun og þrautir. í fyrstu var óbyggðin útbreidd og stór, og enginn var þar, sem í launkofa fór um það, að hún mætti sín meira. En smá saman vanst þessum hugrakka her, að hrekja þau íllvætti burtu frá sér og saxið í koll þeirra keyra. Frumskógur „Odda“ þá ógnandi stóð, en einyrkja höndin þar valköstum hlóð með íslenzka tápið í taugum. Þó lífsraun og barátta mæddu oft mann, þær megnuðu aldrei að kaffæra hann með fullhugans fjörið í augum. Þér líkaði aldrei að láta þinn hlut, þú lágst aldrei niðri með árar í skut, en hélst móti hrönnunum breiðum. Þú hafðir, frændi, þann kjark og það kapp. IJr kröppustu torfærum margsinnis slapp þinn hugur á holskeflu leiðum. Þó sjaldan hjá klerkum með kirkjunnar völd, þú kæmir með auðmýkt að reisa þín tjöld á torgum og trúðara mótum. Einlægni og dáð, sem að alstaðar skín, var ættlandsins langbezta gjöfin til þín og gróandans rækt í þeim rótum. En íslenzkar hetjur þú elskaðir mest, og íslenzkar ferskeytlur hljómuðu bezt. Þú kvaðst þær á köldustu stundum, þú sagðir, þér fyndist þær hefðu það hljóð, sem hitaði bezt okkar norræna blóð og geymdu það gull, sem við fundum. Ég fann að þú áttir eins einlægan hug og örgeðja vængi, sem langar á flug, að lyfta upp í sólskinið sálum. Ég veit, að þú siglir úr hrakningum heim svo hugdyrfskufullur með sannleika þeim, að réttlætið miðlar þar málum. G. O. Einarsson Ársþing Þjóðræknisfélags ís- lendinga í Vesturheimi, hið þrí- tugasta og þriðja í röð, var sett kl. 10 f. h. í Goodtemplarahús- inu hér í borginni síðastliðinn mánudag við dágóða aðsókn. Forsæti skipaði forseti félagsins, séra Philip M. Pétursson. Dr. Rúnólfur Marteinsson flutti fagra bæn, en þingheimur söng sálmana þjóðkunnu, „Þín misk- unn, Ó, Guð,“ og „Faðir and- anna“; við hljóðfærið var Gunnar Erlendsson. Flutti þá forseti skýrslu sína yfir starf- semi félagsins á þeim 15 mán- uðum, sem liðnir voru frá þeim tíma, er síðasta þing á undan kom saman; var skýrslan samin af fullri einurð, og skyldi slíkt jafnan að makleikum metið; hún er birt í heilu lagi hér í blaðinu og veitist lesendum þess því þegar kostur að glöggva sig á innihaldi hennar; var því næst kosið í fastar nefndir, er seinna á þingi lögðu fram álitsskjöl sín og tillögur. Klukkan 4 síðdegis söfnuðust þingfulltrúar og allmargt ann- ara gesta saman í Fyrstu lút- ersku kirkju til að hlýða á minn- ingarathöfn um Svein Björnsson fyrsta forseta hins endurborna, íslenzka lýðveldis, er Þjóð- ræknisfélagið hafði stofnað til; var athöfnin um alt hin virðu- legasta og þeim öllum, sem að henni stóðu til sæmdar. Séra Valdimar J. Eylands hafði for- ustu samkomunnar með hönd- um og flutti hjartaheita og hríf- andi bæn. Dr. Richard Beck flutti snildar ræðu um hinn látna þjóðhöfðingja og rakti í megin dráttum nytsaman og litbrigða- ríkan æviferil hans; var ræðan íturhugsuð og hið bezta flutt. Þrír sálmar voru sungnir; við hljóðfærið var frú Björg Isfeld, en séra Valdimar lýsti drottin- legri blessun. Um kveldið efndi Þjóðræknis- deildin Frón til skemtisamkomu í Goodtemplarahúsinu, er var vel sótt og til skemtiskrár hafði verið vandað hið bezta. Frú Ingibjörg Jónsson stýrði samkomunni með ágætum. Séra Valdimar J. Eylands flutti Kommunistar háværir í Frakklandi Skömmu áður en Matthew B. Ridgway, eftirmaður Eisen- howers sem yfirhershöfðingi lýðræðisherjanna í Vestur- Evrópu, kom til Frakklands, stofnuðu franskir kommúnistar til mótmælafunda víðsvegar um landið og höfðu alt ilt á hornum sér; kölluðu þeir hershöfðingj- ann launaðan stríðsæsingamann, er nær sem verða vildi yrði þess albúinn, að hleypa þriðju heims- styrjöldinni af stokkunum; mest kvað að óspektunum í París, og sló þar tíðum í brýnu milli rauð- liða og lögreglunnar, sem aukin hafði verið að mun; endalok urðu þau, að aðalforingi komm- únista, Duclos, var handtekinn, og er mælt, að í fórum hans hafi fundist ýmiss konar skjöl, er báru vott um skipulagt sam- særi gegn ríkisvaldinu, og getur auðveldlega svo farið*, að hann verði sakaður um landráð; á annað þúsund kommúnistar víðs vegar um landið voru teknir úr umferð og settir í svartholið. snjalla og kröftuga ræðu; Mrs. Pearl Johnson skemti með yndis- legum söngvum; Harald Jónas- son með knéfiðluleik; er hann vaxandi maður í list sinni; þá þótti víst flestum nýnæmi, að heyra Tímóteus Böðvarsson kveða rímur; til nýlundu mátti það teljast, að hlusta á raddir íslands af segulbandi, en þar gafst samkomugestum þess kost- ur að hlýða á Árna G. Eylands og séra Jakob Jónsson, en þeir prófessorarnir Áskell Löve og Finnbogi Guðmundsson, kyntu ræðumennina. Á morgunfundi félagsins á þriðjudaginn flutti W. J. Lindal dómari vandað og fróðlegt yfir- lit yfir starfsaðferðir fjársöfn- unarnefndarinnar í kenslustóls- málinu, skýrði frá hvernig söfn- uninni nú væri komið og í raun- inni skorti aðeins herzlumuninn unz takmarkinu yrði náð; dáði dómarinn mjög eindrægni ís- lendinga í málinu og þá gest- risni, er safnendur hvarvetna hefðu notið. Líndal dómari flutti skýrslu sína á ágætri íslenzku, og Dr. Thorlakson þakkaði hon- um á íslenzku; væri synd að segja, að þeim yrði „fótaskortur á tungunni,“ eins og K. K. myndi hafa orðað það. Á þriðjudagskvöldið efndi Þjóðræknisfélagið til skemti- samkomu í Fyrstu lútersku kirkju undir forsæti Dr. Tryggva J. Olesqjt. er. var vel sótt og þótti takast hið bezta; ræðu- maður var séra Friðrik A. Frið- riksson sóknarprestur á Húsavík. Kveðjusamsæti Á miðvikudagskvöldið í fyrri viku var þeim hjónunum Páli S. Pálssyni skáldi og frú Ólínu Pálsson, haldið fjölmennt kveðju samsæti í Sambandskirkjunni hér í borg, en þá voru þau, eftir langa búsetu í Winnipeg, í þann veginn að flytja alfarin til Gimil. Séra Philip M. Pétursson hafði samkvæmisstjórn með höndum; fagran einsöng söng frú Alma Gíslason, en við hljóðfærið var ungfrú Evelyn Thorvaldson. Ungfrú Anna Stefánsson af- henti frú Ólínu forkunnar fagr- an blómvönd, en ræður fluttu auk séra Philips Gunnar Er- lendsson og Jakob F. Kristjáns- son, er allar báru vott um inni- lega vinsemd í garð heiðurs- gestanna, er sæmd voru verð- mætum gjöfum, vönduðu við- tæki og nokkrum sjóði; þau Páll og ólína þökkuðu hvort um sig þá velvild, er samsætið bæri svo ljósan vott; þau hafa um langan aldur tekið virkan þátt í íslenzk- um mannfélagsmálum og hlíft sér lítt; hinir mörgu vinir þeirra hér um slóðir árna þeim far- sællar framtíðar á Gimli. Veitingar voru hinar rausnar- legustu. Verkfall hafið í byrjun vikunnar hófst á ný verkfall í stáliðnaði Bandaríkj- anna, en eins og vitað er, lagði Truman forseti hald á stálverk- smiðjurnar í aprílmánuði síðast- liðnum og lét starfrækja þær í nafni ríkisvaldsins; nú hefir hæzti réttur felt þann úrskurð, að forseta hafi skort stjórnskipu- lega heimild til að taka áminsta ákvörðun. Jafn skjótt og hljóðbært varð um úrskurð hæztaréttar hófst verkfallið. - Lýkur prófi í hjúkrunarfræði Mrs. Isabella Goodman Chruickshank Þessi unga og glæsilega kona lauk fyrir skömmu fullnaðar- prófi í hjúkrunarfræði við Grace spítalann hér í borginni með ágætiseinkunn og hlaut auk þess gullmedalíu vegna frábærrar þekkingar sinnar og hæfni í yfirsetufræði; foreldrar hennar eru þau mætu hjón, Júlíus Goodman skipasmiður í St. James og frú Björg Goodman. Fágætt merkisafmæli Næstkomandi laugardag, þ. 7. júní, verður landnámsöldungur- inn Kristján G. Kristjánsson, sem áratugum saman hefir ver- ið búsettur í Eyford-byggðinni íslenzku í Norður-Dakota, 102 ára gamall. Samdægurs eiga þau hjónin, Kristján og Svan- fríður Jónsdóttir kona hans, 75 ára hjúskparafmæli. Er hér því í tvennum skilningi um fágætt merkisafmæli að ræða. Þau Kristján og Svanfríður eiga sér að baki langa sögu og mikla, sem engin skil verða gerð í örstuttri afmælisgrein, er það eitt er ætlað að vera heillaósk og vinakveðja. Þessir ágætu og mikilsmetnu frumherjar flutt- ust vestur um haf á hinum allra fyrstu landnámsárum, og voru landnemar í tveim meginbyggð- um íslendinga, Nýja-íslandi og Norður-Dakota. Með full- um rétti má því segja, að saga þeirra hjóna sé samanofin sogu íslendinga í Vesturheimi, og sjálf hafa þau átt sinn mikla þátt í að skapa þá sögu. Stendur nú skjólgarð um þau í hárri elli fjölmennur og mannvænlegur niðjahópur. Þau Kristján og Svanfríður eru einnig ágætir fulltrúar og per- sónugerfingar hins bezta og feg- ursta í íslenzkri sveitamenningu og íslenzku eðli, rótgróins menn- ingar- og bókmenntaáhuga, og traustrar og göfugrar skapgerð- ar; hafa þau einnig, sem vænta mátti, haldið órofa tryggð við ættjörðina og menningarerfðina íslenzku. Hlýir þakkarhugir og virð- ingar streyma því til þessara aldurhnignu sæmdarhjóna úr mörgum áttum á þessum tví- helga afmælisdegi þeirra. Sveit- ungar þeirra að fornu og nýju hylla þau heilum huga; undir það taka ritstjóri og lesendur þessa blaðs og vafalaust einnig landar þeirra hjóna alment hér í álfu. Og mér, sem fulltrúa Is- lands í Norður-Dakota, er ljúft að flytja landnámshjónunum, sem verið hafa svo ágætir merk- isberar íslenzks anda og mann- Býður sig fram til þings Magnús Elíasson Nú er það fullráðið, að Magnús Elíasson, sem búsettur er í Van- couver, bjóði sig fram sem þing- mannsefni af hálfu C.C.F. flokks- ins í Fernie-kjördæminu við kosningar þær til fylkisþings, sem fram fara í British Colum- bia þann 12. yfirstandandi mán- aðar. Magnús er fæddur í Árnes- bygðinni í Nýja-Islandi, sonur Guðmundar Elíassonar, sem nú dvelur á elliheimilinU Höfn í Vancouver; hann er mælskur maður meir en alment gerist og drengur hinn bezti. dóms, hugheilustu kveðjur og blessunaróskir ríkisstjórnar ís- lands og heimaþjóðarinnar. Megi hinn fágæti afmælisdagur verða þeim mildur og bjartur eins og þau hafa svo ríkulega áunnið sér! Richard Beck ískyggilegar horfur í Berlín Að fyrirmælum húsbænda sinna, rússneskra kommúnista, hafa íbúar Austur-Þýzkalands hert allmjög að samgöngum við vesturhluta landsins og hefir lögreglu rauðliða verið heimilað að skjóta til dauðs hvern þann mann, að vestan, er kynni að fyrirfinnast á hinu svonefnda hlutleysissvæði, sem er liðlega þrjár mílur á breidd; teljast kommúnistar hafa orðið til þess neyddir að taka þessar ákvarð- anir eftir að Bonnstjórnin undir- skrifaði friðarsáttmálann við stórveldin þrjú, sem útiloki sam- einingu Þýzkalands og geti fyr en síðar leitt til nýrra blóðs- úthellinga. Heilir á húfi Um þær mundir, er fiskiveiða- flotinn var nýlagður af stað til verstöðva á Winnipegvatni, gerði afspyrnurok, og slitnuðu tveir bátar úr togi frá dráttar- skipinu Wild Knight, sem er eign Keystone Fisheries Limi- ted; lögðu bátarnir af stað frá Selkirk norður á bóginn þann 27. maí síðastliðinn og voru eitt- hvað um átta mílur austan við Winnipeg Beach, er dráttarlínan slitnaði eða skorið var á hana. Leit með flugvélum frá Gimli var brátt hafin án þess að ár- angur bæri; en til allrar ham- ingju komu mennirir fram, en þeir voru þrír, heilir á húfi og höfðu fundið sér trygga bæki- stöð í Rauðárósum; tveir mann- anna voru frá Hodgson, en sá þriðji frá Selkirk. Lýkur prófi með heiðri John Wilroy Hafliðason Nýverið lauk prófi í Chemical Engineering með fyrstu ágætis- einkunn við McGill háskólann í Montreal, John Wilroy Haf- liðason, sonur þeirra Jóns og Guðrúnar Hafliðason, Ste^ 15 Marie Apts. hér í borg. Þessi duglegi námsmaður er fæddur í Winnipeg 17. maí 1929. Mr. Hafliðason hefir þegar tek- ist á hendur ábyrgðarstöðu hjá umfangsmiklu Chemical Comp- any í Los Angeles, Cal., og lagði af stað suður þangað í byrjun vikunnar. Leiðréffing og fleira Fyrir mörgum árum var and- láts Þórunnar Jónsdóttur föður- systur minnar getið í Almanaki Ó. S. Thorgeirssonar og hún Dar nefnd Illugadóttir, og hefir íún þar af leiðandi verið nefnd ranglega Illugadóttir í ævi- minningum tveggja sona henn- ar — Jóns og Jónatans. Afi minn Jón Illugason átti systur sem Ólöf Illugadóttir hét; hún giftist Jósef lækni Skapta- son á Hnausum. Voru því eðli- ega Skapti Jósefsson á Hnaus- um og faðir minn systkinasynir; var vinfengi með þeim og skrif- uðust þeir á. Nokkuð af efni úr bréfum Skapta, sem komu ::ram eftir lát föður míns, var um Ameríkuferðir, sem um þær mundir voru efst á baugi, og var oft rætt um þær af miklum hita, 3Ó Gröndal og Jón Ólafsson tækju þar af skarið. Jón svaraði Gröndal í prentuðum bæklingi og lét hann fylgja blaðinu „SKULD“, sem Jón gaf þá út, og stóð á kápu bæklingsins: — „Benedikt Gröndal húðstrýktur og settur í gapastokk.“ Ofannefnd bréf eru nú því miður glötuð, en mér er minnis- stæð ein setning, þar sem Skapti segir: „Ekki hugsa ég til því- líkrar svaðilfarar.“ Oft hefi ég séð í blöðunum áeggjan um að geyma bækur og myndir, sem Islendingar eiga, en eyðileggja þær ekki, svo að sær geti orðið til fróðleiks fyrir framtíðina, og er það skynsam- leg og rétt hugsun. En lítið eða ekkert hefir verið minnst á varðveizlu sendibréfa. Væri nú ekki vel til fallið að Þjóðræknisfélagið færi þess á leit við deildarstjóra félagsins, að þeir söfnuðu saman geymzlu- verðum bréfum hver í sinni deild og sendu þau til aðalfélagsins til öruggrar geymzlu? 24. maí 1952 J. A. Vopnl Sumarvertíð hefst Þann 3. þ. m. hófust hvítfisk- veiðar á Winnipegvatni og er það viku fyr en venja hefir verið til og vertíðinni lýkur 26. júlí.

x

Lögberg

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Lögberg
https://timarit.is/publication/132

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.