Lögberg - 06.06.1952, Page 2

Lögberg - 06.06.1952, Page 2
2 LÖGBERG, FIMTUDAGINN, 6. JÚNÍ, 1952 Heilbrigðismálastofnun S. Þ. Skýrslur hennar sýna, að Svíar og Islendingar eru komnir allra þjóða lengst í baráttunni gegn barnadauðanum. Þann 7. apríl var alþjóða-heil- brigðisdagurinn. í fjórða skipti er dagur þessi haldinn hátíðleg- ur, ekki til þess að skapa umtal um WHO, Alþjóðaheilbrigðis- málastofnun S. Þ., heldur til að minna alla á það, hve mikið veltur á því, að hver og einn geri sitt til að auka heilbrigði, hrein- læti og heilsu í heiminum. Hugmyndin um alþjóðlegan heilbrigðisdag er komin frá ír- an. Er fyrsta ráðstefna S. Þ. um heilbrigðismál var heldin 7. apríl 1948, lagði fulltrúi írans til, að samkomudagur ráðstefn- unnar yrði gerður að sérstökum merkisdegi, og æ fleiri þjóðir hafa aðhyllzt hugmyndina. í eftirfarandi yfirliti frá upp- lýsingaskrifstofu S. Þ. í Kaup- mannahöfn er nokkuð greint frá verkefni WHO og ástandi heil- brigðismálanna í heiminum: Þrír fjórðu hlular mannkynsins þjást af sjúkdómum Dr. Brock Chrisholm, for- stjóri Alþjóðaheilbrigðismála- stofnunarinnar, WHO, er frum- herji og hefir að baki sér langa reynslu í heilbrigðisstarfsemi á alþjóðlegum grundvelli. I tilefni dagsins segir hann m. a.: „Heilbrigt umhevrfi skapar heilbrigt fólk“ — þetta eru víg- orðin fyrir heilbrigðisdaginn 1952 — og það beinir öllum þjóð- um að sama markinu. Það segý- í sjálfu sér nokkuð um þau vandamál, sem leysa þarf til þess að starfið, sem unnið er við að bæta heilsufarið í heiminum, geti heppnazt. Þrátt fyrir hinar ótrúlega miklu framfarir á sviði lækna- vísinda og sjúkdómvarna þjást enn þann dag í dag þrír fjórðu hlutar allra karla, kvenna og barna í heiminum af sjúkdóm- um, sem berast með óhreinu vatni, vegna skorts á persónu- legu hreinlæti, með skordýrum, músum og rottum og í óvarinni mjólk og mat. Ábyrgðin á því, að slíkur fjöldi mannslífa fer forgörðum og vinnuafl tapast, hvílir á okkur öllum, sem með- limum fjölskyldu okkar, sem borgurum bæja eða þorpa okkar og sem samborgurum í heimi, sem stöðugt verður minni og minni eftir því sem samgöngu- tækin verða betri. Hvort sem við lifum í þjóðfé- lagi mikilla framfara eða ekki, er það skylda bæði gagnvart okkur sjálfum og nágrönnum okkar, að gæta ýtrustu varúðar í heilbrigðismálum. Haldið hús- inu hreinu, búðinni hreinni, verksmiðjunni hreinni, haldið umhverfinu öllu hreinu og þar með uppfyllið þið fyrstu skil- yrðin fyrir heilbrigði heima og í bæjarfélaginu.“ Betri heilsuvernd — lengra líf Síðastliðin 20 ár hefir þróun sjúkdómsvarna og læknavísinda verið mjög ör, en samt sem áður er sú þróun aðeins á byrjunar- stigi ennþá. Enda þótt svo sé, má greinilega sjá árangur henn- ar í alþjóðaskýrslum um sjúk- dóma og dauðsföll, sem hagstofa S. Þ. hefir nýlega sent frá sér. Þessar skýrslur eru teknar sam- an í „Monthly Bulletin of Statistics“ fyrir marz 1952. í skýrslunni er gerður saman- burður á tölum um dauðsföll í 89 löndum á tímabilinu 1930—32 og tímabilinu 1948—50 og hvar- vetna er þróunin sú sama; æ færri deyja og fólk verður eldra. Einungis síðari heimsstyrjöldin og þær farsóttir, sem fylgdu í fótspor hennar, hefir getað rask- að hlutföllunum, en þó einungis í þeim löndum, sem urðu fyrir sprengiregni eða voru vígvöllur, þar sem allt skipulegt þjóðfélags líf var fótum troðið. I öðrum löndum, sem þátt tóku í síðari styrjöldinni — þar á meðal í Bandaríkjunum og Ástralíu — var það einungis dánartala ungra manna, sem hækkaði — víg- stöðvarnar, loftið og heimshöfin hjuggu stór skörð í fylkingar þeirra. Eftir styrjöldina hefir endur- reisnarstarfið gengið mjög vel. Á tímabilinu 1948—50 var þó enn mikið óunnið, á þeim árum var mikl uafkastað. Skýrslurnar greina frá mikilli framför á þess- um þremur árum og dánartalan lækkar ört. Á tímabilinu 1930— 1932 dóu til jafnaðar 18,9 af þús- undi á ári hverju. Á tímabilinu 1948—50 hafði dánartalan lækk- að niður í 13,7 af þúsundi. Miklar framfarir Tuttugu ár eru ekki langur tími í þróunarsögu mannkyns- ins. En samt sem áður hefir á þessum stutta tíma tekizt að lækka dánartöluna um næstum helming í sumum löndum. í átta ríkjum, sem skýrslurnar ná til, lækkaði dánartalan um 40% eða meira. I 23 löndum lækkaði dán- ar talan um 20% á þessu tíma- bili. Mest var lækkun dánartöl- unnar í löndum, þar sem heilsu- vernd og sjúkdómavarnir höfðu verið mjög litlar og hægt var að auka þær skjótlega. Erfiðisvinna virðist aðeins að nokkru leyti eiga sök á því, að karlar deyja fyrr en konur. Ekkjur eru fleiri en ekklar. Og fleiri sveinbörn fæðast andvana en meybörn. Enginn hefir enn getað veitt fullnægjandi skýr- ingu á þessu fyrirbæri, en stað- reyndin er augljós í hagskýrsl- um S. Þ. Fyrsta æviárið Fyrsta æviárið er ávallt lífs- hættulegast. Allt fram til 1930 dóu 10 af hverjum 100 börnum á fyrsta aldursári í helrpingi þeirra landa, sem gerðu skýrslur um dauðsföll. í einu landi var dánartalan 30 af hverjum 100 börnum. Nú hafa orðið miklar breytingar í þessu efni vegna framfara í læknavísindum og sjúkdómsvörnum og á Alþjóða- heilbrigðismálastofnunin sinn mikla þátt í því. Meðal landanna með lægstan ungbarnadauða í heimi eru Svíþjóð, en þar er dánartala ungbarna 23,3 ag þús- undi, og ísland, en þar er dánar- ungbarna 23,9 af þúsundi. Aukin barátta gegn sjúkdóm- um og aukin heilsuvernd skap- ar ný vandamál. Þjóðfélagið eld- ist, smám sáman verða æ fleiri íbúanna gamalt fólk. Þessi þró- un hefir valdið miklum erfið- leikum fyrir þá, sem ganga frá löggjöf á sviði félagsmála. - Hversu mikil áhrif þessi vanda- mál kunna að fá, má gera sér í hugarlund af síðustu tölunum í þessum hagskýrslum S. Þ. — tölunum, sem greina frá hækk- andi meðalaldri. í nokkrum löndum hefir meðalaldurinn hækkað um 20 ár frá áramót- um. 1 Hollandi lifa menn lengst, verða karlmenn að meðaltali 69 ára og 5 mánaða og konur 71 árs og 6 mánaða. —TÍMINN, 4. apríl SKÚLI GUÐMUNDSSON: Jakob H. Líndal á Lækjamóti Kaupið Lögberg Vísindamaður í bændastétt, sem lengi var í hópi hinna merk- ustu forvígismanna í félagsmál- um bænda, hvarf sjónum okkar á síðastliðnu ári. Maður þessi var Jakob H. Líndal, bóndi og hrepp- stjóri, á Læjamóti í Víðidal. Jakob fæddist á Steiná í Svart- árdal í Húnavatnssýslu, 18. maí 1880. Foreldrar hans voru hjón- in Hans Baldvinsson og Anna Pétursdóttir. Þau fluttust til Skagafjarðar þegar Jakob var barn að aldri, og bjuggu á Hrólfs stöðum í Blönduhlíð. Tvítugur að aldri fór Jakob til náms í Möðruvallaskóla og lauk góðu prófi þaðan vorið 1903. Veturinn eftir var hann við nám í búnaðarskóla/ium á Hólum og tók búfræðipróf það- an 1904. Næstu tvö árin var hann heima í Skagafirði, og vann þá m. a. að garðrækt, sem forstöðumaður garðyrkjufélags í Seyluhreppi. Þar gerði hann ræktunartilraunir við jarðhita. Síðan fór Jakob utan og á árun- um 1906—1908 var hann við nám í lýðháskólanum í Askov í Dan- mörku og búnaðarháskólanum í Ási í Noregi. Skömmu eftir heimkomuna frá námi utanlands varð Jakob framkvæmdarstjóri Ræktunar- félags Norðurlands á Akureyri. Gegndi hann því starfi frá 1910 til 1917, en þá fluttist hann vest- ur í Húnavatnssýslu, varð bóndi á Lækjamóti í Víðidal og bjó þar til dánardægurs. Hann var hreppstjóri Þorkelshólshrepps 28 síðustu ár ævinnar, átti lengi sæti í sýslunefnd og vann mikið að samvinnu- og búnaðarmálum. Var lengi formaður búnaðarfé- lags í sveit sinni og átti sæti í stjórn búnaðarsambands sýsl- unnar. Jakob Líndal var búnaðar- þingsfulltrúi fyrir Húnvetninga 1924—1946 og endurskoðandi Búnaðarfélags Islands 1925— 1939. Hann var fulltrúi á stofn- fundi Stéttarsambands bænda 1945 og á aðalfundum sambands- ins árin 1947, 1948 og 1949. Jakob á Lækjamóti var hæfi- leika- og mannkostamaður. öll þau störf, sem honum voru falin, vann hann með samvizkusemi og vandvirkni. Hugur hans stefndi einkum að rannsóknar- störfum og vísindaiðkunum, og þeim helgaði hann krafta sína að miklu leyti síðari hluta æv- innar. Árið 1931 var hann um tíma við jarðvegsrannsóknir í vísindastofnun í Kaupmanna- höfn, og eftir það vann hann mikið og merkilegt starf við jarðvegs- og jarðfræðirannsókn- ir, samhliða búskapnum og mörgum trúnaðarstörfum í þágu almennings. Á hverju ári ferð- aðist hann um byggðir og ó- byggðir, til rannsókna á jarð- vegi og jarðlögum. Ritgerðir um þau efni birti hann í blöðum og tímaritum, t. d. skrifaði hann grein í Náttúrufræðinginn árið 1935 um móbergsmyndanir og steingervinga í Bakkabrúnum í Víðidal. Og árið 1939 ritaði hann grein um það efni á ensku í brezkt vísindarit, Geologial Journal í London. Jakob hafði mikinn áhuga fyrir ræktun landsins, og honum var það vel ljóst, að ræktunarframkvæmdir og búreksturinn yfirleitt þarf að byggja á nákvæmri þekkingu á landinu og gæðum þess, til þess að árangurinn verði sem beztur. Það var hvorutveggja, fróðleiks- þrá og löngun til að ryðja braut hagnýtum nýjungum, sem leiddi huga hans að jarðfræðilegum at- hugunum, og í niðurstöðum þeirra rannsókna lét hann þjóð sinni eftir merkilegan arf, sem vafalaust kemur að notum komandi tímum. Jakob Líndal kvæntist árið 1914, Jónínu Sigurðardóttur frá Lækjamóti. Hún lézt árið 1950. Börn þeirra eru þrjú: Sigurður, bóndi á Lækjamóti, Margrét og Baldur, búsett í Reykjavík. Jakob lézt á heimili dóttur sinnar í Reykjavík, 13. marz 1951. Hann var jarðaður í heim- ilisgrafreit á Lækjamóti 29. dag þess sama mánaðar. FREYR, Aprílheftið 1952 Furðuverka stofnunin Þar sem vísindin eru að skapa heiminum betri lífskjör Það var eitt sinn um kvöld, að maður, sem var á ferð á bif- hjóli í'Washington, sá að eldur var laus skammt frá einni aðal- götunni — Connecticut Avenue. Hann flýtti sér sem mest hann mátti að næsta brunaboða og kvaddi slökkviliðið á vettvang. Þegar slökkviliðið kom sá það að þarna stóð lítið múrhús í björtu báli. — Umhverfis eldinn stóðu nokkrir menn, þeir voru hinir rólegustu og gerðu enga tilraun að slökkva bálið. Og ein- kennilegt þótti slökkviliðinu, að þeir voru með ýmis mælitæki, sem fest voru við vírtaugar, er komu út úr eldinum. „Við höfum kveikt viljandi í þessu húsi,“ sagði einn af mönn- unum. „Þetta er tilraun sem við erum að gera til þess að sjá hvaða byggingarefni eru óeld- fimust. Þessar vírtaugar, sem ná inn í eldinn sýna okkur hvað hitinn er mikill inni í bálinu. Við erum starfsmenn National Bureau of Standards.“ Frekari skýringa þurfti ekki við. — Allir þekkja National Bureu of Standards, hina þjóð- legu vísindastofnun, sem nú hef- ir starfað í 50 ár (stofnuð alda- mótaárið) og hefir nú í þjónustu sinni 1600 vísindamenn, sem starfa að nýjum uppgötvunum, sem geta orðið alþjóð til bless- unar. Störf stofnunarinnar Einn af starfsmönnum hennar hefir sagt: „Með hinum ná- kvæmustu áhöldum, sem til eru, leitum vér uppi hina mestu ná- kvæmni í öllum hlutum, en all- ar framfarir í vísindum og iðn- aði eru undir þeirri nákvæmni komnar, þegar öllu er á botninn hvolft.“ Annars er starf stofnunarinn- ar að mestu leyti þríþætt. Eins og nafn hennar bendir til á hún að ákveða hin hárfínustu mælitæki — lengd þumlungsins og þunga pundsins. Hún ákveð- ur einnig einingar hitamælinga, frá hinum „kaldasta kulda“ 459.6 stig á Fahrenheit upp í þanil hita er bræðir allar stein- tegundir (6000 stig eða meira). Hún ákveður nákvæmar mæl- ingar á rafmagni. í öðru lagi ákveður hún gæði alls konar varnings, alt frá rit- vélum niður í gjarðajárn. Og í þriðja lagi gerir hún margvíslegar rannsóknir á öll- um sviðum, allt frá því að leysa kjarnorku úr læðingi til frið- samlegra starfa og niður í það að útskýra hreinsunarhæfileika sápu. Hún vinnur einnig að því að finna upp ný vopn, þar á meðal fjarstýrð flugskeyti. Um mörg af þeim vopnum, sem stofnun- in hefir hjálpað til að finna upp, er farið svo leynt að ekki er nema á fárra vitorði. Mál og vog Á miðöldunum jafngilti eitt fet lengdinni á spori manns og einn faðmur var lengdin milli fingurgóma hans, þegar að hann rét^i út hendurnar. Þetta var svo sem ekki nákvæmt mál, því að það fór alveg eftir stærð manna. Á fyrri hluta 19. aldar var jafnvel enn svo mikil óregla á máli, að eitt bushel í Suður- Karolina var 68 teningsþuml- ungum stærra en í New York ríki. Eitt pund af kartöflum vóg þá minna í Massachusetts en í Maine. Og vegna þess að toll- gæzlan í hinum ýmsu ríkjum notaði mismunandi mál og vog, tapaði stjórnin stórfé í tollum á hverju ári. En nú er svo komið að öll hin tæknilega menning mundi hrynja í rústir, ef ekki væri ná- kvæm mál fyrir allt: lengd, þunga, tíma, hitastig, raforku, bylgjulengd og útgeislun frum- efna. Bandaríkjamenn nota rafmagn fyrir 4 milljarða dollara á ári. Ef mælingu rafmagnsins skeik- aði, þó ekki væri nema um einn hundraðasta hluta, þá mundu raforkufélögin eða almenning- ur tapa 40 milljónum dollara á ári. En nú er ekki hætta á þessu vegna hinna nákvæmu mæli- tækja, sem stofnunin hefir á- kveðið. Ef bylgjulengd útvarpsstöðva og sjónvarpsstöðva er ekki hár- nákvæm, mundi allt fara í ó- lestri með útsendingu. En allar útvarpsstöðvar halda nú þeirri tíðni, sem stofnunin hefir ákveð- ið og geta því útvarpað allan sólarhringinn. Þessi tíðni er svo nákvæm, að ekki getur skakk- að nema 2 hlutum af hverjum 100 milljónum. Hún er mæld með áhöldum, sem geymd eru svo að hvorki hiti né loftþrýst- ingur geti haft áhrif á þau. Þegar læknar taka blóðsýnis- horn til þess að athuga hvort heilsa yðar sé í lagi, þá telja þeir hvítu og rauðu blóðkornin í sýnishorninu. Þetta væri þýðing- arlaust nema því aðeins að ná- kvæmlega ákveðið magn af blóði væri athugað. Stofnunin sér læknum fyrir slíkum blóð- mælitækjum. Metri og kölógram Enda þótt fet sé lengdareining í Bandaríkjunum og pundið þyngdareining, þá hefir stofnun- in ekki gert löggilt mál og vog fyrir það, heldur fyrir metra og kílógram. Eru þessi mælitæki geymd í loftþéttum skápum. Kílógram-lóðið má aldrei snerta með beru mhöndum, vegna þess að sviti af fingurgómum manna gæti breytt þyngd þess, af því að hann mundi loða við það. Þegar lóðið er tekið út ffr skápn- um, er það gert með töng, og tveir menn eru látnir bera það svo að öruggt sé að það detti ekki í gólfið þótt annar hrasaði eða fengi aðsvif. Þegar það er lagt á vogarskál, til þess að ganga úr skugga um hvort ann- að lóð hafi rétta þyngd, þá stendur maðurinn sem þetta gerir í 10 feta fjarlægð, svo að hitinn af líkama hans geti ekki haft nein áhirf á lóðin. Og þótt enginn hafi séð raf- magn né viti hvað það er, þá hefir þó stofnuninni tekizt að mæla það nákvæmlega og gera nákvæm mælitæki fyrir það. Óstöðugleiki sekúndunnar Það er mjög áríandi á þessari véla- og geislaöld að geta vitað nákvæmlega hvað ein sekúnda er löng. Á því veltur notkun radartækja og bergmálsdýptar- mæla, svo að nokkuð sé nefnt. Þegar um notkun bergmáls- dýptarmæla er að ræða, verða menn að vita upp á hár hvað hljóðbylgjan fer langt á hverri sekúndu, og til þess að geta mælt dýpið rétt, verður lengd sekúndunnar að vera hárrétt. Stofnunin hefir ákveðið lengd sekúndunnar eftir snúnings- hraða jarðar. En því miður er þetta ekki óyggjandi mál er til lengdar lætur, því að snúnings- hraði jarðar er dálítið breyti- legur og hún er að smáhægja á sér, vegna þess viðnáms ,sem sjávarföll valda' á grunnsævi. Vísindum nútímans er það afar áríðandi að tímamálið sé rétt, t. d. þegar þau eru að mæla hraða ljóssins, en hann nota þau sem lengdarstiku til þess að mæla fjarlægðir himingeimsins. Og nú hefir stofnunin fundið ó- yggjandi tímamæli með aðstoð kjarnorkuvísindanna. Þessi tímamælir miðast við bylgjulengd í grænum geislum, sem stafa frá nýjum atómum, sem menn hafa framleitt og kalla „mercury 198“. Allir geisl- ar fara í bylgjum, líkt og öldur á vatni, og bylgjulengdin kallast millibil öldutoppanna. Bylgju- lengd græna ljóssins í „mercury 198“ hefir verið mæld svo ná- kvæmlega, að ekki getur skeik- að nema einum á móti hverjum 100 milljónum. Einn meter er nákvæmlega jafnlangur 1.832.- 129.21 bylgjum í grænu geisl- unum. Þetta efni, „mercury 198“ varð ekki til fyr en á atómöldinni. Vísindamönnum hefir tekizt að framleiða þetta efni með því að fara öfugt að við gullgerðar- mennina gömlu, sem reyndu að breyta kvikasilfri í gull. Nú taka menn gull og setja það undir skothríð nevtróna og framleiða kvikasilfur 198 á þann hátt. Klukkan er tímamælir, en það er nú orðið úrelt að nota klukk- ur með fjöður og óróa. Klukka stofnunarinnar er knúin með titringi í frumeind. Þessi titr- ingur slær 24 milljard sinnum á sekúndu og þar á verður eng- in breyting, svo að klukkan get- ur hvorki seinkað sér né flýtt. Önnur klukka er þar einnig, kúnin titringi í öðru frumefni. Þar eru slögin 9200 milljónir á sekúndu og þetta er óumbreyt- anlegt líka. Geislavirk efni Síðan atómöldin hófst er farið að nota geislavirk efni meira en áður. En þau eru hættuleg í meðförum, eigi síður en þrúð- tundur. Nú er það verk stofn- unarinnar að fá mælikvarða á geislamagnið, svo að menn geti notað það áhættulítið. Ýmis venjuleg frumefni, svo sem járn og brennisteinn, geta orðið geislavirk, líkt og radíum, með því að skjóta á þau með nevtrónum. Slík efni kalla vís- indamenn „isotopa“ og þau geta orðið til margra hluta nytsam- leg, sérstaklega til lækninga á ýmsum kvillum, sem menn réðu ekki við áður. En þessir sömu geislar geta orðið mönnum hættulegir ef þeir eru of sterkir, eða orka á menn að staðaldri. Það er mjög vandfarið með þessa „isotopa“ því að frá þeim stafa ósýnilegir geislar, sem menn verða ekki varir við, en hafa banvæn áhrif á líkamann. Þeir geta leynzt hingað og þang- að í vinnustofum, svo sem í sprungum í veggjum eða gólfi, jafnvel í ryki sem setzt hefir á ýmsa hluti. Þeir geta komizt í sígarettur, varalit og mat og þannig borizt niður í fólk. Þeir, sem eitthvað fást við geislavirk efni, gæta því fyllstu varúðar, svo sem með því að halda vinnu- stofunum hreinum, nota þar sér- stök föt og jafnvel grímu fyrir andliti. Þar eru einnig notaðir Geiger-mælar til þess að finna hvort ósýnisgeislar sé í and- rúmsloftinu, og svo fer fram rannsókn á því lofti, sem menn anda frá sér. í kjarnorku verksmiðjunum eru þykkir veggir, gerðir af steinsteypu og blýi til þess að skýla verkamönnunum. Hefir stofnunin reiknað út og gefið upplýsingar um hve þykkir þess- ir veggir þurfa að vera til þess að öruggt sé að geislarnir kom- ist ekki í gegn um þá. Þetta gildir jafnt hvort heldur verið er að framleiða kjarnasprengjur eða kjarnorku til rafmagnsfram- leiðslu og annarra þarfa. Fyrir nokkrum árum, eða áður en men nvissu til fulls hvað geislavirk efni eru hættuleg, voru konur látnar mála vísira á úrum með radíum-málningu, svo að þeir lýstu í myrkri. Af hugs- unarleysi og þekkingarleysi, varð sumum þeirra á að væta penslana á vörum sér og fengu þá í sig ósýnisgeisla, sem smám saman drógu þær til dauða. Þetta getur nú ekki komið fyrir, því að stöðugar rannsóknir fara fram á öllum þeim, sem eitthvað fást við geislavirk efni, til þess að ganga úr skugga um hvort of mikið af ósýnisgeislum hafi kimizt inn i líkama þeirra. Þetta er gert á þann hátt, að verka- fólkið andar frá sér í loftþétta Framhald á bls. 3

x

Lögberg

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Lögberg
https://timarit.is/publication/132

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.