Lögberg - 06.06.1952, Page 3

Lögberg - 06.06.1952, Page 3
LÖGBERG. FIMTUDAGINN, 6. JÚNÍ, 1952 3 Prestskonan helzti bílstjórinn í vetrarferðum sveitarinnar Breiðdalur er blómleg og mann- mörg sveit. en illa á vegi stödd með vegasamband Það mun ekki vera algengt í íslenzkum sveitum, að menn hringi til prestskon- unnar, þegar þeir þurfa að komast um sveitina í brýn- um erindum, senda böggla, sem mikið liggur á, kannske koma lyfi til sjúklings eða flytja lækni og yfirsetu- konu. En þannig hefir þetta samt verið í Breiðdalnum í vetur, og frú Anna Þor- steinsdóttir kona séra Krist- ins Hósíassonar, Heydölum, hefir brugðið við og reynt að leysa vandann, ef þess hefir verið nokkur kostur. Og þetta er meira að segja í sveit, þar sem nálega engir vegir eru nema ruðningar, ár og lækir eru óbrúuð og oft verður að aka utan vegar yfir móa og mela vegna snjóalaga. í þessar ferðir er engum bílum fært nema jeppa og Landrover. Tíðindamaður blaðsins hafði heyrt á skotspónum um þessa óvenjulegu aðstoð, sem prests- konan veitir sveitungum sínum, og hringdi til hennar, þar sem hún er stödd hér í bænum um þessar mundir. En frú Anna vill fátt um þetta tala og telur það alls ekki umtals vert, en vill miklu fremur minnast á ýmislegt, sem til almennra tíð- inda má telja í sveit hennar og framfaramál, sem hún ber fyrir brjósti. „Það er ekki í írásögur færandi" — Jú, það er rétt, segir hún, að ég hef stundum skotizt bæj- arleið fyrir sveitunga í vetur, þegar á hefir Iegið, en slíkt er ekki í frásögur færandi. Það eru fáir bílar í dalnum og aðeins einn jeppi og tveir Landrover- bílar. Annar Landroverbíllinn er hjá okkur, en hinn hefir ekki verið hafður í akstri í vetur. Jeppinn er á bæ þar sem ekki er sími, svo að ekki hefir verið eins auðvelt að grípa til hans. Mað- urinn minn er ekki búinn að taka bílpróf, svo að ég hefi reynt ,að verða að liði, þegar eitthvað hefir legið við. Ég hef því farið nokkrar ferð- ir um sveitina, og reynt að lið- sinna, þegar til okkar hefir verið leitað, og mér finnst alveg undra vert, hvað hægt er að komast á Landroverbílnum. Þetta hefir allt gengið vel. Lítið um nýbyggingar vega Innan sveitar eru vegirnir mjög slæmir, einkum að vetr- inum. Til skamms tíma hefir allt það fé, sem veitt hefir verið þar til vegagerða farið í viðhald að sumrinu. Nú er þó aðeins byrjað á upphlöðnum vegi milli Heydala og Breiðdalsvíkur, en á þeirri leið er einna verstur vegur í allri sveitiryii. Við þetta seinm- Tíðin hefir verið svo góð, eink- um seinni hluta vetrar, að jeppa fært hefir verið um alla sveit- ina inn undir heiði, en farartálmi er að því, að brýr og ræsi vant- ar á smáár og læki. Flugvöllur að Heydölum Að Heydölum hefir verið mælt fyrir flugvelli og vonum við að geta fljótlega gert hann svo úr garði, að auðvelt verði að lenda þar á litlum flugvélum. Flug- vallarstæði er þarna gott á nokk- uð víðáttumiklum og sléttum melum. Erfitt um félagsstarf Vegna samgönguerfiðleikanna er mjög erfitt að halda uppi hvers konar félagsskap í sveit- inni, og er það ömurlegt fyrir unglingana, sem heima eru á veturna. í sveitinni munu alls vera um 250 íbúar. Fyrir nokkr- um árum var byggt vandað sam- komu- og íþróttahús að Heydöl- um. Einnig er byrjað þar á grunni að heimavistarbarna- skóla. 1 seinni tíð hefir þó dofnað yfir áhuganum á þessum fram- kvæmdum, og er það þó ekki vegna þess, að ekki sé full þörf á skólahúsi, því að starfræksla barnaskólans er eitt mesta vanda mál okkar eins og nú er, heldur fremur af því, að á síðustu árum hefir myndazt dálítið þorp á Breiðdalsvík, og telja nú margir, að heppilegra væri að byggja skólann þar. Lítil vinna á Breiðdalsvík Á Breiðdalsvík er hraðfrysti- hús en vinna hefir engin verið við það í vetur. Þótt tveir vél- bátar séu á staðnum, hefir hvor- ugur þeirra róið þaðan í vetur. Vélbáturinn Goðaborg er gerður út frá Hornafirði. Lítið sækisl Þótt eitt og annað færist til betra horfs í sveitinni okkar, segir frú Anna að lokum, finnst okkur helzt til lítið miða. Hver dagurinn er öðrum líkur, og kannske tekur maður ekki eftir því. Alltaf er þó eitthvað að breytast. —TÍMINN, 9. apríl Furðuverka stofnunin Framhald af bls. 2 blöðru og síðan er þetta loft rannsakað í stofnuninni, með svo mikilli nákvæmni, að ef grunur leikur á að einhver hafi fengið í sig of mikið af ósýnis- geislum (radíum eða radon), þá er honu mgefið frí um skeið með fullum launum, eða þá að hann er settur til einhverra annarra starfa. Galdravélar Stofnunin hefir látið gera tvær furðulegar vélar, sem eru sann- kallaðar galdravélar og munu hafa í för með sér algjöra bylt- ingu á sviði vísindanna. Þetta eru reiknivélar, sem geta lagt saman, dregið frá, margfaldað og deilt með óslAljanlegum hraða, enda þótt um 14 stafa tölur sé að ræða. Á hálfri klukku stund geta þær leyst af hendi það reikningsdæmi, sem einn maður væri tvo mánuði að leysa með venjulegum skrifstofu- reiknivélum. Af þessu leiðir, að vísindamenn og vélfræðingar geta nú leyst á stuttri stund svo flókin stærðfræðidæmi, að þau voru fyrir skemmstu talin óleys- anleg, vegna þess að þurft hefði tugi hundraða mann síreiknandi í marga mánuði og jafnvel árum saman til þess að ráða fram úr þeim. Vélar þessar ganga fyrir raf- magni og það er engu líkara en að þær hafi manns vit. Og þeim getur ekki skjöplazt, því að þær hafa verið látnar leysa ótal flóindæmi, er menn vissu áður svör við. Hjálp í hernaði Á óteljandi marga vegu hjálp- aði stofnunin Bandamönnum til þess að sigra í heimsstyrjöldinni töfðust einnig samgönguleysi innan sveitar bætist svo, að aðeins lítil skip geta lagzt að bryggju á Breið- dalsvík og því aðeins að gott sé í sjó. Samgöngurnar á sjó bæta því ekki úr eins og þyrfti. Breiðdalsheiðin ófær Á sumrin á að heita, að við séum í sambandi við vegakerfi landsins, en varla lengur en tvo eða þrjá mánuði. Breiðdalsheið- in er hár fjallvegur og brattur, og aðeins ruddur vegur yfir hana. Er hún því einhver versti fjallvegur á landinu á allri leið- inni norður fyrir land. Og Breiðdalsheiðin er ófær vegna snjóa níu eða tíu mánuði ársins. Nú er verið.að leggja veginn fyrir Berufjörð og má búast við mjög aukinni umferð að sumr- inu. Þegar Roosevelt forseti heyrði það, að Þjóðverjum hefði tekizt að sundra atómi, þá gaf hann stofnuninni skipun úm að finna aðferð til þess ásamt öðrum vís- indamönnum. Það voru þá líka efnafræðingar stofnunarinnar, sem fundu aðferð til þess að hreinsa úraníum og grafít, en það voru nauðsynlegustu efnin í kjarnorkusprengjuna. Þeir að- stoðuðu líka við það með ráðum og dáð að koma upp fyrsta kj arnorkuverinu. Þeir fundu líka upp „radio- heilann“, sem notaður er í sprengjur, rakettur og sprengi- kúlur og gerir þær mörgum sinnum hættulegri en áður var. Þessi uppfinning átti mjög mik' inn þátt í sigri Bandamanna. En ekki voru vísindamenn „Stand- ard Bureau“ einir um hana, því að þeir nutu þar aðstoðar vís^ indamanna frá John Hopkins háskólanum. Þessi „heili“ er í rauninni ör- lítið útvarpstæki, er sendir frá sér rafbylgjur, er fara miklu hraðar en skeytið. Þegar raf bylgjur þessar lenda á skot markinu, endurkastast þær og um leið og þær koma aftur til skeytisins valda þær spreng' ingu í því. Vegna þessa er það ekki nauðsynlegt að skeytin sjálf hæfi markið, en þau springa svo nærri því að það nægir. Sér staklega hafði þetta mikla þýð- ingu þegar skotið var á flugvél- ar. En það hafði líka sína þýð- ingu annars staðar, því að sprengjur, sem sundrast nokkuð fyrir ofan yfirborð jarðar valda miklu meira tjóni heldur en þær sprengjur, er sundrast fyrst er þær reka sig á jörðina, því að þá grafast þær niður, en sprengju- strókurinn stendur beint upp í loftið. Kúlur, sem springa með- an þær eru á flugi, tvístrast í allar áttir og eru því stórum hættulegri fótgönguliði heldur en hinar gömlu sprengikúlur, og þá er mönnum ekki óhætt í skot- gröfum, enda varð Japönum að því á eynni Iwo Jima. Þessi uppgötvun með „sprengjuheilann“ mun og verða til þess, að innan skamms fáum vér svo lítil útvarpstæki, að hægt verður að bera þau í vestisvasanum. Vegna þess hvað þau eru lítil er ekki hægt að koma þar fyrir neinum vírum né spólum. En vísindamennirnir fundu upp ráð til þess að losna við þær leiðslur. Þeir fundu upp á því að mála örmjó stryk með silfurbleki á plastik, leirplötu eða annað einangrunarefni. Og þessi stryk voru jafngóðir raf- magnsleiðarar eins og kopar- þræðirnir höfðu áður verið. Þessa uppgötvun er nú þegar farið að nota við smíði heyrnar- tækja, enda eru þau nú stórum minni fyrirferðar en áður var. Kemur þetta sér einkum vel í flugvélum, þar sem mjög verður að spra rúm. Bandaríkjunum, af sömu ástæðu. Það var eftir tillögu „Stand- ard Bureau“ að Kanada, Banda- ríkin og Bretland hafa nú sam- jykkt að nota sams konar skrúfu gang og mun það hafa geisi- mikla þýðingu í framtíðinni, vegna þess að í ^estum hlutum, allt frá vasaúrum að herskipum, er geisimikið af alls konar skrúf- um. Hér eftir er það nú alveg sama hvar þessar skrúfur eru smíðaðar í þessum þremur ríkj- um, þær hæfa sem varahlutar alls staðar. Spá um hlustunarskilyrði Vísindamenn stofnunarinnar hafa stöðugt vakandi auga á sól- inni, því að ýmistlegt sem þar gerist hefir stórkostleg áhrif á líf okkar jarðarbúa, en einkum hefir sólin þó mikil áhirf á út- varpssendingar. Útbláir geislar frá sólinni rafmagna eða „ion- isa“ loftlögin 50 til 250 mílur út frá jörðinni, og þar myndast hið svokallaða „ion-svið.“ — Út- varps stuttbylgjur fara í stórum sveiflum umhverfis jörðina milli þessa sviðs og jarðarinnar. En „ion-sviðið“ er duttlungafullt. — Að morgni geta útvarpsbylgj- unrar komizt leiðar sinnar slyndrulaust, en svo er það allt í einu að það er eins og þær þjóti í gegnum „ion-sviðið“ og hverfi út í geiminn. Þá er þó stundum hægt að bæta úr þessu með því að skipta um bylgju- lengd. Verst er þegar miklir sól- blettir eru og mekkir af frum- eindum geisast frá sólinni í átt til jarðar. Þá truflast allar út- varpssendingar og þá er talað um að hlustunarskilyrði séu slæm. Það er nú hlutverk stofn- unarinnar að hafa gát á þessu og tilkynna þegar slíkar trufl- anir eru í aðsigi. Það kalla þeir „radioveðurspá“. Sú spá nær þrjá mánuði fram í tímann, og á henni geta menn séð hvaða bylgjulengd verður heppilegust á hverjum tíma og á hverjum stað, svo að útvarpssendingarn- ar fari ekki út í veður og vind og týnist í háloftunum. Einnig eru gefnar út spár fyrir nokkra daga í senn eða viku til þess að sýna breytingar frá degi til dags. Þessar spár nota nú öll flugfé- lög, eimskipafélög, útvarpsstöðv- ar og loftskeytastöðvar. Þessar spár munu geta haft ákaflega mikla þýðingu í hernaði, bæði fyrir herskip og flugvélar. — Stofnunin á líka hróðurinn af því að hafa fundið upp aðferð til þess að útiloka trúflanir frá hreyflum flugvéla, svo að hægt er að taka þar á móti loftskeyt um, útvarpi og skeytum frá miðunarstöðvum. Hún fann líka upp tæki til þess að flugmenn geta lent „blindandi“, þegar veður er þannig að ekki sér til umferðarljósa á flugvöllum. Þá hafa og vísindamenn hennar fundið upp mælitæki, sem sett eru í flugbelgi, og senda þessi tæki sjálf skeyti úr háloftunum um það hvernig vindstaða er jar, hitastig og þéttleiki loftsins Þei rfundu líka upp sjálfvirkar veðurathugunarstöðvar, sem senda þráðlaust allar ypplýsing- ar um veðrið, enda þótt enginn maður sé þar nálægt. Business and Professional Cards PHONE 724 944 Dr. S. J. Jóhannesson SUITE 6—652 HOME ST. ViStalstfmi 3—5 eftlr hádegi J. J. SWANSON & CO. LIMITED 308 AVENUE BLDG. WINNIPEG Fasteignasalar. Leigja hús. IJt. vega peningalán og eldsábyrgð, bifreiðaábyrgð o. s. frv. Phone 927 538 Samræmdur skrúfugangur Það varð til ótrúlega mikils trafala og tímaþjófnaðar í sein- asta stríði, að brezkar verk- smiður og amerískar verksmiðj- ur höfðu mismunandi skrúfu- gang á varningi sínum. Bretar keyptu t. d. einu sinni 100.000 súrefnisgeyma í Bandaríkjunum til þess að setja í flugvélar sín- ar, en urðu að þreyta þeim al- gjörlega vegna þess að ekki var hægt að festa þá, þar sem skrúfu gangurinn var annar. Brezk her- skip, sem leituðu viðgerðar Læknirinn átti í basli við vél- ma í bílnum sínum, sem hafði stoppað á förnum vegi, og bölv- aði hann hraustlega á meðan hann reyndi allt, sem hann gat hugsað sér til að koma vélinni í gang aftur. Presturinn í þorp- inu átti leið fram hjá og heyrði bölvið og ragnið í lækninum, gekk til hans og sagði: — Alveg er ég undrandi á eins vel gefnum manni eins og yður að bölva svona. Hvers vegna biðjið þér ekki heldur „í Guðs nafni“ um að vélin fari í gang? •— í Guðs nafni þá, sagði lækn- irinn og vélin fór í gang. — Hver djöfullinn! hraut þá út úr prestinum! SARGENT TAXI PHONE 204 845 PHONE 722 401 FOR QUICK. RELIABLE SERVICE DR. E. JOHNSON 304 EVELINE STREET Selkirk, Man. Office Hours 2.30 - 6 p.m. Phonea: .Office 26 — Res. 230 Andrews, Andrews, Thorvaldson and Eggertson LögfrœOlmgar 209 BANK OF NOVA SCOTIA BG. Portage og Garry St. Phone 928 291 C A N A D I A N FISH PRODUCERS, LTD. J. H. PAGE, Managing Director Wholesale Dlstributors of Fresh and Frozen Fish. 311 CHAMBERS STREET Offlce Ph. 26 328 Res. Ph. 73 917 Office Phone 924 762 Res. Phone 726 115 Dr. L. A. Sigurdson 528 MEDICAL ARTS BLDG. Office Hours: 4 p.m. - 6 p.m. and by appolntment. A. S. BARDAL LTD. FUNERAL HOME 843 Bherbrook Street Selur iíkkiatur og annast um út- farir. AUur útbúnaCur sá beztl. StofnaO 1894 Sími 27 324 Phone 23 996 700 Notre Dame Ave. Opposite Matemlty Pavillion. General Hospital. Nell’s Flower Shop Weddlng Bouquets. Cut Flowers. Funeral Designs, Corsages. Beddlng Plants Nell Johnson Res. Phone 27 482 Office 933 587 Res. 444 389 THORARINSON & APPLEBY BARRISTERS and SOLICITORS 4th Floor — Crown Trust Bldg. 364 Main Street WINNIPEG CANADA SELKIRK MEIAL PRODUCTS Reykháfar, öruggasta eldsvörn, og ávalt hreinir. Hitaeiningar- rör, ný uppfynding. Sparar eldi- vi8, heldur hita frá aS rjúka út meC reyknum.—SkrifiC, stmlC til KELLY SVEINSSON 625 Wall Street Winnipeg Just North of Portage Ave. SSmar: 33 744 — 34 431 DR. H. W. TWEED Tannlœknir 508 TORONTO GENERAL TRUSTS BUILDING Cor. Portage Ave. og Smith St. Phone 926 952 WINNIPEG Creators of Distinctive Pringting Columbia Press Ltd. 695 Sargent Ave.. Winnlpeg Phone 21804 S. O. BJERRING Canadian Stamp Co. RUBBER & METAL 'STAMPS NOTARY & CORPORATE SEALS CELLULOID BUTTONS 324 Smiih Si. Winnipeg PHONE 924 624 Phone 21101 ESTIMATES FREE J. M. INGIMUNDSON Asphalt Roofs and Insulated Siding — Repairs Country Orders Attended To 632 Simcoe St. Winnipeg, Man. GIMLI FUNERAL HOME 51 First Avenue Ný útfararstofa meC þeim full- komnasta útbúnaCi, sem völ er á, annast virCulega um útfa»ir, selur líkkistur, minnisvarCa og legsteina. Alan Couch, Funeral Director Phone—Business 32 Residence 59 DR. A. V. JOHNSON Dentist 506 SOMERSET BUILDING Telephone 97 932 Home Telephonpe 202 398 DR. ROBERT BLACK SérfrœOingur i augna, eyma, nef og hálssjúkdómum. 401 MEDICAL ARTS BLDG. Graham and Kennedy St. Skrifstofusimi 923 815 Heimasimi 403 794 Comfortex the new sensation for the modem girl and woman. Call Lilly Malthews, 310 Power Bldg., Ph. 927 880 or evenings, 38 711. GUNDRY PYMORE Limited Britlsh Qualitv Fish Nettino 58 VICTORIA ST. WINNIPIG Phone 928 211 Manager T. R. THORVALDSON Your patronage wiU be appredated Dr. P. H. T. Thorlakson WINNIPEG CLINIC St. Mary'a and Vaughan, Winnipeg PHONE 926 441 PHONE 927 025 H. J. H. Palmason, C.A. H. J. PALMASON 9 CO. Chartered Acconntanta 505 Confederatlon Life Bldg. WINNIPEG MANITOBA Minnist BETEL í erfðaskrám yðar. PARKER, PARKER & KRISTJANSSON Barrislers - Solicilors Ben C. Parker, K.C. B. Stuart Parker, A. F. Kristjanaaon 500 Canartlan Bank of Commerea Chamben Wlnnlpeg, Man. Phone 923 M1 G. F. Jonasson, Pres. & Man. Dir. Keystone Fisheries Limited Wholesale Distributors of FRESH AND FROZEN FISH 404 SCOTT BLK, Sími 925 227 Bullmore Funeral Home Dauphin, Maniboba Eigandi ARNI EGGERTSON, Jr. I

x

Lögberg

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Lögberg
https://timarit.is/publication/132

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.