Lögberg - 26.06.1952, Síða 1
65. ÁRGANGUR
WINNIPEG, FIMTUDAGINN, 26. JÚNÍ, 1952
Hjúskaparafmæli, sem vakti mikla athygli
Hið fágæta75 ára hjúskap-
arafmæli landnámshjónanna
Kristjáns G. Kristjánssonar og
Svanfríðar Jónsdóttur í Eyford-
byggðinni íslenzku í Norður-
Dakota, er haldið var hátíðlegt
þ. 7. júní síðastliðinn vakti að
vonum mikla athygli, enda bar
102 ára afmæli Kristjáns upp á
sama dag.
Ættingjar og vinir, sem í ná-
grenninu búa, vottuðu, eins og
vænta mátti, hinum aldur-
hnignu merkishjónum virðingu
sína og þakkarhug á þessum
sjaldgæfa heiðursdegi þeirra;
meðal annars hyllti heill bland-
aður kór barna-barna þeirra þau
með íslenzkum söng á afmælinu.
Fjöldi heillaóskaskeyta barst
demantsbrúðhjónunum einnig,
og má þar sérstaklega nefna
símkveðju frá dr. theol. Magnúsi
Jónssyni prófessor og frú hans
í Reykjavík, en dr. Magnús var,
eins og kunnugt er, um nokkur
ár sóknarprestur Garðar- og
Þingvallasafnaðar þar í byggð-
inni.
Dagblaðið „Grand Forks Her-
ald”, annað útbreiddasta blað
Norður Dakota ríkis, birti í til-
efni af hinu tvígilda afmæli
þeirra hjóna mjög ítarlega grein
um þau og söguríkan æviferil
þeirra, ásamt með ágætri mynd
af þeim, heimili þeirra og hinum
stóra og mannvænlega barna-
hóp þeirra. Fréttastofan “The
Associated Press, sendi einnig
mynd af demantsbrúðhjónunum
til blaða sinna víðsvegar, og má
því telja víst að hún hafi farið
víða um landið.
Loks má geta þess, sem vitan-
lega gladdi sérstaklega hin
öldnu heiðurshjón, ættingja
þeirra og vini, að þeim barst í
tilefni af 75 ára hjúskaparaf-
mælinu einkar hlýtt og faguryrt
bréf frá herra Harry S. Truman,
forseta Bandaríkjanna, og verð-
ur það línum þessum samfara:
Samfagna landar þeirra hjón-
anna þeim einlæglega yfir þeirri
maklegu heiðursviðurkenningu
og biðja þeim blessunar á ævi-
kveldi eftir langan starfsdag og
gagnmerkan,— RICHARD BECK
THE WHITE HOUSE
WASINGTON June 3, 1952
Mr. and Mrs. Kristjan G.
Kristjanson,
Edinburg, North Dakota.
Dear Mr. and Mrs. Krisljanson:
It gives me real pleasure to
have the privilege of greeting
you on another wedding anni-
versary on June seventh. Those
who attain their seventy-fifth
anniversary are few in numbers,
and I am sure that your host of
friends to whom you have
endeared yourselves are happy
to have an opportunity to share
in the felicitations which you
Fyrirs^urnir og svör um íslenzku
landhelgina í brezka þinginu
í neðri deild brezka þingsins
í gær var borin fram fyrirspurn
um það, hvernig málin stæðu í
orðsendingaskiptum þeim, sem
fram hafa farið undanfarið milli
ríkisstjórna Breta og íslendinga
Um hinar nýju reglur og stækk-
íslenzku fiskveiðilandhelg-
un
innar.
Selvyn Lloyd ráðherra varð
fyrir svörum, og sagði að brezku
stjórninni hefði í vikunni sem
leið borizt svar íslenzku stjórn-
arinnar við þeim tilmælum
brezku stjórnarinnar, að íslend-
ingar endurskoðuðu gerðir sín-
ar í þessu máli og létu hinar
nýju reglur ekki koma óbreyttar
til framkvæmda þegar í stað.
Hefði íslenzka stjórnin svarað
þeim tilmælum Breta algerlega
neitandi, og væri reglugerðin því
gengin í gildi.
Ráðherrann ræddi málið
nokkru nánar og sagði, að aug-
ljóst væri, að stækkun íslenzku
fiskveiðilandhelginnar mundi
hafa enn alvarlegri afleiðingar
fyrir brezka fiskimenn og út-
gerðarmenn en stækkun norsku
landhelginnar og úrskurður
Haag-dómsins í því máli, og
væru þær afleiðingar ekki
komnar að neinu ráði í ljós enn.
Hann kvað brezku stjórnina
hafa lagt mjög fast að íslenzku
stjórninni að fara aðrar leiðir í
þessu máli og hefðu munnlegar
og skriflegar viðræður lengi far-
ið fram um málið. Nú hefði
stjórnin enn málið til athugun-
ar og yrði sá möguleiki rann-
sakaður til hlítar að skjóta því
undir alþjóðadóm. Hverjar líkur
væru til að það ynnist, kvaðst
hann ekki geta skýrt að sinni
því að málið væri væri allt
flókið og margþætt.
Einn þingmanna úr verka-
mannaflokknum spurði þá, hvort
ráðherrann gerði sér ljóst, að
framkvæmd íslendinga á reglu-
gerðinni gæti leitt til þess, að
um löndunarstöðvun af hálfu
brezkra fiskkaupmanna gæti
orðið að ræða og ýmsa aðra örð-
ugleika í þessum verzlunarvið-
skiptum Breta og íslendinga.
Ráðherrann kvað stjórninni vera
þetta allt vel ljóst, og einnig
væri viðbúið að það leiddi mörg
önnur vandkvæði af sér. Úr-
skurður Haagdómstólsins mundi
og vafalaust færa Bretum ýmsa
örðugleika, sem enn væru ó-
séðir. —TÍMINN, 20. maí
Skipaður
aðstoðarskólastjóri
Jón K. Laxdal
Herra Jón Laxdal, sem gegnt
hefir kennaraembætti við kenn-
araskóla Manitobafylkis, Mani-
toba Provincial Normal School
síðan 1947, hefir frá 1. júlí næst-
komandi að telja verið skipaður
aðstoðarskólastjóri þessarar fjöl-
sóttu mentastofnunar.
Jón K. Laxdal ei; fæddur á
Húsavík 26. október árið 1900,
sonur hinna kunnu og glæsilegu
hjóna Gríms Laxdal og Svein-
bjargar Torfadóttur, er um langt
skeið áttu heima í þessu landi,
will receive on this significant
occasion I am told that you,
Mr. Kristjanson, will also cele-
brate your one hundred an sec-
ond birthday on the same date,
and that both of you are among
the oldest pioneers of our
country. I am sure you must
have many gratifying memories
of such long and full life. My
very best wishes to you.
Very sincerely yours,
(Signed) Harry S. Truman
UNGFRÚ ELMA MARTIN
Miss Canada á landnámshátíð
Nýja-íslands að Hnausum 1. júlí
1952
FRtJ ÓLÖF ODDLEIFSSON
Fjallkona landnámsháiíðar Nýja-íslands að Hnausum 1. júlí 1952
Hermálaráðherra Breta heimsækir Japan,
Kóreu, Canada og Bandaríkin
Hermálaráðherra b r e z k u
stjórnarinnar og fyrrum land-
stjóri í Canada, Alexander jarl,
er nýlega kominn heim úr heim-
sókn til Japan, Kóreu, Canada og
Bandaríkjanna; fór hann til
en nú eru fyrir nokkru látin.
Jón kom hingað vestur árið
1911 og dvaldi um hríð hjá for-
eldrum sínum í Kristnesbygð-
inni í Saskatchewan; hann gekk
á miðskóla í Wynyard, en stund-
aði síðan nám í Saskatoon og á
Jóns Bjarnasonarskóla í Winni-
peg. Árið 1930 lauk Jón Bachelor
of Arts prófi við Manitobahá-
skólann, en árið 1946 Bachelor
of Education prófi; hann var
þrjú ár skólastjóri í Árborg, en
kendi á Gimli í sextán ár og
hafði þar á hendi skólastjórn í
tólf ár við hinn ágætasta orð-
stír, enda er hann alment talinn
frábærlega hæfur kennari.
Jón er hið mesta glæsimenni
og að sama skapi góður drengur;
Kóreu einkum með það fyrir
augum, að kynna sér persónu-
lega hið hernaðarlega viðhorf
þar um slóðir af hálfu sameinuðu
þjóðanna, en hann er í fremstu
röð hernaðarsérfræðinga, sem nú
eru uppi; fullnaðarskýrslur yfir
athuganir hans og niðurstöður
hafa enn eigi verið birtar, en
svo mikið er víst, að hann telur
aðstöðu hinna sameinuðu herja
austur þar með öllu örugga; að
vísu kvað hermálaráðherra það
ekki óhugsanlegt, að kommún-
istar gæti í skiplögðu áhlaupi
sveigt um stundarsakir varnar-
línu frelsisherjanna þó lítil hætta
væri á að þeir fengi nokkru sinni
rofið hana; hann átti viðræður
við hina æðstu herforingja í
Kóreu og fjöldi óbreyttra liðs-
manna og dáði mjög þá einingu,
er hvarvetna ríkti; aðspurður
um það, er til Ottawa kom, hver
skoðun hans væri á hinum lang-
dregnu vopnahléstilraunum 1
Kóreu, svaraði hermálaráðherra
því til, að fæst orð hefðu vitan-
Skúli Hrútfjörð
fer til íslands
Skúli Hrútfjörð, nafnkunnur
búfræðingur við Minnesota há-
skólann, verður á Islandi í sum-
ar í sambandi við áframhaldandi
„Marshall-aðstoð“, sem veitist
íslenzkum búskap, ásamt öðr-
um atvinnugreinum. Fékk hann
tilkynningu þess efnis frá banda-
rískum stjórnaryfirvöldum í
Washington fyrir skömmu, og
á föstudaginn gengu yfirráðs-
menn Minnesota háskólans inn
á það að Skúla yrði veitt fjar-
veruleyfi frá störfum fram á
haust.
Skúli — en hann er nefndur
Skúli H. Rutford á ensku —
hefir í fjölda mörg ár verið einn
af leiðtogum útbreiðslustarfs
búnaðarsamtaka, stjórnar og há-
skóla í Minnesota. Staða hans
nú er “deputy director of the
agricultural exstension division”
og veitti hann deildinni forstöðu
í tvö ár nýlega á meðan að Paul
Miller, deildarstjórinn, var er-
lendis.
íslenzk yfirvöld fóru fram á
það fyrir nokkru að æskilegt
væri að búnaðarsérfræðingur —
helzt af íslenzkum stofni —
kæmi til landsins til þess að at-
huga skipulagningu og högun
búnaðarfélagsstarfa. Skúli varð
fyrir valinu hjá Washington
yfirvöldunum, þegar beiðnin
kom þangað frá íslandi.
Leifur Guðmundsson, faðir
Skúla, tók sér nafnið Hrútfjörð
sem ættarnafn, auðvitað frá átt-
högum sínum; dó Leifur árið
1931 í Duluth, Minnesota, þar
sem hann hafði búið í mörg ár.
Solveig Bjarnadóttir, móðir
Skúla, dó 1918; var hún af skag-
firskum ættum, alin upp að
mestu leyti með frænku sinni,
Bríetu Bjarnhéðinsdóttur, í
Reykjavík. Var hún systir Þóris
Björnssonar, er dó í Blaine fyrir
tíu árum.
Aths. Frétt þessa sendi Valdimar
Björnsson fjármálaráðherra
Minnesotaríkis Lögbergi til birt-
ingar, og skal honum hér með
þökkuð hugulsemin. —Ritstj.
þótt enn hafi eigi opinberlega
verið frá því sagt.
Eins og vænta mátti, fagnaði
Ottawa hinum fyrri sambýlis-
manni sínum með kostum og
kynjum, en lávarðurinn sagði að
sér fyndist engu líkara en hann
væri kominn heim-til sín.
Alexander lávarður naut frá-
bærra vinsælda þann tíma, er
hann gegndi hinu veglega kon-
ungsfulltrúaembætti í þessu
landi; hann ferðaðist þvert og
endilangt um landið og kyntist
canadisku þjóðinni frá hafi til
hafs.
Grunnkaup
hækkað
hann er kvæntur Láru ísberg
frá Baldur, hinni mestu ágætis-'Lle§a minsta ábyrgð, þó hann á
konu, og eiga þau þrjú mann-
vænleg börn, Jón 15 ára, Joanne
13 ára og Shirley 8 ára.
Jón er manna félagslyndastur
og er um þessar mundir formað-
ur Icelandic Canadian Club;
hann á einnig sæti í fram-
kvæmdarnefnd Þjóðræknisfé-
lagsins.
hinn bóginn teldi engan veginn
vonlaust um að samkomulag
kynni að nást og vopn yrði lögð
niður.
í Ottawa og Washington sat
Alexander lávarður fund með
hernaðaryfirvöldum hlutaðeig-
andi þjóða og mun þar margt
og merkilegt hafa borið á góma,
Sakaður um
njósnarstarfsemi
Brezkur maður William Mar-
til Marshall 24 ára að aldri, hefir
verið tekinn fastur, og er sak-
aður um að hafa rofið trúnaðar
eið sinn sem starfsmaður utan-
*
ríkisþjónustunnar með því að
veita Rússum ýmissar mikil-
vægar upplýsingar, er þeir
margvíslegan hátt hefðu vel
mátt færa sér í nyt. Mr. Mars-
hall hefir neitað ákærum þess-
um þótt þunglega horfist á um
málstað hans, með því að ýmis
konar sannanagögn hafa fundist
í fórum hans að því er nýjustu
fregnir herma.
Verkamálaráðherra fylkis-
stjórnarinnar í Manitoba, Char-
les E. Greenlay, hefir kunngert,
að lágmarkskaup karlmanna yfir
átján ára aldur verði 60 í stað
50 cents á klukkustund, en
kvenna 55 cents. Grunnkaup
piltna og stúlkna innan átján ára
aldur verður fjörutíu og átta
cents á klukkustund.
Nú er svo mælt fyrir, að vinnu
veitendur megi eigi láta ungl-
inga innan átján ára aldurs lyfta
þungavöru, er valdið geti of-
reynslu.
Hert á sókn í Kóreu
Síðastliðinn föstudag hófu
hersveitir sameinuðu þjóðanna
snarpa sókn gegn kommúnistum
á miðvestur vígstöðvunum, er
stóð yfir í fullar fjórar klukku-
stundir. Kommúnistar voru
a drjúgum mannfleiri og er mælt,
að liðsafli þeirra næmi nálega
fjórum þúsundum; en þrátt fyr-
ir það biðu þeir átakanlegan ó-
sigur og mistu hátt á níunda
hundrað manns. Hersveitir hinna
sameinuðu þjóða náðu á vald
sitt í viðureign þessari mestu
kynstrum af alls konar vopna-
birgðum.